{"id":285,"date":"2010-09-30T21:32:46","date_gmt":"2010-09-30T21:32:46","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-09-30\/kynungabok\/"},"modified":"2010-09-30T21:32:46","modified_gmt":"2010-09-30T21:32:46","slug":"kynungabok","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/30\/kynungabok\/","title":{"rendered":"Kynungab\u00f3k"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g renndi yfir <em>Kynungab\u00f3k<\/em> \u00ed g\u00e6r. \u00deetta er b\u00e6klingur, gefinn \u00fat af Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytingu \u00ed \u00e1g\u00fast 2010. B\u00e6klingurinn vir\u00f0ist eiga a\u00f0 vera kennsluefni \u00fev\u00ed \u00ed form\u00e1la segir menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, Katr\u00edn Jakobsd\u00f3ttir: &#8220;\u00dea\u00f0 er von m\u00edn a\u00f0 rit sem \u00feetta eigi eftir a\u00f0 n\u00fdtast \u00ed sk\u00f3la- og uppeldisstofnunum \u00feannig a\u00f0 allir nemendur f\u00e1i l\u00f6gbundna fr\u00e6\u00f0slu \u00ed \u00feessum efnum [\u00fe.e. jafnr\u00e9ttisfr\u00e6\u00f0slu]&#8221;.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem stingur fyrst \u00ed augu, var\u00f0andi \u00feennan b\u00e6kling, er nafni\u00f0. Hva\u00f0 er <strong>kynungur<\/strong>? R\u00e1\u00f0herra segir \u00ed <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.menntamalaraduneyti.is\/radherra\/raedur\/2010\/08\/30\/nr\/5573\" title=\"\u00c1varp r\u00e1\u00f0herra vegna \u00fatg\u00e1fu Kynungab\u00f3kar\">\u00c1varpi \u00ed tilefni \u00fatg\u00e1fu Kynungab\u00f3kar 25. \u00e1g\u00fast 2010<\/a>:<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/langhaerd_kind.jpg?resize=135%2C99\" alt=\"langullarkynungur\" align=\"left\" height=\"99\" width=\"135\" \/>&#8220;Kynungur felur b\u00e6\u00f0i \u00ed s\u00e9r tilv\u00edsun \u00ed kyn og ungt f\u00f3lk en er jafnframt gamalt og gilt or\u00f0 samkv\u00e6mt Or\u00f0ab\u00f3k menningarsj\u00f3\u00f0s. Skilgreining or\u00f0ab\u00f3kar \u00e1 or\u00f0inu er \u201ea\u00f0 vera af \u00e1kve\u00f0nu kyni e\u00f0a sau\u00f0ah\u00fasi\u201c.&#8221;<\/p>\n<p>\u00cd <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em> sem M\u00f6r\u00f0ur \u00c1rnason ritst\u00fdr\u00f0i og Edda gaf \u00fat, 2002, segir einmitt (s. 846): &#8220;kynungur &#8230; s\u00e1 sem er af tilteknu kyni &gt; <em>langullarkynungur<\/em>\u00a0(um sau\u00f0f\u00e9).&#8221;<\/p>\n<p>Leit \u00ed Ritm\u00e1lsskr\u00e1 <em>Or\u00f0ab\u00f3kar H\u00e1sk\u00f3lans<\/em> skilar engu og heldur ekki leit \u00ed a\u00f0skiljanlegum or\u00f0ab\u00f3kum \u00e1 snara.is, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 <em>\u00cdslenskri or\u00f0sifjab\u00f3k<\/em>. Aftur \u00e1 m\u00f3ti nefnir <em><a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/wortschatz.uni-leipzig.de\/ws_ice\/\" title=\"\u00cdslenskur Or\u00f0asj\u00f3\u00f0ur\">\u00cdslenskur Or\u00f0asj\u00f3\u00f0ur<\/a><\/em>, vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Leipzig,\u00a0 d\u00e6mi\u00f0: &#8220;\u00deannig hefur myndast n\u00fdr, gr\u00f3laus kynungur&#8221;.