{"id":283,"date":"2010-09-23T19:38:17","date_gmt":"2010-09-23T19:38:17","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-09-23\/ordhengilshattur-armann-andri-snaer-ofl\/"},"modified":"2010-09-23T19:38:17","modified_gmt":"2010-09-23T19:38:17","slug":"ordhengilshattur-armann-andri-snaer-ofl","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/23\/ordhengilshattur-armann-andri-snaer-ofl\/","title":{"rendered":"Or\u00f0hengilsh\u00e1ttur, \u00c1rmann, Andri Sn\u00e6r o.fl."},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g l\u00e9t duga a\u00f0 l\u00fdsa yfir bl\u00f6skrun minni \u00e1 umm\u00e6lum Andra Sn\u00e6s, jafnt \u00ed grein \/ bloggf\u00e6rslu hans sem og \u00ed Kastlj\u00f3si, \u00e1 f\u00e9sb\u00f3kinni. Fannst einhvern veginn ekki tilefni til a\u00f0 ey\u00f0a meira p\u00fa\u00f0ri \u00e1 manninn. En n\u00fa hafa a.m.k. tveir s\u00e9\u00f0 tilefni til a\u00f0 skrifa \u00feokkalega langt m\u00e1l um or\u00f0anotkun og ford\u00f3ma Andra Sn\u00e6s \u00ed fyrrnefndum tj\u00e1ningum svo \u00feetta fer a\u00f0 ver\u00f0a efni \u00ed bloggf\u00e6rslu.\u00a0\u00a0<\/p>\n<p>\u00c1rmann Jakobsson skrifar varnarf\u00e6rslu fyrir Andra Sn\u00e6, &#8220;<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/penninn\/armann-jakobsson\/nr\/3977\" title=\"Ge\u00f0veik umr\u00e6\u00f0a\">Ge\u00f0veik umr\u00e6\u00f0a<\/a>&#8220;,\u00a0\u00ed <em>Smuguna<\/em> \u00e1 sunnudag. Hann sta\u00f0h\u00e6fir a\u00f0 umr\u00e6\u00f0a um grein Andra sn\u00faist annars vegar um &#8220;notkun hans \u00e1 ge\u00f0veiki sem myndm\u00e1li&#8221; og hins vegar um &#8220;kynjahlutfall \u00e1 fundi \u00ed H\u00e1sk\u00f3lanum um greinina&#8221;.\u00a0\u00c1rmann fjallar svo einungis um fyrrnefndu umr\u00e6\u00f0una \u00ed sinni grein.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/skor.jpg?resize=256%2C256\" align=\"left\" height=\"256\" width=\"256\" \/>Hann telur umr\u00e6\u00f0u um notkun Andra Sn\u00e6s \u00e1 ge\u00f0veiki sem myndm\u00e1li einkennast af or\u00f0hengilsh\u00e6tti \u00feeim sem HKL nefnir \u00ed <em>Innansveitarkroniku<\/em> (hann talar \u00fear m.a. um a\u00f0 &#8220;\u00edslend\u00edngar beygi sig l\u00edtt fyrir skynsamlegum r\u00f6kum, fj\u00e1rmunar\u00f6kum varla heldur &#8230;&#8221; svo \u00feetta er svo sem \u00e1g\u00e6tt innlegg \u00ed umfj\u00f6llun Andra Sn\u00e6s)\u00a0og \u00c1rmann\u00a0b\u00e6tir vi\u00f0: &#8220;Ef \u00feetta er ekki a\u00f0 drepa m\u00e1lum \u00e1 dreif, \u00fe\u00e1 kann \u00e9g ekki helsk\u00f3 a\u00f0 binda.&#8221; \u00c9g er b\u00fain a\u00f0 liggja yfir \u00feessari m\u00e1lsgrein en s\u00e9 samt ekkert vit \u00ed henni; \u00fearna er slengt saman algerlega \u00f3skyldum or\u00f0t\u00f6kum og \u00far ver\u00f0ur \u00fev\u00e6la. En kannski var h\u00fan hugsu\u00f0 sem l\u00fdsandi d\u00e6mi um or\u00f0hengilsh\u00e1tt? E\u00f0a stafi af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6fundur s\u00e9 me\u00f0 inngr\u00f3nar t\u00e1neglur (leggist bloggynja \u00ed myndhverfingaham)?