{"id":1372,"date":"2015-08-24T21:42:36","date_gmt":"2015-08-24T21:42:36","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=1372"},"modified":"2015-08-24T22:12:59","modified_gmt":"2015-08-24T22:12:59","slug":"konustraid-hans-peturs-og-greifynjan-af-nordimbralandi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2015\/08\/24\/konustraid-hans-peturs-og-greifynjan-af-nordimbralandi\/","title":{"rendered":"Konustr\u00e1i\u00f0 hans P\u00e9turs og greifynjan af Nor\u00f0imbralandi"},"content":{"rendered":"<p>\u00deetta er fyrsta f\u00e6rsla \u00ed f\u00e6rsluflokki um \u00ferenndartaugab\u00f3lgu.<\/p>\n<p>Einhvern t\u00edma \u00e1 \u00e1rabilinu 1660-1670 var sr. \u00deorkell Arngr\u00edmsson, <a href=\"#1_Sr._Thorkell\"><sup>1<\/sup><\/a>\u00a0fyrsti l\u00e6r\u00f0i l\u00e6knirinn \u00e1 \u00cdslandi, fenginn til a\u00f0 l\u00edta \u00e1 eiginkonu P\u00e9turs Brandssonar.<a href=\"#2_Vilmundur_J%C3%B3nsson\"><sup>2<\/sup><\/a> L\u00fdsing vitjunarinnar \u00ed l\u00e6kningadagb\u00f3k sr. \u00deorkels er svona, lauslega endurs\u00f6g\u00f0 og sk\u00fdr\u00f0 \u00e1 \u00edslensku:<\/p>\n<p>Me\u00f0fer\u00f0 85<\/p>\n<p>\u201eKonustr\u00e1\/l\u00edtil kona nokkur, eiginkona P\u00e9turs Brandssonar, hefur \u00e1rum saman \u00fej\u00e1\u00f0st af st\u00f6\u00f0ugum s\u00e1rsauka \u00ed vinstra vanga, sem stendur kitlandi, sem stendur sundursl\u00edtandi, er me\u00f0h\u00f6ndlu\u00f0 fyrst me\u00f0 l\u00edkamshreinsun.\u201c \u00c1tt er vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan skuli laxera duglega og til \u00feess eru notu\u00f0 efnin: Pilulae Aureae (\u201ehno\u00f0u\u00f0 lyfjaber\u201c, \u00fe.e. einhvers konar heimatilb\u00fanar pillur, me\u00f0 virku efnunum<a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Aloe_vera\"> aloe vera<\/a> og k\u00f3l\u00f3kvinteplum, \u00fe.e. <a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Citrullus_colocynthis\">citrullus colocynthis<\/a> ) og Pilulae Chochiae (\u00far k\u00f3l\u00f3kvinteplum). \u00datb\u00faa skal 15 skammta \u00far lyfjaberjum og blanda \u00feeim \u00fat \u00ed mysu. Skilji \u00e9g l\u00fdsinguna r\u00e9tt hefur litla veika konan veri\u00f0 l\u00e1tin laxera 15 sinnum!<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0an skal gera bakstur \u00far s\u00fardeigi og spanskflugu (<a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Spanish_fly\">cantharides<\/a>) og leggja \u00e1 auman kj\u00e1lkann, sem venjulega kallar fram bata.<a href=\"#3_P%C3%A9tur_Brandsson\"><sup>3<\/sup><\/a><\/p>\n<p>Vi\u00f0 skulum vona a\u00f0 vesalings konunni hafi batna\u00f0 eitthva\u00f0 af \u00feessari duglegu laxeringu og brunabl\u00f6\u00f0runum sem spanskflugus\u00fardeigsbaksturinn olli!<\/p>\n<div id=\"attachment_1379\" style=\"width: 259px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/bakstur.jpg?