{"id":339,"date":"2011-04-18T01:04:07","date_gmt":"2011-04-18T01:04:07","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-18\/facebook-godsagnir-og-notkun\/"},"modified":"2011-04-18T01:04:07","modified_gmt":"2011-04-18T01:04:07","slug":"facebook-godsagnir-og-notkun","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/04\/18\/facebook-godsagnir-og-notkun\/","title":{"rendered":"Facebook, go\u00f0sagnir og notkun"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g hef undanfari\u00f0 lesi\u00f0 bloggi\u00f0 hennar Evu Haukdsd\u00f3ttur, <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.norn.is\/sapuopera\/\" title=\"S\u00e1pu\u00f3pera Evu Hauksd\u00f3ttur\"><em>S\u00e1pu\u00f3peru<\/em><\/a>, m\u00e9r til mikillar \u00e1n\u00e6gju. \u00dev\u00ed fer fjarri a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 alltaf samm\u00e1la henni en h\u00fan skrifar\u00a0\u00e1kaflega g\u00f3\u00f0an texta \u00a0og sko\u00f0ar oftast m\u00e1l fr\u00e1 \u00fdmsum hli\u00f0um. S\u00ed\u00f0ustu tv\u00e6r f\u00e6rslur Evu fjalla um <em>Facebook<\/em>, annars vegar &#8220;<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.norn.is\/sapuopera\/2011\/04\/u_ert_me_naugara_a_vinalistanu.html\" title=\"Nau\u00f0gari \u00e1 vinalista\">\u00de\u00fa ert me\u00f0 nau\u00f0gara \u00e1 vinalistanum \u00fe\u00ednum<\/a>&#8221; og hins vegar &#8220;<a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.norn.is\/sapuopera\/2011\/04\/er_facebook_a_gera_okkur_sjalf.html\" title=\"facebook sj\u00e1lfhverfari\">Er facebook a\u00f0 gera okkur sj\u00e1lfhverfari?<\/a>&#8221; \u00cd \u00feeirri s\u00ed\u00f0arnefndu v\u00edsar h\u00fan \u00ed h\u00f6fundarlausan pistil \u00e1 <em>R\u00f3strum<\/em>, &#8220;<a href=\"http:\/\/rostur.org\/allt\/frettir\/tengsl-milli-sjalfsdyrkunar-og-facebook-notkunar\">Tengsl milli sj\u00e1lfsd\u00fdrkunar og Facebook-notkunar<\/a>&#8220;. Loks s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 S\u00f6lvi Tryggvason r\u00e6r \u00e1 s\u00f6mu mi\u00f0 enda heldur hann sig au\u00f0vita\u00f0 \u00ed \u00feeim umr\u00e6\u00f0uefnum sem hann telur \u00ed t\u00edsku hverju sinni, \u00ed pistlinum &#8220;<a href=\"http:\/\/www.pressan.is\/pressupennar\/LesaSolvaTryggvason\/fall-fesbokar\" title=\"Fall f\u00e9sb\u00f3kar\">Fall F\u00e9sb\u00f3kar<\/a>&#8221; \u00ed dag en S\u00f6lvi stenst n\u00e1tt\u00farlega engan veginn samanbur\u00f0 vi\u00f0 Evu og er \u00ed rauninni \u00f3\u00fearfi a\u00f0 lesa \u00fe\u00e1 stuttu bullf\u00e6rslu. H\u00fan minnir mj\u00f6g \u00e1 b\u00f6ls\u00fdnisraddir um a\u00f0 interneti\u00f0 v\u00e6ri bara b\u00f3la og \u00ed versta falli til \u00f3\u00feurftar, sem heyr\u00f0ust v\u00ed\u00f0a laust fyrir 1990, h\u00e9r \u00e1 landi. Kannski eru or\u00f0 g\u00f6mlu fr\u00faarinnar \u00ed <em>Downtown Abbey<\/em> (var a\u00f0 horfa \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00fe\u00e1ttinn \u00e1 danska, \u00ed dag): &#8220;Fyrst kemur rafmagni\u00f0, svo s\u00edmi; M\u00e9r finnst \u00e9g vera pers\u00f3na \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu eftir H.G. Wells!