{"id":325,"date":"2011-02-26T22:28:02","date_gmt":"2011-02-26T22:28:02","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-02-26\/starfsmannaeinelti-i-akranesbae\/"},"modified":"2011-02-26T22:28:02","modified_gmt":"2011-02-26T22:28:02","slug":"starfsmannaeinelti-i-akranesbae","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/02\/26\/starfsmannaeinelti-i-akranesbae\/","title":{"rendered":"Starfsmannaeinelti \u00ed Akranesb\u00e6"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00cd sambandi vi\u00f0 umfj\u00f6llun um si\u00f0blindu hef \u00e9g fjalla\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 um vinnusta\u00f0aeinelti. M\u00e1 nefna f\u00e6rslurnar <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-02-16\/skolastjorar-sem-leggja-kennara-i-einelti\/\" title=\"Sk\u00f3lastj\u00f3rar sem leggja kennara \ufffd einelti\">Sk\u00f3lastj\u00f3rar sem leggja kennara \u00ed einelti<\/a>\u00a0og\u00a0<a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-01-27\/sidblindir-a-vinnustad\/\">Si\u00f0blindir \u00e1 vinnusta\u00f0<\/a>\u00a0en \u00fear er\u00a0nokku\u00f0 \u00edtarleg umfj\u00f6llun um vinnusta\u00f0aeinelti almennt, sem \u00fearf ekkert endilega a\u00f0 vera tengt si\u00f0blindu.\u00a0Einnig ber vinnusta\u00f0aeinelti \u00e1 g\u00f3ma \u00ed f\u00e6rslunum <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-01-30\/sidblindir-i-kirkjunni\/\">Si\u00f0blindir \u00ed kirkjunni<\/a>\u00a0 (\u00fear er m.a. nefnt d\u00e6mi af presti sem beitir formanni s\u00f3knarnefndar fyrir sig til a\u00f0 leggja organistann \u00ed einelti) og <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-02-05\/sidblindir-i-vidskiptum\/\">Si\u00f0blindir \u00ed vi\u00f0skiptum<\/a>\u00a0 (\u00fear eru \u00e1hrif og t\u00e6kni si\u00f0blindra \u00ed vi\u00f0skiptafyrirt\u00e6kjum \u00fatsk\u00fdr\u00f0, t.d. hvernig \u00feeir n\u00e1 s\u00e9r \u00ed verndara og hvernig \u00feeir reyna a\u00f0 losa sig vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem sj\u00e1 \u00ed gegnum \u00fe\u00e1, m.a. me\u00f0 beinu einelti e\u00f0a a\u00f0 kynda undir einelti.\u00a0\u00c6tla m\u00e1 a\u00f0 si\u00f0blindir beiti \u00feessari t\u00e6kni almennt \u00e1 vinnust\u00f6\u00f0um af\u00a0 \u00fdmsu tagi.).<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Sta\u00f0an \u00e1 Akranesi<\/font><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/hofnin.jpg?resize=150%2C150\" alt=\"H\u00f6fnin \u00e1 Akranesi\" align=\"left\" height=\"150\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">Eftir a\u00f0 hafa uppg\u00f6tva\u00f0 a\u00f0 skv. breskum, bandar\u00edskum og \u00e1str\u00f6lskum uppl\u00fdsingum eru kennarar taldir \u00ed einna mestri \u00e1h\u00e6ttu \u00e1 a\u00f0 ver\u00f0a fyrir vinnusta\u00f0aeinelti og eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 umfj\u00f6llun um ranns\u00f3knir \u00e1 vinnusta\u00f0aeinelti af n\u00fdlegra taginu sem lei\u00f0a \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 hlutur stj\u00f3rnenda \u00ed gerendah\u00f3pi er mj\u00f6g st\u00f3r f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hvernig \u00e1standi\u00f0 v\u00e6ri h\u00e9r \u00ed m\u00ednum g\u00f3\u00f0a b\u00e6, Akranesi. Helga Gunnarsd\u00f3ttir, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Fj\u00f6lskyldustofu, var svo vinsamleg a\u00f0 veita m\u00e9r \u00fdmsar uppl\u00fdsingar og kann \u00e9g henni bestu \u00feakkir fyrir. H\u00fan \u00fatsk\u00fdr\u00f0i l\u00edka fyrir m\u00e9r hvernig stj\u00f3rns\u00fdslu b\u00e6jarins v\u00e6ri h\u00e1tta\u00f0 og benti m\u00e9r \u00e1 d\u00e6mi um \u00e6skilega framt\u00ed\u00f0arskipan vinnusta\u00f0aeineltism\u00e1la, sem <a href=\"http:\/\/mosfellsbaer.is\/Stjornsysla\/Vinnustadurinnstarfsmennsvidogstofnanir\/Vinnustadurinn\/Eineltisaaetlun\/\" title=\"Stefna Mosfellsb\u00e6jar \ufffd vinnusta\u00f0aeinelti\">sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Mosfellsb\u00e6<\/a>. \u00c9g er samm\u00e1la henni um a\u00f0 \u00fea\u00f0 skipulag virkar mj\u00f6g skynsamlegt en ekki jafn sannf\u00e6r\u00f0 um a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi a\u00f0 r\u00e1\u00f0a einhvern mannau\u00f0sstj\u00f3ra \u00ed miklu minni b\u00e6 (Akranes) svo hrinda megi \u00e1l\u00edka skipulagi \u00ed framkv\u00e6md.