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-1379\" class=\"wp-image-1379 size-medium\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/bakstur.jpg?resize=249%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"Spanskflugubakstur \u00e1 vinstri vanga\" width=\"249\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/bakstur.jpg?resize=249%2C300&amp;ssl=1 249w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/bakstur.jpg?w=599&amp;ssl=1 599w\" sizes=\"auto, (max-width: 249px) 100vw, 249px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-1379\" class=\"wp-caption-text\">Spanskflugubakstur \u00e1 vinstri vanga<\/p><\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem er einkum merkilegt vi\u00f0 \u00feessa f\u00e6rslu \u00ed l\u00e6kningadagb\u00f3k sr. \u00deorkels er l\u00fdsingin \u00e1 sj\u00fakd\u00f3mseinkennunum. Hann notar or\u00f0in sundursl\u00edtandi (eins og veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 sl\u00edta \u00ed t\u00e6tlur) og kitlandi, sem e.t.v. \u00e1 a\u00f0 l\u00fdsa rafstraumstilfinningu \u00e1\u00f0ur en rafmagn var \u00feekkt, \u00feegar hann l\u00fdsir verknum sem hrj\u00e1\u00f0i konuna. \u00deessi l\u00fdsing r\u00edmar \u00e1g\u00e6tlega vi\u00f0 n\u00fat\u00edmal\u00fdsingar \u00e1 d\u00e6miger\u00f0ri \u00ferenndartaugab\u00f3lgu (trigeminal neuralgia).<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Enski l\u00e6knirinn og heimspekingurinn John Locke var samt\u00ed\u00f0arma\u00f0ur sr. \u00deorkels. S\u00ed\u00f0la \u00e1rsins 1677 var Locke staddur \u00ed Par\u00eds og var \u00fe\u00e1 be\u00f0inn um a\u00f0 li\u00f0sinna eiginkonu enska sendiherrans \u00fear, greifynjunni af Nor\u00f0imbralandi. S\u00fa var reyndar g\u00f3\u00f0 vinkona Johns Locke fr\u00e1 gamalli t\u00ed\u00f0 og haf\u00f0i reynst honum vel.<\/p>\n<div id=\"attachment_1380\" style=\"width: 305px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/elisabet_af_nordimbralandi.jpg?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-1380\" class=\"wp-image-1380 size-medium\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/elisabet_af_nordimbralandi.jpg?resize=295%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"Elizabeth Percy, greifynja af Nor\u00f0imbralandi\" width=\"295\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/elisabet_af_nordimbralandi.jpg?resize=295%2C300&amp;ssl=1 295w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2015\/08\/elisabet_af_nordimbralandi.jpg?w=744&amp;ssl=1 744w\" sizes=\"auto, (max-width: 295px) 100vw, 295px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-1380\" class=\"wp-caption-text\">Hluti af m\u00e1lverki Sir Peter Lely af greifynjunni af Nor\u00f0imbralandi<\/p><\/div>\n<p>Hin fagra <a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Elizabeth_Percy,_Countess_of_Northumberland\">El\u00edsabet af Nor\u00f0imbralandi<\/a> \u00fej\u00e1\u00f0ist af skelfilegum verk \u00ed andliti og ne\u00f0ri kj\u00e1lka og var h\u00e1gr\u00e1tandi af kv\u00f6lum \u00feegar Locke vitja\u00f0i hennar, skv. \u00fev\u00ed sem hann skr\u00e1ir sj\u00e1lfur samd\u00e6gurs \u00ed sj\u00fakraskr\u00e1\/dagb\u00f3k s\u00edna.