{"id":342,"date":"2011-04-30T13:36:39","date_gmt":"2011-04-30T13:36:39","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-30\/a-skaganum-%e2%80%9ehafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki%e2%80%9c\/"},"modified":"2011-04-30T13:36:39","modified_gmt":"2011-04-30T13:36:39","slug":"a-skaganum-hafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/04\/30\/a-skaganum-hafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki\/","title":{"rendered":"\u00c1 Skaganum \u201ehafa aldrei b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c"},"content":{"rendered":"<p><b><font size=\"-1\">Saga S\u00f6gu Akraness I<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Undanfarna viku hef \u00e9g reynt a\u00f0 setja mig inn \u00ed <strong>s\u00f6guna s\u00edskrifu\u00f0u<\/strong>, \u00fe.e.a.s. reynt a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 hvers vegna b\u00e6jarf\u00e9lagi\u00f0 mitt hefur eytt \u00f3m\u00e6ldu f\u00e9 \u00ed a\u00f0 l\u00e1ta endurskrifa sama hluta s\u00f6gu Akraness aftur og aftur. \u00deetta er fl\u00f3kin saga sem \u00e9g reyni a\u00f0 gera skil \u00ed nokkrum bloggf\u00e6rslum. Enn eru ekki \u00f6ll kurl komin til grafar \u00ed heimilda\u00f6flun en \u00e9g reikna me\u00f0 a\u00f0 geta skrifa\u00f0 f\u00e6rslurnar sm\u00e1m saman &#8230; ekki \u00e1 sautj\u00e1n \u00e1rum heldur \u00e1 n\u00e6stu vikum. En byrja au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 byrjuninni. \u00deessum f\u00e6rslum er safna\u00f0 \u00ed s\u00e9rstakan f\u00e6rsluflokk, sem sj\u00e1 m\u00e1 \u00e1 flokkalista h\u00e9r til h\u00e6gri. Fyrirs\u00f6gn \u00feessarar fyrstu f\u00e6rslu er a\u00f0 hluta tilvitnun \u00ed fyrirlestur Hallgr\u00edms hreppstj\u00f3ra J\u00f3nssonar.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/kort_landnam.jpg?resize=300%2C175\" alt=\"Landn\u00e1m Bresasona\" align=\"left\" height=\"175\" width=\"300\" \/><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er upphaf \u00feessa m\u00e1ls a\u00f0 Ketill og \u00deorm\u00f3\u00f0ur Bresasynir n\u00e1mu land \u00ed kringum Akrafjall og af fr\u00e6ndum \u00feeirra, fylgdarli\u00f0i og afkomendum fer nokkrum s\u00f6gum en n\u00e6sta f\u00e1um af \u00feeim sj\u00e1lfum. [Myndin s\u00fdnir landn\u00e1m \u00feeirra br\u00e6\u00f0ra, sem afmarka\u00f0ist af Urri\u00f0a\u00e1 og Kalmans\u00e1. Rau\u00f0a brotal\u00ednan s\u00fdnir hvernig \u00feeir skiptu landinu milli s\u00edn.] M\u00e6tti me\u00f0 g\u00f3\u00f0um vilja kalla sumt af \u00feessum fornu s\u00f6gum \u201es\u00f6gu Akraness\u201c \u00fev\u00ed nessins og n\u00e1nasta umhverfis er geti\u00f0 \u00e1 st\u00f6ku sta\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er ekki \u00fe\u00f3 efni \u00feessarar umfj\u00f6llunar a\u00f0 t\u00edna saman brot \u00far fornritum. S\u00f6mulei\u00f0is sleppi \u00e9g yfirleitt a\u00f0 geta einstakra greina og \u00fe\u00e1tta sem hafa veri\u00f0 skrifu\u00f0 um s\u00f6gu Akraness en tek fram a\u00f0 margt af sl\u00edku efni er lj\u00f3mandi gott og vel unni\u00f0. Hugmyndir um a\u00f0 skrifa s\u00e9rstaka s\u00f6gu b\u00e6jarins Akraness og sv\u00e6\u00f0isins \u00ed kring koma ekki fram fyrr en talsvert er li\u00f0i\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Hallgr\u00edmur hreppstj\u00f3ri og fyrirlestur hans<\/font><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/hallgrimur_hreppstjori.jpg?resize=100%2C126\" alt=\"Hallgr\ufffdmur hreppstj\u00f3ri J\u00f3nsson\" align=\"right\" height=\"126\" width=\"100\" \/><font size=\"-1\">\u00de\u00f3 vir\u00f0ist nokkur hef\u00f0 komin \u00e1 a\u00f0 telja fyrirlestur Hallgr\u00edms hreppstj\u00f3ra J\u00f3nssonar, fluttan 1889, um l\u00edfi\u00f0 \u00e1 Skaganum s\u00ed\u00f0astli\u00f0in 100 \u00e1r, sem fyrsta innlegg \u00ed s\u00f6gu Akraness. [Myndin er af Hallgr\u00edmi hreppstj\u00f3ra.] \u00dear sag\u00f0i Hallgr\u00edmur m.a. um sagnaf\u00e1t\u00e6kt af \u00feessu \u00fatnesi: \u201e<b>\u00deetta fr\u00e1s\u00f6guleysi er l\u00edka e\u00f0lilegt, \u00fev\u00ed h\u00e9r hafa aldrei b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki &#8211; en einstakir menn og \u00fej\u00f3\u00f0irnar hefja b\u00e6ina og l\u00f6ndin. Sem sagt, hafa aldrei \u00e1 Skaganum veri\u00f0 fram yfir mi\u00f0ja \u00feessa \u00f6ld, neinir menn, sem kve\u00f0i\u00f0 hefur a\u00f0. Enginn l\u00e6r\u00f0ur ma\u00f0ur, hvorki til munns n\u00e9 handa, enginn emb\u00e6ttisma\u00f0ur b\u00fai\u00f0 \u00fear, ekki svo miki\u00f0 sem presturinn, ekkert sk\u00e1ld, sem pl\u00e1ssi\u00f0 hef\u00f0i geta\u00f0 bori\u00f0 minjar um \u00ed b\u00e6jarr\u00edmu e\u00f0a formannav\u00edsum, e\u00f0a nokkrar ritsm\u00ed\u00f0ar sem getandi s\u00e9<\/b>.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">1<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Kannski er \u00f6ll s\u00ed\u00f0ari t\u00edma vinna vi\u00f0 ritun s\u00f6gu Akraness \u00ed og me\u00f0 til a\u00f0 hrekja \u00feessa kenningu Hallgr\u00edms hreppstj\u00f3ra?<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">H\u00e9ra\u00f0ssaga Borgarfjar\u00f0ar<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd kringum 1935 var unni\u00f0 a\u00f0 ritun H\u00e9ra\u00f0ss\u00f6gu Borgarfjar\u00f0ar af miklum metna\u00f0i.