{"id":326,"date":"2011-03-03T20:57:52","date_gmt":"2011-03-03T20:57:52","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-03-03\/sagt-skilid-vid-vidbjodinn\/"},"modified":"2011-03-03T20:57:52","modified_gmt":"2011-03-03T20:57:52","slug":"sagt-skilid-vid-vidbjodinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/03\/sagt-skilid-vid-vidbjodinn\/","title":{"rendered":"Sagt skili\u00f0 vi\u00f0 vi\u00f0bj\u00f3\u00f0inn"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00c9g hef asnast til a\u00f0 ey\u00f0a t\u00edma, athygli og orku \u00ed a\u00f0 fylgjast me\u00f0 vefmi\u00f0lum og bloggs\u00ed\u00f0um undanfari\u00f0. Afraksturinn er s\u00e1 a\u00f0 annars vegar soga\u00f0ist \u00e9g ofan \u00ed drullupyttina sj\u00e1lf og f\u00f3r a\u00f0 kommentara \u00e1 alls konar umr\u00e6\u00f0ur \u00e1 FB e\u00f0a jafnvel \u00e1 annarra blogg, hins vegar minnka\u00f0i tr\u00fa m\u00edn \u00e1 mannkyninu hr\u00f6\u00f0um skrefum. \u00c9g var\u00f0 neikv\u00e6\u00f0 og pirru\u00f0. (\u00c1 ekki hund en \u00fe\u00f3tti \u00a0\u00e6 v\u00e6nna um k\u00f6ttinn.) \u00cd g\u00e6rkv\u00f6ldi s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 \u00feetta gengi ekki lengur og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 hefja n\u00fdtt og j\u00e1kv\u00e6\u00f0ara l\u00edf. \u00deetta er sennilega eitthva\u00f0 \u00e1 anna\u00f0-hundra\u00f0asta tilraunin \u00ed n\u00fdju l\u00edfi en \u00fea\u00f0 er alltaf jafn \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 sn\u00faa af villu s\u00edns vegar um stund \ud83d\ude09<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Allir sem eru vanir a\u00f0 byrja n\u00fdtt l\u00edf vita a\u00f0 \u00fev\u00ed fylgir uppgj\u00f6r vi\u00f0 fyrra l\u00edfi\u00f0. Svolei\u00f0is a\u00f0 \u00feessi f\u00e6rsla fjallar um vi\u00f0bj\u00f3\u00f0inn sem \u00e9g n\u00fa legg a\u00f0 baki. \u00deessi f\u00e6rsla er s\u00edst sk\u00e1rri en \u00fe\u00e6r sem \u00e9g er a\u00f0 gagnr\u00fdna, athugi\u00f0 \u00fea\u00f0. \ud83d\ude09<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/sludrari.jpg?resize=192%2C128\" alt=\"Sl\u00fa\u00f0rari\" align=\"left\" height=\"128\" width=\"192\" \/><font size=\"-1\">M\u00e9r bl\u00f6skar hvernig umr\u00e6\u00f0a \u00e1 Vefnum fer fram. S\u00e9rstaklega FB-komment sem vefmi\u00f0lar bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 e\u00f0a nafnlaus komment. Eins og venjulega gengur <i>DV<\/i> hart fram \u00ed a\u00f0 r\u00e6gja mann og annan \u00ed svok\u00f6llu\u00f0um \u201efr\u00e9ttum\u201c og trylla velmeinandi og r\u00e9tthugsandi al\u00fe\u00fd\u00f0una sem f\u00e6r umsvifalaust \u201eblod p\u00e5 tanden\u201c eins og fr\u00e6ndur okkar segja. Fr\u00e9ttafyrirs\u00f6gn \u00e1 <em>dv.is<\/em> \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u201e\u00der\u00edf\u00e6ttur \u00f6ryrkjadvergur nau\u00f0gar grunnsk\u00f3labarni\u201c e\u00f0a \u201eKalla\u00f0i konuna s\u00edna tussu \u00e1 b\u00edlast\u00e6\u00f0i\u201c k\u00e6mi m\u00e9r ekki \u00e1 \u00f3vart. Og \u00e9g er viss um a\u00f0 heitar umr\u00e6\u00f0ur