{"id":273,"date":"2010-08-24T22:23:36","date_gmt":"2010-08-24T22:23:36","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-08-24\/biskupar-prestar-kirkjan-og-folkid-landinu\/"},"modified":"2010-08-24T22:23:36","modified_gmt":"2010-08-24T22:23:36","slug":"biskupar-prestar-kirkjan-og-folkid-landinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/08\/24\/biskupar-prestar-kirkjan-og-folkid-landinu\/","title":{"rendered":"Biskupar, prestar, kirkjan og f\u00f3lki\u00f0 landinu"},"content":{"rendered":"<p>\u00deessi f\u00e6rsla g\u00e6ti n\u00e1tt\u00farlega alveg eins heiti\u00f0 &#8220;Frekir karlar, gau\u00f0 og sterkar konur&#8221;. Og \u00ed rauninni stend \u00e9g afskaplega miki\u00f0 fyrir utan m\u00e1li\u00f0 \u00fear sem \u00e9g \u00feekki engan m\u00e1lsa\u00f0ila (kannast lauslega vi\u00f0 suma) og sag\u00f0i mig \u00far \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunni fyrir tv\u00edtugt &#8230; s\u00ed\u00f0an eru meir en \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1r. En m\u00e9r ofb\u00fd\u00f0ur n\u00fa samt.<\/p>\n<p>\u00c9g skruna\u00f0i gegnum <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.timarit.is\">timarit.is<\/a> \u00ed dag og var\u00f0 margs v\u00edsari. \u00deessi f\u00e6rsla er tilraun til a\u00f0 rekja s\u00f6guna fr\u00e1 1996, me\u00f0 tilv\u00edsun lengra til fort\u00ed\u00f0ar og l\u00edka fram \u00ed t\u00edmann, og a\u00f0 sko\u00f0a hvort nokku\u00f0 \u00ed vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um kirkjunnar manna hefur breyst s\u00ed\u00f0an \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/apar_a_grein.jpg?resize=198%2C137\" align=\"right\" height=\"137\" width=\"198\" \/>1996 logu\u00f0u \u00fdmsar deilur innan \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunnar. M\u00e1 nefna deilu sr. Fl\u00f3ka vi\u00f0 s\u00f3knarnefnd og organista \u00ed Langholtskirkju, langvinnar deilur sr. Torfa \u00e1 M\u00f6\u00f0ruv\u00f6llum vi\u00f0 s\u00edn s\u00f3knarb\u00f6rn og a\u00f0ra presta sem vildu f\u00e1 a\u00f0 nota kirkjuna hans, deilur sr. Gunnars \u00ed Holti vi\u00f0 s\u00edn s\u00f3knarb\u00f6rn, deilur vegna r\u00e1\u00f0ningar prests \u00ed Hverager\u00f0i o.s.fr. Prestar skipu\u00f0u s\u00e9r \u00ed flokka og fylkingar og mest \u00e1berandi \u00ed kirkjuumr\u00e6\u00f0u \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum \u00feetta \u00e1r eru annars vegar prestar hallir undir p\u00f3p\u00falisma (sem \u00d3lafur Sk\u00falason biskup \u00fe\u00f3tti einnig vera) og hins vegar svokalla\u00f0ir svartstakkar, \u00fe.e. einhvers konar h\u00e1kirkjumenn. Ef \u00e9g man r\u00e9tt var v\u00edgslubiskupinn, Sigur\u00f0ur Sigur\u00f0sson\u00a0\u00ed Sk\u00e1lholti, fork\u00f3lfur svartstakka\u00a0og hann atti svo seinna kappi vi\u00f0 sr. Karl Sigurbj\u00f6rnsson um biskupsemb\u00e6tti. Karl var \u00ed p\u00f3pulismanum &#8230; fylgjandi poppmessum og \u00fev\u00eduml\u00edku. \u00deessi klofning innan kirkjunnar er rakin \u00ed <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=2&amp;lang=is\" title=\"Klofning innan kirkjunnar\"><em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu<\/em> 16. jan\u00faar 1996<\/a>, s. 4-5. \u00dear er minnst \u00e1 sr. Vigf\u00fas \u00de\u00f3r \u00c1rnason og sr. Baldur Kristj\u00e1nsson sem s\u00e9rstaka stu\u00f0ningsmenn \u00d3lafs Sk\u00falasonar biskups en sr. Geir Waage sem s\u00e9rstaklega \u00f3\u00fe\u00e6gan lj\u00e1 \u00ed \u00fe\u00fafu biskups.