<\/p>\n<p>Svolei\u00f0is a\u00f0 fyrrum m\u00f3\u00f0urm\u00e1lari, ver\u00f0andi \u00f6ryrki, hl\u00fdtur a\u00f0 bendla\u00a0<em>Kynungab\u00f3k<\/em> \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt vi\u00f0 sau\u00f0i e\u00f0a burkna. \u00dea\u00f0 er n\u00fa ekki gott veganesti fyrir svo h\u00e1leitan b\u00e6kling. Og \u00f3skemmtilegt fyrir vesalings nemendurna sem eiga v\u00edst a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast af \u00feessum ritlingi, svk. fyrrnefndu \u00e1varpi r\u00e1\u00f0herra. Ver\u00f0ur ekki betur s\u00e9\u00f0 en b\u00e6\u00f0i h\u00f6fundar ritlingsins og r\u00e1\u00f0herra misskilji or\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed svo vir\u00f0ist sem kynungur \u00fe\u00fd\u00f0i einfaldlega \u00e6ttkv\u00edsl. Vi\u00f0 sitjum \u00fev\u00ed uppi me\u00f0 &#8220;\u00c6ttkv\u00edslab\u00f3k&#8221; til jafnr\u00e9ttisfr\u00e6\u00f0slu.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 sem vekur athygli vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn er hva\u00f0 gripurinn er afspyrnu lj\u00f3tur. (Nema menn s\u00e9u almennt hallir undir augl\u00fdsingar Iceland Express en h\u00f6nnun b\u00e6klingsins vir\u00f0ist bygg\u00f0 \u00e1 \u00feeirra litum og framsetningu.) H\u00f6nnu\u00f0urinn, K\u00e1ri Emil Helgason,\u00a0hr\u00edfst af appels\u00ednugulu og gr\u00e1u, sj\u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.kariemil.com\/cv.html\" title=\"K\u00e1ri Emil\">hans eigin heimas\u00ed\u00f0u<\/a>.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"0\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/appelsina_hugsar.jpg?resize=124%2C129\" alt=\"Apples\ufffdna hugsar\" align=\"left\" height=\"129\" width=\"124\" \/>\u00dea\u00f0 er \u00fereytandi a\u00f0 horfa \u00e1 s\u00f6mu appels\u00ednugulu, gr\u00e1u og hv\u00edtu litat\u00f3nana \u00e1 hverri s\u00ed\u00f0u (nema au\u00f0vita\u00f0 \u00ed \u00feeim svarta kafla &#8220;Kynbundi\u00f0 ofbeldi&#8221;). Og \u00fea\u00f0 er ekki veri\u00f0 a\u00f0 spara IcelandExpress-appels\u00ednugula litinn, meira a\u00f0 segja undirkaflafyrirsagnir eru yfirlita\u00f0ar appels\u00ednugular (og \u00fev\u00ed illl\u00e6silegar). Satt best a\u00f0 segja bj\u00f3st \u00e9g alveg eins vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 &#8220;\u00dear b\u00ed\u00f0ur h\u00fan m\u00edn, &#8216;\u00fan L\u00f3a&#8221;, einhvers sta\u00f0ar \u00ed mi\u00f0ri b\u00f3k.<\/p>\n<p>Textinn er brotinn upp af fj\u00f6lda l\u00ednu-og s\u00falurita, sem \u00f6ll eru appels\u00ednugul og gr\u00e1, og snyddum sem heita &#8220;Til umhugsunar&#8221;, me\u00f0 \u00e1 a\u00f0 giska 20 &#8211; 24 punkta letri.<br \/>\n\u00cd megintexta eru svo sk\u00e6rappels\u00ednugular &#8220;historier fra hverdagen&#8221; (eins og \u00fe\u00e6r heita \u00ed <em>Norsk Ukeblad<\/em>, eitthva\u00f0 svipa\u00f0 heita \u00fe\u00e6r \u00ed <em>Vikunni<\/em> en \u00ed <em>Kynungab\u00f3k<\/em> heita \u00fe\u00e6r \u00d6rs\u00f6gur.) \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u\u00a0 uppdikta\u00f0ar af h\u00f6fundum enda hvergi v\u00edsa\u00f0 til heimilda um hvar \u00feessar s\u00f6gur g\u00e6tu hafa birst.