{"id":320,"date":"2011-02-11T01:14:11","date_gmt":"2011-02-11T01:14:11","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-02-11\/steindor-og-vilhjalmur-um-ororku-og-gedlyf-athugasemd\/"},"modified":"2011-02-11T01:14:11","modified_gmt":"2011-02-11T01:14:11","slug":"steindor-og-vilhjalmur-um-ororku-og-gedlyf-athugasemd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/02\/11\/steindor-og-vilhjalmur-um-ororku-og-gedlyf-athugasemd\/","title":{"rendered":"Steind\u00f3r og Vilhj\u00e1lmur um \u00f6rorku og ge\u00f0lyf: Athugasemd"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">N\u00fana er vo\u00f0a miki\u00f0 \u00ed t\u00edsku a\u00f0 vit fyrir \u00f6\u00f0rum og segja \u00f6\u00f0rum hva\u00f0 \u00feeir eigi a\u00f0 gera og hvernig \u00feeir eigi a\u00f0 hugsa. Angi af \u00feessu eru fas\u00edskir tilbur\u00f0ir til a\u00f0 stj\u00f3rna kl\u00e6\u00f0abur\u00f0i kvenna (a\u00f0allega) \u00e1 \u00fdmsum aldri. Annar angi er stanslaus \u00e1r\u00f3\u00f0ur velmeinandi f\u00f3lks gegn ge\u00f0lyfjum og tj\u00e1ning ge\u00f0vondra um \u00f6ryrkja, au\u00f0vita\u00f0 ekki hva\u00f0 s\u00edst horn \u00ed s\u00ed\u00f0u ge\u00f0sj\u00fakra \u00f6ryrkja. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed rauninni ofsalega huggulegt ef \u00feetta f\u00f3lk, sem alltaf hefur vit \u00e1 hva\u00f0 a\u00f0rir eiga a\u00f0 gera, hvernig \u00feeir eiga a\u00f0 haga s\u00e9r og hvernig \u00feeir eiga a\u00f0 hugsa, myndi kannski eil\u00edti\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r a\u00f0 sj\u00e1lfu s\u00e9r og uppeldi \u00e1 s\u00e9r.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd h\u00f3pi velmeinandi manna eru \u00feeir Steind\u00f3r J. Erlingsson og Vilhj\u00e1lmur Ari Arason. \u00deeir tj\u00e1 sig b\u00e1\u00f0ir um \u00f6rorku og ge\u00f0lyf \u00ed dag en vir\u00f0ast ekki hafa kynnt s\u00e9r \u00feau m\u00e1l s\u00e9rlega vel heldur gr\u00edpa \u00e1 lofti klisju h\u00e9r og klisju \u00fear og draga af \u00feeim \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun a\u00f0 ge\u00f0lyf s\u00e9u til l\u00edtils gagns og \u00f6rorku af v\u00f6ldum ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma s\u00e9 betra a\u00f0 leysa \u00e1 annan m\u00e1ta, e\u00f0a eins og <a href=\"http:\/\/blog.eyjan.is\/vilhjalmurari\/2011\/02\/10\/ad-nidurlotum-komin\/\">Vilhj\u00e1lmur Ari <\/a>or\u00f0ar \u00fea\u00f0: &#8220;Skynsamlegast er a\u00f0 verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6gin og starfsmannasamb\u00f6ndin komi \u00feessu f\u00f3lki [hann reiknar me\u00f0 a\u00f0 \u00feunglyndi og kv\u00ed\u00f0araskanir stafi a\u00f0 hluta til af atvinnuleysi] strax til hj\u00e1lpar me\u00f0 bo\u00f0i um starfsendurh\u00e6fingu og mati sem byggist \u00e1 fj\u00f6l\u00fe\u00e1ttaendurh\u00e6fingu, s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ihj\u00e1lp, f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gj\u00f6f og sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfun. Ef myndarlega er sta\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00feessu verkefni m\u00e6tti komast hj\u00e1 \u00f6rorku vegna kv\u00ed\u00f0a og \u00feunglyndis \u00ed m\u00f6rgum tilfellum og <strong>sem vir\u00f0ast svo allt of algengar sj\u00fakd\u00f3msgreiningar \u00ed dag<\/strong>.