[Íslandsklukkan] [Halldór Laxness] [Kennsluvefir Hörpu Hreinsdóttur]
 
 
Glósur úr 9. - 20. kafla Íslandsklukkunnar
Kaflar
Hvar
Hverjir
9. kafli á Þingvöllum Snæfríður talar við föður sinn (Eydalín lögmann) um dómskerfið o.fl.
10. kafli á Þingvöllum Snæfríður mútar varðmanni til að láta Jón Hreggviðsson lausan.
11. kafli á Uxhryggjum, Kaldadal og
Húsafelli
Jón Hreggviðsson kemst í Húsafell og etur kappi við dóttur
og móður séra Snorra á Húsafelli.
12. kafli á Tvídægru (heiði),
í Trékyllisvík,
á hollensku skipi
Jón Hreggviðsson hittir ferðamenn úr Borgarfirði sem bera
kennsl á hann.  Jón glímir við tröllskessu.  Jón kemst á hollenskt skip.
13. kafli í Rotterdam,
á ferð um Holland
Jón hittir hollenska mellu.
Jón hittir Hollendinga af ýmsum stéttum.  Ýmsar umræður um Ísland.
14. kafli í Þýskalandi Jón httir þýska landamæraverði sem varpa honum í fangelsi.
Þar berst hann við drauga og sleppur úr haldi (stingur sér í virkisgröfina og syndir yfir hana). Snýr aftur til Hollands.  Ýmsar umræður um Ísland.
15. kafli í Amsterdam,
í Lukkustað
Jón kemst á danskt skip og siglir til Lukkustaðar, í Danmörku.  Þar er hann munstraður í danska herinn.  Ýmsar umræður um Ísland.
16. kafli í Kaupmannahöfn Jón kemur til heimilis Arnasar og hittir þar kroppinbakinn Mettu (konu Arnasar).  Jón kynnist Jóni Grindvicensis, aðstoðarmanni Arnasar, og Jóni Marteinssyni, sem er talinn skúrkur. 
17. kafli á heimili Arnasar, í Kaupmannahöfn Jón ræðir við Arnas og ber honum gullhring frá Snæfríði. Mettu líst illa á Jón.
18. kafli í Kaupmannahöfn Jón Hreggviðsson og Jón Marteinsson fara á fyllerí.
19. kafli í Kaupmannahöfn Jóni Hreggviðssyni er varpað í fangelsi (Bláturn), sem morðingja.
20. kafli í Bláturni,
í Dómshúsinu,
úti, í Kaupmannahöfn
Jón dvelur við illan kost í Bláturni en er kallaður til viðtals við Arnas í Dómshúsinu.  Arnas afhendir Jóni bréf, sem hann á að sýna á Alþingi.  Í bréfinu er krafist endurupptöku máls Jóns, vegna galla á málsmeðferð. Jóni er veitt fullt ferðafrelsi til Íslands og stendur hann utan Dómshússins er Íslandsklukkunni lýkur. 
Gert í apríl 2010
Harpa Hreinsdóttir