{"id":204,"date":"2010-02-11T10:56:27","date_gmt":"2010-02-11T10:56:27","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-02-11\/karlinn-i-sviganum\/"},"modified":"2010-02-11T10:56:27","modified_gmt":"2010-02-11T10:56:27","slug":"karlinn-i-sviganum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/02\/11\/karlinn-i-sviganum\/","title":{"rendered":"Karlinn \u00ed sviganum"},"content":{"rendered":"<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">H\u00e9r\u00a0kemur l\u00f6ng f\u00e6rsla og \u00e9g \u00f3ska \u00feeim sem komast \u00ed gegnum hana fyrirfram til hamingju!\u00a0<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">&nbsp;<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">\u00c9g var a\u00f0 skrifa ritger\u00f0 \/ verkefni um fr\u00e6\u00f0ilegar kenningar. Verkefni\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 vera fr\u00e6\u00f0ileg \u00fattekt. En hva\u00f0 felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 eitthva\u00f0 s\u00e9 fr\u00e6\u00f0ilegt?<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" vspace=\"7\" align=\"left\" width=\"102\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/gamli_karl2.jpg?resize=102%2C86\" hspace=\"7\" height=\"86\" \/>Ef \u00e9g sko\u00f0a mitt eigi\u00f0 fag, \u00edslensku, \u00fe\u00e1 felast fr\u00e6\u00f0in einkum \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa langt m\u00e1l um sm\u00e1r\u00e6\u00f0i \u2013 vegna \u00feess a\u00f0 \u00ed rauninni m\u00e1 ekki segja nokkurn skapa\u00f0an hlut nema fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur hafi sagt hann \u00e1\u00f0ur e\u00f0a ma\u00f0ur \u00e6tli a\u00f0 andm\u00e6la einhverju sem fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur hefur sagt \u00e1\u00f0ur. \u00de.a.l. er meirihluti textans \u00fdmist f\u00f3tn\u00f3tur, t.d.\u00a0h\u00e1lf s\u00ed\u00f0a texti + h\u00e1lf s\u00ed\u00f0a f\u00f3tn\u00f3tur &#8211; e\u00f0a endalaust\u00a0smellt sviga aftan vi\u00f0 hverja m\u00e1lsgrein; \u00ed sviganum er nafn karlsins e\u00f0a karlanna sem s\u00f6g\u00f0u \u00feetta s\u00ed\u00f0ast. \u00cd \u00feeirra karla greinum eru svigar og n\u00f6fn karlanna sem s\u00f6g\u00f0u \u00feetta n\u00e6sts\u00ed\u00f0ast. Og svo koll af kolli. \u00cd rauninni gengur ekki a\u00f0 skrifa \u201eS\u00f3lin er gul\u201c nema nefna a.m.k. tvo FR\u00c6\u00d0IMENN sem hafa haldi\u00f0 \u00feessu fram \u00e1\u00f0ur. Og r\u00e6\u00f0a jafnvel hugtaki\u00f0 &#8220;gulur&#8221; \u00ed \u00feaula. \u00dea\u00f0 dugir ekki a\u00f0 benda upp \u00ed himininn. A\u00f0alpers\u00f3na \u00ed fr\u00e6\u00f0ilegum skrifum er nefnilega karlinn \u00ed sviganum! [\u00c9g tek sk\u00fdrt fram a\u00f0 myndskreyting \u00feessarar efnisgreinar er \u00far lausu lofti gripin og \u00e1 alls ekki a\u00f0 v\u00edsa til neins \u00e1kve\u00f0ins fr\u00e6\u00f0imanns heldur kannski frekar a\u00f0 s\u00fdna l\u00edfssko\u00f0un \u00edmynda\u00f0ra s\u00f3lar-fr\u00e6\u00f0imanna.]