&#8221; (Feitletrun er m\u00edn. \u00dea\u00f0 er d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00f3tr\u00falegt a\u00f0 sj\u00e1 starfandi heimilisl\u00e6kni l\u00e1ta \u00feetta \u00fat \u00far s\u00e9r \u00e1 prenti, \u00e9g vi\u00f0urkenni \u00fea\u00f0.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/visir.is\/ororka-og-gedlyf\/article\/2011337842904\">Steind\u00f3r fer v\u00e6gar \u00ed sakirnar<\/a>, notf\u00e6rir s\u00e9r vi\u00f0tengingarh\u00e1tt og &#8220;hvort&#8221; og &#8220;m\u00f6gulega&#8221; til a\u00f0 koma s\u00ednum \u00e1r\u00f3\u00f0ri \u00e1 framf\u00e6ri: &#8220;\u00deegar \u00feessi ni\u00f0ursta\u00f0a er h\u00f6f\u00f0 \u00ed huga er e\u00f0lilegt a\u00f0 spyrja hvort a\u00f0 <strong>langvarandi neysla ge\u00f0lyfja geti m\u00f6gulega auki\u00f0 vanda \u00feeirra sem klj\u00e1st vi\u00f0 ge\u00f0raskanir<\/strong>. Bandar\u00edski ranns\u00f3knabla\u00f0ama\u00f0urinn Robert Whitaker svarar \u00feessari spurningu j\u00e1tandi \u00ed b\u00f3kinni Anatomy of an Epidemic sem \u00fat kom \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri. \u00dea\u00f0 er ekki a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0ulausu \u00fev\u00ed \u00e1 undanf\u00f6rnum tuttugu \u00e1rum hefur \u00f6rorka vegna ge\u00f0raskana \u00ferefaldast \u00ed Bandar\u00edkjunum \u00e1 sama t\u00edma og \u00e1v\u00edsun ge\u00f0lyfja hefur aukist gr\u00ed\u00f0arlega. B\u00f3k Whitakers, sem er vel r\u00f6kstudd, hefur komi\u00f0 af sta\u00f0 h\u00f6r\u00f0um deilum \u00ed Bandar\u00edkjunum enda finnst m\u00f6rgum ge\u00f0l\u00e6knum hann vega a\u00f0 starfshei\u00f0ri \u00feeirra.&#8221; [Feitletrun er m\u00edn. \u00cd rauninni er stutti pistillinn hans Steind\u00f3rs fyrst og fremst purkunarlaus augl\u00fdsing fyrir fyrirlestur \u00feessa amr\u00edska h\u00f6fundar.]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">B\u00e1\u00f0ir \u00feeir velmeinandi vitna \u00ed heimildir m\u00e1li s\u00ednu til stu\u00f0nings en sleppa \u00fev\u00ed a\u00f0 geta m\u00f6gulegra sk\u00fdringa sem \u00fdmist eru lista\u00f0ar e\u00f0a ekki lista\u00f0ar \u00ed \u00feessum heimildum. Mig langar a\u00f0 benda \u00e1 nokkrar &#8211; margar \u00far einmitt s\u00f6mu greinum og \u00feeir Vilhj\u00e1lmur og Stein\u00fe\u00f3r vitna \u00ed.