{"id":281,"date":"2010-09-19T22:03:59","date_gmt":"2010-09-19T22:03:59","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-09-19\/malfarsstigurinn-vandratadi\/"},"modified":"2010-09-19T22:03:59","modified_gmt":"2010-09-19T22:03:59","slug":"malfarsstigurinn-vandratadi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/19\/malfarsstigurinn-vandratadi\/","title":{"rendered":"M\u00e1lfarsst\u00edgurinn vandrata\u00f0i"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/fjandinn.jpg?resize=85%2C94\" alt=\"M\u00e1lvillup\u00fakinn\" align=\"right\" height=\"94\" width=\"85\" \/>er h\u00e9r til umr\u00e6\u00f0u og hinn brei\u00f0i vegur m\u00e1lvillna sem lei\u00f0ir beint til helv\u00edtis,\u00a0sbr. &#8220;Glatist tungan glatast \u00fej\u00f3\u00f0in&#8221;! Getur einhver uppl\u00fdst hva\u00f0an \u00feessi frasi er kominn? Mig grunar a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 fengi\u00f0 \u00far einhverri r\u00e6\u00f0u fr\u00fa Vigd\u00edsar en v\u00e6ri gaman a\u00f0 vita hvort klisjan er eldri. [Myndin \u00e1 a\u00f0 s\u00fdna m\u00e1lvillup\u00fakann, sem mun l\u00edklega\u00a0steypa \u00fej\u00f3\u00f0inni \u00ed gl\u00f6tun en tengist ekki neinum af \u00feeim sem eru nafngreindir \u00ed f\u00e6rslunni.]<\/p>\n<p>H\u00e9r \u00e1 heimilinu er stundum fj\u00f6rug fr\u00e6\u00f0ileg umr\u00e6\u00f0a um m\u00e1lnotkun og m\u00e1lv\u00f6ndun. Tveir heimilismanna eru a\u00f0d\u00e1endur Ei\u00f0s Svanbergs Gu\u00f0nasonar og hans molaskrifa. Einn heimilisma\u00f0ur vill horfa \u00e1 m\u00e1lin\u00a0undir afskaplega v\u00ed\u00f0u sj\u00f3narhorni og vitnar til skiptis \u00ed BBC-frambur\u00f0 og samr\u00e6mda forngr\u00edsku sem\u00a0kennd var \u00ed gr\u00edskum sk\u00f3lum til skamms t\u00edma, gr\u00edskum b\u00f6rnum og unglingum til mikils ama, b\u00f3kmenntum og listum til einskis framdr\u00e1ttar. Svo er \u00fea\u00f0 \u00e9g sem hef \u00e1ratuga reynslu af \u00fev\u00ed a\u00f0 kenna \u00edslensku, \u00fe.m.t.\u00a0reynslu af \u00edtro\u00f0slu helstu &#8220;villu-lei\u00f0r\u00e9ttinga&#8221; \u00ed beygingu sagna og nafnor\u00f0a. Svolei\u00f0is a\u00f0 vi\u00f0 kv\u00f6ldmatarbor\u00f0i\u00f0 \u00feykist hver hafa til s\u00edns \u00e1g\u00e6tis nokku\u00f0. <img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/attenbourough.jpg?resize=150%2C84\" alt=\"David Attenbourough\" align=\"left\" height=\"84\" width=\"150\" \/><\/p>\n<p>R\u00f6k v\u00ed\u00f0s\u00fdna heimilismannsins felast einkum \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed hinum si\u00f0mennta\u00f0a heimi hafi \u00e1vallt \u00fe\u00f3tt \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 br\u00faka tungum\u00e1li\u00f0 til a\u00f0 skilja milli p\u00f6puls og menntamanna. \u00deetta s\u00e9 gert \u00e1 \u00fdmsa vegu. \u00c1 Bretlandi er mikilv\u00e6gt a\u00f0 tileinka s\u00e9r r\u00e9ttan frambur\u00f0, RP (received pronounciation) sem kannski er \u00feekktastur \u00ed m\u00e1li \u00feula hj\u00e1 BBC. \u00c9g minnist \u00e1rsins \u00ed enskudeild H\u00cd \u00feegar \u00feessi posh frambur\u00f0ur var \u00e6f\u00f0ur \u00ed hlj\u00f3\u00f0veri og lagt kapp \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 breskum staccato talanda, n\u00e1nast me\u00f0 handaklappi. \u00a0\u00cd Amr\u00edku, heldur sami heimilisma\u00f0ur fram, er mikilv\u00e6gt a\u00f0 sletta latneskum or\u00f0um og passa vel upp \u00e1 a\u00f0 hafa latneska fleirt\u00f6lumynd r\u00e9tta, segja t.d. hippopotami, berist tali\u00f0 a\u00f0 m\u00f6rgum fl\u00f3\u00f0hestum. (Reyndar ku mennta\u00f0ir kanar segja hippop\u00f3tam\u00e6 en enginn Latverji hef\u00f0i svo frambori\u00f0 or\u00f0i\u00f0, a.m.k. ekki \u00e1 gull\u00f6ldinni.)