\u00a0 \u00dat komu tv\u00f6 bindi me\u00f0 \u00fdmsum \u00fe\u00e1ttum eftir marga h\u00f6funda og hi\u00f0 \u00feri\u00f0ja fjalla\u00f0i um sk\u00f3lann \u00e1 Hvanneyri. \u00c1forma\u00f0 var a\u00f0 fjalla s\u00e9rstaklega um s\u00f6gu Akraness, \u201eS\u00f6gu Akraness og v\u00e6ntanlega utan Skar\u00f0shei\u00f0ar er n\u00fa veri\u00f0 a\u00f0 safna til og skr\u00e1, og eru l\u00edkur til, a\u00f0 h\u00fan, komi \u00e1 s\u00ednum t\u00edma \u00fat sem sj\u00e1lfst\u00e6tt bindi h\u00e9ra\u00f0ss\u00f6gunnar.\u201c (<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=55993&amp;pageId=997724&amp;lang=is&amp;q=S\u00f6gu Akraness\">Kristinn Stef\u00e1nsson \u00ed <i>T\u00edmanum<\/i> 7. ma\u00ed 1936<\/a>) e\u00f0a ver\u00f0i a.m.k. \u201elangur \u00fe\u00e1ttur og fr\u00f3\u00f0legur\u201c (<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pubId=132&amp;lang=is\">Kr. \u00de., v\u00e6ntanlega Kristleifur \u00deorsteinsson, \u00ed <i>L\u00f6gbergi<\/i> 31. des. 1936<\/a>). Ekkert vir\u00f0ist hins vegar hafa or\u00f0i\u00f0 \u00far \u00feessari \u00e6tlan.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">\u00d3lafur B. Bj\u00f6rnsson: Saga Akraness I og II<\/font><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/saga_akraness_I.jpg?resize=150%2C228\" alt=\"\u00d3lafur B. Bj\u00f6rnsson og Saga Akraness I\" align=\"left\" height=\"228\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">\u00d3lafur B. Bj\u00f6rnsson (1895-1959) f\u00e6ddist \u00e1 Akranesi og bj\u00f3 h\u00e9r alla t\u00ed\u00f0. Hann gaf sj\u00e1lfur \u00fat t\u00edmariti\u00f0 <i>Akranes<\/i> \u00ed 17 \u00e1r, \u00fear sem birtust margir \u00fe\u00e6ttir, fr\u00e1sagnir og vi\u00f0t\u00f6l sem v\u00f6r\u00f0u\u00f0u l\u00edfi\u00f0 \u00e1 Skaganum og s\u00f6gu pl\u00e1ssins og safna\u00f0i \u00d3lafur miklu efni um \u00feetta. Svo r\u00e9\u00f0st hann \u00ed \u00fatg\u00e1fu \u00e1 S\u00f6gu Akraness, sem \u00e1tti a\u00f0 ver\u00f0a \u00ed fimm bindum. Einungis<i> Saga Akraness I<\/i> og <i>II <\/i>komu \u00fat (1957 og 1959) \u00fev\u00ed \u00d3lafur l\u00e9st \u00e1\u00f0ur en verki\u00f0 var fullunni\u00f0, var \u00fe\u00e1 langt kominn me\u00f0 \u00feri\u00f0ja bindi\u00f0. \u00deessu vir\u00f0ist hann a\u00f0 mestu hafa \u00e1orka\u00f0 \u00e1 eigin sp\u00fdtur og \u00ed hj\u00e1verkum me\u00f0 \u00f6\u00f0rum st\u00f6rfum. B\u00e6jarstj\u00f3rnin styrkti hann \u00fe\u00f3 \u00ed upphafi me\u00f0 10.000 kr. framlagi. (V\u00e6ri gaman a\u00f0 vita hva\u00f0 s\u00fa upph\u00e6\u00f0 1957 er h\u00e1 \u00e1 n\u00favir\u00f0i.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Efnis\u00fe\u00e6ttirnir sem \u00d3lafur n\u00e1\u00f0i a\u00f0 gera skil \u00ed \u00feessum tveimur ritum eru: Saga fyrstu jar\u00f0a \u00e1 Skaga, saga sj\u00e1var\u00fatvegs og saga verslunar \u00e1 Skaganum. \u00c9g hef oft glugga\u00f0 \u00ed \u00feessar b\u00e6kur og finnst \u00fe\u00e6r mj\u00f6g skemmtilegar, ekki hva\u00f0 s\u00edst af \u00fev\u00ed \u00d3lafi er pers\u00f3nusaga hugleikin sem og l\u00fdsingar \u00e1 mannl\u00edfinu \u00e1 \u00fdmsum t\u00edmum og m\u00e9r finnst hann segja vel fr\u00e1. (Hef \u00fe\u00f3 s\u00e9\u00f0 \u00feess geti\u00f0 a\u00f0 honum hafi veri\u00f0 stirt um skrif en hef ekki teki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed sj\u00e1lf.)\u00a0 B\u00e6kurnar eru myndskreyttar en au\u00f0vita\u00f0 eru myndirnar svarthv\u00edtar. S\u00f6mulei\u00f0is m\u00e1 \u00ed \u00feeim finna kort (yfir b\u00e6jarst\u00e6\u00f0i, mi\u00f0 og fleira), t\u00f6flur (yfir hundra\u00f0atal jar\u00f0a, aflamagn o.fl.) og \u00e9g s\u00e9 ekki betur en hann v\u00edsi \u00ed fj\u00f6lbreyttar heimildir; prenta\u00f0ar, munnlegar og \u00f3prentu\u00f0 skj\u00f6l.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dev\u00ed mi\u00f0ur au\u00f0na\u00f0ist \u00d3lafi ekki a\u00f0 fjalla um nema afmarka\u00f0a \u00fe\u00e6tti en \u00fea\u00f0 v\u00e6ri gaman a\u00f0 vita hva\u00f0 var\u00f0 um allt \u00fea\u00f0 efni sem hann haf\u00f0i safna\u00f0 til ritunar S\u00f6gu Akraness. \u00dea\u00f0 efni er t\u00edunda\u00f0 \u00ed \u201ebr\u00e9fabindatali\u201c \u00ed vi\u00f0talinu sem \u00e9g v\u00edsa \u00ed h\u00e9r a\u00f0 ne\u00f0an. Sennilega er \u00fea\u00f0 upphaf \u00feeirrar hef\u00f0ar a\u00f0 l\u00fdsa vinnu vi\u00f0 ritun s\u00f6gu Akraness \u00ed br\u00e9fabinda- og bla\u00f0s\u00ed\u00f0utali gagna fremur en afrakstri e\u00f0a afk\u00f6stum. Innbundin eint\u00f6k af t\u00edmaritinu <i>Akranesi<\/i> og <i>S\u00f6gu Akraness I<\/i> og <i>II<\/i> er hins vegar au\u00f0velt a\u00f0 n\u00e1lgast \u00e1 b\u00f3kasafni b\u00e6jarins og bera myndarskap og elju \u00d3lafs gott vitni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Um ritunarst\u00f6rf frumkv\u00f6\u00f0ulsins \u00d3lafs B. Bj\u00f6rnssonar m\u00e1 m.a. lesa \u00ed vi\u00f0talinu \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=216259&amp;pageId=2782092&amp;lang=is&amp;q=S\u00f6gu Akraness\">Ekkert gerir sig sj\u00e1lft<\/a>\u201c \u00ed <i>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum<\/i> 27. \u00e1g\u00fast 1958 og <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=127546&amp;pageId=1833169&amp;lang=is&amp;q=\u00c1sa Finsen\">um \u00e6viferil hans \u00ed minningargrein<\/a> sem \u00c1smundur \u00d3lafsson skrifa\u00f0i um hann \u00e1 hundra\u00f0 \u00e1ra f\u00e6\u00f0ingarafm\u00e6li hans, \u00ed <i>Morgunbla\u00f0inu<\/i> 6. j\u00fal\u00ed 1995.