<a href=\"#4_Sj%C3%A1_tilvitnun_%C3%AD_Lockes_Journa\"><sup>4<\/sup><\/a> \u00cd br\u00e9fi til vinar s\u00edns, skrifu\u00f0u tveimur d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar, segir Locke a\u00f0 s\u00e1rsauka\u00f3p hennar hafi minnt \u00e1 mann \u00e1 p\u00ednubekk! El\u00edsabet sag\u00f0i Locke a\u00f0 svo v\u00e6ri sem eldingu lysti hva\u00f0 eftir anna\u00f0 \u00ed h\u00e6gri helming andlitsins og munns og \u00ed hvert sinn g\u00e6ti h\u00fan ekki varist \u00fev\u00ed a\u00f0 reka upp s\u00e1rsauka\u00f3p, a\u00f0 \u00feessu fylgdi krampi sem dr\u00e6gi h\u00e6gra munnvik upp og afskr\u00e6mdi hana \u00ed framan. Svo sn\u00f6ggh\u00e6tti s\u00e1rsaukinn sm\u00e1 stund en s\u00ed\u00f0an endurt\u00e6ki \u00feetta sig. \u00deegar h\u00fan reyndi a\u00f0 tala framkalla\u00f0i \u00fea\u00f0 gjarna svona kast, jafnvel bara vi\u00f0 a\u00f0 opna muninn, e\u00f0a \u00feegar g\u00f3marnir voru snertir e\u00f0a\u00a0 \u00feegar h\u00fan reyndi a\u00f0 leggjast \u00e1 h\u00e6gri vangann h\u00f3fst kast. K\u00f6stin st\u00f3\u00f0u mislengi og hl\u00e9in milli \u00feeirra n\u00e1\u00f0u ekki h\u00e1lft\u00edma, stundum miklu styttri stund. <a href=\"#5_Sj%C3%A1_tilvitnun_%C3%AD_br%C3%A9f_Locke\"><sup>5<\/sup><\/a><\/p>\n<p>\u00deegar upphaflega var sent eftir Locke fylgdu \u00feau skilabo\u00f0 a\u00f0 \u201esterkur straumur [violent rhume] er \u00ed t\u00f6nnum hennar sem veldur henni miklum kv\u00f6lum\u201c.\u00a0 Locke var be\u00f0inn um a\u00f0 koma me\u00f0 besta bl\u00f6\u00f0ruvaldandi\/brenni-pl\u00e1sturinn (blistering plaster) sem hann \u00e6tti \u00fev\u00ed \u201eh\u00fan er ekki tilb\u00fain til a\u00f0 pr\u00f3fa fleiri franskar tilraunir\u201c.<a href=\"#6_Sj%C3%A1_tilvitnun_%C3%AD_Margaret_Blomer\"><sup>6<\/sup><\/a>\u00a0 \u00deessar fr\u00f6nsku l\u00e6knistilraunir h\u00f6f\u00f0u falist \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 draga \u00far El\u00edsabetu tv\u00e6r algerlega \u00f3skemmdar tennur.<a href=\"#7_Cranston.\"><sup>7<\/sup><\/a><\/p>\n<p>Locke var d\u00e1l\u00edti\u00f0 hikandi vi\u00f0 a\u00f0 reyna hef\u00f0bundin l\u00e6knisr\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed sendiherrafr\u00fain var \u00f3fr\u00edsk og kalt og klakafullt \u00ed Par\u00eds \u00e1 \u00feessum \u00e1rst\u00edma en l\u00e9t \u00fe\u00f3 va\u00f0a. Hann hreinsa\u00f0i l\u00edkamann me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta hana laxera sj\u00f6 til \u00e1tta sinnum <a href=\"#8_Cranston._1985\"><sup>8<\/sup><\/a> og nota\u00f0i einnig brennipl\u00e1stra og bar \u00f3p\u00edumsmyrsl \u00e1 g\u00f3mana. Raunar v\u00e9k hann ekki fr\u00e1 sj\u00fakrabe\u00f0i fr\u00faarinnar \u00ed h\u00e1lfan m\u00e1nu\u00f0.<a href=\"#9_Woolhouse._2007\"><sup>9<\/sup><\/a><\/p>\n<p>\u00dev\u00ed mi\u00f0ur \u00feegja heimildir um hvort e\u00f0a hversu mj\u00f6g El\u00edsabetu batna\u00f0i. Locke hlaut \u00fe\u00f3 nokkra silfurmuni \u00ed laun fyrir l\u00e6kningartilraunirnar svo sj\u00e1lfsagt hafa \u00fe\u00e6r bori\u00f0 einhvern \u00e1rangur. Aftur \u00e1 m\u00f3ti er \u00fev\u00ed haldi\u00f0 mj\u00f6g \u00e1 lofti n\u00fa a\u00f0 Locke \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem hrj\u00e1\u00f0i El\u00edsabetu af Nor\u00f0imbralandi tengdist t\u00f6nnum ekki neitt heldur taugum.