{"id":332,"date":"2011-03-25T00:59:28","date_gmt":"2011-03-25T00:59:28","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-03-25\/sidblinda-i-fraedum-truarritum-og-bokmenntum\/"},"modified":"2011-03-25T00:59:28","modified_gmt":"2011-03-25T00:59:28","slug":"sidblinda-i-fraedum-truarritum-og-bokmenntum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/25\/sidblinda-i-fraedum-truarritum-og-bokmenntum\/","title":{"rendered":"Si\u00f0blinda \u00ed fr\u00e6\u00f0um, tr\u00faarritum og b\u00f3kmenntum"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\"><strong><\/strong><\/font><font size=\"-1\">31. des. 2011: \u00c9g hef ofi\u00f0 si\u00f0blinduf\u00e6rslurnar og \u00e6tti a\u00f0 vera \u00fe\u00e6gilegra a\u00f0 sko\u00f0a efni\u00f0 \u00e1 vef heldur en \u00ed \u00feessu bloggumhverfi. Sl\u00f3\u00f0in er:<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/sidblinda.com\/\"><strong>http:\/\/sidblinda.com<\/strong><\/a><\/p>\n<p><\/font><b><\/b><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">\u00de\u00f3famj\u00fak r\u00e1nd\u00fdr sem l\u00e6\u00f0ast: Si\u00f0blinda VI hluti<\/font><\/b><\/p>\n<p><strong><\/strong><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00cd \u00feessari f\u00e6rslu ver\u00f0ur stikla\u00f0 \u00e1 st\u00f3ru og athygli vakin \u00e1 nokkrum d\u00e6mum um si\u00f0blindu \u00ed fr\u00e6\u00f0um og b\u00f3kmenntum fr\u00e1 \u00fdmsum t\u00edma. Engan veginn er um t\u00e6mandi umfj\u00f6llun a\u00f0 r\u00e6\u00f0a heldur einungis stiklur svo umfj\u00f6llunin er nokku\u00f0 brotakennd. Einnig ver\u00f0ur a\u00f0eins minnst \u00e1 \u00edslenskar b\u00f3kmenntir en \u00fear er einungis um vangaveltur f\u00e6rsluh\u00f6fundar a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fev\u00ed n\u00e1nast ekkert hefur veri\u00f0 skrifa\u00f0 um si\u00f0blindu \u00ed tengslum vi\u00f0 \u00fe\u00e6r.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Si\u00f0blindir einstaklingar hafa v\u00e6ntanlega veri\u00f0 til fr\u00e1 \u00fev\u00ed einhvern t\u00edma \u00ed \u00fer\u00f3unars\u00f6gu mannsins (sbr. kaflann \u201e\u00der\u00f3unarfr\u00e6\u00f0ilegar sk\u00fdringar\u201c \u00ed f\u00e6rslunni <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-02-21\/orsakir-sidblindu\/\">Orsakir si\u00f0blindu<\/a>.) Menn hafa \u00fe\u00f3st sj\u00e1 \u00feess merki a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 l\u00fdsa si\u00f0blindum \u00ed mj\u00f6g g\u00f6mlum textum svo snemma hefur samfer\u00f0am\u00f6nnum si\u00f0blindra or\u00f0i\u00f0 lj\u00f3st hvern mann \u00feeir h\u00f6f\u00f0u a\u00f0 geyma.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Oftast er vitna\u00f0 til <i>Mannger\u00f0a<\/i> \u00dee\u00f3frasosar sem elsta fr\u00e6\u00f0itexta \u00fear sem si\u00f0blindum er l\u00fdst.\u00a0 \u00dee\u00f3frastos var fr\u00e1 Eresos \u00e1 Lesbos, nemandi Platons og\u00a0 pers\u00f3nulegur vinur Arist\u00f3telesar. Hann var raunv\u00edsindama\u00f0ur sem reyndi a\u00f0 rannsaka n\u00e1tt\u00faruleg fyrirb\u00e6ri \u00e1 hlutl\u00e6gan h\u00e1tt, \u00fe.m.t. mannger\u00f0ir. Riti\u00f0 <i>Mannger\u00f0ir<\/i> var skrifa\u00f0 \u00ed A\u00feenuborg \u00e1ri\u00f0 319 fyrir Krist. Ein mannger\u00f0in er s\u00fa sem s\u00fdnir blyg\u00f0unarleysi og eru einkennin \u00f3neitanleg l\u00edk hugmyndum n\u00fat\u00edmamanna um si\u00f0blindu:<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/sa_blygdunarlausi.jpg?resize=190%2C206\" alt=\"S\u00e1 blyg\u00f0unarlausi\" align=\"left\" height=\"206\" width=\"190\" \/><font size=\"-1\">\u201eBlyg\u00f0unarleysi &#8211; svo \u00fea\u00f0 s\u00e9 skilgreint &#8211; er a\u00f0 tra\u00f0ka \u00e1 mannor\u00f0inu fyrir skammarlegan \u00e1vinning. S\u00e1 blyg\u00f0unarlausi er \u00feannig:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0\u00a0 Hann fer fyrst til einhvers sem hann hefur svindla\u00f0 \u00e1 og bi\u00f0ur um l\u00e1n &#8230; Ef hann hefur einhvern t\u00edma gert kj\u00f6tkaupmanninum grei\u00f0a, \u00fe\u00e1 minnir hann \u00e1 \u00fea\u00f0, \u00feegar hann kaupir \u00ed matinn, og stendur vi\u00f0 vogina og l\u00e6tur helst aukakj\u00f6tbita me\u00f0, en ef \u00fea\u00f0 tekst ekki, \u00fe\u00e1 s\u00fapubein. Heppnist \u00fea\u00f0, l\u00e6tur hann s\u00e9r vel l\u00edka, ef ekki, \u00fe\u00e1 seilist hann \u00ed v\u00f6mb af b\u00fa\u00f0arbor\u00f0inu um lei\u00f0 og hann hypjar sig hl\u00e6jandi \u00e1 brott. &#8230; \u00cd ba\u00f0h\u00fasinu er hann v\u00eds til a\u00f0 ganga a\u00f0 vatnskatlinum og d\u00fdfa skj\u00f3lunni ofan \u00ed undir \u00f6skrum ba\u00f0var\u00f0arins og skvetta sj\u00e1lfur yfir sig og segja svo a\u00f0 hann s\u00e9 b\u00fainn a\u00f0 skola sig. \u00c1 lei\u00f0inni \u00fat segir hann vi\u00f0 ba\u00f0v\u00f6r\u00f0inn: <i>Ertu enn\u00fe\u00e1 \u00ed f\u00fdlu? \u00de\u00fa f\u00e6r\u00f0 sko enga \u00fe\u00f3knun fr\u00e1 m\u00e9r<\/i>.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">S\u00e1 blyg\u00f0unarlausi er, sem sj\u00e1 m\u00e1 af \u00feessum d\u00e6mum, sj\u00e1lfselskur, kaldlyndur, samviskulaus, ruddalegur og sv\u00edfst einskis \u00ed eigin \u00fe\u00e1gu. <i>Mannger\u00f0ir<\/i> \u00dee\u00f3frastosar voru fr\u00e6gt rit sem barst v\u00ed\u00f0a. \u00cd eftirm\u00e1la a\u00f0 \u00edslensku \u00fe\u00fd\u00f0ingunni er r\u00f6kstutt a\u00f0 Brynj\u00f3lfur biskup Sveinsson hafi \u00e1tt eintak af \u00feeim \u00ed s\u00ednu b\u00f3kasafni \u00ed Sk\u00e1lholti.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">1<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Enn fr\u00e6gari en <i>Mannger\u00f0ir<\/i> er vitaskuld sj\u00e1lf <i>Bibl\u00edan<\/i>. \u00dear hafa sumir \u00fe\u00f3st greina enn\u00fe\u00e1 eldri l\u00fdsingar \u00e1 si\u00f0blindueinkennum.