<\/p>\n<p>Hvers konar sk\u00f3bl\u00e6ti er annars \u00ed gangi \u00fearna hj\u00e1 vistfem\u00ednistunum?<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00fev\u00ed b\u00fanu slengir \u00c1rmann fram \u00fdmsum PC-sko\u00f0unum \u00e1 ge\u00f0veiki, s.s.: &#8220;Ge\u00f0veikt f\u00f3lk er eins og allir a\u00f0rir, nema ge\u00f0veikt.&#8221;; &#8220;Ge\u00f0veiki er ekki g\u00f3\u00f0 veiki.&#8221; og tiltekur sta\u00f0g\u00f3\u00f0a eigin \u00feekkingu \u00e1 ge\u00f0r\u00e6num sj\u00fakd\u00f3mum, annars vegar fengna fr\u00e1 m\u00f3\u00f0ur sinni og hins vegar fr\u00e1 ge\u00f0veiku f\u00f3lki sem hann hefur kynnst. \u00dea\u00f0 er n\u00e1tt\u00farlega ekki anna\u00f0 h\u00e6gt en vera samm\u00e1la \u00feessu og fagna g\u00f3\u00f0u uppeldi \u00c1rmanns.<\/p>\n<p>Aftur \u00e1 m\u00f3ti sta\u00f0h\u00e6fir hann: &#8220;\u00dev\u00ed er haldi\u00f0 fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 ali \u00e1 ford\u00f3mum \u00ed samf\u00e9laginu a\u00f0 nota ge\u00f0veiki \u00ed myndm\u00e1li eins og Andri gerir \u00ed grein sinni. \u00c9g er ekki sannf\u00e6r\u00f0ur um \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur. Ford\u00f3mar gegn ge\u00f0sj\u00fakum eru yfirleitt sprottnir af hr\u00e6\u00f0slu, afneitun og hugsunarleysi, eins og a\u00f0rir ford\u00f3mar &#8230;&#8221; og\u00a0\u00a0&#8220;Myndhverfingar af \u00feessu tagi breyta au\u00f0vita\u00f0 ekki ford\u00f3mum gegn ge\u00f0sj\u00fakum enda er \u00fea\u00f0 ekki tilgangurinn. En ef menn \u00e6tla a\u00f0 kenna Andra um ford\u00f3ma gegn ge\u00f0sj\u00fakum \u00e1 \u00cdslandi eru \u00feeir s\u00f6mu a\u00f0 misskilja illa hvernig ford\u00f3mar virka.&#8221;<\/p>\n<p>\u00c9g er einmitt ein af \u00feeim sem misskilja svona illilega hvernig ford\u00f3mar virka og finnst Andri Sn\u00e6r yfirm\u00e1ta hrokafullur og ford\u00f3mafullur \u00ed gar\u00f0 ge\u00f0sj\u00fakra. M\u00e9r er l\u00edka \u00f3skiljanlegur einhver \u00e6\u00f0ri tilgangur myndhverfinga Andra Sn\u00e6s,\u00a0sem ku ellefutaka or\u00f0in ge\u00f0veiki \/ ge\u00f0veikur \u00ed s\u00ednum <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.andrisnaer.is\/2010\/09\/i-landi-hinna-klikku%C3%B0u-karlmanna\/\" title=\"\u00cd landi hinna klikku\u00f0u karlmanna\">pistli um orkuver og \u00e1lver <\/a>(\u00e9g taldi \u00feetta ekki sj\u00e1lf og\u00a0bi\u00f0st afs\u00f6kunar ef rangt er tali\u00f0). \u00deegar Andri Sn\u00e6r kemst \u00e1 flug og segir: &#8220;Ge\u00f0veikin er n\u00fana auglj\u00f3s \u00ed jar\u00f0varmabransanum&#8221;, undir fyrirs\u00f6gninni &#8220;<strong>Er k\u00f3ka\u00edn \u00ed heita vatninu?<\/strong>&#8221; &#8211; \u00e1<strong> <\/strong>\u00fe\u00e1 ge\u00f0sj\u00fakur \u00f3virkur alki eins og \u00e9g a\u00f0 l\u00edta \u00e1 \u00feetta sem frumlega myndhverfingask\u00f6pun til marks um gl\u00e6silegan st\u00edl sk\u00e1ldsins? E\u00f0a d\u00e6mi um algera van\u00feekkingu \u00e1 b\u00e6\u00f0i f\u00edkn og ge\u00f0veiki og \u00f3smekklega samhn\u00fdtingu \u00feessa tveggja, bygg\u00f0a \u00e1 botnlausum ford\u00f3mum Andra Sn\u00e6s?