[Spurningar úr einstökum köflum Bárðar sögu] [Bárðar saga Snæfellsáss]
 
11. og 12. kafli
Uppruni Gests

Hvers vegna „fíflar“ Bárður Þórdísi Skeggjadóttur og getur við henni soninn Gest?

Hvað heldurðu að Þórdísi hafi fundist um þetta?

Hvernig komst Bárður inn á á heimilið?

Hvað er Þórdís gömul þegar hún verður barnshafandi?

Af hverju sækir Helga Gest og hvað er Gestur þá gamall?

Af hverju verður kalt milli Miðfjarðar-Skeggja og Þórdísar eftir þetta?
 


 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 

Hjónaband Þórdísar Skeggjadóttur

Hverjum giftist hún?
Hvar búa þau hjón?
Hvað heita synir þeirra?
 


 
 

 

Teiknaðu snyrtilega ættartölu hér neðar á blaðinu sem sýnir hvernig ætt Bárðar tengist ætt Miðfjarðar-Skeggja. 

 
 
 
Viðurnefni
Í þessum kafla og öðrum eru nokkur viðurnefni.  Skrifaðu skýringu þeirra eða hvað þau þýða.
Þorkell skinnvefja  
Ólöf elliðaskjöldur  
Þórður gellir  
Gunnlaugur ormstunga  
Arnór hýnefur  
Hermundur hokinn  
Þóroddur drápustúfur  
Auðunn skökull  
Þorgils gjallandi  

 
 
 
 
 
 
Gert í ágúst 2004.
Uppfært í maí 2010.
Harpa Hreinsdóttir.