<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">Ef ma\u00f0ur reynir a\u00f0 rekja sig aftur \u00e1 bak \u00ed gegnum karlana \u00ed sviganum \u00fe\u00e1 endar ma\u00f0ur n\u00e1nast alltaf \u00e1 Arist\u00f3telesi. \u00dea\u00f0 er meira hva\u00f0 s\u00e1 ma\u00f0ur er \u00edvitna\u00f0ur, ekki hva\u00f0 s\u00edst \u00feegar \u00fea\u00f0 er haft \u00ed huga a\u00f0 frumtextarnir hans eru n\u00e1nast allir glata\u00f0ir\u00a0en kennslugl\u00f3sur\u00a0b\u00e1rust inn \u00ed vestr\u00e6na menningu \u00far arab\u00edskum \u00fe\u00fd\u00f0ingum. \u00deannig a\u00f0 Arist\u00f3teles skrifa\u00f0i e\u00f0a las fyrir eitthva\u00f0 sem Arabar \u00fe\u00fdddu \u00fat fr\u00e1 sinni menningu og t\u00falku\u00f0u (gl\u00f3sur eru au\u00f0vita\u00f0 t\u00falkanlegri en fyrirlestar), sem var svo \u00fe\u00fdtt \u00e1 lat\u00ednu (e.t.v. aftur \u00e1 gr\u00edsku), sem mi\u00f0aldafr\u00e6\u00f0ingar \u00fe\u00fdddu e\u00f0a fj\u00f6llu\u00f0u um \u00fat fr\u00e1 s\u00ednum <img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" vspace=\"7\" align=\"left\" width=\"112\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/freudiskir_inniskor.jpg?resize=112%2C77\" hspace=\"7\" height=\"77\" \/>skilningi og \u00e1 endanum taka n\u00falifandi fr\u00e6\u00f0ingar \u00feetta upp, me\u00f0 dash af Freud, ef vel \u00e1 a\u00f0 vera. Ekki skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 brandari heimilisins \u00fe\u00e1 \u00e9g var \u00ed kennslur\u00e9ttindan\u00e1mi fyrir aldarfj\u00f3r\u00f0ungi hafi veri\u00f0: \u201eSom den store p\u00e6dagog Aristoteles engang udtrykte &#8230;\u201c (Me\u00f0 dashi af Asterix-m\u00e6lskufr\u00e6\u00f0i-t\u00f6ktum!) Auk Arist\u00f3telesar eru Freud og Jung svakalega sviga\u00f0ir, \u00ed h\u00faman\u00edskum fr\u00e6\u00f0um vel a\u00f0 merkja \u00fev\u00ed \u00feeim hefur veri\u00f0 varpa\u00f0 fyrir bor\u00f0 \u00ed raunv\u00edsindalegum ge\u00f0l\u00e6kningafr\u00e6\u00f0um.<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">Einstaka sinnum er karlinn \u00ed sviganum kona. En af l\u00e6rd\u00f3mi m\u00ednum undanfari\u00f0 tek \u00e9g ekki mark \u00e1 \u00fev\u00ed: S\u00fa kona er \u00ed karl-kyngervi og veldur hugsanlega kynusla verandi \u00ed \u00feessum sviga. (J\u00e1, kona l\u00e6rir skemmtileg or\u00f0 \u00feessar vikurnar.)<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">Hva\u00f0 gerir \u00fea\u00f0 til \u00fe\u00f3tt einhver l\u00edtill h\u00f3pur b\u00fai s\u00e9r til t\u00f3mstundagaman sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 sviga hverja m\u00e1lsgrein? \u00dea\u00f0 er ekki eins og \u00feetta s\u00e9 lesi\u00f0 \u00ed massav\u00eds: Me\u00f0allesendafj\u00f6ldi fr\u00e6\u00f0ilegra\u00a0greina er 6 lesendur. (Karlinn \u00ed sviganum h\u00e9r \u00e1 a\u00f0 vera b\u00f3kav\u00f6r\u00f0ur \u00ed Kenn\u00f3 sem sag\u00f0i \u00feetta \u00ed fyrirlestri en <img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" vspace=\"7\" align=\"right\" width=\"66\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/hlatur.jpg?resize=66%2C72\" hspace=\"7\" height=\"72\" \/>\u00fear sem \u00e9g var fjarst\u00f6dd er \u00feetta byggt \u00e1 \u00f3merkilegri second