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">1<\/font><\/sup><\/b><font size=\"-1\">\u00a0 Helga sag\u00f0i m\u00e9r l\u00edka a\u00f0 \u00ed \u201est\u00e6rri sveitarf\u00e9l\u00f6gum\u201c v\u00e6ri sami h\u00e1ttur \u00e1 stj\u00f3rns\u00fdslu var\u00f0andi sk\u00f3la og er h\u00e9r \u00ed Akranesb\u00e6 eftir stj\u00f3rns\u00fdslubreytingar 1. jan. 2009. Lausleg \u00fattekt m\u00edn lei\u00f0ir \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feessu er \u00f6fugt fari\u00f0 en hugsanlega hefur Helga \u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 Akranesi henta\u00f0i a\u00f0 m\u00e1ta stj\u00f3rns\u00fdslu s\u00edna vi\u00f0 Reykjav\u00edk e\u00f0a \u00e1l\u00edka \u201est\u00e6rri sveitarf\u00e9l\u00f6g\u201c og \u00fea\u00f0 s\u00e9 minn misskilningur a\u00f0 h\u00fan hafi \u00e1tt vi\u00f0 \u00e1l\u00edka st\u00f3r sveitarf\u00e9l\u00f6g og Akranes.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">2<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">R\u00e9tt til a\u00f0 rifja upp hva\u00f0 felst \u00ed vinnusta\u00f0aeinelti, skv. skilgreiningu \u00ed <i>Regluger\u00f0 um a\u00f0ger\u00f0ir gegn einelti \u00e1 vinnusta\u00f0<\/i>, 1000\/2004, 3.gr.: \u201eEinelti: \u00c1m\u00e6lisver\u00f0 e\u00f0a s\u00edendurtekin \u00f3tilhl\u00fd\u00f0ileg h\u00e1ttsemi, \u00fe.e. ath\u00f6fn e\u00f0a heg\u00f0un sem er til \u00feess fallin a\u00f0 ni\u00f0url\u00e6gja, gera l\u00edti\u00f0 \u00far, m\u00f3\u00f0ga, s\u00e6ra, mismuna e\u00f0a \u00f3gna og valda vanl\u00ed\u00f0an hj\u00e1 \u00feeim sem h\u00fan beinist a\u00f0. Kynfer\u00f0isleg \u00e1reitni og anna\u00f0 andlegt e\u00f0a l\u00edkamlegt ofbeldi fellur h\u00e9r undir.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Og hva\u00f0 er ekki einelti: \u201eH\u00e9r er ekki \u00e1tt vi\u00f0 sko\u00f0ana\u00e1greining e\u00f0a hagsmuna\u00e1rekstur sem kann a\u00f0 r\u00edsa \u00e1 vinnusta\u00f0 milli stj\u00f3rnanda og starfsmanns e\u00f0a tveggja e\u00f0a fleiri starfsmanna enda lei\u00f0i sl\u00edkur sko\u00f0ana\u00e1greiningur e\u00f0a hagsmuna\u00e1rekstur ekki til \u00feeirrar h\u00e1ttsemi sem l\u00fdst er h\u00e9r a\u00f0 framan.\u201c<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Grunnsk\u00f3lakennari sem lag\u00f0ur er \u00ed einelti af sk\u00f3lastj\u00f3ra<\/font><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Setjum svo a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri grunnsk\u00f3lakennari h\u00e9r \u00ed b\u00e6 og samstarfsma\u00f0ur minn leg\u00f0i mig \u00ed einelti. \u00de\u00e1 g\u00e6ti \u00e9g kvarta\u00f0 vi\u00f0 sk\u00f3lastj\u00f3ra. En ef sk\u00f3lastj\u00f3rinn stendur fyrir eineltinu? \u00de\u00e1 g\u00e6ti \u00e9g, v\u00e6ri \u00e9g kennari \u00ed Grundask\u00f3la, kvarta\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0sto\u00f0arsk\u00f3lastj\u00f3ra. M\u00e1li\u00f0 vandast ef \u00e9g er kennari \u00ed Brekkub\u00e6jarsk\u00f3la \u00fev\u00ed \u00fear er enginn a\u00f0sto\u00f0arsk\u00f3lastj\u00f3ri. Starfi\u00f0 var lagt ni\u00f0ur vori\u00f0 2007 og \u00feess \u00ed sta\u00f0 skipa\u00f0ir tveir deildarstj\u00f3rar, sem \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u sk\u00f3lans eru yfirleitt kalla\u00f0ir \u201edeildarstj\u00f3rar \u00e1 stigi\u201c til sk\u00f3la\u00e1rsins 2010-2011 en \u00fe\u00e1 ber annar starfsheiti\u00f0 \u201edeildarstj\u00f3ri\u201c og hinn er n\u00fa \u201edeildarstj\u00f3ri verkefna\u201c. Skv. uppl\u00fdsingum framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu mun hinn fyrrnefndi vera sta\u00f0gengill sk\u00f3lastj\u00f3ra og blessunarlega f\u00e6r hann greitt eins og a\u00f0sto\u00f0arsk\u00f3lastj\u00f3ri. \u00c9g g\u00e6ti \u00fev\u00ed leita\u00f0 til hans leg\u00f0i sk\u00f3lastj\u00f3rinn mig \u00ed einelti, reikna \u00e9g me\u00f0, \u00fe\u00f3tt hann hafi ekki f\u00ednni titil en deildarstj\u00f3ri.