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fyrst er a\u00f0 telja l\u00f6g M\u00f3se. M\u00f3seb\u00e6kur (<i>Fimmb\u00f3kariti\u00f0<\/i>, <i>Torah<\/i>) eru taldar samansettar fr\u00e1 svona 950-450 f. Kr. og s\u00fa fimmta l\u00edklega fr\u00e1 \u00fev\u00ed um 621 f. Kr. \u00fe\u00f3tt h\u00fan kunni a\u00f0 byggja \u00e1 eldri heimildum.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/thrjoski_sonurinn.jpg?resize=150%2C141\" alt=\"\u00derj\u00f3ski sonurinn\" align=\"left\" height=\"141\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">\u00cd <i>5. M\u00f3seb\u00f3k<\/i> er fjalla\u00f0 um \u00ferj\u00f3skan son og segir: \u201eEigi ma\u00f0ur \u00ferj\u00f3skan son og \u00f3d\u00e6lan sem hvorki vill hl\u00fd\u00f0a f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum n\u00e9 m\u00f3\u00f0ur og hl\u00fd\u00f0nast \u00feeim ekki heldur \u00fe\u00f3tt \u00feau hirti hann, skulu fa\u00f0ir hans og m\u00f3\u00f0ir taka hann og f\u00e6ra hann fyrir \u00f6ldunga borgarinnar \u00e1 \u00feingsta\u00f0inn \u00ed borgarhli\u00f0inu. \u00de\u00e1 skulu \u00feau segja vi\u00f0 \u00f6ldunga borgarinnar: \u201e\u00deessi sonur okkar er \u00ferj\u00f3skur og \u00f3d\u00e6ll og hl\u00fd\u00f0ir ekki \u00e1minningum okkar. Hann er b\u00e6\u00f0i \u00f3nytjungur og svallari.\u201c \u00de\u00e1 skulu allir karlmenn \u00ed borginni gr\u00fdta hann til bana. \u00de\u00fa skalt uppr\u00e6ta hi\u00f0 illa \u00far \u00fej\u00f3\u00f0 \u00feinni. Allur \u00cdsrael skal fr\u00e9tta \u00feetta svo a\u00f0 \u00feeir \u00f3ttist.\u201c (<a href=\"http:\/\/biblian.is\/default.asp?action=pick&amp;book=4&amp;chap=21\">5. M\u00f3seb\u00f3k, 21, 18-21<\/a>.\u00a0 <i>Bibl\u00edan<\/i> \u00e1 s\u00ed\u00f0u Hins \u00edslenzka bibl\u00eduf\u00e9lags.). \u00cd <i>Gu\u00f0brandsbibl\u00edu<\/i>, \u00fatg. 1584, er \u00fe\u00fd\u00f0ingin a\u00f0eins \u00f6\u00f0ru v\u00edsi og segja foreldrarnir \u00f6ldungunum a\u00f0 hann s\u00e9 \u201eeinn \u00f6lsvelgur og drykkjud\u00e1ri\u201c. \u201eOg \u00fe\u00fa skalt so \u00ed burt skilja hi\u00f0 vonda fr\u00e1 \u00fe\u00e9r.\u201c (<i><a href=\"http:\/\/baekur.is\/is\/bok\/000036975\/Biblia\">Biblia: \u00dead Er \u00d8ll Heil\u00f3g Ritning : vtl\u00f3gd a Norr\u00e6nu<\/a><\/i>, s. 194 [190], \u00e1 <i>B\u00e6kur.is<\/i>.) \u00dea\u00f0 v\u00e6ri einkar \u00e1hugavert a\u00f0 vita hva\u00f0 hebresku or\u00f0in \u00ed frumtextanum \u00fe\u00fd\u00f0ir n\u00e1kv\u00e6mlega.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deetta telur \u00edsraelski ge\u00f0l\u00e6knirinn Bernard Mordechai Rotenberg a\u00f0 s\u00e9 l\u00fdsing \u00e1 si\u00f0blindum. Hann r\u00f6ksty\u00f0ur m\u00e1l sitt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 ekki s\u00e9 einungis tala\u00f0 um \u00f3hl\u00fd\u00f0inn og uppreisnargjarnan son heldur s\u00e9 heg\u00f0un hans tengd drykkjuskap, \u00f3nytjungsh\u00e6tti og \u00ferj\u00f3sku sem tengist einmitt n\u00fat\u00edmal\u00fdsingu (\u00fe.e. 1971) \u00e1 si\u00f0blindu. Rotenberg vitnar \u00ed \u00fdmsa sk\u00fdrendur og \u00fatleggendur \u00feessara l\u00f6gm\u00e1la, s.s. Philo Judaeus (20 f.Kr. &#8211; 40 e.Kr.) sem var heimpekingur og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed Alexandr\u00edu og taldi \u00ferj\u00f3ska soninn \u201elei\u00f0toga \u00ed gu\u00f0leysi\u201c og t\u00falka\u00f0i s\u00f6gu hans \u00edtarlega. Sama t\u00f6ldu Josefus Flavius (38-100 e. Kr.) og Talmud sk\u00fdrendur \u00e1 1.-6. \u00f6ld. [Talmud eru sk\u00fdringar rabb\u00edna \u00e1 l\u00f6gm\u00e1linu, <i>Torah\/<\/i> <i>Fimmb\u00f3karitinu<\/i>]. En Maimonides (1135-1204), einn \u00feekktasti \u00fatleggjandi og t\u00falkandi Talmud og gy\u00f0inglegra laga taldi \u00fej\u00f3fna\u00f0 tengdan gr\u00e6\u00f0gi e\u00f0a a\u00f0 l\u00e1ta stj\u00f3rnast af l\u00f6ngun. Hugsanlega hafi hinir fyrrnefndu \u00e1liti\u00f0 \u201e\u00ferj\u00f3ska soninn\u201c einungis s\u00fdna pers\u00f3nuleikavandam\u00e1l en Maimonides og fylgimenn hans s\u00e9\u00f0 hann sem samf\u00e9lagslegt vandam\u00e1l a\u00f0 auki. \u00cd \u00feessum sk\u00fdringum \u00f6llum s\u00e9 auglj\u00f3st a\u00f0 bibl\u00eduhugtaki\u00f0 \u201e\u00ferj\u00f3ski sonurinn\u201c eigi vi\u00f0 alvarlegustu heg\u00f0unareinkenni hugsanlegs gl\u00e6pamanns. \u00c1 t\u00edmum Gamla testamentisins sk\u00fdr\u00f0i \u201efl\u00e1ttskapur\u201c e\u00f0a \u201eillska\u201c gl\u00e6psamlega heg\u00f0un. \u00de\u00e1 var aftaka eina \u00e1hrifar\u00edka fyrirbyggjandi me\u00f0fer\u00f0in gegn illsku: \u201e\u00de\u00fa skalt uppr\u00e6ta hi\u00f0 illa \u00far \u00fej\u00f3\u00f0 \u00feinni.\u201c Rotenberg telur eftirtektarvert a\u00f0 b\u00e6\u00f0i Talmud og n\u00fat\u00edma ge\u00f0l\u00e6kningar leggi \u00e1herslu \u00e1 \u00f3umbreytanlega, \u00f3lei\u00f0r\u00e9ttanlega n\u00e1tt\u00faru \u00feessa \u00e1stands.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">2<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Annar fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur, George Stein,\u00a0telur sig hafa fundi\u00f0 l\u00fdsingu \u00e1 si\u00f0blindum \u00ed <i>Or\u00f0skvi\u00f0unum<\/i>, 6. kafla:<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<table cellPadding=\"5\" cellSpacing=\"10\" border=\"0\" width=\"90%\">\n<tr>\n<td vAlign=\"top\" width=\"40%\"><font size=\"-1\">Varmenni\u00f0, illmenni\u00f0, talar tveimur tungum,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">deplar augunum, gefur merki me\u00f0 f\u00f3tunum<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">bendir fingrunum,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">bruggar v\u00e9lr\u00e1\u00f0 \u00ed hjarta s\u00ednu,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00e1formar \u00f3d\u00e6\u00f0i, kveikir illdeilur.