<br \/>\nEfri sp\u00e1ss\u00eda er engin en s\u00fa ne\u00f0ri \u00feess myndarlegri. Og \u00fea\u00f0 er vo\u00f0alega sk\u00e6s og m\u00f3dern a\u00f0 sn\u00faa bla\u00f0s\u00ed\u00f0utali hverrar s\u00ed\u00f0u 90\u00b0.<\/p>\n<p>Hugleikur Dagsson er sag\u00f0ur myndskreyta b\u00e6klinginn. Hann hefur vaki\u00f0 athygli fyrir fyndnar, einfaldar myndir og er \u00ed t\u00edsku, myndskreytti m.a. s\u00ed\u00f0ustu s\u00edmaskr\u00e1. En \u00ed b\u00e6klingnum eru n\u00e1kv\u00e6mlega 4 myndir eftir Hugleik, auk einnar \u00e1 fors\u00ed\u00f0u. Engin \u00feeirra er hi\u00f0 minnsta fyndin e\u00f0a dregur fram eitthva\u00f0 \u00far textanum; Appels\u00ednugular stelpur a\u00f0 sippa; Appels\u00ednugulir str\u00e1kar \u00ed f\u00f3tbolta; Er einhver dulinn bo\u00f0skapur \u00ed \u00feessum myndum? Nei, Hugleikur er \u00fearna nota\u00f0ur sem hvert anna\u00f0 augl\u00fdsingatrix, alveg eins og Hemmi Gunn \u00ed fyrirmynd h\u00f6nnunar b\u00e6klingsins. \u00c1 fors\u00ed\u00f0umyndinni er karl me\u00f0 appels\u00ednugult bindi og kona me\u00f0 appels\u00ednugula nunnusl\u00e6\u00f0u (a.m.k. s\u00e9 \u00e9g ekki betur).<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p>H\u00f6fundarnir eru 5 konur, \u00fear af vinna fj\u00f3rar \u00ed MRN og ein er framkv\u00e6mdarst\u00fdra Jafnr\u00e9ttisstofu. Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 \u00feetta \u00e1 a\u00f0 vera jafnr\u00e9ttisb\u00e6klingur hef\u00f0i n\u00fa kannski veri\u00f0 vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 leyfa sosum eins og einni karlskepnu a\u00f0 flj\u00f3ta me\u00f0 sem h\u00f6fundi.<\/p>\n<p>\u00a0\u00a0<br \/>\nStrax \u00ed innganginum er t\u00f3nninn sleginn (&#8220;aumingja-vi\u00f0-stelpurnar-v\u00e6li\u00f0&#8221;) og hin venjubundna fem\u00ednstistatilhneiging til a\u00f0 hanna \u00edslenska tungu upp \u00e1 n\u00fdtt bl\u00f3mstrar: &#8220;<strong>\u00deau<\/strong> [leturbreyting m\u00edn] sem berjast gegn \u00feessum vi\u00f0tekna hugmyndaheimi og vilja auka fj\u00f6lbreytni og athafnar\u00fdmi fyrir hvort kyn skilgreina sig gjarnan sem fem\u00ednista.&#8221; (s.7). \u00cd lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 \u00ed 5 h\u00f6funda h\u00f3pi eru a.m.k. tveir fyrrum \u00edslenskukennarar fer um mann hrollur. R\u00e1\u00f0legg \u00feeim a\u00f0 hlusta \u00e1 <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/dagskra.ruv.is\/ras1\/4564739\/2010\/09\/28\/\" title=\"M\u00e1l og kyn\">M\u00e1lstofuna; M\u00e1l og kyn<\/a>, \u00e1 R\u00e1s 1 \u00e1 \u00feri\u00f0judaginn var.<\/p>\n<p>Annars sko\u00f0a\u00f0i \u00e9g einkum \u00fe\u00e1 kafla sem \u00e9g tel mig hafa eitthvert vit \u00e1. \u00dear m\u00e1 nefna &#8220;Sk\u00f3lag\u00f6ngu&#8221;.<\/p>\n<p>\u00dear er sk\u00f3lasaga rakin \u00ed m\u00edkr\u00f3mynd og sagt: &#8220;\u00der\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 voru framhaldssk\u00f3lar mj\u00f6g kynskiptir \u00ed marga \u00e1ratugi \u00fear \u00e1 eftir sem endurspeglast <strong>n\u00fa<\/strong> [leturbreyting m\u00edn] \u00ed kynskiptu n\u00e1msvali.