<\/p>\n<p>Snemma \u00e1rs 1996 koma \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum \u00e1sakanir \u00feriggja kvenna \u00e1 hendur \u00d3lafi Sk\u00falasyni biskupi um kynfer\u00f0islega misnotkun og tilraun til nau\u00f0gunar. S\u00fa sem kom fyrst fram undir nafni var Sigr\u00fan P\u00e1l\u00edna Ingvarsd\u00f3ttir. \u00cd vi\u00f0tali \u00ed <em>Vikunni<\/em> 2. j\u00fal\u00ed 2009 rekur h\u00fan \u00feessa s\u00f6gu.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt m\u00e1li\u00f0 k\u00e6mi upp \u00e1 yfirbor\u00f0i\u00f0 1996 var \u00fea\u00f0 hreint ekki n\u00fdtt.\u00a01979 [\u00e1rtal lei\u00f0r\u00e9tt 26. \u00e1g\u00fast 2010] \u00a0leita\u00f0i h\u00fan til \u00d3lafs, sem \u00fe\u00e1 var prestur \u00ed B\u00fasta\u00f0akirkju, vegna hj\u00f3nabandserfi\u00f0leika. Kv\u00f6ldi\u00f0 eftir kom h\u00fan aftur \u00e1 fund sr. \u00d3lafs og hann lokka\u00f0i hana inn \u00ed &#8220;gluggalaust loka\u00f0 herbergi me\u00f0 bedda og skrifbor\u00f0i og \u00e1\u00f0ur en \u00e9g vissi af haf\u00f0i hann skellt \u00ed l\u00e1s og l\u00e1 ofan \u00e1 m\u00e9r, honum haf\u00f0i risi\u00f0 hold, hann var me\u00f0 tunguna uppi \u00ed m\u00e9r og hendurnar inni \u00e1 brj\u00f3stunum \u00e1 m\u00e9r.&#8221; Sem betur fer komst Sigr\u00fan P\u00e1l\u00edna undan. \u00deegar\u00a0\u00d3lafur gaf kost \u00e1 s\u00e9r \u00ed biskupskj\u00f6ri 1989 [\u00e1rtal lei\u00f0r\u00e9tt]\u00a0fannst\u00a0henni \u00f3hugsandi a\u00f0 hafa kynfer\u00f0isafbrotamann sem biskup. Svo h\u00fan haf\u00f0i samband vi\u00f0 Sigurbj\u00f6rn Einarsson biskup (f\u00f6\u00f0ur\u00a0Karls, n\u00faverandi biskups, Sigurbj\u00f6rn var fyrrverandi biskup 1989).\u00a0Sigurbj\u00f6rn hlusta\u00f0i \u00e1 hana en sendi hana svo \u00e1 fund\u00a0\u00d3lafs, sem br\u00e1st hinn versti vi\u00f0 og gaf \u00ed skyn a\u00f0\u00a0h\u00fan v\u00e6ri ge\u00f0veik. Sigurbj\u00f6rn biskup bau\u00f0st svo til a\u00f0 bi\u00f0ja fyrir Sigr\u00fanu P\u00e1l\u00ednu, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00fea\u00f0 eina sem hann g\u00e6ti gert fyrir hana.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/api_heyrir_ekki.jpg?resize=130%2C94\" align=\"left\" height=\"94\" width=\"130\" \/>&#8220;Vita\u00f0 er a\u00f0 Sigr\u00fan P\u00e1l\u00edna leita\u00f0i til s\u00e9ra P\u00e1lma Matth\u00edassonar vegna sama m\u00e1ls \u00e1ri\u00f0 1994 en hann l\u00e9t hj\u00e1 l\u00ed\u00f0a a\u00f0 koma m\u00e1linu\u00a0\u00e1fram. \u00a0\u00c1ri\u00f0 1995 leita\u00f0i Sigr\u00fan \u00fev\u00ed til s\u00e9ra Vigf\u00fasar \u00de\u00f3rs \u00c1rnasonar sem sinnti m\u00e1linu ekki heldur. \u00dea\u00f0 var ekki fyrr en h\u00fan k\u00e6r\u00f0i Vigf\u00fas \u00de\u00f3r til si\u00f0anefndar fyrir a\u00f0 a\u00f0hafast ekkert a\u00f0 hj\u00f3lin f\u00f3ru a\u00f0 sn\u00faast. Si\u00f0anefnd n\u00e1\u00f0i s\u00e1ttum milli Vigf\u00fasar og Sigr\u00fanar vegna \u00feessa, en v\u00edsa\u00f0i k\u00e6ru hennar \u00e1 hendur biskupi hins vegar til stj\u00f3rnar Prestaf\u00e9lagsins, sem \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 si\u00f0anefnd skyldi fjalla um k\u00e6runa. \u00cd s\u00ed\u00f0ustu viku var haldinn \u00e1rangurslaus s\u00e1ttafundur me\u00f0 Sigr\u00fanu P\u00e1l\u00ednu og \u00d3lafi Sk\u00falasyni biskupi \u00ed \u00feessu m\u00e1li.&#8221; (<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=234002&amp;pageId=3194372&amp;lang=is&amp;q=Sigr\u00fan P\u00e1l\ufffdna\" title=\"Sigr\u00fan P\u00e1l\ufffdna\">Fleiri konur me\u00f0 sakir \u00e1 biskupinn<\/a>, <em>Helgarp\u00f3sturinn<\/em> 22. febr\u00faar 1996. \u00deetta er \u00e1g\u00e6t yfirlitsgrein. \u00cd \u00feessari klausu s\u00e9st vel hvernig hver v\u00edsar \u00e1 annan. Anna\u00f0 gott yfirlit er \u00ed <em><a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=255&amp;lang=is\" title=\"Sigr\u00fan P\u00e1l\ufffdna\">DV<\/a><\/em> 2. mars 1996.)