hand n\u00e1kv\u00e6mri munnlegri heimild.) Reyndar hef \u00e9g l\u00edka heyrt a\u00f0 lesendafj\u00f6ldi \u00fatlenskra fr\u00e6\u00f0igreina s\u00e9 oft 2, \u00fe.e. h\u00f6fundurinn og pr\u00f3farkalesarinn. N\u00fa hlakkar \u00ed bloggynju sem hefur au\u00f0vita\u00f0 margfalt fleiri lesendur a\u00f0 s\u00ednu al\u00fe\u00fd\u00f0ubloggi. Svo v\u00e6ri ekki ef h\u00fan unga\u00f0i \u00fat einni bloggf\u00e6rslu, me\u00f0 svigum, \u00e1 nokkurra \u00e1ra fresti. <\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">Umfj\u00f6llun um \u00edslenskar mi\u00f0aldab\u00f3kmenntir fyllti marga b\u00f3kasafnsrekka, ef allt v\u00e6ri tali\u00f0. \u00deess vegna\u00a0eru margir\u00a0a\u00f0 reyna a\u00f0 finna sitt\u00a0oggulitla pr\u00edvathorn sem\u00a0enn er \u00e1 lausu og bl\u00e1sa \u00fea\u00f0 svo \u00fat (t.d. me\u00f0 k\u00f6rlum \u00ed svigum) sem unnt er. Einnig m\u00e1 fara \u00ed &#8220;upprakningu&#8221;, \u00fe.e. rekja upp einhverja gamla umfj\u00f6llun, d\u00e6ma hana \u00f3fr\u00e6\u00f0ilega og byrja a\u00f0 prj\u00f3na vi\u00f0\u00a0upphafshugmyndina upp \u00e1 n\u00fdtt. Fyrir m\u00e9r er \u00feetta eins og a\u00f0 ey\u00f0a l\u00edfinu \u00ed a\u00f0 prj\u00f3na aftur og aftur s\u00f6mu ermina!\u00a0\u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 finna upp \u00fe\u00e1 a\u00f0fer\u00f0 a\u00f0 byrja peysuprj\u00f3n \u00e1 h\u00e1lsm\u00e1linu (h\u00e9r vantar mig nafni\u00f0 \u00e1 konunni sem \u00e1 a\u00f0 vera \u00ed sviganum); hlj\u00f3mar mj\u00f6g spennandi og vel \u00feess vir\u00f0i a\u00f0 pr\u00f3fa \u00feegar f\u00f3lk hefur fengi\u00f0 sig fullsatt \u00e1 M\u00f6b\u00edusar-tilraunum.<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">\u00dea\u00f0 sem m\u00e9r finnst einkum a\u00f0 fr\u00e6\u00f0i-hannyr\u00f0um er a\u00f0 \u00feegar menn hafa loka\u00f0 sig inni\u00a0 \u00ed f\u00edlabeinsturni fr\u00e6\u00f0anna h\u00e6ttir \u00feeim til a\u00f0 passa vel upp \u00e1 pr\u00f3d\u00faktin \u2013 enda er unni\u00f0 h\u00e6gt, m.a. af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur alltaf a\u00f0 vera a\u00f0 fletta upp karlinum \u00ed sviganum \u2013 og f\u00e1ir f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta. Kona g\u00e6ti jafnvel s\u00e6tt sig vi\u00f0 \u00feetta ef ekki vildi svo til a\u00f0 \u00ed svona d\u00fatl \u00e1rum saman er ausi\u00f0 f\u00e9 sem m\u00e6tti kannski fara \u00ed eitthva\u00f0 sem n\u00fdttist almenningi e\u00f0a sk\u00f3laf\u00f3lki betur. Til \u00feess a\u00f0 gl\u00f6ggva sig \u00e1 \u00feessu er n\u00f3g a\u00f0 fletta upp illratanlegri s\u00ed\u00f0u <em>Stofnunar \u00c1rna Magn\u00fassonar<\/em> og spyrja sig til hvers f\u00f3lki\u00f0 \u00fearna er a\u00f0 d\u00falla \u00feetta e\u00f0a, kannski frekar, hva\u00f0 er allt \u00feetta f\u00f3lk a\u00f0 gera? Sj\u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.arnastofnun.is\/\">http:\/\/www.arnastofnun.is\/<\/a>\u00a0\u00a0Er \u00fea\u00f0\u00a0a\u00f0 vinna a\u00f0 \u00fatbrei\u00f0slu e\u00f0a vi\u00f0haldi menningararfsins? Nei, til \u00feess er \u00fea\u00f0 of h\u00e6gfara. Og t\u00fdnt.