{"id":202,"date":"2010-02-08T11:47:50","date_gmt":"2010-02-08T11:47:50","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-02-08\/a-hverju-a-eg-ad-lifa-um-marplan\/"},"modified":"2010-02-08T11:47:50","modified_gmt":"2010-02-08T11:47:50","slug":"a-hverju-a-eg-ad-lifa-um-marplan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/02\/08\/a-hverju-a-eg-ad-lifa-um-marplan\/","title":{"rendered":"\u00c1 hverju \u00e1 \u00e9g a\u00f0 lifa? (Um Marplan)"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g braut \u00fe\u00e1 gullv\u00e6gu l\u00edfsreglu a\u00f0 lesa ekki um aukaverkanir lyfja fyrirfram heldur k\u00edkja \u00e1 \u00fe\u00e6r \u00feegar \u00e9g er or\u00f0in kramaraumingi. Hef\u00f0i \u00e9g lesi\u00f0 \u00edtarlega fyrr um lyfi\u00f0 sem b\u00ed\u00f0ur m\u00edn hef\u00f0i \u00e9g kannski ekki teki\u00f0 \u00feann kost heldur kostinn &#8220;h\u00e6tta \u00e1 lyfjum og feisa veikindin&#8221;. Stundum er l\u00e6kningin verri en sj\u00fakd\u00f3murinn, \u00fea\u00f0 hef \u00e9g sosum reynt.<\/p>\n<p>Nema \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 g\u00faggla <em>Marplan<\/em>, eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 tilt\u00f6lulega <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.produktresume.dk\/docushare\/dsweb\/GetRendition\/Document-9062\/html#bmk8\">siss\u00ed \u00fatg\u00e1fu lyfjauppl\u00fdsinga<\/a> hj\u00e1 fr\u00e6ndum okkar D\u00f6num. \u00dear var bara tali\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g \u00feegar vissi, sums\u00e9 a\u00f0 ekki m\u00e6tti eta s\u00fark\u00e1l, gr\u00e6nar baunir, mygluosta, marinera\u00f0a s\u00edld\u00a0og drekka rau\u00f0v\u00edn e\u00f0a h\u00f3stasaft (sem er hvort sem er \u00far myndinni hj\u00e1 m\u00e9r). S\u00fark\u00e1l, gr\u00e6nar baunir o.s.v. finnst m\u00e9r hvort sem er vont.<\/p>\n<p>\u00c9g fann mj\u00f6g \u00edtarlega s\u00ed\u00f0u (kona r\u00e6\u00f0ur hvort h\u00fan notar \u00ed e\u00f0a \u00fd), sj\u00e1\u00a0 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.drugs.com\/mtm\/marplan.html\">http:\/\/www.drugs.com\/mtm\/marplan.html<\/a>\u00a0, \u00fear sem taldar voru upp f\u00e6\u00f0utegundir sem b\u00e6ri a\u00f0 for\u00f0ast, \u00fat af tyram\u00edn, sem er aflei\u00f0a af amin\u00f3s\u00fdru (sem segir st\u00fadent \u00far m\u00e1ladeild ekki neitt).<\/p>\n<p>\u00a0H\u00e9r er listinn: Ostur (s\u00e9rstaklega passa sig \u00e1 sterkum og g\u00f6mlum), s\u00fdr\u00f0ur rj\u00f3mi, j\u00f3g\u00fart, bj\u00f3r o.fl. alk\u00f3h\u00f3l, pylsur hvers konar (s\u00e9rstaklega \u00far salami, pepperon\u00ed), ansj\u00f3sur, kav\u00edar, lifur, mar\u00edneru\u00f0 s\u00edld, f\u00edkjur \u00ed d\u00f3sum, r\u00fas\u00ednur, bananar, av\u00f3kad\u00f3, s\u00fakkula\u00f0i, koffein, sojas\u00f3sa, s\u00fark\u00e1l, fava-baunir, gerja\u00f0ar v\u00f6rur, meyra\u00f0 kj\u00f6t, h\u00f3stasaft. (Sj\u00e1lf myndi \u00e9g ekki telja h\u00f3stasaft til f\u00e6\u00f0utegunda).<\/p>\n<p>\u00c1 annarri s\u00ed\u00f0u var\u00a0hreinlega allur ostur bannvara (\u00fe.m.t. feta) og b\u00e6tt vi\u00f0 k\u00f3ki og \u00f6\u00f0rum k\u00f3ladrykkjum, s\u00faputeningum og m\u00f6rgu fleira.<\/p>\n<p>Kona spyr sig: Er \u00fe\u00e1 banna\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0a gr\u00edskt salat???\u00a0Og \u00e1\u00a0\u00e9g a\u00f0 lifa \u00e1 \u00f3s\u00fdr\u00f0u k\u00e1li og so\u00f0inni \u00fdsu n\u00e6sta \u00e1ri\u00f0? \u00c9g sem lifi a\u00f0allega \u00e1 kaffi, b\u00f6nunum, j\u00f3g\u00fart, s\u00fakkula\u00f0i\u00a0og skyndibitum?\u00a0<\/p>\n<p>Listinn yfir b\u00f6nnu\u00f0 lyf\u00a0er l\u00edka firnalangur. M\u00e9r er svo sem sl\u00e9tt sama nema um sta\u00f0deyfilyf\u00a0tannl\u00e6kna; Hvernig \u00e1 \u00e9g n\u00fa a\u00f0 fara til tannl\u00e6knis, tannl\u00e6knaf\u00f3b\u00edsk sem \u00e9g er? (Man ekki n\u00e1kv\u00e6mlega hvar \u00e9g s\u00e1 \u00feetta me\u00f0 tannl\u00e6kningar &#8230; sj\u00e1lfsagt \u00ed einhverju g\u00faggli.) \u00dea\u00f0 er l\u00edka banna\u00f0 a\u00f0 br\u00faka phedit\u00edn og fara \u00ed sv\u00e6fingu\u00a0 &#8211; \u00e1 eftir \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 spurja hann Ingjald (tannl\u00e6kni, eins gott a\u00f0 vi\u00f0 I. skverum\u00a0\u00fev\u00ed af \u00ed vikunni sem \u00fearf a\u00f0\u00a0gera)\u00a0hvort hann eigi hl\u00e1turgas og spurja ge\u00f0l\u00e6kninn minn hvort megi nota svolei\u00f0is.