{"id":280,"date":"2010-09-17T22:15:05","date_gmt":"2010-09-17T22:15:05","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-09-17\/valdoxan\/"},"modified":"2010-09-17T22:15:05","modified_gmt":"2010-09-17T22:15:05","slug":"valdoxan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/17\/valdoxan\/","title":{"rendered":"Valdoxan"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/nytt_lyf.jpg?resize=240%2C240\" alt=\"N\u00fdtt lyf\" align=\"left\" height=\"240\" width=\"240\" \/>S\u00edvaxandi kv\u00ed\u00f0inn f\u00e9kk mig til a\u00f0 leita frekari uppl\u00fdsinga um hi\u00f0 \u00e1g\u00e6ta \u00feunglyndislyf sem \u00e9g br\u00faka n\u00fa, Valdoxan. Ver\u00f0ur a\u00f0 segjast eins og er a\u00f0 ekki er um au\u00f0ugan gar\u00f0 a\u00f0 gresja; N\u00f3g er af uppl\u00fdsingas\u00ed\u00f0um en \u00fe\u00e6r eru flestar sami halel\u00faja-s\u00f6ngurinn, upphaflega kyrja\u00f0ur af framlei\u00f0endum lyfsins. Lyfi\u00f0 er n\u00fa leyft \u00ed Evr\u00f3pu, f\u00e9kk marka\u00f0sleyfi 9. feb. 2009, en ekki er b\u00faist vi\u00f0 a\u00f0 marka\u00f0sleyfi \u00ed Bandar\u00edkjunum f\u00e1ist fyrr en 2012. (\u00c1g\u00e6t yfirlitsgrein er \u00e1 wikkunni, <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Agomelatine\" title=\"Valdoxan\">Agomelatine<\/a>, en borgar sig l\u00edka a\u00f0 lesa athugasemdir vi\u00f0 hana.\u00a0<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.ema.europa.eu\/docs\/en_GB\/document_library\/EPAR_-_Summary_for_the_public\/human\/000915\/WC500046224.pdf\" title=\"EMEA\">Matssk\u00fdrsla Evr\u00f3psku lyfjastofnunarinnar<\/a>\u00a0(EMEA) er fr\u00f3\u00f0leg en lengri en wikkugreinin.\u00a0\u00a0Lyfjauppl\u00fdsingar \u00e1 \u00edslensku eru \u00ed <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/vefpostur.lyfjastofnun.is\/focal\/gnh52.nsf\/TOC\/44AB5DF1C2AC203800257682003D89B8\/$FILE\/Valdoxan.doc\" title=\"Valdoxan\">Word skjali <\/a>\u00e1 vef Lyfjastofnunar.)<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem opinberum s\u00ed\u00f0um ber yfirleitt saman um er a\u00f0 Valdoxan s\u00e9 gl\u00e6n\u00fd blanda, virki mj\u00f6g vel en s\u00e9 ansi d\u00fdrt lyf\u00a0og \u00fev\u00ed eru l\u00e6knar (t.d. \u00e1 Bretlandi) hvattir til a\u00f0 pr\u00f3fa \u00f6nnur lyf fyrst \u00e1 sj\u00faklingnum. S\u00f6mulei\u00f0is ber \u00feessum s\u00ed\u00f0um saman um a\u00f0 aukaverkanir s\u00e9u yfirleitt v\u00e6gar, gangi flj\u00f3tt yfir og \u00ed rauninni s\u00e9 einungis hin sjaldg\u00e6fa aukaverkun \u00e1 lifrarstarfsemi einstakra sj\u00faklinga eitthvert s\u00e9rstakt \u00e1hyggjuefni.<\/p>\n<p>Ath.: \u00c9g er ekki lyfjafr\u00e6\u00f0ingur og heldur ekki v\u00edsindakona, eins og form\u00f3\u00f0ir m\u00edn Gu\u00f0r\u00ed\u00f0ur \u00deorbjarnard\u00f3ttir. \u00deess vegna er \u00fatlistunin sem h\u00e9r fer \u00e1 eftir ansi al\u00fe\u00fd\u00f0leg og g\u00e6ti jafnvel veri\u00f0 misskilningur. V\u00e6ri \u00e1g\u00e6tt ef m\u00e9r fr\u00f3\u00f0ara f\u00f3lk lei\u00f0r\u00e9tti ef \u00feess \u00fearf.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem er spes vi\u00f0 Valdoxan er a\u00f0 \u00fea\u00f0\u00a0\u00f6rvar 2 melat\u00f3n\u00edn- upptakara (vi\u00f0takara?), auk \u00feess a\u00f0 blokka einn ser\u00f3t\u00f3nin-upptakara.\u00a0SSRI-lyfin blokka ser\u00f3t\u00f3nin-upptakara, reyndar held \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u a\u00f0rir upptakarar, en l\u00f3g\u00edkin bak vi\u00f0 \u00fea\u00f0 er a\u00f0 me\u00f0 sl\u00edkri blokkun er komi\u00f0 \u00ed veg fyrir a\u00f0 heilinn taki upp gamalt ser\u00f3t\u00f3nin og \u00feannig er hann neyddur til a\u00f0 framlei\u00f0a meira n\u00fdtt og ferskt ser\u00f3t\u00f3nin &#8230; skortur \u00e1 \u00fev\u00ed bo\u00f0efni er talin ein sk\u00fdring \u00feunglyndis.