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Dugi \u00feetta ekki, hva\u00f0 \u00e6tti \u00e9g \u00fe\u00e1 a\u00f0 gera? Einu sinni var starfandi sk\u00f3lanefnd h\u00e9r \u00ed b\u00e6 sem fjalla\u00f0i um m\u00e1lefni grunnsk\u00f3lanna og hugsanlega hef\u00f0i \u00e9g, \u00edmynda\u00f0ur grunnsk\u00f3lakennari sem sk\u00f3lastj\u00f3rinn leg\u00f0i \u00ed einelti, geta\u00f0 leita\u00f0 til hennar, a.m.k. formanns sk\u00f3lanefndar, \u00fe\u00f3 ekki v\u00e6ri nema\u00a0um r\u00e1\u00f0leggingar. En <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/stjornskipulag\/nytt-stjornskipulag\/\" title=\"Stj\u00f3rns\u00fdslubreyting Akraneskaupsta\u00f0ar\">1. jan\u00faar 2009 var\u00f0 r\u00f3tt\u00e6k breyting \u00e1 stj\u00f3rns\u00fdslu Akraneskaupsta\u00f0ar<\/a>, \u00fdmsar nefndir voru lag\u00f0ar af (ekki \u00fe\u00f3 Ritnefnd um s\u00f6gu Akraness \u2013 gu\u00f0i s\u00e9 lof!) og \u00ed sta\u00f0inn komu svok\u00f6llu\u00f0 r\u00e1\u00f0 og stofur.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Hverjir sinna m\u00e1lefnum sem snerta grunnsk\u00f3lann \u00ed stj\u00f3rns\u00fdslukerfi Akraneskaupsta\u00f0ar?<\/font><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/grasleppukarlarnir.jpg?resize=160%2C160\" alt=\"Gr\u00e1sleppukarlarnir\" align=\"left\" height=\"160\" width=\"160\" \/><font size=\"-1\">Undir Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0 heyra n\u00fa \u00f6ll fagleg m\u00e1l sem tilheyra m\u00e1laflokknum fr\u00e6\u00f0slu-og uppeldism\u00e1l og f\u00e9lags\u00fej\u00f3nusta. Me\u00f0al verkefna r\u00e1\u00f0sins eru \u00f6ll m\u00e1l sem heyra undir l\u00f6g nr. 66\/1995 um grunnsk\u00f3la.\u00a0Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0 heyrir undir \u201ep\u00f3lit\u00edska kerfi\u00f0 me\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islega kj\u00f6rnum b\u00e6jarfulltr\u00faum .. .Hins vegar er emb\u00e6ttismannakerfi\u00f0 me\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3ra \u00ed fararbroddi.\u00a0 Stofna\u00f0ar hafa veri\u00f0 svokalla\u00f0ar stofur yfir m\u00e1laflokka sveitarf\u00e9lagsins \u00fe.e. Fj\u00f6lskyldustofa me\u00f0 Helgu Gunnarsd\u00f3ttur sem framkv\u00e6mdastj\u00f3ra&#8230;\u201c <\/font><b><sup><font size=\"-2\">3<\/font><\/sup><\/b><font size=\"-1\"> N\u00fdju p\u00f3lit\u00edsku r\u00e1\u00f0in voru v\u00edst hugsu\u00f0 til a\u00f0 auka valddreifingu \u00ed stj\u00f3rns\u00fdslu b\u00e6jarins. \u00c6tli stofunum hafi ekki veri\u00f0 \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 spara \u00fatgj\u00f6ld?<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sem \u00feykjustu grunnsk\u00f3lakennari sem sk\u00f3lastj\u00f3rinn leggur \u00ed einelti get e.t.v. \u00e9g leita\u00f0 til Fj\u00f6lskyldustofu um \u00farlausn minna m\u00e1la. En \u00e9g get ekki leita\u00f0 til Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s, skv. uppl\u00fdsingum framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu, af \u00fev\u00ed \u201esvona m\u00e1l heyra ekki undir p\u00f3lit\u00edska nefnd\u201c.\u00a0\u00cd samtali okkar kom fram a\u00f0 engin ford\u00e6mi eru til fyrir formlegri afgrei\u00f0slu \u00e1 \u00farlausn vinnusta\u00f0aeineltism\u00e1la sem heyra undir Fj\u00f6lskyldustofu og \u00fev\u00ed ekkert vinnuferli lj\u00f3st.\u00a0A\u00f0 s\u00f6gn Helgu hafa komi\u00f0 upp vinnusta\u00f0aeineltism\u00e1l \u00ed einhverjum stofnunum sem heyra undir Fj\u00f6lskyldustofu en \u00feau hafa \u00f6ll veri\u00f0 leyst \u00ed samr\u00e6\u00f0um og samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 hluta\u00f0eigandi \u00e1 \u00f3formlegan h\u00e1tt og ekki borist \u00e1 bor\u00f0 Fj\u00f6lskyldustofu.\u00a0Hugsanlega hefur \u00fear or\u00f0i\u00f0 breyting \u00e1 n\u00fdveri\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hj\u00e1 Fj\u00f6lskyldustofu starfa margir en allir nema framkv\u00e6mdastj\u00f3ri og verkefnastj\u00f3ri tengjast \u00feeir f\u00e9lagslega kerfinu og enginn \u00feeirra er mennta\u00f0ur kennari e\u00f0a sk\u00f3lastj\u00f3ri. \u00cd <a href=\"http:\/\/akranes.is\/Files\/Skra_0032733.pdf\" title=\"erindisbr\u00e9f framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu \u00e1 Akranesi\">erindisbr\u00e9fi framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu<\/a> er ekkert sem bendir til \u00feess a\u00f0 s\u00e1 a\u00f0ili hafi me\u00f0 eineltism\u00e1l a\u00f0 gera.\u00a0\u00dea\u00f0 m\u00e6tti sk\u00fdra me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0ur hefur enga stefnu um me\u00f0fer\u00f0 eineltism\u00e1la, hvorki vinnusta\u00f0atengd n\u00e9 annars e\u00f0lis.