{"id":211,"date":"2010-02-23T10:28:52","date_gmt":"2010-02-23T10:28:52","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-02-23\/klikk-a-modurmordinu-salgreining-og-kvennabokmenntafraedi\/"},"modified":"2010-02-23T10:28:52","modified_gmt":"2010-02-23T10:28:52","slug":"klikk-a-modurmordinu-salgreining-og-kvennabokmenntafraedi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/02\/23\/klikk-a-modurmordinu-salgreining-og-kvennabokmenntafraedi\/","title":{"rendered":"Klikk \u00e1 m\u00f3\u00f0urmor\u00f0inu: S\u00e1lgreining og kvennab\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i"},"content":{"rendered":"<p>Ge\u00f0vond sem \u00e9g var \u00ed g\u00e6r fannst m\u00e9r upplagt a\u00f0 \u00e6xla m\u00e9r b\u00e6kur sem myndu v\u00e6ntanlega fara \u00ed taugarnar \u00e1 m\u00e9r. \u00deetta er svipu\u00f0 hugsun og liggur a\u00f0 baki h\u00f3m\u00f3pat\u00edu, \u00fe.e.a.s. stundum virkar a\u00f0 l\u00e6kna pirringinn me\u00f0 \u00f6rskammti af pirringi. Alveg eins og \u00e9g hressist a\u00f0eins \u00ed dj\u00fapu \u00feunglyndi vi\u00f0 a\u00f0 hlusta \u00e1 jar\u00f0arfarars\u00e1lma sungna af Ellen Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>\u00c9g t\u00f3k sums\u00e9 <em>\u00d3\u00fearfar unnustur<\/em> o.s.fr<em>.<\/em> eftir Helgu Kress og <em>Svarta s\u00f3l<\/em> eftir Juliu Kristevu \u00e1 b\u00f3kasafni m\u00edns g\u00f3\u00f0a Kardimommub\u00e6jar. Komst svo a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i akk\u00farat lesi\u00f0 greinarnar Helgu sem \u00e9g \u00e1 a\u00f0 lesa fyrir k\u00farsinn sem \u00e9g er \u00ed en \u00fea\u00f0 breytti ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 kona gat enn og aftur skemmt s\u00e9r yfir fr\u00f6sum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 &#8220;H\u00e1rsker\u00f0ing er auk \u00feess vi\u00f0urkennd t\u00e1knmynd geldingar, og Hallger\u00f0ur sem hefur b\u00e6\u00f0i vald \u00e1 spuna og h\u00e1ri, neitar a\u00f0 gelda sj\u00e1lfa sig.&#8221; (s. 26) Marga fleiri gullmola m\u00e1 finna \u00ed <em>\u00d3\u00fe\u00f6rfum unnustum<\/em> en \u00e9g \u00e6tla ekki a\u00f0 l\u00e1ta hanka mig \u00e1 ritstuldi og vitna \u00fev\u00ed ekki meir \u00ed \u00fe\u00e1 b\u00f3k.<\/p>\n<p><em><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" border=\"1\" vspace=\"7\" align=\"left\" width=\"124\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/svort_sol.jpg?resize=124%2C92\" hspace=\"7\" height=\"92\" \/>Sv\u00f6rt s\u00f3l<\/em> kom m\u00e9r dul\u00edti\u00f0 \u00e1 \u00f3vart fyrst og fremst vegna \u00feess hve l\u00edti\u00f0 \u00f3skiljanleg h\u00fan er. \u00de\u00fd\u00f0andinn hl\u00fdtur a\u00f0 hafa unni\u00f0 kraftaverk! (Form\u00e1li Dagn\u00fdjar Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur var einnig skiljanlegur, sem kom m\u00e9r l\u00edka \u00fe\u00e6gilega \u00e1 \u00f3vart.) Undirtitill <em>Svartrar s\u00f3lar<\/em> er <em>Ge\u00f0deyf\u00f0<\/em> <em>og \u00feunglyndi<\/em> (j\u00e1, \u00e9g veit \u00e9g sag\u00f0i \u00ed bloggf\u00e6rslu um daginn a\u00f0 \u00e9g \u00e6tla\u00f0i ekki a\u00f0 lesa hana en af \u00fev\u00ed blogg er \u00e6\u00f0islega \u00f3\u00e1rei\u00f0anlegur og \u00f3fr\u00e6\u00f0ilegur vettvangur geta lesendur aldrei treyst neinu \u00ed \u00feeim efnum, ekki einu sinni bloggynju sj\u00e1lfri!). Julia Kristeva l\u00e6r\u00f0i s\u00e1lgreiningu og prufa\u00f0i \u00e1 eigin kroppi og s\u00e1l, einnig vir\u00f0ist h\u00fan eitthva\u00f0 hafa unni\u00f0 vi\u00f0 fagi\u00f0, \u00fe.m.t. inni \u00e1 ge\u00f0sp\u00edt\u00f6lum. \u00deess vegna eru l\u00fdsingar hennar \u00e1 \u00feunglyndiseinkennum og \u00feunglyndissj\u00faklingum fremur rauns\u00e6jar.