<\/p>\n<p>\u00c1 fundi Sigr\u00fanar P\u00e1l\u00ednu, sr. Vigf\u00fasar \u00de\u00f3rs, \u00d3lafs biskups o.fl. skrifa\u00f0i Sigr\u00fan P\u00e1l\u00edna fundarger\u00f0 sem h\u00fan sendi s\u00ed\u00f0ar til si\u00f0anefndar kirkjunnar. \u00c1 fundinum vi\u00f0urkenndi \u00d3lafur ekki neitt en &#8220;\u00dev\u00ed n\u00e6st sag\u00f0i hann okkur a\u00f0 hann hef\u00f0i ofan \u00ed sk\u00faffu hj\u00e1 s\u00e9r m\u00e1l fimm presta sem v\u00e6ru \u00e1saka\u00f0ir um kynfer\u00f0islega \u00e1reitni og hann hyg\u00f0ist ekki gera neitt vi\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00e1sakanir.&#8221; (<em>Vikan<\/em>, 2. j\u00fal\u00ed 2009, s. 29).<\/p>\n<p>En hva\u00f0 a\u00f0h\u00f6f\u00f0ust kirkjunnar \u00fej\u00f3nar me\u00f0an \u00feessu vatt fram? &#8220;Tveir prestar b\u00e1\u00f0u biskup a\u00f0 leita s\u00e1tta&#8221; (<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=255&amp;lang=is\" title=\"Sigr\u00fan P\u00e1l\ufffdna\"><em>DV<\/em>, 5. mars 1996<\/a>), l\u00edklega \u00feeir Hj\u00e1lmar\u00a0J\u00f3nsson og Karl Sigurbj\u00f6rnsson, &#8220;a\u00f0 eigin frumkv\u00e6\u00f0i&#8221;, segir \u00ed fr\u00e9ttinni. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u ekki erindi sem erfi\u00f0i og \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu d\u00f6gum hefur komi\u00f0 sk\u00fdrt fram a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir l\u00e9tu biskup sv\u00ednbeygja sig og a.m.k. Karl sn\u00e9rist \u00e1 sveif me\u00f0 \u00d3lafi biskupi \u00fev\u00ed hann reyndi a\u00f0 falsa yfirl\u00fdsingu Sigr\u00fanar P\u00e1l\u00ednu eftir fund me\u00f0 \u00feeim og biskupi. (Sj\u00e1 t.d. fyrrnefnt vi\u00f0tal \u00ed <em>Vikunni<\/em>.)\u00a0 \u00deetta eru\u00a0s\u00f6mu tveir prestarnir og reyndu a\u00f0 f\u00e1 konurnar til a\u00f0 l\u00e1ta m\u00e1lflutning sinn ni\u00f0ur falla (sbr. <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=255&amp;lang=is\" title=\"Ragnar A\u00f0alsteinsson\">Klofningur yfirvofandi?<\/a> <em>DV<\/em>, 9. mars 1996).<\/p>\n<p>\u00cd fyrrnefndri fr\u00e9tt <em>DV<\/em> 5. mars 1996 segir l\u00edka a\u00f0 sr. Geir Waage hafi lagt fram \u00e1lyktun \u00e1 fundi Prestaf\u00e9lags \u00cdslands (sem hann var forma\u00f0ur fyrir) &#8211; s\u00fa \u00e1lyktun f\u00e9kkst ekki sam\u00feykkt. \u00cd \u00e1lyktuninni sem Geir samdi sag\u00f0i: &#8220;Vegna hinnar alvarlegu kr\u00f6fu um algj\u00f6ran tr\u00fana\u00f0 getur \u00f3sanna\u00f0ur \u00e1bur\u00f0ur um tr\u00fana\u00f0arbrest \u00f3n\u00fdtt st\u00f6\u00f0u prests til a\u00f0 gegna \u00fej\u00f3nustu sinni og haldi\u00f0 vakandi efasemdum um heilindi hans og h\u00e6fi til a\u00f0 gegna emb\u00e6tti. &#8230; S\u00e9 um alvarlegt tr\u00fana\u00f0arbrot a\u00f0 r\u00e6\u00f0a gildir einu hvort \u00fea\u00f0 var\u00f0ar vi\u00f0 l\u00f6g e\u00f0a ekki. Broti\u00f0 e\u00f0a \u00e1sakanir um brot fyrnist ekki. Tr\u00fana\u00f0arrof b\u00e6tist ekki af sj\u00e1lfu s\u00e9r.&#8221; S\u00e9ra Baldur Kristj\u00e1nsson, biskupsritari og varaforma\u00f0ur P\u00cd, sag\u00f0i hins vegar: &#8220;\u00dearna er \u00fev\u00ed l\u00fdst yfir a\u00f0 sekt og sakleysi skipti ekki m\u00e1li \u00feegar um presta r\u00e6\u00f0ir. Eftir \u00fev\u00ed er n\u00f3g a\u00f0 bera eitthva\u00f0 upp \u00e1 prest til a\u00f0 ey\u00f0ileggja hann. \u00dea\u00f0 getum vi\u00f0 aldrei sam\u00feykkt.&#8221; (<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=128254&amp;pageId=1849299&amp;lang=is&amp;q=Geir Waage\" title=\"sr. Baldur Kristj\u00e1nsson\"><em>Mbl<\/em>. 