{"id":1581,"date":"2017-04-16T18:28:48","date_gmt":"2017-04-16T18:28:48","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=1581"},"modified":"2017-04-20T10:39:51","modified_gmt":"2017-04-20T10:39:51","slug":"reynsla-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss-4","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2017\/04\/16\/reynsla-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss-4\/","title":{"rendered":"Reynsla TN-sj\u00faklings af \u201e\u00fej\u00f3nustu\u201c Landsp\u00edtala-H\u00e1sk\u00f3lasj\u00fakrah\u00fass"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-1584\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2017\/04\/zuedberg.jpg?resize=512%2C308&#038;ssl=1\" alt=\"zuedberg\" width=\"512\" height=\"308\" \/><\/p>\n<p><strong>IV. hluti \u2013<a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2017\/04\/14\/reynsla-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss-3\/\">frh. af III. hluta<\/a><\/strong><\/p>\n<p>Eftir nokkra daga umbreyttist tauga\u00e1falli\u00f0 \u00ed hef\u00f0bundna l\u00ed\u00f0an \u00ed dj\u00fapu \u00feunglyndi, \u00fe.e. \u201ekatak\u00f3n\u00edskt\u201c \u00e1stand e\u00f0a stjarfa. \u00c9g var ekki lengur \u00ed sj\u00e1lfsv\u00edgsh\u00e6ttu en \u00e1tti mj\u00f6g erfitt me\u00f0 tal, hreyfingar, hugsun og \u00feess h\u00e1ttar. Vel a\u00f0 merkja er \u00e9g \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra 15% me\u00f0 svona \u00feunglyndi sem hef \u00f6fuga d\u00e6gursveiflu og l\u00ed\u00f0ur sk\u00e1st \u00e1 morgnana. \u00dea\u00f0 hefur rugla\u00f0 \u00fdmsa l\u00e6kna og heilbrig\u00f0isstarfsmenn sem l\u00edti\u00f0 \u00feekkja til \u00feunglyndis.<\/p>\n<p><strong>13. febr\u00faar 2017<\/strong>: \u00c9g reyndi enn einn ganginn a\u00f0 n\u00e1 sambandi vi\u00f0 Aron Bj\u00f6rnsson e\u00f0a Elfar \u00dalfarsson gegnum a\u00f0alskiptibor\u00f0 Lsp \u00ed vi\u00f0talst\u00edma \u00feeirra 7:30-8:00. N\u00e1\u00f0i m\u00e9r til mikillar undrunar sambandi vi\u00f0 Elfar, sem lofa\u00f0i a\u00f0 hringja aftur og \u00fatsk\u00fdr\u00f0i af hverju hann hef\u00f0i ekki hringt \u00ed mig \u00feann 9. febr\u00faar eins og hann \u00e1tti a\u00f0 gera. <strong>\u00deetta var \u00ed fyrsta sinn sem \u00e9g n\u00e1\u00f0i tali af l\u00e6kni \u00e1 H+T fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g f\u00f3r \u00e1 bi\u00f0lista hj\u00e1 \u00feeirri deild \u00feann 9. \u00e1g\u00fast 2016<\/strong>.<\/p>\n<p>Um kv\u00f6ldi\u00f0 hringdi Elfar \u00dalfarsson aftur \u00ed mig. Hann haf\u00f0i \u00fe\u00e1 komist a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 til v\u00e6ru 3 n\u00e1lar til a\u00f0 gera PBC-a\u00f0ger\u00f0 \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0, allar heimasm\u00ed\u00f0a\u00f0ar. Ein n\u00e1lin v\u00e6ri \u00e1 Karolinska sj\u00fakrah\u00fasinu \u00ed Stokkh\u00f3lmi og 2 \u00e1 Sahlgrenska \u00ed Gautaborg. Hann v\u00e6ri b\u00fainn a\u00f0 standa \u00ed \u00fev\u00ed allan daginn milli l\u00e6knisverka, sag\u00f0i hann, a\u00f0 n\u00e1 sambandi vi\u00f0 me\u00f0limi Siglinganefndar Al\u00fej\u00f3\u00f0asvi\u00f0s S\u00cd og f\u00e1 munnlegt lofor\u00f0 fr\u00e1 nefndinni um a\u00f0 \u00farskur\u00f0i hennar \u00ed m\u00ednu m\u00e1li yr\u00f0i breytt. \u00cd Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 v\u00e6ri vetrarfr\u00ed \u00feessa viku og \u00fev\u00ed hef\u00f0i hann ekki n\u00e1\u00f0 \u00ed l\u00e6kninn sem \u00e9g haf\u00f0i s\u00f3tt um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 fara til \u00ed \u00feessa a\u00f0ger\u00f0. En hann myndi ey\u00f0a morgundeginum, fr\u00eddeginum s\u00ednum, \u00ed a\u00f0 reyna a\u00f0 n\u00e1 sambandi vi\u00f0 hann.