&#8221; (s. 14)\u00a0 Tilv\u00edsun er \u00ed Sigr\u00ed\u00f0i Matth\u00edasd\u00f3ttur (2004) og e\u00f0lilega h\u00e9lt \u00e9g a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i skrifa\u00f0 um hvernig \u00feetta gamla skipulag endurspeglast \u00ed n\u00e1msvali n\u00fat\u00edmans. En nei, heimildin er b\u00f3k Sigr\u00ed\u00f0ar: <em>Hinn sanni \u00cdslendingur: \u00fej\u00f3\u00f0erni, kyngervi og vald \u00e1 \u00cdslandi 1900- 1930<\/em>. Hver fatta\u00f0i upp \u00e1 a\u00f0 stinga or\u00f0inu n\u00fa inn \u00ed m\u00e1lsgreinina? Svo tekur vi\u00f0 l\u00e9tt hjal um a\u00f0skiljanlega hluti en ne\u00f0st \u00e1 s\u00ed\u00f0u 15 er fari\u00f0 a\u00f0 fjalla um n\u00e1msval.<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0ur 16 og 17 loga af appels\u00ednugulum og gr\u00e1um s\u00falum og appels\u00ednuguli &#8220;Vissir \u00fe\u00fa a\u00f0 &#8230;&#8221; kaflinn er \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0. (\u00deessir &#8220;Vissir \u00fe\u00fa&#8221; kaflar eru margir uppf\u00e6r\u00f0ir molar af s\u00ed\u00f0unni <em><a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/fafak.org\/index.php?option=com_content&amp;task=view&amp;id=34&amp;Itemid=39\" title=\"\u00c1byrgir foreldrar Akureyri\">\u00c1byrgir foreldrar Akureyri<\/a><\/em>. \u00dear eru \u00feeir h\u00f6fundalausir. Sj\u00e1 m\u00e1 \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0 tengslin t.d. \u00ed stafsetningarvillu \u00ed tilv\u00edsun \u00ed grein Tirril Harris en einnig dugir a\u00f0 lesa molana og bera saman vi\u00f0 <em>Kynungab\u00f3k<\/em>.)<\/p>\n<p>Skv. s\u00faluriti yfir nemendaskr\u00e1ningu \u00e1 einst\u00f6kum brautum framhaldssk\u00f3la eru stelpur alls sta\u00f0ar \u00ed meirihluta, nema \u00ed raungreinum, \u00fear sem \u00fe\u00e6r eru 45% nema og \u00ed i\u00f0n- og t\u00e6knibrautum, \u00fear sem str\u00e1kar eru 67% (hlutfalli\u00f0 2002 var 90% svo breytingar hafa fakt\u00edskt or\u00f0i\u00f0, \u00e1n <em>Kynungab\u00f3kar<\/em> e\u00f0a annars purkunarlauss fem\u00ednista\u00e1r\u00f3\u00f0urs.) \u00deetta er t\u00falka\u00f0 \u00feannig:<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/appelsinugaur_svunta.jpg?resize=82%2C127\" alt=\"Appels\ufffdnugaur \ufffd svuntu\" align=\"left\" height=\"127\" width=\"82\" \/>&#8220;\u00deetta kynbundna n\u00e1msval tengist hugmyndum um karlmennsku og kvenleika. Karlar eru \u00ed &#8220;karll\u00e6gum greinum&#8221;&#8221;. Ansi h\u00e6pin einf\u00f6ldun, finnst m\u00e9r. \u00deetta tengist au\u00f0vita\u00f0 fyrst og fremst \u00fev\u00ed a\u00f0 enn velja karlmenn a\u00f0 lj\u00faka starfsn\u00e1mi \u00ed framhaldssk\u00f3la og \u00fear er a\u00f0allega um i\u00f0ngreinar a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, me\u00f0an starfsn\u00e1m kvenna hefur f\u00e6rst \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lastig. \u00deetta g\u00e6ti l\u00edka tengst \u00fev\u00ed a\u00f0 fleiri str\u00e1kum vegnar verr \u00ed sk\u00f3la en stelpum og \u00fev\u00ed g\u00e6ti veri\u00f0 eftirs\u00f3knarvert a\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 a\u00f0 stunda n\u00e1m sem felur \u00ed s\u00e9r minna b\u00f3kn\u00e1m og gefur starfsr\u00e9ttindi.