{"id":311,"date":"2011-01-16T21:25:11","date_gmt":"2011-01-16T21:25:11","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-01-16\/i-hjonabandi-med-sidblindum\/"},"modified":"2011-01-16T21:25:11","modified_gmt":"2011-01-16T21:25:11","slug":"i-hjonabandi-med-sidblindum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/01\/16\/i-hjonabandi-med-sidblindum\/","title":{"rendered":"\u00cd hj\u00f3nabandi me\u00f0 si\u00f0blindum"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\"><\/font><font size=\"3\">31. des. 2011: \u00c9g hef ofi\u00f0 si\u00f0blinduf\u00e6rslurnar og \u00e6tti a\u00f0 vera \u00fe\u00e6gilegra a\u00f0 sko\u00f0a efni\u00f0 \u00e1 vef heldur en \u00ed \u00feessu bloggumhverfi. Sl\u00f3\u00f0in er: <\/font><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/sidblinda.com\/\"><strong>http:\/\/sidblinda.com<\/strong><\/a><\/p>\n<p><strong><\/strong><\/p>\n<p><\/font><b><font size=\"-1\">\u00de\u00f3famj\u00fak r\u00e1nd\u00fdr sem l\u00e6\u00f0ast: Si\u00f0blinda, III hluti<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"2\">(Finna m\u00e1 a\u00f0rar f\u00e6rslur um si\u00f0blindu \u00ed efnisflokknum <em>Si\u00f0blinda<\/em>,\u00a0sj\u00e1 Flokka h\u00e9r til h\u00e6gri.)<\/font>\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ath. a\u00f0 margt af\u00a0\u00fev\u00ed sem kemur fram \u00ed f\u00e6rslunni um\u00a0f\u00f3rnarl\u00f6mb ofbeldis, l\u00fdsingar \u00e1 ofbeldi, aflei\u00f0ingar ofbeldis o.s.fr. \u00e1 vi\u00f0\u00a0margar fleiri en \u00fe\u00e6r sem b\u00faa me\u00f0 si\u00f0blindum. \u00deetta eru\u00a0einkenni sem\u00a0koma fram \u00ed\u00a0ofbeldissamb\u00f6ndum almennt. M\u00e1\u00a0t.d.\u00a0\u00e6tla a\u00f0 a\u00f0standendur alk\u00f3h\u00f3lista kannist h\u00e9r vi\u00f0 fj\u00f6ldamargt, sem og fleiri.\u00a0Langt\u00a0gengnir alk\u00f3h\u00f3listar \u00fer\u00f3a enda me\u00f0 s\u00e9r talsvert af\u00a0si\u00f0blindueinkennum. (En \u00e1 hinn b\u00f3ginn eiga \u00feeir m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 bata, sem gildir ekki um si\u00f0blinda, eftir \u00fev\u00ed sem best er vita\u00f0 n\u00fa.)\u00a0<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">* \u201e\u00c9g veit hann fer illa me\u00f0 mig en \u00e9g elska hann.\u201c<\/font><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/sidblindur_par.jpg?resize=106%2C78\" align=\"left\" height=\"78\" width=\"106\" \/><font size=\"-1\">Samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 si\u00f0blindum einstaklingi byrjar oft sem spennandi og eldheitt \u00e1starsamband. Konan [a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u getur \u00feetta einnig \u00e1tt vi\u00f0 karl en af \u00fev\u00ed si\u00f0blindar konur eru miklu f\u00e6rri en karlar er \u00feolandi si\u00f0blinds eintaklings oftast kvenkennd \u00ed \u00feessari f\u00e6rslu] er\u00a0 blindu\u00f0 og upp me\u00f0 s\u00e9r af gullh\u00f6mrum \u00feess si\u00f0blinda, \u00e1huga hans og kappsemi og fellst \u00e1 allar upp\u00e1stungur hans og \u00e1\u00e6tlanir. \u00deegar si\u00f0blindur finnur konu sem honum l\u00edkar, sem d\u00e1ist a\u00f0 honum og elskar hann og m\u00f3tm\u00e6lir honum ekki, fyllist hann oft \u00fer\u00e1 til a\u00f0 tryggja s\u00e9r sl\u00edka manneskju. Margar sem hafa b\u00fai\u00f0 me\u00f0 si\u00f0blindum l\u00fdsa upphafi sambandins eins og vera veiddar \u00ed net.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deegar samb\u00fa\u00f0in versnar er d\u00e6migert a\u00f0 ma\u00f0ur voni st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 makinn muni b\u00e6ta sig. \u00feegar hann s\u00fdnir \u00e1st og \u00e1st\u00fa\u00f0 er l\u00e9tt a\u00f0 fyrirgefa og halda a\u00f0 allt ver\u00f0i n\u00fa betra. En \u00fea\u00f0 ver\u00f0a ekki nein <\/font><font size=\"-1\">kraftaverk sem l\u00e1ta hann h\u00e6tta a\u00f0 fara illa me\u00f0 makann. Hann g\u00e6ti sagt sl\u00edkt, lofa\u00f0 \u00fev\u00ed, j\u00e1 meira a\u00f0 segja gr\u00e1ti\u00f0 og be\u00f0i\u00f0 s\u00e9r gri\u00f0a. En or\u00f0 og lofor\u00f0 hafa l\u00edti\u00f0 v\u00e6gi, \u00fea\u00f0 hefur m\u00f6rg konan sem hefur lifa\u00f0 \u00ed ofbeldissambandi fengi\u00f0 a\u00f0 reyna. \u00dea\u00f0 er bara spurning um t\u00edma hven\u00e6r hann er aftur kominn \u00ed str\u00ed\u00f0sham. (Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 182-183.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Kona sem fer \u00ed samband vi\u00f0 si\u00f0blindan ver\u00f0ur fyrst og fremst a\u00f0 ver\u00f0a undirgefin undir algera stj\u00f3rn hans. Sumar konar eru fastar \u00ed \u00feeirri f\u00f6gru blekkingu a\u00f0 ef \u00fe\u00e6r haldi \u00fat n\u00f3gu mikla \u00fej\u00e1ningu \u00fe\u00e1 ver\u00f0i allt fullkomi\u00f0 a\u00f0 lokum. Hver og ein telur a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 s\u00fa eina sem \u00feolir misbeitingu hans, elski hann og tolli hj\u00e1 honum. Fyrr e\u00f0a s\u00ed\u00f0ar muni hann svo skilja hve fr\u00e1b\u00e6r h\u00fan er. \u00deetta er hin bjarts\u00fdna tr\u00fa \u00e1 a\u00f0 hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a muni sigra hi\u00f0 illa. \u00c1 m\u00f3ti kemur a\u00f0 hinn si\u00f0blindi getur r\u00e1\u00f0skast me\u00f0 vonir hennar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera vingjarnlegur skamma stund og \u00fdtt \u00feannig undir v\u00e6ntingar hennar um a\u00f0 allt muni breytast. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leika s\u00e9r a\u00f0 von konunnar tryggir s\u00e1 si\u00f0blindi a\u00f0 konan ver\u00f0i \u00e1fram h\u00e1\u00f0 honum \u00fev\u00ed \u00feessi heg\u00f0un hans styrkir \u00f3skir hennar a\u00f0 gera honum til h\u00e6fis. (Tranberg, Peter. \u00d3\u00e1rsett, s. 61.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Konur sem halda st\u00edft \u00ed hef\u00f0bundin kvenhlutverk \u00ed s\u00ednum samb\u00f6ndum vi\u00f0 karla lenda \u00ed miklu veseni ef einhver \u00feeirra er si\u00f0blindur. \u00c1 hinn b\u00f3ginn getur si\u00f0blindur ma\u00f0ur kv\u00e6ntur konu sem vill fyrst og fremst vera \u201eg\u00f3\u00f0 eiginkona\u201c lifa\u00f0 afar \u00fe\u00e6gilegu l\u00edfi. Heimili\u00f0 ver\u00f0ur honum gri\u00f0asta\u00f0ur og \u00f6ryggisnet \u00fea\u00f0an sem hann getur hrint \u00e1\u00e6tlunum s\u00ednum \u00ed framkv\u00e6md og sta\u00f0i\u00f0 l\u00e1tlaust \u00ed \u00f6\u00f0rum skammt\u00edmasamb\u00f6ndum vi\u00f0 a\u00f0rar konur. Lang\u00fej\u00e1\u00f0 eiginkonan veit venjulega hva\u00f0 er \u00ed gangi en henni finnst a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i a\u00f0 halda heimilinu saman, s\u00e9rstaklega ef b\u00f6rn eru \u00ed spilinu. H\u00fan kann a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 ef h\u00fan leggi har\u00f0ar a\u00f0 s\u00e9r e\u00f0a bara b\u00ed\u00f0i \u00feetta af s\u00e9r \u00fe\u00e1 muni eiginma\u00f0ur hennar breytast til batna\u00f0ar. \u00c1 sama t\u00edma \u00fdtir hlutskipti\u00f0 sem h\u00fan hefur vali\u00f0 s\u00e9r undir sektartilfinningu hennar og sj\u00e1lfs\u00e1sakanir um a\u00f0 \u00f3hamingja sambandsins s\u00e9 henni a\u00f0 kenna. \u00deegar hann hunsar hana, misnotar e\u00f0a sv\u00edkur hana g\u00e6ti h\u00fan sagt vi\u00f0 sj\u00e1lfa sig: \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 leggja mig enn meira fram, ey\u00f0a meiri orku \u00ed sambandi\u00f0, hugsa betur um hann er nokkur \u00f6nnur kona g\u00e6ti nokkru sinni gert. Og \u00feegar m\u00e9r tekst \u00feetta mun hann sj\u00e1 hve \u00e9g er honum mikils vir\u00f0i. Hann mun koma fram vi\u00f0 mig eins og drottningu.\u201c (Hare, Robert D., s. 152-153.) Sj\u00e1 <i><a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/daemi_fornarlomb_konur.html#4. D\u00e6mi\" title=\"D\u00e6mi um si\u00f0blindu\">D\u00e6mi 4<\/a><\/i>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>* Andlegt ofbeldi, h\u00f3tanir og sj\u00fakleg afbr\u00fd\u00f0isem<\/b>i<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/oskrad.jpg?resize=104%2C131\" alt=\"Andlegt ofbeldi\" align=\"left\" height=\"131\" width=\"104\" \/><font size=\"-1\">Konur sem eru beittar l\u00edkamlegu ofbeldi eru oft beittar andlegu ofbeldi \u00ed lei\u00f0inni. Og einnig er til \u00ed d\u00e6minu a\u00f0 si\u00f0blindur beiti einungis andlegu ofbeldi. \u00dea\u00f0 getur falist \u00ed st\u00f6\u00f0ugum yfirheyrslum, au\u00f0m\u00fdkjandi umm\u00e6lum, sj\u00faklegri afbr\u00fd\u00f0isemi og stj\u00f3rnunartakt\u00edk. Margar konur segja a\u00f0 andlega ofbeldi\u00f0 s\u00e9 verra en vera lamin. (Tjora, E. 1996. \u201eKvinnemishandling, et alvorlig helseproblem\u201c \u00ed <i>Medicinsk \u00e5rbog 1996<\/i>,s. 23-31. Norli, Oslo. Tilvitnun \u00ed Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 183.)\u00a0 Sm\u00e1r\u00e6\u00f0i eins og a\u00f0 kaffi\u00f0 s\u00e9 kalt getur leyst \u00far l\u00e6\u00f0ingi rei\u00f0i hins si\u00f0blinda. \u00deeir hafa ofbo\u00f0slega \u00fe\u00f6rf fyrir stj\u00f3rn og allt sem fellur utan \u00feess regluverks sem \u00feeir hafa sett er \u00f6grandi. \u00cd ofbeldisfullu sambandi \u00f3ttast f\u00f3rnarlambi\u00f0 s\u00edfellt \u00e1t\u00f6k. Konan ey\u00f0ir miklum t\u00edma \u00ed a\u00f0 haga \u00f6llu eftir \u00fev\u00ed sem makinn vill svo hann geti ekki fundi\u00f0 neitt a\u00f0 henni, heimilishaldinu e\u00f0a matseldinni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Andlegt ofbeldi er til \u00feess a\u00f0 brj\u00f3ta ni\u00f0ur sj\u00e1lfs\u00e1lit konunnar og tryggja \u00fe\u00f6rf ofbeldismannsins fyrir v\u00f6ld og stj\u00f3rn. Til \u00feessa notar hann gjarna <b>beinar e\u00f0a \u00f3beinar h\u00f3tanir<\/b>: \u201eEf \u00fe\u00fa reynir a\u00f0 fara fr\u00e1 m\u00e9r drep \u00e9g \u00feig\u201c e\u00f0a \u201eEf \u00fe\u00fa heldur ekki kjafti n\u00fana veit \u00e9g ekki hva\u00f0 \u00e9g geri\u201c. Hann kann a\u00f0 h\u00f3ta konuninni me\u00f0 dr\u00e1pi, a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i brotin ni\u00f0ur l\u00edkamlega og andlega e\u00f0a ver\u00f0i mis\u00feyrmt og afmyndu\u00f0 svo enginn annar karl muni nokkru sinni l\u00edta vi\u00f0 henni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Anna\u00f0 merki um stj\u00f3rnunar\u00e1r\u00e1ttu sem fer \u00far b\u00f6ndunum er \u00feegar konan ver\u00f0ur a\u00f0 <b>gera grein fyrir hverri kr\u00f3nu<\/b> sem h\u00fan ey\u00f0ir, jafnvel a\u00f0 karlinn kaupi \u00f6ll hennar f\u00f6t og r\u00e1\u00f0i hverju h\u00fan kl\u00e6\u00f0ist.