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sigur\u00f0ur Thorlacius\u00a0 (fyrrum yfirl\u00e6knir TR) og Sigurj\u00f3n B. Stef\u00e1nsson skrifa grein sem heitir &#8220;<a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/media\/skjol\/2004-01\/2004-01-f02.pdf\">Algengi \u00f6rorku \u00e1 \u00cdslandi 1. desember 2002<\/a>&#8221; \u00ed <i>L\u00e6knabla\u00f0i\u00f0<\/i> 1. tbl. 90. \u00e1rg. 2004\u00a0 \u00dear kemur fram a\u00f0: &#8220;Ef horft er til fyrstu sj\u00fakd\u00f3msgreiningar \u00e1 \u00f6rorkumati sem meginforsendu \u00f6rorku, \u00fe\u00e1 eru algengustu forsendur \u00f6rorku \u00e1 \u00cdslandi \u00ed desember 2002 ge\u00f0raskanir og sto\u00f0kerfisraskanir. <strong>Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur fr\u00e1 Noregi, Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og St\u00f3ra-Bretlandi eru samb\u00e6rilegar<\/strong> (21, 22, 26). \u00c1 \u00cdslandi hefur algengi \u00f6rorku vegna ge\u00f0raskana aukist verulega hj\u00e1 b\u00e1\u00f0um kynjum fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1ri\u00f0 1996 og ge\u00f0raskanir eru algengasta ors\u00f6k \u00f6rorku. \u00dev\u00ed v\u00e6ri vert a\u00f0 sko\u00f0a \u00f6rorku vegna ge\u00f0raskana n\u00e1nar.&#8221; \u00deetta rekja \u00feeir a\u00f0 hluta til hins fr\u00e6ga \u00f6rorkumatssta\u00f0als sem TR t\u00f3k upp 1999 og\u00a0 gefa \u00ed skyn sem\u00a0 helst r\u00e1\u00f0 gegn fj\u00f6lgun \u00f6ryrkja a\u00f0 tr\u00faa ekki vottor\u00f0um annarra l\u00e6kna heldur einungis l\u00e6kna TR (v\u00edsa \u00ed samanbur\u00f0 vi\u00f0 Bretland og segja: &#8220;\u00dear hefur mun st\u00e6rri hluti ums\u00e6kjanda veri\u00f0 bo\u00f0a\u00f0ur \u00ed vi\u00f0tal og sko\u00f0un hj\u00e1 l\u00e6kni \u00e1 vegum tryggingastofnunarinnar heldur en h\u00e9r, \u00feannig a\u00f0 matsferli\u00f0 hefur \u00fear veri\u00f0 hlutl\u00e6gara. Fr\u00e1 og me\u00f0 mars 2003 hefur hins vegar veri\u00f0 mun algengara en \u00e1\u00f0ur h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 ums\u00e6kjendur um \u00f6rorkub\u00e6tur s\u00e9u bo\u00f0a\u00f0ir \u00ed vi\u00f0tal og sko\u00f0un hj\u00e1 l\u00e6kni. Forvitnilegt ver\u00f0ur a\u00f0 sj\u00e1 hvort \u00fea\u00f0 kemur til me\u00f0 a\u00f0 hafa \u00e1hrif \u00e1 t\u00ed\u00f0ni \u00f6rorku h\u00e9r.&#8221;)<\/font> [Feitletrun er m\u00edn.]<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Aftur \u00e1 m\u00f3ti kemur sk\u00fdrt fram \u00ed grein s\u00f6mu h\u00f6funda sem \u00feeir skrifu\u00f0u \u00ed <i>Ge\u00f0vernd<\/i> \u00e1ri\u00f0 eftir (sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/hirsla.lsh.is\/lsh\/bitstream\/2336\/92298\/1\/G2005-01-34-G7.pdf\">Lyndisraskanir og \u00f6rorka.<\/a> <i>Ge\u00f0vernd<\/i> 2005, 34(1):41-2) a\u00f0 <b>Tryggingastofnun flokkar \u00feroskaheftingu me\u00f0 ge\u00f0r\u00f6skunum<\/b>. \u00deeir telja upp algengi \u00f6rorku vegna mism. ge\u00f0raskana, \u00ed pr\u00f3sentum af fj\u00f6lda \u00cdslendinga (d\u00e1l\u00edti\u00f0 skr\u00edtin framsetning finnst m\u00e9r) og st\u00e6rstu flokkarnir eru:<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">Lyndisraskanir: Konur: 0,99 ;\u00a0 Karlar, 0,40<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">\u00deroskahefting: Konur: 0,42\u00a0 ;\u00a0 Karlar 0,44<\/font><\/li>\n<li>\u00a0<font size=\"-1\">Ge\u00f0klofi og hugvilluraskanir: Konur: 0,25 ; Karlar:\u00a0 0,29<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">(Sj\u00e1 t\u00f6fluna &#8220;Algengi \u00f6rorku vegna mismunandi ge\u00f0raskana 1. desember 2002&#8221; \u00ed fyrrnefndri grein.)