Maður dagsins

Maður dagsins er Hrappur Sumarliðason. Við hjá Laxdælufréttum náðum tali af honum og fengum hann til þess að svara nokkrum spurningum.

1. Hvaðan ert þú, Hrappur?

Ég er suðureyskur að ætt og bý nú að Hrappstöðum.

2. Hvað ert þú gamall?

Ég er 35 vetra gamall.

3. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir?

Það er að gerast úrigur viðureignar og vera nábúum mínum ágangssamur.

4. Hefur þú konu þér við hlið?

Já, indælismanneskju. Hún heitir Vigdís.

5. Hvað ætlar þú að gera næstu tuttugu árin?

Ég er alveg viss um að ég verð drepinn bráðlega. Þegar það gerist þá geng ég aftur og gerist illskeyttari en ég var áður.

Við þökkum Hrappi Sumarliðasyni fyrir spjallið.