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">4<\/font><\/sup><\/b><font size=\"-1\">\u00a0 A\u00f0 v\u00edsu hefur b\u00e6rinn starfsmannastefnu, \u00fear sem segir m.a.: &#8220;<b>Si\u00f0areglur starfsf\u00f3lks\u00a0 <\/b>B\u00e6jarstj\u00f3rn setur fram eftirtaldar si\u00f0areglur til lei\u00f0beiningar fyrir starfsf\u00f3lk um hva\u00f0 s\u00e9 vi\u00f0 h\u00e6fi \u00ed starfi &#8230; 8.1. A\u00f0 starfsf\u00f3lk Akraneskaupsta\u00f0ar starfar fyrst og fremst \u00ed \u00fe\u00e1gu b\u00e6jarb\u00faa, sem leggur \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 skyldu \u00e1 her\u00f0ar a\u00f0 setja almannahagsmuni ofar s\u00e9rhagsmunum, hvort heldur er \u00ed s\u00ednum eigin e\u00f0a einstakra h\u00f3pa; &#8230;\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">5<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd \u00feykjustunni er \u00e9g fr\u00e1b\u00e6r kennari (og einmitt \u00feess vegna sem sk\u00f3lastj\u00f3rinn vill fl\u00e6ma mig brott me\u00f0 einelti \u00fev\u00ed algengasta \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir sk\u00f3lastj\u00f3raeinelti er \u00f6fund). \u00dea\u00f0 eru \u00fev\u00ed hagsmunir nemenda og\u00a0sk\u00f3lans a\u00f0 \u00e9g haldi starfi m\u00ednu. Svo \u00e9g g\u00e6ti hugsanlega leita\u00f0 til framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu og treyst \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan setti almannahagsmuni ofar s\u00e9rhagsmunum og muni sko\u00f0a m\u00edn m\u00e1l me\u00f0 hlutlausum h\u00e6tti. En \u00e9g get ekki leita\u00f0 til fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er p\u00f3lit\u00edskt kj\u00f6ri\u00f0 og framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu ber ekki a\u00f0 greina fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0i fr\u00e1 \u00feessu \u00edmyndu\u00f0u erindi m\u00ednu, skv. uppl\u00fdsingum Helgu Gunnarsd\u00f3ttur \u00ed s\u00edmtali okkar. M\u00e1laleitan m\u00edn yr\u00f0i \u00fev\u00ed tveggja manna tal.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hugsanlega g\u00e6ti framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Fj\u00f6lskyldustofu leita\u00f0 vil <em>Vinnueftirlitsins<\/em> eftir r\u00e1\u00f0gj\u00f6f. L\u00edklega mundi \u00fea\u00f0 borga sig \u00ed skipulagi eins og Akraneskaupsta\u00f0ar \u00fear sem v\u00f6ld eru \u00e1 \u00f3tr\u00falega f\u00e1rra hendi \u00feegar kemur a\u00f0 sk\u00f3lam\u00e1lum og lj\u00f3st a\u00f0 enginn \u00e1 Fj\u00f6lskyldustofu hefur kennaramenntun. <a href=\"http:\/\/vinnueftirlit.is\/vinnueftirlit\/is\/flytileidir\/thjonustuadilar_i_vinnuvernd\/\">Fimm \u00fej\u00f3nustua\u00f0ilar me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 andlega og f\u00e9lagslega \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e6tti \u00e1 vinnust\u00f6\u00f0um<\/a> eru vi\u00f0urkenndir af Vinnueftirlitinu.\u00a0 Flestir \u00feeirra r\u00e9tt t\u00e6pa \u00e1 einelti, s\u00e1lfr\u00e6\u00f0istofan <i>L\u00edf og s\u00e1l<\/i> b\u00fd\u00f0ur <a href=\"http:\/\/www.lifogsal.is\/Einelti_a_vinnustad_-_fraedsla_og_forvarnir_vid_einelti\/\" title=\"vinnusta\u00f0aeinelti - L\ufffdf og s\u00e1l\">n\u00e1mskei\u00f0 og \u00ferenns konar a\u00f0komu a\u00f0 eineltism\u00e1lum \u00e1 vinnusta\u00f0<\/a>\u00a0 en <i>\u00dattekt \u00farlausn<\/i> er eini a\u00f0ilinn sem vir\u00f0ist s\u00e9rh\u00e6f\u00f0ur \u00ed a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 starfsmannaeinelti enda er h\u00fan rekin af menntu\u00f0um vinnusta\u00f0as\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingi (sem jafnframt er kl\u00edn\u00edskur s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur). \u00deetta er l\u00edka eini \u00fej\u00f3nustua\u00f0ilinn af \u00feessum fimm sem hefur <a href=\"http:\/\/www.uttekturlausn.is\/index.php?option=com_content&amp;view=article&amp;id=50:einelti-a-vinnustae&amp;catid=16:greinar&amp;Itemid=96\" title=\"vefs\ufffd\u00f0a \u00dattekt \u00farlausn um vinnusta\u00f0aeinelti\">s\u00e9rstaka vefs\u00ed\u00f0u um vinnusta\u00f0aeinelti<\/a>.