<\/font><\/li>\n<\/ul>\n<p><font size=\"-1\">\u00deannig a\u00f0 \u00ed h\u00f3pi 1245 n\u00fdrra \u00f6ryrkja \u00e1 aldrinum 16-66 \u00e1ra, sem\u00a0\u00e1ttu \u00e1 b\u00f3tum fr\u00e1 TR, \u00e1ri\u00f0 2003, var\u00a0&#8220;ge\u00f0r\u00f6skun&#8221; fyrsta greining hj\u00e1 320 og \u00fear af lyndisr\u00f6skun fyrsta greining hj\u00e1 142.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ni\u00f0ursta\u00f0a Sigur\u00f0ar og Sigurj\u00f3ns\u00a0er: \u00der\u00e1tt fyrir n\u00fd og betri me\u00f0fer\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0i fer \u00f6rorka af v\u00f6ldum ge\u00f0raskana vaxandi. Til a\u00f0 r\u00e1\u00f0a b\u00f3t \u00e1 \u00e1standinu \u00feurfi fyrst og fremst f\u00e9lagslegar \u00farb\u00e6tur. Sj\u00e1lf s\u00e9 \u00e9g ekki a\u00f0 f\u00e9lagslegar \u00farb\u00e6tur dragi st\u00f3rkostlega \u00far algengi \u00feroskaheftingar e\u00f0a ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma og ge\u00f0raskana en e.t.v. eiga h\u00f6fundar vi\u00f0 a\u00f0 a\u00f0rir en TR g\u00e6tu haldi\u00f0 f\u00f3lki me\u00f0 &#8220;ge\u00f0r\u00f6skun&#8221; uppi.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd n\u00fdjustu grein \u00feeirra f\u00e9laga, Sigur\u00f0ar Thorlacius og Sigurj\u00f3ns B. Stef\u00e1nssonar, sem \u00feeir skrifa \u00ed f\u00e9lagi vi\u00f0 Stef\u00e1n \u00d3lafsson og Kristin T\u00f3masson, kemur fram a\u00f0 fj\u00f6ldi \u00feeirra sem \u00feiggur \u00f6rorkub\u00e6tur fr\u00e1 TR vegna ge\u00f0r\u00e6nna- og heg\u00f0unarraskana hafi aukist \u00far 14% kvk. \u00f6rorku\u00feega \u00ed 30% og \u00far 20% karlkyns \u00f6rorku\u00feega \u00ed 35%, \u00e1 \u00e1rabilinu 1990-2007. (Sj\u00e1 &#8220;<a href=\"http:\/\/informahealthcare.com\/doi\/abs\/10.3109\/09638230902968316\">Increased incidence of disability due to mental and behavioural disorders in Iceland 1990\u20132007<\/a>&#8221; \u00ed <em>Journal of Mental Health<\/em>, apr\u00edl 2010, 19.\u00e1rg, 2.tbl, s. 176-183.) \u00dev\u00ed mi\u00f0ur hafa al\u00fe\u00fd\u00f0ukonur einungis a\u00f0gang a\u00f0 \u00fatdr\u00e6ttinum svo m\u00e9r er ekki lj\u00f3st hvort enn er veri\u00f0 a\u00f0 telja \u00feroskahefta me\u00f0, inni \u00ed \u00feessum pr\u00f3sentut\u00f6lum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sk\u00fdringar \u00ed \u00feetta sinn eru fj\u00f6l\u00fe\u00e6ttar, t.d. aukin \u00e1fengis- og v\u00edmuefnaneysla auk fj\u00f6lgunar \u00ed \u00fdmsum flokkum heg\u00f0unarraskana. L\u00edklegast sk\u00fdringin er talin s\u00fa a\u00f0 breyttar \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagslegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur f\u00e1i f\u00f3lk\u00a0til a\u00f0 s\u00e6kja um \u00f6rorkustyrk v. ge\u00f0r\u00e6nna raskana fyrr en \u00e1\u00f0ur.