&#8221; d\u00e1l\u00edti\u00f0 l\u00fdsandi\u00a0fyrir vi\u00f0horf S\u00f6lva, \u00a0fyrrum andst\u00e6\u00f0inga internetsins og b\u00e6nda \u00feegar leggja \u00e1tti s\u00edmal\u00ednur for\u00f0um.\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/hundur_feisbok.jpg?resize=199%2C213\" alt=\"Hundur \u00e1 FB\" align=\"left\" height=\"213\" width=\"199\" \/>Svo vi\u00f0 byrjum \u00e1 <em>R\u00f3stur<\/em>-greininni \u00fe\u00e1 hefst h\u00fan svona: &#8220;Facebook-notendur eru almennt \u00fathverfari og uppfullari af sj\u00e1lfs\u00e1st en \u00feeir sem ekki nota s\u00ed\u00f0una samkv\u00e6mt ranns\u00f3kn sem ger\u00f0 var \u00ed \u00c1stral\u00edu, en ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur hennar voru ger\u00f0ar opinberar \u00ed t\u00edmaritinu <em>Computers in Human Behavior<\/em> n\u00fa \u00e1 d\u00f6gunum.&#8221; M\u00e1lfari\u00f0 gefur strax t\u00f3ninn um g\u00e6\u00f0i greinarinnar (\u00fe\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 ekki m\u00e1lfarsfasisti a\u00f0 upplagi \u00fe\u00e1 \u00feekki \u00e9g or\u00f0i\u00f0 unglinga\u00fe\u00fd\u00f0ingar hvort sem Pjattr\u00f3furnar e\u00f0a a\u00f0rir standa a\u00f0 \u00feeim). \u00d6nnur gullkorn fylgja flj\u00f3tlega: &#8220;Spurningar sn\u00e9ru a\u00f0 \u00fe\u00e1ttum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00fathverfu, ge\u00f0feldni, vandvirkni, taugaveiklunar og opins huga gagnvart \u00fev\u00ed a\u00f0 upplifa n\u00fdja reynslu. Einnig tilhneigingar til sj\u00e1lfsd\u00fdrkunar, feimni, einmannaleika, og a\u00f0 lokum \u00fev\u00ed sem einkenndi Facebook-notkun hvers og eins.&#8221;<\/p>\n<p>\u00c9g k\u00edkti \u00e1 ranns\u00f3knina sj\u00e1lfa, &#8220;<a href=\"http:\/\/www.sciencedirect.com\/science?_ob=ArticleURL&amp;_udi=B6VDC-52BF9F4-1&amp;_user=712601&amp;_coverDate=03%2F08%2F2011&amp;_rdoc=1&amp;_fmt=high&amp;_orig=gateway&amp;_origin=gateway&amp;_sort=d&amp;_docanchor=&amp;view=c&amp;_searchStrId=1721441944&amp;_rerunOrigin=scholar.google&amp;_acct=C000039782&amp;_version=1&amp;_urlVersion=0&amp;_userid=712601&amp;md5=040536a7902f029c30b4c68ec14ec24a&amp;searchtype=a\" title=\"Ranns\u00f3kn \u00e1 Facebook notkun\">Who uses Facebook? An investigation into the relationship between the Big Five, shyness, narcissims, loneliness, and Facebook usage<\/a>&#8221; og s\u00e1 a\u00f0 greinarh\u00f6fundur <em>R\u00f3stra<\/em> var ekki bara illa m\u00e1li farinn \u00ed\u00a0s\u00ednu m\u00f3\u00f0urm\u00e1li\u00a0heldur illa f\u00e6r um a\u00f0 skilja enskan texta \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 sem eftir er haft er sumt rangt og sumt oft\u00falka\u00f0.\u00a0T.d. eru h\u00f6fundarnir ekki pr\u00f3fessorar heldur \u00f6nnur d\u00f3sent og hin nemandi. Og \u00feetta er ekki einst\u00e6\u00f0 ranns\u00f3kn af \u00fev\u00ed flestar svona ranns\u00f3knir hafi veri\u00f0 unnar af h\u00e1sk\u00f3lanemum \u00e1\u00f0ur heldur vegna \u00feess a\u00f0 notendah\u00f3par sem hafa veri\u00f0 rannsaka\u00f0ir hafa oftast veri\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lanemar. \u00cd \u00feessari ranns\u00f3kn var hluti \u00fartaksins utan h\u00e1sk\u00f3la og eldra f\u00f3lk en h\u00e1sk\u00f3lanemar (\u00ed h\u00f3punum var f\u00f3lk \u00e1 aldrinum 18-44 \u00e1ra).