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">\u00c1form b\u00e6jarstj\u00f3rnar um a\u00f0 gefa \u00fat framhald af s\u00f6gu \u00d3lafs B. Bj\u00f6rnssonar<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">[<strong>Vi\u00f0b\u00f3t 16. ma\u00ed 2011<\/strong>: \u00cd l\u00edtilli fr\u00e9tt \u00ed <em>T\u00edmanum<\/em> 19. apr\u00edl 1978, \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=272247&amp;pageId=3908141&amp;lang=is&amp;q=Indri\u00f0i Valdimarsson\" title=\"Saga Akraness\">Flytur \u00fe\u00e6tti \u00far s\u00f6gu Akraness<\/a>\u201c, er sagt fr\u00e1 sm\u00e1bla\u00f0inu <em>Umbroti<\/em> sem kom \u00fat \u00e1 Akranesi \u00e1 \u00feeim t\u00edma. \u00cd grein sem \u00deorsteinn J\u00f3nsson skrifa\u00f0i \u00ed \u00fe\u00e1 n\u00fd\u00fatkomi\u00f0 <em>Umbrot<\/em>, 4. tbl.,\u00a0er \u201ebirt sam\u00feykkt sem ger\u00f0 var af b\u00e6jarstj\u00f3rn Akraness 1964, \u00fear sem sam\u00feykkt var a\u00f0 l\u00e1ta semja og gefa \u00fat framhald af s\u00f6gu Akraness, sem \u00d3lafur B. Bj\u00f6rnsson h\u00f3f \u00fatg\u00e1fu \u00e1 \u00e1ri\u00f0 1957, og skildi [svo] f\u00e9 vari\u00f0 \u00far b\u00e6jarsj\u00f3\u00f0i til \u00fatg\u00e1funnar. Nefnd var skipu\u00f0 og fj\u00e1rveitin f\u00e9kkst en ekkert var gert \u00ed m\u00e1linu.\u201c]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00e6sta skref \u00ed s\u00f6guritun Akraness var a\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3rn Akraness sam\u00feykkti um mitt \u00e1r 1967 a\u00f0 l\u00e1ta gera tvennt \u00ed tilefni \u00feess a\u00f0 100 \u00e1r voru li\u00f0in fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Akranes f\u00e9kk verslunarr\u00e9ttindi: Anna\u00f0 var a\u00f0 gera afsteypu af h\u00f6ggmynd Marteins Gu\u00f0mundssonar, <i>Sj\u00f3ma\u00f0ur, <\/i>og komst \u00fea\u00f0 \u00ed verk; s\u00fa stytta stendur ni\u00f0ri \u00e1 Akratorgi og er ofast k\u00f6llu\u00f0 <i>Sj\u00f3ma\u00f0urinn<\/i>. Hitt var a\u00f0 \u201e<strong>l\u00e1ta semja og gefa \u00fat framhald af S\u00f6gu Akraness, sem \u00d3lafur B. Bj\u00f6rnsson h\u00f3f \u00fatg\u00e1fu \u00e1 \u00e1ri\u00f0 1957. R\u00e1\u00f0inn ver\u00f0i ritstj\u00f3ri a\u00f0 verkinu \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 eigendur h\u00f6fundarr\u00e9ttarins og f\u00e9 vari\u00f0 \u00fat b\u00e6jarsj\u00f3\u00f0i til \u00fatg\u00e1funnar<\/strong>.\u201c\u00a0 (Sj\u00e1 \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=179382&amp;pageId=2331838&amp;lang=is\">Minnismerki sj\u00f3manna \u00e1 Akranesi<\/a>\u201c, fr\u00e9tt dags. 16 j\u00fan\u00ed 1964 \u00ed <i>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/i>17. j\u00fan\u00ed 1964.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">M\u00e9r finnst \u00e1hugavert a\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1967 hafi b\u00e6jarstj\u00f3rnin haft sinnu \u00e1 a\u00f0 huga a\u00f0 h\u00f6fundarr\u00e9tti. E.t.v. var h\u00fan eing\u00f6ngu me\u00f0 r\u00e9tt \u00e1 titlinum \u00ed huga, l\u00edklegar \u00fe\u00f3 me\u00f0 a\u00f0gang a\u00f0 \u00fev\u00ed efni sem \u00d3lafur haf\u00f0i \u00feegar safna\u00f0 og handriti\u00f0 a\u00f0 III. bindinu \u00ed huga. Ekki er lj\u00f3st hvort \u00e1tti a\u00f0 r\u00e1\u00f0a einhvern einn s\u00f6guritara e\u00f0a einungis ritstj\u00f3ra sem bygg\u00f0i \u00fe\u00e1 v\u00e6ntanlega \u00e1 \u00fev\u00ed sem til var fyrir og s\u00e6i um a\u00f0 verki\u00f0 yr\u00f0i kl\u00e1ra\u00f0 (g\u00e6ti \u00feess vegna hafa \u00e1tt a\u00f0 f\u00e1 marga h\u00f6funda til a\u00f0 skrifa einstaka \u00fe\u00e6tti).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">En af hverju var\u00f0 ekkert \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 framhaldi\u00f0 v\u00e6ri skrifa\u00f0? Eins og\u00a0st\u00f3r hluti \u00edb\u00faa Akraness er \u00e9g a\u00f0flutt, \u00e1 ekki \u00e6ttir a\u00f0 rekja til Skagans, er ekki innviklu\u00f0 \u00ed f\u00f3tboltann og veit ekki hvers vegna <b>ekkert ger\u00f0ist \u00ed s\u00f6guritun \u00e1forma\u00f0ri 1967<\/b>. Var r\u00e1\u00f0inn ritstj\u00f3ri? E\u00f0a var r\u00e1\u00f0inn s\u00f6guritari sem engu skila\u00f0i af s\u00e9r? E\u00f0a t\u00edmdi b\u00e6rinn aldrei a\u00f0 ey\u00f0a f\u00e9 \u00ed framhaldi\u00f0 af <i>S\u00f6gu Akraness I<\/i> og <i>II<\/i>? V\u00edst er a\u00f0 hef\u00f0u \u00feessi lofor\u00f0 e\u00f0a sam\u00feykkt b\u00e6jarstj\u00f3rnar Akraness \u00e1ri\u00f0 1967 haldi\u00f0 hef\u00f0i miklu \u00f6ng\u00feveiti og fj\u00e1raustri sem s\u00ed\u00f0ar t\u00f3k vi\u00f0 \u00ed sagnaritun Akurnesinga veri\u00f0 for\u00f0a\u00f0. Kannski getur einhver lesandi uppl\u00fdst m\u00e1li\u00f0?