<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sj\u00e1 allir a\u00f0 gj\u00f6rbylting \u00e1 frambur\u00f0i e\u00f0a \u00e6xlun lat\u00ednusletta er meirih\u00e1ttar l\u00e6rd\u00f3mur. N\u00fatildags hafa flestir falli\u00f0 fr\u00e1\u00a0vi\u00f0urkenndum\u00a0snobbframbur\u00f0i \u00edslensku, enda \u00farval frambur\u00f0arafbrig\u00f0a heldur f\u00e1t\u00e6klegt.\u00a0Svo var \u00fe\u00f3 ekki; er skemmst a\u00f0 minnast bar\u00e1ttunnar gegn\u00a0\u00fev\u00ed skemmtilega afbrig\u00f0i fl\u00e1m\u00e6li, gott ef ekki var lagt til a\u00f0 \u00fatskrifa ei fl\u00e1m\u00e6lta presta e\u00f0a kennara (man ekki hvort \u00feetta n\u00e1\u00f0i fram a\u00f0 ganga). Svo hart var gengi\u00f0 fram \u00ed fl\u00e1m\u00e6lisbardaganum a\u00f0 ma\u00f0ur\u00a0telst heppinn a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 heyra \u00feennan frambur\u00f0, yfirleitt \u00fe\u00e1\u00a0\u00ed tali h\u00e1aldra\u00f0s f\u00f3lks. \u00a0Einn \u00edslenskukennara minna \u00ed\u00a0menntask\u00f3la \u00fatlista\u00f0i fyrir okkur nemendunum hvernig hann \u00e6f\u00f0i upp hv-frambur\u00f0, eftir segulbandssp\u00f3lum. Sl\u00edkt held \u00e9g a\u00f0 enginn leggi \u00e1 sig n\u00fana. Enda var \u00e1rangurinn ekki s\u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 nemarnir fylltumst a\u00f0d\u00e1un\u00a0\u00e1 tilt\u00e6kinu heldur var \u00feetta efni \u00ed endalaus skemmtiatri\u00f0i og eftihermur \u00e1 sk\u00f3laskemmtunum.<\/p>\n<p>\u00deannig s\u00e9\u00f0 er gott\u00a0 og \u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00feykir \u00fea\u00f0 mikilv\u00e6gast af \u00f6llu a\u00f0 kunna a\u00f0 beygja &#8220;r\u00e9tt&#8221; innan vi\u00f0 t\u00edu or\u00f0 til a\u00f0 s\u00fdna a\u00f0 ma\u00f0ur s\u00e9 mennta\u00f0ur e\u00f0a a.m.k. \u00e1 einhvern h\u00e1tt betri en \u00f3t\u00edndur alm\u00faginn. \u00deetta er au\u00f0veldlega yfirst\u00edganlegur andskoti en spurningin er hins vegar til hvers leikurinn er ger\u00f0ur. <img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/beyging.jpg?resize=200%2C256\" alt=\"Beyging\" align=\"left\" height=\"256\" width=\"200\" \/><\/p>\n<p>Vins\u00e6last er a\u00f0 hamra \u00e1 &#8220;r\u00e9ttu&#8221; \u00feolfalli e\u00f0a \u00fe\u00e1gufalli me\u00f0 \u00f3pers\u00f3nulegum s\u00f6gnum, a\u00f0allega \u00feolfalli \u00fear sem \u00ed m\u00e1lvitund meirihlutans v\u00e6ri \u00fe\u00e1gufall r\u00e9ttara. D\u00e6mi um \u00feetta eru &#8220;mig langar&#8221; e\u00f0a &#8220;mig dreymir&#8221;. Flestar sagnir sem t\u00e1kna l\u00ed\u00f0an og l\u00f6ngun eru \u00f3pers\u00f3nulegar og frumlagi\u00f0 \u00ed \u00fef. e\u00f0a \u00fegf. En viti menn: Til eru tv\u00e6r svolei\u00f0ismerkjandi sagnir sem beygjast eftir pers\u00f3num og frumlagi\u00f0 er \u00fev\u00ed \u00ed nefnifalli. \u00deetta eru \u00fe\u00e6r fr\u00e6gu &#8220;hlakka&#8221; og &#8220;kv\u00ed\u00f0a&#8221;. \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 fullyr\u00f0a (af l\u00f6ngu kennslureynslunni) a\u00f0 &#8220;\u00e9g hlakka&#8221; og &#8220;\u00e9g kv\u00ed\u00f0i&#8221; br\u00fdtur \u00ed b\u00e1ga vi\u00f0 m\u00e1ltilfinningu flestra. \u00deess vegna hef \u00e9g yfirleitt gripi\u00f0 til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 kenna sagnbeyginguna sem svo a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ru r\u00edmsagnir, r\u00e1\u00f0lagt nemendum a\u00f0 setja &#8220;smakka&#8221; \u00ed sta\u00f0 &#8220;hlakka&#8221; og &#8220;r\u00ed\u00f0a&#8221; (sem beygist reyndar ekki alveg eins) \u00ed sta\u00f0 &#8220;kv\u00ed\u00f0a&#8221; til a\u00f0 geta punta\u00f0 s\u00ednar ritsm\u00ed\u00f0ar me\u00f0 hinni einu k\u00f3rr\u00e9ttu beygingu. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 gera \u00feetta a\u00f0 skemmtilegum samkv\u00e6misleik, s\u00e9 ma\u00f0ur \u00feannig innstilltur. Tilgangurinn er s\u00e1 einn a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 hanka nemandann \u00e1 rangri beygingu, honum til hnj\u00f3\u00f0s. Nemendur m\u00ednir hafa yfirleitt fyrir l\u00f6ngu \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 &#8220;mig hlakkar&#8221; er upplagt eineltistilefni og vilja \u00fev\u00ed gjarna l\u00e6ra trix til a\u00f0 hafa \u00feetta \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem m\u00e1lfarsl\u00f6ggan b\u00fd\u00f0ur. (\u00deetta er sosum ekkert n\u00fd beyging, sj\u00e1 ne\u00f0anm\u00e1lss\u00f6guna s. 55 \u00ed <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=136947&amp;pageId=2029938&amp;lang=is&amp;q=mig hlakkar\" title=\"mig hlakkar\"><em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfi<\/em> fr\u00e1 1892<\/a>.) \u00c1 hinn b\u00f3ginn m\u00e6tti spyrja sig af hverju \u00fea\u00f0 er ekki g\u00fatera\u00f0 a\u00f0 \u00feessar tv\u00e6r sagnir hafi einfaldlega skipt um beygingarflokk og beygist n\u00fa \u00f3pers\u00f3nulega, eins og hinar l\u00ed\u00f0unar-sagnirnar? (Vissulega eru l\u00edka til pers\u00f3nulegar l\u00ed\u00f0unar-sagnir, t.d. &#8220;\u00e9g \u00f3ttast&#8221; en \u00fe\u00e6r eru f\u00e1ar.) M\u00e1 ekki alveg eins sam\u00feykkja \u00feetta eins og a\u00f0 sam\u00feykkja a\u00f0 s\u00f6gnin &#8220;\u00fevo&#8221; beygist n\u00fa veikt, er &#8220;\u00fevo\u00f0i&#8221; \u00ed \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0, en beyg\u00f0ist sterkt, var &#8220;\u00fe\u00f3&#8221; \u00ed \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1rangurinn af \u00feessari st\u00edfu m\u00e1lv\u00f6ndunarstefnu m\u00e1tti t.d. sj\u00e1 \u00ed mogga mannsins \u00ed g\u00e6r, hvar st\u00f3\u00f0 me\u00f0 a.m.k. 24 punkta letri \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttak\u00e1lfinum: &#8220;\u00c9g hef lengi dreymt um atvinnumennsku (mogginn gleymdi a\u00f0 loka g\u00e6sal\u00f6ppunum). \u00c9g hef reyndar margoft s\u00e9\u00f0 \u00feessa villu hj\u00e1 nemendum sem eiga a\u00f0 tj\u00e1 sig um drauma Gu\u00f0r\u00fanar \u00ed <em>Laxd\u00e6lu<\/em>. \u00deetta er villa a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 engum m\u00e1lnotanda finnst e\u00f0lilegt a\u00f0 segja &#8220;\u00e9g dreymi&#8221;. En \u00fea\u00f0 er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 berja inn \u00ed svo marga a\u00f0 m\u00f6rg s\u00e9u v\u00edtin a\u00f0 varast \u00ed s\u00f6gnum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 &#8220;dreyma&#8221; og &#8220;langa&#8221; og &#8220;hlakka&#8221; og &#8220;kv\u00ed\u00f0a&#8221; a\u00f0 til \u00f6ryggis \u00feverbrj\u00f3ta menn gegn eigin m\u00e1lvitund og \u00fatkoman er \u00feessi. \u00a0<\/p>\n<p>N\u00e6stvins\u00e6last, \u00ed sk\u00f3lakerfinu,\u00a0er a\u00f0 hamra \u00e1 beygingu hins einst\u00e6\u00f0a