<\/p>\n<p>Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur rannsakenda eru varlega or\u00f0a\u00f0ar, bent er \u00e1\u00a0a\u00f0 \u00fartaki\u00f0 hafi veri\u00f0 afar l\u00edti\u00f0 og a\u00f0 val \u00fe\u00e1tttakenda kunni a\u00f0 hafa veri\u00f0 mislukka\u00f0; jafnvel hafi menn logi\u00f0\u00a0til a\u00f0\u00a0komast a\u00f0 \u00ed ranns\u00f3kninni. Jafnframt\u00a0s\u00e9 h\u00e6tta \u00e1 a\u00f0\u00a0v\u00e6gi \u00feeirra sem nota interneti\u00f0 s\u00e9rstaklega miki\u00f0 hafi veri\u00f0 of h\u00e1tt \u00ed ranns\u00f3kninni \u00fev\u00ed allir \u00fe\u00e1tttakendur voru valdir af netinu. A\u00f0 v\u00edsu kom fram a\u00f0 \u00feeir sem hafa s\u00e9rstaklega sterka sj\u00e1lfsd\u00fdrkunarpers\u00f3nuleikadr\u00e6tti nota FB umfram a\u00f0ra\u00a0en bent var \u00e1 a\u00f0 \u00feeir \u00feekkust vel \u00far af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir leggi ofur\u00e1herslu \u00e1 myndbirtingar. Feimi\u00f0 f\u00f3lk reyndist ekki nota FB meir en hver annar en f\u00f3lk sem skora\u00f0i h\u00e1tt \u00e1 hugs\u00fdkiskvar\u00f0a (h\u00f6fundur \u00ed <em>R\u00f3strum<\/em> kallar \u00fea\u00f0 taugaveikla\u00f0)\u00a0sko\u00f0a\u00f0i FB meir en a\u00f0rir, oft \u00e1n beinnar \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00e1 FB. Einsemd me\u00f0al \u00feeirra sem ekki notu\u00f0u FB m\u00e6ldist meiri en einsemd \u00feeirra sem notu\u00f0u FB. O.s.fr.\u00a0\u00dea\u00f0 sem einkum\u00a0stingur \u00ed augu \u00ed \u00feessari\u00a0ranns\u00f3kn sem\u00a0s\u00fdndi &#8220;sl\u00e1andi ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur&#8221;, a\u00f0 mati <em>R\u00f3stra<\/em>pennans, er a\u00f0 \u00fartaki\u00f0 var einungis 1158 FB-notendur og 166 manns sem ekki notu\u00f0u FB. Leikma\u00f0ur eins og \u00e9g setur st\u00f3rt spurningarmerki vi\u00f0 f\u00e1menni\u00f0, einkum \u00ed samanbur\u00f0arh\u00f3pnum, og spyr hvort \u00feetta geti m\u00f6gulega talist markt\u00e6k ranns\u00f3kn.<\/p>\n<p>\u00c9g hef samt litlar \u00e1hyggjur af unglingunum sem lepja vitlaust upp ranns\u00f3knarni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur og greina ekki milli vel og illa unninna ranns\u00f3kna \u00fev\u00ed hver les svo sem <em>R\u00f3stur<\/em>?<\/p>\n<p>Eva Hauksd\u00f3ttir veltir upp m\u00f6rgum spurningum \u00ed sambandi vi\u00f0 \u00feessa grein og vitnar \u00ed eigin FB, \u00fear sem henni gengur illa a\u00f0 finna \u00e1berandi sj\u00e1lfsd\u00fdrkendur e\u00f0a &#8220;taugaveikla\u00f0&#8221; li\u00f0. \u00c9g hugsa a\u00f0 \u00e9g myndi lenda \u00ed s\u00f6mu vandr\u00e6\u00f0um. Aftur \u00e1 m\u00f3ti nota \u00e9g sj\u00e1lf FB miki\u00f0 vegna einangrunar og papp\u00edrslega s\u00e9\u00f0 fell \u00e9g undir &#8220;taugaveikla\u00f0a&#8221; f\u00f3lki\u00f0 (vegna sj\u00fakd\u00f3msins \u00feunglyndis) \u00fe\u00f3tt \u00e9g telji mig fremur \u00fathverfan pers\u00f3nuleika a\u00f0 \u00f6llu j\u00f6fnu (vonandi samt ekki me\u00f0 sj\u00e1lfsd\u00fdrkunarpers\u00f3nuleikar\u00f6skun). Auglj\u00f3slega notar f\u00f3lk sem ekki kemst \u00fat \u00far h\u00fasi d\u00f6gum, vikum e\u00f0a m\u00e1nu\u00f0um saman \u00feau verkf\u00e6ri sem bj\u00f3\u00f0ast til a\u00f0 eiga samskipti vi\u00f0 f\u00f3lk. Auk \u00feess \u00e1 \u00e9g oft erfitt me\u00f0 tal, s\u00e9rstaklega \u00ed s\u00edma, \u00feegar \u00e9g er miki\u00f0 lasin.