\u00a0Svo fylgjast menn ekki \u00fdkja vel me\u00f0 n\u00fat\u00edmanum; \u00c9g er n\u00fdb\u00fain a\u00f0 sko\u00f0a <em>BRAGA<\/em>-verkefni \u00c1rnastofnunar, sem finnst undir undirkr\u00e6kjunni &#8220;Fleiri gagnas\u00f6fn&#8221;, \u00e1 valbla\u00f0i h\u00e6gra megin. \u00deetta er &#8220;\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0ivefur&#8221; sem hefur veri\u00f0 \u00ed sm\u00ed\u00f0um \u00ed t\u00e6pan \u00e1ratug, veit ekki hve langt er s\u00ed\u00f0an vefna\u00f0urinn sj\u00e1lfur h\u00f3fst. Umsj\u00f3narmenn vir\u00f0ast ekki hafa \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 a\u00f0 talsvert lengur (mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 t\u00edmaskynjun Vef-notenda) hefur veri\u00f0 til vefur sem heitir <em>BRAGI. \u00cdslenska sem erlent m\u00e1l<\/em>, sta\u00f0settur \u00ed \u00de\u00fdskalandi og kennir \u00fatlendingum \u00edslensku. Sj\u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www2.hu-berlin.de\/bragi\/\">http:\/\/www2.hu-berlin.de\/bragi\/<\/a>\u00a0 Er ekki h\u00e6tta \u00e1 ruglingi? \u00dea\u00f0 gerir annars ekkert til \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0arnefndi vefurinn er talsvert nota\u00f0ur en f\u00e1ir nota sennilega hinn fyrrnefnda, \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 nema af \u00fev\u00ed hann er n\u00e1nast \u00f3finnanlegur. <\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" border=\"1\" vspace=\"7\" align=\"left\" width=\"116\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/sturlunga.jpg?resize=116%2C111\" hspace=\"7\" height=\"111\" \/>(\u00cd sviga set \u00e9g l\u00edfsreynslus\u00f6gu:\u00a0Fyrir um fimmt\u00e1n \u00e1rum s\u00ed\u00f0an grenju\u00f0u samstj\u00f3rnarmenn m\u00ednir \u00ed <em>The Viking Network<\/em> \u00far hl\u00e1tri \u00feegar \u00feeir heyr\u00f0u ver\u00f0lagi\u00f0 \u00e1 geisladisknum <em>\u00cdslenskum or\u00f0st\u00f6\u00f0ulykli<\/em> \u2013 var hann ekki ver\u00f0lag\u00f0ur \u00e1 80.000 kall til a\u00f0 byrja me\u00f0? Hann er n\u00e1tt\u00farlega \u00f3n\u00fdtanlegur n\u00fana, passar ekki vi\u00f0 st\u00fdrikerfi, en sennilega hef\u00f0i veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 br\u00faka gripinn lengur hef\u00f0i hann veri\u00f0 ofinn \u00ed HTML. Vel styrkt verkefni af skattf\u00e9 almennings \u00e6ttu n\u00e1tt\u00farlega a\u00f0 liggja fr\u00edtt frammi fyrir sama almenning, skynsamlegast \u00e1 Vefnum. \u00c1 sama t\u00edma p\u00f6ssu\u00f0u fr\u00e6\u00f0imenn a\u00f0 setja f\u00f3tinn fyrir <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.snerpa.is\/net\/\">Net\u00fatg\u00e1funa<\/a> og passa a\u00f0 h\u00fan fengi ekki kr\u00f3nu \u00ed styrki. \u00dea\u00f0 er\u00a0heldur \u00edr\u00f3n\u00edskt\u00a0a\u00f0 n\u00fa notar fj\u00f6ldi f\u00f3lks Net\u00fatg\u00e1funa en <em>\u00cdslenskur or\u00f0st\u00f6\u00f0ulykill<\/em> ry\u00f0gar \u00ed geymslum b\u00f3kasafna.)