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Sj\u00fakleg afbr\u00fd\u00f0isemi<\/b> er algeng \u00ed ofbeldissamb\u00f6ndum. \u00d6ll samskipti vi\u00f0 a\u00f0ra, \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 bara a\u00f0 skiptast \u00e1 nokkrum or\u00f0um vi\u00f0 p\u00f3stinn, eru t\u00falku\u00f0 sem tilraun til framhj\u00e1halds, a\u00f0 fara bak vi\u00f0 hann. \u00deetta er oft hrein yfirv\u00f6rpun \u00fev\u00ed hinn si\u00f0blindi er \u00f3sjaldan \u00f3tr\u00far sj\u00e1lfur. Hin sj\u00faklega afbr\u00fd\u00f0isemi kemur t.d. fram \u00ed yfirheyrslum um me\u00f0 hverjum h\u00fan hafi veri\u00f0 og hva\u00f0 a\u00f0 gera. Endurteknar \u00e1sakanir sem var\u00f0a fyrri samb\u00f6nd og kynl\u00edfsupplifanir eru l\u00edka algengar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Einangrun<\/b> tengist sj\u00faklegri afbr\u00fd\u00f0isemi og \u00fe\u00f6rf fyrir stj\u00f3rn. Karlinn reynir a\u00f0 hindra konuna \u00ed a\u00f0 hitta vini og fj\u00f6lskyldu, fara eina \u00fat e\u00f0a fer\u00f0ast eina. \u00deetta getur jafnvel komi\u00f0 fram \u00ed \u201evingjarnlegum\u201c athugasemdum eins og \u201e\u00c9g elska \u00feig svo heitt a\u00f0 \u00e9g vil ekki a\u00f0 neitt komi fyrir \u00feig\u201c. F\u00f3lk sem er n\u00e1nast haldi\u00f0 f\u00f6ngnu, hvort \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 teki\u00f0 \u00ed g\u00edslingu e\u00f0a er \u00ed g\u00edslingu \u00ed eigin hj\u00f3nabandi, finnur oft fyrir sterkum s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegum tengslum vi\u00f0 ofbeldismanninn.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Andlegt ofbeldi felst oft \u00ed <b>ni\u00f0url\u00e6gingu<\/b>. Makinn kallar konuna kannski \u201eh\u00f3ru\u201c, \u201etussu\u201c\u00a0 e\u00f0a \u00e1l\u00edka og heldur \u00fev\u00ed fram a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 lj\u00f3t og l\u00edtt a\u00f0la\u00f0andi, l\u00e9leg \u00ed r\u00faminu e\u00f0a heimsk. Kynl\u00edfi\u00f0 g\u00e6ti l\u00edka veri\u00f0 ni\u00f0url\u00e6gjandi vegna \u00feess a\u00f0 konan er \u00fevingu\u00f0 til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed kynl\u00edfsath\u00f6fnum sem h\u00fan vill ekki. (Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 183-185.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Konur sem b\u00faa me\u00f0 si\u00f0blindum m\u00f6nnum venjast \u00fev\u00ed oft a\u00f0 sambandi\u00f0 einkennist af <b>dramat\u00edk og rifrildi<\/b>. E\u00f0a \u00fe\u00e6r reyna a\u00f0 gleyma \u00f6llum sl\u00e6mu upp\u00e1komunum og einbeita s\u00e9r a\u00f0 \u00feeim f\u00e1u g\u00f3\u00f0u. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 erfitt a\u00f0 vi\u00f0urkenna fyrir sj\u00e1lfri s\u00e9r a\u00f0 ma\u00f0ur hafi gert svona mist\u00f6k \u00ed makavali. Margar konur hafa reynt \u201ea\u00f0 elska hinn si\u00f0blinda fr\u00edskan\u201c en \u00fea\u00f0 er vonlaust verk. A\u00f0 reyna a\u00f0 opna augu makans er unni\u00f0 fyrir g\u00fdg. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir\u00a0 heldur ekkert a\u00f0 nota l\u00e6r\u00f0a samskiptat\u00e6kni \u00e1 si\u00f0blindan \u00fev\u00ed h\u00fan krefst hei\u00f0arleika og samvinnu. Si\u00f0blint f\u00f3lk skortir h\u00e6fileikann til a\u00f0 skilja hvernig \u00f6\u00f0rum l\u00ed\u00f0ur. Fyrir si\u00f0blindum er mikilv\u00e6gast a\u00f0 vinna hverja orustu. \u00deess vegna er svo erfitt a\u00f0 finna lausn \u00e1 vandanum sem b\u00e6\u00f0i geta s\u00e6tt sig vi\u00f0.(Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 188.)<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">* Varna\u00f0arvi\u00f0br\u00f6g\u00f0 fyrir \u00feig sj\u00e1lfa<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Susan Forward, sem skrifa\u00f0i b\u00f3kina <i>Man who hate women and women who love them<\/i> (fyrst \u00fatg. 1986, gefin \u00far \u00ed norskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu 1988, <i>Menn som hater kvinner og kvinnene som elsker dem<\/i>) hefur gert eftirfarandi g\u00e1tlista fyrir konur sem grunar a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u beittar andlegu ofbeldi (tilv. tekin \u00far Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 180-181):<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">A\u00f0 hafa \u00e1 tilfinningunni a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 s\u00edfellt veri\u00f0 a\u00f0 t\u00e9kka \u00e1 \u00fe\u00e9r.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Afbr\u00fd\u00f0isemi makans keyrir \u00far h\u00f3fi og hann vir\u00f0ist hafa \u00fe\u00f6rf fyrir a\u00f0 eiga \u00feig me\u00f0 h\u00fa\u00f0 og h\u00e1ri.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Makinn talar st\u00f6\u00f0ugt ni\u00f0ur til \u00fe\u00edn.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Makinn er alltaf me\u00f0 skammir og h\u00f3tanir.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Makinn beitir \u00fe\u00f6ggun, \u00fe.e. dregur sig \u00edskalt \u00ed hl\u00e9 og talar ekki vi\u00f0 \u00feig klukkustundum e\u00f0a d\u00f6gum saman.