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/hundur_kottur.jpg?resize=178%2C182\" alt=\"Hundur \u00e1 kattalista\" align=\"left\" height=\"182\" width=\"178\" \/>Hin f\u00e6rslan hennar Evu, &#8220;\u00de\u00fa ert me\u00f0 nau\u00f0gara \u00e1 vinalistanum \u00fe\u00ednum&#8221; fannst m\u00e9r enn betri. \u00dear er annars vegar fjalla\u00f0 um vinalista &#8211; hins vegar hi\u00f0 \u00e1hugaver\u00f0a sj\u00f3narmi\u00f0 a\u00f0 suma gl\u00e6pi megi fyrirgefa e\u00f0a a.m.k. l\u00edta fram hj\u00e1 (s\u00fdna miskunnsemi)\u00a0eftir a\u00f0 afpl\u00e1nun l\u00fdkur en a\u00f0rir fyrnist aldrei \u00ed huga f\u00f3lks. \u00c9g er mj\u00f6g samm\u00e1la umfj\u00f6llun Evu en finnst \u00fe\u00f3 a\u00f0 h\u00fan gleymi \u00e1kve\u00f0num hluta f\u00f3lks, cyberpaths, \u00fe.e. si\u00f0blindum, sem eignast hafa v\u00ed\u00f0ar vei\u00f0ilendur me\u00f0 tilkomu samskiptas\u00ed\u00f0na \u00e1 netinu, ekki hva\u00f0 s\u00edst FB.<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e9 ekkert \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0 hafa kynfer\u00f0isafbrotamann e\u00f0a ofbeldismann \u00e1 m\u00ednum vinalista ef \u00e9g er viss um a\u00f0 vi\u00f0komandi hefur i\u00f0rast og afpl\u00e1na\u00f0 og s\u00e9 \u00f3l\u00edklegur til a\u00f0 endurtaka leikinn. Oft stafar gl\u00e6purinn af stj\u00f3rnleysi sem fylgir fyller\u00edi e\u00f0a v\u00edmuefnamisnotkun, eins og Eva bendir \u00e1, og fyllibyttur geta or\u00f0i\u00f0 \u00e1g\u00e6tis manneskjur \u00feegar \u00fe\u00e6r ver\u00f0a edr\u00fa og n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 l\u00edfi s\u00ednu.<\/p>\n<p>\u00d6\u00f0ru m\u00e1li gegnir um si\u00f0blinda. \u00c9g k\u00e6ri mig ekki um a\u00f0 skaffa \u00e1litlegan vinkonulista sem svolei\u00f0is menn geta nota\u00f0 til a\u00f0 h\u00fakka n\u00e6sta f\u00f3rnarlamb. Eini kosturinn vi\u00f0\u00a0si\u00f0blinda er\u00a0a\u00f0 \u00feeir eru svo f\u00e1ir, um e\u00f0a innan vi\u00f0 1% af k\u00f6rlum, miklu f\u00e6rri konur og\u00a0\u00fe\u00f3tt \u00feeir sv\u00edfist einskis\u00a0er au\u00f0velt a\u00f0 sj\u00e1 vi\u00f0 \u00feeim \u00feekki ma\u00f0ur einkennin, \u00fev\u00ed trixin eru \u00feau s\u00f6mu og a\u00f0fer\u00f0ir afar fyrirsj\u00e1anlegar. Gallinn er s\u00e1 a\u00f0 af \u00fev\u00ed svo l\u00edti\u00f0 hefur veri\u00f0 tala\u00f0 um \u00feessa alvarlegu ge\u00f0r\u00f6skun h\u00e9r \u00e1 landi vara sennilega f\u00e1ir \/ f\u00e1ar konur sig \u00e1\u00a0mannger\u00f0inni.