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ef vi\u00f0 sn\u00faum okkur a\u00f0<b> lyfjanotkun vegna ge\u00f0r\u00e6nna sj\u00fakd\u00f3ma og raskana<\/b> er lj\u00f3st a\u00f0 neysla ge\u00f0lyfja hefur aukist mj\u00f6g \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1ratugum. Sennilega er einfaldasta sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed s\u00fa a\u00f0 almennileg ge\u00f0lyf sem n\u00fdttust m\u00f6rgum, SSRI-lyfin, komu ekki \u00e1 \u00cdslandsmarka\u00f0 fyrr en 1988. \u00c1 \u00fea\u00f0 benda T\u00f3mas Helgason, Helgi T\u00f3masson og T\u00f3mas Zoega au\u00f0vita\u00f0 \u00ed grein sinni &#8220;<a href=\"http:\/\/bjp.rcpsych.org\/cgi\/content\/full\/184\/2\/157?maxtoshow=&amp;hits=10&amp;RESULTFORMAT=1&amp;author1=Helgason%2CT&amp;andorexacttitle=and&amp;andorexacttitleabs=and&amp;andorexactfulltext=and&amp;searchid=1&amp;FIRSTINDEX=0&amp;sortspec=relevance&amp;fdate=10\/1\/2003&amp;tdate=2\/28\/2005&amp;resourcetype=HWCIT,HWELTR\">Antidepressants and public health in Iceland<\/a>&#8221; \u00ed <i>The British Journal of Psychiatry<\/i> (2004) 184: 157-162. \u00deeir benda l\u00edka \u00e1 a\u00f0 dj\u00fap ge\u00f0l\u00e6g\u00f0 (oft k\u00f6llu\u00f0 \u00feunglyndi) s\u00e9 n\u00e6sthelsta ors\u00f6k skertra l\u00edfsg\u00e6\u00f0a og \u00f6rorku \u00ed \u00fer\u00f3u\u00f0um l\u00f6ndum heimsins og a\u00f0 sala ge\u00f0lyfja hafi st\u00f3raukist \u00ed sl\u00edkum l\u00f6ndum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 \u00cdslandi j\u00f3kst sala \u00feunglyndislyfja \u00far 8,4 dagssk\u00f6mmtum \u00e1 hverja 1000 \u00edb\u00faa \u00e1ri\u00f0 1975, \u00ed 72,7 dagsk.\u00e1 1000 \u00edb\u00faa \u00e1ri\u00f0 2000, sem\u00a0\u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 8,7% fullor\u00f0inna \u00e1 \u00cdslandi neyti sl\u00edkra lyfja. En l\u00e6knisheims\u00f3knum og innl\u00f6gnum hefur ekki f\u00e6kka\u00f0. Ni\u00f0ursta\u00f0an \u00ed greininni\u00a0er a\u00f0 betri me\u00f0fer\u00f0 \u00feurfi a\u00f0 finna til a\u00f0\u00a0lina \u00fej\u00e1ningar vegna \u00feunglyndis og tengdra sj\u00fakd\u00f3ma.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ef ma\u00f0ur l\u00e6tur n\u00fa eftir s\u00e9r a\u00f0 sko\u00f0a g\u00f6gn yfir lyfjaneyslu \u00cdslendinga almennt er best a\u00f0 leita fanga \u00ed <i><a href=\"http:\/\/www.velferdarraduneyti.is\/media\/Skyrslur\/lyfjanotk_89-99.pdf\">Notkun lyfja \u00e1 \u00cdslandi 1988-1999<\/a><\/i>, eftir Eggert Sigf\u00fasson, Rit heilbrig\u00f0is- og tryggingm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytisins, \u00fatg. 2000. \u00dear er yfirlitstafla \u00e1 s. 5 \u00fear sem koma fram dagskammtar \u00e1 1000 \u00edb\u00faa\u00a0 \u00e1 \u00feessu \u00e1rabili. \u00dear m\u00e1 m.a.sj\u00e1 eftirtalda aukningu \u00ed lyfjaneyslu mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1989 annars vegar og 1999 hins vegar:<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">Hjarta- og \u00e6\u00f0asj\u00fakd\u00f3malyf: 1989: 147,50 &#8211; 1999: 213,90:\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0 