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00dev\u00ed mun \u00f3g\u00e6fan steypast yfir hann,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00e1 augabrag\u00f0i kemur hrun hans<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og ekkert er til bjargar.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Sex hluti hatar Drottinn<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og sj\u00f6 eru s\u00e1lu hans andstygg\u00f0:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">hrokafullt augnar\u00e1\u00f0, lygin tunga<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og hendur sem \u00fathella saklausu bl\u00f3\u00f0i,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">hjarta sem bruggar fj\u00f6rr\u00e1\u00f0,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">f\u00e6tur sem fr\u00e1ir eru til illverka,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">lj\u00fagvottur sem sver meins\u00e6ri<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og s\u00e1 sem kveikir illdeilur me\u00f0al br\u00e6\u00f0ra.<\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><i><a href=\"http:\/\/biblian.is\/default.asp?action=pick&amp;book=19&amp;chap=6\">Or\u00f0skvi\u00f0irnir<\/a><\/i> \u00ed <i>Bibl\u00edunni<\/i> \u00e1 s\u00ed\u00f0u Hins \u00edslenzka bibl\u00eduf\u00e9lags.<\/font><\/td>\n<td vAlign=\"top\"><font size=\"-1\">Eirn Skaalkur er skadsamligur\/ hann geingur med a rangsnunum Munne\/<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">bender me\u00f0 Augunum\/\u00a0 teiknar me\u00f0 Footunum \/<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">vijsar me\u00f0 Fingrunum\/\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Stundar auallt nocku\u00f0 illt og fraleitt \u00ed sijnu Hiarta \/\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og kiemur upp me\u00f0 \u00fer\u00e6tur.\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00dear fyrer mun hans Ohamingia a\u00f0 honum ou\u00f8rum koma\/<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">hann mun hastarliga sundurmarenn ver\u00f0a\/\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">suo \u00fear ver\u00f0ur eingen Hialp.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00deessa Sex Hlute hatar DROTTIN\/\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og hinn si\u00f8unde er fyrer honum andstyggeligur\/<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Drambs\u00f6m Augu\/ Falska Tungu\/\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Hendur \u00fe\u00e6r e\u00f0 uthella saklausu Blode\/<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Hiarta \u00fea\u00f0 sem omgeingur me\u00f0 vondum Hreckium\/\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">F\u00e6tur \u00fea sem flioter eru til ska\u00f0r\u00e6\u00f0es\/\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Fals Vott \u00feann sem diarfliga framber Lyge.\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Og hann sem er Br\u00e6dra a medal Reiser sundur\u00feycke.<\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><\/i><\/font><font size=\"-1\"><i><a href=\"http:\/\/baekur.is\/is\/bok\/000036975\/Biblia\">Biblia: \u00dead Er \u00d8ll Heil\u00f3g Ritning : vtl\u00f3gd a Norr\u00e6nu<\/a><\/i>, s. 573 [569], \u00e1 B\u00e6kur.is.<\/font><\/td>\n<\/tr>\n<\/table>\n<p><font size=\"-1\">Stein vitnar \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ipr\u00f3fessorinn McKane sem skrifa\u00f0i a\u00f0 \u201eeesh belial\u201c (varmenni\u00f0\/sk\u00e1lkurinn) v\u00e6ri s\u00e1 sem ey\u00f0ir fremur en s\u00e1 sem er einskis n\u00fdtur (ein or\u00f0sifjask\u00fdring \u00e1 \u201ebelial\u201c er \u201es\u00e1 sem er einskis n\u00fdtur\/ einskis vir\u00f0i\u201c). \u00cd honum b\u00fdr dj\u00fapst\u00e6\u00f0 illska. Hann er haldinn \u00fer\u00e1hyggju um a\u00f0 ska\u00f0a me\u00f0br\u00e6\u00f0ur s\u00edna. Hann kveikir illdeilur og or\u00f0 hans hafa ey\u00f0andi rei\u00f0i logandi elds. (<i>Proverbs: A New Approach<\/i>; 1970, SCM Press) \u00deessi l\u00fdsing <i>Bibl\u00edunnar<\/i> \u00e1 \u201ebelial\u201c fellur fellur vel a\u00f0 \u00e1r\u00e1s\u00e1rgj\u00f6rnum si\u00f0blindum manni.<\/font><font size=\"-1\">Flest af einkennum DSM-IV sta\u00f0alsins yfir andf\u00e9laglega pers\u00f3nuleikar\u00f6skun m\u00e1 finna \u00ed \u00feessari l\u00fdsingu. Rabb\u00ednarnir t\u00falku\u00f0u or\u00f0i\u00f0 <i>belial<\/i> \u00feannig a\u00f0 <i>beli<\/i> \u00fe\u00fdddi \u201e\u00e1n\u201c og <i>Ya-al<\/i> \u00fe\u00fdddi \u201eok\u201c, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 <i>belial<\/i> er s\u00e1 sem lifir \u00e1n helsis <i>Torah<\/i> (hinna heil\u00f6gu gy\u00f0inglegu laga). \u00cd DSM-IV er einmitt tala\u00f0 um s\u00edendurteki\u00f0 tillitsleysi og brot \u00e1 r\u00e9tti annarra. Anna\u00f0 sem greiningarlykilinn nefnir er a\u00f0 geta ekki haga\u00f0 s\u00e9r \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 norm samf\u00e9lagsins, sviksemi, hvatv\u00edsi, pirring\u00a0 og \u00e1r\u00e1sargirni, skort \u00e1 eftirsj\u00e1 o.s.fr.