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/blogg_nytt\/illgirni.jpg?resize=198%2C125\" alt=\"Illgirni \u00e1 FB\" align=\"right\" height=\"125\" width=\"198\" \/>Talandi um vini: \u00c9g hef \u00fe\u00e1 stefnu a\u00f0\u00a0halda \u00ed tilt\u00f6lulega f\u00e1a vini (talan 99 er \u00f3skatala). Um daginn t\u00f3k \u00e9g til og\u00a0eyddi uppundir 40 manns af listanum. \u00deetta var\u00a0f\u00f3lk af \u00fdmsu tagi, t.d. f\u00f3lk sem \u00e9g \u00feekkti\u00a0l\u00edti\u00f0 sem ekkert og haf\u00f0i aldrei nein samskipti vi\u00f0, f\u00f3lk sem var a\u00f0 drekkja m\u00e9r \u00ed r\u00f3sum og leikf\u00f6ngum og\u00a0\u00f6\u00f0ru FB-drasli, f\u00f3lk sem skrifa\u00f0i\u00a0\u00f3tal statusa \u00e1 dag um\u00a0\u00e6seif e\u00f0a hneykslisf\u00e6rslur um hva\u00f0 \u00feessi e\u00f0a hinn stj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0urinn, lei\u00f0toginn,\u00a0verkal\u00fd\u00f0sforinginn e\u00f0a bara einhver \u00ed fr\u00e9ttum \u00feann daginn\u00a0v\u00e6ri heimskur, spilltur o.s.fr., \u00fe.e. f\u00f3lk sem virtist hafa einstaklega neikv\u00e6\u00f0a s\u00fdn \u00e1 l\u00edfi\u00f0 og vera afar uppteki\u00f0 af\u00a0\u00fev\u00ed a\u00f0 hneykslast \u00e1 \u00f6\u00f0rum. S\u00ed\u00f0arnefnda h\u00f3pnum fylgdi s\u00ed\u00f0an\u00a0i\u00f0ulega dr\u00e6sa af kommenterum sem stundum f\u00f3ru langt langt yfir striki\u00f0 \u00ed skikkanlegri framkomu. \u00c9g hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 ef \u00e9g s\u00e6ktist eftir svonal\u00f6gu\u00f0u\u00a0g\u00e6ti \u00e9g n\u00e1tt\u00farlega\u00a0alveg eins legi\u00f0 yfir f\u00e9sb\u00f3karkommentum vi\u00f0 <em>DV<\/em> &#8220;fr\u00e9ttir&#8221;, moggabloggum um fr\u00e9ttir e\u00f0a sk\u00edtkast kommentera\u00a0\u00e1\u00a0<em>Eyjunni<\/em>. E\u00f0a lesi\u00f0 <em>DV<\/em>-blogg. Og af \u00fev\u00ed \u00e9g s\u00e6kist ekki eftir illm\u00e6lgi s\u00e9rstaklega \u00fe\u00e1\u00a0kasta\u00f0i \u00e9g \u00feessum vinum fyrir r\u00f3\u00f0a. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir hins vegar ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi ekki minnast \u00e1 p\u00f3lit\u00edk\u00a0svo \u00e9g sj\u00e1i \u00e1 minni FB. \u00dea\u00f0 sem skiptir m\u00e1li er hvernig \u00fea\u00f0 er gert.<\/p>\n<p>\u00c9g var or\u00f0in hundlei\u00f0 \u00e1 a\u00f0 skruna kannski meir en skj\u00e1fylli ni\u00f0ur f\u00e9sb\u00f3kina m\u00edna \u00e1 morgnana til a\u00f0 reyna a\u00f0 finna eitthva\u00f0 sem mig langa\u00f0i a\u00f0 lesa e\u00f0a kommentera vi\u00f0, einhvers sta\u00f0ar innan um drasli\u00f0. Svo \u00fea\u00f0 var grisja\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g h\u00e9lt eftir fj\u00f6lbreyttum h\u00f3pi FB-vina; \u00e6ttingjum, g\u00f3\u00f0um vinum, fyndnu f\u00f3lki, f\u00f3lki sem\u00a0m\u00e9r finnst \u00e9g eiga eitthva\u00f0 sameiginlegt me\u00f0, f\u00f3lki sem m\u00e9r finnst gaman a\u00f0 vera \u00f3samm\u00e1la, f\u00f3lki sem \u00e9g \u00feekki \u00ed kj\u00f6theimum og f\u00f3lki sem er einstaklega j\u00e1kv\u00e6tt og gle\u00f0ur mig oft me\u00f0 j\u00e1kv\u00e6\u00f0ri l\u00edfss\u00fdn \u00fe\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 ekki samm\u00e1la \u00feeim um alla hluti. F\u00f3lki\u00f0 sem \u00e9g \u00e1 sitthva\u00f0 sameiginlegt me\u00f0 er ekkert endilega fyndi\u00f0, or\u00f0heppi\u00f0 e\u00f0a j\u00e1kv\u00e6tt en \u00fea\u00f0 er n\u00fa vegna \u00feess a\u00f0\u00a0margir\u00a0\u00feeirra hafa\u00a0sinn dj\u00f6ful a\u00f0 draga. \u00dea\u00f0 f\u00f3lk er rauns\u00e6tt og gefur m\u00e9r miki\u00f0.