\u00a0 \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed nokku\u00f0 auglj\u00f3st a\u00f0 kysi framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Fj\u00f6lskyldustofu utana\u00f0komandi r\u00e1\u00f0gj\u00f6f, til a\u00f0 \u00feurfa ekki a\u00f0 axla \u00edmynda\u00f0a eineltism\u00e1li\u00f0 ein og sj\u00e1lf, myndi h\u00fan kalla eftir a\u00f0sto\u00f0 <i>\u00dattektar og \u00farlausnar<\/i>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ef framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Fj\u00f6lskyldustofu bregst m\u00e9r \u00fe\u00e1 er eini \u00f3p\u00f3lit\u00edskt r\u00e1\u00f0ni yfirma\u00f0urinn \u00fear fyrir ofan b\u00e6jarstj\u00f3rinn sj\u00e1lfur. \u00c9g get a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u treyst \u00fev\u00ed a\u00f0 hann fylgi 8. grein si\u00f0areglna starfsf\u00f3lks svo \u00fea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 vera \u00ed lagi. \u00c1 hinn b\u00f3ginn reikna \u00e9g me\u00f0 a\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3rinn hafi \u00f6\u00f0rum hn\u00f6ppum a\u00f0 hneppa en skipta s\u00e9r af eineltism\u00e1lum \u00e1 vinnusta\u00f0 svo \u00e9g v\u00e6ri d\u00e1l\u00edti\u00f0 feimin vi\u00f0 a\u00f0 bera mig upp vi\u00f0 hann.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Skert l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegt samr\u00e1\u00f0 \u00e1 Akranesi og \u00f3tr\u00falegt \u00e1hugaleysi \u00e1 m\u00e1lefnum grunnsk\u00f3la<\/font><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/akrafjall.jpg?resize=150%2C150\" alt=\"Akrafjall\" align=\"left\" height=\"150\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">Hin svokalla\u00f0a valddreifing stj\u00f3rns\u00fdslunnar hefur st\u00f3rlega skert l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegt samr\u00e1\u00f0 h\u00e9r \u00e1 Akranesi og dregi\u00f0 mj\u00f6g \u00far m\u00f6guleikum grunnsk\u00f3lakennara sem sk\u00f3lastj\u00f3ri leggur \u00ed einelti. (Sama m\u00e1li gegnir au\u00f0vita\u00f0 um m\u00f6gulegt d\u00e6mi af sk\u00f3lastj\u00f3ra sem kennari leg\u00f0i \u00ed einelti en af \u00fev\u00ed sl\u00edkt er svo s\u00e1rasjaldg\u00e6ft, skv. ranns\u00f3knum \u00e1 vinnusta\u00f0aeinelti almennt\u00a0og ranns\u00f3knum \u00e1 vinnusta\u00f0aeinelti \u00ed sk\u00f3lum, l\u00edt \u00e9g \u00e1 \u00fea\u00f0 d\u00e6mi sem heldur fjarst\u00e6\u00f0ukenndan m\u00f6guleika.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Me\u00f0an gamla sk\u00f3lanefndin var og h\u00e9t funda\u00f0i h\u00fan \u00feetta 6 til 10 sinnum \u00e1 \u00e1ri, um sk\u00f3lam\u00e1l og starfsmannam\u00e1l grunnsk\u00f3lanna. Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0 er einungis \u00feriggja manna nefnd auk eins \u00e1heyrnarfulltr\u00faa. \u00dea\u00f0 hefur haldi\u00f0 60 fundi fr\u00e1 skipulagsbreytingunum \u00e1 stj\u00f3rns\u00fdslu b\u00e6jarins 1. jan. 2009. Fundarger\u00f0ir allra funda liggja \u00e1 vefnum <a href=\"http:\/\/www.akranes.is\">akranes.is<\/a> fyrir utan \u00feann s\u00ed\u00f0asta sem var haldinn \u00ed g\u00e6r.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Skv. erindisbr\u00e9fi \u00e1 a\u00f0 bo\u00f0a \u00e1heyrnarfulltr\u00faa grunnsk\u00f3la\u00a0(sk\u00f3lastj\u00f3ra, kennara, foreldra e\u00f0a starfsf\u00f3lks) \u00e1 fundi sem fjalla um m\u00e1lefni grunnsk\u00f3lans og h\u00f6f\u00f0a til einhverra \u00feessara a\u00f0ila. Af 59 fundum hafa \u00e1heyrnarfulltr\u00faar sk\u00f3lastj\u00f3ra m\u00e6tt \u00e1 2 \u00a0(\u00fe.e. 3,39% af fundunum) \u00e1heyrnarfulltr\u00fai kennara \u00e1 1 fund og \u00e1heyrnarfulltr\u00fai starfsmanna grunnsk\u00f3la (m\u00f6gulega kennari) \u00e1 1 fund. A\u00f0 auki hafa fulltr\u00faar Foreldraf\u00e9lags Brekkub\u00e6jarsk\u00f3la m\u00e6tt \u00e1 2 fundi enda \u00f3sku\u00f0u \u00feeir sj\u00e1lfir eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 ganga \u00e1 fund fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s, og nemendar\u00e1\u00f0 Grundask\u00f3la m\u00e6tti einu sinni til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um skort \u00e1 kastala og fleiri leikt\u00e6kjum \u00e1 l\u00f3\u00f0 sk\u00f3lans. (\u00dev\u00ed erindi var reyndar lj\u00f3mandi vel teki\u00f0 og afgrei\u00f0slan b\u00f3ku\u00f0 \u00ed sm\u00e1atri\u00f0um.) \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed ekki skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 sk\u00f3lastj\u00f3rar grunnsk\u00f3lans hafi \u00f3ska\u00f0 formlega eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201e\u00e1heyrnarfulltr\u00faar foreldra fr\u00e1 b\u00e1\u00f0um grunnsk\u00f3lunum ver\u00f0i bo\u00f0a\u00f0ir \u00feegar m\u00e1lefni grunnsk\u00f3lanna eru til umfj\u00f6llunar hj\u00e1 Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0i. Einnig a\u00f0 bo\u00f0a\u00f0ir ver\u00f0i b\u00e6\u00f0i a\u00f0al og varamenn \u00e1heyrnarfulltr\u00faa starfsmanna af sama tilefni.