{"id":1294,"date":"2015-01-27T17:45:01","date_gmt":"2015-01-27T17:45:01","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=1294"},"modified":"2015-02-01T09:55:55","modified_gmt":"2015-02-01T09:55:55","slug":"greidslur-til-gunnlaugs-2012","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2015\/01\/27\/greidslur-til-gunnlaugs-2012\/","title":{"rendered":"Grei\u00f0slur til Gunnlaugs 2012"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/01\/kutter_sigurfari.jpg?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-1297\" alt=\"K\u00fatter Sigurfari eftir V\u00edctor Bautista\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/01\/kutter_sigurfari.jpg?resize=540%2C361&#038;ssl=1\" width=\"540\" height=\"361\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/01\/kutter_sigurfari.jpg?w=642&amp;ssl=1 642w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/01\/kutter_sigurfari.jpg?resize=300%2C200&amp;ssl=1 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 540px) 100vw, 540px\" \/><\/a><\/p>\n<p>H\u00e9r ver\u00f0ur ger\u00f0 grein fyrir \u00fev\u00ed f\u00e9, 2,2 millj\u00f3num, sem Gunnlaugi Haraldssyni t\u00f3kst a\u00f0 f\u00e1 greitt fr\u00e1 Akraneskaupsta\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2012 og fyrir hva\u00f0 hann f\u00e9kk greitt en af \u00feeim g\u00f6gnum sem Akraneskaupsta\u00f0ur afhenti m\u00e9r 1. des. 2014 a\u00f0 r\u00e1\u00f0a vir\u00f0ist hann hafa uppskori\u00f0 \u00feessi laun fyrir skil \u00e1 einu A-4 bla\u00f0i. <sup>1)<\/sup><\/p>\n<h3>\u00a0Skipulagi\u00f0 2012<\/h3>\n<p><em>Samningi um ritun S\u00f6gu Akraness &#8211; III. bindi &#8211;<\/em> sem undirrita\u00f0ur var 22. j\u00fan\u00ed 2012 fylgir 12 bla\u00f0s\u00ed\u00f0na skjal eftir Gunnlaug Haraldsson. Skjali\u00f0 er merkt Fylgiskjal 1 og titill \u00feess er: Saga Akraness &#8211; III. bindi. N\u00edtj\u00e1nda \u00f6ldin. Efnisyfirlit (dr\u00f6g). Skjali\u00f0 hefst \u00feannig (ath. a\u00f0 allt er \u00fea\u00f0 sk\u00e1letra\u00f0):<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\"><em>H\u00e9r er gefi\u00f0 gr\u00f3ft efnisyfirlit yfir handrit III. bindis. Handriti\u00f0 er samtals 825 bla\u00f0s\u00ed\u00f0ur \u00ed A-4 broti. \u00dea\u00f0 var skrifa\u00f0 \u00e1 \u00e1runum 2000-2004 sem s\u00ed\u00f0ari hluti I. bindis (t\u00edmabili\u00f0 1801-1850) og fyrri hluti II. bindis (t\u00edmabili\u00f0 1851-1900) skv. \u00fe\u00e1gildandi \u00fatg\u00e1fuplani. Vi\u00f0 prentvinnslu \u00e1 I. og II. bindi og breytta efnisskipan ritsins var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 steypa \u00feessu efni saman \u00ed eina heild, svo a\u00f0 III. bindi spanni alla 19. \u00f6ldina e\u00f0a t\u00edmabili\u00f0 1801-1900.<\/em><\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\"><em>Efni III. bindis er h\u00e9r skipt \u00ed 20 meginkafla \u00ed sta\u00f0 40 \u00ed fyrirliggjandi handriti<\/em>. &#8230;<\/p>\n<p>\u00deessir 20 meginkaflar eru svo taldir upp \u00ed skjalinu og undirkaflar \u00feeirra r\u00e6kilega t\u00edunda\u00f0ir. \u00c1 s. 9-12 eru taldar upp fyrirhuga\u00f0ar rammagreinar og myndrit (t\u00f6flur, gr\u00f6f og skr\u00e1r).<\/p>\n<p>Hvar \u00feetta 825 bls. handrit er ni\u00f0urkomi\u00f0 hef \u00e9g ekki hugmynd um en eins og kom fram \u00ed s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu var aldrei fari\u00f0 yfir \u00fea\u00f0 til a\u00f0 taka \u00fat st\u00f6\u00f0u verksins, s.s. kve\u00f0i\u00f0 er \u00e1 um \u00ed samningnum. Kannski veit enginn hvar \u00fea\u00f0 er.<\/p>\n<h3>Skipulagi\u00f0 1997<\/h3>\n<p>\u00cd fyrsta samningnum sem Akraneskaupsta\u00f0ur ger\u00f0i vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson og var undirrita\u00f0ur \u00feann 22. apr\u00edl 1997, var kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um a\u00f0 Gunnlaugur rita\u00f0i 3 bindi um s\u00f6gu Akraness sem sp\u00f6nnu\u00f0u aldirnar 1700-2000. Fyrsta bindi\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 vera Bygg\u00f0asaga 1700-1900 og skiptast \u00ed fimm meginkafla:<\/p>\n<p>1. Sta\u00f0h\u00e6ttir<br \/>\n2. Bygg\u00f0a\u00fer\u00f3un og \u00feorpsmyndun<br \/>\n3. B\u00faskaparh\u00e6ttir og bjargr\u00e6\u00f0isvegir fyrr \u00e1 t\u00ed\u00f0 (ca. 1700-1900)<br \/>\n4. Framf\u00e6rslu-, sk\u00f3la-, f\u00e9lags- og heilbrig\u00f0ism\u00e1l<br \/>\n5. Skipting Akraneshrepps 1885.<\/p>\n<p>Skilgreindir undirkaflar eru fr\u00e1 tveimur upp \u00ed \u00e1tta.<\/p>\n<p>\u00deessu fyrsta bindi \u00e1tti a\u00f0 skila \u201eeigi s\u00ed\u00f0ar en 1. okt\u00f3ber 1999\u201c (3. gr. SAMNINGS UM RITUN S\u00d6GU AKRANESS).\u00a0Gunnlaugur st\u00f3\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 ekki vi\u00f0 samninginn en var samt \u00e1 pr\u00fd\u00f0ilegum m\u00e1na\u00f0arlaunum vi\u00f0 sagnaritunina fr\u00e1 1. apr\u00edl 1997 til 1. sept. 2001, \u00fe.e. \u00feann t\u00edma sem samningurinn gilti.<\/p>\n<p>\u00c1 42. fundi Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness, \u00feann 15. okt\u00f3ber 2001, er b\u00f3ka\u00f0: \u201eGunnlaugur ger\u00f0i grein fyrir st\u00f6\u00f0u m\u00e1la. Efni vegna 19. aldar er n\u00fa um 5-600 s\u00ed\u00f0ur, en vinna \u00fearf \u00fea\u00f0 efni frekar og skipta \u00fev\u00ed \u00ed tv\u00f6 bindi og mi\u00f0a vi\u00f0 1850. S\u00e1 t\u00edmi, sem gert var r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 f\u00e6ri \u00ed ritunina, er a\u00f0 l\u00ed\u00f0a og var m.a. r\u00e6tt um \u00fdmis-legt \u00fev\u00ed tengt.\u201c<\/p>\n<p>\u00c1 n\u00e6sta fundi, 43. fundi \u00feann 19. n\u00f3vember 2001, er b\u00f3ka\u00f0 (feitletrun er m\u00edn):<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">1. Gunnlaugur lag\u00f0i fram <strong>efnisyfirlit a\u00f0 1. bindi \u00e1samt 598 s\u00ed\u00f0um \u00ed handriti sem n\u00e6r fr\u00e1 1700 til 1850<\/strong>.<br \/>\n&#8230;<br \/>\n3. R\u00e6tt var um st\u00f6\u00f0u m\u00e1lsins. <strong>Ritnefndin sta\u00f0festi skil \u00e1 1. bindi verksins sbr. gildandi samning<\/strong>. Nefndin er samm\u00e1la um a\u00f0 \u00fea\u00f0 efni sem skila\u00f0 hefur veri\u00f0 s\u00e9 gott og lofi g\u00f3\u00f0u um heildarverki\u00f0 &#8230;<\/p>\n<p>Ritnefndin sta\u00f0festi s.s. skil \u00e1 \u00e1 1. bindinu skv. samningnum, bygg\u00f0as\u00f6gu fr\u00e1 1700-1900, \u00fe\u00f3tt \u00fev\u00ed hef\u00f0i alls ekki veri\u00f0 skila\u00f0 heldur 598 s\u00ed\u00f0um um \u00ferj\u00e1 fj\u00f3r\u00f0u t\u00edmabilsins og efnisyfirliti.<\/p>\n<p>\u00c9g rek \u00feessa s\u00f6gu ekki lengra h\u00e9r, h\u00fan er rakin \u00ed <a title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\" href=\"http:\/\/harpahreins.com\/Saga_Sogu_Akraness.pdf\">S\u00f6gu S\u00f6gu Akraness<\/a> \u00a0enda er \u00feetta a\u00f0eins upphafi\u00f0 a\u00f0 skollaleik Gunnlaugs og Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness, \u00fe.e. Gunnlaugur endurra\u00f0a\u00f0i efnis\u00fe\u00e1ttum og t\u00edmaskiptingu trekk \u00ed trekk, sneri skipulaginu \u00e1 haus, b\u00e6tti inn \u00e6 sm\u00e1smugulegri undirefnisflokkum og Ritnefndin beitti s\u00e9r \u00e1vallt fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 ger\u00f0ir yr\u00f0u n\u00fdir og n\u00fdir vi\u00f0b\u00f3tarsamningar vi\u00f0 hann svo hann fengi \u00f6rugglega greitt \u00fe\u00f3tt litlu sem engu v\u00e6ri skila\u00f0. (Sj\u00e1 t\u00f6flu yfir a\u00f0alatri\u00f0i fundarger\u00f0a, s.127-140 \u00ed <a title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\" href=\"http:\/\/harpahreins.com\/Saga_Sogu_Akraness.pdf\">S\u00f6gu S\u00f6gu Akraness<\/a>). \u00c9g hef ekki minnstu hugmynd um hvar \u00feetta 598 s\u00ed\u00f0na handrit fr\u00e1 2001 er ni\u00f0urkomi\u00f0. Kannski er \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00f6mu glatkistu og 825 bla\u00f0s\u00ed\u00f0na handriti\u00f0 sem nefnt var h\u00e9r a\u00f0 ofan.<\/p>\n<h3>Snilldin a\u00f0 sn\u00faa til upphafsins<\/h3>\n<p>V\u00edkur \u00fe\u00e1 aftur a\u00f0 n\u00fdjasta samningnum fr\u00e1 22. j\u00fan\u00ed 2012, \u00a0<em>Samningi um ritun S\u00f6gu Akraness &#8211; III. bindi &#8211;<\/em>.\u00a0\u00a0\u00cd Fylgiskjali 1 (Gunnlaugs) eru fyrstu meginkaflarnir (\u00fea\u00f0 er \u00e1st\u00e6\u00f0ulaust a\u00f0 telja fleiri \u00fev\u00ed flestum \u00feeirra hefur ekki veri\u00f0 skila\u00f0):<\/p>\n<p>I. \u00c1rfer\u00f0i og almennir hagir<br \/>\nII. \u00cdb\u00faa- og bygg\u00f0a\u00fer\u00f3un<br \/>\nIII. Jar\u00f0eignir og b\u00fana\u00f0ar\u00fer\u00f3un<br \/>\nIV. \u00datger\u00f0arh\u00e6ttir \u00e1 \u00e1rab\u00e1ta\u00f6ld<br \/>\nV. Breskir togarar og tr\u00f6llafiskur<\/p>\n<p>\u00cd Fylgiskjali 2 er kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um verk\u00e1\u00e6tlun \u00feannig:<\/p>\n<p><strong>1. verk\u00e1fangi A<\/strong>, skilgreindur sem 10 vikna vinna, er undirb\u00faningur og gagna\u00farvinnsla 2012, \u00fear undir taldar 3 vikur \u00ed endurr\u00f6\u00f0un og uppstokkun efniskafla;<br \/>\n<strong>1. verk\u00e1fangi B<\/strong>, 9 vikna vinna, felst \u00ed endursko\u00f0un og umritun I.-IV.kafla (meginkafla \u00ed Fylgiskjali 1)<br \/>\n2. verk\u00e1fangi, 19 vikna vinna, er endursko\u00f0un og umritun \u00e1 V.-XIII. k\u00f6flum verksins;<br \/>\n3. verk\u00e1fangi, 28 vikna vinna, er endursko\u00f0un \u00e1 XIV.-XX. k\u00f6flum verksins og fr\u00e1gangur.<\/p>\n<p>\u00c9g feitletra h\u00e9r \u00fe\u00e1 tvo verk\u00e1fanga sem Gunnlaugi hefur tekist a\u00f0 lj\u00faka til \u00feessa, a.m.k. hefur hann fengi\u00f0 greitt fyrir a\u00f0 lj\u00faka \u00feeim.<\/p>\n<p>1. verk\u00e1fanga A \u00e1tti a\u00f0 vinna \u00ed j\u00fan\u00ed til september 2012. Fyrir hann \u00e1tti Gunnlaugur a\u00f0 f\u00e1 greiddar 2,2 millj\u00f3nir, \u00fe.e.a.s. hann f\u00e9kk 880.000 kr. verktakagrei\u00f0slu \u00e1 m\u00e1nu\u00f0i. \u00dea\u00f0 eru afar g\u00f3\u00f0 laun fyrir mann me\u00f0 gr\u00e1\u00f0u sem samsvarar \u00edslenskri BA-gr\u00e1\u00f0u \u00ed fornleifafr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<p>Skv. \u00f3t\u00f6lusettri og \u00f3birtri fundarger\u00f0 Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness \u00feann 9. j\u00fal\u00ed 2013 (v\u00e6ntanlega er \u00feetta 84. fundur nefndarinnar) skila\u00f0i Gunnlaugur af s\u00e9r 1. verk\u00e1fanga A um m\u00e1na\u00f0am\u00f3tin n\u00f3vember\/desember 2012 og f\u00e9kk greiddar s\u00ednar 2,2 millj\u00f3nir \u00fea\u00f0 \u00e1r. <strong>En fyrir hva\u00f0 f\u00e9kk hann greitt?<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd \u00f3birtri 83. fundarger\u00f0 Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness dags. 3. okt\u00f3ber 2012 er \u00feess geti\u00f0 a\u00f0 Gunnlaugur hafi fari\u00f0 yfir verk\u00e1\u00e6tlun III. bindis og skv. b\u00f3kun hefur hann \u00fe\u00e1 b\u00e6tt einni viku vi\u00f0 1. verk\u00e1fanga A og dregi\u00f0 eina viku fr\u00e1 3. verk\u00e1fanga \u00e1 m\u00f3ti. Ekki er b\u00f3ka\u00f0 a\u00f0 hann hafi skila\u00f0 neinu nema afhendingarskr\u00e1 yfir skj\u00f6l sem afhenda eigi H\u00e9ra\u00f0sskjalasafni Akraness. Skv. samningnum 2012, gr. 3, \u00e1tti hann a\u00f0 afhenda \u00feessi skj\u00f6l fyrir 15. \u00e1g\u00fast 2012 en forma\u00f0ur Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness afhenti \u00feau safninu, alls 8 m\u00f6ppur, \u00feann 24. okt\u00f3ber 2012.<sup>2)<\/sup><\/p>\n<p>\u00cd einnar s\u00ed\u00f0u fylgiskjali me\u00f0 n\u00e6stu fundarger\u00f0 (\u00f3birtri og \u00f3t\u00f6lusettri en v\u00e6ntanlega 84. fundur ritnefndarinnar), sem heitir Fr\u00e1gangur \u00e1 prenthandriti II. bindis. Breytt kaflaskipan og verk\u00e1\u00e6tlun pr. 1. okt\u00f3ber 2012, kemur fram s\u00fa breytta kaflaskipan og verk\u00e1\u00e6tlun sem taldist 3 vikna vinna \u00ed 1. verk\u00e1fanga A. H\u00fan felst \u00ed \u00feessu:<\/p>\n<ul>\n<li>A\u00f0 vikufj\u00f6lda er rutla\u00f0 svol\u00edti\u00f0 til, \u00fe.e. 1. verk\u00e1fangi B er n\u00fa talinn 10 vikna vinna og \u00ed sta\u00f0inn er 3. verk\u00e1fangi or\u00f0inn 27 vikna vinna;<\/li>\n<li>A\u00f0 t\u00f3lf kaflar eru horfnir og m\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 \u00feeim hafi veri\u00f0 steypt saman vi\u00f0 a\u00f0ra, nema kafla XX en \u00fea\u00f0 kaflan\u00famer hefur einfaldlega veri\u00f0 fjarl\u00e6gt \u00fe\u00f3tt kaflaheiti\u00f0 (Rammagreinar) standi \u00e1fram.<\/li>\n<li>A\u00f0 n\u00fa er einungis einn meginkafli \u00ed 1. verk\u00e1fanga B og heitir hann Bygg\u00f0a\u00fer\u00f3un og b\u00fana\u00f0arhagir;<\/li>\n<li>A\u00f0 umritun II.- IV. kafla flyst \u00ed 2. verk\u00e1fanga (enda eru \u00feeir ekki lengur s\u00f6mu meginkaflar og \u00ed Fylgiskjali 1 me\u00f0 samningnum).<\/li>\n<\/ul>\n<p>Engum s\u00f6gum fer af endurvinnslu myndrita (3 vikna vinnu) og \u00farvinnslu frumheimilda sem safna\u00f0 var fr\u00e1 2005-2011 (4 vikna vinnu) sem voru hinir verk\u00fe\u00e6ttirnir \u00ed \u00feessum 1. verk\u00e1fanga A. \u00c9g v\u00edsa enn og aftur \u00ed sta\u00f0festingu formanns Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness, J\u00f3ns Gunnlaugssonar, \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti til m\u00edn \u00feann 8. des. 2014, um a\u00f0 allt starf nefndarinnar s\u00e9 b\u00f3ka\u00f0 \u00ed fundarger\u00f0um hennar. <strong>\u00dea\u00f0 vir\u00f0ist \u00fev\u00ed morgunlj\u00f3st a\u00f0 engin g\u00f6gn sem sta\u00f0festi \u00feessa 7 vikna vinnu sagnaritarans hafi nokkru sinni veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 fram. \u00deriggja vikna vinnunni hefur hins vegar veri\u00f0 ger\u00f0 skil \u00e1 einu A-4 bla\u00f0i og ver\u00f0ur a\u00f0 teljast einkar h\u00e6gt unni\u00f0 a\u00f0 ey\u00f0a \u00feremur vikum \u00ed a\u00f0 upphugsa \u00fe\u00e1 breyttu kaflaskipan og f\u00e6rslu um eina viku milli vinnu\u00fe\u00e1tta.<\/strong><\/p>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 hafa sett mig vel inn \u00ed fyrri br\u00f6g\u00f0 og gl\u00edmur Gunnlaugs vi\u00f0 stj\u00f3rns\u00fdslu Akraneskaupsta\u00f0ar sem einatt hafa sn\u00faist um a\u00f0 f\u00e1 greitt fyrir verk sem ekki er skila\u00f0 ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 telja vi\u00f0skiptin \u00e1ri\u00f0 2012 einstakt afrek, meira a\u00f0 segja mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 hann. M\u00e6tti margur sagnaritarinn \u00f6funda hann af velgreiddu einu A-4 bla\u00f0i!<\/p>\n<p>Endursko\u00f0unin er og d\u00e6miger\u00f0 fyrir vinnubr\u00f6g\u00f0 Gunnlaugs gegnum t\u00ed\u00f0ina:<\/p>\n<p>\u00cd SAMNINGI UM RITUN S\u00d6GU AKRANESS, sem skrifa\u00f0 var undir 22. apr\u00edl 1997, var sami\u00f0 um a\u00f0 fyrsta bindi\u00f0 af \u00feremur sem Gunnlaugur skyldi skrifa v\u00e6ri Bygg\u00f0arsaga 1700-1900, sem skiptist \u00ed 5 meginkafla (sj\u00e1 efst \u00ed \u00feessari f\u00e6rslu) og \u00e1tti ritun \u00feess og mynda\u00f6flun a\u00f0 vera loki\u00f0 eigi s\u00ed\u00f0ar en \u00e1g\u00fast-september 1999. S\u00ed\u00f0an b\u00f3lgna\u00f0i verki\u00f0 \u00fat eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1rin li\u00f0u, hluta \u00feess taldist skila\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2001 en var \u00fe\u00f3 eigi fullkl\u00e1ra\u00f0 og um \u00fea\u00f0 leyti sem Gunnlaugur gengur til samninga vi\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0 a\u00f0 tilstu\u00f0lan \u00c1rna M\u00fala J\u00f3nassonar \u00fe\u00e1verandi b\u00e6jarstj\u00f3ra vori\u00f0 2012 er <em>Saga Akraness III<\/em> (sem dekkar t\u00edmabili\u00f0 1801-1900) or\u00f0in a\u00f0 40 meginkafla verki \u00ed 825 bla\u00f0s\u00ed\u00f0na handriti. \u00cd Fylgiskjali 1 me\u00f0 samningnum sem var undirrita\u00f0ur 22. j\u00fan\u00ed 2012 var megink\u00f6flum f\u00e6kka\u00f0 ofan \u00ed 20. \u00cd endursko\u00f0un \u00feeirri sem taldist vinna vi\u00f0 1. verk\u00e1fanga A var megink\u00f6flum f\u00e6kka\u00f0 ofan \u00ed 8 meginkafla. Skiptingin \u00ed \u00fe\u00e1 meginkafla f\u00e6rist n\u00e6r \u00a0meginkaflaskiptingunni \u00ed samningnum 1997 og m\u00e6tti \u00a0segja a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri veri\u00f0 a\u00f0 loka miklum skipulagshring. Fyrir \u00feessa endurskipulagningu f\u00e9kk Gunnlaugur 2,2 millj\u00f3nir kr\u00f3na greiddar fr\u00e1 Akraneskaupsta\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00e6st ver\u00f0ur fjalla\u00f0 um grei\u00f0slur Akraneskaupsta\u00f0ar til Gunnlaugs Haraldssonar \u00e1ri\u00f0 2013<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<hr width=\"100%\" \/>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>1) \u00d3ska\u00f0 var eftir \u00f6llum g\u00f6gnum sem tengdust samningnum vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson og sagnaritun hans. \u00dea\u00f0 t\u00f3k Akraneskaupsta\u00f0 7 vikur a\u00f0 afgrei\u00f0a erindi\u00f0 svo \u00e6tla m\u00e1 a\u00f0 vanda\u00f0 hafi veri\u00f0 til verksins og engin frekari g\u00f6gn liggi fyrir. Forma\u00f0ur Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness, J\u00f3n Gunnlaugsson, sta\u00f0festi \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti til m\u00edn \u00feann 8. desember a\u00f0 allt starf ritnefndarinnar v\u00e6ri b\u00f3ka\u00f0 \u00ed fundarger\u00f0um s\u00f6mu nefndar og \u00fe\u00e6r hef \u00e9g.<\/p>\n<p>2) \u00deau 8 br\u00e9fabindi (m\u00f6ppur) \u00far f\u00f3rum Gunnlaugs sem n\u00fa er a\u00f0 finna \u00e1 H\u00e9ra\u00f0sskjalasafni Akraneskaupsta\u00f0ar innihalda lj\u00f3srit af obbanum af \u00fev\u00ed sem hann telur upp sem \u00f3\u00fatgefnar heimildir \u00ed heimildaskr\u00e1m vi\u00f0 <em>S\u00f6gu Akraness I<\/em> og <em>S\u00f6gu Akraness II<\/em>, auk handrits J\u00f3ns B\u00f6\u00f0varssonar a\u00f0 <em>Akranesi II<\/em> og \u00fdmiss drasls \u00far eigu Gunnlaugs. Magni\u00f0 er ekki \u00ed neinu samr\u00e6mi vi\u00f0 fyrri yfirl\u00fdsingar sagnaritarans, sem hefur or\u00f0i\u00f0 t\u00ed\u00f0r\u00e6tt um s\u00edna miklu og \u00f3metanlegu heimildas\u00f6fnun og skulu h\u00e9r nefnd tv\u00f6 d\u00e6mi:<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">Heimilda\u00f6flun og \u00farvinnsla \u00feeirra hefur reynst langtum tafsamari og t\u00edmafrekari en mig \u00f3ra\u00f0i nokkru sinni fyrir, og haf\u00f0i \u00fe\u00f3 talsver\u00f0a reynslu a\u00f0 byggja \u00e1 \u00ed \u00feessum efnum. H\u00e9r er \u00ed fyrsta lagi um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a skjalleg g\u00f6gn af \u00f6llum hugsanlegum toga sem einkum eru var\u00f0veitt \u00ed skjalas\u00f6fnum \u00ed Reykjav\u00edk og \u00e1 Akranesi (t.d. gj\u00f6r\u00f0ab\u00e6kur hreppstj\u00f3ra, sveitarstj\u00f3rnar, einstakra nefnda, f\u00e9lagasamtaka og fyrirt\u00e6kja, s\u00fdslumanna og s\u00fdslunefnda, amtmanns, landsh\u00f6f\u00f0ingja og fleiri emb\u00e6tta stj\u00f3rns\u00fdslunnar, br\u00e9fab\u00e6kur, br\u00e9fadagb\u00e6kur, br\u00e9f og hverskyns gj\u00f6rningar s\u00f6mu a\u00f0ila og einstaklinga, jar\u00f0askj\u00f6l, dagb\u00e6kur, \u00f6rnefnal\u00fdsingar, o.s.fv., o.s.frv.). \u00cd annan sta\u00f0 allt prenta\u00f0 og \u00fatgefi\u00f0 efni (b\u00e6kur, sk\u00fdrslur, dagbl\u00f6\u00f0, t\u00edmarit o.s.frv.) \u00fear sem Akraness er \u00ed einhverju geti\u00f0, &#8211; og \u00ed \u00feri\u00f0ja lagi munnlegar heimildir og fr\u00e1sagnir n\u00falifandi manna. Allar \u00fe\u00e6r frumheimildir sem \u00e9g hef geta\u00f0 leita\u00f0 uppi \u00ed skjalas\u00f6fnum, s.s. \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni, hef \u00e9g l\u00e1ti\u00f0 lj\u00f3srita til a\u00f0 vinna \u00far \u00ed starfst\u00f6\u00f0 minni. \u00dea\u00f0 heimildasafn telur n\u00fa um 100 br\u00e9fabindi e\u00f0a tug\u00fe\u00fasundir bla\u00f0s\u00ed\u00f0na og mun s\u00ed\u00f0ar var\u00f0veitast \u00ed H\u00e9ra\u00f0sskjalasafni Akraness og ver\u00f0a a\u00f0gengilegur gagnabanki \u00feeim sem s\u00ed\u00f0ar kynnu a\u00f0 vilja gr\u00faska \u00ed afm\u00f6rku\u00f0um vi\u00f0fangsefnum.<br \/>\n(Gunnlaugur Haraldsson. 25. febr\u00faar 2005. \u201eMeint ritst\u00edfla brestur\u201c \u00e1 spjall\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar. Sko\u00f0a\u00f0 15. j\u00fan\u00ed 2011. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0ur hefur sett upp n\u00fdja heimas\u00ed\u00f0u og l\u00e1\u00f0st a\u00f0 hafa \u00fe\u00e1 eldri a\u00f0gengilega er ekki lengur h\u00e6gt a\u00f0 sko\u00f0a \u00feennan spjall\u00fer\u00e1\u00f0.)