{"id":194,"date":"2010-01-26T18:01:37","date_gmt":"2010-01-26T18:01:37","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-01-26\/buin-med-audi\/"},"modified":"2010-01-26T18:01:37","modified_gmt":"2010-01-26T18:01:37","slug":"buin-med-audi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/01\/26\/buin-med-audi\/","title":{"rendered":"B\u00fain me\u00f0 Au\u00f0i!"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g t\u00f3k m\u00e9r tak og kl\u00e1ra\u00f0i b\u00f3kina <em>Au\u00f0i<\/em> enda m\u00e1 \u00e9g ekki hafa hana miki\u00f0 lengur \u00ed l\u00e1ni. Vi\u00f0 J\u00f3sef\u00edna hringu\u00f0um okkur \u00e1 stofus\u00f3fann n\u00fa \u00ed eftirmiddag og reyndar s\u00fdndi k\u00f6tturinn b\u00f3kinni mikla bl\u00ed\u00f0u, neri s\u00e9r utan \u00ed \u00f6ll b\u00f3karhorn. Vi\u00f0 skulum vona a\u00f0 n\u00e6sti l\u00e1n\u00feegi eigi ekki k\u00f6tt!<\/p>\n<p>B\u00f3kin er au\u00f0vita\u00f0 fr\u00e1b\u00e6r &#8211; en ekki hva\u00f0?! \u00c9g var samt \u00f3tr\u00falega lengi a\u00f0 lesa hana af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 eru svo margir fr\u00f3\u00f0leiksmolar \u00ed henni, sem fengu mig til a\u00f0 staldra vi\u00f0, kannski af \u00fev\u00ed \u00e9g hef alltaf haft \u00e1huga \u00e1 \u00feessu efni og meira a\u00f0 segja vappa\u00f0 um sk\u00f3ga \u00cdrlands og sko\u00f0a\u00f0 fr\u00e6gar r\u00fastir, me\u00f0 m\u00ednum manni. (Hluta af the Wicklow Way, kannski misminnir mig nafni\u00f0, \u00ed BB gistingu g\u00f3\u00f0ra kvenna milli g\u00f6ngudaga, \u00fe\u00e6r \u00feurrku\u00f0u meira a\u00f0 segja sk\u00f3na fyrir mann!\u00a0 \u00cd \u00f3gislega fr\u00e6gum klausturr\u00fastum skammt fr\u00e1 Dublin var einmitt turn, eins og minnst er \u00e1 \u00ed <em>Au\u00f0i<\/em>, \u00fear sem inng\u00f6ngudyrnar virtust \u00e1 ca 7. h\u00e6\u00f0 og ma\u00f0ur s\u00e1 fyrir s\u00e9r kr\u00fanuraka\u00f0a munkana draga upp ka\u00f0alstigann og ulla svo \u00e1 v\u00edkingana fyrir ne\u00f0an \ud83d\ude09<\/p>\n<p>P\u00e6lingar um st\u00f6\u00f0u kvenna komu sk\u00fdrt fram (t.d. s\u00fa hugsun sem hvarflar a\u00f0 Au\u00f0i \u00feegar h\u00fan sko\u00f0ar inniloka\u00f0a fluguna \u00ed gylltu rafinu). M\u00e9r fannst Au\u00f0ur vera feikilega mikill karakter en \u00fea\u00f0 er reyndar s\u00fa mynd sem \u00e9g hef alltaf gert m\u00e9r af henni, hafandi kennt <em>Laxd\u00e6lu<\/em> oftar en elstu menn muna!<\/p>\n<p>Svo eyddi \u00e9g d\u00e1g\u00f3\u00f0um t\u00edma \u00ed a\u00f0 fletta upp l\u00fdsingum \u00ed b\u00f3kinni til a\u00f0 finna \u00fat mikilv\u00e6gi f\u00e6\u00f0ingarblettsins \u00e1 \u00deorsteini rau\u00f0 en fann ekki &#8230; eins gott a\u00f0 \u00e9g er ekki a\u00f0 kenna \u00feessa b\u00f3k &#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g held reyndar a\u00f0 b\u00f3kin henti ekki sem kennslub\u00f3k nema \u00fe\u00e1 fyrir elstu nemendur. \u00deetta er fullor\u00f0insb\u00f3k, miklu \u00feyngri en t.d. <em>Laxd\u00e6la<\/em>, og \u00e9g held a\u00f0 fullor\u00f0nir nj\u00f3ti hennar best. Enda l\u00f6ngu kominn t\u00edmi \u00e1 a\u00f0 f\u00e6ra Vilborgu Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttur \u00far barnab\u00f3kahillum b\u00f3kasafna! Allar hennar b\u00e6kur henta fullor\u00f0num mj\u00f6g vel og \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt svo a\u00f0 fyrstu b\u00e6kurnar, saman \u00ed <em>Korku s\u00f6gu<\/em>, s\u00e9u n\u00f3gu au\u00f0veldar til a\u00f0 unglingar nj\u00f3ti \u00feeirra. (Vel \u00e1 minnst er <em>Vi\u00f0 Ur\u00f0arbrunn<\/em> mj\u00f6g vins\u00e6l b\u00f3k \u00ed byrjunar\u00e1f\u00f6ngum \u00edslensku \u00ed framhaldssk\u00f3lum. Virkar vonandi hvetjandi \u00e1 einhverja til a\u00f0 lesa fleiri b\u00e6kur eftir h\u00f6fundinn.)