{"id":344,"date":"2011-05-08T20:08:25","date_gmt":"2011-05-08T20:08:25","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-08\/%e2%80%9eframtakssemi-og-frumskogalogmal%e2%80%9c\/"},"modified":"2011-05-08T20:08:25","modified_gmt":"2011-05-08T20:08:25","slug":"framtakssemi-og-frumskogalogmal","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/08\/framtakssemi-og-frumskogalogmal\/","title":{"rendered":"Framtakssemi og frumsk\u00f3gal\u00f6gm\u00e1l"},"content":{"rendered":"<p><b><font size=\"-1\">Saga S\u00f6gu Akraness II<\/font><\/b>\u00a0<br \/>\n<font size=\"-1\">Sj\u00e1 einnig:<\/font><br \/>\n<b><font size=\"-1\">Saga S\u00f6gu Akraness I<\/font><\/b><font size=\"-1\">, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-30\/a-skaganum-%e2%80%9ehafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki%e2%80%9c\/\">\u00c1 Skaganum \u201ehafa aldrei b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c<\/a><\/font>\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Titill \u00feessarar f\u00e6rslu er bein tilvitnun \u00ed titil greinar Gunnlaugs Haraldssonar sem birtist \u00ed <i>D\u00f6gun<\/i> \u00ed des. 1980, sj\u00e1 n\u00e1nar \u00ed tilvitnanaskr\u00e1 h\u00e9r a\u00f0 ne\u00f0an. [\u00c9g fjarl\u00e6g\u00f0i g\u00e6salappir \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 f\u00e6rslan birtist s\u00e9 smellt \u00e1 kr\u00e6kju \u00e1 bloggg\u00e1tinni, hvers vegna veit \u00e9g ekki.] \u00deetta er a\u00f0 m\u00f6rgu leyti l\u00fdsandi titill fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6gu sem h\u00e9r er a\u00f0 hefjast en \u00e1 \u00fe\u00f3 hugsanlega betur vi\u00f0 s\u00ed\u00f0ari f\u00e6rslur. \u00c9g \u00feekki Gunnlaug Haraldsson ekki neitt en s\u00e9 a\u00f0 hann hefur veri\u00f0 frams\u00fdnn ma\u00f0ur.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g b\u00e6tti d\u00e1litlum uppl\u00fdsingum vi\u00f0 lok s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu, \u00fe.e. um s\u00f6fnun \u00deorsteins J\u00f3nssonar og afraksturinn af sv\u00e6\u00f0isranns\u00f3knum sunnan Skar\u00f0shei\u00f0ar. \u00deetta er smotter\u00ed en kosturinn vi\u00f0 skrif \u00e1 vef er a\u00f0 \u00feau skrif m\u00e1 laga og lei\u00f0r\u00e9tta jafn\u00f3\u00f0um, \u00f3l\u00edkt greinum \u00e1 papp\u00edr. \u00c9g vonast l\u00edka til a\u00f0 f\u00e1 lei\u00f0r\u00e9ttingar og athugasemdir vi\u00f0 bloggf\u00e6rslur um S\u00f6gu S\u00f6gu Akraness \u00fev\u00ed upp \u00far \u00feeim hyggst \u00e9g skrifa grein og er \u00fev\u00ed vel \u00feegi\u00f0 a\u00f0 rangf\u00e6rslur hafi sem flestar veri\u00f0 lei\u00f0r\u00e9ttar \u00feegar a\u00f0 \u00fev\u00ed kemur.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">P\u00f3lit\u00edk a\u00f0 tjaldabaki<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deegar \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 gr\u00faska \u00ed upphafi a\u00f0 ritun s\u00f6gu Akraness hinni n\u00fdrri komu \u00ed lj\u00f3s alls konar \u00fer\u00e6\u00f0ir sem l\u00e1gu \u00ed \u00fdmsar \u00e1ttir og krullu\u00f0ust saman h\u00e9r og \u00fear og auglj\u00f3st a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 skrifa langa s\u00f6gu um \u00fe\u00e1. \u00dea\u00f0 geri \u00e9g ekki en finnst nau\u00f0synlegt a\u00f0 geta nokkurra atri\u00f0a og pers\u00f3na sem kunna a\u00f0 hafa haft \u00e1hrif \u00e1 gang s\u00f6gunnar. Eitt sem skiptir talsver\u00f0u m\u00e1li \u00feegar ritun s\u00f6gu Akraness hefst er hvernig menn r\u00f6\u00f0u\u00f0ust \u00ed p\u00f3lit\u00edskar fylkingar og l\u00e9tu p\u00f3lit\u00edk stj\u00f3rna sko\u00f0un sinni \u00e1 m\u00f6nnum og m\u00e1lefnum.