<\/p>\n<p>Og &#8220;H\u00e9rlendis er fjalla\u00f0 um sturlun sem norm, jafnvel l\u00edfsnau\u00f0syn og \u00e6\u00f0i er \u00e6\u00f0sta dygg\u00f0in &#8230;&#8221; hugnast kannski \u00feeim sk\u00e1ldpiltum sem dreymir um a\u00f0 ver\u00f0a litlir laxnessar en \u00ed augum \u00feeirra sem heims\u00e6kja ge\u00f0deild \u00f6\u00f0ru hvoru, af illri nau\u00f0syn, er hneyksli a\u00f0 sj\u00e1 fullor\u00f0inn mann l\u00e1ta \u00feetta \u00fat \u00far s\u00e9r \u00e1 prenti.\u00a0\u00b4<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/packman_opid.jpg?resize=158%2C241\" align=\"left\" height=\"241\" width=\"158\" \/>\u00cd <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/visir.is\/-strakar,-thid-erud-eitthvad-vangefnir-\/article\/2010465088427\" title=\"Str\u00e1kar \u00fei\u00f0 eru\u00f0 vangefnir\"><em>Kastlj\u00f3s<\/em>\u00fe\u00e6tti sag\u00f0i Andri\u00a0Sn\u00e6r<\/a> m.a.: &#8220;\u00de\u00e1 er \u00e9g kannski bara me\u00f0 megav\u00f6ttin og segi: Str\u00e1kar \u00fei\u00f0 eru\u00f0 rugla\u00f0ir. \u00de\u00e1 fer ma\u00f0ur a\u00f0 n\u00f6rdast ofan \u00ed tonnin og allt \u00feetta drasl sem \u00e9g veit ekkert hvort almenningur s\u00e9 vel inn \u00ed &#8230;&#8221;\u00a0 \u00deetta eru n\u00e1tt\u00farlega hvorki ford\u00f3mar \u00ed gar\u00f0 rugla\u00f0s f\u00f3lks n\u00e9 a\u00f0dr\u00f3ttun um heimsku almennings \u00fati \u00e1 landi, er \u00fea\u00f0? Sennilega bara ein af \u00feessum skemmtilegu veltilfundnu myndhverfingum.<\/p>\n<p>Og litlu seinna b\u00e6tir \u00e1stm\u00f6gur gr\u00e6ningjanna vi\u00f0: \u201e\u00c9g segi vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Str\u00e1kar \u00fei\u00f0 eru\u00f0 eitthva\u00f0 vangefnir, \u00feurfi\u00f0i 650 megav\u00f6tt ef Alcoa f\u00e6ri \u00fearna ni\u00f0ur.&#8221; Enn ein st\u00f3rbrotin myndhverfingin, \u00ed \u00feetta sinn \u00e1 kostna\u00f0 \u00feroskaheftra.\u00a0 \u00c9g er hr\u00e6dd um a\u00f0 \u00c1rmann \u00feurfi a\u00f0 fara a\u00f0 tv\u00edreima helsk\u00f3na ef hann \u00e6tlar a\u00f0 drepa allt m\u00e1l\u00a0Andra Sn\u00e6s\u00a0(ekki \u00fe\u00f3 \u00e1 dreif).<\/p>\n<p>Satt best a\u00f0 segja s\u00e9 \u00e9g engan mun \u00e1 m\u00e1lflutningi Andra Sn\u00e6s og hins galvaska hundar\u00e6ktanda \u00far Dalsmynni, sem tilkynnti \u00ed g\u00e6r: \u201eHann er algj\u00f6rlega ge\u00f0veikur \u00feessi hundaeftirlitsma\u00f0ur. Hann leggur mann \u00ed einelti,&#8221; (<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/visir.is\/sokud-um-ologlega-hundaraektun-a-akranesi\/article\/2010821942445\" title=\"ge\u00f0veikur hundaeftirlitsma\u00f0ur\">S\u00f6ku\u00f0 um \u00f3l\u00f6glega hundar\u00e6ktun \u00e1 Akranesi<\/a>, <em>visir.is<\/em> 22. sept. 2010.) H\u00fan gengur \u00fe\u00f3 ekki svo langt a\u00f0 brigsla andst\u00e6\u00f0ingi s\u00ednum um a\u00f0 vera vangefinn og drekka k\u00f3ka\u00ednblanda\u00f0 vatn, eins og Andri Sn\u00e6r. \u00de\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 \u00f3samm\u00e1la hundaeftirliti b\u00e6jarins.