<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">\u00c1hrif H\u00e1sk\u00f3lans \u00ed Lundi og \u201eSafn til s\u00f6gu Akraness\u201c<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">H\u00e9r er ekki l\u00fdst \u00e1kve\u00f0inni atrennu a\u00f0 skr\u00e1setningu \u00e1 s\u00f6gu Akraness heldur einhvers konar undirb\u00faningsvinnu sem \u00e1tti a\u00f0 lei\u00f0a til einhvers konar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u sem \u00e6tti a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 nota \u00ed einhvers konar tilgangi, e.t.v. skr\u00e1setningu s\u00f6gu bygg\u00f0arlagsins. \u00deetta skiptir \u00fe\u00f3 m\u00e1li \u00fev\u00ed vinnan hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 skila g\u00f3\u00f0um grunni fyrir framt\u00ed\u00f0ars\u00f6guritara. Sj\u00e1lf tel \u00e9g a\u00f0 <strong>hugmyndafr\u00e6\u00f0in sem tilt\u00f6lulega f\u00e1mennur h\u00f3pur a\u00f0hylltist, eigandi \u00fea\u00f0 sammerkt a\u00f0 hafa stunda\u00f0 n\u00e1m \u00ed H\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Lundi laust fyrir 1980<\/strong> (og e.t.v. loddi stefnan eitthva\u00f0 lengur), <strong>hafi haft sitt a\u00f0 segja s\u00ed\u00f0ar meir \u00feegar hi\u00f0 r\u00e1nd\u00fdra \u00e6vint\u00fdri um s\u00f6guna s\u00edskrifu\u00f0u h\u00f3fst og h\u00e9lt \u00e1fram \u00ed meir en tvo \u00e1ratugi<\/strong>. \u00deess vegna get \u00e9g \u00feessa h\u00e9r.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1ri\u00f0 1975 stofnu\u00f0u \u00edslenskir nemar vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Lundi \u201eF\u00e9lag \u00fej\u00f3\u00f0- og fornleifafr\u00e6\u00f0inema\u201c. F\u00e9lagi\u00f0 samdi plagg, \u201eHugmynd a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0minjastofnun \u00e1 \u00cdslandi\u201c sem var sent \u00fdmsum stofnunum og s\u00f6fnum h\u00e9rlendis og virtust \u00feessir nemar \u00ed upphafi hafa hug \u00e1 samstarfi vi\u00f0 \u00feau. En samstarfi\u00f0 gekk ekki, sem kemur reyndar ekkert \u00e1 \u00f3vart \u00feegar yfirl\u00fdsingar hluta \u00feessara n\u00e1msmanna \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum 1976-78 eru lesnar. \u00deeir vissu nefnilega allt miklu betur en a\u00f0rir og g\u00e1fu hikstalaust \u00ed skyn a\u00f0 \u00feeir sem til \u00feessa hef\u00f0u sta\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1ttas\u00f6fnun, fornleifauppgreftri, skr\u00e1ningu hvers konar o.\u00fe.h. \u00e1 \u00cdslandi hef\u00f0u veri\u00f0 illa mennta\u00f0ir f\u00faskarar.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">2<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/akrafjall_mani.jpg?resize=150%2C200\" alt=\"Akrafjall\" align=\"left\" height=\"200\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">Strax vori\u00f0 1976 h\u00f3f l\u00edtill h\u00f3pur st\u00f6rf vi\u00f0 \u201er\u00e9ttframkv\u00e6mdar\u201c sv\u00e6\u00f0isranns\u00f3knir e\u00f0a mannl\u00edfsranns\u00f3knir, a\u00f0 s\u00f6gn a\u00f0 frumkv\u00e6\u00f0i n\u00e1msmannanna \u00ed Lundi. Fyrir valinu var\u00f0 sv\u00e6\u00f0i\u00f0 sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar.\u00a0 Eitt af m\u00f6rgu sem rannsaka \u00e1tti s\u00e9rstaklega var \u00fatger\u00f0arsaga Akraness \u201esem l\u00edtt hefur veri\u00f0 k\u00f6nnu\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0ilega, \u00fe\u00f3tt margt hafi veri\u00f0 um hana rita\u00f0 fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum sj\u00f3narmi\u00f0um\u201c svo sem l\u00fdst er yfir \u00ed \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=271172&amp;pageId=3872403&amp;lang=is&amp;\">Athugun af n\u00fdjum sj\u00f3narh\u00f3li: Bygg\u00f0asaga sveita sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar<\/a>\u201c \u00ed <i>T\u00edmanum<\/i>\u00a04. j\u00fal\u00ed 1976, s. 39.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Vinnan 1976 f\u00f3lst einkum \u00ed frums\u00f6fnun rita\u00f0ra heimilda og skipulag\u00f0ri skr\u00e1ningu \u00feeirra; a\u00f0 fara gegnum \u00f6rnefnaskr\u00e1r og fara \u00ed viku k\u00f6nnunarlei\u00f0angur \u00fear sem afla\u00f0 var uppl\u00fdsinga um fornar minjar og a\u00f0rar s\u00f6gulegar leifar. Var \u00feess v\u00e6nst a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed m\u00f3ti fengist nokkur mynd af menningars\u00f6gu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd \u00feessum sex manna h\u00f3pi voru: \u00deorsteinn J\u00f3nsson, nemandi \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1ttum og fornleifafr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Lundi, og \u00deorl\u00e1kur Helgason, \u00fatskrifa\u00f0ur \u00ed hagfr\u00e6\u00f0i og mannfr\u00e6\u00f0i (\u00feessi tveir voru einkum \u00ed forsvari fyrir h\u00f3pnum), Inga D\u00f3ra Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, Gu\u00f0mundur H\u00e1lfd\u00e1narson, Margr\u00e9t Hermannsd\u00f3ttir og Eir\u00edkur Gu\u00f0mundsson. Sagt var a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ru nemar og fullnemar (svo) \u00ed fornleifafr\u00e6\u00f0i, \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1tta- og \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0um, \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0um og sagnfr\u00e6\u00f0i.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Til verkefnsins f\u00e9kkst myndarlegur styrkur \u00far V\u00edsindasj\u00f3\u00f0i \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00ed r\u00f6\u00f0, 1976, 1977 og 1978, og l\u00edklega einhverjir fleiri styrkir.