\u201c \u00deetta erindi var sam\u00feykkt \u00feann 21.9. 2010.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">6<\/font><\/sup><\/b><font size=\"-1\">\u00a0 Samt hefur n\u00fa enginn \u00feessara veri\u00f0 bo\u00f0a\u00f0ur \u00e1 fund Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s enn.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fundarger\u00f0ir Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s eru \u00f3venju stuttar og snubb\u00f3ttar og geyma f\u00e1t\u00e6klegar uppl\u00fdsingar um m\u00e1lefni grunnsk\u00f3lanna h\u00e9r \u00e1 Skaganum. En \u00fe\u00e6r hlj\u00f3ta a\u00f0 endurspegla raunveruleikann \u00fev\u00ed \u00ed erindisbr\u00e9fi Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s segir a\u00f0 \u201e\u00cd t\u00f6lvuskr\u00e1\u00f0a fundarger\u00f0 skal f\u00e6ra &#8230; greinarg\u00f3\u00f0a l\u00fdsingu \u00e1 hverju fundarefni\u201c.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">7<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af lestri fundarger\u00f0a Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s er \u00fev\u00ed nokku\u00f0 auglj\u00f3st a\u00f0 \u00e1hugi r\u00e1\u00f0sins \u00e1 m\u00e1lefnum grunnsk\u00f3lanna er sorglega l\u00edtill. M\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 svo s\u00e9 einnig \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn \u00fev\u00ed r\u00e1\u00f0i\u00f0 starfar \u00e1 vegum hennar. \u00deann 16. 12. 2009 er t.d. b\u00f3ku\u00f0 \u00f3sk\u00a0 Mennta-og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytis eftir uppl\u00fdsingum um hven\u00e6r sveitarf\u00e9lagi\u00f0 hyggist hefja vinnu vi\u00f0 m\u00f3tun almennrar stefnu um leik-og grunnsk\u00f3lahald. \u00dev\u00ed svara\u00f0i Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0 a\u00f0 s\u00fa vinna hafi ekki veri\u00f0 t\u00edmasett. M\u00e1li\u00f0 hefur ekki aftur bori\u00f0 \u00e1 g\u00f3ma \u00ed Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0i (a.m.k. ekki svo b\u00f3ka\u00f0 s\u00e9) sem bendir til \u00feess a\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0 hafi engan s\u00e9rstakan \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 l\u00e1ta vinna \u00feessa vinnu, sem svo ver\u00f0ur vart \u00f6\u00f0ru v\u00edsi t\u00falka\u00f0 en a\u00f0 r\u00e1\u00f0inu \u00feyki ekki miki\u00f0 til sk\u00f3lam\u00e1la koma.\u00a0Engin \u00e1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 vi\u00f0horfi\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 anna\u00f0 \u00e1 Fj\u00f6lskyldustofu mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 menntun og s\u00e9rh\u00e6fingu mannafla \u00fear og l\u00edka s\u00e9 liti\u00f0 til \u00feess a\u00f0 framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Fj\u00f6lskyldustofu situr alla fundi Fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s (og er reyndar n\u00e6stum \u00e6vinlega fundarritari).<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/vitinn.jpg?resize=150%2C150\" alt=\"Gamli vitinn\" align=\"left\" height=\"150\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">\u00c9g, sem er \u00ed \u00feykjustunni kennari sem er lag\u00f0ur \u00ed einelti af sk\u00f3lastj\u00f3ra, b\u00fdst af framans\u00f6g\u00f0um \u00e1st\u00e6\u00f0um ekki vi\u00f0 s\u00e9rlega miklum \u00e1huga \u00e1 m\u00ednum m\u00e1lum af h\u00e1lfu framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu. Og \u00e9g get ekki leita\u00f0 til neins annars, nema kannski b\u00e6jarstj\u00f3rans, \u00fev\u00ed b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 fella ni\u00f0ur \u00fea\u00f0 apparat sem \u00e9g hef\u00f0i kannski geta\u00f0 br\u00faka\u00f0, nefnilega sk\u00f3lanefnd. Enn vonlausari ver\u00f0a m\u00edn m\u00e1l \u00feegar \u00e9g hugsa til \u00feess a\u00f0 b\u00e6rinn hefur enga stefnu hva\u00f0 var\u00f0ar vinnusta\u00f0aeinelti og Fj\u00f6lskyldustofa enga reynslu af formlegri afgrei\u00f0slu sl\u00edkra m\u00e1la. Og svo er alltaf spurning hvort \u00e9g geti treyst \u00fev\u00ed, \u00ed svona litlu b\u00e6jarf\u00e9lagi, a\u00f0 \u00feeir sem \u00e9g leita til haldi si\u00f0areglur.