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Makinn hefur gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 gera s\u00e6randi gys a\u00f0 \u00fe\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0ra, tala t.d. h\u00e1st\u00f6fum um galla \u00fe\u00edna e\u00f0a segir \u00f6\u00f0rum hva\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt vonlaus \u00ed r\u00faminu.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">\u00de\u00fa upplifir ruglandi framkomu, \u00fe.e. makinn er \u00fdmist undurg\u00f3\u00f0ur e\u00f0a umhverfist algerlega, af litlu e\u00f0a engu tilefni.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">\u00de\u00fa ert alltaf s\u00f6kud\u00f3lgurinn.<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">\u00de\u00fa ert byrju\u00f0 a\u00f0 tipla \u00e1 t\u00e1num kringum makann, \u00feorir ekki a\u00f0 vi\u00f0ra sko\u00f0anir \u00fe\u00ednar og segir ekkert a\u00f0 \u00f3hugsu\u00f0u m\u00e1li, til a\u00f0 for\u00f0ast rei\u00f0ik\u00f6st og \u00fe\u00f6ggun.<\/font><\/li>\n<\/ul>\n<p><font size=\"-1\">Ef \u00fe\u00fa kannast vi\u00f0 einhver af \u00feessum einkennum kann a\u00f0 vera a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt \u00ed ofbeldissambandi. Reyndu a\u00f0 safna kjarki til a\u00f0 tala vi\u00f0 einhvern sem \u00fe\u00fa treystir um \u00feetta. \u00de\u00fa getur l\u00edka tala\u00f0 vi\u00f0<\/font> <font size=\"-1\">fagmenn eins og l\u00e6kni, s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ing, prest, ge\u00f0hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ing e\u00f0a f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gjafa. \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 erfitt a\u00f0 tala um \u00feetta og kannski er best a\u00f0 nefna einst\u00f6k d\u00e6mi til a\u00f0 a\u00f0rir eigi betra me\u00f0 a\u00f0 skilja \u00e1standi\u00f0. <\/font><font size=\"-1\">Loks m\u00e1 nefna hi\u00f0 dularfulla brag\u00f0 \u00feeirra sem beita andlegu ofbeldi, sem kallast \u201e<b>Gaslighting<\/b>\u201c (\u201eGasl\u00fdsing\u201c). Nafni\u00f0 er fengi\u00f0 \u00far leikritinu <i>Gas Light<\/i>, fr\u00e1 1938, sem seinna voru ger\u00f0ar kvikmyndir eftir. Leikriti\u00f0 fjallar um eiginmann sem reynir a\u00f0 gera konu s\u00edna vitfirrta me\u00f0 \u00fev\u00ed t.d. a\u00f0 f\u00e6ra til hluti \u00e1 heimilinu og halda \u00fev\u00ed fram hana misminni e\u00f0a h\u00fan taki feil \u00feegar h\u00fan nefnir breytingarnar. Titillinn v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 eiginma\u00f0urinn dimmir gaslj\u00f3sin \u00e1 heimilinu sm\u00e1m saman og reynir a\u00f0 telja konu sinni tr\u00fa um a\u00f0 sl\u00edkt s\u00e9 alls ekki raunin heldur s\u00e9 h\u00fan a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r \u00feetta.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201eGasl\u00fdsing\u201c \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fev\u00ed a\u00f0 alls konar rangar uppl\u00fdsingar eru gefnar f\u00f3rnarlambinu \u00ed \u00fev\u00ed augnami\u00f0i a\u00f0 f\u00e1 \u00fea\u00f0 til a\u00f0 efast um eigi\u00f0 minni og skynjun; f\u00e1 f\u00f3rnarlambi\u00f0 til a\u00f0 efast um eigin ge\u00f0heilsu. \u00de\u00e6r sem hafa b\u00fai\u00f0 me\u00f0 si\u00f0blindum efast stundum um a\u00f0 \u00fe\u00e6r muni upplifun s\u00edna r\u00e9tt enda eru si\u00f0blindir miklir blekkingameistarar. Meira a\u00f0 segja \u00feeir sem hafa bari\u00f0 eiginkonur s\u00ednar (e\u00f0a a\u00f0rar konur) kunna a\u00f0 afneita \u00fev\u00ed algerlega og \u00e1saka \u00fe\u00e6r um tilb\u00faning og ge\u00f0veiki. Sj\u00e1 n\u00e1nar um\u00a0 \u201e<a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Gaslighting\" title=\"Gasl\u00fdsing\">Gaslighting<\/a>\u201c \u00e1 <i>Wikipedu<\/i>\u00a0og \u00e1 <i><a href=\"http:\/\/minou999.wordpress.com\/2009\/08\/03\/gaslighting\/\" title=\"Gaslighting\">Encounters of the Psychopathic Kind<\/a><\/i><\/font>.\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">* Konur sem vilja b\u00faa me\u00f0 si\u00f0blindum<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Til er \u00ed d\u00e6minu a\u00f0 f\u00f3lk ani me\u00f0 opin augu inn \u00ed samband vi\u00f0 einstakling sem allir vita a\u00f0 er si\u00f0blindur. J. R. Meloy (1993. <i>Violent Attachments. T<\/i>ilvitnanir \u00ed Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 203 &#8211; 204) hefur s\u00e9rstakalega rannsaka\u00f0 hva\u00f0a s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegir \u00fe\u00e6ttir valdi \u00fev\u00ed a\u00f0 sumar bindast mj\u00f6g ofbeldisfullum si\u00f0blindum sem \u00fe\u00e6r hafa veri\u00f0 margvara\u00f0ir vi\u00f0. Hva\u00f0 rekur \u00fe\u00e6r \u00e1fram sem af f\u00fasum og frj\u00e1lsum vilja bindast mor\u00f0ingjum og afbrotam\u00f6nnum? Vi\u00f0 heyrum af konum sem beinl\u00ednis vilja giftast sl\u00edkum m\u00f6nnum og stofna me\u00f0 \u00feeim fj\u00f6lskyldu um lei\u00f0 og \u00feeim ver\u00f0ur sleppt \u00far fangelsi. [\u00c1 Nor\u00f0url\u00f6ndunum er sennilega fr\u00e6gast d\u00e6mi um sl\u00edkt <a href=\"http:\/\/www.berlingske.dk\/danmark\/peter-lundin-hemmeligt-gift\" title=\"Gift Peter Lundin\">konan sem giftist Peter Lundin<\/a>.] Meloy telur hluta svarsins felast \u00ed \u00f3me\u00f0vita\u00f0ri sams\u00f6mun me\u00f0\u00a0 hinum si\u00f0blinda.