{"id":331,"date":"2011-03-23T00:59:33","date_gmt":"2011-03-23T00:59:33","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-03-23\/synishorn-af-degi-kramaraumingja\/"},"modified":"2011-03-23T00:59:33","modified_gmt":"2011-03-23T00:59:33","slug":"synishorn-af-degi-kramaraumingja","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/23\/synishorn-af-degi-kramaraumingja\/","title":{"rendered":"S\u00fdnishorn af degi kramaraumingja"},"content":{"rendered":"<p>Dagurinn hefur au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 mestu runni\u00f0 m\u00e9r \u00far greipum vegna \u00feess hve mikill kramaraumingi \u00e9g er. (\u00deetta finnst l\u00e6kninum m\u00ednum doldi\u00f0 lj\u00f3tt or\u00f0 en hann er n\u00e1tt\u00farlega alinn upp fyrir sunnan &#8230; \u00e9g man ekki betur en kramaraumingi hafi veri\u00f0 tilt\u00f6lulega hvunndagslegt or\u00f0 \u00fearna \u00e1 nor\u00f0austurhorninu og g\u00e6ti reyndar t\u00ednt til verri or\u00f0 en \u00fea\u00f0, einkum eitt sem \u00e9g passa vo\u00f0avel a\u00f0 nefna aldrei \u00ed vi\u00f0t\u00f6lum vi\u00f0 \u00feann g\u00f3\u00f0a l\u00e6kni \u00feegar \u00e9g b\u00f6gglast vi\u00f0 a\u00f0 l\u00fdsa slappri l\u00ed\u00f0an.)<\/p>\n<p>\u00cd allan dag hef \u00e9g veri\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 fixa hlj\u00f3\u00f0skr\u00e1r \u00e1 vefs\u00ed\u00f0u. \u00cd denn, me\u00f0an \u00e9g haf\u00f0i \u00fereki\u00f0, hef\u00f0i \u00e9g r\u00falla\u00f0 \u00feessu upp inn \u00e1 milli verka. En fyrst var a\u00f0 finna v\u00e9l \u00e1 vef til a\u00f0 breyta g\u00f6mlum real-audio skr\u00e1m \u00ed mp3 (vildi ekki hla\u00f0a ni\u00f0ur forriti til &#8216;ins arna) og \u00fea\u00f0 t\u00f3kst m\u00e6ta vel. Svo er a\u00f0 l\u00e1ta \u00fe\u00e6r keyra \u00e1 vefs\u00ed\u00f0u. \u00dea\u00f0 gengur illa. \u00de.e.a.s. \u00fe\u00e6r keyra eins og englar (ef hlj\u00f3\u00f0skr\u00e1 m\u00e1 kalla svo og ef englar keyra) \u00ed <em>IE<\/em> og <em>Operu<\/em> en eru me\u00f0 tikt\u00farur \u00ed <em>Google Chrome<\/em>. Kann ekki vi\u00f0 a\u00f0 vekja soninn til a\u00f0 t\u00e9kka \u00e1 <em>Firefox<\/em>. Stefnan er a\u00f0 nota eins hreinan HTML-k\u00f3\u00f0a og unnt er, sleppa XML og javascript fiffum sem mest og \u00fev\u00ed mi\u00f0ur eru menn ekki n\u00f3gu har\u00f0ir \u00e1 st\u00f6\u00f0lunum ;(\u00a0 \u00c9g hef ekki ofi\u00f0 neitt \u00ed marga m\u00e1nu\u00f0i en stefni \u00e6 meir \u00ed <em>Back to the Basic<\/em> og <em>KISS<\/em> (Keep it simple Stupid!) og held a\u00f0 \u00fev\u00ed einfaldari k\u00f3\u00f0i \u00fev\u00ed langl\u00edfari ver\u00f0i vefs\u00ed\u00f0ur. Nefni t.d. Net\u00fatg\u00e1funa sem gott d\u00e6mi um hverju sl\u00edk stefna hefur skila\u00f0. J\u00e1, svo nota \u00e9g enn eldgamlan Netscape Editor til a\u00f0 vinna