{"id":330,"date":"2011-03-18T20:26:43","date_gmt":"2011-03-18T20:26:43","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-03-18\/ljosa\/"},"modified":"2011-03-18T20:26:43","modified_gmt":"2011-03-18T20:26:43","slug":"ljosa","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/18\/ljosa\/","title":{"rendered":"Lj\u00f3sa"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6rkv\u00f6ldi las \u00e9g <em>Lj\u00f3su<\/em> eftir Krist\u00ednu Steinsd\u00f3ttur \u00ed einni beit, sem er vel af s\u00e9r viki\u00f0 hj\u00e1 \u00f3l\u00e6sri konu. M\u00e1 af \u00feessu marka hve fantag\u00f3\u00f0 b\u00f3kin er; meira a\u00f0 segja athyglisbrostin h\u00e1lflesblind kvenkind sekkur inn \u00ed\u00a0s\u00f6gheiminn og getur ekki lagt b\u00f3kina fr\u00e1 s\u00e9r!<\/p>\n<p>\u00c9g heilla\u00f0ist strax af a\u00f0alpers\u00f3nunni. \u00dea\u00f0 er svo \u00f3tr\u00falega miki\u00f0 \u00ed hana spunni\u00f0 og henni er svo vel l\u00fdst. Raunar \u00e1 \u00fea\u00f0 vi\u00f0 um allar pers\u00f3nurnar; \u00fe\u00f3tt sumar kunni a\u00f0 haga s\u00e9r \u00e1 \u00feann m\u00e1ta sem lesandi er ekki samm\u00e1la \u00fe\u00e1 er alltaf lj\u00f3st af hverju \u00fe\u00e6r haga s\u00e9r svona og allar\u00a0eiga pers\u00f3nurnar s\u00e9 m\u00e1lsb\u00e6tur e\u00f0a sk\u00fdringar \u00e1 gj\u00f6r\u00f0um og heg\u00f0un. \u00deetta er sums\u00e9 ekki einf\u00f6ld saga um g\u00f3\u00f0a og vonda heldur saga um f\u00f3lk af holdi og bl\u00f3\u00f0i, me\u00f0 kostum og g\u00f6llum.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/gamli_kvennaskolinn_i_reykjavik_1909.jpg?resize=279%2C192\" alt=\"Gamli kvennask\u00f3linn \ufffd Reykjav\ufffdk\" align=\"left\" height=\"192\" width=\"279\" \/>Uppv\u00f6xtur Lj\u00f3su, myrkf\u00e6lnin, kv\u00ed\u00f0ak\u00f6stin og fyrstu \u00feunglyndisk\u00f6stin eru lj\u00f3slifandi. <em>Fuglinn sem berst um \u00ed h\u00e1lsinum<\/em> er alveg h\u00e1r\u00e9tt l\u00fdsing \u00e1 kv\u00ed\u00f0a og \u00feegar hann st\u00e6kkar og leggst yfir Lj\u00f3su svo h\u00fan n\u00e6r ekki andanum giska \u00e9g \u00e1 a\u00f0 flestir sem reynt hafa ofsakv\u00ed\u00f0akast \u00e1 eigin kroppi og s\u00e1l finni mikla sams\u00f6mun \u00ed \u00feeirri l\u00fdsingu.<\/p>\n<p>N\u00fa er ekki svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthvert svartn\u00e6tti r\u00edkjandi \u00ed \u00feessari b\u00f3k, fjarri \u00fev\u00ed. Lj\u00f3sa er svo yndisleg manneskja a\u00f0 \u00fea\u00f0 er unun a\u00f0 fylgja henni eftir, b\u00e6\u00f0i heima \u00ed sveitinni og \u00feegar h\u00fan fer \u00ed Kvennask\u00f3lann. \u00c9g skildi svo vel hva\u00f0 hana langa\u00f0i miki\u00f0 \u00ed danskan kj\u00f3l! Og gladdist mj\u00f6g \u00feegar h\u00fan sauma\u00f0i s\u00e9r fyrsta kj\u00f3linn \ud83d\ude42 \u00a0Reykjav\u00edkurl\u00fdsingin minnti mig d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00e1 <em>Minningar<\/em> Gu\u00f0r\u00fanar Borgfj\u00f6r\u00f0, sem eru h\u00e9r uppi \u00ed hillu og \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 lesa aftur, svo hrifin var \u00e9g af \u00feeim s\u00ed\u00f0ast.<\/p>\n<p>(Myndin er af s\u00ed\u00f0ustu \u00fatskrift \u00far gamla Kvennask\u00f3lanum, vori\u00f0 1909. S\u00e9 vel a\u00f0 g\u00e6tt sj\u00e1st spor\u00f6skjulaga gluggarnir \u00ed kvistunum; \u00fear fyrir innan bjuggu Lj\u00f3sa og systir hennar Kvennask\u00f3laveturinn.)<\/p>\n<p>Lj\u00f3sa heldur sj\u00e1lf a\u00f0 \u00e1starsorgin mikla hafi gert sig veika.