5. mars 1996<\/a>.)<\/p>\n<p>\u00deannig a\u00f0 Geir Waage vildi strax a\u00f0 biskup seg\u00f0i af s\u00e9r. Prestarnir \u00ed Prestaf\u00e9laginu neitu\u00f0u a\u00f0 sam\u00feykkja \u00e1lyktunina. (\u00c1 n\u00e6sta stj\u00f3rnarfundi P\u00cd l\u00e9tu tveir stj\u00f3rnarmenn b\u00f3ka m\u00f3tm\u00e6li vi\u00f0 m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 s\u00e9ra Geirs Waage, \u00fe.e. \u00feessa \u00e1lyktun sem hann lag\u00f0i fram. <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=58&amp;lang=is\" title=\"Prestaf\u00e9lag \u00cdslands\">Sj\u00e1 <em>Mbl<\/em>. 2. apr\u00edl 1996<\/a>.) Ragnar A\u00f0alsteinsson, l\u00f6gma\u00f0ur \u00d3lafs biskups, sag\u00f0i a\u00f0 \u00feessi \u00e1lyktun Geirs hef\u00f0i \u00feann eina tilgang a\u00f0 vega a\u00f0 biskupnum. H\u00fan v\u00e6ri li\u00f0ur \u00ed valdabar\u00e1ttu innan kirkjunnar. (Sj\u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=128256&amp;pageId=1849409&amp;lang=is&amp;q=Sigr\u00fan P\u00e1l\ufffdna\" title=\"Ragnar A\u00f0alsteinsson\">Mbl. 6. mars 1996<\/a>.) \u00deessari t\u00falkun andm\u00e6lti Sr. Geir \u00ed <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=128260&amp;pageId=1849431&amp;lang=is&amp;q=m\u00e1l biskups\">Mbl<\/a>. daginn eftir.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/api_oskrar.jpg?resize=129%2C89\" align=\"left\" height=\"89\" width=\"129\" \/>\u00cd <em>DV<\/em>-fr\u00e9ttinni <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=255&amp;lang=is\" title=\"Ragnar A\u00f0alsteinsson\">Klofningur yfirvofandi?<\/a> 9. mars 1996, er\u00a0sagt um\u00a0formann Prestaf\u00e9lags \u00cdslands (sr. Geir Waage): &#8220;Hann hefur sagt opinberlega a\u00f0 l\u00f6gma\u00f0urinn [Ragnar A\u00f0alsteinsson, l\u00f6gma\u00f0ur \u00d3lafs Sk\u00falasonar biskups] hafi komi\u00f0 \u00e1 fund Prestaf\u00e9lagsins til a\u00f0 hr\u00e6\u00f0a stj\u00f3rnina fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta nokku\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r fara \u00ed m\u00e1linu. Stj\u00f3rn f\u00e9lagsins hafi heyrt &#8220;har\u00f0an, markvissan \u00e1r\u00f3\u00f0ur&#8221; og h\u00f3tanir\u00a0fr\u00e1 l\u00f6gmanninum. L\u00f6gma\u00f0urinn \u00e6tli a\u00f0 reka m\u00e1li\u00f0 \u00e1 svi\u00f0i p\u00f3lit\u00edskra \u00e1taka. Biskupi beri hins vegar a\u00f0 var\u00f0veita kirkjuna fyrir flokkadr\u00e1ttum og sundrungu&#8221;.<\/p>\n<p>Sr. Ragnar Fjalar L\u00e1russon l\u00fdsti opinberum stu\u00f0ningi vi\u00f0 \u00d3laf biskup. &#8220;&#8221;\u00c1lyktun okkar pr\u00f3fastanna var har\u00f0or\u00f0 og \u00e9g sta\u00f0festi \u00ed \u00fe\u00e6tti a\u00f0 \u00e9g \u00e1liti a\u00f0 yfirl\u00fdsing biskups um sakleysi sitt v\u00e6ri s\u00f6nn. &#8230; en \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki endilega a\u00f0 konurnar lj\u00fagi. \u00dea\u00f0 g\u00e6tu veri\u00f0 einhverjar a\u00f0rar \u00e1st\u00e6\u00f0ur sem valda \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r bera \u00feetta fram \u00fe\u00f3 \u00fe\u00e6r s\u00e9u ekki beinl\u00ednis a\u00f0\u00a0lj\u00faga,&#8221; segir Ragnar Fjalar.&#8221;\u00a0(<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=255&amp;lang=is\" title=\"Ragnar Fjalar L\u00e1russon\"><em>DV<\/em> 11. mars 1996<\/a>.)\u00a0A\u00f0alfundur Pr\u00f3fastaf\u00e9lags\u00a0\u00cdslands \u00e1lykta\u00f0i a\u00f0 l\u00fdsa fullum stu\u00f0ningi vi\u00f0 \u00d3laf biskup og harma og ford\u00e6ma \u00f3sanna\u00f0ar a\u00f0dr\u00f3ttanir \u00ed hans gar\u00f0, g\u00e1leysi fj\u00f6lmi\u00f0la o.s.fr.