<\/p>\n<p>Vilja h\u00f6fundar <em>Kynungab\u00f3kar<\/em> breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00feessu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6ra allt i\u00f0nn\u00e1m \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lastig og auka \u00feannig einn meir brottfall str\u00e1ka \u00far framhaldssk\u00f3la? E\u00f0a f\u00e6kka stelpum sem s\u00e6kja \u00ed h\u00e1sk\u00f3la me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reyna a\u00f0 f\u00e1 fleiri \u00feeirra til a\u00f0 gerast smi\u00f0i, m\u00farara, kj\u00f6ti\u00f0na\u00f0armenn\u00a0e\u00f0a rafvirkja &#8211; svo d\u00e6mi s\u00e9u tekin af handah\u00f3fi? Til hvers?<\/p>\n<p>\u00c1 s\u00ed\u00f0unni \u00e1 m\u00f3ti er anna\u00f0 s\u00falurit, \u00ed \u00feetta sinn er s\u00fdnt kynjahlutfall \u00ed goggunarr\u00f6\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lakennara. Auglj\u00f3s sk\u00fdring \u00e1 \u00feessum mun, \u00fe.e. a\u00f0 miklu fleiri karlar en konur eru pr\u00f3fessorar en s\u00e6milegt jafnr\u00e9tti r\u00edkir \u00ed lektorast\u00e9tt, er kynsl\u00f3\u00f0arbil. Hef\u00f0i me\u00f0alaldur pr\u00f3fessora og lektora veri\u00f0 s\u00fdndur \u00ed lei\u00f0inni blasti sk\u00fdringin vi\u00f0. \u00c1s\u00f3kn kvenna \u00ed h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1m er nefnilega ekki \u00fea\u00f0 g\u00f6mul. \u00deessari sk\u00fdringu er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u sleppt.<\/p>\n<p>\u00c1 mi\u00f0ri \u00feessari opnu er &#8220;Til umhugsunar&#8221;-snydda (me\u00f0 ca 24 punkta letri) \u00fear sem sagt er fr\u00e1 \u00fev\u00ed reginhneyksli a\u00f0 &#8220;Vori\u00f0 2010 birtist fr\u00e9tt um valn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed grunnsk\u00f3la \u00e1 Vesturlandi \u00fear sem stelpum \u00ed unglingadeild var bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja snyrtin\u00e1mskei\u00f0 og fyrirlestur um \u00f3t\u00edmab\u00e6ra \u00feungun en str\u00e1kar fengu n\u00e1mskei\u00f0 um vins\u00e6lan t\u00f6lvuleik.&#8221; Raki\u00f0 er a\u00f0 ein stelpan vildi komast \u00e1 fyrirlesturinn um Eve Online\u00a0en f\u00e9kk ekki, var \u00ed sta\u00f0inn bo\u00f0i\u00f0 \u00e1 kynningu hj\u00e1 t\u00f6lvufyrirt\u00e6kinu.<\/p>\n<p>\u00c9g er ekki a\u00f0 m\u00e6la \u00fev\u00ed b\u00f3t a\u00f0 stelpuskotti\u00f0 skuli ekki hafa m\u00e1tt kynna s\u00e9r Eve Online en \u00fea\u00f0 eru ansi miklar \u00fdkjur a\u00f0 kalla \u00feetta &#8220;valn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed grunnsk\u00f3la&#8221; \u00fev\u00ed,\u00a0eins og segir \u00a0segir <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.dv.is\/frettir\/2010\/5\/28\/stelpur-mattu-ekki-laera-um-tolvuleik\/\" title=\"Stelpur m\u00e1ttu ekki l\u00e6ra um t\u00f6lvuleiki\">\u00ed fr\u00e9ttinni sem v\u00edsa\u00f0 er til<\/a> : &#8220;Nemendur \u00ed unglingadeild Au\u00f0arsk\u00f3la \u00ed B\u00fa\u00f0ardal ger\u00f0u s\u00e9r gla\u00f0an dag \u00ed vikunni, \u00feegar sk\u00f3linn st\u00f3\u00f0 fyrir n\u00e1mskei\u00f0um fyrir krakkana \u00ed lok sk\u00f3la\u00e1rs.