H\u00e6kkun um 45%<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">\u00devagf\u00e6ralyf, kvensj\u00fakd\u00f3malyf og kynhorm\u00f3nar: 72,44 (1989) &#8211; 127,75 (1999):\u00a0\u00a0 H\u00e6kkun um 76,35%<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Tauga-og ge\u00f0lyf: 128,61 (1989) &#8211; 225,53 (1999):\u00a0 H\u00e6kkun um 75,36%<\/font><\/li>\n<\/ul>\n<p><font size=\"-1\"><strong>\u00cd\u00a0 flokki tauga- og ge\u00f0lyfja (N)eru einnig talin \u00fdmis lyf sem ekki eru notu\u00f0 vi\u00f0 ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mum<\/strong>, \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 flogaveikilyf, lyf vi\u00f0 parkinsonssj\u00fakd\u00f3mi, m\u00edgrenilyf, hj\u00e1lparefni til a\u00f0 h\u00e6tta reykingum o.fl.<\/font> \u00deunglyndislyf\u00a0eru \u00fev\u00ed\u00a0bara hluti tauga-og ge\u00f0lyfjaneyslu.<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 inni \u00ed <b>t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i sem byggir \u00e1 mati Tryggingastofnunar r\u00edkisins eru \u00feroskaheftir flokka\u00f0ir me\u00f0 ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mum og ge\u00f0r\u00f6skunum<\/b>. Einnig er gott a\u00f0 <b>sko\u00f0a lyfjaneyslu almennt<\/b> til a\u00f0 sj\u00e1 t.d. a\u00f0\u00a0 aukning hjarta- og \u00e6\u00f0asj\u00fakd\u00f3malyfja hefur veri\u00f0 g\u00edfurleg \u00e1n \u00feess a\u00f0 menn s\u00e9u a\u00f0 gera \u00fev\u00ed sk\u00f3na a\u00f0 f\u00f3lk taki \u00feessi lyf a\u00f0 gamni s\u00ednu og geti batna\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi, gott ef verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9lagi\u00f0 getur ekki bara l\u00e6kna\u00f0 \u00fea\u00f0 e\u00f0a einhver amr\u00edskur b\u00f3karh\u00f6fundur &#8230; Og af hverju hefur enginn \u00e1hyggjur af\u00a0 rosalegri aukningu \u00ed \u00fevagf\u00e6ralyfjum, kvensj\u00fakd\u00f3malyfjum og kynhorm\u00f3num &#8211; sem \u00ed pr\u00f3sentut\u00f6lum jafnast \u00e1 vi\u00f0 aukningu tauga-og ge\u00f0lyfja? V\u00e6ri ekki h\u00e6gt a\u00f0 spara \u00ed \u00feeim flokki me\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 s\u00f3s\u00edaldem\u00f3krat\u00edskara umhverfi og amer\u00edskum sj\u00e1lfshj\u00e1lparb\u00f3kum? Jafnvel afhenda lyfja\u00feegum hreyfi\u00e1v\u00edsun \u00ed sta\u00f0inn fyrir resept?<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd allri \u00feessari t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i og stundum misskilningi manna bygg\u00f0ri \u00e1 henni finnst m\u00e9r algerlega gleymast a\u00f0 hafa \u00ed huga \u00fe\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsbreytingar sem or\u00f0i\u00f0 hafa\u00a0g\u00edfurlegar \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6rf\u00e1um \u00e1ratugum. M\u00e9r finnst t.d. tilt\u00f6lulega auglj\u00f3st a\u00f0 b\u00f6rn eta hlutfallslega minna af lyfjum en fullor\u00f0nir. \u00deegar aldurssamsetning \u00fej\u00f3\u00f0ar breytist, \u00fe\u00e1 eykst e\u00f0lilega neysla \u00feess sem fullor\u00f0nir nota umfram b\u00f6rn \u00feegar fullor\u00f0nir ver\u00f0a fleiri \u00ed hundra\u00f0sflokki.