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g hugsa a\u00f0 \u00e9g taki einfaldlega \u00feann kostinn a\u00f0 flytja \u00ed Mosfellsb\u00e6!<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<hr width=\"100%\" \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-2\"><b>1<\/b> S\u00edmtal vi\u00f0 Helgu Gunnarsd\u00f3ttur, framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Fj\u00f6lskyldustofu kl. 15.30-15.40 25. febr\u00faar 2011.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<blockquote><p>\n<font size=\"-2\"><b>2<\/b> \u00c1 Akranesi b\u00faa r\u00famlega 6.500 manns. \u00cd f\u00e6rslunni er ger\u00f0 grein fyrir skipan sk\u00f3lam\u00e1la \u00ed stj\u00f3rns\u00fdslunni \u00fear. \u00c9g sko\u00f0a\u00f0i hvernig \u00feessum m\u00e1lum er h\u00e1tta\u00f0 \u00ed sveitarf\u00e9laginu \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6, \u00fear sem b\u00faa\u00a0 t\u00e6plega 4000 manns, \u00ed Fjar\u00f0abygg\u00f0, \u00fear sem b\u00faa r\u00famlega 4.500 manns og Mosfellsb\u00e6, \u00fear sem b\u00faa r\u00famlega 8.500 manns.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u00cd \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6 er sk\u00f3la-og fj\u00f6lskylduskrifstofa en starfsf\u00f3lk er ekki eins einslitt og \u00e1 Fj\u00f6lskyldustofu Akraness, t.a.m. starfa b\u00e6\u00f0i grunnsk\u00f3lafulltr\u00fai og leiksk\u00f3lafulltr\u00fai \u00e1 \u00feessari skrifstofu \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6jar. \u00c9g hygg a\u00f0 yfirma\u00f0ur og svi\u00f0sstj\u00f3ri sk\u00f3la-og fj\u00f6lskylduskrifstofu s\u00e9 l\u00e6r\u00f0ur t\u00f3nmenntakennari. \u00deessi skrifstofa vinnur s\u00ed\u00f0an \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 nokkra a\u00f0ila, \u00fe.\u00e1.m. fr\u00e6\u00f0slunefnd. Fr\u00e6\u00f0slunefnd \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6jar vir\u00f0ist \u00f3feimin vi\u00f0 a\u00f0 funda me\u00f0 fulltr\u00faum kennara, sk\u00f3lastj\u00f3ra og foreldra, skv. fundarger\u00f0um. \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6r hefur sami\u00f0 <a href=\"http:\/\/isafjordur.is\/stjornkerfid\/vinnustadurinn\/starfsmannahandbok\/vellidan\/areitni_-_einelti\/\" title=\"Lei\u00f0beiningar \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6jar um vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 einelti og kynfer\u00f0islegri \u00e1reitni \u00e1 vinnusta\u00f0\">lei\u00f0beiningar fyrir yfirmenn og \u00feolendur sem n\u00e1 til a\u00f0ger\u00f0a gegn kynfer\u00f0islegri \u00e1reitni og einelti \u00e1 vinnust\u00f6\u00f0um \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6jar<\/a> en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur virkar kr\u00e6kjan \u00ed lei\u00f0beiningarnar ekki svo \u00e9g gat ekki sko\u00f0a\u00f0 \u00fe\u00e6r.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u00cd Fjar\u00f0abygg\u00f0 starfar F\u00e9lags-fr\u00e6\u00f0slu-og fr\u00edstundateymi, sem hluti af emb\u00e6ttismannaverki b\u00e6jarins. \u00cd teyminu er annars vegar F\u00e9lagsm\u00e1lastj\u00f3ri og hins vegar Fr\u00e6\u00f0slustj\u00f3ri. S\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndi hefur meistarapr\u00f3f \u00ed sk\u00f3lastj\u00f3rnun. Hann hefur samband vi\u00f0 p\u00f3lit\u00edskt kj\u00f6rna Fr\u00e6\u00f0slu- og fr\u00edstundanefnd, sem er 5 manna. Loks er Fjar\u00f0abygg\u00f0 a\u00f0ili a\u00f0 Sk\u00f3laskrifstofu Austurlands, sem er bygg\u00f0asamlag 8 sveitarf\u00e9laga. S\u00fa skrifstofa veitir m.a. r\u00e1\u00f0gj\u00f6f \u00ed deilum\u00e1lum sem snerta sk\u00f3lastarf. Fjar\u00f0abygg\u00f0 hefur sami\u00f0 \u00edtarlega Fr\u00e6\u00f0slu- og fr\u00edstundastefnu. A\u00f0 \u00feeirri vinnu komu fj\u00f6lmargir, m.a. fulltr\u00faar nemenda, sk\u00f3lastj\u00f3ra, foreldra og starfsf\u00f3lks grunnsk\u00f3la.