<\/p>\n<p>Listinn yfir hugsanlegar aukaverkanir Marplans er svo alveg kap\u00edtuli \u00fataf fyrir sig!<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e6tti mig vi\u00f0 \u00feetta allt (nema sta\u00f0deyfilyfjabann tannl\u00e6kna) ef m\u00e9r batnar. Hins vegar eru \u00fe\u00e6r l\u00edkurnar ekkert ofbo\u00f0slega miklar, eiginlega frekar \u00ed l\u00e6gri kantinum. En \u00feetta er \u00fea\u00f0 eina sem eftir \u00e1 a\u00f0 pr\u00f3fa \u00far lyfjafl\u00f3runni ge\u00f0l\u00e6kninga sem passar vi\u00f0 mig. Kona myndi naga sig \u00ed handarb\u00f6kin (e\u00f0a handarkrikann, eins og n\u00fa t\u00ed\u00f0kast a\u00f0 segja) ef\u00a0s\u00ed\u00f0asti s\u00e9ns v\u00e6ri ekki tekinn.<\/p>\n<p>Svol\u00edtill pl\u00fas \/ huggun harmi gegn er a\u00f0 \u00e9g mun l\u00edklega aftur fara a\u00f0 passa \u00ed megni\u00f0 af fatalagernum m\u00ednum. N\u00fdrri f\u00f6t munu hins vegar hanga \u00e1 m\u00e9r. Og \u00e9g tek fram a\u00f0 algert bann er vi\u00f0 hvers kyns megrunarlyfjum me\u00f0 Marplans\u00e1ti!\u00a0 S\u00e9 reyndar ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi yfirleitt a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur af \u00feyngd, frekar megur\u00f0.<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p>\u00deetta er n\u00e1tt\u00farlega allt \u00fat af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er kona og kvellisj\u00fak. \u00cd \u00cdslendingas\u00f6gunum eru gamlir stj\u00f3rnsamir (jafnvel hamrammir) karlar alltaf a\u00f0 taka fram a\u00f0 \u00feeir hafi ekki veri\u00f0 kvellisj\u00fakir um \u00e6vina og lur\u00f0an, sem leggst \u00e1 \u00fe\u00e1, hlj\u00f3ti \u00fe.a.l. a\u00f0 vera banas\u00f3ttin. Undantekning er Egill greyi\u00f0 sem lif\u00f0i og lif\u00f0i og var\u00f0 \u00e6 brj\u00f3stumkennanlegri me\u00f0 aukinni elli og f\u00e1einir a\u00f0rir.<\/p>\n<p>V\u00e6ri \u00e9g karl mundi \u00e9g n\u00e1tt\u00farlega sl\u00e6va hugsanlega kvellis\u00fdki me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna eins og skepna og sm\u00ed\u00f0a svo undir rot fram a\u00f0 mi\u00f0n\u00e6tti dag hvern. (\u00deessu er ekki beint til litlabr\u00f3\u00f0ur.) E\u00f0a leggjast \u00ed b\u00fattkamp og mara\u00feon. (\u00deessu er ekki beint til sonarins.)\u00a0\u00deannig m\u00e1 n\u00e1 upp huggulegri adrenal\u00edn-endorf\u00edn v\u00edmu sem skilar k\u00f6rlum langt. \u00c1 hinn b\u00f3ginn er sennilega frekar lei\u00f0inlegt a\u00f0 b\u00faa me\u00f0 svolei\u00f0is k\u00f6rlum.<\/p>\n<p>Konudrusla sem vill heldur prj\u00f3na en hlaupa, blogga en labba og almennt s\u00e9\u00f0 vera heldur kyrrst\u00e6\u00f0 \u00ed l\u00edfinu ver\u00f0ur au\u00f0vita\u00f0 kvellis\u00fdki a\u00f0 br\u00e1\u00f0. Og \u00fearf a\u00f0 \u00fa\u00f0a \u00ed sig \u00f3hollum me\u00f0ulum, \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 pr\u00f3fa allar andsk. hj\u00e1l\u00e6kningar \u00fev\u00ed fr\u00edsku konurnar hafa einmitt and\u00fa\u00f0 \u00e1 me\u00f0ulum. Og ekkert virkar!<\/p>\n<p>H\u00e9r l\u00e6t \u00e9g klagesang (tregr\u00f3fi) dagsins loki\u00f0.\u00a0Og\u00a0bor\u00f0a \u00feri\u00f0ja banana dagsins!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g braut \u00fe\u00e1 gullv\u00e6gu l\u00edfsreglu a\u00f0 lesa ekki um aukaverkanir lyfja fyrirfram heldur k\u00edkja \u00e1 \u00fe\u00e6r \u00feegar \u00e9g er or\u00f0in kramaraumingi. Hef\u00f0i \u00e9g lesi\u00f0 \u00edtarlega fyrr um lyfi\u00f0 sem b\u00ed\u00f0ur m\u00edn hef\u00f0i \u00e9g kannski ekki <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/02\/08\/a-hverju-a-eg-ad-lifa-um-marplan\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-202","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/202","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=202"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/202\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=202"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=202"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=202"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}