<\/p>\n<p>Hann skrifa\u00f0i vini s\u00ednum, Dr. John Mapletoft, aftur \u00feann 22. desember 1677 og sag\u00f0i \u00ed \u00fev\u00ed br\u00e9fi:<\/p>\n<p>&#8230; \u00c9g held a\u00f0 tanndr\u00e1tturinn, s\u00e9rstaklega s\u00e1 s\u00ed\u00f0ari, hafi ska\u00f0a\u00f0 einhverja taug me\u00f0 \u00feeim aflei\u00f0ingum a\u00f0 au\u00f0velt er a\u00f0 erta hana og h\u00fan hefur \u00e1hrif \u00e1 n\u00e6rliggjandi taugar; Samt sem \u00e1\u00f0ur hef \u00e9g \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 \u00e6tla, mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem fr\u00fain hefur sagt m\u00e9r s\u00ed\u00f0an a\u00f0 ofsinn \u00ed s\u00e1rsaukanum dv\u00edna\u00f0i, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eldri ska\u00f0i \u00ed taugunum \u00fearna megin &#8230; <a href=\"#10_Pearce\"><sup>10<\/sup><\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><b>John Locke er \u00fev\u00ed gjarna hampa\u00f0 sem \u00feeim fyrsta e\u00f0a einum af \u00feeim fyrstu sem \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 a\u00f0 til v\u00e6ri sj\u00fakd\u00f3mur s\u00e1 sem n\u00fa er nefndur trigeminal neuralgia, \u00e1 \u00edslensku \u00fdmist \u00ferenndartaugab\u00f3lga e\u00f0a vangahvot<\/b>.<a href=\"#11_Sj%C3%A1_t.d._Cole_Chad_D.\"><sup>11<\/sup><\/a>\u00a0 Landi okkar, sr. \u00deorkell Arngr\u00edmsson, l\u00fdsti hins vegar sj\u00fakd\u00f3mnum pr\u00fd\u00f0ilega, eflaust betur en margir forverar og eftirmenn hans, en hann hefur \u00fev\u00ed mi\u00f0ur falli\u00f0 \u00ed gleymskunnar d\u00e1.<\/p>\n<p>L\u00e6knisr\u00e1\u00f0 \u00feeirra voru keiml\u00edk: A\u00f0 l\u00e1ta sj\u00faklinginn laxera duglega og brenna s\u00ed\u00f0an vanga og kj\u00e1lka me\u00f0 b\u00f6kstrum e\u00f0a pl\u00e1strum.\u00a0 A\u00f0 auki beitti Locke deyfiefni \u00e1 g\u00f3ma, \u00fe.e.a.s. laudanum-smyrsli (\u00f3p\u00edumdropa-smyrsli) en \u00deorkell, sem \u00fe\u00f3 \u00e1tti laudanum i f\u00f3rum s\u00ednum, spl\u00e6sti \u00fev\u00ed n\u00fa ekki \u00e1 \u00f3nefndu eiginkonup\u00edslina hans P\u00e9turs Brandssonar.<\/p>\n<hr \/>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a name=\"1_Sr._Thorkell\"><\/a>1 \u00a0Sr. \u00deorkell Arngr\u00edmsson (1629-1677) var sonur Arngr\u00edms l\u00e6r\u00f0a J\u00f3nssonar \u00e1 Mel. Hann stunda\u00f0i n\u00e1m \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i, l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i og n\u00e1tt\u00farufr\u00e6\u00f0i \u00e1rum saman \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og v\u00ed\u00f0ar en kom heim og t\u00f3k vi\u00f0 prestskap \u00ed G\u00f6r\u00f0um \u00e1 \u00c1lftanesi \u00e1ri\u00f0 1658. \u00dev\u00ed starfi sinnti hann til \u00e6viloka. En margt anna\u00f0 var \u00deorkeli til lista lagt, hann var sk\u00e1ldm\u00e6ltur b\u00e6\u00f0i \u00e1 \u00edslensku og lat\u00ednu og \u00fe\u00fdddi \u00fe\u00e1 merku b\u00f3k T\u00f3masar af Kempis,<i> Eftirbreytni Krists<\/i>, sem var prentu\u00f0 \u00e1 H\u00f3lum 1674 og er <a href=\"http:\/\/baekur.is\/bok\/000594433\/THriar_Stuttar_Baekur__Huorne_\">a\u00f0gengileg \u00e1 vef<\/a>.