<\/p>\n<p><strong>14. febr\u00faar 2017<\/strong>: Elfar hringdi s\u00ed\u00f0la dags og sag\u00f0i a\u00f0 hann hef\u00f0i n\u00e1\u00f0 tali af samstarfskonu l\u00e6knisins og tekist a\u00f0 f\u00e1 hana til a\u00f0 skr\u00e1 mig sem \u201eak\u00fat-tilvik\u201c svo \u00e9g k\u00e6mist fram fyrir f\u00f3lk \u00e1 bi\u00f0lista. \u00c9g \u00e6tti a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed innritun \u00e1 Sahlgrenska sj\u00fakrah\u00fasi\u00f0 \u00feann 9. mars og fara \u00ed a\u00f0ger\u00f0ina \u00feann 10. mars.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessu s\u00edmtali spur\u00f0i \u00e9g \u00e1 hve m\u00f6rgum sj\u00faklingum Hj\u00e1lmar Bjartmarz hef\u00f0i gert \u00feessa a\u00f0ger\u00f0 \u00ed fyrra, \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 H+T hef\u00f0i teflt fram \u00feeim r\u00f6kum a\u00f0 Hj\u00e1lmar st\u00e6\u00f0i engum a\u00f0 baki \u00ed \u00ferenndartaugara\u00f0ger\u00f0um og \u00e9g hef\u00f0i einungis haft tal af einum sj\u00faklingi sem hann hef\u00f0i gert PBC-a\u00f0ger\u00f0 \u00e1. Elfar neita\u00f0i a\u00f0 svara spurningunni. Hann neita\u00f0i \u00fev\u00ed l\u00edka a\u00f0 hann hef\u00f0i sagt vi\u00f0 \u00feann sj\u00fakling \u00feau or\u00f0 sem sj\u00faklingurinn haf\u00f0i haft eftir honum vi\u00f0 mig.<\/p>\n<p><strong>15. febr\u00faar 2017<\/strong>: Siglinganefnd Al\u00fej\u00f3\u00f0asvi\u00f0s S\u00cd t\u00f3k aftur upp ums\u00f3kn m\u00edna dags. 30. jan\u00faar, \u00f3gilti fyrri \u00farskur\u00f0 sinn og kva\u00f0 upp n\u00fdjan. N\u00fa fengi \u00e9g greiddar fer\u00f0ir, a\u00f0ger\u00f0arkostna\u00f0 og dagpeninga fyrir mig og fylgdarmann. R\u00f6k fyrir n\u00fdja \u00farskur\u00f0inum voru: \u201e\u00cd dag hafa Sj\u00fakratryggingum \u00cdslands borist l\u00e6knisvottor\u00f0 fr\u00e1 Elfari \u00dalfarssyni heila- og taugaskur\u00f0l\u00e6kni, \u00fear sem sta\u00f0fest er a\u00f0 ekki er h\u00e6gt a\u00f0 \u00fatvega nau\u00f0synlega n\u00e1l sem \u00fe\u00f6rf er \u00e1 a\u00f0 nota vi\u00f0 a\u00f0ger\u00f0.\u201c <strong>\u00deetta me\u00f0 n\u00e1larskortinn var raunar hi\u00f0 sama og \u00e9g haf\u00f0i sagt starfsm\u00f6nnum Al\u00fej\u00f3\u00f0asvi\u00f0s og haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 ritara Arons Bj\u00f6rnssonar, yfirl\u00e6knis H+T vita af \u00feann 13. jan\u00faar 2017<\/strong>.<\/p>\n<p>H\u00e9r a\u00f0 ne\u00f0an m\u00e1 sj\u00e1 hinn n\u00fdja \u00farskur\u00f0 Siglinganefndar Al\u00fej\u00f3\u00f0asvi\u00f0s Sj\u00fakratrygginga \u00cdslands:<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-full wp-image-1583\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2017\/04\/siglingarnefnd_2.jpg?resize=540%2C638&#038;ssl=1\" alt=\"siglingarnefnd_2\" width=\"540\" height=\"638\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2017\/04\/siglingarnefnd_2.jpg?w=786&amp;ssl=1 