\u00a0En \u00fea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 h\u00f6fundurinn, Krist\u00edn Steinsd\u00f3ttir, kaupir ekki svo einfalda sk\u00fdringu. \u00deess vegna er lesandinn \u00ed \u00feeirri st\u00f6\u00f0u a\u00f0 samsinna Lj\u00f3su en n\u00e6r jafnframt n\u00e6gilegri fjarl\u00e6g\u00f0 til a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 Lj\u00f3sa s\u00e9r hlutina d\u00e1l\u00edti\u00f0 brengla\u00f0a og s\u00fdn hennar ver\u00f0ur skrumsk\u00e6ldari eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1 s\u00f6guna l\u00ed\u00f0ur og Lj\u00f3sa ver\u00f0ur veikari.<\/p>\n<p>H\u00f6fundurinn hl\u00fdtur a\u00f0 hafa tala\u00f0 miki\u00f0 vi\u00f0 ge\u00f0hvarfasj\u00faklinga og kynnt s\u00e9r vel hvernig \u00feeir upplifa sj\u00fakd\u00f3minn. \u00c9g er\u00a0ekki ge\u00f0hvarfasj\u00faklingur en \u00feekki m\u00e6tavel til \u00feunglyndishlutans. \u00deegar \u00e9g las a\u00f0 Lj\u00f3sa gat ekki\u00a0sauma\u00f0, var b\u00fain a\u00f0 gleyma \u00fev\u00ed (e\u00f0a gat ekki sni\u00f0i\u00f0? Minni\u00f0 er eins og gatasigti!) beyg\u00f0i \u00e9g af. \u00deetta minnti mig svo miki\u00f0 \u00e1 \u00feessi augnablik \u00ed lok s\u00ed\u00f0asta \u00e1rs \u00feegar \u00e9g gat ekki fitja\u00f0 upp af \u00fev\u00ed \u00e9g var b\u00fain a\u00f0 gleyma hvernig ma\u00f0ur fitjar upp.\u00a0Svartn\u00e6tti\u00f0 ver\u00f0ur algert \u00feegar detta \u00far manni\u00a0s\u00ed\u00f0ustu h\u00e6fileikarnir, h\u00e6fileikar sem ma\u00f0ur hefur haldi\u00f0 \u00ed og hangi\u00f0 \u00e1. Sem betur fer koma \u00feeir aftur, b\u00e6\u00f0i uppfitin hj\u00e1 m\u00e9r og saumaskapur Lj\u00f3su.<\/p>\n<p>\u00deunglyndi Lj\u00f3su er\u00a0l\u00fdst af n\u00e6mni og miklu inns\u00e6i.\u00a0\u00dea\u00f0 er ekki oft sem\u00a0\u00e9g\u00a0hef\u00a0lesi\u00f0\u00a0svona g\u00f3\u00f0ar l\u00fdsingar, t.d. \u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar l\u00edkaminn hl\u00fd\u00f0ir ekki, f\u00e6turnir bera mann ekki e\u00f0a ma\u00f0ur getur ekki komist af sta\u00f0 heldur er frosinn.\u00a0L\u00edkamlegum einkennum \u00feunglyndis er svo sjaldan gaumur gefinn; \u00feegar \u00f3endanlega \u00feung maran leggst\u00a0\u00e1 mann, brenglar hreyfingar og dregur \u00far manni allan m\u00e1tt.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/thorvaldsen.jpg?resize=118%2C223\" alt=\"Bertel Thorvaldsen og Vonin\" align=\"right\" height=\"223\" width=\"118\" \/>Man\u00eduna \u00feekki \u00e9g bara af afspurn og hef s\u00e9\u00f0 f\u00f3lk \u00ed sl\u00e6mum man\u00eduk\u00f6stum. \u00dea\u00f0 er enn\u00a0\u00feyngri kross a\u00f0\u00a0bera en\u00a0\u00feunglyndi. \u00c1 t\u00edmum Lj\u00f3su, \u00e1 \u00feeim n\u00e1nast lyfjalausu t\u00edmum, var man\u00eda \u00f3\u00feolandi\u00a0\u00e1stand b\u00e6\u00f0i fyrir sj\u00faklinginn og a\u00f0standendur.\u00a0&#8211; Sumir n\u00fat\u00edmaspek\u00falantar sj\u00e1 n\u00e1tt\u00farulegt lyfjaleysi\u00a0\u00ed hillingum til handa okkur\u00a0ge\u00f0veika f\u00f3lkinu. Svolei\u00f0is velmeinandi og \u00fdti\u00f0 li\u00f0 hef\u00f0i afar gott af \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa <em>Lj\u00f3su<\/em>! &#8211; \u00d3v\u00edst er hvort <a href=\"http:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/D%C3%A1rakista\" title=\"D\u00e1rakista\">d\u00e1rakistur<\/a> hafi nokkurn t\u00edma veri\u00f0 br\u00faka\u00f0ar \u00e1 \u00cdslandi en \u00d3ttar Gu\u00f0mundsson heldur \u00fev\u00ed fram a\u00f0 eitthva\u00f0 hafi veri\u00f0 um a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a\u00f0 v\u00e6ri utan um vitfirrt f\u00f3lk af \u00fev\u00ed engin lei\u00f0 var \u00a0a\u00f0 tj\u00f3nka vi\u00f0 \u00fea\u00f0 og sm\u00ed\u00f0i\u00f0 kom \u00ed veg fyrir