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Anna\u00f0 sem blasir vi\u00f0 er a\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9ttb\u00fdlismyndun eru miklu fleiri sj\u00fakd\u00f3mar greindir. Sennilega lif\u00f0u einhverjir fatla\u00f0ir, ge\u00f0sj\u00fakir o.\u00fe.h. \u00ed skj\u00f3li fj\u00f6lskyldu sinnar \u00e1 landsbygg\u00f0inni \u00e1rum saman, jafnvel alla s\u00edna \u00e6vi \u00e1n \u00feess a\u00f0 leita l\u00e6knis e\u00f0a f\u00e1\u00a0formlega greiningu.<\/font> L\u00e6knar voru enda ekki \u00e1 hverju str\u00e1i. Og sennilega er ekkert svo vo\u00f0lega langt s\u00ed\u00f0an sl\u00edkir l\u00edfsh\u00e6ttir \u00e1n sj\u00fakd\u00f3msgreiningar t\u00ed\u00f0ku\u00f0ust.<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Loks m\u00e1 nefna a\u00f0 me\u00f0 aukinni \u00feekkingu ver\u00f0ur au\u00f0veldara a\u00f0 greina sj\u00fakd\u00f3ma svo ekki \u00e6tti a\u00f0 koma \u00e1 \u00f3vart \u00fe\u00f3tt fleiri sj\u00faklingar greinist. M\u00e9r finnst mj\u00f6g l\u00edklegt a\u00f0 ge\u00f0r\u00e6nir sj\u00fakd\u00f3mar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 dj\u00fapa ge\u00f0l\u00e6g\u00f0 e\u00f0a ge\u00f0hvarfas\u00fdki hafi veri\u00f0 mj\u00f6g vangreindir \u00e1\u00f0ur fyrr, \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 liti\u00f0 um \u00f6xl nema t\u00edu- tuttugu \u00e1r &#8230; hva\u00f0 \u00fe\u00e1 fyrir lengra s\u00ed\u00f0an.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd samanbur\u00f0i \u00e1 10 &#8211; 20 \u00e1ra t\u00edmabili \u00fearf a\u00f0 g\u00e6ta a\u00f0 \u00fdmsu svonal\u00f6gu\u00f0u. Og <strong>\u00fea\u00f0 er \u00e1byrg\u00f0arhluti a\u00f0 reyna a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 veikt f\u00f3lk h\u00e6tti a\u00f0 taka lyfin s\u00edn e\u00f0a leita til ge\u00f0l\u00e6kna<\/strong>. \u00dea\u00f0 \u00e6ttu \u00feeir Steind\u00f3r og Vilhj\u00e1lmur a\u00f0 hafa \u00ed huga.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fana er vo\u00f0a miki\u00f0 \u00ed t\u00edsku a\u00f0 vit fyrir \u00f6\u00f0rum og segja \u00f6\u00f0rum hva\u00f0 \u00feeir eigi a\u00f0 gera og hvernig \u00feeir eigi a\u00f0 hugsa. Angi af \u00feessu eru fas\u00edskir tilbur\u00f0ir til a\u00f0 stj\u00f3rna kl\u00e6\u00f0abur\u00f0i kvenna <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/02\/11\/steindor-og-vilhjalmur-um-ororku-og-gedlyf-athugasemd\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-320","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/320","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=320"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/320\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=320"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=320"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=320"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}