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">3<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Er skemmst fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 engin merki um hina miklu s\u00f6fnun h\u00f3psins sj\u00e1st vi\u00f0 leit \u00ed gagnas\u00f6fnum \u00e1 Vefnum (en hafi m\u00e9r yfirs\u00e9st merkispl\u00f6gg fr\u00e1 \u00feessum h\u00f3pi bi\u00f0 \u00e9g lesendur vinsamlegast a\u00f0 benda m\u00e9r \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed athugasemdum). \u00deetta f\u00f3lk sn\u00e9ri s\u00e9r flest sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar a\u00f0 \u00f6\u00f0rum vi\u00f0fangsefnum og engin ritverk, t.d. sk\u00fdrslur, greinar e\u00f0a anna\u00f0 sem var\u00f0ar \u00feessar merku mannl\u00edfsranns\u00f3knir sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar eru skr\u00e1\u00f0 eftir \u00feau \u00ed <i>Gegni<\/i>, me\u00f0 einni undantekningu. \u00cd <i>Akranes. Fornleifaskr\u00e1<\/i>, sem Adolf Fri\u00f0riksson og Orri V\u00e9steinsson unnu fyrir Fornleifastofnun \u00cdslands og var gefin \u00fat 1999 er einskis fr\u00e1 \u00feessum h\u00f3pi geti\u00f0 \u00ed heimildarskr\u00e1 utan \u00feessarar einu undantekningar. Au\u00f0vita\u00f0 er hugsanlegt a\u00f0 dj\u00fapt \u00ed i\u00f0rum \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns s\u00e9 a\u00f0 finna einhvern afrakstur \u00feessa \u00feriggja sumra verkefnis en \u00fea\u00f0 svo vel var\u00f0veitt a\u00f0 \u00feess sj\u00e1ist ekki spor \u00e1 Vefnum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Undantekningin er framtak \u00deorsteins J\u00f3nssonar. Hann setti \u00e1ri\u00f0 1978 upp s\u00fdningu \u00ed B\u00f3khl\u00f6\u00f0unni sem nefndist \u201eAkranes gamla t\u00edmans\u201c og haf\u00f0i safna\u00f0 til hennar g\u00f6mlum lj\u00f3smyndum af Skaga allt fr\u00e1 aldam\u00f3tum 1900. \u00deorsteinn segist \u00ed vi\u00f0tali hafa \u201eunni\u00f0 a\u00f0 undirb\u00faningi verkefna um menningars\u00f6gu Akraness \u00ed \u201eSafn til s\u00f6gu Akraness\u201c einkum bygg\u00f0a\u00fer\u00f3un Akraness. Hefur hann skila\u00f0 sk\u00fdrslu um timburh\u00fas \u00e1 Akranesi fyrir aldam\u00f3t. \u00deegar a\u00f0 \u00feeim \u00fe\u00e6tti verkefnisins kom a\u00f0 safna \u00e1 einn sta\u00f0 lj\u00f3smyndum, uppdr\u00e1ttum og teikningum var\u00f0 honum lj\u00f3st a\u00f0 fr\u00e1 Akranesi var miklu meira af myndefni en hann haf\u00f0i gruna\u00f0. Var\u00f0 \u00fea\u00f0 tilefni\u00f0 til s\u00fdningarinnar. A\u00f0 baki hennar liggur tveggja m\u00e1na\u00f0a sj\u00e1lfbo\u00f0avinna \u00deorsteins og hefur hann \u00fev\u00ed gripi\u00f0 til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 hafa lj\u00f3smyndirnar til s\u00f6lu &#8230;\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">4<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Engar frekari uppl\u00fdsingar um \u201eSafn til s\u00f6gu Akraness\u201c finnast \u00ed leit \u00e1 Vefnum og \u00f3v\u00edst hvort \u00fea\u00f0 verk hafi \u00e1tt a\u00f0 birtast \u00e1 prenti e\u00f0a einhverju \u00f6\u00f0ru formi e\u00f0a geymast \u00ed k\u00f6ssum. \u00c9g man ekki til \u00feess a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 nein \u201everkefni um menningars\u00f6gu Akraness\u201c en ef einhver veit meira um \u00feetta eru uppl\u00fdsingar vel \u00feegnar. E.t.v. hefur \u00deorsteinn hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 skrifa eitthva\u00f0 um s\u00f6gu Akraness. En \u00fea\u00f0 ger\u00f0i hann ekki &#8211; hins vegar skrifa\u00f0i hann s\u00f6gur nokkurra annarra bygg\u00f0arlaga \u00e1samt fj\u00f6lda \u00e6ttfr\u00e6\u00f0irita, nokkurra st\u00e9ttartala og rita annars e\u00f0lis.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">5<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g get s\u00e9rstaklega \u00feessarar skr\u00fdtnu vinnu \u00ed ranns\u00f3knum \u00e1 bygg\u00f0ars\u00f6gu sveita sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar (skr\u00fdtnu a\u00f0 \u00fev\u00ed leytinu a\u00f0 h\u00fan vir\u00f0ist eftir \u00e1 s\u00e9\u00f0 ekki hafa skila\u00f0 neinu en hafa veri\u00f0 \u00e1kaflega augl\u00fdst og uppbl\u00e1sin \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, af a\u00f0standendum) er a\u00f0 mig grunar a\u00f0 hugmyndafr\u00e6\u00f0in fr\u00e1 Lundi hafi haft s\u00edn \u00e1hrif l\u00f6ngu seinna. Ekki hva\u00f0 s\u00edst s\u00fa sko\u00f0un \u00fearmennta\u00f0ra a\u00f0 \u00feeir einir kynnu r\u00e9ttar a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 ranns\u00f3knir og skr\u00e1ningu \u00e1 s\u00f6gu bygg\u00f0arlaga.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\"><strong>Vi\u00f0b\u00f3t 8. ma\u00ed 2011<\/strong>: <\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00deorsteinn J\u00f3nsson uppl\u00fdsti \u00ed s\u00edmtali m\u00e1nudaginn 2. ma\u00ed a\u00f0 hann hef\u00f0i nota\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 \u00e1 \u00feessari s\u00fdningu sem sagt er fr\u00e1 h\u00e9r a\u00f0 ofan til a\u00f0 safna g\u00f6mlum myndum af Akranesi\u00a0og skr\u00e1 uppl\u00fdsingar um nokkur hundru\u00f0 \u00f3skr\u00e1\u00f0ar\u00a0myndir af f\u00f3lki sem til voru \u00e1 Bygg\u00f0asafninu \u00ed G\u00f6r\u00f0um. (Hi\u00f0 sama kemur fram \u00ed\u00a0vi\u00f0tali vi\u00f0 \u00deorstein, \u201eAkranes gamla t\u00edmans\u201c \u00ed <em>Vesturlandsbla\u00f0inu.