grunninn (\u00fer\u00e1tt fyrir Dreamweaver \u00e1r\u00f3\u00f0ur mannsins) og handskrifa svo meira og minna k\u00f3\u00f0ann inn \u00ed grunninn, \u00ed Notepad. D\u00e1l\u00edti\u00f0 erfitt fyrir konu me\u00f0 athyglisbrest, \u00feetta er n\u00e1kv\u00e6mnisvinna og \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 gleyma\u00a0a\u00f0 loka sosum eins og einum hornklofa eins og gefur a\u00f0 skilja &#8230;<\/p>\n<p>Fyrir utan \u00feetta\u00a0d\u00fatl (hlj\u00f3\u00f0skr\u00e1rnar eru s\u00fdnishorn af\u00a0forn\u00edslensku og hinn dramat\u00edski flutningu Arne Torp \u00e1 endurger\u00f0ri Atlakvi\u00f0u me\u00f0 fimmtu\u00a0aldar frumnorr\u00e6nu-frambur\u00f0i) hef \u00e9g afreka\u00f0 f\u00e1tt. En \u00e9g hef reikna\u00f0 \u00fat a\u00f0 ef m\u00e9r tekst a\u00f0 kl\u00e1ra a\u00f0 gera upp og breyta svona einni m\u00e1ls\u00f6gus\u00ed\u00f0u \u00e1 dag \u00fe\u00e1 muni \u00feetta verk einhvern t\u00edma kl\u00e1rast, verk kl\u00e1rast nefnilega \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e9u unnin h\u00e6gt. Og \u00e9g reyni a\u00f0 hugsa sem minnst um hvernig \u00e9g var \u00e1\u00f0ur en sj\u00fakd\u00f3murinn\u00a0greip mig \u00ed heljarkrumlurnar, \u00feegar \u00e9g gat kennt meir en fulla st\u00f6\u00f0u og veri\u00f0 \u00ed fullt af skemmtilegum aukadjobbum me\u00f0 og allt var svo gaman og gekk svo hratt og \u00e9g lif\u00f0i svo hratt. N\u00fana lifi \u00e9g mj\u00f6g h\u00e6gt.<\/p>\n<p>F\u00f3r reyndar til heimilisl\u00e6knis \u00ed dag og lag\u00f0i spilin \u00e1 bor\u00f0i\u00f0: Sag\u00f0i honum\u00a0a\u00f0 vi\u00f0 ge\u00f0veika f\u00f3lki\u00f0 fengjum oft \u00fdmis mj\u00f6g sannf\u00e6randi sj\u00fakd\u00f3mseinkenni og n\u00fa vildi \u00e9g bara f\u00e1 a\u00f0 vita hvort \u00feau v\u00e6ru raunveruleg e\u00f0a hvort \u00e9g v\u00e6ri hyster\u00edsk.\u00a0(L\u00e6kninum fannst hyster\u00edsk ekki fallegt or\u00f0, ekki heldur m\u00f3\u00f0ursj\u00fak. Af \u00feessu m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 l\u00e6knar s\u00e9u almennt soldi\u00f0 vi\u00f0kv\u00e6mir fyrir or\u00f0alagi sj\u00faklings um sig.) \u00cd lj\u00f3s\u00a0kom a\u00f0 \u00f6ll einkennin nema eitt\u00a0voru hyster\u00eda.\u00a0Gott fyrir mig a\u00f0 vita \u00fea\u00f0. Aftur \u00e1 m\u00f3ti hurfu \u00feau ekki vi\u00f0 \u00feessar uppl\u00fdsingar, \u00fev\u00ed mi\u00f0ur.<\/p>\n<p>Eftir\u00a0r\u00e1\u00f0f\u00e6ringar\u00a0vi\u00f0 manninn, undir hinum lj\u00faffenga kv\u00f6ldver\u00f0i sem hann snara\u00f0i fram handa sinni konu og kettinum,\u00a0l\u00e9t \u00e9g slag standa\u00a0og panta\u00f0i t\u00edma \u00ed n\u00e1lastungum. Var b\u00fain a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feetta vi\u00f0 stingjarann einhvern t\u00edma \u00ed fyrra; s\u00e1 \u00feekkir vel til \u00feunglyndis og lofar engu, \u00ed mesta lagi hugsanlegum s\u00e9ns. Best a\u00f0 taka \u00feann s\u00e9ns &#8211; \u00e9g hef \u00fe\u00e1 alltaf pr\u00f3fa\u00f0. Og vestr\u00e6n l\u00e6knislyf skila m\u00e9r hvort sem er ekki betri\u00a0\u00e1rangri en hugsanlegum s\u00e9ns svo ma\u00f0ur getur allt eins leita\u00f0 fleiri s\u00e9nsa.