\u00a0Sv\u00f6rt s\u00f3l er mj\u00f6g flott myndhverfing fyrir l\u00edf \u00ed \u00feunglyndi, finnst m\u00e9r, mun flottari en svartur hundur.\u00a0<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er hins vegar t\u00falkunin sem var bloggynju k\u00e6rkomi\u00f0 pirringsefni, \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi, og sl\u00f3 \u00e1 pirringinn sem fylgir lyfjani\u00f0urtr\u00f6ppuninni. Hafi \u00e9g ekki misskili\u00f0 Fr. Kristevu \u00feess meir er \u00feunglyndi mitt sprotti\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 inni \u00ed m\u00e9r er svartamyrkur (en \u00fe\u00f3 ekki)\u00a0hvar \u00ed dylst (jafnvel vex) Hluturinn, sem \u00e9g n\u00e6 ekki a\u00f0 d\u00edla vi\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00e9g klikka\u00f0i \u00ed bernsku \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 framkv\u00e6ma m\u00f3\u00f0urmor\u00f0i\u00f0 nau\u00f0synlega n\u00f3gu vel. Auk \u00feess afneita \u00e9g afneituninni um a\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0 geti komi\u00f0 \u00ed sta\u00f0 m\u00f3\u00f0urinnar (?).<\/p>\n<p>\u00de\u00e6gilegra er fyrir dyggu blogglesendurna m\u00edna a\u00f0 f\u00e1 endurs\u00f6gn Dagn\u00fdjar \u00e1 fyrirb\u00e6rinu: &#8220;Innsta e\u00f0li sj\u00e1lfsverunnar er \u00fe\u00e1 ekki \u00fea\u00f0 t\u00f3m sem \u00feunglyndissj\u00faklingurinn segir a\u00f0 kvelji sig. \u00dea\u00f0 er eitthva\u00f0 inni \u00ed myrkrinu, eitthva\u00f0 sem ekki er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00fdsa e\u00f0a t\u00e1kna me\u00f0 or\u00f0um, en \u00fea\u00f0 er \u00fearna samt. Kristeva kallar \u00fea\u00f0 &#8220;hlutinn.&#8221;\u00a0&#8220;Hluturinn&#8221; er fyrstu \u00e1hrifin sem umheimurinn hefur \u00e1 ungbarni\u00f0. \u00deetta eru \u00e1hrif sem ver\u00f0a stofninn \u00ed \u00feeim tilfinningum sem s\u00ed\u00f0ar munu tengjast \u00e1kve\u00f0inni pers\u00f3nu, fyrsta vi\u00f0fangi barnsins. \u00deessi \u00e1hrif eru frumst\u00e6\u00f0 skynjun, sem ekki er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00fdsa &#8220;eins og \u00feau eru&#8221; vegna \u00feess a\u00f0 barni\u00f0 er \u00f3m\u00e1lga og &#8220;hugsar&#8221; ekki \u00e1 \u00feessu stigi. &#8230;<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" decoding=\"async\" border=\"1\" vspace=\"7\" align=\"left\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/perfeksjonisti.jpg?w=540\" hspace=\"7\" \/>Skilgreining Kristevu \u00e1 &#8220;hlutnum&#8221; \u00ed kenningum\u00a0hennar um \u00feunglyndi er &#8230;\u00a0&#8220;Hinn \u00feunglyndi narsisti syrgir ekki Vi\u00f0fang heldur\u00a0Hlutinn. \u00c9g vil l\u00fdsa\u00a0&#8220;Hlutnum&#8221; sem \u00fev\u00ed raunverulega sem l\u00e6tur ekki t\u00e1kna sig, mi\u00f0punkti a\u00f0l\u00f6\u00f0unar og vi\u00f0bj\u00f3\u00f0s, a\u00f0setri \u00feeirrar kynverundar sem hi\u00f0 \u00fer\u00e1\u00f0a vi\u00f0fang mun skilja sig fr\u00e1.&#8221; (s. 37 &#8211; 38) &#8220;Hluturinn er bundinn m\u00f3\u00f0urinni e\u00f0a fyrstu skynjunum okkar og \u00edmyndunum um m\u00f3\u00f0url\u00edkamann. &#8230; &#8220;Hluturinn ver\u00f0ur a\u00f0 &#8220;hverfa&#8221; eins og hann leggur sig &#8230;\u00a0\u00deetta &#8220;m\u00f3\u00f0urmor\u00f0&#8221; er forsenda \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a mennskur, ver\u00f0a talandi og t\u00e1knandi vera..&#8221; (s. 39)\u00a0O.s.fr. \u00a0[\u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 st\u00falkubarni\u00f0 \u00e1 myndinni hafi eitthva\u00f0 klikka\u00f0 \u00e1 s\u00ednu m\u00f3\u00f0urmor\u00f0i.]