<\/p>\n<p>Melat\u00f3n\u00edn \u00e1herslan er hins vegar n\u00fd.\u00a0\u00cd fyrrnefndum halel\u00faja-s\u00f6ng lyfjaframlei\u00f0enda er gert miki\u00f0 \u00far rangri d\u00e6gursveiflu sem fylgi \u00feunglyndi, \u00fe.e. d\u00e6gurvillu og me\u00f0fylgjandi svefnleysi. \u00de.a.l. s\u00e9 \u00f6rvun melat\u00f3n\u00edn-upptakara mj\u00f6g af hinu g\u00f3\u00f0a. Margir \u00feunglyndissj\u00faklingar kannast vi\u00f0 svefntruflanir, hvort sem er ofsvefn e\u00f0a of l\u00edtinn svefn sem t.d. stafar af \u00e1rv\u00f6ku. \u00deess vegna hlj\u00f3mar \u00feessi eiginleiki lyfsins frekar vel. Og \u00feess vegna ver\u00f0ur a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 \u00e1 kv\u00f6ldin. (\u00dea\u00f0 er reyndar l\u00edka merkilegt vi\u00f0 \u00feetta lyf hve hratt \u00fea\u00f0 fr\u00e1sogast: \u00de\u00e9ttni \u00ed bl\u00f3\u00f0i n\u00e6r h\u00e1marki 1 &#8211; 2 klst. eftir a\u00f0 taflan er tekin og helmingunart\u00edminn er svo a\u00f0eins 1 &#8211; 2 klukkustundir. Lyfi\u00f0 rennur \u00fev\u00ed hratt af manni, ef svo m\u00e1 a\u00f0 or\u00f0i komast.)<\/p>\n<p>\u00c9g hef \u00fever\u00f6fuga reynslu af virkni melat\u00f3n\u00edns. Einhvern t\u00edma \u00e1ri\u00f0 1997 f\u00e9kk \u00e9g n\u00e1tt\u00farulyfi\u00f0 Melanin (minnir a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi heiti\u00f0 \u00fea\u00f0) sem svefnlyf &#8230; a\u00f0allega af \u00fev\u00ed \u00e9g m\u00e1tti ekki f\u00e1 venjuleg svefnlyf af \u00fev\u00ed \u00e9g var (og er) \u00f3virkur alki. \u00dea\u00f0 lyf virka\u00f0i \u00fever\u00f6fugt og \u00e9g hef sjaldan veri\u00f0 jafn vansvefta um \u00e6vina. \u00deessu var \u00e9g b\u00fain a\u00f0 steingleyma \u00feanga\u00f0 til \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r af hverju \u00e9g sv\u00e6fi svona \u00f6murlega illa eftir a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 taka Valdoxan. N\u00fa veit \u00e9g svari\u00f0. N\u00fana \u00ed sumar svaf \u00e9g \u00ed svona 6 &#8211; 7 t\u00edma, \u00ed mismunandi stuttum blundum, yfir n\u00f3ttina og gat alls ekki sofna\u00f0 \u00e1 daginn. Svo stuttur svefn er alltof l\u00edtill fyrir mig. \u00a0\u00deetta hefur a\u00f0eins sk\u00e1na\u00f0 og eftir a\u00f0 \u00e9g\u00a0byrja\u00f0i aftur a\u00f0 taka\u00a0inn m\u00edn\u00ed-skammt af kv\u00ed\u00f0astillandi lyfi \u00e1 kv\u00f6ldin, \u00ed septemberbyrjun, n\u00e6 \u00e9g yfirleitt 8 t\u00edma svefni. Vakna samt nokkrum sinnum \u00e1 hverri n\u00f3ttu. \u00c1 einum af \u00f6rf\u00e1um sj\u00faklingaumr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0um, sem \u00e9g fann um \u00feetta lyf, kemur svefnleysisaukaverkunin vel fram, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.definitivemind.com\/forums\/showthread.php?t=135\">http:\/\/www.definitivemind.com\/forums\/showthread.php?t=135<\/a>.<\/p>\n<p>Flestallar uppl\u00fdsingas\u00ed\u00f0urnar um Valdoxan gera l\u00edti\u00f0 \u00far kv\u00ed\u00f0a, nefna hann sem algenga aukaverkun en gera svo sosum ekkert \u00far \u00fev\u00ed. Sumar nefna ekki kv\u00ed\u00f0a, t.d. halel\u00fajas\u00ed\u00f0a lyfjafyrirt\u00e6kisins sem framlei\u00f0ir lyfi\u00f0 \u00ed Evr\u00f3pu en \u00fear\u00a0er <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.valdoxan.com\/index.php\/frequently-asked-questions\/\" title=\"aukaverkanir Valdoxans\">svari\u00f0 vi\u00f0 spurningunni um algengustu aukaverkanir Valdoxans<\/a> einfaldlega svona: &#8220;VALDOXAN is very well tolerated. The most common adverse reactions are nausea and dizziness. Adverse reactions are usually mild or moderate and occur within the first 2 weeks of treatment. These adverse reactions are usually transient and do not generally lead to cessation of therapy.