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hann talar annars vegar um <b>mas\u00f3k\u00edska sams\u00f6mun<\/b>, sem feli \u00ed s\u00e9r a\u00f0\u00a0 bindast pers\u00f3nu sem endurgeldur a\u00f0 miklu leyti me\u00f0 \u00e1r\u00e1sargirni og sl\u00e6mri me\u00f0h\u00f6ndlun. \u00deetta telur Meloy a\u00f0 tengist sl\u00e6mu uppeldi \u00ed bernsku \u00fear sem barn hafi yfirf\u00e6rt s\u00e1rsaukafulla me\u00f0fer\u00f0 af hendi foreldra \u00e1 a\u00f0 h\u00fan t\u00e1kni a\u00f0 barni\u00f0 s\u00e9 foreldrunum einhvers vir\u00f0i, s\u00e9 pabba e\u00f0a m\u00f6mmu einhvern veginn n\u00e1tengt.<\/font> <font size=\"-1\">Til a\u00f0 vera \u00ed sambandi vi\u00f0 ofbeldisfullan si\u00f0blindan ver\u00f0ur hinn a\u00f0ilinn a\u00f0 l\u00fata algerri stj\u00f3rn hins si\u00f0blinda. Makinn umbreytir \u00feessu \u00ed tilfinninguna um a\u00f0 hafa stj\u00f3rn yfir hinum si\u00f0blinda.<\/font> <font size=\"-1\">\u00c1r\u00e1sargjarnt atferli hins si\u00f0blinda ver\u00f0ur \u00feannig endurupplifun af bernskutengslum vi\u00f0 l\u00e9lega foreldra. M\u00f3\u00f0ganirnar \/ brotin ver\u00f0a s\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru sterk b\u00f6nd vi\u00f0 pers\u00f3nu sem hefur a.m.k. \u00e1huga \u00e1 manni jafnvel \u00fe\u00f3tt pers\u00f3nan s\u00e9 andstyggileg.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hitt sem Meloy nefnir er <b>sadist\u00edsk sams\u00f6mun<\/b> me\u00f0 ofbeldi hins si\u00f0blinda. Einhverjir \u00feeirra sem tengjast si\u00f0blindum vir\u00f0ast \u00f3me\u00f0vita\u00f0 hafa \u00e1n\u00e6gju af sadisma hans gegn \u00f6\u00f0rum. \u00deekkt d\u00e6mi \u00far kvikmyndum er samband Bonnie vi\u00f0 Clyde.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/sidblindur_lokkandi.jpg?resize=128%2C85\" alt=\"Lokkandi si\u00f0blindur\" align=\"left\" height=\"85\" width=\"128\" \/><font size=\"-1\"><b>Upphafning<\/b> og <b>afneitun<\/b> vir\u00f0ast l\u00edka vera r\u00e1\u00f0a afar miklu hj\u00e1 \u00feeim sem bindast si\u00f0blindum vitandi vits. \u00dea\u00f0 er eins og konan s\u00e9 algerlega blind fyrir hve s\u00e1 si\u00f0blindi er h\u00e6ttulegur og ni\u00f0url\u00e6gjandi. \u00dea\u00f0 er eitthva\u00f0 vi\u00f0 si\u00f0blinda heg\u00f0un sem virkar \u00e1kaflega lokkandi og \u00e6sandi. \u00deetta f\u00e6r konuna til a\u00f0 tr\u00faa blekkingum og lygum hins si\u00f0blinda. H\u00fan afneitar h\u00e6ttumerkjunum sem sj\u00e1st \u00ed fort\u00ed\u00f0 \u00feess si\u00f0blinda og n\u00fainu einnig og skrumsk\u00e6lir veruleikann \u00feannig a\u00f0 hann passi vi\u00f0 eigin hugmyndir um \u00feennan spennandi mann. Sj\u00e1 <i><a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/daemi_fornarlomb_konur.html#5. D\u00e6mi\" title=\"E\u00e6mi 5 um si\u00f0blindu\">D\u00e6mi 5<\/a> og <a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/daemi_fornarlomb_konur.html#6.D\u00e6mi\" title=\"D\u00e6mi 6 um si\u00f0blindu\">D\u00e6mi 6<\/a>.<\/i><\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Susan Forward (1988, s. 36 &#8211; 37, tilvitnun \u00ed Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 204) hefur gert lista yfir hvernig konur \u00ed afneitun draga oft\u00a0 fj\u00f6\u00f0ur yfir heg\u00f0un si\u00f0blindra maka: \u201eJ\u00e1, hann hefur veri\u00f0 \u00ferisvar kv\u00e6ntur \u00e1\u00f0ur en enginn hefur skili\u00f0 hann \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00e9g geri.\u201c;\u00a0 \u201e\u00c9g veit a\u00f0 hann hefur fari\u00f0 illa \u00fat \u00far vi\u00f0skiptum en hann hefur l\u00edka \u00e1tt samstarfsa\u00f0ila \u00ed r\u00f6\u00f0um sem hafa sviki\u00f0 \u00fat \u00far honum peninga.\u201c;\u00a0 \u201eHann talar mj\u00f6g illa um fyrrverandi eiginkonu s\u00edna en \u00fea\u00f0 er n\u00fa eiginlega ekki svo skr\u00edti\u00f0 \u00fev\u00ed h\u00fan var hr\u00e6\u00f0ilega gr\u00e1\u00f0ug og sj\u00e1lfselsk.\u201c;\u00a0 \u201e\u00c9g veit a\u00f0 hann drekkur of miki\u00f0 en hann er \u00ed erfi\u00f0ri a\u00f0st\u00f6\u00f0u n\u00fana og um lei\u00f0 og \u00fea\u00f0 lagast veit \u00e9g a\u00f0 hann h\u00e6ttir.\u201c;\u00a0 \u201eHann ger\u00f0i mig verulega hr\u00e6dda \u00feegar hann reiddist en akk\u00farat n\u00fana er hann undir g\u00edfurlegu \u00e1lagi.\u201c;\u00a0 \u201eHann var\u00f0 alveg\u00a0 b\u00e1lrei\u00f0ur \u00feegar \u00e9g var honum \u00f3samm\u00e1la en engum l\u00edkar j\u00fa a\u00f0 a\u00f0rir s\u00e9u \u00f3samm\u00e1la \u00feeim.\u201c;\u00a0 \u201eHann getur alls ekki gert a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur svona erfitt skap, hann \u00e1tti mj\u00f6g \u00f3hamingjusama \u00e6sku\u201c. \u201eHann ger\u00f0i \u00feetta bara af \u00fev\u00ed &#8230;\u201c er sem sagt s\u00edgild lei\u00f0 makans til a\u00f0 draga \u00far e\u00f0a afsaka til a\u00f0 vi\u00f0halda upphafningu sinni af hinum \u00e1r\u00e1sargjarna si\u00f0blinda.