or\u00f0s &#8220;f\u00e9&#8221;. F\u00e9 hefur veri\u00f0 aleitt \u00ed s\u00ednum beygingarflokki fr\u00e1 d\u00f6gum gotnesku. Hinga\u00f0 til hefur reynst tilt\u00f6lulega au\u00f0velt a\u00f0 skaffa tengingu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 enginn segi &#8220;f\u00e9sm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra&#8221; og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 muna &#8220;fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra&#8221; s\u00e9 au\u00f0velt a\u00f0 finna r\u00e9tt eignarfall. \u00deetta kann a\u00f0 breytast og ver\u00f0a erfi\u00f0ara n\u00fa, \u00feegar n\u00fdyr\u00f0i\u00f0 &#8220;f\u00e9sb\u00f3k&#8221; ry\u00f0ur s\u00e9 \u00e6 meir til r\u00fams.<\/p>\n<p>M\u00e9r \u00fe\u00e6tti gaman a\u00f0 vita hve l\u00f6ngum t\u00edma er eytt \u00ed beygingar\u00e6fingar ofantalinna sagna og nafnor\u00f0sins fj\u00e1r, \u00ed sk\u00f3lakerfinu. Satt best a\u00f0 segja held \u00e9g a\u00f0 \u00feetta s\u00e9u r\u00e1nd\u00fdr or\u00f0, mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 kaup og kj\u00f6r kennara, sem \u00fe\u00f3 eru ekkert til a\u00f0 hr\u00f3pa h\u00farra fyrir.<\/p>\n<p>Ei\u00f0ur Svanberg, \u00e1tr\u00fana\u00f0argo\u00f0 sumra heimilismanna, hefur n\u00fdlega gert a\u00f0 umtalsefni svokalla\u00f0a &#8220;rei\u00f0areksstefnu&#8221; m\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga, sem hann telur kristallast \u00ed\u00a0grein G\u00edsla Sigur\u00f0ssonar \u00ed s\u00ed\u00f0asta helgarmogga (altso helgarinnar fyrir \u00feessa). Rei\u00f0areksstefnan vir\u00f0ist m.a. felast \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 sam\u00feykkja beygingu sumra or\u00f0a sem \u00feau hafi stofnl\u00e6gt -r, \u00fear sem hin eina r\u00e9tta m\u00e1lstefna s\u00e9 a\u00f0\u00a0\u00fatr\u00fdma\u00a0errinu \u00far aukaf\u00f6llum. \u00deetta eru or\u00f0in &#8220;l\u00e6knir&#8221; og &#8220;v\u00edsir&#8221;. Eins og\u00a0fl\u00e1m\u00e6linu for\u00f0um hefur \u00feessu aumingja erri veri\u00f0 n\u00e1nast \u00fatr\u00fdmt, var\u00a0\u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 or\u00f0in vi\u00f0tekin m\u00e1lvenja \u00e1 sinni\u00a0t\u00ed\u00f0 og \u00ed rauninni \u00f3skiljanlegt af hverju \u00fea\u00f0 m\u00e1tti ekki vera.<\/p>\n<p>Greinin sem Ei\u00f0ur reynir a\u00f0 kasta r\u00fdr\u00f0 \u00e1 fjalla\u00f0i reyndar ekki a\u00f0allega um l\u00e6knira e\u00f0a v\u00edsira heldur var megininntak hennar a\u00f0 fyrst yr\u00f0i til tungum\u00e1l og svo m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i, \u00fe.e. a\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i v\u00e6ri nokkurs konar greining \u00e1 tungum\u00e1linu. Fyrsti m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingurinn svokalla\u00f0i, sem skrifa\u00f0i Fyrstu m\u00e1lfr\u00e6\u00f0iritger\u00f0ina (sem er reyndar um hlj\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0i og stafsetningu) reyndi akk\u00farat \u00feetta: Hann l\u00fdsti frambur\u00f0i eins og hann var einhvern t\u00edma kringum 1150 og greinir hvert hlj\u00f3\u00f0. S\u00ed\u00f0an lag\u00f0i hann til hvernig\u00a0v\u00e6ri skynsamlegt a\u00f0 t\u00e1kna hlj\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ed ritm\u00e1li. Vissulega f\u00f3ru handritaskrifarar l\u00edti\u00f0 eftir \u00feessum fyrstu stafsetningarreglum en af \u00fev\u00ed ekkert var bloggi\u00f0 gat h\u00f6fundur \u00feeirra ekki or\u00f0i\u00f0 