\u00a0<\/p>\n<p>Sr. Kristj\u00e1n Bj\u00f6rnsson sendi kirkjum\u00e1lar\u00e1\u00f0herra br\u00e9f me\u00f0 bei\u00f0ni um a\u00f0 hann viki biskupi t\u00edmabundi\u00f0 \u00far emb\u00e6tti me\u00f0an m\u00e1l hans s\u00e6ttu d\u00f3mst\u00f3lame\u00f0fer\u00f0. \u00dev\u00ed var ekki sinnt. Sr. Halld\u00f3r Gunnarsson \u00ed Holti lag\u00f0i fram till\u00f6gu \u00e1 fundi Prestaf\u00e9lags \u00cdslands um a\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0 skora\u00f0i \u00e1 biskup a\u00f0 v\u00edkja me\u00f0an m\u00e1l hans v\u00e6ri fyrir d\u00f3mst\u00f3lum. Gert var fundarhl\u00e9 og s\u00ed\u00f0an strax borin fram dagskr\u00e1rtillaga um\u00a0fr\u00e1v\u00edsun; dagskr\u00e1rtillagan var sam\u00feykkt.\u00a0Sr. Sigur\u00f0ur v\u00edgslubiskup lag\u00f0i fram till\u00f6gu um a\u00f0 &#8220;beina \u00feeim tilm\u00e6lum til biskups a\u00f0 hann kalli saman nefnd &#8230; [sem] \u00e6tti a\u00f0 endursko\u00f0a &#8230;&#8221; frumvarp um emb\u00e6tti biskups \u00cdslands. \u00dea\u00f0 t\u00f3k P\u00cd sj\u00f6 klukkut\u00edma umr\u00e6\u00f0ur\u00a0\u00e1\u00f0ur en \u00feessi\u00a0varlega tillaga sr. Sigur\u00f0ar var sam\u00feykkt. (Sj\u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=255&amp;lang=is\" title=\"Prestaf\u00e9lag \u00cdslands\">Pattsta\u00f0a \u00e1fram<\/a>, <em>DV<\/em> 16. apr\u00edl 1996.)<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttin <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=255&amp;lang=is\" title=\"karl Sigurbj\u00f6rnsson\">&#8220;Handafli&#8221; beitt \u00ed biskupsm\u00e1li &#8211; tveir prestar ganga erinda biskups<\/a> (<em>DV<\/em> 6. mars 1996) hefur noti\u00f0 athygli s\u00ed\u00f0ustu dagana. \u00cd\u00a0henni segir\u00a0a\u00f0 &#8220;Tveir prestar, s\u00e9ra Hj\u00e1lmar J\u00f3nsson, al\u00feingisma\u00f0ur og s\u00e9ra Karl Sigurbj\u00f6rnsson, hafa s\u00ed\u00f0ustu daga beitt \u00e1hrifum s\u00ednum til a\u00f0 f\u00e1 konurnar sem \u00e1saka \u00d3laf Sk\u00falason biskup um kynfer\u00f0islega \u00e1reitni til a\u00f0 falla fr\u00e1 m\u00e1lum s\u00ednum &#8230; \u00ed kj\u00f6lfar \u00feeirra [funda] dr\u00f3 ein kvennanna m\u00e1l sitt til baka.&#8221;<\/p>\n<p>&#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e9 ekki \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 rekja \u00feetta lengra \u00ed sm\u00e1atri\u00f0um. S\u00e9ra \u00d3lafur k\u00e6r\u00f0i Sigr\u00fanu P\u00e1l\u00ednu, Stefan\u00edu \u00deorgr\u00edmssd\u00f3ttur og Gu\u00f0r\u00fanu J\u00f3nsd\u00f3ttur (starfskonu St\u00edgam\u00f3ta) til Ranns\u00f3knarl\u00f6greglu r\u00edkisins en ni\u00f0ursta\u00f0a hennar var a\u00f0 ekki v\u00e6ru tilefni til m\u00e1ls\u00f3knar. Si\u00f0ar\u00e1\u00f0 fann \u00fat a\u00f0 \u00d3lafur v\u00e6ri sj\u00e1lfur sekur um a\u00f0 hafa reynt a\u00f0 nj\u00f3sna um samskipti sr. Fl\u00f3ka og Sigr\u00fanar P\u00e1l\u00ednu. Kirkjunnar menn h\u00e9ldu \u00e1fram a\u00f0 stinga skottunum milli lappanna.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/api_stor.jpg?resize=150%2C113\" align=\"right\" height=\"113\" width=\"150\" \/>Sr. \u00d3lafur tilkynnti afs\u00f6gn s\u00edna um mitt \u00e1r 1996, \u00ed opnunarr\u00e6\u00f0u \u00e1 prestastefnu.\u00a0 Hann hug\u00f0ist reyndar starfa \u00e1fram \u00ed eitt og h\u00e1lft \u00e1r en \u00far \u00fev\u00ed var\u00f0 ekki. Or\u00f0 hans \u00ed \u00feessari r\u00e6\u00f0u eru athyglisver\u00f0, t.d. \u00feetta:<\/p>\n<p>&#8220;Anna\u00f0 atri\u00f0i sem einnig gj\u00f6rbreytir st\u00f6\u00f0u prestsins er aukin umfj\u00f6llun um kynfer\u00f0islega \u00e1reitni og sk\u00fdrari me\u00f0vitund um \u00fea\u00f0 \u00ed hverju h\u00fan felst. &#8230; \u00dea\u00f0 fer ekki milli m\u00e1la a\u00f0 kynfer\u00f0isleg valdbeiting e\u00f0a \u00e1reitni er eitthva\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00f3ge\u00f0felldasta og \u00f3ge\u00f0slegasta sem \u00fejakar mannlegt samf\u00e9lag. Kynfer\u00f0isleg misnotkun barna veldur l\u00edka \u00f6llu heilbrig\u00f0u f\u00f3lki miklum \u00e1hyggjum enda vitum vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 misnotkun barns, s\u00e9rstaklega af n\u00e1num \u00e6ttingja e\u00f0a \u00feeim sem \u00fea\u00f0 hefur bori\u00f0 traust til, hefur \u00e1hrif allt l\u00edfi\u00f0. &#8230; Kirkjunni ber a\u00f0 koma sl\u00edku f\u00f3lki til a\u00f0sto\u00f0ar. Kirkjunni ber a\u00f0 sinna \u00fev\u00ed ekki s\u00ed\u00f0ur en \u00feeim \u00f6\u00f0rum sem eiga vi\u00f0 vandam\u00e1l a\u00f0 str\u00ed\u00f0a.&#8221; (<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=2&amp;lang=is\" title=\"\u00d3lafur Sk\u00falason\">Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0 26. 6. 1996<\/a>.)<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p>N\u00fa n\u00fdveri\u00f0 hefur komi\u00f0 \u00e1 daginn a\u00f0 biskup \u00cdslands, Karl Sigurbj\u00f6rnsson, stingur enn h\u00f6f\u00f0inu \u00ed sandinn og vir\u00f0ist fullkomlega loka augunum fyrir hvers lags mann \u00d3lafur biskup haf\u00f0i a\u00f0 geyma. Karl situr \u00ed Kirkjur\u00e1\u00f0i og greip til \u00feess a\u00f0 l\u00fara \u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.dv.is\/frettir\/2010\/8\/13\/brefid-allt-hun-var-utgratin\/\" title=\"Birgir \u00c1s\">br\u00e9fi fyrrum organista B\u00fasta\u00f0arkirkju<\/a> sem Kirkjur\u00e1\u00f0i barst \u00e1ri\u00f0 2009. \u00cd \u00fev\u00ed er brenglu\u00f0u h\u00e1ttalagi \u00d3lafs m\u00e6tavel l\u00fdst. Gu\u00f0r\u00fan Ebba \u00d3lafsd\u00f3ttir (biskups) var b\u00fain a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00ed heilt \u00e1r eftir \u00e1heyrn \u00e1 Kirkjur\u00e1\u00f0i og f\u00e9kk hana ekki fyrr en m\u00e1li\u00f0 komst \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0la n\u00fa um daginn. H\u00fan sag\u00f0i svo Kirkjur\u00e1\u00f0i fr\u00e1 kynfer\u00f0islegu ofbeldi sem h\u00fan s\u00e6tti af hendi f\u00f6\u00f0ur s\u00edns fr\u00e1 barn\u00e6sku.<\/p>\n<p>\u00cd <em><a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/dagskra.ruv.is\/sjonvarpid\/4472262\/2010\/08\/23\/\" title=\"Biskupinn \ufffd Kastlj\u00f3si\">Kastlj\u00f3si<\/a><\/em> \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi engdist biskupinn eins og ormur \u00e1 \u00f6ngli undir spurningum \u00fe\u00e1ttarstj\u00f3rnanda. Hann gat hvorki sta\u00f0fest n\u00e9 neita\u00f0 a\u00f0 hann try\u00f0i Sigr\u00fanu P\u00e1l\u00ednu. Hann gat ekki sagt einfalt j\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 hann try\u00f0i Gu\u00f0r\u00fanu Ebbu &#8230; einungis muldra\u00f0 &#8220;\u00e9g rengi hana ekki&#8221; og haldi\u00f0 svo \u00e1fram a\u00f0 drepa m\u00e1linu \u00e1 dreif.<\/p>\n<p>Aumingja f\u00f3lki\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunni a\u00f0 hafa \u00feetta gau\u00f0 fyrir sinn \u00e6\u00f0staprest!