<\/p>\n<p>Mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ur pistill eftir J\u00fal\u00edu Margr\u00e9ti Alexandersd\u00f3ttur, <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/visir.is\/naudsynlegur-ordhengilshattur\/article\/2010311625259\" title=\"Nau\u00f0synlegur or\u00f0hengilsh\u00e1ttur\">Nau\u00f0synlegur or\u00f0hengilsh\u00e1ttur<\/a>, birtist \u00e1 visir.is \u00ed dag.\u00a0Greinin er l\u00e1gstemmd og m\u00e1lefnaleg (\u00f3l\u00edkt f\u00e6rslu bloggynju) en J\u00fal\u00eda Margr\u00e9t kemst a\u00f0 \u00f3l\u00edkri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u og \u00c1rmann Jakobsson, sem segja m\u00e1 a\u00f0 kristallist \u00ed \u00feessum or\u00f0um: &#8220;\u00c1st\u00e6\u00f0urnar fyrir \u00feessum ford\u00f3mum [\u00ed gar\u00f0 ge\u00f0sj\u00fakra] eru marg\u00fe\u00e6ttar en mj\u00f6g margir leggja a\u00f0 \u00fev\u00ed l\u00edkum a\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0lar og sta\u00f0al\u00edmynd sem birtist oft \u00fear af ge\u00f0sj\u00fakum, skipti \u00fear sk\u00f6pum. Tungum\u00e1li\u00f0 er verkf\u00e6ri. \u00dev\u00ed er ekki h\u00e6gt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 grein \u00e1 vi\u00f0 grein Andra Sn\u00e6s skipti engu m\u00e1li. Sama \u00fe\u00f3tt um \u00f3vitaskap hafi veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.&#8221;<\/p>\n<p>Merkilegar afsakanir finna menn Andra Sn\u00e6, fullor\u00f0num h\u00f6fundi b\u00f3kafj\u00f6ldar. \u00ddmist br\u00fakar hann \u00f3heppilegar myndhverfingar e\u00f0a hann talar \/ skrifar af \u00f3vitaskap. Er ma\u00f0urinn barn?<\/p>\n<p>\u00dar \u00fev\u00ed byrja\u00f0 var a\u00f0 draga N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 inn \u00ed umr\u00e6\u00f0una l\u00e6t \u00e9g \u00feessu loki\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 benda \u00e1 l\u00edkindi Andra Sn\u00e6s vi\u00f0 \u00d3laf \u00ed Ystadal, \u00feann mikla al\u00fe\u00fd\u00f0uv\u00edsindamann. S\u00e1 a\u00f0 Tryggvi \u00de\u00f3r haf\u00f0i sams konar karakter \u00ed huga, \u00ed fyrrnefndum <em>Kastlj\u00f3s<\/em>\u00fe\u00e6tti. \u00dea\u00f0 er lei\u00f0um a\u00f0 l\u00edkjast.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g l\u00e9t duga a\u00f0 l\u00fdsa yfir bl\u00f6skrun minni \u00e1 umm\u00e6lum Andra Sn\u00e6s, jafnt \u00ed grein \/ bloggf\u00e6rslu hans sem og \u00ed Kastlj\u00f3si, \u00e1 f\u00e9sb\u00f3kinni. Fannst einhvern veginn ekki tilefni til a\u00f0 ey\u00f0a meira p\u00fa\u00f0ri \u00e1 <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/23\/ordhengilshattur-armann-andri-snaer-ofl\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-283","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/283","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=283"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/283\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=283"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=283"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=283"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}