<\/p>\n<p>N\u00fa er \u00e9g ekki \u00ed standi til a\u00f0 skrifa neinn alv\u00f6ru ritd\u00f3m (\u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi gr\u00e1\u00f0una \ud83d\ude09 ) en bendi \u00e1 styrka pers\u00f3nusk\u00f6pun og g\u00f3\u00f0ar umhverfisl\u00fdsingar sem gera b\u00f3kina b\u00ed\u00f3 fyrir heilann: \u00c1 stundum jafnspennandi og Hringadr\u00f3ttinss\u00f6gu-kvikmyndir! (M\u00e6tti nefna sem d\u00e6mi f\u00f6r Au\u00f0ar til klaustursins til a\u00f0 skila The Book of Kells e\u00f0a \u00e1l\u00edka d\u00fdrgrip.) \u00c1 hinn b\u00f3ginn \u00fev\u00e6last sagnfr\u00e6\u00f0i \/ \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0imolar \u00f3\u00fearflega fyrir b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingi me\u00f0 athyglisbrest, auk allra \u00edrsku tilvitnananna. \u00de\u00e6r virku\u00f0u alltaf sem stoppmerki fyrir mig. (Aftur \u00e1 m\u00f3ti gle\u00f0ja \u00fe\u00e6r eflaust G\u00edsla Sigur\u00f0sson \ud83d\ude09<\/p>\n<p>Sem sagt: Flott saga en \u00e9g held samt enn\u00fe\u00e1 meira upp \u00e1 <em>Hrafninn<\/em> &#8230;\u00a0 Eiginlega \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 lesa <em>Hrafninn<\/em> \u00e1 hverju \u00e1ri en ekki bara eftir raflostme\u00f0fer\u00f0. \u00cd m\u00ednum athyglisbrostna heila er <em>Hrafninn<\/em> merkilega \u00f3snertur n\u00fana, gott ef \u00e9g man ekki bara alla b\u00f3kina! Og \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 segja um margar b\u00e6kur n\u00fana. S\u00f3 sorr\u00ed Vilborg &#8230; \u00fe\u00fa samdir bara \u00fev\u00ed mi\u00f0ur b\u00f3k sem f\u00e1ar toppa (\u00fe.e. <em>Hrafninn<\/em>).<\/p>\n<p>\u00c9g hef bara alltaf veri\u00f0 svo heit fyrir Nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um &#8230; hva\u00f0 kalla\u00f0i Vilhj\u00e1lmur Stef\u00e1nsson n\u00fa aftur hinar hv\u00edtu au\u00f0nir?\u00a0 Man \u00fea\u00f0 ekki &#8230; sem er \u00ed lagi \u00fev\u00ed eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 \u00e6vis\u00f6gu Vilhj\u00e1lms og tv\u00e6r b\u00e6kur um Karluk hef \u00e9g ekkert \u00e1lit \u00e1 \u00feessum manni &#8211; hann var ekkert anna\u00f0 en aumur \u00fatr\u00e1sarv\u00edkingur s\u00edns t\u00edma!<\/p>\n<p>M\u00e6li me\u00f0 <em>Au\u00f0i<\/em>!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g t\u00f3k m\u00e9r tak og kl\u00e1ra\u00f0i b\u00f3kina Au\u00f0i enda m\u00e1 \u00e9g ekki hafa hana miki\u00f0 lengur \u00ed l\u00e1ni. Vi\u00f0 J\u00f3sef\u00edna hringu\u00f0um okkur \u00e1 stofus\u00f3fann n\u00fa \u00ed eftirmiddag og reyndar s\u00fdndi k\u00f6tturinn b\u00f3kinni mikla bl\u00ed\u00f0u, neri <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/01\/26\/buin-med-audi\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-194","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/194","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=194"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/194\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=194"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=194"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=194"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}