<\/p>\n<p>Eftir h\u00f6f\u00f0inu dansa limirnir og \u00fea\u00f0 er satt best a\u00f0 segja p\u00ednlegt a\u00f0 lesa blogg presta \u00feessa dagana. \u00ddmist eru \u00feeir a\u00f0 hv\u00edt\u00fevo sj\u00e1lfa sig, t.d. biskupsritarinn \u00ed t\u00ed\u00f0 \u00d3lafs biskups, Baldur Kristj\u00e1nsson (sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/baldurkr.blog.is\/blog\/baldurkr\/\">http:\/\/baldurkr.blog.is\/blog\/baldurkr\/<\/a>\u00a0og <a href=\"http:\/\/bloggheimar.is\/baldur\/\">http:\/\/bloggheimar.is\/baldur\/<\/a>) e\u00f0a\u00a0\u00feeir reyna a\u00f0 hengja sr. Geir Waage fyrir sj\u00e1lfa\u00a0sig, t.d. Bjarni Karlsson, s\u00f3knarprestur \u00ed Laugarneskirkju (sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/blog.eyjan.is\/bjarnikarlsson\/2010\/08\/21\/nu-tharf-geir-waage-ad-haetta\/\">http:\/\/blog.eyjan.is\/bjarnikarlsson\/2010\/08\/21\/nu-tharf-geir-waage-ad-haetta\/<\/a>). \u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/aparnir_thrir.jpg?resize=130%2C84\" align=\"left\" height=\"84\" width=\"130\" \/>\u00cd hita leiksins 1996 voru \u00fea\u00f0 prestarnir sem brug\u00f0ust. \u00deeir kusu biskupinn; \u00feeir skipu\u00f0u Prestaf\u00e9lagi\u00f0 og si\u00f0ar\u00e1\u00f0 presta og \u00f6ll \u00feessi batter\u00ed sem hunsu\u00f0u konurnar. Flestir \u00feeirra v\u00f6ldu a\u00f0 stein\u00feegja. Undantekning fr\u00e1 \u00feeirri reglu var sr. Geir Waage sem vir\u00f0ist eiga a\u00f0 ver\u00f0a n\u00e6sta f\u00f3rnarlamb \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunnar og &#8220;hinna r\u00e9tt-p\u00f3lit\u00edskt-\u00feenkjandi al\u00fe\u00fd\u00f0u&#8221;. \u00dea\u00f0 er \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r p\u00ednleg upp\u00e1koma, mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef raki\u00f0 a\u00f0 ofan og mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.dv.is\/frettir\/2010\/8\/24\/geir-waage-njosnarar-biskups\/\" title=\"Geir Waage\">br\u00e9f hans<\/a> sem\u00a0lak \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0la \u00ed dag en gle\u00f0ur v\u00e6ntanlega biskupinn og hina prestana. \u00c1 Karl biskup hinn blau\u00f0i a\u00f0 \u00e1minna \u00feennan klerk?<\/p>\n<p><strong>\u00a0\u00a0 <\/strong><\/p>\n<p><strong>Vi\u00f0b\u00f3t<\/strong> 25. \u00e1g\u00fast 2010: Gu\u00f0bj\u00f6rg J\u00f3hannesd\u00f3ttir, forma\u00f0ur Prestaf\u00e9lags \u00cdslands, sty\u00f0ur hugmyndir um a\u00f0 komi\u00f0 ver\u00f0i \u00e1 f\u00f3t s\u00e9rstakri sannleiksnefnd til a\u00f0 fjalla um meint kynfer\u00f0isbrot \u00d3lafs Sk\u00falasonar fyrrverandi biskups (<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.ruv.is\/frett\/stydur-hugmyndir-um-sannleiksnefnd\" title=\"Sannleiksnefnd\">R\u00daV 24.08, kl. 19.35<\/a>.) Vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 presta eru sem sagt n\u00e1kv\u00e6mlega \u00feau s\u00f6mu og 1996, \u00fe.e. a\u00f0 skipu\u00f0 \u00a0ver\u00f0i nefnd til a\u00f0 sko\u00f0a \u00feessi m\u00e1l \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 kirkjan taki \u00e1 \u00feeim sj\u00e1lf. \u00c1l\u00edka l\u00edtill dugur er \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunni og var. Kannski er helsti munurinn n\u00fa a\u00f0 prestar kusu yfir sig gau\u00f0 \u00ed biskupssta\u00f0 eftir a\u00f0 hafa haft reynsluna af valdasj\u00fakum si\u00f0blindum ofbeldismanni. \u00datkoman er \u00ed rauninni s\u00fa sama: A\u00f0alm\u00e1li\u00f0 er a\u00f0 \u00feegja yfir \u00f3\u00fe\u00e6gilegum sta\u00f0reyndum.<\/p>\n<p>Karl biskup l\u00fdsir \u00fev\u00ed loks yfir \u00ed dag a\u00f0 hann tr\u00fai konunum sem b\u00e1ru sakir \u00e1 \u00d3laf biskup 1996 og b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 &#8220;\u00dea\u00f0 sem \u00fe\u00e6r l\u00fdsa s\u00e9 h\u00f6rmulegt.