Þegar hnígur húm að þorra

Hannes Hafstein

Björn M. Olsen


Þegar hnígur húm að þorra,

oft ég hygg til feðra vorra,

:,:og þá fyrst og fremst til Snorra,

sem framdi Háttatal:,:


Áður sat hann skýr at Skúla

og þar skálda lét sinn túla

:,:bæði um hann og Hákon fúla,

sem hirti frelsi vort:,:


Fögur knáttu fullker geiga,

sem að gaman væri að eiga,

:,:full að safa sætra veiga,

er sveif á alla drótt.:,:


Snorri kallinn kunni að svalla

og að kæta rekka snjalla,

:,:þegar húmi tók að halla

í höllu Skúla jarls:,:


Og hann þoldi að þreyta bögur

og að þylja fornar sögur,

:,:já, allt fram til klukkan fjögur,

þá fór hann í sitt ból.:,:


Samt frá hilmi heim hann stundar

út til helgrar fósturgrundar.

:,:og sitt skip að búa skundar

það skáldmæringa val:,:


Þá kom boð frá herra Hákon

sem var harður eins og Drákon.

:,:,,Ég er hákon-" sagði Hákon,

,,ég er hákonservativ".:,:


,,Ég vil út! Ég vil út að bragði!

Ég vil út", þá kempan sagði.

:,:,,Ég vil út", og út hann lagði

til Íslands sama dag.:,:


Af því beið hann bana síðar

fyrir buðlungs vélar stríðar.

:,:Síðan gráta hrímgar hlíðar

og holt um Borgarfjörð.:,: