{"id":133,"date":"2009-09-09T18:52:39","date_gmt":"2009-09-09T18:52:39","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2009-09-09\/eru-kennarar-fyrirmynd-nemenda\/"},"modified":"2009-09-09T18:52:39","modified_gmt":"2009-09-09T18:52:39","slug":"eru-kennarar-fyrirmynd-nemenda","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2009\/09\/09\/eru-kennarar-fyrirmynd-nemenda\/","title":{"rendered":"Eru kennarar fyrirmyndir nemenda?"},"content":{"rendered":"<p>Enn og aftur f\u00e6 \u00e9g a\u00f0 heyra fr\u00e1 f\u00f3lki sem telur a\u00f0 kennarar s\u00e9u \u00ed djobbinu allan s\u00f3larhringinn og s\u00e9u nemendum s\u00ednum einhver rosasterk fyrirmynd!\u00a0 Reyndar efast \u00e9g ekkert um a\u00f0 sl\u00edkir kennarar eru til; \u00feeir kenna 6, 7 og 8 \u00e1ra b\u00f6rnum, sem eru n\u00f3gu saklaus til a\u00f0 halda a\u00f0 g\u00f3\u00f0a konan \u00ed sk\u00f3lanum s\u00e9 l\u00edka g\u00f3\u00f0a konan utan sk\u00f3lans. Flj\u00f3tlega upp \u00far 9 \u00e1ra aldri \u00e1tta b\u00f6rnin sig \u00e1 a\u00f0 heimurinn er ekki svo saklaus og einfaldur og leggja \u00feessa go\u00f0s\u00f6gn \u00e1 hilluna.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" border=\"1\" vspace=\"7\" align=\"left\" width=\"141\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg09\/snape.jpg?resize=141%2C210\" hspace=\"7\" height=\"210\" \/>En foreldrar ganga hins vegar oft um me\u00f0 svona gl\u00fdju \u00ed augum \u00fe\u00f3tt krakkarnir s\u00e9u l\u00f6ngu or\u00f0nir st\u00f3rir og jafnvel fluttir a\u00f0 heiman. Ein svolei\u00f0is mamma hefur hei\u00f0ra\u00f0 n\u00e6sts\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu m\u00edna me\u00f0 kommentum \u00fear sem s\u00e9st a\u00f0 h\u00fan heldur \u00ed s\u00edna barnatr\u00fa. M\u00f3\u00f0irin segir: &#8220;\u00c9g leit mj\u00f6g upp til kennaranna minna \u00feegar \u00e9g gekk \u00ed sk\u00f3la og \u00e1l\u00edt \u00fe\u00e1 vera \u00e1kve\u00f0na fyrirmynd, alveg eins og a\u00f0rir sem vinna \u00e1byrg\u00f0arfull st\u00f6rf. \u00dear a\u00f0 auki var okkur kennt \u00ed Kennarah\u00e1sk\u00f3lanum a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum \u00e1kve\u00f0in fyrirmynd.&#8221;\u00a0 Og \u00e9g \u00edtreka a\u00f0 h\u00fan er alls ekki ein um \u00feessa sko\u00f0un!<\/p>\n<p>\u00c9g leit ekki s\u00e9rstaklega upp til kennara minna \u00ed sk\u00f3la enda voru \u00feeir allrahanda, allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa s\u00f3mt s\u00e9r vel \u00ed Heyrnleysingjask\u00f3lanum til \u00feess a\u00f0 vera au\u00f0nulausar fyllibyttur. Inn \u00e1 milli voru \u00e1g\u00e6tis karlar (m\u00edn kynsl\u00f3\u00f0 var a\u00f0allega menntu\u00f0 af k\u00f6rlum) en ekki neitt sem mann langa\u00f0i til a\u00f0 l\u00edkjast. \u00cd H\u00cd reyndi ma\u00f0ur a\u00f0 velja k\u00farsa eftir kennurum eins og h\u00e6gt var (og \u00feess vegna er m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ihluti minnar menntunar undarlega sundurlaus) og satt best a\u00f0 segja s\u00e1 \u00e9g f\u00e1ar fyrirmyndir \u00fear, gekk t.d. ekki slefandi a\u00f0d\u00e1endum J\u00fal\u00edu Kristevu \u00e1 h\u00f6nd, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 n\u00fdr\u00fdni. \u00cd H\u00cd uppg\u00f6tva\u00f0i \u00e9g reyndar, m\u00e9r til fur\u00f0u, hva\u00f0 m\u00f6rg sk\u00f3lasystkini m\u00edn h\u00f6f\u00f0u lesi\u00f0 afskaplega l\u00edti\u00f0 um \u00e6vina og voru \u00feess vegna ginkeypt fyrir &#8220;b\u00f3kinni&#8221;, &#8220;karlinum&#8221; e\u00f0a &#8220;su\u00f0uramer\u00edska t\u00f6frarauns\u00e6inu&#8221;.<\/p>\n<p>Fyrir tveimur \u00e1rum f\u00e9kk \u00e9g n\u00e1msorflof og lauk 30 einingum \u00e1 MA stigi \u00ed \u00edslensku. \u00de\u00e1 var \u00e9g aldeilis st\u00e1lheppin me\u00f0 kennara og k\u00farsa, a\u00f0 einum k\u00farsi undanskildum. En nei, \u00e9g s\u00e1 ekki role-model\u00a0\u00ed \u00feessum kennurum \u00fe\u00f3tt g\u00f3\u00f0ir v\u00e6ru.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" vspace=\"7\" align=\"left\" width=\"83\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg09\/litil_kennslukona.jpg?resize=83%2C103\" hspace=\"7\" height=\"103\" \/>Eina skipti\u00f0 sem \u00e9g stunda\u00f0i n\u00e1m \u00ed Kenn\u00f3, 15 eininga dipl\u00f3mu n\u00e1m \u00e1 meistarastigi, l\u00e6r\u00f0i \u00e9g \u00ed \u00feaula hvernig ekki skal kenna. \u00deessi reynsla var f\u00edn b\u00f3lusetning gegn vonlausum kennsluh\u00e1ttum og algeru \u00f6ng\u00feveiti \u00ed skipulagningu.<\/p>\n<p>Sn\u00faum okkur a\u00f0 m\u00e9r sem kennara. \u00c9g hef ekki nokkra tr\u00fa \u00e1 a\u00f0 nemendur m\u00ednir vilji heg\u00f0a s\u00e9r eins og \u00e9g, ganga \u00ed f\u00f6tum eins og \u00e9g e\u00f0a \u00e1 annan h\u00e1tt taka s\u00e9r mig til fyrirmyndar. \u00c9g er t.d. sk\u00ednandi edr\u00fa alla daga og eins og alltaf kemur fram \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum \u00f6\u00f0ru hvoru eru margir unglingar l\u00edtt hallir undir svolei\u00f0is \u00e1stand. \u00c9g segi m\u00ednum nemendum einhvern t\u00edma \u00e1 \u00f6nninni a\u00f0 best s\u00e9 a\u00f0 vera edr\u00fa og \u00fea\u00f0 s\u00e9 hollt og fullor\u00f0inslegt a\u00f0 drekka kaffi (en ekki \u00feetta eil\u00edfa k\u00f3k sem \u00feau s\u00f6tra daga langa \u00e1 g\u00f6ngunum). \u00c9g veit ekki um einn einasta nemanda sem hefur fari\u00f0 eftir \u00feessu.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 var\u00f0ar bloggi\u00f0 mitt eru afar f\u00e1ir nemendur sem nenna a\u00f0 lesa svo langan og mass\u00edvan texta, \u00e1 fullor\u00f0insm\u00e1li. \u00deessir krakkar hafa n\u00f3g me\u00f0 gsm-s\u00edmann sinn, twitter, facebook, MSN og fleiri \u00e1reiti sem eru allt \u00ed kringum einn ungling. \u00deau komast ekki yfir langar bloggf\u00e6rslur ofan \u00e1 \u00feetta og missa auk \u00feess flj\u00f3tt \u00e1hugann \u00e1 m\u00ednum efnisflokkum. \u00dea\u00f0 er helst a\u00f0 einhverjir sem eiga vi\u00f0 ge\u00f0r\u00e6n vandam\u00e1l a\u00f0 str\u00ed\u00f0a lesi f\u00e6rslur m\u00ednar um sl\u00edk vandam\u00e1l og vonandi finna \u00feeir einhverja samkennd e\u00f0a huggun \u00ed \u00feeim.<\/p>\n<p>\u00c9g held a\u00f0 unglingar hafi n\u00e1kv\u00e6mlega jafnl\u00edtinn \u00e1huga \u00e1 kennaranum s\u00ednum og \u00e1 bens\u00edntittinum sem d\u00e6lir \u00e1 b\u00edlana \u00feeirra, b\u00f3kaver\u00f0inum sem hj\u00e1lpar \u00feeim a\u00f0 finna b\u00e6kur e\u00f0a eldh\u00fasstaffinu sem selur \u00feeim h\u00e1degismat. Utan vinnusta\u00f0ar og vinnut\u00edma vekur \u00feetta f\u00f3lk ekki s\u00e9rstaka athygli.\u00a0<\/p>\n<p>\u00deess vegna lei\u00f0ast m\u00e9r afar miki\u00f0 svona &#8220;jed\u00faddam\u00eda&#8221; komment fr\u00e1 mi\u00f0aldra konum &#8230; hef \u00fe\u00f3 a\u00f0 mestu veri\u00f0 laus vi\u00f0 \u00feau eftir a\u00f0 hafa afskrifa\u00f0\u00a0le\u00f0juslaginn \u00e1 er.is (Barnalandi).