<\/p>\n<p>Ge\u00f0veik bloggynjan er n\u00e1tt\u00farlega doldi\u00f0 paff yfir \u00feessum uppl\u00fdsingum og veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort borgi sig a\u00f0 bera \u00feetta \u00e1 bor\u00f0 fyrir sinn g\u00f3\u00f0a l\u00e6kni \u00ed n\u00e6sta vi\u00f0talst\u00edma. En sama bloggynja s\u00e9r \u00ed hendi s\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e6tti sviga alveg helling \u00far \u00feessum kenningum til a\u00f0 gefa hugsanlegri umfj\u00f6llun um eitthva\u00f0 faglegt og fr\u00e6\u00f0ilegt yfirbrag\u00f0. \u00deannig n\u00fdtist \u00feessi texti b\u00e6\u00f0i brj\u00e1lu\u00f0um og \u00f3brj\u00e1lu\u00f0um b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingum framt\u00ed\u00f0arinnar.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" border=\"1\" vspace=\"7\" align=\"right\" width=\"89\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/julia_kristeva.jpg?resize=89%2C116\" hspace=\"7\" height=\"116\" \/>\u00de\u00f3tt \u00e9g vilji ekki ganga fram af lesendum m\u00e1 \u00e9g til me\u00f0 a\u00f0 birta a\u00f0ra tilvitnun, \u00ed \u00feetta sinn \u00far texta Kristevu sj\u00e1lfrar. Kann a\u00f0 vera a\u00f0 einhverjum \u00feyki sm\u00e1smygli en af \u00fev\u00ed \u00e9g er a\u00f0 koma m\u00e9r upp \u00e1hugam\u00e1linu &#8220;Hvernig vitnar ma\u00f0ur \u00ed Arist\u00f3teles?&#8221; gladdi \u00feessi klausa mig, einkum eftir a\u00f0 hafa spurt Heimspekinginn \u00ed hinum ytra heimi, \u00fe.e. \u00ed hinni t\u00f6lvunni. \u00c1 s. 54-55 stendur: &#8220;S\u00e1 sem er \u00feunglyndur er heimspekingur \u00feegar efinn s\u00e6kir \u00e1 hann. Herakl\u00edtus, S\u00f3krates og n\u00e6r okkur \u00ed t\u00edma, Kierkegaard, hafa rita\u00f0 m\u00f6gnu\u00f0ustu verkin um merkingu og merkingarleysi Verunnar. \u00de\u00f3 \u00fearf a\u00f0 leita aftur til Arist\u00f3telesar til a\u00f0 finna heildst\u00e6\u00f0a huglei\u00f0ingu um vensl heimspekinga vi\u00f0 \u00feunglyndi\u00f0. &#8230;&#8221; [Sleppi aumingja Arist\u00f3telesi \u00ed \u00feetta sinn. Myndin er af J\u00fal\u00edu Kristevu.]<\/p>\n<p>Heimspekingurinn sta\u00f0festi a\u00f0 tali\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 Herakl\u00edtus hef\u00f0i skrifa\u00f0 b\u00f3k en h\u00fan v\u00e6ri aftur \u00e1 m\u00f3ti l\u00f6ngu gl\u00f6tu\u00f0 og einungis var\u00f0veittar f\u00e1einar [sl\u00e1andi? hundra\u00f0?] sta\u00f0h\u00e6fingar Herakl\u00edtusar, \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 allt hreyfist (panta hrei) og a\u00f0 ma\u00f0ur geti ekki stigi\u00f0 \u00ed sama\u00a0vatni\u00f0 tvisvar og a\u00f0 vegurinn upp s\u00e9 einnig vegurinn\u00a0ni\u00f0ur o.s.fr. Sj\u00e1 t.d. <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/visindavefur.hi.is\/svar.php?id=6659\">skemmtilegt svar \u00e1\u00a0V\u00edsindavef<\/a>.\u00a0Heimspekingurinn minn heldur \u00fev\u00ed einnig fram a\u00f0 S\u00f3krates hafi ekki skrifa\u00f0 b\u00f3k svo vita\u00f0 s\u00e9r (en sl\u00f3 varnagla me\u00f0 a\u00f0 handrit v\u00e6ru n\u00e1tt\u00farlega alltaf a\u00f0 finnast &#8230; held a\u00f0\u00a0varnaglinn s\u00e9 bygg\u00f0ur \u00e1 hugmyndum Dan Brown og fylgismanna hans, svo framarlega sem nagli geti veri\u00f0 bygg\u00f0ur).<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er n\u00e1tt\u00farlega vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 heimspekileg undirsta\u00f0a fr\u00e6\u00f0anna (Kristevu) s\u00e9 einmitt <strong>ekki undirsta\u00f0a<\/strong>, \u00fe.e.a.s. a\u00f0 hin &#8220;m\u00f6gnu\u00f0ustu verkin&#8221; skuli einmitt aldrei hafa veri\u00f0 til. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 mj\u00f6g \u00ed anda kenninganna. Aftur \u00e1 m\u00f3ti hef\u00f0i veri\u00f0 huggulegt a\u00f0 \u00feessa v\u00e6ri geti\u00f0 \u00ed innganginum, svona til a\u00f0 skemmta al\u00fe\u00fd\u00f0unni. (M\u00e9r er lj\u00f3st a\u00f0 Kirkgaard var til en skil ekki alveg af hverju hann er gr\u00fappa\u00f0ur me\u00f0 \u00feeim g\u00f6mlu gr\u00edsku, \u00ed \u00feessari sta\u00f0h\u00e6fingu.)<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p>\u00deannig a\u00f0 n\u00fa \u00f3lga \u00ed s\u00e1larl\u00edfinu allskonar spennandi hugmyndir um vatn, geldingu, m\u00f3\u00f0urmor\u00f0, l\u00f6ngu dau\u00f0a heimspekinga sem skrifu\u00f0u b\u00e6kur sem m\u00e1 byggja \u00e1 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 sl\u00edkar b\u00e6kur hafi aldrei fundist, afneitun gegn nau\u00f0synlegu afneituninni og jafnvel a\u00f0 \u00feunglyndissj\u00faklingur f\u00e1i kikk \u00fat \u00far a\u00f0 vera \u00feunglyndur (\u00feetta or\u00f0ar Fr. Kristeva \u00ed l\u00f6ngu m\u00e1li og fl\u00f3knu og kann a\u00f0 vera a\u00f0 bloggynja hafi hreinlega misskili\u00f0 hana \u00f6fugt) og a\u00f0 \u00feunglyndum finnist gaman a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bla\u00f0ra en allt s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00e1n tilfinninga og innihaldslaust \u00feannig s\u00e9\u00f0.\u00a0[\u00deegar Fr. Kristeva samdi <em>Svarta s\u00f3l<\/em> var ekki b\u00fai\u00f0 a\u00f0 finna upp bloggi\u00f0 en \u00fea\u00f0 \u00e6tti einmitt a\u00f0 vera kj\u00f6ri\u00f0 fyrir okkur nars\u00edsku l\u00edtt-m\u00f3\u00f0ur-myr\u00f0andi \u00feunglyndissj\u00faklingana.]<\/p>\n<p>Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 forsendur s\u00e1lgreiningar og ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur\u00a0Fr. Kristevu\u00a0er <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/vefritsi.wordpress.com\/2009\/10\/20\/dialektisk-atferlisme%c3%b0fer%c3%b0\/\">DAM<\/a> mj\u00f6g lokkandi og au\u00f0skilinn kostur, ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 segja. Enda byggt \u00e1 zen-b\u00faddisma en ekki g\u00f6mlu gr\u00edsku meintu rith\u00f6fundunum.<\/p>\n<p>\u00a0P.s. Einhverra hluta vegna dreymir mig aldrei mann\u00e1t. Er hugsanlegt a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 alls ekki \u00feunglynd og me\u00f0 kv\u00ed\u00f0ar\u00f6skun, \u00far \u00fev\u00ed \u00e9g passa a\u00f0 \u00feessu leyti ekki vi\u00f0 hugmyndir Freuds gamla?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ge\u00f0vond sem \u00e9g var \u00ed g\u00e6r fannst m\u00e9r upplagt a\u00f0 \u00e6xla m\u00e9r b\u00e6kur sem myndu v\u00e6ntanlega fara \u00ed taugarnar \u00e1 m\u00e9r. \u00deetta er svipu\u00f0 hugsun og liggur a\u00f0 baki h\u00f3m\u00f3pat\u00edu, \u00fe.e.a.s. stundum virkar a\u00f0 l\u00e6kna <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/02\/23\/klikk-a-modurmordinu-salgreining-og-kvennabokmenntafraedi\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-211","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/211","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=211"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/211\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=211"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=211"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=211"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}