\u00a0\u00c9g\u00a0bl\u00e6s \u00e1 gr\u00e6nmetisf\u00e6\u00f0i, d\u00edtox,\u00a0h\u00f3m\u00f3pat\u00edu, heilun og \u00feess h\u00e1ttar. En m\u00e6tti\u00a0sosum pr\u00f3fa andal\u00e6kningar, \u00fe\u00e6r eru enn \u00f3pr\u00f3fa\u00f0ar: \u00deekkir einhvern g\u00f3\u00f0an andal\u00e6kni? Er Fri\u00f0rik enn a\u00f0 st\u00f6rfum? \ud83d\ude09 Handayfirlagning og s\u00e6ring er einnig \u00f3pr\u00f3fu\u00f0 en \u00e9g held \u00e9g l\u00e1ti \u00fea\u00f0 eiga sig.\u00a0<\/p>\n<p>\u00cd g\u00e6rkv\u00f6ldi hra\u00f0las \u00e9g reyfara, <em>Fyrirgefningu<\/em> eftir Lilju\u00a0Sigur\u00f0ard\u00f3ttur. \u00c9g man a\u00f0\u00a0\u00e9g var frekar hrifin af fyrri b\u00f3kinni hennar, <em>Spor<\/em>, en komst a\u00f0 \u00fev\u00ed vi\u00f0 lestur \u00feessarar a\u00f0 \u00e9g man ekki snitti \u00far fyrri b\u00f3kinni. Og \u00feessi seinni var alltof fyrirsj\u00e1anleg. Annars er \u00e9g enn \u00e1 flettistiginu, sko\u00f0a b\u00e6kur, les h\u00e9r og \u00fear, s\u00e1 reyndar a\u00f0 \u00e9g \u00feyrfti einhvern t\u00edma a\u00f0 skruna yfir <em>\u00cdslensku H\u00f3mil\u00edub\u00f3kina<\/em> \u00fev\u00ed\u00a0textinn \u00ed henni er svo fr\u00e1b\u00e6rlega flottur; \u00edslenskan er gull! Og \u00feeir sem s\u00f6mdu \u00feessar st\u00f3lr\u00e6\u00f0ur h\u00f6f\u00f0u hvorki a\u00f0gang a\u00f0 or\u00f0ab\u00f3kum n\u00e9 or\u00f0um\u00a0heldur s\u00f6mdu s\u00edn eigin or\u00f0 nokkurn veginn jafn\u00f3\u00f0um, a.m.k.\u00a0m\u00f6rg \u00feeirra. Alltaf gaman a\u00f0 finna g\u00f3\u00f0an texta.<\/p>\n<p>Labba\u00f0i heim af\u00a0Heilsug\u00e6slust\u00f6\u00f0inni og steig \u00f6lduna, sem bendir til a\u00f0 helv. \u00feunglyndi\u00f0 s\u00e9 enn\u00fe\u00e1 \u00ed bl\u00f3ma. Og hengdi upp\u00a0\u00far einni \u00fevottav\u00e9l me\u00f0 harmkv\u00e6lum (svimi, fl\u00f6kurleiki, skj\u00e1lfti o.s.fr. helltist yfir mig). \u00deannig a\u00f0 \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0\u00a0s\u00e6tta\u00a0mig vi\u00f0 a\u00f0 vera kramaraumingi \u00e1fram. Og langir\u00a0&#8220;hressandi&#8221;\u00a0g\u00f6ngut\u00farar eru ekki \u00e1 dagskr\u00e1 (sem betur fer dettur engum \u00ed hug a\u00f0 stinga upp \u00e1 \u00feeirri vitleysu vi\u00f0 mig, nema sonurinn \u00feegar hann vill peppa upp ge\u00f0veika m\u00f3\u00f0ur s\u00edna me\u00f0 einhverjum krassandi brandara). \u00a0<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt afrakstur dagsins s\u00e9 