g\u00f6tud\u00f3mst\u00f3lsins fylgdu \u00e1 eftir. V\u00edsan sem hefst svona: \u201eS\u00f6gusmetta, r\u00e6gir\u00f3fa \/ r\u00fdkur \u00fat um alla m\u00f3a &#8230;\u201c hefur aldrei \u00e1tt betur vi\u00f0 en n\u00fana einkum \u00feegar lesendum \u201efr\u00e9ttanna\u201c gefst f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 dreifa \u00feeim um f\u00e9sb\u00f3kars\u00ed\u00f0una s\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 einn takka. \u00deannig er tryggt a\u00f0 krassandi fyrirsagnir og \u00fath\u00fa\u00f0un berist enn hra\u00f0ar um netheima en v\u00e6ru \u00fe\u00e6r einungis bundnar vi\u00f0 vefmi\u00f0ilinn sj\u00e1lfan.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/konur_sludra.jpg?resize=180%2C137\" alt=\"Konur sl\u00fa\u00f0ra\" align=\"right\" height=\"137\" width=\"180\" \/><font size=\"-1\">\u00cd gamla daga var a\u00f0al\u00f3ge\u00f0i\u00f0 svokalla\u00f0 <i>barnaland.is<\/i> sem breyttist s\u00ed\u00f0an \u00ed <i>er.is<\/i> og h\u00edma nafnleysingjar af b\u00e1\u00f0um kynjum \u00fear \u00ed skj\u00f3li moggans. \u00c9g hef ekki k\u00edkt inn \u00e1 \u00feennan vef \u00ed nokkur \u00e1r svo \u00e9g veit ekki hvort sami sorahugsunarh\u00e1tturinn og sv\u00edvir\u00f0ingarnar eru enn \u00fear vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i. En moggabloggi\u00f0 er n\u00f3gu sl\u00e6mt svo \u00e9g b\u00fdst ekki vi\u00f0 a\u00f0 <i>barnaland.is<\/i> hafi sk\u00e1na\u00f0 neitt \u00fe\u00f3tt greint hafi veri\u00f0 milli subbuskapar \u201em\u00e6\u00f0ranna\u201c og blessa\u00f0ra barnanna, me\u00f0 nafnbreytingu. Og kannski er\u00a0\u00feessi vefur\u00a0enn\u00fe\u00e1 a\u00f0alheimild <i>DV<\/i>? <i>Eyjan<\/i> h\u00fdsir svo kver\u00falanta sem n\u00f6ldra yfir \u00fatvarpsst\u00f6\u00f0vum, m\u00e1lfari annarra, kvenfjandsamlegu vi\u00f0horfi, skorti \u00e1 konum h\u00e9r og \u00fear o.s.fr. Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 framg\u00f6ngu kvenna \u00ed d\u00f3mst\u00f3li g\u00f6tunnar finnst m\u00e9r sj\u00e1lfri reyndar a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u fullmargar og full\u00e1berandi og v\u00e6ri til b\u00f3ta a\u00f0 \u00fe\u00e6r h\u00e9ldu sig a\u00f0eins til hl\u00e9s.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann t\u00edma sem \u00e9g hef fylgst me\u00f0 s\u00f3\u00f0askapnum hefur umr\u00e6\u00f0an m.a. sn\u00faist um a\u00f0 jar\u00f0a \u00f6ryrkja sem lenti \u00ed klippimask\u00ednu framagjarns fr\u00e9ttamanns \u00e1 St\u00f6\u00f0 2, dylgjur um jeppaeign spunnar \u00fat fr\u00e1 mynd af alvarlegu b\u00edlslysi, kennara sem var n\u00fdlega hengdur fyrir bloggara og stu\u00f0ningsyfirl\u00fdsingar vi\u00f0 geranda gr\u00f3fs starfsmannaeineltis, \u00fe.m.t. kynfer\u00f0islegrar \u00e1reitni. Vi\u00f0horf bl\u00f3\u00f0\u00feyrstu al\u00fe\u00fd\u00f0unnar eru \u00f3fyrirsj\u00e1anleg en h\u00fan hallast yfirleitt \u00e1 s\u00f6mu sveifina, hvernig sem sveifin s\u00fa sn\u00fdr \u00ed \u00fea\u00f0 og \u00fea\u00f0 skipti\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deegar ma\u00f0ur fylgist s\u00e6milega