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u00cd Mosfellsb\u00e6 kallast emb\u00e6ttisa\u00f0ili sk\u00f3lam\u00e1la Fr\u00e6\u00f0slusvi\u00f0. Framkv\u00e6mdastj\u00f3ri \u00feess er l\u00e6r\u00f0ur kennari. Hann er jafnframt starfsma\u00f0ur Fr\u00e6\u00f0slunefndar, sem er p\u00f3lit\u00edskt skipu\u00f0 5 manna nefnd, me\u00f0 5 varafulltr\u00faum og skal fara me\u00f0 verkefni sk\u00f3lanefndar. Framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Fr\u00e6\u00f0slusvi\u00f0s er jafnframt forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur Sk\u00f3laskrifstofu Mosfellsb\u00e6jar. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur eru fundarger\u00f0ir Mosfellsb\u00e6jar ekki a\u00f0gengilegar \u00e1 vefnum \u00ed augnablikinu svo \u00e9g get ekki \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 \u00fev\u00ed hversu miki\u00f0 v\u00e6gi fulltr\u00faar foreldra, kennara og sk\u00f3lastj\u00f3ra f\u00e1 \u00ed starfi \u00feessara nefnda og stofnana.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">Kerfi\u00a0\u00feeirra \u00feriggja b\u00e6jarf\u00e9laga sem \u00e9g sko\u00f0a\u00f0i eru mj\u00f6g \u00f3l\u00edk stj\u00f3rns\u00fdslukerfi Akraneskaupsta\u00f0ar a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 \u00fear eru margir a\u00f0ilar sem koma a\u00f0 sk\u00f3lastarfi (en sl\u00edk m\u00e1l eru \u00e1 \u00f3tr\u00falega f\u00e1rra hendi \u00e1 Akranesi, ekki hva\u00f0 s\u00edst stj\u00f3rnun og eftirlit me\u00f0 starfsemi grunnsk\u00f3lanna); a\u00f0 greint er milli fr\u00e6\u00f0slu- og fr\u00edstundastarfs annars vegar og hins vegar f\u00e9lagslegrar \u00fej\u00f3nustu (\u00e1 Akranesi er \u00feetta \u00e1 s\u00f6mu hendi) og a\u00f0 kennaramennta\u00f0ur einstaklingur heldur utan um starfi\u00f0\u00a0 (\u00e1 Akranesi er enginn kennaramennta\u00f0ur \u00e1 Fj\u00f6lskyldustofu).<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>3<\/b> <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/stjornskipulag\/nytt-stjornskipulag\/\" title=\"Breyting \u00e1 stj\u00f3rnskipulagi Akraneskaupsta\u00f0ar\">Breyting \u00e1 stj\u00f3rnskipulagi Akraneskaupsta\u00f0ar me\u00f0 gildist\u00f6ku 1. jan\u00faar 2009<\/a>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>4<\/b> <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/stjornskipulag\/stefnur-og-markmid\/\" title=\"Stefnur og markmi\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0ar\">Stefnur og markmi\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0ar<\/a>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>5<\/b> <a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/stjornsysla\/reglur-og-samthykktir\/grs_id\/633\/\" title=\"Starfsmannastefna Akraneskaupsta\u00f0ar\">Starfsmannastefna Akraneskaupsta\u00f0ar 13. n\u00f3vember 2001<\/a>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>6<\/b> <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/fjolskyldurad\/nr\/14252\/\" title=\"Fundarger\u00f0 fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s nr. 48\">Sj\u00e1 fundarger\u00f0 48. Fundar fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s \u00feri\u00f0judaginn 21. september 2010<\/a>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>7<\/b> <a href=\"http:\/\/akranes.is\/Files\/Skra_0032730.pdf\" title=\"Erindisbr\u00e9f fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s Akraness\">Erindisbr\u00e9f fj\u00f6lskyldur\u00e1\u00f0s Akraneskaupsta\u00f0ar<\/a>.<\/font><\/p><\/blockquote>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd sambandi vi\u00f0 umfj\u00f6llun um si\u00f0blindu hef \u00e9g fjalla\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 um vinnusta\u00f0aeinelti. M\u00e1 nefna f\u00e6rslurnar Sk\u00f3lastj\u00f3rar sem leggja kennara \u00ed einelti\u00a0og\u00a0Si\u00f0blindir \u00e1 vinnusta\u00f0\u00a0en \u00fear er\u00a0nokku\u00f0 \u00edtarleg umfj\u00f6llun um vinnusta\u00f0aeinelti almennt, sem \u00fearf ekkert endilega a\u00f0 <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/02\/26\/starfsmannaeinelti-i-akranesbae\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-325","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/325","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=325"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/325\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=325"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=325"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=325"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}