&#8221;\u00a0\u00a0EMEA-s\u00ed\u00f0an nefnir heldur ekki kv\u00ed\u00f0a \u00ed upptalningu \u00e1 algengustu aukaverkunum.<\/p>\n<p>\u00c9g finn fyrir talsvert miklum kv\u00ed\u00f0a og hann fer stigvaxandi. M\u00e9r datt fyrst \u00ed hug a\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 Valdoxan virkar sem kraftaverk \u00e1 eigi\u00f0 \u00feunglyndi hef\u00f0i kv\u00ed\u00f0akvikindi\u00f0 nota\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 til a\u00f0 bl\u00f3mstra. En n\u00fa er \u00e9g a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hvort helv. kv\u00ed\u00f0inn s\u00e9 kannski aukaverkun af kraftarverkalyfinu. Fleiri en \u00e9g hafa \u00feessa reynslu, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.medhelp.org\/posts\/Depression\/Valdoxan---Wonder-drus\/show\/1058477\">http:\/\/www.medhelp.org\/posts\/Depression\/Valdoxan&#8212;Wonder-drus\/show\/1058477<\/a><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/placebo.jpg?resize=210%2C280\" alt=\"Placebo\" align=\"left\" height=\"280\" width=\"210\" \/>\u00cd <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.science20.com\/newswire\/new_data_supports_valdoxansr_unique_clinical_signature\" title=\"T\u00f6lulegar uppl\u00fdsingar um Valdoxan\">fr\u00e9ttatilkynningu fr\u00e1 31. \u00e1g\u00fast<\/a> sl. er gert miki\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed hve Valdoxan komi vel \u00fat \u00ed samanbur\u00f0arranns\u00f3knum vi\u00f0 a\u00f0ra algenga ge\u00f0lyfjaflokka. (\u00deeir sem au\u00f0veldlega hr\u00edfast af t\u00f6lfr\u00e6\u00f0ilegum uppl\u00fdsingum \u00e6ttu endilega a\u00f0 lesa fr\u00e9ttatilkynninguna.) \u00c1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.medicines.org.uk\/emc\/medicine\/21830\/SPC\/Valdoxan\/#PHARMACODYNAMIC_PROPS\">uppl\u00fdsingas\u00ed\u00f0u lyfjaframlei\u00f0andans fr\u00e1 9. sept. sl<\/a>. er minnst \u00e1 sex ranns\u00f3knir \u00fear sem Valdoxan var bori\u00f0 saman vi\u00f0 lyfleysu (placebo) og \u00f6nnur ge\u00f0lyf\u00a0en einungis \u00ferj\u00e1r \u00feeirra s\u00fdndu fram \u00e1 yfirbur\u00f0i Valdoxans. \u00c1st\u00e6\u00f0an er gefin s\u00fa a\u00f0 galli hafi veri\u00f0 \u00ed hinum \u00feremur ranns\u00f3knunum. \u00cd EMEA plagginu sem \u00e9g v\u00edsa\u00f0i \u00ed h\u00e9r a\u00f0 ofan er minnst \u00e1 s\u00f6mu ranns\u00f3knir og \u00fear segir a\u00f0 \u00ed \u00feessum \u00feremur ranns\u00f3knum hafi enginn munur veri\u00f0 \u00e1 \u00e1rangri Valdoxans og lyfleysu. Gefi\u00f0 er varlega \u00ed skyn a\u00f0 e.t.v. hafi\u00a0\u00f6nnur lyf trufla\u00f0 ranns\u00f3knina. \u00a0\u00deetta \u00e1 vi\u00f0 ranns\u00f3knir \u00e1 lyfjat\u00f6ku \u00ed 6 &#8211; 8 vikur.<\/p>\n<p>EMEA nefnir a\u00f0 \u00ed fyrstu langt\u00edmaranns\u00f3kn hafi enginn munur komi\u00f0 fram \u00e1 hverjir veiktust aftur \u00e1 24 vikna t\u00edmabili, etandi \u00fdmist lyfleysu e\u00f0a Valdoxan. \u00cd seinni ranns\u00f3kn hafi komi\u00f0 fram munur og \u00fea\u00f0 s\u00fdni sig a\u00f0 21% \u00feeirra sem t\u00f3ku Valdoxan \u00ed 24 vikur hafi veikst af \u00feunglyndi. <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.valdoxan.com\/index.php\/in-maintenance-phase\/\">\u00cd sama streng tekur s\u00ed\u00f0a lyfjaframlei\u00f0andans<\/a>.