grannt me\u00f0 ver\u00f0ur sm\u00e1m saman lj\u00f3st a\u00f0 oft er \u00fea\u00f0 sama f\u00f3lki\u00f0 sem er a\u00f0 tj\u00e1 sig um allt m\u00f6gulegt. \u00dea\u00f0 kommenterar vi\u00f0 fr\u00e9ttir, rekur jafnvel sj\u00e1lft moggablogg me\u00f0 \u00f6rf\u00e6rslum sem sn\u00faast um hva\u00f0 einhver \u00ed fr\u00e9ttunum s\u00e9 mikill aumingi og idj\u00f3t og kommenterar \u00e1 \u00f6nnur moggablogg um hva\u00f0 eigendur \u00feeirra s\u00e9u mikil f\u00edfl. Vins\u00e6lt er a\u00f0 brigsla hver \u00f6\u00f0rum um ge\u00f0veiki til a\u00f0 hamra \u00e1 and\u00fa\u00f0 sinni. Sennilega er \u00feessi h\u00f3pur langt innan vi\u00f0 \u00fe\u00fasund manns (sem betur fer!). En \u00feessum f\u00e1menna h\u00f3pi tekst \u00f3tr\u00falega vel a\u00f0 lita umr\u00e6\u00f0una \u00e1 vefnum og heldur sj\u00e1lfur sennilega a\u00f0 hann s\u00e9 \u00fej\u00f3\u00f0in og \u00fej\u00f3\u00f0in s\u00e9 hann.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/domari.jpg?resize=172%2C144\" alt=\"d\u00f3mari\" align=\"left\" height=\"144\" width=\"172\" \/><font size=\"-1\">Einni tr\u00f6ppu ofar telja sig sumir bloggarar, \u00fdmist af \u00fev\u00ed \u00feeir geta skrifa\u00f0 \u00feokkalega \u00edslensku, eru hreyknir af \u00fev\u00ed a\u00f0 halda sj\u00e1lfir ranglega a\u00f0 \u00feeir skrifi \u00feokkalega \u00edslensku e\u00f0a eru sannf\u00e6r\u00f0ir um a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u anna\u00f0 hvort fem\u00ednistar e\u00f0a byltingarmenn nema hvort tveggja s\u00e9. En \u00ed rauninni er \u00fea\u00f0 li\u00f0 litlu sk\u00e1rra. M\u00e1 nefna sem d\u00e6mi a\u00f0 s\u00e1 sem kom umm\u00e6lum kennarans \u00ed Flensborg \u00f6tullega \u00e1 framf\u00e6ri vi\u00f0 <i>Fjar\u00f0arp\u00f3stinn<\/i> og <i>dv.is<\/i> stendur sj\u00e1lfur a\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0li sem birtir millifyrirsagnir \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u201e<a href=\"http:\/\/rostur.org\/lei%c3%b0arar-bla%c3%b0sins\/6-tbl-myndin-matturinn-og-dyr%c3%b0in\/\">\u00cdslenskur fri\u00f0arg\u00e6sluli\u00f0i nau\u00f0ga\u00f0i lj\u00f3smynd af Hillary Clinton me\u00f0 deyjandi barn \u00ed h\u00f6ndunum<\/a>\u201c og hefur hloti\u00f0 d\u00f3m fyrir a\u00f0 b\u00edta konu, starfsmann Al\u00feingis, \u00ed \u00f6xlina af \u00fev\u00ed h\u00fan var fyrir honum og honum lausir skoltarnir. M\u00e9r finnast kl\u00f6gum\u00e1l hans yfir a\u00f0 l\u00f6greglan leggi hann \u00ed einelti (\u00feegar h\u00fan hir\u00f0ir hann drukkinn) e\u00f0a a\u00f0 KENNARI (fyrrverandi kennarinn hans sem hann telur sig e.t.v. eiga \u00f3uppger\u00f0ar sakir vi\u00f0, hefur kannski fengi\u00f0 l\u00e1gt \u00e1 pr\u00f3fi?) skuli skrifa lj\u00f3tt \u00ed kommentadr\u00e6su vera d\u00e1l\u00edti\u00f0 yfirgengileg, af byltingarhetju a\u00f0 vera. (Seint hef\u00f0u Stal\u00edn og Che og hinar fyrirmyndirnar loti\u00f0 svo l\u00e1gt &#8230;) Og s\u00ed\u00f0ari klagan er d\u00e1l\u00edti\u00f0 eins og a\u00f0 kasta grj\u00f3ti \u00far glerh\u00fasi.