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">* Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0gj\u00f6f<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Margar konur sem illa er fari\u00f0 me\u00f0 reyna \u00e1rangurslaust a\u00f0 leita eftir fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0gj\u00f6f. Si\u00f0blindur maki er venjulega \u00e1 m\u00f3ti hvers konar me\u00f0fer\u00f0 e\u00f0a r\u00e1\u00f0gj\u00f6f fr\u00e1 utana\u00f0komandi. Fallist hann \u00e1 r\u00e1\u00f0gj\u00f6f er \u00fea\u00f0 einungis vegna \u00feess a\u00f0 hann telur sig gr\u00e6\u00f0a eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed. Og stundum gerir hann \u00fea\u00f0. \u00deegar funda\u00f0 er me\u00f0 r\u00e1\u00f0gjafanum kann f\u00f3rnarlambi\u00f0 a\u00f0 upplifa a\u00f0 \u00e1r\u00e1sarma\u00f0urinn l\u00fdsi sinni k\u00e6ru fj\u00f6lskyldu me\u00f0 j\u00e1kv\u00e6\u00f0u og skilningr\u00edku or\u00f0alagi. Spurningar um andlegt ofbeldi eru flj\u00f3tafgreiddar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta hafi n\u00fa veri\u00f0 allt \u00ed gr\u00edni og f\u00f3rnarlambi\u00f0 skorti k\u00edmnig\u00e1fu. F\u00f3rnarlambi\u00f0 \u00feorir fyrir sitt leyti ekki a\u00f0 segja fr\u00e1 hvernig \u00e1standi\u00f0 raunverulega er innan veggja heimilisins af \u00f3tta vi\u00f0 hefnd \u00feegar \u00feau koma heim. \u00deannig kemur s\u00e1 si\u00f0blindi fyrir sem h\u00e6fileikar\u00edkur og sannf\u00e6randi og f\u00f3rnarlambi\u00f0 sem l\u00edtilh\u00e6f og framtakslaus manneskja. Margar konur hafa upplifa\u00f0 fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0fgj\u00f6f sem ni\u00f0url\u00e6gingu. Valdajafnv\u00e6gi \u00ed sambandi sem einkennist af ofbeldi er \u00feannig a\u00f0 venjuleg fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0gj\u00f6f og tilraunir til a\u00f0 s\u00e6tta f\u00f3lk hafa ekkert a\u00f0 segja. Sl\u00edkt n\u00fdtist fyrst og fremst til a\u00f0 laga \u00f3samkomulag milli maka sem standa jafnf\u00e6tis. (Tjora, 1996, tilvitnun \u00ed Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 189.)\u00a0 Sj\u00e1 <i><a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/daemi_fornarlomb_konur.html#7. D\u00e6mi\" title=\"D\u00e6mi 7 um si\u00f0blindu\">D\u00e6mi 7<\/a>\u00a0 <\/i>(sem \u00e1 reyndar einnig vel vi\u00f0 kaflann um l\u00edkamlegt ofbeldi, h\u00e9r \u00e1 eftir).<i><\/i><\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">* L\u00edkamlegt ofbeldi \/ Heimilisofbeldi<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd me\u00f0h\u00f6ndlun \/ me\u00f0fer\u00f0 kvenna sem hafa veri\u00f0 beittar ofbeldi e\u00f0a veri\u00f0 nau\u00f0ga\u00f0 e\u00f0a barna sem hafa veri\u00f0 kynfer\u00f0islega misnotu\u00f0 kemur reglulega fram a\u00f0 \u00e1r\u00e1sarma\u00f0urinn hefur si\u00f0blinda \u00fe\u00e6tti e\u00f0a er si\u00f0blindur. \u00c1r\u00e1sarmennirnir sj\u00e1 ekki eigin galla, kenna f\u00f3rnarl\u00f6mbunum alfari\u00f0 um og \u00f3ska sj\u00e1lfir hvorki eftir sambandi [vi\u00f0 me\u00f0fer\u00f0ara\u00f0ila] n\u00e9 me\u00f0fer\u00f0. (Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 14.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Robert D. Hare segir: \u201e\u00cd n\u00fdlegri ranns\u00f3kn k\u00f6nnu\u00f0um vi\u00f0 h\u00f3p manna me\u00f0 PCL listanum (g\u00e1tlista yfir si\u00f0blindu), sem voru \u00fe\u00e1tttakendur \u00fdmist af f\u00fasum og frj\u00e1lsum vilja e\u00f0a tilneyddir \u00ed me\u00f0fer\u00f0arpr\u00f3grammi fyrir \u00fe\u00e1 sem berja eiginkonur s\u00ednar. Vi\u00f0 fundum \u00fat a\u00f0 25% karlmannanna \u00ed h\u00f3pnum voru si\u00f0blindir, sem er samb\u00e6rilegt vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fatkomu sem f\u00e6st \u00feegar fangar eru pr\u00f3fa\u00f0ir. <\/font><font size=\"-1\">Vi\u00f0 vitum ekki hve h\u00e1tt hlutfalli\u00f0 er \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra manna sem ekki s\u00e6kja me\u00f0fer\u00f0arpr\u00f3gramm en \u00e9g reikna me\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 a.m.k. jafnh\u00e1tt.\u201c (Hare, Robert D., 1999, s. 94.)<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/snakur.jpg?resize=123%2C102\" alt=\"Si\u00f0blindur sn\u00e1kur\" align=\"left\" height=\"102\" width=\"123\" \/><font size=\"-1\">S\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingurinn Neil S. Jacobson komst a\u00f0 athyglisver\u00f0um ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um \u00feegar hann t\u00f3k samt\u00f6l 60 hj\u00f3na \u00fear sem karlinn haf\u00f0i beitt ofbeldi upp \u00e1 myndb\u00f6nd og m\u00e6ldi hjartsl\u00e1tt karlanna \u00ed lei\u00f0inni. Flestir karlanna \u00e6stust upp \u00ed \u00feessum samr\u00e6\u00f0um og hjartsl\u00e1tturinn var\u00f0 \u00f6rari. En \u00ed um 20% karlanna h\u00e6g\u00f0i \u00e1 hjartsl\u00e6tti, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru s\u00fdnilega rei\u00f0ir og \u00e1r\u00e1sargjarnir. Jacobsen dr\u00f3 \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru si\u00f0blindir og l\u00e6kkun hjartsl\u00e1ttart\u00ed\u00f0ni b\u00e6ri vott um a\u00f0 \u00feeir einbl\u00edndu \u00e1 heppilega lei\u00f0 til n\u00e1 stj\u00f3rninni og h\u00e9ldu aftur af \u00e6singnum. \u201eEftir a\u00f0 hafa sko\u00f0a\u00f0 myndb\u00f6ndin af \u00feessum gaurum s\u00e1 \u00e9g fyrir m\u00e9r l\u00edkindin me\u00f0 h\u00f6ggormi, bl\u00ednandi \u00e1 br\u00e1\u00f0 s\u00edna, tilb\u00fainn a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 hana.