<\/p>\n<p>Ein fyrrum FB-vinkona m\u00edn (sem m\u00e9r fannst sj\u00e1lf oft skemmtileg en \u00feessi kommenterahir\u00f0 \u00ed kringum hana hef\u00f0i gert d\u00fdrling a\u00f0 gr\u00e1tkonu e\u00f0a p\u00faka!) benti \u00e1 a\u00f0 ma\u00f0ur g\u00e6ti &#8220;fali\u00f0&#8221; vini sem ma\u00f0ur vildi ekki sj\u00e1 st\u00f6\u00f0uuppf\u00e6rslur fr\u00e1. \u00deeir sem eiga yfir \u00fe\u00fasund vini, jafnvel m\u00f6rg \u00fe\u00fasund, hlj\u00f3ta a\u00f0 gr\u00edpa til einhverra svolei\u00f0is r\u00e1\u00f0a. \u00deetta a\u00f0 &#8220;fela&#8221; vini minnti mig svol\u00edti\u00f0 \u00e1 \u00f3hreinu b\u00f6rnin hennar Evu. \u00c1tti \u00e9g a\u00f0 eiga fullan f\u00e9sb\u00f3karsk\u00e1p af \u00e1lfum? M\u00e9r finnst \u00feetta d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00f3hei\u00f0arleg a\u00f0fer\u00f0 en sj\u00e1lfsagt eru margir \u00f3samm\u00e1la m\u00e9r um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>En hver sn\u00ed\u00f0ur s\u00edna FB a\u00f0 s\u00ednum \u00fe\u00f6rfum. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert a\u00f0 vera a\u00f0 v\u00e6la yfir hvernig FB er, hvort \u00fear s\u00e9u a\u00f0allega sj\u00e1lfhverfir, \u00fathverfir sj\u00e1lfsd\u00fdrkendur, taugaveikla\u00f0, einmana f\u00f3lk e\u00f0a a\u00f0 ma\u00f0ur geti ekki losna\u00f0 vi\u00f0 f\u00e9sb\u00f3kina s\u00edna nema brj\u00f3ta t\u00f6lvuna. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert a\u00f0 v\u00e6la yfir a\u00f0 ma\u00f0ur eigi svo marga vini a\u00f0 aldrei s\u00e9 neitt bitast\u00e6tt a\u00f0 finna \u00e1 f\u00e9sb\u00f3kinni manns. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert a\u00f0 p\u00f3sta br\u00e9f \u00fat og su\u00f0ur til a\u00f0 tilkynna einhverju f\u00f3lki a\u00f0 \u00fea\u00f0\u00a0geymi \u00f3\u00e6skilegan vin \u00ed s\u00ednu vinasafni. \u00dea\u00f0 eina sem ma\u00f0ur getur gert er a\u00f0 passa s\u00edna eigin FB, velja s\u00e9r s\u00edna eigin vini og leyfa \u00f6\u00f0rum a\u00f0 lifa s\u00ednu FB l\u00edfi eins og hverjum og einum finnst r\u00e9ttast.<\/p>\n<p>Alveg eins og ma\u00f0ur passar sitt eigi\u00f0 blogg og sinn eigin t\u00f6lvup\u00f3st. Af hverju \u00e6tti anna\u00f0 a\u00f0 gilda um Facebook?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef undanfari\u00f0 lesi\u00f0 bloggi\u00f0 hennar Evu Haukdsd\u00f3ttur, S\u00e1pu\u00f3peru, m\u00e9r til mikillar \u00e1n\u00e6gju. \u00dev\u00ed fer fjarri a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 alltaf samm\u00e1la henni en h\u00fan skrifar\u00a0\u00e1kaflega g\u00f3\u00f0an texta \u00a0og sko\u00f0ar oftast m\u00e1l fr\u00e1 \u00fdmsum hli\u00f0um. S\u00ed\u00f0ustu <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/04\/18\/facebook-godsagnir-og-notkun\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-339","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/339","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=339"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/339\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=339"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=339"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=339"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}