l\u00edtill er samt afrakstur. Ma\u00f0ur ver\u00f0ur bara a\u00f0 minnka kr\u00f6furnar og lifa annars konar l\u00edfi en \u00e1\u00f0ur. Og passa a\u00f0 missa sig ekki \u00ed rei\u00f0i og pirring heldur hanga \u00e1 \u00e6\u00f0ruleysisb\u00e6ninni og r\u00e6kta sinn (kvikindislega) h\u00famor. Var ekki l\u00edka hi\u00f0 raunverulega svar vi\u00f0 tilgangi l\u00edfsins \/ l\u00edfshamingjunni a\u00f0 ma\u00f0ur \u00e6tti a\u00f0 r\u00e6kta gar\u00f0inn sinn? (\u00cd sta\u00f0 \u00feeirrar lummulegu sko\u00f0unar a\u00f0 svari\u00f0 vi\u00f0 heimspekinni v\u00e6ri sj\u00e1lfsv\u00edg? Og kaldh\u00e6\u00f0nin einkum f\u00f3lgin \u00ed a\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefndi spekingurinn l\u00e9st \u00ed b\u00edlslysi \u00e1\u00f0ur en honum t\u00f3kst a\u00f0 fremja sj\u00e1lfsv\u00edgi\u00f0?) Ma\u00f0ur stj\u00f3rnar ekki \u00feunglyndi. En ma\u00f0ur getur svol\u00edti\u00f0 stj\u00f3rna\u00f0 \u00fev\u00ed hversu miki\u00f0 skal hangi\u00f0 \u00ed harminum e\u00f0a hve ma\u00f0ur l\u00e6tur eftir s\u00e9r a\u00f0 tj\u00fanast upp \u00ed gagnslausri rei\u00f0i og pirringi \u00fat \u00ed allt og alla og \u00f6fund \u00fat \u00ed \u00fe\u00e1 sem hafa fundi\u00f0 meint Eld\u00f3rad\u00f3. Af \u00fev\u00ed m\u00e9r gengur merkilega illa a\u00f0 for\u00f0ast drullupolla og neikv\u00e6\u00f0ni hef \u00e9g \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 l\u00edta \u00e1\u00a0\u00fe\u00e1 eins og hvert anna\u00f0 svartagallsraus og reyna a\u00f0 sj\u00e1 hversu fyndin umr\u00e6\u00f0an \u00ed rauninni er, alveg eins og m\u00e9r \u00fe\u00f3tti alltaf l\u00famskt gaman af <em>L\u00e1ka jar\u00f0\u00e1lfi<\/em> sem \u00e9g las fyrir str\u00e1kana litla \ud83d\ude09<\/p>\n<p>Og n\u00fa er \u00e9g or\u00f0in of \u00fereytt til a\u00f0 finna myndskreytingar vi\u00f0 f\u00e6rsluna &#8230;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Dagurinn hefur au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 mestu runni\u00f0 m\u00e9r \u00far greipum vegna \u00feess hve mikill kramaraumingi \u00e9g er. (\u00deetta finnst l\u00e6kninum m\u00ednum doldi\u00f0 lj\u00f3tt or\u00f0 en hann er n\u00e1tt\u00farlega alinn upp fyrir sunnan &#8230; \u00e9g man ekki <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/23\/synishorn-af-degi-kramaraumingja\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-331","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/331","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=331"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/331\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=331"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=331"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=331"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}