\u00a0 L\u00edklega eru fimm af sj\u00f6 megineinkennum andf\u00e9lagslegrar pers\u00f3nuleikar\u00f6skunar skv. skilgreiningu DSM-IV\u00a0 nefnd e\u00f0a gefin \u00ed skyn \u00ed \u00feessum bibl\u00edutexta. Textinn er reyndar styttri (93 or\u00f0) en samtantekt DSM-IV \u00e1 ASPD (127 or\u00f0). Si\u00f0blind pers\u00f3nuleikar\u00f6skun hl\u00fdtur a\u00f0 hafa veri\u00f0 alvarlegt vandam\u00e1l \u00ed \u00cdsrael til forna \u00far henni eru ger\u00f0 svo g\u00f3\u00f0 skil \u00ed <i>Bibl\u00edunni<\/i>, segir Georg Stein.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">3<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd sk\u00e1ldskap hafa menn tali\u00f0 \u00fdmislegt til l\u00fdsingu si\u00f0blindra \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina, t.d. <i>\u00de\u00fasund og eina n\u00f3tt<\/i>, \u00fear sem Shahryar s\u00e1 sem l\u00e9t l\u00edfl\u00e1ta eiginkonur s\u00ednar eftir br\u00fa\u00f0kaupsn\u00f3ttina, er talinn si\u00f0blindur. \u00cd <i>Kantaraborgars\u00f6gum<\/i> Chaucers (1340?-1400) \u00feykjast menn sj\u00e1 l\u00fdsingar \u00e1 si\u00f0blindum, einkum \u00ed :<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<table cellPadding=\"7\" cellSpacing=\"10\" border=\"0\" width=\"90%\">\n<tr>\n<td vAlign=\"top\"><font size=\"-1\">What, trowe ye, that whiles I may preche,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">And wynne gold and silver for I teche,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">That I wol lyve in poverte wilfully?<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Nay, nay, I thoghte it nevere, trewwly!<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">For I wol preche and begge in sondry landes;<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">I wol nat do no labour with myne handes,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Ne make baskettes, and lyve therby,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">By cause I wol nat beggen ydelly.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">I wol noon of the apostles countrefete;<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">I wol have moneie, wolle, chese, and whete,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Al were it yeven of the povereste page,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Or of the povereste wydwe in a village,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Al sholde hir children sterve for famyne.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Nay, I wol drynke licour of the vyne,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">And have a joly wenche in every toun.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">But herkneth, lordynges, in conclusioun &#8212;<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Youre likyng is that I shal telle a tale.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Now have I dronke a draughte of corny ale,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">By god, I hope I shal yow telle a thyng<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">That shal be reson been at youre likyng.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">For though myself be a ful vicious man,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">A moral tale yet I yow telle kan,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Which I am wont to preche for to wynne.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><font size=\"-1\">Geoffrey Chaucer. \u201e<a href=\"http:\/\/quod.lib.umich.edu\/cgi\/t\/text\/text-idx?c=cme;idno=CT;rgn=div2;view=text;cc=cme;node=CT%3A6.3\">The Pardoner&#8217;s Prologue<\/a>\u201c, l\u00ednur 439-460.\u00a0 <i>The Canterbury tales<\/i><\/font><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/pardoner.jpg?resize=150%2C162\" alt=\"Afl\u00e1tssalinn\" align=\"middle\" height=\"162\" width=\"150\" \/><\/td>\n<td vAlign=\"top\"><font size=\"-1\">\u201eHva\u00f0! haldi\u00f0 \u00fei\u00f0 virkilega a\u00f0 me\u00f0an \u00e9g predika\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og \u00e1vinn m\u00e9r gull og silfur me\u00f0 r\u00e6\u00f0um m\u00ednum,\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00fe\u00e1 vilji \u00e9g endilega b\u00faa vi\u00f0 f\u00e1t\u00e6kt?\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Nei, nei! \u00dea\u00f0 hefur m\u00e9r aldrei dotti\u00f0 \u00ed hug!\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00c9g vil predika og betla hvar sem \u00e9g kem.\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00c9g vil ekki vinna me\u00f0 h\u00f6ndunum,\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">e\u00f0a ri\u00f0a k\u00f6rfur eins og heilagur P\u00e1ll,\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00feegar betli\u00f0 gefur svona miki\u00f0 af s\u00e9r!\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00c9g fylgi ekki d\u00e6mi postulanna;\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00e9g vil peninga, ull, og ost, og hveiti,\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">jafnvel \u00fe\u00f3tt f\u00e1t\u00e6kasti vikastr\u00e1kurinn l\u00e1ti \u00fea\u00f0 af hendi\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">e\u00f0a \u00f6rsnau\u00f0asta ekkjan \u00ed \u00feorpinu &#8211;\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">r\u00e9tt sama \u00fe\u00f3 b\u00f6rnin hennar s\u00e9u a\u00f0 farast \u00far hungri!\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Nei, \u00e9g vil drekka v\u00ednberjasafa*\u00a0\u00a0\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og \u00ed hverju pl\u00e1ssi er snotur hn\u00e1ta!