\u00a0M\u00e1lgagni Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins \u00e1 Vesturlandi<\/em> 1. tbl. 3. \u00e1rg. 16. jan. 1979, s. 5.) \u00dea\u00f0 sem skiptir \u00fe\u00f3 \u00f6llu meira m\u00e1li er a\u00f0 \u00e1 me\u00f0an \u00e1 s\u00fdningunni st\u00f3\u00f0 skr\u00e1\u00f0i \u00deorsteinn \u00f6rnefni eftir\u00a0uppl\u00fdsingum sem\u00a0eldri safngestir\u00a0g\u00e1fu. Alls\u00a0s\u00f3ttu um 6000 gestir \u00feessa s\u00fdningu og komu sumir,\u00a0a\u00f0allega eldra f\u00f3lk,\u00a0dag eftir dag. \u00deorsteinn var me\u00f0 st\u00f3rt grunnkort af Akranesi eins og \u00fea\u00f0 leit \u00fat 1901 og f\u00e6r\u00f0i jafn\u00f3\u00f0um inn\u00a0\u00e1 \u00fea\u00f0 \u00f6rnefnin og uppl\u00fdsingarnar. Akranesb\u00e6r keypti s\u00fdninguna (st\u00e6kku\u00f0u myndirnar) a\u00f0 henni lokinni og f\u00e9kk \u00f3d\u00fdrt. \u00d6llum uppl\u00fdsingum, \u00fe.\u00e1.m. \u00f6rnefnakortinu, skila\u00f0i \u00deorsteinn svo\u00a0upp \u00e1 Bygg\u00f0asafni\u00f0 \u00ed G\u00f6r\u00f0um. \u00dea\u00f0 merkilega er a\u00f0\u00a0starfsf\u00f3lk\u00a0Lj\u00f3smyndasafns Akraness, Skjalasafns Akraness og Landm\u00e6linga \u00cdslands hefur aldrei heyrt um \u00feetta \u00f6rnefnakort\u00a0og aldrei s\u00e9\u00f0 \u00fea\u00f0 en \u00fe\u00e6tti \u00ed \u00fev\u00ed talsver\u00f0ur fengur.\u00a0S\u00f6mulei\u00f0is haf\u00f0i Lj\u00f3smyndasafn Akraness ekki heyrt af \u00feessum st\u00e6kku\u00f0u myndum sem Akranesb\u00e6r keypti af \u00deorsteini. Hugsanlega er \u00feetta g\u00f3ss geymt upp \u00e1\u00a0Bygg\u00f0asafninu,\u00a0m\u00e9r t\u00f3kst ekki a\u00f0\u00a0n\u00e1 \u00ed uppl\u00fdsingar um \u00fea\u00f0, en m\u00e9r \u00feykir \u00fe\u00f3 fremur \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 korti\u00f0 s\u00e9 \u00fear \u00fev\u00ed seinna meir lag\u00f0i forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur Bygg\u00f0asafnsins fr\u00e1 1979, Gunnlaugur Haraldsson, \u00feunga \u00e1herslu \u00e1 \u00f6rnefnas\u00f6fnun og einmitt \u00f6rnefnakort, \u00feegar hann t\u00f3k s\u00e6ti \u00ed\u00a0svokalla\u00f0ri Ritnefnd um s\u00f6gu Akraness \u00e1ri\u00f0 1987. (Eftir a\u00f0 Gunnlaugur t\u00f3k svo vi\u00f0 sagnaritarastarfinu sj\u00e1lfur lag\u00f0i hann enn meiri \u00e1herslu \u00e1 \u00fdmiss konar \u00f6rnefnakort og \u00f6rnefnas\u00f6fnun en \u00fea\u00f0 er ekki efni \u00feessarar f\u00e6rslu.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">[9. ma\u00ed &#8211; vi\u00f0b\u00f3t: Forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur Bygg\u00f0asafnsins, J\u00f3n\u00a0Allansson,\u00a0sta\u00f0festi a\u00f0 \u00f6rnefnakorti\u00f0 af Akranesi 1901 er geymt uppi \u00e1 Bygg\u00f0asafni og lj\u00f3smyndirnar sem b\u00e6rinn keypti \u00e1 s\u00ednum t\u00edma eru l\u00edka \u00fear.]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00deorsteinn J\u00f3nsson kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 a\u00f0 hafa skrifa\u00f0\u00a0neitt rit sem h\u00e9ti eitthva\u00f0 \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem Adolf Fri\u00f0riksson og Orri V\u00e9steinsson\u00a0telja upp \u00ed heimildaskr\u00e1 \u00ed sinni sk\u00fdrslu, <em>Akranes. Fornleifaskr\u00e1<\/em>, og er \u00fear v\u00e6ntanlega enn eitt d\u00e6mi\u00f0 um fr\u00e1munalega l\u00e9leg vinnubr\u00f6g\u00f0 \u00ed heimildaskr\u00e1 Adolfs og Orra.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00deorl\u00e1kur Helgason sta\u00f0festi \u00ed s\u00edmtali sama dag a\u00f0 ekkert hef\u00f0i komi\u00f0 \u00fat \u00far \u00feriggja sumra sv\u00e6\u00f0isranns\u00f3kn \u00e1 bygg\u00f0 sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar. Engum g\u00f6gnum hef\u00f0i veri\u00f0 skila\u00f0 neins sta\u00f0ar, hugsanlega hef\u00f0i veri\u00f0 skila\u00f0 einhverjum sk\u00fdrslum um verkefni\u00f0 [\u00fea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 hafa veri\u00f0 gert \u00fev\u00ed ella hef\u00f0i t\u00e6plega fengist styrkur \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00ed r\u00f6\u00f0 fr\u00e1 V\u00edsindasj\u00f3\u00f0i, auk annarra styrkja] og hef\u00f0i veri\u00f0 til eitthvert handrit um eitthva\u00f0 af \u00feessari vinnu v\u00e6ri \u00fea\u00f0 l\u00f6ngu glata\u00f0.] \u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">Framhaldi\u00f0, sem komi\u00f0 er:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness II<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-08\/%e2%80%9eframtakssemi-og-frumskogalogmal%e2%80%9c\/\">Framtakssemi og frumsk\u00f3gal\u00f6gm\u00e1l<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness III<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-12\/nefndarmenn-lystu-skodun-sinni\/\">Nefndarmenn l\u00fdstu sko\u00f0un sinni<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness IV<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-16\/er-margritad-brot-ur-byggdasogu-120-milljona-krona-virdi\/\">Er margrita\u00f0 brot \u00far bygg\u00f0as\u00f6gu 120 millj\u00f3na kr\u00f3na vir\u00f0i?