786w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2017\/04\/siglingarnefnd_2.jpg?resize=254%2C300&amp;ssl=1 254w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2017\/04\/siglingarnefnd_2.jpg?resize=768%2C908&amp;ssl=1 768w\" sizes=\"auto, (max-width: 540px) 100vw, 540px\" \/><\/p>\n<p>N\u00fa, \u00fe.e. eftir a\u00f0 Al\u00fej\u00f3\u00f0asvi\u00f0 S\u00cd, t\u00f3k vi\u00f0 gengu m\u00e1l hratt og algerlega snur\u00f0ulaust fyrir sig. S\u00cd hefur s\u00e9rstakan fulltr\u00faa hj\u00e1 Icelandair sem afgrei\u00f0ir flugmi\u00f0a eftir \u00fev\u00ed sem best hentar sj\u00faklingi og fylgdarmanni. Einnig hefur stofnunin tengili\u00f0i v\u00ed\u00f0a \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum og samd\u00e6gurs og flugmi\u00f0ar voru afgreiddir haf\u00f0i tengili\u00f0urinn \u00ed Gautaborg samband \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti og bau\u00f0 fram a\u00f0sto\u00f0 s\u00edna. S\u00f6mu s\u00f6gu m\u00e1tti segja af Sahlgrenska sj\u00fakrah\u00fasinu; b\u00e6\u00f0i f\u00e9kk \u00e9g uppl\u00fdsingab\u00e6kling mj\u00f6g flj\u00f3tt fr\u00e1 \u00feeim og tengili\u00f0ur sem s\u00e9r um erlend samskipti haf\u00f0i einnig samband og bau\u00f0 fram alla s\u00edna a\u00f0sto\u00f0 sem unnt v\u00e6ri a\u00f0 veita, fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0a vi\u00f0 leigub\u00edla til \u00feess a\u00f0 finna sv\u00f6r vi\u00f0 hverjum \u00feeim spurningum sem \u00e9g hef\u00f0i, \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti.<\/p>\n<h4><strong>\u00c1 Sahlgrenska sykhuset<\/strong><\/h4>\n<p>Innritunin ytra t\u00f3k h\u00e1tt \u00ed fj\u00f3rar klukkustundir og auk \u00feess a\u00f0 tala vi\u00f0 hj\u00fakrunarf\u00f3lk og f\u00e1 a\u00f0 sko\u00f0a deildina sem \u00e9g myndi e.t.v. leggjast inn \u00e1, f\u00e9kk \u00e9g vi\u00f0tal vi\u00f0 sv\u00e6fingal\u00e6kni og langt vi\u00f0tal vi\u00f0 l\u00e6kninn sem ger\u00f0i a\u00f0ger\u00f0ina. <strong>Hann var raunar mj\u00f6g undrandi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 svo til engar uppl\u00fdsingar fylgdu m\u00e9r fr\u00e1 H+T og spur\u00f0i hvers vegna \u00e9g v\u00e6ri ak\u00fat-sj\u00faklingur sendur af Elfari \u00dalfarssyni.<\/strong> \u00c9g svara\u00f0i \u00fev\u00ed hreinskilnislega og lesendum \u00feessa bloggs er au\u00f0vita\u00f0 lj\u00f3st af hverju svo var. S\u00f6mulei\u00f0is uppl\u00fdsti \u00e9g hann um gang sj\u00fakd\u00f3msins, lyf sem \u00e9g t\u00e6ki, ranns\u00f3knir sem \u00e9g hef\u00f0i fari\u00f0 \u00ed, sj\u00fakd\u00f3msgreiningu taugal\u00e6knis \u00e1 taugadeild Lsp og yfirleitt allt anna\u00f0 sem skipti m\u00e1li <strong>\u00fev\u00ed H+T haf\u00f0i vitaskuld litlar sem engar uppl\u00fdsingar um mig, eftir a\u00f0 hafa hunsa\u00f0 mig algerlega \u00ed 6 m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 bi\u00f0lista \u00fer\u00e1tt fyrir \u00ferj\u00fa l\u00e6knabr\u00e9f \u00fear sem sta\u00f0h\u00e6ft var a\u00f0 \u00e9g \u00feyldi enga bi\u00f0 eftir b\u00f3t vi\u00f0 TN2 sj\u00fakd\u00f3mnum<\/strong>. Vi\u00f0 t\u00f6lu\u00f0um saman \u00e1 ensku en \u00feegar \u00e9g sag\u00f0i a\u00f0 upphaflega hef\u00f0i m\u00e9r veri\u00f0 v\u00edsa\u00f0 til H+T me\u00f0 l\u00e6knabr\u00e9fi 8. mars 2016 missti l\u00e6knirinn sig \u00ed s\u00e6nsku og h\u00e1lfhr\u00f3pa\u00f0i: \u201eEtt \u00e5r\u201c! Svo \u00e9g reikna me\u00f0 a\u00f0 menn \u00e1stundi \u00f6nnur vinnubr\u00f6g\u00f0 \u00e1 heila- og taugaskur\u00f0deild Sahlgrenska sj\u00fakrah\u00fassins en \u00e1 H+T \u00e1 Lsp h\u00e9rlendis.