&#8221; \u00deetta var sums\u00e9 stutt h\u00fallumh\u00e6 \u00ed sk\u00f3lalok; Tveir fyrirlestrar \u00e1 sama t\u00edma. Skyldu h\u00f6fundar <em>Kynungab\u00f3kar<\/em> hafa kanna\u00f0 \u00feetta m\u00e1l eitthva\u00f0, t.d. me\u00f0 s\u00edmtali vestur? E\u00f0a dugir a\u00f0 tr\u00faa fr\u00e9tt <em>DV<\/em> sem n\u00fdju neti?<\/p>\n<p><a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.dv.is\/frettir\/2010\/7\/14\/skolastjori-segir-stelpuval-snuast-um-kynjafraedi\/\" title=\"Str\u00e1ka-og stelpuval\">Aftur \u00e1 m\u00f3ti var bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 &#8220;str\u00e1kaval&#8221; og &#8220;stelpuval&#8221; fyrir h\u00e1lft sk\u00f3la\u00e1ri\u00f0 2010, \u00ed \u00c1lftanessk\u00f3la<\/a>. Mig minnir a\u00f0 fem\u00ednistar hafi fengi\u00f0 hland fyrir hjarta\u00f0 yfir heitum valsins og n\u00f6fnunum hafi veri\u00f0 breytt. \u00de\u00f3 kemur fram a\u00f0 ekkert foreldri ger\u00f0i athugasemd vi\u00f0 nafngiftina. Skiptir m\u00e1li, \u00ed uppsl\u00e1ttarvali \u00ed <em>Kynungab\u00f3k<\/em>, a\u00f0 s\u00e1 sk\u00f3lastj\u00f3ri var forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalags Borgarness og n\u00e6rsveita \u00ed 2 \u00e1r, me\u00f0an s\u00e1 flokkur var vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i? Sem sagt vinstri ma\u00f0ur? Og \u00feess vegna fremur vali\u00f0 miklu \u00f3merkilegra og saklausara d\u00e6mi \u00far B\u00fa\u00f0ardal (\u00e1n \u00feess \u00e9g viti \u00ed hva\u00f0a p\u00f3lit\u00edskan dilk sk\u00f3lastj\u00f3rinn \u00fear ra\u00f0ast).<\/p>\n<p>Raunar finnst m\u00e9r, almennt og yfirleitt, heldur h\u00e6pi\u00f0 a\u00f0 nota <em>DV<\/em> sem heimild \u00ed tilvonandi kennsluefni Mennta-og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytis. Allt anna\u00f0 er a\u00f0 br\u00faka sl\u00edkt \u00ed bloggi.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00ed st\u00edl vi\u00f0\u00a0n\u00fdm\u00f3\u00f0ins\u00a0\u00a0heimildanotkun \u00ed \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a r\u00e1\u00f0uneyti a\u00f0 vitna \u00ed Blogg G\u00e1ttina (s. 27), \u00ed umfj\u00f6llun um hlut kvenna \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum. Kannski hef\u00f0u h\u00f6fundar \u00e1tt a\u00f0 kynna s\u00e9r hvernig s\u00fa\u00a0 talning virkar en til uppl\u00fdsingar er bent \u00e1 f\u00e6rslu G\u00edsla \u00c1sgeirssonar, <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/malbein.net\/?p=3412\" title=\"Um Bloggg\u00e1ttina\">Um Bloggg\u00e1ttina<\/a>,\u00a0\u00a0 Og hef\u00f0i ekki veri\u00f0 r\u00e9tt, \u00ed \u00feessu sambandi, a\u00f0 reikna \u00fat hlutfall \u00edslenskra\u00a0notenda <em>Facebook<\/em> eftir kynjum? E\u00f0a skanna minningargreinar moggans svona 2 \u00e1r aftur \u00ed t\u00edmann og g\u00e1 hvernig pr\u00f3sentuhlutfall kynja birtist \u00fea\u00f0, \u00fe.e. \u00ed ritendum minningargreinanna? \u00deetta er n\u00fa einu sinni afar vellesi\u00f0 efni, allt a\u00f0 \u00fev\u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lar.