Dánarfregn

Látinn er Án hrísmagi. Hann fékk skjótan bana er hann var höggvinn í herðar niður. Ódæðismaðurinn var Bolli Þorleiksson, en Án hafði farið að honum ásamt Helga Harðbeinssyni, Lamba Þorbjarnarsyni, Ólafssonum og fleiri til þess að hefna vígs Kjartans Ólafssonar. Útför Áns verður næstkomandi laugardag.