<\/p>\n<p>L\u00e6knirinn sag\u00f0i m\u00e9r hvernig a\u00f0ger\u00f0in v\u00e6ri ger\u00f0 og hver v\u00e6ru helstu eftirk\u00f6st sem m\u00e6tti b\u00faast vi\u00f0. (Um \u00feau haf\u00f0i \u00e9g raunar spurt Elfar \u00dalfarsson en hann svara\u00f0i \u00fev\u00ed til a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri betra a\u00f0 s\u00e6nski l\u00e6knirinn \u00fatsk\u00fdr\u00f0i \u00feau.) Hann vara\u00f0i mig vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1rangur af a\u00f0ger\u00f0inni vi\u00f0 \u00f3d\u00e6miger\u00f0um \u00ferenndartaugaverk v\u00e6ri miklu s\u00ed\u00f0ri en v\u00e6ri um d\u00e6miger\u00f0an a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 hafa gert yfir 1000 svona a\u00f0ger\u00f0ir g\u00e6ti hann ekki v\u00edsa\u00f0 \u00ed neina t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i um sl\u00edkt \u00fev\u00ed s\u00e1 \u00f3d\u00e6miger\u00f0i v\u00e6ri \u00fea\u00f0 sjaldg\u00e6fur. En \u00feetta v\u00e6ri samt r\u00e9tt a\u00f0ger\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 sem lyf virku\u00f0u ekki \u00e1 e\u00f0a v\u00e6ru h\u00e6tt a\u00f0 virka \u00e1 til forsvaranlegrar s\u00e1rsaukastillingar. Loks sag\u00f0i hann a\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 myndu svo \u00edslensku l\u00e6knarnir taka vi\u00f0 m\u00e9r og g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 m\u00e9r li\u00f0i s\u00e6milega \u00feegar \u00e9g k\u00e6mi heim.<\/p>\n<p>\u00c9g giska \u00e1 a\u00f0 \u00feetta vi\u00f0tal vi\u00f0 l\u00e6kninn hafi veri\u00f0 h\u00e1tt \u00ed klukkustund, fylgdarma\u00f0urinn var me\u00f0 m\u00e9r og vi\u00f0talinu \u00a0lauk \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 hr\u00f3su\u00f0um \u00f6ll hans \u00e1g\u00e6ta a\u00f0sto\u00f0arl\u00e6kni.<\/p>\n<p>Snemma morguninn eftir f\u00f3r \u00e9g \u00feessa a\u00f0ger\u00f0, sem v\u00e6ntanlega hefur teki\u00f0 svona h\u00e1lft\u00edma. S\u00ed\u00f0an var \u00e9g h\u00f6f\u00f0 \u00ed 7 klst \u00e1 v\u00f6knun og vandlega fylgst me\u00f0 hvort \u00fevagl\u00e1t v\u00e6ru \u00ed lagi o.fl. sem getur gengi\u00f0 \u00far lagi \u00ed sv\u00e6fingu. \u00deegar v\u00f6knun loka\u00f0i var m\u00e9r bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 leggjast inn yfir n\u00f3tt en \u00e9g af\u00feakka\u00f0i \u00fea\u00f0, f\u00f3r \u00fat og reykti lang\u00fer\u00e1\u00f0a s\u00edgarettu og t\u00f3k leigub\u00edl upp \u00e1 h\u00f3tel.<\/p>\n<p>Verstu eftirk\u00f6stin voru hr\u00e6\u00f0ilegur h\u00f6fu\u00f0verkur sem \u00e9g vakna\u00f0i af fyrstu n\u00f3ttina en l\u00e9t s\u00e9r segjast vi\u00f0 Parkod\u00edn Forte. H\u00e1lft andliti\u00f0 var koldofi\u00f0 og enn er dofinn a\u00f0 ganga til baka en a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist frekar hratt. St\u00f3ri kj\u00e1lkav\u00f6\u00f0vinn er enn talsvert lama\u00f0ur en vir\u00f0ist h\u00e6gt og b\u00edtandi vera a\u00f0 jafna sig.