<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">[Um starfsst\u00f6\u00f0 sagnaritarans \u00ed Gufunesi]: Auk fj\u00f6lda fr\u00e6\u00f0irita er \u00fearna til d\u00e6mis h\u00e1tt \u00ed 200 br\u00e9fabindi me\u00f0 lj\u00f3sritum skjala sem tengjast s\u00f6gu Akraness, um 500 s\u00ed\u00f0ur \u00ed hverju br\u00e9fabindi. \u00deessi g\u00f6gn hefur s\u00f6guritari leita\u00f0 uppi \u00ed skjalas\u00f6fnum, p\u00e6lt \u00ed gegnum \u00feau, afrita\u00f0 og slegi\u00f0 inn \u00ed t\u00f6lvu, sumt stafr\u00e9tt en gert \u00fatdr\u00e1tt \u00far \u00f6\u00f0rum, og jafnvel \u00fe\u00fdtt g\u00f6mul emb\u00e6ttisskj\u00f6l \u00far d\u00f6nsku.<br \/>\n(\u201e\u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert h\u00e9r um bil vi\u00f0 ritun s\u00f6gunnar. Spjalla\u00f0 vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson ritara S\u00f6gu Akraness\u201c. <em>Skessuhorn<\/em> 13. apr\u00edl 2011, s. 14. Vi\u00f0tali\u00f0 t\u00f3k \u00de\u00f3rhallur \u00c1smundsson bla\u00f0ama\u00f0ur.)<\/p>\n<p><a title=\"K\u00fatter Sigurfari, lj\u00f3smynd Vicotr Bautista \u00e1 Flickr\" href=\" https:\/\/www.flickr.com\/photos\/maradentro\/4775672314\/in\/photolist-djCvZw-djCvwL-djCwfH-8h1yZQ-5tXYHi-8h1q2E-dA37tF-8h1tLq-6eAagZ-8iof8i-6eAaEk-5tEAB8-8t6sVH-8t6tcc-bqXufZ-jDNmrD-cRM1LG-7FRKZR-8RBgMB-8bd5zG-e1WTkG-qfUWrw-7Re4dJ-66EH5t-8RBeea-9hBBPe-76vbf6-9Wwy1C-8REmJ1-cRJgCu-cRDWpU-JqJvP-7hBG2b-UsXAQ-aQhuXX-5muCEx-4FCCvG-5ToFpz-8qSv2s-8qSuY1-88Mgym-6sDNFu-7BoaeF-pKkFJp-psUoCD-77VnS1-nSiMch-nBRVSJ-nSiLRs-535f9D\/\">Myndina af K\u00fatter Sigurfara t\u00f3k V\u00edctor Bautista 12. j\u00fan\u00ed 2010<\/a>. Tengt er \u00ed myndina \u00e1 <em>Flickr<\/em>.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r ver\u00f0ur ger\u00f0 grein fyrir \u00fev\u00ed f\u00e9, 2,2 millj\u00f3num, sem Gunnlaugi Haraldssyni t\u00f3kst a\u00f0 f\u00e1 greitt fr\u00e1 Akraneskaupsta\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2012 og fyrir hva\u00f0 hann f\u00e9kk greitt en af \u00feeim g\u00f6gnum sem Akraneskaupsta\u00f0ur afhenti m\u00e9r 1. <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2015\/01\/27\/greidslur-til-gunnlaugs-2012\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[19],"tags":[96,102,95,99,97,112],"class_list":["post-1294","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-saga-sogu-akraness","tag-arni-muli-jonasson","tag-gisli-gislason","tag-gunnlaugur-haraldsson","tag-ritnefnd-um-sogu-akraness","tag-saga-akraness","tag-saga-sogu-akraness"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1294","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1294"}],"version-history":[{"count":11,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1294\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1323,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1294\/revisions\/1323"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1294"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1294"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1294"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}