<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">Mitt starf hefur til \u00feessa veri\u00f0 akk\u00farat \u00f6fugt vi\u00f0 starfsreglur sem fr\u00e6\u00f0imenn setja s\u00e9r, sums\u00e9 a\u00f0 reyna a\u00f0 f\u00e1 sem flesta til a\u00f0 f\u00edla menningararfinn og halda honum lifandi me\u00f0 kjafti og kl\u00f3m, \u00feess vegna n\u00fdjum a\u00f0fer\u00f0um sem lei\u00f0a til n\u00fdrra sj\u00f3narhorna e\u00f0a jafnvel einsk\u00e6rs \u00e1huga og sk\u00f6punarkrafts nemenda. \u00c9g kenndi um 100 nemendum \u00e1 \u00f6nn me\u00f0an \u00e9g haf\u00f0i fulla starfsorku og ma\u00f0ur \u00feurfti a\u00f0 vera talsvert lunkinn og fylgjast vel me\u00f0 til a\u00f0 f\u00e1 hluta h\u00f3psins til a\u00f0 falla fyrir \u00edslenskum mi\u00f0aldatextum! \u00cd \u00feeim k\u00farsum sem \u00e9g hef s\u00f3tt uppi \u00ed H\u00cd af og til fr\u00e1 2006 hafa seti\u00f0 \u00feetta 5 \u2013 10 st\u00fadentar, \u00fe\u00f3tt oft s\u00e9u skr\u00e1\u00f0ir fleiri. Af hverju \u00e6tli \u00e1huginn \u00e1 \u00edslenskum menningararfi og b\u00f3kmenntum s\u00e9 ekki meiri? Og af hverju \u00e6tli 30 manns s\u00e9u skr\u00e1\u00f0ir \u00ed k\u00farsinn Gl\u00e6pas\u00f6gur sem n\u00fa er kenndur, \u00e1 BA og MA stigi \u00ed \u00edslensku? Og af hverju \u00e6tli fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur hafi ney\u00f0st til a\u00f0 setja upp p\u00f3p\u00faler k\u00fars \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 halda sig vi\u00f0 fr\u00e6\u00f0in?<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">Bloggynju sem hefur \u00feetta al\u00fe\u00fd\u00f0lega sl\u00f6mm vi\u00f0horf til &#8220;FR\u00c6\u00d0ANNA&#8221; \u00feykir au\u00f0vita\u00f0 skemmtilegt a\u00f0 lesa um fr\u00e6\u00f0ilegan b\u00f3kard\u00f3m\u00a0\u00ed ritr\u00fdndu t\u00edmariti\u00a0um fr\u00e6\u00f0ib\u00f3k um Kant, \u00feegar kemur svo \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 allt \u00ed b\u00f3kinni, nema kannski Kant, er uppspuni og hrekkur. (H\u00e9r \u00e6tti karlinn \u00ed sviganum a\u00f0 vera t.d. s\u00e1 sem skrifa\u00f0i fr\u00e9ttina um \u00feetta \u00ed moggann \u00ed vikunni &#8211; en \u00e9g nenni ekki a\u00f0 fletta gegnum moggana.) S\u00f6mulei\u00f0is er skemmtileg tilhugsun a\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri var\u00a0gefin var \u00fat listaverkab\u00f3k hj\u00e1 virtu forlagi \u00ed New York, me\u00f0 \u00fatg\u00e1futeiti og alles, en \u00ed lj\u00f3s kom eftir \u00e1 a\u00f0 listama\u00f0urinn var ekki til. <\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">&#8212;<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">\u00c1 t\u00edmabili n\u00fa undanfari\u00f0 hef \u00e9g velt fyrir m\u00e9r hvort fr\u00e6\u00f0ileg n\u00e1lgun eigi ekki jafnilla vi\u00f0 m\u00edna l\u00edfssko\u00f0un og \u00fej\u00f3\u00f0b\u00faningasauman\u00e1mskei\u00f0 \u00ed anda \u00dej\u00f3\u00f0b\u00faningar\u00e1\u00f0s? Eftir &#8220;om&#8221; og &#8220;men&#8221; \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 kl\u00e1ra samt k\u00farsinn sem \u00e9g er \u00ed, \u00fe\u00f3 ekki s\u00e9 nema m\u00e9r finnst illt a\u00f0 ganga fr\u00e1\u00a0\u00f3kl\u00e1ru\u00f0u verki.