<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness V, <\/b><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/\">Leggur ekki nafn sitt vi\u00f0 b\u00f3kart\u00f6tur sem rumpa\u00f0 er saman \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness VI,<\/strong> <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-20\/gunnlaugur-haraldsson-aetlar-ad-og-hyggst-nu\/\" title=\"Gunnlaugur Haraldsson\">Gunnlaugur Haraldsson \u00e6tlar a\u00f0 &#8230; og hyggst n\u00fa &#8230;<\/a><\/font><\/p>\n<hr width=\"100%\" \/><font size=\"-2\"><\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>1 <\/b>Tilv. \u00ed Hallgr\u00edm er fengin\u00a0 \u00far form\u00e1la \u00d3lafs B. Bj\u00f6rnssonar a\u00f0 <i>S\u00f6gu Akraness I<\/i>, s. 6-7, \u00fatg. 1957. Fyrirlestur Hallgr\u00edms h\u00e9t \u201eL\u00edfi\u00f0\u00a0\u00ed Skaganum s\u00ed\u00f0astli\u00f0in 100 \u00e1r\u201c og var fluttur \u00ed n\u00fdreistu barnask\u00f3lah\u00fasi h\u00e9r \u00ed b\u00e6 \u00feann 13. jan\u00faar 1889. Hallgr\u00edmur h\u00f3f s\u00f6gu s\u00edna 1789 \u00feegar \u00d3lafur Stephensen stiftama\u00f0ur bj\u00f3 \u00e1 Innra-H\u00f3lmi og \u00e1tti Skagann. \u00de\u00e1 bjuggu h\u00e9r 67 manns \u00ed 10 moldarb\u00e6jum og \u00ferem t\u00f3mt\u00fasb\u00fa\u00f0um. \u00c1ri\u00f0 sem Hallgr\u00edmur flutti fyrirlesturinn haf\u00f0i \u00edb\u00faum Akraness fj\u00f6lga\u00f0 upp \u00ed t\u00e6plega 600 manns sem bjuggu \u00ed 16 b\u00e6jum, 36 timbur- og m\u00farh\u00fasum og 34 t\u00f3mth\u00fasb\u00fa\u00f0um. Um fyrirlestur Hallgr\u00edms m\u00e1 fr\u00e6\u00f0ast \u00ed \u00feeim tveimur s\u00f6gum Akraness sem \u00fat hafa veri\u00f0 gefnar og v\u00e6ntanlega einnig \u00ed \u00feeirri \u00feri\u00f0ju sem kemur \u00fat 19. ma\u00ed n\u00e6stkomandi. Einnig m\u00e1 benda \u00e1 \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=273691&amp;pageId=3941803&amp;lang=is&amp;\">Fr\u00e1 Akranesi 24. marz<\/a>:\u201c \u00ed<i> \u00cdsafold <\/i>17. marz 1889.\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Af \u00fev\u00ed Hallgr\u00edmi l\u00e1 talsvert illt or\u00f0 til Stef\u00e1nunga \u00ed \u00feessum fyrirlestri hafa sumir hampa\u00f0 honum sem s\u00e9rst\u00f6kum vini al\u00fe\u00fd\u00f0unnar. En Hallgr\u00edmur var \u00f3dau\u00f0legur ger\u00f0ur \u00ed heimildask\u00e1lds\u00f6gu \u00deorsteins fr\u00e1 Hamri, <i>Hallgr\u00edmur smali og h\u00fasfreyjan \u00e1 Bjargi: s\u00f6gu\u00fe\u00e1ttur \u00far Borgarfir\u00f0i<\/i>, sem kom \u00fat hj\u00e1 I\u00f0unni \u00e1ri\u00f0 1990. \u00dear kemur nokku\u00f0 vel fram a\u00f0 Hallgr\u00edmur hreppstj\u00f3ri var ekki s\u00e9rstakur vinur al\u00fe\u00fd\u00f0unnar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>2<\/b>\u00a0 H\u00e9r og \u00ed n\u00e6stu efnigreinum er enduror\u00f0a\u00f0 og samanteki\u00f0 \u00far \u00fdmsum greinum \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum enda var h\u00f3purinn \u00e1kaflega yfirl\u00fdsingagla\u00f0ur \u00ed fyrstu. Sj\u00e1:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=235679&amp;pageId=3215688&amp;lang=is&amp;\">Sv\u00e6\u00f0isranns\u00f3kn \u00e1 bygg\u00f0 sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar &#8211; yfirgripsmikil ranns\u00f3kn \u00e1 s\u00f6gu heils bygg\u00f0arlags<\/a>\u201c. <i>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0<\/i> 3. j\u00fal\u00ed 1976, s. 4<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=116548&amp;pageId=1476945&amp;lang=is&amp;\">Fundu \u00edslenzka spunav\u00e9l \u00ed haugh\u00fasinu<\/a>\u201c. <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> 20. \u00e1g\u00fast 1976<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=271172&amp;pageId=3872403&amp;lang=is&amp;q=sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar\">Athugun af n\u00fdjum sj\u00f3narh\u00f3li: Bygg\u00f0asaga sveita sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar<\/a>\u201c. <i>T\u00edminn<\/i> 4. j\u00fal\u00ed 1976, s. 39<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=221670&amp;pageId=2850601&amp;lang=is&amp;q=sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar\" title=\"sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar\">Sv\u00e6\u00f0isranns\u00f3kn \u00e1 bygg\u00f0inni sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar<\/a>\u201c. <i>\u00dej\u00f3\u00f0viljinn<\/i> 4. j\u00fal\u00ed 1976, s. 24<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=293732&amp;pageId=4345857&amp;lang=is&amp;q=sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar\">St\u00fadentar \u00e1 ranns\u00f3knarfer\u00f0 um landi\u00f0. Sv\u00e6\u00f0isranns\u00f3kn<\/a>\u201c. <i>St\u00fadentabla\u00f0i\u00f0<\/i> 28. j\u00fal\u00ed 1976, s. 5<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=227043&amp;pageId=3062374&amp;lang=is&amp;q=sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar\" title=\"Mannl\ufffdfi\u00f0 sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar\">N\u00fdst\u00e1rlegar ranns\u00f3knir: Mannl\u00edf sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar<\/a>\u201c. <i>Dagbla\u00f0i\u00f0<\/i> 2. j\u00fal\u00ed 1976<\/font><\/p>\n<p><font size=\"1\">\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>3<\/b> Sj\u00e1 ofangreindar heimildir og einnig:<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\"><a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=116823&amp;pageId=1487600&amp;lang=is&amp;\">Fr\u00e9tt \u00ed Morgunbla\u00f0inu 25. j\u00fan\u00ed 1977 um \u00fathlutun V\u00edsindasj\u00f3\u00f0s<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-2\"><a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=117165&amp;pageId=1500866&amp;lang=is&amp;\">Fr\u00e9tt \u00ed Morgunbla\u00f0inu 25. j\u00fan\u00ed 1978 um \u00fathlutun V\u00edsindasj\u00f3\u00f0s<\/a><\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=236243&amp;pageId=3222518&amp;lang=is&amp;q=Um millj\u00f3naf\u00e9lag st\u00fadenta\" title=\"Millj\u00f3naf\u00e9lag st\u00fadenta\">Um millj\u00f3naf\u00e9lag st\u00fadenta<\/a>\u201c eftir \u00c1rna Bj\u00f6rnsson.