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum vil \u00e9g minnast \u00e1 enn einn &#8220;Vissir \u00fe\u00fa a\u00f0 &#8230;&#8221; kaflann, enn og aftur bygg\u00f0an \u00e1 s\u00ed\u00f0u <em>\u00c1byrgra foreldra \u00e1 Akureyri<\/em> (sem hvergi er geti\u00f0 \u00ed heimildaskr\u00e1 \u00fer\u00e1tt fyrir\u00a0\u00f6flugt framlag til <em>Kynungab\u00f3kar<\/em>):<br \/>\n&#8220;Vissir \u00fe\u00fa a\u00f0 &#8230;<br \/>\n&#8230; \u00feunglyndi er algengara hj\u00e1 konum k\u00f6rlum og er munurinn meiri hj\u00e1 yngra f\u00f3lki en \u00fev\u00ed eldra? Ekki er \u00fe\u00f3 fullv\u00edst a\u00f0 um l\u00edffr\u00e6\u00f0ilegar orsakir s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a fyrir \u00feeim mun og jafnvel tali\u00f0 a\u00f0 f\u00e9lagslegir \u00fe\u00e6ttir og mismunandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur kvenna og karla \u00ed samf\u00e9laginu hafi \u00fear \u00e1hrif.&#8221;<br \/>\nSem heimild fyrir \u00feessu er v\u00edsa\u00f0 er \u00ed grein Harris, T (2003) <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.sciencedirect.com\/science?_ob=MImg&amp;_imagekey=B6T8V-47TK9SS-2-5&amp;_cdi=5096&amp;_user=712601&amp;_pii=S0022399902005007&amp;_origin=browse&amp;_zone=rslt_list_item&amp;_coverDat\" title=\"Depression in women and its sequelae\">Depression in women and its sequela [svo! r\u00e9tt: sequelae]<\/a> <em>Journal of Psychotomatic Research<\/em>, 54, 103-112. Kenningar Tirril Harris eru\u00a0 umdeildar og hafa veri\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed h\u00fan var me\u00f0h\u00f6fundur \u00ed fr\u00e6gri ranns\u00f3kn, Brown, G.W. and Harris, T.O. (eds) 1978: Social origins of depression: a study of psychiatric disorder in women. London; Tavistock. Besta yfirlitsgreinin um \u00fe\u00e6tti sem kunna a\u00f0 hafa \u00e1hrif til \u00feess a\u00f0 algengi \u00feunglyndis me\u00f0al kvenna\u00a0m\u00e6list meira en karla er, a\u00f0 m\u00ednu mati, grein Dr. Elizabeth Young, <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.nature.com\/mp\/journal\/v15\/n1\/full\/mp200994a.html\" title=\"Sex, trauma, stress hormones and depression\">Sex, trauma, stress hormones and depression<\/a>, \u00ed <em>Molecular Psychiatry<\/em> (2010) 15, 23\u201328. En h\u00fan fellur l\u00edklega ekki a\u00f0 smekk fyrrum rau\u00f0sokka.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/appelsina_norn.jpg?resize=120%2C111\" alt=\"Norn\" align=\"left\" height=\"111\" width=\"120\" \/>\u00de\u00f3tt auglj\u00f3sasta sk\u00fdringin \u00e1 algengi \u00feunglyndis me\u00f0al kvenna s\u00e9 vitaskuld s\u00fa a\u00f0 konur eru miklu duglegri a\u00f0 leita s\u00e9r hj\u00e1lpar, \u00fe.m.t. l\u00e6knishj\u00e1lpar, en karlar, eins og kemur reyndar fram \u00ed <em>Kynungab\u00f3k,<\/em> er \u00f3\u00fearfi a\u00f0 slengja fram vafasamri fullyr\u00f0ingu bygg\u00f0ri \u00e1 vafasamri heimild sem einhver h\u00f6fundurinn hefur rekist \u00e1 \u00e1 s\u00ed\u00f0u <em>\u00c1byrgra foreldra \u00e1 Akureyri<\/em> um svo alvarlegan sj\u00fakd\u00f3m sem \u00feunglyndi er. En s\u00e9 ma\u00f0ur fem\u00ednisti hefur ma\u00f0ur greinilega vit \u00e1 \u00f6llum sk\u00f6pu\u00f0um hlutum undir s\u00f3linni &#8230; e\u00f0a m\u00e1 a.m.k. t\u00edna upp s\u00edna heimildarmola \u00fati \u00e1 t\u00fani, \u00f3\u00e1reitt(ur?). Bloggynja \u00feakkar fyrir a\u00f0 hafa ekki s\u00e9\u00f0 J\u00f3n\u00ednu Ben. \u00ed heimildaskr\u00e1.