\u00a0 En \u00fea\u00f0 vantar svo sem ekki a\u00f0 yfirl\u00fdstir fem\u00ednistar, al\u00fe\u00fd\u00f0uheimspekingar og d\u00f3mst\u00f3ll g\u00f6tunnar b\u00edti \u00e1 agni\u00f0 &#8211; kokgleypa \u00fea\u00f0 raunar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Grunnsk\u00f3lakennari sem ver Flensborgarkennarann (\u00ed \u00e1g\u00e6tum pistli), \u00e1 forsendum m\u00e1lfrelsis, hefur sj\u00e1lfur skrifa\u00f0 um \u00ed\u00fer\u00f3tta\u00fej\u00e1lfara barna og unglinga \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: \u201e<a href=\"http:\/\/maurildi.blogspot.com\/2010\/11\/er-kr-verri-en-kirkjan.html\">\u00de\u00e1 er \u00e9g alveg tilb\u00fainn a\u00f0 leyfa allskyns prestum og prel\u00e1tum a\u00f0 reyna a\u00f0 tro\u00f0a vafas\u00f6mum hugmyndum inn \u00ed kollinn \u00e1 b\u00f6rnunum \u00e1\u00f0ur en \u00e9g sam\u00feykki \u00fea\u00f0 a\u00f0 si\u00f0blindum, lygasj\u00fakum boltabullum s\u00e9 treyst fyrir \u00feeim.<\/a>\u201c\u00a0\u00a0 Br\u00f3\u00f0ir hans, sem kennir n\u00fana\u00a0 si\u00f0fr\u00e6\u00f0i einhvers sta\u00f0ar a\u00f0 \u00fev\u00ed er \u00e9g hygg, var svo vinsamlegur a\u00f0 beina til m\u00edn \u00feessum umm\u00e6lum \u00e1 komentum fyrir nokkrum \u00e1rum (\u00fe\u00e1 starfandi \u00e1 samb\u00fdli fyrir \u00feroskahefta):\u201e\u00dea\u00f0 er spurning hvor hefur stopult minni, grunnsk\u00f3lastj\u00f3rinn austan sanda e\u00f0a ge\u00f0veika kerlingar\u00e1lftin ofan af Skaga sem b\u00fain er a\u00f0 l\u00e1ta stu\u00f0a heilann \u00e1 s\u00e9r svo oft a\u00f0 auk \u00feess a\u00f0 lykta af reyk langar lei\u00f0ur er h\u00fan er h\u00e6tt a\u00f0 kunna \u00e1 Google &#8230; Ef \u00e9g v\u00e6ri \u00fe\u00fa v\u00e6ri \u00e9g l\u00edka \u00feunglyndur, \u00fev\u00ed ef \u00feetta er til marks um \u00fe\u00edna g\u00f3\u00f0u daga &#8211; \u00fe\u00e1 held \u00e9g svei m\u00e9r \u00fe\u00e1 a\u00f0 haglabyssuhlaupi\u00f0 s\u00e9 besti munnbitinn \u00e1 \u00feeim vondu.\u201c (Sj\u00e1 kommentadr\u00e6su vi\u00f0 <a href=\"http:\/\/maurildi.blogspot.com\/2008\/02\/geveikt-gaman.html\">Ge\u00f0veikt gaman<\/a>.) \u00deeir br\u00e6\u00f0ur voru ge\u00f0veikt uppteknir af m\u00e9r og m\u00ednum skrifum \u00e1 s\u00ednum t\u00edma en eins og lesendur \u00feessarar f\u00e6rslu \u00e1tta sig v\u00e6ntanlega \u00e1 \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00e9g ekki a\u00f0 r\u00e1\u00f0um yngri br\u00f3\u00f0urins.\u00a0En kom ekki auga \u00e1 yfirl\u00fdstan beittan h\u00famor hans.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/troll.jpg?resize=135%2C152\" alt=\"trollari\" align=\"left\" height=\"152\" width=\"135\" \/><font size=\"-1\">Svolei\u00f0is a\u00f0 m\u00e9r finnst b\u00e6\u00f0i s\u00f3kn og v\u00f6rn fyrir m\u00e1lfrelsi \u00e1 bloggum vera hr\u00e6sni \u00ed m\u00f6rgum tilvikum og sama illmennskan e\u00f0a aumingjad\u00f3murinn er stundum a\u00f0 baki hvort sem menn telja sig til g\u00f6tud\u00f3mst\u00f3lsins e\u00f0a hafna yfir hann. Og \u00feessi m\u00edn bloggf\u00e6rsla er \u00ed rauninni ekkert sk\u00e1rri \ud83d\ude09\u00a0 En n\u00fa ver\u00f0ur sagt bless vi\u00f0 g\u00f6tuskr\u00edl