a\u00f0 sj\u00faklingurinn ger\u00f0i sj\u00e1lfum s\u00e9\u00f0 e\u00f0a \u00f6\u00f0rum mein. Aumingja Lj\u00f3sa lendir \u00ed sl\u00edku heimasm\u00ed\u00f0u\u00f0u b\u00fari\u00a0og \u00fev\u00ed er afar vel l\u00fdst hvernig henni l\u00ed\u00f0ur \u00feegar kv\u00ed\u00f0inn hellist yfir hana og h\u00fan kemst ekki \u00fat. Af reynslunni af ofsakv\u00ed\u00f0ak\u00f6stum gat \u00e9g\u00a0vel samsama\u00f0\u00a0mig Lj\u00f3su \u00ed \u00feessum\u00a0a\u00f0st\u00e6\u00f0um og l\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g fengi svolei\u00f0is kast \u00feegar \u00e9g lif\u00f0i mig inn \u00ed b\u00f3kina og Lj\u00f3sa var f\u00f6st &#8211; innikr\u00f3u\u00f0 &#8211; og \u00ed\u00a0ofsakv\u00ed\u00f0akasti!<\/p>\n<p>Kannski l\u00fdsir \u00fea\u00f0 <em>Lj\u00f3su<\/em> best a\u00f0 segja a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 \u00f3endanlega falleg b\u00f3k um \u00f3endanlega mikla kv\u00f6l og \u00fej\u00e1ningu. \u00dea\u00f0 er ekki bara Lj\u00f3sa sem \u00fej\u00e1ist heldur allir \u00ed kringum hana. En \u00fer\u00e1tt fyrir alla \u00fej\u00e1ninguna er b\u00f3kin skemmtileg, oft br\u00e1\u00f0fyndin og Lj\u00f3sa sj\u00e1lf er mikill sk\u00f6rungur. Meira a\u00f0 segja \u00ed lokin, \u00feegar h\u00fan er h\u00e6tt a\u00f0 halda \u00fer\u00e6\u00f0i og minni\u00f0 hefur sviki\u00f0 hana, er h\u00fan st\u00f3rbrotin.<\/p>\n<p>(Styttan s\u00fdnir Bertel Thorvaldsen halla s\u00e9r upp a\u00f0 sk\u00f6punarverki s\u00ednu, Gy\u00f0ju Vonarinnar, sem oftast er bara k\u00f6llu\u00f0 Vonin, \u00e1 \u00edslensku. Styttan st\u00f3\u00f0 \u00e1 Austurvelli en er n\u00fa \u00ed Hlj\u00f3msk\u00e1lagar\u00f0inum. Lj\u00f3sa h\u00e9lt miki\u00f0 upp \u00e1 \u00feessa styttu en h\u00e9lt reyndar a\u00f0 konan v\u00e6ri Mar\u00eda mey og skildi ekkert \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i anna\u00f0 brj\u00f3sti\u00f0 bert &#8230; Kannski tengist \u00feessi stytta svol\u00edti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Lj\u00f3sa hallar s\u00e9r a\u00f0 voninni \u00feegar sortinn leggst yfir, leitar skj\u00f3ls \u00ed dagdraumum um \u00fea\u00f0 sem hef\u00f0i geta\u00f0 or\u00f0i\u00f0. En um s\u00ed\u00f0ir ver\u00f0ur henni lj\u00f3st a\u00f0 \u00feessi von var t\u00e1ls\u00fdn.)<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1 \u00f6rugglega eftir a\u00f0 lesa <em>Lj\u00f3su <\/em>aftur enda nokku\u00f0 v\u00edst a\u00f0 h\u00fan hripar \u00far heilab\u00fainu \u00e1 nokkrum vikum. \u00dea\u00f0 er a.m.k. lj\u00f3s punktur vi\u00f0 \u00feessi s\u00edfelldu blakk\u00e1t af \u00feunglyndi a\u00f0 \u00e9g \u00e1 inni \u00feennan \u00e1g\u00e6tislestur, sem gl\u00e6n\u00fdr s\u00e9, \u00ed vor.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6rkv\u00f6ldi las \u00e9g Lj\u00f3su eftir Krist\u00ednu Steinsd\u00f3ttur \u00ed einni beit, sem er vel af s\u00e9r viki\u00f0 hj\u00e1 \u00f3l\u00e6sri konu. M\u00e1 af \u00feessu marka hve fantag\u00f3\u00f0 b\u00f3kin er; meira a\u00f0 segja athyglisbrostin h\u00e1lflesblind kvenkind sekkur <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/18\/ljosa\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-330","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/330","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=330"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/330\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=330"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=330"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=330"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}