<\/p>\n<p>Almennt m\u00e1 um <em>Kynungab\u00f3k<\/em> segja a\u00f0 \u00fearna fer h\u00f3pur kvenna \u00e1 besta aldri fram me\u00f0 fyrirfram gefnar einstrengingslegar sko\u00f0anir \u00e1 sk\u00f3lakerfi, hagkerfi, heilbrig\u00f0ism\u00e1lum o.fl. og telur hva\u00f0a heimildir sem styrkja s\u00edna \u00fer\u00f6ngu heimsmynd t\u00e6kar. Vitna\u00f0 er j\u00f6fnum h\u00f6ndum \u00ed opinberar sk\u00fdrslur stofnana, virtar ranns\u00f3knir, greinar \u00ed ritr\u00fdndum t\u00edmaritum, \u00f3birtar BA-ritger\u00f0ir, DV, Bloggg\u00e1ttina,\u00a0<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.likamsvirding.is\" title=\"Megrunarlausi dagurinn\">Megrunarlausa daginn<\/a>\u00a0\u00a0og efni sem ekki er geti\u00f0 \u00ed heimildaskr\u00e1\u00a0(vefs\u00ed\u00f0u <em>\u00c1byrgra foreldra \u00e1 Akureyri<\/em> og l\u00edfsreynslus\u00f6gur) o.s.fr.\u00a0Ekki vir\u00f0ist ger\u00f0 s\u00e9rst\u00f6k tilraun til a\u00f0 meta heimildirnar, l\u00edkt og d\u00e6mi\u00f0 um grein T. Harris s\u00fdnir h\u00e9r a\u00f0 ofan, \u00fea\u00f0 dugir a\u00f0 \u00fe\u00e6r falli a\u00f0 fyrirframgefnum sko\u00f0unum h\u00f6funda. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 hneisa a\u00f0 Mennta-og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 skuli\u00a0leggja nafn sitt vi\u00f0 \u00feennan b\u00e6kling. \u00a0\u00a0<\/p>\n<p>Hef\u00f0i f\u00e9nu, sem f\u00f3r \u00ed a\u00f0 \u00fatb\u00faa \u00feennan b\u00e6kling, ekki veri\u00f0 betur vari\u00f0 \u00ed anna\u00f0? \u00c1 t\u00edmum ni\u00f0urskur\u00f0ar \u00ed sk\u00f3lakerfinu, eins og \u00fea\u00f0 leggur sig.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0\u00a0<\/p>\n<p>Kostir vi\u00f0 <em>Kynungab\u00f3k<\/em>? Ja, h\u00fan vir\u00f0ist vel pr\u00f3farkalesin, nema kannski heimildaskr\u00e1.<\/p>\n<p>\u00a0\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g renndi yfir Kynungab\u00f3k \u00ed g\u00e6r. \u00deetta er b\u00e6klingur, gefinn \u00fat af Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytingu \u00ed \u00e1g\u00fast 2010. B\u00e6klingurinn vir\u00f0ist eiga a\u00f0 vera kennsluefni \u00fev\u00ed \u00ed form\u00e1la segir menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, Katr\u00edn Jakobsd\u00f3ttir: &#8220;\u00dea\u00f0 er von m\u00edn <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2010\/09\/30\/kynungabok\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-285","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/285","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=285"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/285\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=285"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=285"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=285"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}