\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">En heyri\u00f0 mig, lagsmenn g\u00f3\u00f0ir, n\u00fa \u00ed lokin:\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00fei\u00f0 \u00f3ski\u00f0 eftir \u00e9g segi ykkur s\u00f6gu, og \u00ed Himnaf\u00f6\u00f0urs [svo!] nafni,\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">fyrst \u00e9g hef n\u00fa fengi\u00f0 dreitil af malt\u00f6li,\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00fe\u00e1 vona \u00e9g a\u00f0 geta sagt ykkur s\u00f6gu\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">sem hugnast!\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">M\u00e1 vera \u00e9g s\u00e9 syndumspilltur ma\u00f0ur,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">en \u00e9g get \u00fe\u00f3 sagt ykkur uppbyggilega s\u00f6gu &#8211;\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">eina af \u00feeim sem \u00e9g predika \u00ed hagna\u00f0arvon.\u201c<\/font><font size=\"-1\">* [\u201elicour of the vyne\u201c \u00ed frumtexta, vir\u00f0ist afar \u00f3n\u00e1kv\u00e6mt \u00fe\u00fdtt]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201eInngangur a\u00f0 s\u00f6gu afl\u00e1tssala\u201c. <i>Kantaraborgars\u00f6gur<\/i>, s. 243. Erlingur E. Halld\u00f3rsson \u00fe\u00fdddi. M\u00e1l og menning 2003. \u00de\u00fd\u00f0ing Erlings er sett upp \u00ed pr\u00f3sa en \u00e9g ra\u00f0a\u00f0i textanum upp til samr\u00e6mis vi\u00f0 frumtexta.<\/font><\/td>\n<\/tr>\n<\/table>\n<p>\u00a0<font size=\"-1\">\u00c1 s\u00ed\u00f0unni \u201e<a href=\"http:\/\/en.wikibooks.org\/wiki\/Transwiki:Fictional_portrayals_of_psychopaths_in_literature\">Fictional portrayals of psychopaths in literature<\/a>\u201c \u00e1\u00a0 <i>Transwiki<\/i>, <i>Wikipedia<\/i>,\u00a0 er talinn upp fj\u00f6ldi fleiri d\u00e6ma \u00far evr\u00f3pskum en einkum engilsaxneskum b\u00f3kmenntum.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n<b><font size=\"-1\">Si\u00f0blinda \u00ed \u00edslenskum b\u00f3kmenntum<\/font><\/b><\/p>\n<p><strong><\/strong><strong><\/strong><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/egill.jpg?resize=150%2C180\" alt=\"Egill Skallagr\ufffdmsson\" align=\"left\" height=\"180\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">\u00cd \u00edslenskum\u00a0b\u00f3kmenntum hefur si\u00f0blindu enginn gaumur veri\u00f0 gefinn. N\u00e6sta auglj\u00f3st er \u00fe\u00f3 a\u00f0 Egill Skallagr\u00edmsson uppfyllir b\u00e6\u00f0i greiningarlykil Hare og DSM-IV, l\u00edklega einnig ICD-10, til a\u00f0 teljast verulega si\u00f0blindur. \u00deetta er a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti eftirtektarvert a\u00f0 Egill er eina a\u00f0alpers\u00f3na \u00cdslendingasagna sem ekki er einhli\u00f0a (t\u00fdpa) heldur margbrotin pers\u00f3na. \u00dea\u00f0 er vitaskuld erfitt a\u00f0 sj\u00fakd\u00f3msgreina einstaklinga eftir s\u00f6gulegum heimildum, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 sk\u00e1ldskap, en Egill er \u00fea\u00f0 sk\u00fdrt d\u00e6mi a\u00f0 \u00e9g nefni hann s\u00e9rstaklega.Hann s\u00fdnir feikileg heg\u00f0unarvandr\u00e6\u00f0i sem barn og unglingur og kemur \u00fe\u00e1 strax fram a\u00f0 hann er algerlega samviskulaus. \u00cd grimmdarverkum bl\u00f6skrar m\u00f6nnum hans, t.d. \u00ed fer\u00f0inni \u00e1 K\u00farlandi, og k\u00f6llu\u00f0u v\u00edkingar \u00fe\u00f3 ekki allt \u00f6mmu s\u00edna \u00ed \u00feeim efnum. Kaldlyndi og \u00e1girnd eru r\u00edkjandi \u00fe\u00e6ttir \u00ed fari Egils. \u00cd \u00feau f\u00e1u skipti \u00ed <em>Egils s\u00f6gu<\/em> sem hann vir\u00f0ist sorgm\u00e6ddur m\u00e1 allt eins t\u00falka \u00feau d\u00e6mi sem gremju yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann f\u00e6r ekki \u00fea\u00f0 sem hann telur a\u00f0 s\u00e9r beri, hvort sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00c1sger\u00f0i, b\u00e6tur eftir br\u00f3\u00f0ur sinn e\u00f0a f\u00e9 Lj\u00f3ts hins bleika. \u00deegar Egill missir son sinn og kemst \u00ed mikla ge\u00f0shr\u00e6ringu er allt eins l\u00edklegt a\u00f0 hann s\u00e9 fj\u00fakandi rei\u00f0ur yfir a\u00f0 hafa misst erfingja enda \u00feoldi hann ekki hinn son sinn, fri\u00f0saman og s\u00e1ttf\u00fasan \u00deorstein. Sonatorrek, hi\u00f0 fr\u00e6ga kv\u00e6\u00f0i sem raunar er \u00f3v\u00edst hvort hafi fylgt <i>Egils s\u00f6gu<\/i> fr\u00e1 upphafi, er a\u00f0allega \u00e1sakanir \u00e1 hendur \u00d3\u00f0ni fyrir a\u00f0 hafa svipt Egil erfingja. Undir lok s\u00f6gunnar, \u00feegar Egill er \u00f6rvasa gamalmenni, er hann jafngrimmur og fyrr, drepur tvo \u00fer\u00e6la og felur silfur sitt til a\u00f0 enginn f\u00e1i noti\u00f0 \u00feess, sem er n\u00e1tt\u00farlega \u00e1g\u00e6tt d\u00e6mi um \u00fe\u00e1 sj\u00e1lfselsku og eiginhagsmunasemi sem einkennir si\u00f0blinda<b>.<\/b><\/font><b><sup><font size=\"-2\">4<\/font><\/sup><\/b> <strong><sup><\/sup><\/strong><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 spurning hva\u00f0a \u00e1lyktanir um \u00feekkingu \u00edslenskra mi\u00f0aldamanna \u00e1 si\u00f0blindum m\u00e1 af l\u00fdsingu Egils draga. En m\u00e9r finnst l\u00edklegt a\u00f0 h\u00f6fundur <i>Egils s\u00f6gu<\/i> hafi haft n\u00e1in kynni af si\u00f0blindum einstaklingi og stu\u00f0st vi\u00f0 \u00feau \u00ed samningu <i>Eglu<\/i>. Si\u00f0blinda er me\u00f0f\u00e6dd pers\u00f3nuleikar\u00f6skun og \u00fev\u00ed l\u00edklegt a\u00f0 h\u00fan l\u00fdsi s\u00e9r\u00a0svipa\u00f0 \u00e1 mismunandi skei\u00f0um s\u00f6gunnar og vi\u00f0 mismunandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri einkar spennandi a\u00f0 sko\u00f0a d\u00e6mi um l\u00fdsingar pers\u00f3na og heg\u00f0un \u00feeirra \u00ed veraldlegum samt\u00ed\u00f0ars\u00f6gum me\u00f0 tilliti til si\u00f0blindu, t.d. <i>Sturlungu<\/i> (einkum <i>\u00cdslendingas\u00f6gu<\/i> Sturlu \u00de\u00f3r\u00f0arsonar) \u00fev\u00ed m\u00f6rgum \u00feykja \u00fe\u00e6r rauns\u00e6jar og \u00fe\u00e6r eru skrifa\u00f0ar \u00e1 svipu\u00f0um t\u00edma og atbur\u00f0ir henda.