<\/p>\n<p>\u00c9g legg n\u00fa til, sem m\u00e1lamyndagj\u00f6rning, a\u00f0 tollver\u00f0ir taki sig \u00e1 og ver\u00f0i fyrirmynd okkar hinna 24 stundir \u00e1 s\u00f3larhring. Sama\u00a0gildir um UPS st\u00falkur. Og h\u00e9r komum vi\u00f0 a\u00f0 t\u00ed\u00f0indum \u00e1rsins: Pakkinn minn skila\u00f0i s\u00e9r \u00e1\u00f0an! \u00deurfti ekki nema eitt d\u00f3nalegt s\u00edmtal og sm\u00e1vegis fr\u00e6\u00f0slu\u00a0(til hugsanlegra\u00a0vi\u00f0skiptavina) og v\u00fauuppps: Pakkinn \u00ed h\u00fas. Au\u00f0vita\u00f0 var hann kirfilega merktur nafni og heimilisfangi m\u00ednu svo\u00a0&#8220;st\u00falkan \u00ed mat&#8221; sem hl\u00fdtur a\u00f0 heita <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/is-is.facebook.com\/fridams\">Fr\u00ed\u00f0a Mar\u00eda Sigur\u00f0ard\u00f3ttir<\/a>, hef\u00f0i geta\u00f0 stungi\u00f0\u00a0mi\u00f0a \u00ed umslag til m\u00edn \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 leyfa honum a\u00f0 \u00faldna \u00ed 12 daga \u00ed Keflav\u00edk, ekki hva\u00f0 s\u00edst mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 UPS-\u00fej\u00f3nusta felur \u00ed s\u00e9r a\u00f0\u00a0pakkann \u00e1 a\u00f0 bera \u00fat um lei\u00f0 og flugv\u00e9lin er lent. (Vi\u00f0 erum sums\u00e9 ekki a\u00f0 tala um skipap\u00f3st \u00ed \u00feessu sambandi).<\/p>\n<p>Innihald pakkans var enn gl\u00e6silegra en \u00e9g \u00feor\u00f0i a\u00f0 vona. \u00a0Megi vi\u00f0takendur vera sama sinnis.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" vspace=\"7\" align=\"right\" width=\"124\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg09\/firring2.jpg?resize=124%2C109\" hspace=\"7\" height=\"109\" \/>P.s. Hva\u00f0 var\u00f0ar heilsufar mitt er allt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sama. \u00c9g hangi uppi og kenni \u00e1 sj\u00e1lfst\u00fdringunni. \u00dea\u00f0 gengur svo sem pr\u00fd\u00f0ilega.\u00a0Svo er n\u00e1tt\u00farlega svol\u00edti\u00f0 peppandi a\u00f0 rusla upp einni f\u00e6rslu \u00e1 dag, ma\u00f0ur er \u00fe\u00e1 a\u00f0 hugsa um anna\u00f0 \u00feessa t\u00edu m\u00edn\u00fatur &#8211; korter sem ritst\u00f6rfin taka \ud83d\ude09 Aftur \u00e1 m\u00f3ti gengur h\u00e6gar me\u00f0 kr\u00f3nuprj\u00f3na\u00f0a sjali\u00f0 &#8211; \u00e9g er stundum of veik til a\u00f0 einbeita m\u00e9r a\u00f0 einf\u00f6ldustu stykkjum \u00e1 kv\u00f6ldin.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Enn og aftur f\u00e6 \u00e9g a\u00f0 heyra fr\u00e1 f\u00f3lki sem telur a\u00f0 kennarar s\u00e9u \u00ed djobbinu allan s\u00f3larhringinn og s\u00e9u nemendum s\u00ednum einhver rosasterk fyrirmynd!\u00a0 Reyndar efast \u00e9g ekkert um a\u00f0 sl\u00edkir kennarar eru til; <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2009\/09\/09\/eru-kennarar-fyrirmynd-nemenda\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-133","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/133","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=133"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/133\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=133"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=133"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=133"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}