\u00a0<i>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0<\/i>\u00a0 30. j\u00fan\u00ed 1978<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=117174&amp;pageId=1501171&amp;lang=is&amp;\">Um \u201epr\u00f3fhroka&#8221; og \u201emillj\u00f3naf\u00e9lag st\u00fadenta&#8221; Athugasemd fr\u00e1 Margr\u00e9ti Hermannsd\u00f3ttur<\/a>\u201c. <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> 4. j\u00fal\u00ed 1978.<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=222296&amp;pageId=2861722&amp;lang=is&amp;\">Athugasemd fr\u00e1 skrifstofu \u00dej\u00f3\u00f0minjasafns \u00cdslands<\/a>\u201c og \u201e<a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/wp-admin\/post.php?action=edit&amp;post=1146\">Tv\u00f6 \u00far h\u00f3pi \u201e\u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1ttasafnara 1976\u201c skrifa: Hei\u00f0ur \u00feeim sem hei\u00f0ur ber<\/a>\u201c. <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljinn<\/em> 7. j\u00fal\u00ed 1978, s. 9.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>4<\/b> \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=222442&amp;pageId=2864423&amp;lang=is&amp;q=S\u00f6gu Akraness\">Akranes gamla t\u00edmans<\/a>\u201c. <i>\u00dej\u00f3\u00f0viljinn<\/i> 20. desember 1978.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"1\">\u00a0 <\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">Eftir \u00deorstein J\u00f3nsson liggur <i>H\u00fas og b\u00fdli \u00e1 Akranesi<\/i> sem vir\u00f0ist eing\u00f6ngu a\u00f0gengilegt \u00ed B\u00f3kasafni Akraness. Verki\u00f0 er 147 s\u00ed\u00f0ur og \u00ed \u00fev\u00ed eru myndir, teikningar og uppdr\u00e6ttir.\u00a0\u00deetta er \u00f3prenta\u00f0 handrit\u00a0\u00e1rsett 1978.<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Adolf Fri\u00f0riksson og Orri V\u00e9steinsson telja \u00ed heimildaskr\u00e1 vi\u00f0 <i>Akranes. Fornleifaskr\u00e1<\/i>, \u00fatg. 1999:\u00a0\u00deorsteinn J\u00f3nsson. \u201e\u00de\u00e6ttir \u00far s\u00f6gu Akraness. H\u00fasheiti \u00e1 Akranesi, fyrri hluti, 2 \u00fe\u00e1ttur\u201c (\u00d3pr.) og hafa hugsanlega fengi\u00f0 eitthvert handrit hj\u00e1 h\u00f6fundinum. Reyndar er heimildaskr\u00e1 Adolfs og Orra illa unnin og \u00ed henni \u00f3afsakanlegar villur svo erfitt er a\u00f0 draga af henni \u00e1lyktanir. Kannski eru \u00feeir a\u00f0 v\u00edsa \u00ed fyrrnefnt <i>H\u00fas og b\u00fdli \u00e1 Akranesi<\/i>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>5<\/b> Bygg\u00f0as\u00f6gur \u00deorsteins J\u00f3nssonar eru skr\u00e1\u00f0ar \u00ed ritr\u00f6\u00f0 sem kallast <i>\u00cdslendingar, \u00e6ttir, bygg\u00f0ir og b\u00fa<\/i>, nema s\u00fa elsta. Hann vir\u00f0ist standa einn a\u00f0 \u00feessari ritr\u00f6\u00f0 og hafa rita\u00f0 s\u00f6gurnar a\u00f0 bei\u00f0ni og fyrir tilstyrk vi\u00f0komandi sveitarf\u00e9laga. Af b\u00f3kfr\u00e6\u00f0iuppl\u00fdsingum \u00ed <i>Gegni<\/i> er \u00f3lj\u00f3st hversu miki\u00f0 \u00deorsteinn hefur rita\u00f0 \u00feessar b\u00e6kur sj\u00e1lfar e\u00f0a hversu miki\u00f0 veri\u00f0 ritstj\u00f3ri yfir ritun annarra. Bygg\u00f0as\u00f6gurnar eru: <i>Eylenda: mannl\u00edf \u00ed Flateyjarhreppi \u00e1 Brei\u00f0afir\u00f0i<\/i> (\u00fatg. 1996), <i>Kjalnesingar: \u00e1b\u00faendur og saga Kjalarneshrepps fr\u00e1 1890<\/i> (\u00fatg. 1998); <i>Hrunamenn: \u00e1b\u00faendur og saga Hrunamannahrepps fr\u00e1 1890<\/i> (\u00fatg. 1999); <i>Eyja- og Miklaholtshreppur: \u00e1b\u00faendur og saga Eyja- og Miklaholtshrepps fr\u00e1 1900<\/i> (\u00fatg. 2000) og <i>Kolbeinssta\u00f0ahreppur: \u00e1b\u00faendur og saga Kolbeinssta\u00f0ahrepps fr\u00e1 1900<\/i> (\u00fatg. 2000).<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Saga S\u00f6gu Akraness I Undanfarna viku hef \u00e9g reynt a\u00f0 setja mig inn \u00ed s\u00f6guna s\u00edskrifu\u00f0u, \u00fe.e.a.s. reynt a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 hvers vegna b\u00e6jarf\u00e9lagi\u00f0 mitt hefur eytt \u00f3m\u00e6ldu f\u00e9 \u00ed a\u00f0 l\u00e1ta endurskrifa sama <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/04\/30\/a-skaganum-hafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-342","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/342","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=342"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/342\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=342"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=342"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=342"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}