Fyrsti kver\u00falantinn. \u00d6llum sem hafa lesi\u00f0 \u00feessa f\u00ednu greiningu Fyrsta m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingsins er n\u00e1tt\u00farlega lj\u00f3st a\u00f0 \u00edslenska hefur gj\u00f6rbreyst, a\u00f0 vi\u00f0 myndum t\u00e6plega skilja Snorra karlinn, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 Egil forf\u00f6\u00f0ur okkar allra &#8230; en samt er hefur \u00fej\u00f3\u00f0in ekki glatast. Gl\u00f6tunin er \u00fev\u00ed ekki f\u00f3lgin \u00ed frambur\u00f0arbreytingum og l\u00edklega ekki heldur \u00ed stafsetningu.<\/p>\n<p>Yfirvofandi gl\u00f6tun er heldur ekki bundin or\u00f0afor\u00f0a \u00fev\u00ed hann hefur a.m.k. aukist a\u00f0 mun fr\u00e1 l\u00e9ttlestrarb\u00f3kum \u00feeim sem tamt er a\u00f0 kalla b\u00f3kmenntaarf \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. (Og enn b\u00e6tast vi\u00f0 spennandi og innihaldsr\u00edk or\u00f0, eins og &#8220;rei\u00f0areksstefna&#8221; svo \u00edslenskan\u00a0r\u00ed\u00f0ur feitum hesti fr\u00e1\u00a0m\u00e1lfarsmolum &#8230; geti tunga \u00fe\u00e1 yfirleitt ri\u00f0i\u00f0 hesti &#8230; fr\u00e1 molum.)\u00a0<\/p>\n<p>Nei, gl\u00f6tunin er \u00f6rugglega f\u00f3lgin \u00ed beygingarkeldum sem m\u00f6nnum l\u00e1ist a\u00f0 kr\u00e6kja fyrir. Af \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r eru svo f\u00e1ar \u00e6tti ekki a\u00f0 vera neitt m\u00e1l a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi vesalings \u00fej\u00f3\u00f0 lifi af, s\u00e9rstaklega ef vi\u00f0 t\u00f6kum upp spanskreyr \u00ed sk\u00f3lakerfinu en a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u var bent \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed athugasemdum vi\u00f0 blogg Ei\u00f0s a\u00f0 \u00fea\u00f0 auma kerfi v\u00e6ri s\u00f6kud\u00f3lgurinn. Enda er \u00fea\u00f0 svo a\u00f0\u00a0fr\u00e1 \u00fev\u00ed sk\u00f3lar voru stofna\u00f0ir \u00e1 \u00cdslandi hefur sk\u00f3lakerfi\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 breg\u00f0ast. \u00deetta vita allir.\u00a0<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p>H\u00e9r \u00e1 heimilinu hefur n\u00e1\u00f0st vopna\u00f0ur fri\u00f0ur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 deilua\u00f0ilar eru samm\u00e1la um a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 geta tj\u00e1\u00f0 sig \u00e1 lipran og lj\u00f3san h\u00e1tt s\u00e9 eftirs\u00f3knarver\u00f0ast tr\u00edtls um m\u00e1lfarsstigu heimsins \ud83d\ude42<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>er h\u00e9r til umr\u00e6\u00f0u og hinn brei\u00f0i vegur m\u00e1lvillna sem lei\u00f0ir beint til helv\u00edtis,\u00a0sbr. &#8220;Glatist tungan glatast \u00fej\u00f3\u00f0in&#8221;! Getur einhver uppl\u00fdst hva\u00f0an \u00feessi frasi er kominn? Mig grunar a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 fengi\u00f0 \u00far einhverri r\u00e6\u00f0u <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/19\/malfarsstigurinn-vandratadi\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-281","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/281","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=281"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/281\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=281"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=281"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=281"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}