&#8221; Hann er a\u00f0 hysja upp um sig br\u00e6kurnar og \u00e6tlar a\u00f0 tala vi\u00f0 forseta Kirkju\u00feings \u00ed dag. (<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.ruv.is\/frett\/biskup-aetlar-ad-taka-a-malum-olafs\" title=\"Karl biskup\">R\u00daV 25.08, kl. 13.21<\/a>.) Ef einhver var \u00ed a\u00f0st\u00f6\u00f0u til a\u00f0 meta sannleiksgildi \u00feessara \u00e1sakana 1996 var \u00fea\u00f0 einmitt Karl Sigurbj\u00f6rnsson, \u00fe\u00e1 prestur \u00ed Hallgr\u00edmskirkju. Hann \u00fatsk\u00fdrir ekki \u00ed \u00feessari fr\u00e9tt af hverju hann faldi br\u00e9f organistans fyrir \u00e1ri s\u00ed\u00f0an e\u00f0a af hverju hann s\u00e1 ekki um a\u00f0 Kirkjur\u00e1\u00f0\u00a0\u00a0veitti Gu\u00f0r\u00fanu Ebbu \u00d3lafsd\u00f3ttur strax \u00e1heyrn heldur l\u00e9t hana b\u00ed\u00f0a \u00ed r\u00famt \u00e1r, vitandi a\u00f0 h\u00fan \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 fjalla um kynfer\u00f0isafbrotam\u00e1l sem tengdust kirkjunnar m\u00f6nnum.<\/p>\n<p>Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 yfirl\u00fdsingar presta \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum undanfari\u00f0 vir\u00f0ast \u00feeir hafa tr\u00faa\u00f0 konunum sem b\u00e1ru fram \u00feessar \u00e1sakanir. E.t.v. eru or\u00f0 sr. Ragnars Fjalars L\u00e1russonar, sem vitna\u00f0 er \u00ed ofar \u00ed \u00feessari f\u00e6rslu, l\u00fdsandi fyrir t\u00ed\u00f0arandann: Konunum var tr\u00faa\u00f0 en af \u00fev\u00ed \u00feetta var \u00f3heppilegt innlegg \u00ed valdabar\u00e1ttu (karlanna) innan kirkjunnar\u00a0\u00e1 \u00feessum t\u00edma var kosi\u00f0 a\u00f0 hunsa \u00fe\u00e6r og standa me\u00f0 s\u00ednum biskupi. E.t.v. litu kirkjunnar menn (karlarnir) ekki \u00e1 kynfer\u00f0islegt ofbeldi og nau\u00f0gunartilraun sem neitt s\u00e9rstakt til a\u00f0 gera ve\u00f0ur \u00fat af? Einhvern veginn vir\u00f0ist framganga n\u00faverandi biskups til \u00feessa ekki gefa tilefni til \u00feess a\u00f0 halda a\u00f0 s\u00e1 hugsunarh\u00e1ttur hafi breyst.<\/p>\n<p>\u00cd rauninni finnst m\u00e9r helv. hart a\u00f0 \u00feetta batter\u00ed, \u00fej\u00f3\u00f0kirkjan, skuli vera r\u00edkisreki\u00f0 og \u00fe.a.l. reki\u00f0 fyrir skattf\u00e9 almennings, \u00fe\u00f3tt \u00feeir sem standa utan hennar borgi ekki s\u00f3knargj\u00f6ld. Algert m\u00e1ttleysi presta og yfirgengileg \u00fej\u00f3nkun vi\u00f0 \u00fe\u00f6gn um \u00f3\u00fe\u00e6gilega hluti hl\u00fdtur \u00e1 endanum a\u00f0 lei\u00f0a til a\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju. Kannski ver\u00f0ur s\u00e1 a\u00f0skilna\u00f0ur ekki fyrr en br\u00f3\u00f0urpartur \u00fej\u00f3\u00f0arinnar er genginn \u00far \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunni.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feakka gu\u00f0i fyrir a\u00f0 \u00e9g er ekki \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed \u00feessari vitleysu: \u00c9g er ekki \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunni!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deessi f\u00e6rsla g\u00e6ti n\u00e1tt\u00farlega alveg eins heiti\u00f0 &#8220;Frekir karlar, gau\u00f0 og sterkar konur&#8221;. Og \u00ed rauninni stend \u00e9g afskaplega miki\u00f0 fyrir utan m\u00e1li\u00f0 \u00fear sem \u00e9g \u00feekki engan m\u00e1lsa\u00f0ila (kannast lauslega vi\u00f0 suma) og sag\u00f0i <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/08\/24\/biskupar-prestar-kirkjan-og-folkid-landinu\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-273","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/273","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=273"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/273\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=273"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=273"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=273"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}