\u201c (Tilvitnun \u00ed Cooke, David J., Adelle E. Forth og Robert D. Hare. 1997. <i>Psychopathy: Theory, Research, and Implications for Society<\/i>, 130<i>)<\/i>\u00a0 \u00deessir karlar voru hersk\u00e1astir ofbeldismannanna og og l\u00edtilsvirtu konur s\u00ednar mest, a\u00f0 mati Jacobson.\u00a0 (Dutton, Donald G. og Susan K. Golant. 1997. <i>The Batterer: A Psychological Profile<\/i>, s. 28.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">S\u00fa v\u00edsbending a\u00f0 allt a\u00f0 fj\u00f3r\u00f0ungur \u00feeirra sem berja eiginkonur s\u00ednar s\u00e9u si\u00f0blindir setur me\u00f0fer\u00f0arpr\u00f3gr\u00f6mmum talsver\u00f0ar skor\u00f0ur. \u00deetta er vegna \u00feess a\u00f0 heg\u00f0un si\u00f0blindra ver\u00f0ur illa hagga\u00f0. Fj\u00e1rhagslegur stu\u00f0ningur til a\u00f0 reka me\u00f0fer\u00f0arpr\u00f3gr\u00f6mm er venjulega af skornum skammti og langur bi\u00f0listi eftir sl\u00edkri me\u00f0fer\u00f0. Si\u00f0blindir fara l\u00edklega ekki \u00f3tilneyddir \u00ed me\u00f0fer\u00f0, \u00feeir hafa engan \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 breyta heg\u00f0un sinni og \u00feeir gera sennilega l\u00edti\u00f0 anna\u00f0 en fylla pl\u00e1ss sem betur v\u00e6ri vari\u00f0 fyrir a\u00f0ra.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Auk \u00feess hafa si\u00f0blindir efalaust truflandi \u00e1hrif \u00e1 svona me\u00f0fer\u00f0. (Sj\u00e1 <i><a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/daemi_fornarlomb_konur.html#7. D\u00e6mi\" title=\"D\u00e6mi 7 um si\u00f0blindu\">D\u00e6mi 7<\/a><\/i>.) En kannski eru verstu aflei\u00f0ingarnar af \u00fev\u00ed a\u00f0 senda si\u00f0blindan \u00ed me\u00f0fer\u00f0 af \u00feessu tagi s\u00fa falska \u00f6ryggiskennd sem kann a\u00f0 vakna \u00ed\u00a0 f\u00f3rnarlambinu, eiginkonu \u00e1r\u00e1sarmannsins. \u201eHann er \u00ed me\u00f0fer\u00f0. Hann \u00e6tti a\u00f0 ver\u00f0a sk\u00e1rri n\u00fana\u201c g\u00e6ti h\u00fan hugsa\u00f0 og dregi\u00f0 enn lengur a\u00f0 skilja vi\u00f0 hann. (Hare, Robert D., 1999, s. 94.)<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Aflei\u00f0ingar hj\u00f3nabands e\u00f0a samb\u00fa\u00f0ar me\u00f0 si\u00f0blindum<\/font><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/fornarlamb.jpg?resize=94%2C120\" alt=\"F\u00f3rnarlamb si\u00f0blinds\" align=\"left\" height=\"120\" width=\"94\" \/><font size=\"-1\">Oft koma sterkustu andlegu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0in ekki \u00ed lj\u00f3s fyrr en eftir a\u00f0 f\u00f3rnarlamb valdn\u00ed\u00f0slunnar er sloppi\u00f0\u00a0 \u00far sambandinu. Og \u00fea\u00f0 eykur erfi\u00f0leikana hversu algengt er a\u00f0 f\u00f3lki sem hefur b\u00fai\u00f0 me\u00f0 si\u00f0blindum s\u00e9 ekki tr\u00faa\u00f0 \u00feegar \u00fea\u00f0 segir s\u00f6gu s\u00edna. \u00deetta upplifir \u00fea\u00f0 sem n\u00fdja \u00e1r\u00e1s, s\u00e9rstaklega af h\u00e1lfu opinberra stofnana og heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustunnar. Fj\u00f6lskylda, vinir, n\u00e1grannar e\u00f0a kunningjar sem fr\u00e9tta af \u00e1r\u00e1sum e\u00f0a \u00e1reitni eiga oft erfitt me\u00f0 a\u00f0 taka \u00feetta tr\u00faanlegt. \u201eSvona almennilegur og velheppna\u00f0ur ma\u00f0ur getur alls ekki hafa slegi\u00f0 konuna s\u00edna\u201c eru d\u00e6miger\u00f0 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0. Tv\u00f6feldnin \u00ed heg\u00f0un hins si\u00f0blinda, sem oft kemur tr\u00faver\u00f0ugur og j\u00e1kv\u00e6\u00f0ur fyrir utan heimilisins, gerir utana\u00f0komandi erfitt fyrir a\u00f0 sj\u00e1 \u00ed gegnum hann. (Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 185-188). Ekki b\u00e6tir \u00far sk\u00e1k a\u00f0 f\u00f3rnarl\u00f6mbin skilja \u00feetta ekki sj\u00e1lf, \u00feau spyrja sig \u00ed s\u00edfellu: \u201eHvernig gat \u00e9g veri\u00f0 svona vitlaus? Hvernig gat \u00e9g falli\u00f0 fyrir \u00feessari \u00f3tr\u00falega yfirl\u00e6tislegu steypu?\u201c (Hare, Robert D. 1999, s. 124-125)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Konur sem sleppa \u00far sambandi vi\u00f0 si\u00f0blinda \u00fej\u00e1st af \u00fdmsum kvillum, stundum lengi \u00e1 eftir. \u00deeirra algengastir eru:<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">Depur\u00f0 og \u00feunglyndi<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Kv\u00ed\u00f0i<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Vi\u00f0varandi l\u00edkamlegir verkir<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Endurupplifanir<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Firring<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">L\u00edkamlegir ska\u00f0ar<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Misnotkun v\u00edmuefna<\/font><\/li>\n<\/ul>\n<p><font size=\"-1\">(Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 177-178)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0\u00a0 <\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">N\u00e6sta f\u00e6rsla\u00a0mun fjalla\u00a0um b\u00f6rn si\u00f0blindra.