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Norski ge\u00f0l\u00e6knirinn Jon Geir H\u00f8yersten hefur skrifa\u00f0 um pers\u00f3nuleikaraskanir \u00ed \u00cdslendingas\u00f6gunum og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega <i>Brennu-Nj\u00e1ls s\u00f6gu<\/i>. Hann segir, \u00ed vi\u00f0tali, um Hallger\u00f0i langbr\u00f3k: \u201eHallger\u00f0ur var einstaklega afbr\u00fd\u00f0is\u00f6m kona og l\u00e9t stj\u00f3rnast af \u00feeim kenndum. H\u00fan var einnig gr\u00e1\u00f0ug og b\u00e6\u00f0i vildi og reyndi a\u00f0 komast yfir \u00fea\u00f0 sem a\u00f0rir \u00e1ttu og m\u00e1tu &#8230; H\u00fan var mj\u00f6g sj\u00e1lfhverf og hugsa\u00f0i fyrst og fremst um eigin hagsmuni en \u00fea\u00f0 eru l\u00fdsandi einkenni si\u00f0blindu (e. sociopathy) e\u00f0a Narkissisma.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">5<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">\u00c9g hef ekki a\u00f0gang a\u00f0 grein sem H\u00f8yersten hefur skrifa\u00f0 um efni\u00f0 en m\u00e9r \u00feykir \u00feessi si\u00f0blindugreining hans \u00e1 Hallger\u00f0i d\u00e1l\u00edti\u00f0 vafas\u00f6m \u00feegar haft er \u00ed huga hj\u00f3naband hennar og Gl\u00fams. \u00c1 hinn b\u00f3ginn kemur langr\u00e6kni, sem margir telja a\u00f0 einkenni si\u00f0blinda, pr\u00fd\u00f0ilega fram \u00ed s\u00ed\u00f0ustu samskiptum \u00feeirra Gunnars \u00e1 Hl\u00ed\u00f0arenda og ekki \u00fearf a\u00f0 leita lengi a\u00f0 d\u00e6mum um ruddalega og sj\u00e1lfselska heg\u00f0un Hallger\u00f0ar.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af \u00fev\u00ed n\u00fa n\u00e1lgast p\u00e1skar m\u00e1 rifja upp Pass\u00edus\u00e1lma sr. Hallgr\u00edms P\u00e9turssonar. \u00dear er ekki minnst \u00e1 si\u00f0blindu. En skv. l\u00faterskri gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i ver\u00f0a menn a\u00f0 vi\u00f0urkenna og j\u00e1ta syndir s\u00ednar og veikleika. Me\u00f0 i\u00f0run ver\u00f0ur mannss\u00e1lin m\u00f3tt\u00e6kileg fyrir n\u00e1\u00f0 og huggun. Hallgr\u00edmur var vel a\u00f0 s\u00e9r \u00ed sinnar t\u00ed\u00f0ar gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i og \u00ed Pass\u00edus\u00e1lmunum kemur fram a\u00f0 i\u00f0run, \u00fe.e. h\u00e6fileikinn til eftirsj\u00e1r, s\u00e9 gu\u00f0s gj\u00f6f og ekki \u00f6llum gefin, \u00fe.e. ekki \u00e1 valdi einstaklingins.\u00a0Kannski hefur sr. Hallgr\u00edmur kynnst m\u00f6nnum sem ekki g\u00e1tu fundi\u00f0 til eftirsj\u00e1r? M\u00e9r finnst \u00e1hugavert a\u00f0 sko\u00f0a \u00feessi tv\u00f6 erindi \u00far 12 Pass\u00edus\u00e1lmi me\u00f0 si\u00f0blindu \u00ed huga:<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<table cellPadding=\"10\" cellSpacing=\"10\" border=\"0\" width=\"70%\">\n<tr>\n<td>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">20.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Ekki er \u00ed sj\u00e1lfs vald sett,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">sem nokkrir meina,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">yfirb\u00f3t, i\u00f0run r\u00e9tt<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">og tr\u00fain hreina.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<\/td>\n<td><font size=\"-1\">21.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Hendi \u00feig hr\u00f6sun br\u00e1\u00f0,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">sem helgan P\u00e9tur,<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">undir Gu\u00f0s \u00e1ttu n\u00e1\u00f0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">hvort i\u00f0rast getur.<\/font><\/p>\n<blockquote><\/blockquote>\n<\/td>\n<\/tr>\n<\/table>\n<p><font size=\"-1\">Af seinni t\u00edma \u00edslenskum b\u00f3kmenntum er freistandi a\u00f0 benda \u00e1 Bjart \u00ed Sumarh\u00fasum sem, eins og Egill Skallagr\u00edmsson, er algerlega si\u00f0blind pers\u00f3na, sko\u00f0a\u00f0 \u00fat fr\u00e1 helstu greiningarlyklum si\u00f0blindu. Bjartur er samviskulaus og hugsar einungis um eigin hag, sem kristallast \u00ed \u00f3sk hans um kindur \u00e1 f\u00e6ti. Hann er til \u00ed a\u00f0 f\u00f3rna fj\u00f6lskyldu sinni fyrir eign. S\u00fa eina pers\u00f3na sem Bjartur vir\u00f0ist bera einhverjar taugar til er \u00c1sta S\u00f3llilja. En \u00fea\u00f0 kemur ekki \u00ed veg fyrir a\u00f0 hann \u00e1reiti hana kynfer\u00f0islega \u00e1 barnsaldri og reki hana barnunga a\u00f0 heiman. Eiginlega er \u00c1sta S\u00f3llilja eign\/hlutur \u00ed augum Bjarts, hi\u00f0 eina sem hann hefur geta\u00f0 n\u00e1\u00f0 fr\u00e1 Rau\u00f0sm\u00fdrarf\u00f3lkinu. Tilfinningar hans, anna\u00f0 en \u00f3sk um eignarhald, vir\u00f0ast rista grunnt. Til a\u00f0 lokka \u00c1stu S\u00f3llilju aftur til s\u00edn er Bjartur til \u00ed a\u00f0 leggja \u00fdmislegt \u00e1 sig svo sem a\u00f0 \u201eyrkja n\u00fat\u00edmalj\u00f3\u00f0\u201c.\u00a0 \u00cd lok \u00feessarar miklu s\u00f6gu hefur Bjartur ekkert breyst og lemur enn hausnum vi\u00f0 steininn \u00ed sinni meintu sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isbar\u00e1ttu. Bjartur er \u00ed rauninni sk\u00f3lab\u00f3kard\u00e6mi um uppreisnarmann \u00e1n m\u00e1lsta\u00f0ar.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">6<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g hef ekki hugmynd um hvort Halld\u00f3r Laxness vissi miki\u00f0 um psykopati \u00feegar hann skrifa\u00f0i <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/em>, sem kom \u00fat 1934-1935. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri au\u00f0vita\u00f0 gaman a\u00f0 kanna hva\u00f0 leynist \u00ed b\u00f3ksafninu \u00e1 Glj\u00fafrasteini. En Halld\u00f3r var afar g\u00f3\u00f0ur mann\u00feekkjari og eiginlega er \u00f3m\u00f6gulegt anna\u00f0 en \u00edmynda s\u00e9r a\u00f0 hann hafi haft lifandi fyrirmynd a\u00f0 Bjarti, si\u00f0blindan mann sem hann hafi kynnst nokku\u00f0 vel e\u00f0a fylgst vel me\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r hl\u00e1legt hvernig sumir hafa gert andhetjuna hinn si\u00f0blinda\u00a0 Bjart a\u00f0 s\u00ednu \u00e1tr\u00fana\u00f0argo\u00f0i og fyrirmynd allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an <i>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk<\/i> kom \u00fat. Sj\u00e1lfur \u00e1 Halld\u00f3r Laxness a\u00f0 hafa kalla\u00f0 Bjart \u00feurs og afglapa.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">7<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Me\u00f0 aukinni reyfarmenningu h\u00e9r \u00e1 landi hafa birst fleiri si\u00f0blindingjar. Af\u00a0 gl\u00e6n\u00fdjum b\u00f3kum m\u00e1 nefna <i>\u00c9g man \u00feig<\/i> eftir Yrsu Sigur\u00f0ard\u00f3ttur, \u00fear sem ein a\u00f0alpers\u00f3nan hefur si\u00f0blindugreiningu og hagar s\u00e9r \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0, og <i>Snj\u00f3blindu<\/i> Ragnars J\u00f3nassonar, \u00fear sem ein a\u00f0alpers\u00f3nan er greinilega sk\u00f6pu\u00f0 me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af n\u00fdjustu si\u00f0blinduumfj\u00f6llun. B\u00e1\u00f0ar \u00feessar b\u00e6kur komu \u00fat fyrir s\u00ed\u00f0ustu j\u00f3l (2010).<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/sidblinda\/andres.jpg?resize=150%2C91\" alt=\"Andr\u00e9s \u00d6nd\" align=\"left\" height=\"91\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">A\u00f0 lokum skal minnst \u00e1 \u00e1hugaver\u00f0a (en e.t.v. umdeilda) greiningu \u00e1 fr\u00e6gri teiknimyndapers\u00f3nu, Andr\u00e9si \u00d6nd: \u201eVi\u00f0 pers\u00f3nuleikagreiningu \u00e1 Andr\u00e9si komu eftirfarandi \u00fe\u00e6ttir \u00ed lj\u00f3s: Hann er skapbr\u00e1\u00f0ur, latur, svikull, frekur, \u00fej\u00f3f\u00f3ttur og afskaplega mikill heigull. Hann er vondur vi\u00f0 b\u00f6rn og \u00e1 stundum einnig grimmur vi\u00f0 d\u00fdr. Andr\u00e9s er samkv\u00e6mt \u00feessum einkennum haldinn si\u00f0blindu e\u00f0a sociopathy.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">8<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><strong><sup><\/sup><\/strong><\/p>\n<p><strong><sup><\/sup><\/strong><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<hr width=\"100%\" \/><font size=\"-2\">1 \u00dee\u00f3frastos. <i>Mannger\u00f0ir<\/i>. \u00cdslensk \u00fe\u00fd\u00f0ing eftir Gottsk\u00e1lk \u00de\u00f3r Jensson sem einnig ritar inngang. Hi\u00f0 \u00edslenzka b\u00f3kmenntaf\u00e9lag, Reykjav\u00edk 2007. Kaflinn um blyg\u00f0unarleysi er nr. IX,\u00a0 \u00e1 s. 92-93.<\/font><font size=\"-2\">\u00cd eftirm\u00e1la segir Gottsk\u00e1lk: \u201e\u00d6nnur v\u00edsbendingin er fr\u00e1 ofanver\u00f0ri sautj\u00e1ndu \u00f6ld: \u00cd b\u00f3kasafni Brynj\u00f3lfs Sveinssonar biskups \u00ed Sk\u00e1lholti var samkv\u00e6mt b\u00f3kaskr\u00e1 fr\u00e1 \u00e1rinu 1674 (<i>AM 281 fol<\/i>) eitt st\u00f3rt bindi (f\u00f3l\u00ed\u00f3) me\u00f0 verkum \u00dee\u00f3frastosar, <i>Theophrasti opera, gr\u00e6ce<\/i>. \u00datg\u00e1fan, sem helst vir\u00f0ist geta falli\u00f0 l\u00fdsingunni \u00e1 b\u00f3k Brynj\u00f3lfs, er <i>Theophastri Opera<\/i> fr\u00e1 \u00e1rinu 1541 (Basel), eitt bindi \u00ed f\u00f3l\u00ed\u00f3 me\u00f0 gr\u00edska textanum \u00e1n latneskrar \u00fe\u00fd\u00f0ingar. \u00dear \u00ed hafa og veri\u00f0 fimmt\u00e1n fyrstu mannger\u00f0irnar, en ekki er \u00fear me\u00f0 sagt hvort nokkur \u00cdslendingur hafi lesi\u00f0 \u00fe\u00e6r.\u201c (s. 178).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Teikningin er eftir Francis Howell. \u00deessar teikningar birtust upphaflega \u00ed enskri \u00fatg\u00e1fu, <i>The Characters of Theophrastos<\/i>, London 1824. \u00cd undirtitli \u00feeirrar \u00fatg\u00e1fu segir a\u00f0 b\u00f3kin s\u00e9 \u201eskreytt lyndislestrarmyndum\u201c (illustrated by phsysiognomical sketches) og kve\u00f0st Howell teikna \u00fe\u00e6r \u00ed lj\u00f3si \u00e1ralangrar athuganir \u00e1 andlitsfalli og skapger\u00f0 manna. (s.189)<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">2 Rotenberg, Bernard Mordechai. 1971. \u201eThe Biblical Conception of Psychopathy: The Law of the Stubborn and Rebellious Son\u201c. <i>Journal of the History of Behavioral Sciences<\/i>. 7.\u00e1rg. 1. tbl. 1971, s. 29-38.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">3 Stein, George. 2009. \u201e<a href=\"http:\/\/bjp.rcpsych.org\/cgi\/content\/full\/194\/1\/33\">Was the scoundrel (belial) of the Book of Proverbs a psychopath? &#8211; psychiatry in the Old Testament<\/a>\u201c. <i>The British Journal of Psychiatry<\/i> 194. \u00e1rg. 1.tbl. 2009, s. 33.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">4 \u00d3ttar Gu\u00f0mundsson ge\u00f0l\u00e6knir hefur greint Egil Skallagr\u00edmsson me\u00f0 \u201ege\u00f0hvarfas\u00fdki me\u00f0 alvarlegum \u00feunglyndist\u00edmabilum og t\u00edmabundnu ofl\u00e6ti.\u201c \u00d3ttar Gu\u00f0mundsson. <i>Kleppur \u00ed 100 \u00e1r<\/i>. JPV \u00fatg\u00e1fa 2007, s. 10. \u00c9g er ekki ge\u00f0l\u00e6knir en hef kennt <i>Egils s\u00f6gu<\/i> \u00e1 a\u00f0 giska 40 sinnum og finnst \u00feessi greining afar h\u00e6pin. Torfi H. Tulinius hefur skrifa\u00f0 talsvert um <i>Egils s\u00f6gu<\/i>, \u00fe.