\u00a0 Hins vegar \u00fe\u00f3tti hann nokku\u00f0 drykkfelldur og lenti d\u00e1l\u00edti\u00f0 upp \u00e1 kant vi\u00f0 sum af s\u00ednum s\u00f3knarb\u00f6rnum. Af sonum \u00feeirra hj\u00f3na, sr. \u00deorkels og Margr\u00e9tar \u00deorsteinsd\u00f3ttur, er J\u00f3n biskup V\u00eddal\u00edn \u00feekktastur.<br \/>\nP\u00e1ll Eggert \u00d3lason. (1952).<i> \u00cdslenzkar \u00e6viskr\u00e1r fr\u00e1 landn\u00e1mst\u00edmum til \u00e1rsloka 1940<\/i> V. bindi. Reykjav\u00edk:Hi\u00f0 \u00edslenzka b\u00f3kmenntaf\u00e9lag, s. 144-145.\u00a0<a href=\"http:\/\/baekur.is\/bok\/000306940\/5\/148\/Islenzkar_aeviskrar_fra_Bindi_5_Bls_148\"> A\u00f0gengilegt \u00e1 vef<\/a>.<\/p>\n<p><a name=\"2_Vilmundur_J\u00f3nsson\"><\/a>2 Vilmundur J\u00f3nsson. (1949). <i>L\u00e6kningar &#8211; Curationes &#8211; s\u00e9ra \u00deorkels Arngr\u00edmssonar s\u00f3knarprests \u00ed G\u00f6r\u00f0um \u00e1 \u00c1lftanesi<\/i>. Reykjav\u00edk:Helgafell.<\/p>\n<p>Meginefni b\u00f3karinnar eru sk\u00fdringar og vangaveltur Vilmundar J\u00f3nssonar landl\u00e6knis, sem kemst a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 l\u00fdsingar sr. \u00deorkels af sj\u00fakravitjunum og l\u00e6kningum h\u00e9rlendis eigi vi\u00f0 \u00e1rin 1658\/59 til 1672\/73. Vilmundur er ekki viss um a\u00f0 l\u00fdsingarnar s\u00e9u \u00ed t\u00edmar\u00f6\u00f0 og r\u00f6ksty\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00e1g\u00e6tlega. L\u00fdsing sr. \u00deorkels sem h\u00e9r er til umr\u00e6\u00f0u er nr. LXXXV (\u00fe.e. 85). Minnisgreinar fr\u00e1 \u00cdslandi eru, skv. Vilmundi, nr. XXX-CXXVII (30-127). \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed hrein \u00e1giskun m\u00edn a\u00f0 sr. \u00deorkell hafi vitja\u00f0 hinnar sj\u00faku konukindar \u00e1 \u00feessum \u00e1ratug en v\u00e6ntanlega ekki fjarri lagi.<\/p>\n<p><a name=\"3_P\u00e9tur_Brandsson\"><\/a>3 P\u00e9tur Brandsson finnst ekki \u00ed <a href=\"http:\/\/islendingabok.is\"><i>\u00cdslendingab\u00f3k<\/i><\/a> n\u00e9 \u00ed neinum g\u00f6gnum sem m\u00e9r eru handb\u00e6r. Or\u00f0r\u00e9tt er l\u00fdsing sr. \u00deorkels svona:<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">Cur<i>atio<\/i> LXXXV.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">Muliercula qv\u00e6dam, Uxor Petri Brandani, per multos an<i>n<\/i>os habuit dolorem in bucca dextra inqvietum, nunc titallantem, nunc lancinantem, curata est primum purgato corpore per pil<i>ularum<\/i> aurear<i>um<\/i>, Cochiar<i>um<\/i> ana 3 [t\u00e1kn fyrir magn, g\u00e6ti veri\u00f0 fyrir \u00fansu, \u00fe.e. 30 g], f<i>iant<\/i> Pil<i>ul\u00e6<\/i> N<i>umero<\/i> XV, adsumat in sero lactis, hinc ad maxillam applicato vesicatorio Ex fermento &amp; cantharidibus, qvorum usu convaluit.<br \/>\nVilmundur J\u00f3nsson. (1949, s. 441).