<\/font>\u00a0<\/p>\n<p>[Vi\u00f0b\u00f3t 1. febr\u00faar 2011: Nokkur umr\u00e6\u00f0a er \u00e1\u00a0athugasemda\u00fer\u00e6\u00f0i vi\u00f0 \u00feessa f\u00e6rslu um af hverju almennt s\u00e9 haldi\u00f0 fram a\u00f0 miklu fleiri karlar en konur s\u00e9u si\u00f0blindir &#8211; og \u00e9g fylgi \u00feessari almennu sko\u00f0un \u00ed bloggf\u00e6rslunum um si\u00f0blindu. Robert Hare heldur \u00fev\u00ed reyndar fram a\u00f0 hugsanlega s\u00e9 \u00feetta vegna \u00feess a\u00f0 si\u00f0blindar konur s\u00e9u greindar \u00f6\u00f0ruv\u00edsi vegna vi\u00f0tekinna sko\u00f0ana \u00e1 hlutverki og framkomu kynjanna. Hann segir a\u00f0\u00a0ef karl og kona s\u00fdni \u00f6ll kjarnaeinkenni si\u00f0blindu muni l\u00e6knir l\u00edklega greina karlinn si\u00f0blindan e\u00f0a me\u00f0\u00a0andf\u00e9lagslega pers\u00f3nuleikar\u00f6skun en konuna me\u00f0 sefapers\u00f3nuleikar\u00f6skun (histrionic PD) e\u00f0a sj\u00e1lfsd\u00fdrkunarpers\u00f3nuleikar\u00f6skun (narcissistic PD) \u00fev\u00ed konan s\u00fdnir kannski f\u00e1 andf\u00e9lagsleg heg\u00f0unareinkenni. Ekki er \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 h\u00fan reyni a\u00f0 herma eftir \u00feeirri\u00a0sta\u00f0al\u00edmynd kynsystra sinna sem \u00feykir eftirs\u00f3knarver\u00f0 og\u00a0l\u00e1ti l\u00edti\u00f0 fyrir\u00a0s\u00e9r fara, virki hl\u00fd, \u00e1str\u00edk og undirgefin. Hare nefnir engar t\u00f6lur um hlutfall si\u00f0blindra kvenna \u00ed \u00feessu sambandi.\u00a0Sj\u00e1 Babiak, Paul og Robert D. Hare. 2007, s. 101-102. <em>Snakes in Suit. When Psychopaths\u00a0Go to Work<\/em>. HarperCollins, New York. B\u00f3kin kom fyrst \u00fat \u00e1ri\u00f0 2006.]\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Helstu heimildir<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Cooke, David J., Adelle E. Forth og Robert D. Hare. 1998. <i>Psychopathy: Theory, Research, and Implications for Society. <\/i>Kluwer Academic Publishers, Dordrecht, Hollandi<i>.<\/i> <a href=\"http:\/\/books.google.com\/books?id=lqMZzZ7p3jIC&amp;printsec=frontcover&amp;dq=Psychopathy:+theory,+research,+and+implications+for+society&amp;hl=is&amp;ei=EyIzTcbNFYuFhQf5wZm-Cw&amp;sa=X&amp;oi=book_result&amp;ct=result&amp;resnum=1&amp;ved=0CCMQ6AEwAA#v=onepage&amp;q&amp;f=false\" title=\"Theory, Research, and Implications for Society\">Sko\u00f0a\u00f0 \u00e1 books.google.com<\/a>.<\/font>\u00a0<br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000. <i>Sjarm\u00f8r og tyrann. Et innsyn i psykopatenes og ofrenes verden<\/i>. H. Aschehoug &amp; Co (W. Nygaard), Oslo. (\u00deetta er aukin og endurb\u00e6tt \u00fatg\u00e1fa fr\u00e1 1997.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Dutton, Donald G. og Susan K. Golant. 1997. <i>The Batterer: A Psychological Profile. <\/i>Basic Books, New York. (Fyrst gefin \u00fat 1995.) <a href=\"http:\/\/books.google.com\/books?id=uOpOk09GMwYC&amp;printsec=frontcover&amp;dq=The+Batterer:+A+Psychological+Profile&amp;hl=is&amp;ei=HiMzTa74DcaXhQergtG4Cw&amp;sa=X&amp;oi=book_result&amp;ct=result&amp;resnum=1&amp;ved=0CCMQ6AEwAA#v=onepage&amp;q&amp;f=false\" title=\"A Psychological Profile\">Sko\u00f0u\u00f0 \u00e1 books.google.com<\/a>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><i><a href=\"http:\/\/minou999.wordpress.com\/2009\/08\/03\/gaslighting\/\" title=\"Encounters of the Psychopathic Kind\">Encounters of the Psychopathic Kind<\/a><\/i>\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Forward, Susan. 1988. <i>Menn som hater kvinner og kvinnene som elsker dem<\/i> (norsk \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1<i> Man who hate women and women who love them, <\/i>fyrst \u00fatg. 1986).\u00a0 Tilvitnanir \u00ed Forward, S. eru \u00far Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hare, Robert D.<i> <\/i>1999.<i> Without Concience. The Disturbing <\/i><\/font><font size=\"-1\"><i>World of\u00a0 Psychopaths Among Us. <\/i>The Guilford Press, New York. (Fyrst gefin \u00fat 1993.)<\/font><\/p>\n<p><b><i><\/i><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Tranberg, Peter.\u00a0 <i><a href=\"http:\/\/www.kriminalpsykologi.dk\/pt\/upload\/dokumenter\/Psykopati21.pdf\" title=\"Psykopati - en forst\u00e5else af forstyrrelsens natur\">Psykopati &#8211; en forst\u00e5else af forstyrrelsens natur<\/a><\/i>, \u00f3\u00e1rsett.\u00a0<\/font>\u00a0\u00a0<br \/>\n<b><i><\/i><\/b>\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>31. des. 2011: \u00c9g hef ofi\u00f0 si\u00f0blinduf\u00e6rslurnar og \u00e6tti a\u00f0 vera \u00fe\u00e6gilegra a\u00f0 sko\u00f0a efni\u00f0 \u00e1 vef heldur en \u00ed \u00feessu bloggumhverfi. Sl\u00f3\u00f0in er: http:\/\/sidblinda.com \u00de\u00f3famj\u00fak r\u00e1nd\u00fdr sem l\u00e6\u00f0ast: Si\u00f0blinda, III hluti (Finna m\u00e1 a\u00f0rar <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/01\/16\/i-hjonabandi-med-sidblindum\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-311","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/311","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=311"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/311\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=311"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=311"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=311"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}