\u00e1.m. b\u00f3kina <i>Sk\u00e1ldi\u00f0 \u00ed skriftinni &#8211; Snorri Sturluson og Egils saga<\/i>.\u00a0 Hi\u00f0 \u00edslenska b\u00f3kmenntaf\u00e9lag 2004. Torfi kemst a\u00f0 \u00feeirri meginni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 <i>Egils saga <\/i>s\u00e9 sk\u00e1ldsaga sem Snorri hafi skrifa\u00f0 sem nokkurs konar yfirb\u00f3t og byggt \u00e1 \u00e6vi sinni; \u201eSnorri hafi me\u00f0 s\u00f6gunni vilja\u00f0 b\u00e6ta fyrir \u00fe\u00e6r syndir sem hann dr\u00fdg\u00f0i \u00ed deilum s\u00ednum vi\u00f0 Sighvat br\u00f3\u00f0ur sinn og Sturlu son hans. Hann hafi s\u00e9\u00f0 hlutskipti sitt og Egils \u00ed lj\u00f3si s\u00f6gu Gamla testamentisins af Dav\u00ed\u00f0 konungi. Allir \u00fer\u00edr hafi misst frumbur\u00f0 sinni og t\u00falka\u00f0 \u00fea\u00f0 sem refsingu fyrir a\u00f0 hafa lagt \u00e1 r\u00e1\u00f0 um dau\u00f0a sinna n\u00e1nustu keppinauta.\u201c (<a href=\"http:\/\/www.hib.is\/index.php?s=bokaflokkar&amp;bok=50\">Kynning \u00e1 b\u00f3kinni \u00e1 s\u00ed\u00f0u Hins \u00edslenska b\u00f3kmenntaf\u00e9lags<\/a>.) \u00c9g hef s\u00f6mu sko\u00f0un \u00e1 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um Torfa og ge\u00f0greiningu \u00d3ttars. Sj\u00e1lf \u00f3f \u00e9g fyrir margt l\u00f6ngu vef um <em>Egils s\u00f6gu<\/em> \u00fear sem m.a. m\u00e1 finna s\u00ed\u00f0u \u00fear sem einkenni andf\u00e9lagslegrar pers\u00f3nuleikar\u00f6skunar eru m\u00e1ta\u00f0ar vi\u00f0 Egil, sj\u00e1 \u201e<a href=\"http:\/\/www.fva.is\/harpa\/egla\/egill\/egillaspd.htm\">Var Egill andf\u00e9lagslegur pers\u00f3nuleiki?<\/a>\u201c, samin 2000. \u00deessi s\u00ed\u00f0a er barn s\u00edns t\u00edma og eftir si\u00f0blindup\u00e6lingar undanfari\u00f0 myndi \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 greina Egil eftir g\u00e1tlista Hare og kenningum annarra fr\u00e6\u00f0imanna um si\u00f0blindu.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">5 \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=270785&amp;pageId=3858670&amp;lang=is&amp;q=sociopathy\">Pers\u00f3nuleikaraskanir \u00ed Nj\u00e1lu<\/a>\u201c. <i>Fr\u00e9ttabla\u00f0i\u00f0<\/i> 13. \u00e1g\u00fast 2005, s. 20<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">6 \u201e&#8230; hinn si\u00f0blindi er uppreisnarma\u00f0ur \u00e1n m\u00e1lsta\u00f0ar, p\u00f3lit\u00edskur \u00e6singama\u00f0ur \u00e1n slagor\u00f0s, byltingarma\u00f0ur \u00e1n \u00e1\u00e6tlunar; me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um, uppreisn hans er \u00ed \u00fev\u00ed augnami\u00f0i a\u00f0 n\u00e1 takmarki sem einungis \u00fej\u00f3nar honum einum; hann er \u00f3f\u00e6r um a\u00f0 leggja sig fram \u00ed annarra \u00fe\u00e1gu. \u00d6ll fyrirh\u00f6fn hans, skiptir ekki m\u00e1li hva\u00f0a gervi h\u00fan kl\u00e6\u00f0ist, er til \u00feess ger\u00f0 a\u00f0 uppfylla stundar\u00fearfir hans og \u00f3skir.\u201c\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Lindner, Robert M. 1944. <i>Rebel Without a Cause: The Hypnoanalysis of a Criminal Psychopath<\/i>. <a href=\"http:\/\/books.google.com\/books?id=hjLMgdId0t4C&amp;printsec=frontcover&amp;dq=%22Rebel+Without+a+Cause%22&amp;hl=is&amp;ei=y8-LTbTkIsbOhAeWxY21Cw&amp;sa=X&amp;oi=book_result&amp;ct=book-preview-link&amp;resnum=1&amp;ved=0CCcQuwUwAA#v=onepage&amp;q&amp;f=false\">\u00datg\u00e1fa Other Press, LLC, 2003 er a\u00f0gengileg \u00e1 <i>B\u00e6kur Google<\/i><\/a>. Ath. a\u00f0 kvikmyndin <i>Rebel Without a Cause <\/i>\u00e1 ekkert sameiginlegt me\u00f0 \u00feessari b\u00f3k nema titilinn.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">7 Illugi J\u00f6kulsson. 2009. \u201e<a href=\"http:\/\/www.dv.is\/blogg\/tresmidja\/2009\/8\/21\/grein-skrimslid-i-sumarhusum\/\">Grein: Skr\u00edmsli\u00f0 \u00ed Sumarh\u00fasum.\u201c <\/a>F\u00e6rsla 21. \u00e1g\u00fast 2009 \u00e1 <i>Tr\u00e9smi\u00f0ju<\/i>, bloggi Illuga.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">8. Matth\u00edas Matth\u00edasson, nemi \u00ed s\u00e1lfr\u00e6\u00f0i. \u00dar <i>Samf\u00e9lagst\u00ed\u00f0indum<\/i>, bla\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0inema \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, 12, 1992. Birtist \u00ed \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=256230&amp;pageId=3566585&amp;lang=is&amp;q=sociopathy\">Hver ertu, Andr\u00e9s?<\/a>\u201c\u00a0 <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> 11. j\u00fan\u00ed 2004, s. 6.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>31. des. 2011: \u00c9g hef ofi\u00f0 si\u00f0blinduf\u00e6rslurnar og \u00e6tti a\u00f0 vera \u00fe\u00e6gilegra a\u00f0 sko\u00f0a efni\u00f0 \u00e1 vef heldur en \u00ed \u00feessu bloggumhverfi. Sl\u00f3\u00f0in er: http:\/\/sidblinda.com \u00de\u00f3famj\u00fak r\u00e1nd\u00fdr sem l\u00e6\u00f0ast: Si\u00f0blinda VI hluti \u00cd \u00feessari f\u00e6rslu <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/03\/25\/sidblinda-i-fraedum-truarritum-og-bokmenntum\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-332","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/332","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=332"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/332\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=332"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=332"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=332"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}