<\/p>\n<p><a name=\"4_Sj\u00e1_tilvitnun_\u00ed_Lockes_Journa\"><\/a>4 Sj\u00e1 tilvitnun \u00ed Locke&#8217;s Journal (16-27 December 1677) \u00ed Cranston, Maurice. (1985). <i>John Locke: A Biography<\/i>. Oxford\/New York: Oxford University Press, s.173.<\/p>\n<p><a name=\"5_Sj\u00e1_tilvitnun_\u00ed_br\u00e9f_Locke\"><\/a>5 Sj\u00e1 tilvitnun \u00ed br\u00e9f Locke dags. 4 des. 1677 til Dr. John Mapeltoft, \u00ed Pearce, JMS. (1993). John Locke and the trigeminal neuralgia of the Countess of Northumerberland. <i><em>Journal of Neurology<\/em><\/i><i>, <\/i><i><em>Neurosurgery, and Psychiatry<\/em><\/i> 1993 56:45 \u00a0<a href=\"http:\/\/jnnp.bmj.com\/content\/56\/1\/45.full.pdf+html?ijkey=dee3296f7b09f291ed9a15d2eef8f5ef492de48f&amp;keytype2=tf_ipsecsha\">A\u00f0gengilegt \u00e1 vef<\/a>.<\/p>\n<p><a name=\"6_Sj\u00e1_tilvitnun_\u00ed_Margaret_Blomer\"><\/a>6 Sj\u00e1 tilvitnun \u00ed Margaret Blomer \u00ed\u00a0 Woolhouse, Roger. (2007). <i>Locke: A Biography<\/i>. New York:Cambridge University Press, s. 140.<\/p>\n<p><a name=\"7_Cranston.\"><\/a>7 Cranston. 1985, s. 173.<\/p>\n<p><a name=\"8_Cranston._1985\"><\/a>8 Cranston. 1985, s. 173.<\/p>\n<p><a name=\"9_Woolhouse._2007\"><\/a>9 Woolhouse. 2007, s.140.<\/p>\n<p><a name=\"10_Pearce\"><\/a>10 Pearce. 1993.<\/p>\n<p><a name=\"11_Sj\u00e1_t.d._Cole_Chad_D.\"><\/a>11 Sj\u00e1 t.d. Cole, Chad D. o.fl. Historical Perspectives on the Diagnosis and Treatment of Trigeminal Neuralgia. <i>Neurosurgical Focus<\/i>. 2005:18(5). <a href=\"http:\/\/www.medscape.com\/viewarticle\/505379\">A\u00f0gengilegt \u00e1 vef<\/a>.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deetta er fyrsta f\u00e6rsla \u00ed f\u00e6rsluflokki um \u00ferenndartaugab\u00f3lgu. Einhvern t\u00edma \u00e1 \u00e1rabilinu 1660-1670 var sr. \u00deorkell Arngr\u00edmsson, 1\u00a0fyrsti l\u00e6r\u00f0i l\u00e6knirinn \u00e1 \u00cdslandi, fenginn til a\u00f0 l\u00edta \u00e1 eiginkonu P\u00e9turs Brandssonar.2 L\u00fdsing vitjunarinnar \u00ed l\u00e6kningadagb\u00f3k sr. <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2015\/08\/24\/konustraid-hans-peturs-og-greifynjan-af-nordimbralandi\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[113],"tags":[117,120,119,114,116,118,115],"class_list":["post-1372","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-threnndartaugabolga","tag-john-locke","tag-laxera","tag-spanskfluga","tag-trigeminal-neuralgia","tag-vangahvot","tag-thorkell-arngrimsson","tag-threnndartaugabolga"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1372","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1372"}],"version-history":[{"count":10,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1372\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1384,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1372\/revisions\/1384"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1372"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1372"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1372"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}