<\/p>\n<p>Af \u00feessum 21% l\u00edkum \u00e1 a\u00f0 lyfi\u00f0 dugi ekki hef \u00e9g \u00feungar \u00e1hyggjur. \u00c9g efast nefnilega ekki eitt augnablik um a\u00f0 Valdoxan virki \u00e1 mig. \u00c9g var or\u00f0in svo fr\u00e1hverf lyfjum og vantr\u00fau\u00f0 \u00e1 a\u00f0 finna lyf sem virka\u00f0i a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i \u00f6rugglega ekki noti\u00f0 lyfleysu\u00e1hrifa nema \u00fe\u00e1 &#8220;nocebo&#8221;, sem \u00e9g veit \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki hva\u00f0 kallast \u00e1 \u00edslensku, e.t.v. hryllings\u00e1hrif?\u00a0Hafandi loksins batna\u00f0 vel af lyfi er svekkjandi a\u00f0 \u00fea\u00f0 skuli vera fimmtungsl\u00edkur \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00e6tti a\u00f0 virka. En \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir svo sem ekkert a\u00f0 m\u00e1la skrattann \u00e1 vegginn fyrirfram \ud83d\ude09 Og mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 ge\u00f0lyfjabransann eru v\u00edst fimmtungsl\u00edkur ekkert svo miklar.<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst l\u00edka skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 lyfi\u00f0 virki &#8211; fatta ekki alveg hvernig \u00fea\u00f0 getur veri\u00f0 m\u00e9r svona \u00e1hrifar\u00edkt mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00feessa \u00feungu \u00e1herslu \u00e1 melant\u00f3nin-upptakarana. \u00cd rauninni eru \u00f6nnur lyf, sem \u00e9g hef \u00e1rangurslaust pr\u00f3fa\u00f0, kannski miklu v\u00e6nlegri til \u00e1rangurs, s\u00e9 ma\u00f0ur hallur undir ser\u00f3t\u00f3n\u00edn-kenningar. Af langri reynslu ge\u00f0sj\u00faklings er \u00e9g samt d\u00e1l\u00edti\u00f0 samm\u00e1la karlinum sem segir: &#8220;Note that in psychiatry, medications are chosen by a process similar to throwing mud on the wall then determining which one of the mud balls stick, through statistical analysis. Medications are generally not chosen because they actually treat the pathophysiology of the mental illness. They are chosen primarily because of statistical improvement versus placebo.&#8221; (Romeo B. Mariano, \u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.definitivemind.com\/forums\/showthread.php?t=135\">The Definite Mind Forums<\/a>.)<br \/>\nHelv. kv\u00ed\u00f0inn er l\u00edka \u00e1hyggjuefni en ekkert vi\u00f0 honum a\u00f0 gera nema taka a\u00f0ra sort af pillum og einhenda s\u00e9r \u00ed \u00e6fingar og hugr\u00e6n atferlistrix. Sykur\u00f3\u00feolinu (\u00f3skr\u00e1\u00f0 aukaverkun) er au\u00f0velt a\u00f0 lifa me\u00f0 &#8230; ma\u00f0ur passar sig bara a\u00f0 bor\u00f0a ekki meir en 2 s\u00fakkula\u00f0imola \u00ed einu.<\/p>\n<p>Loks er n\u00e1tt\u00farlega \u00e1hyggjuefni hvort einhverjar sl\u00e6mar \u00f3v\u00e6ntar aukaverkanir komi fram eftir a\u00f0 lyfi\u00f0 hefur veri\u00f0 einhvern t\u00edma \u00e1 marka\u00f0i &#8230; anna\u00f0 eins hefur n\u00fa gerst.<\/p>\n<p>\u00a0\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00edvaxandi kv\u00ed\u00f0inn f\u00e9kk mig til a\u00f0 leita frekari uppl\u00fdsinga um hi\u00f0 \u00e1g\u00e6ta \u00feunglyndislyf sem \u00e9g br\u00faka n\u00fa, Valdoxan. Ver\u00f0ur a\u00f0 segjast eins og er a\u00f0 ekki er um au\u00f0ugan gar\u00f0 a\u00f0 gresja; N\u00f3g er af <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/17\/valdoxan\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-280","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/280","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=280"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/280\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=280"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=280"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=280"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}