Um Hörpu

Harpa HreinsdóttirÉg er gift Atla Harðarsyni, heimspekingi og prófessor við Menntavísindasvið HÍ. Við eigum tvo uppkomna syni.

Aðalstarf mitt var lengstum framhaldsskólakennsla í íslensku og þátttaka í ýmsum verkefnum tengdum upplýsingatækni og erlendum samskiptum. Vegna veikinda þurfti ég að hverfa af vinnumarkaði árið 2009 og var um skeið 100% öryrki af völdum þunglyndis. Frá ársbyrjun 2013 til síðla árs 2015 gat ég unnið í hlutastarfi sem framhaldsskólakennari, fyrst í íslensku en síðar í prjónakennslu. Eftir það tók ótímabundin full örorka aftur við.

Við hjónin búum í Miðleiti 3, 103 Reykjavík. Netfangið mitt er harpahreins59@gmail.com.

Að fornum sið læt ég fylgja ættrakningu á þessari upplýsingasíðu um mig.

Smelltu á lógóið neðst til hægri til að fara aftur á upphafssíðu.








Til baka