\u00a0Hugsanlega heillar seinni hluti hans mig upp \u00far sk\u00f3num,\u00a0ma\u00f0ur veit sosum aldrei &#8230;<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">\u00c9g hef l\u00edka velt fyrir m\u00e9r hvers vegna einungis einn af fj\u00f3rum \u00ed doktorasafni fj\u00f6lskyldunnar vinnur beinl\u00ednis vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0komandi mennta\u00f0i sig \u00ed &#8230; en svo m\u00e1 n\u00e1tt\u00farlega spurja hven\u00e6r ma\u00f0ur vinnur beinl\u00ednis og hven\u00e6r \u00f3beinl\u00ednis \ud83d\ude09<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">&#8212;<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font size=\"3\" face=\"Calibri\">P.s. \u00c1 b\u00f3ksafni m\u00edns litla b\u00e6jar \u00e6xla\u00f0i \u00e9g m\u00e9r \u00ed g\u00e6r nokkurn tr\u00edv\u00edal-litterat\u00far, til m\u00f3tv\u00e6gis. \u00cd forb\u00edfarten s\u00e1 \u00e9g \u00ed safni \u00fatstilltra n\u00fdrra b\u00f3ka eina eftir <img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" vspace=\"7\" align=\"left\" width=\"90\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/bokaormur.jpg?resize=90%2C90\" hspace=\"7\" height=\"90\" \/>Juliu Kristevu. \u00c9g t\u00f3k m\u00e9r hana \u00ed h\u00f6nd (j\u00e1, m\u00e9r er ekki alls varna\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir ge\u00f0vonskuna) og s\u00e1 a\u00f0 undirtitillinn var <em>\u00deunglyndi og ge\u00f0l\u00e6g\u00f0<\/em>. Sem ge\u00f0sj\u00fakur b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingur var \u00e9g skyns\u00f6m og skellti b\u00f3kinni aftur \u00ed hilluna, man ekki hva\u00f0 h\u00fan h\u00e9t en er \u00feess fyrirfram handviss a\u00f0 \u00ed henni felst hvorki l\u00e6kningam\u00e1ttur n\u00e9 skynsamleg umfj\u00f6llun um \u00feunglyndi og ge\u00f0l\u00e6g\u00f0! \u00c6tli s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 plata f\u00f3lk sem vinnur \u00e1 ge\u00f0heilbrig\u00f0issvi\u00f0inu til a\u00f0 lesa \u00feessa b\u00f3k \u00ed gegn? Efast um \u00fea\u00f0 &#8230; En \u00ed \u00edslensku- og menningardeild H\u00cd \u00e1 h\u00fan eflaust eftir a\u00f0 nj\u00f3ta nokkurra vins\u00e6lda.<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r\u00a0kemur l\u00f6ng f\u00e6rsla og \u00e9g \u00f3ska \u00feeim sem komast \u00ed gegnum hana fyrirfram til hamingju!\u00a0 &nbsp; \u00c9g var a\u00f0 skrifa ritger\u00f0 \/ verkefni um fr\u00e6\u00f0ilegar kenningar. Verkefni\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 vera fr\u00e6\u00f0ileg \u00fattekt. En hva\u00f0 felst <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/02\/11\/karlinn-i-sviganum\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-204","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/204","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=204"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/204\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=204"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=204"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=204"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}