<\/p>\n<p>Hinn skelfilega s\u00e1ri verkur hvarf en seinnipart dags og \u00e1 kv\u00f6ldin er \u00e9g enn me\u00f0 alls konar verki, stingi eins og \u00feegar tannl\u00e6knadeyfing er a\u00f0 hverfa, verki sem eru l\u00edklega har\u00f0sperrur af \u00fev\u00ed a\u00f0 halda uppi kj\u00e1lkanum me\u00f0 einhverjum \u00f6\u00f0rum v\u00f6\u00f0vum en st\u00f3ra kj\u00e1lkav\u00f6\u00f0vanum, \u00e9g hef mikinn svi\u00f0a \u00ed munni o.fl. M\u00f6gulega er \u00e9g enn me\u00f0 \u00ferenndartaugaverkinn en hann hefur mj\u00f6g l\u00e1ti\u00f0 undan s\u00edga ef eitthva\u00f0 af \u00feessum sm\u00e1verkjum er hann. F\u00f3lk f\u00e6r au\u00f0vita\u00f0 alls konar verki, en \u00e9g er l\u00f6ngu b\u00fain a\u00f0 trappa mig af tradolani, sem er fremur au\u00f0velt, og vinn \u00ed h\u00e6gri ni\u00f0urtr\u00f6ppun fleiri lyfja.<\/p>\n<p>M\u00e9r er lj\u00f3st a\u00f0 \u00e1rangur a\u00f0ger\u00f0arinnar er t\u00edmabundinn, hann g\u00e6ti meira segja veri\u00f0 \u00f3venju skammvinnur \u00ed m\u00ednu tilviki af \u00fev\u00ed \u00e9g er me\u00f0 \u00f3d\u00e6miger\u00f0an \u00ferenndartaugaverk (TN2). En bara \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 einhverri p\u00e1su fr\u00e1 \u00feessum brj\u00e1l\u00e6\u00f0islega s\u00e1ra stanslausa verk sem hefur plaga\u00f0 mig fr\u00e1 apr\u00edl 2012 og geta minnka\u00f0 t\u00f6ku lyfja er \u00feess vir\u00f0i.<\/p>\n<p><strong>Heimkomin<\/strong><\/p>\n<p><strong>17. febr\u00faar 2017<\/strong>: Heimkomin hringdi \u00e9g \u00ed Margr\u00e9ti T\u00f3masd\u00f3ttur, talsmann sj\u00faklinga og spur\u00f0i hva\u00f0 h\u00fan \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 a\u00f0hafast \u00ed m\u00ednum m\u00e1lum, eftir \u00fatrei\u00f0ina sem \u00e9g hlaut hj\u00e1 H+T, og spur\u00f0i undir hva\u00f0a svi\u00f0 h\u00fan heyr\u00f0i. H\u00fan var mj\u00f6g hvefsin \u00ed s\u00edmann, sag\u00f0ist ekkert \u00e6tla a\u00f0 gera \u00fev\u00ed \u00e9g hef\u00f0i komist \u00ed a\u00f0ger\u00f0ina, tala\u00f0i ofan \u00ed mig \u00ed s\u00edmtalinu, margendurt\u00f3k a\u00f0 h\u00fan nennti ekki a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00feetta aftur o.\u00fe.h. \u00dea\u00f0 var til einskis a\u00f0 benda henni \u00e1 a\u00f0 til v\u00e6ru fleiri sj\u00faklingar en \u00e9g me\u00f0 sama sj\u00fakd\u00f3m sem \u00feyrftu a\u00f0 leita til H+T \u00ed framt\u00ed\u00f0inni, h\u00fan hlusta\u00f0i einfaldlega n\u00e6sta l\u00edti\u00f0 \u00e1 mig. H\u00fan sag\u00f0ist heyra undir g\u00e6\u00f0ar\u00e1\u00f0 Lsp en gat ekki svara\u00f0 spurningu minni um hvert v\u00e6ri hlutverk \u00feess r\u00e1\u00f0s. A\u00f0 lokum skellti h\u00fan \u00e1 mig s\u00edmanum.<\/p>\n<p><strong>10. apr\u00edl 2017<\/strong>: Elfar \u00dalfarsson heila- og taugaskur\u00f0l\u00e6knir hringdi \u00f3v\u00e6nt \u00ed mig, \u00ed tilefni \u00feess a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri m\u00e1nu\u00f0ur li\u00f0inn fr\u00e1 a\u00f0ger\u00f0inni. Hann spur\u00f0i hvernig gengi og hvernig \u00e9g hef\u00f0i \u00fea\u00f0 og var hinn al\u00fa\u00f0legasti. Undir lok s\u00edmtalsins benti \u00e9g honum \u00e1 a\u00f0 hann hef\u00f0i sagt Siglinganefnd \u00f3satt og \u00e9g hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 l\u00edfsh\u00e6ttulega veik af hinum sj\u00fakd\u00f3mnum \u00feess vegna. Elfar sag\u00f0ist s\u00e1r a\u00f0 eftir svo huggulegt spjall sem vi\u00f0 hef\u00f0um \u00e1tt skyldi \u00e9g bera \u00feetta upp \u00e1 hann. \u00c9g sag\u00f0i honum a\u00f0 m\u00e9r v\u00e6ri n\u00e1kv\u00e6mlega sama hva\u00f0 hann vildi kalla \u00feetta sem hann ger\u00f0i en n\u00e6st \u00feegar \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 leita til H+T vegna TN2 skyldi hann sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0t\u00f6kur yr\u00f0u a\u00f0rar: A\u00f0 \u00e9g fengi klassa\u00fej\u00f3nustu og hana strax! Sama \u00e6tti a\u00f0 gilda um \u00fe\u00e1 \u00f6rf\u00e1u a\u00f0ra sj\u00faklinga me\u00f0 \u00feennan sj\u00fakd\u00f3m sem v\u00e6ri v\u00edsa\u00f0 til deildarinnar. \u00deessu j\u00e1nka\u00f0i Elfar.<\/p>\n<p>\u00cd <a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2017\/04\/19\/eftirmal-af-reynslu-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss\/\">n\u00e6stu f\u00e6rslu<\/a> segi \u00e9g fr\u00e1 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um Emb\u00e6ttis landl\u00e6knis vi\u00f0 \u00e1bendingum um lagabrot H+T og stuttri l\u00fdsingu \u00e1 \u00feessari s\u00f6gu sem \u00e9g hef raki\u00f0 \u00ed undanf\u00f6rnum t\u00f6lusettum f\u00e6rslum. \u00de\u00e6r eru, \u00ed t\u00edmar\u00f6\u00f0:<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2017\/04\/10\/reynsla-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss\/\">I. hluti<\/a><br \/>\n<a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2017\/04\/12\/reynsla-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss-2\/\">II. hluti<\/a><br \/>\n<a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2017\/04\/14\/reynsla-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss-3\/\">III. hluti<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IV. hluti \u2013frh. af III. hluta Eftir nokkra daga umbreyttist tauga\u00e1falli\u00f0 \u00ed hef\u00f0bundna l\u00ed\u00f0an \u00ed dj\u00fapu \u00feunglyndi, \u00fe.e. \u201ekatak\u00f3n\u00edskt\u201c \u00e1stand e\u00f0a stjarfa. \u00c9g var ekki lengur \u00ed sj\u00e1lfsv\u00edgsh\u00e6ttu en \u00e1tti mj\u00f6g erfitt me\u00f0 tal, hreyfingar, <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2017\/04\/16\/reynsla-tn-sjuklings-af-thjonustu-landspitala-haskolasjukrahuss-4\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1,113],"tags":[149,162,145,159,158,157,150,161,156,160,132],"class_list":["post-1581","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-threnndartaugabolga","tag-elfar-ulfarsson","tag-harpa-hreinsdottir","tag-heila-og-taugaskurdlaeknadeild-landspitala","tag-leleg-thjonusta-landspitala","tag-olle-corneliusson","tag-sahlgreinsa-sykhuset","tag-siglinganefnd","tag-sjukratryggingar-islands","tag-trigmeminal-neuralgia","tag-threnndarataugaverkur","tag-threnndartaugaverkur"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1581","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1581"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1581\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1606,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1581\/revisions\/1606"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1581"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1581"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1581"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}