af allra handa tagi og tr\u00fass sitt bundi\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem hafa eitthva\u00f0 a\u00f0 segja, \u00fe\u00e1 sem hafa raunverulega j\u00e1kv\u00e6\u00f0a s\u00fdn \u00e1 a\u00f0ra og \u00fe\u00e1 sem skrifa fyndin og skemmtileg blogg. \u00dea\u00f0 er gott manni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hva\u00f0 get \u00e9g gert til a\u00f0 dragast ekki ofan \u00ed drullud\u00edki\u00f0 sem \u00e9g var a\u00f0 l\u00fdsa? Svari\u00f0 er tilt\u00f6lulega einfalt: H\u00e6tta a\u00f0 lesa <i>dv.is<\/i>, h\u00e6tta a\u00f0 lesa FB-kommentadr\u00e6sur um upphr\u00f3punarfr\u00e9ttir \u00ed \u00fdmsum fj\u00f6lmi\u00f0lum, grisja duglega \u00ed m\u00ednum FB-vinah\u00f3pi, for\u00f0ast uppsl\u00e1ttarblogg af mogga- og eyjutagi og byrja a\u00f0 hlusta \u00e1 r\u00e1s 1. \u00c9g er hef \u00feegar hafi\u00f0 \u00feetta n\u00fdja l\u00edf og hlusta\u00f0i m.a. \u00e1 \u00e1g\u00e6ta umfj\u00f6llun um Beverly Gray og Nancy Drew b\u00e6kurnar \u00e1\u00f0an, sem var afar l\u00edti\u00f0 \u00ed st\u00edl vi\u00f0 \u00fe\u00e1 marx\u00edskt-kristevu-barnab\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i sem \u00e9g l\u00e6r\u00f0i fyrir l\u00f6ngu og var \u00fev\u00ed hikstalaust haldi\u00f0 fram a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ru f\u00ednar b\u00e6kur. Og bleikar prinsessub\u00e6kur v\u00e6ru g\u00f3\u00f0ar!\u00a0 Miki\u00f0 \u00f3skaplega var \u00e9g gl\u00f6\u00f0 a\u00f0 uppg\u00f6tva a\u00f0 \u00ed barnab\u00f3kafr\u00e6\u00f0um hefur tekist a\u00f0 berja ni\u00f0ur afdanka\u00f0an vinstrisinna\u00f0an femin\u00edsma, me\u00f0 dashi af Freud,\u00a0og byrja\u00f0 a\u00f0 hugsa um hvort b\u00e6kurnar h\u00f6f\u00f0i til lesenda. Miki\u00f0 lj\u00f3mandi ver\u00f0ur gaman a\u00f0 lifa \u00feegar \u00feetta tekst l\u00edka \u00e1 \u00f6\u00f0rum svi\u00f0um \ud83d\ude42<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Bloggynja hyggst dunda s\u00e9r vi\u00f0 hollari vi\u00f0fangsefni \u00ed n\u00fdja l\u00edfinu, \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 prj\u00f3naskap og p\u00e6lingar um si\u00f0blindu. Og hugsa vel um k\u00f6ttinn &#8230;<\/font>\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef asnast til a\u00f0 ey\u00f0a t\u00edma, athygli og orku \u00ed a\u00f0 fylgjast me\u00f0 vefmi\u00f0lum og bloggs\u00ed\u00f0um undanfari\u00f0. Afraksturinn er s\u00e1 a\u00f0 annars vegar soga\u00f0ist \u00e9g ofan \u00ed drullupyttina sj\u00e1lf og f\u00f3r a\u00f0 kommentara \u00e1 <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/03\/sagt-skilid-vid-vidbjodinn\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-326","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/326","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=326"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/326\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=326"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=326"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=326"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}