\u00a0\u00a0<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/fe_akrafjall.jpg?resize=200%2C200\" alt=\"Sau\u00f0f\u00e9 vi\u00f0 Akrafjall\" align=\"left\" height=\"200\" width=\"200\" \/><font size=\"-1\">Upp \u00far 1980 vir\u00f0ist Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalaginu h\u00e9r \u00ed b\u00e6 hafa vaxi\u00f0 mj\u00f6g fiskur um hrygg. \u00c9g fletti gegnum bunka af <i>D\u00f6gun<\/i>, bla\u00f0i Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins \u00e1 Akranesi, og <i>Vesturlandsbla\u00f0inu<\/i>, m\u00e1lgagni Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins \u00e1 Vesturlandi, fr\u00e1 \u00fev\u00ed laust fyrir 1980 og svol\u00edti\u00f0 fram yfir 1990. Kosturinn vi\u00f0 \u00feessi bl\u00f6\u00f0 var einkum a\u00f0 \u00feau komu sjaldan \u00fat \u00e1 \u00e1ri og \u00e9g haf\u00f0i mj\u00f6g gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 sko\u00f0a myndirnar af f\u00f3lkinu, sama f\u00f3lki\u00f0 er nefnilega s\u00edmynda\u00f0 \u00ed bl\u00f6\u00f0unum tveimur og skemmtilega h\u00e1rpr\u00fa\u00f0ir margir \u00e1 \u00feessum t\u00edma. Umfj\u00f6llunin var yfirleitt of hi\u00f0 sama far og \u00ed \u00feeim <i>\u00dej\u00f3\u00f0vilja<\/i> sem \u00e9g \u00f3lst upp vi\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">F\u00f3lki\u00f0 sem einna mest er mynda\u00f0 og tala\u00f0 vi\u00f0 \u00ed \u00feessum bl\u00f6\u00f0um, l\u00edklega framvar\u00f0asveit Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsmanna h\u00e9r \u00ed b\u00e6, hefur sumt sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 \u00f6\u00f0ru en sumt er enn \u00ed p\u00f3lit\u00edk. En merkilegt er hve f\u00e1ar pers\u00f3nur koma fyrir aftur og aftur. \u00deeir karlar sem virtust einna mest \u00e1berandi voru: Gu\u00f0bjartur Hannesson, J\u00f3hann \u00c1rs\u00e6lsson, Engilbert Gu\u00f0mundsson, Sveinn Kristinsson og Gunnlaugur Haraldsson. Nokkrar konur komu einnig talsvert oft fyrir \u00ed bl\u00f6\u00f0unum, einkum Ragnhei\u00f0ur \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttir, Gu\u00f0r\u00fan Geirsd\u00f3ttir og Ingunn J\u00f3nasd\u00f3ttir. S\u00ed\u00f0astnefndi karlinn, sem er a\u00f0alpers\u00f3na \u00feessarar s\u00f6gu, Gunnlaugur Haraldsson, var ritstj\u00f3ri <em>D\u00f6gunar<\/em> 1979-87 og ritstj\u00f3ri <em>Vesturlandsbla\u00f0sins<\/em> 1982-87, auk \u00feess a\u00f0 vera forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsf\u00e9lags Akraness og n\u00e1grennis \u00e1rin 1980-82. <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">M\u00e9r fannst l\u00edka merkilegt a\u00f0 sj\u00e1 hvernig \u00feeir sem oftast komu vi\u00f0 s\u00f6gu \u00ed \u00feessum bl\u00f6\u00f0um r\u00f6\u00f0u\u00f0u s\u00e9r n\u00e1nast kerfisbundi\u00f0 \u00ed hvers konar st\u00f6rf sem tengdust sk\u00f3lum, menntun, s\u00f6fnum e\u00f0a annarri menningu h\u00e9r \u00ed b\u00e6, anna\u00f0 hvort \u00ed nefndir e\u00f0a innan stofnananna sj\u00e1lfra, helst \u00ed stj\u00f3rnunarst\u00f6\u00f0ur, fyrir utan \u00fea\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 komast til valda \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deeir Engilbert Gu\u00f0mundsson og Gunnlaugur Haraldsson vir\u00f0ast hafa veri\u00f0 miklir samherjar laust upp \u00far 1980. A.m.k. ey\u00f0ir Engilbert vel r\u00famlega heilli s\u00ed\u00f0u (af takm\u00f6rku\u00f0um s\u00ed\u00f0ufj\u00f6lda) \u00ed a\u00f0 verja Gunnlaug eftir a\u00f0 s\u00e1 fyrrnefndi haf\u00f0i \u00ed<i> D\u00f6gun<\/i> veist annars vegar a\u00f0 tannl\u00e6kni b\u00e6jarins fyrir a\u00f0 byggja of st\u00f3rt h\u00fas (a\u00f0 mati st\u00e9ttv\u00edsra Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsmanna \u00feeirra t\u00edma) og hins vegar a\u00f0 n\u00fdr\u00e1\u00f0num forst\u00f6\u00f0umanni dvalarheimilis aldra\u00f0ra fyrir a\u00f0 vera af alkunnri \u00edhalds\u00e6tt. V\u00f6rn Engilberts byggist a\u00f0allega \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 sem gagnr\u00fdndu Gunnlaug skorti h\u00famor og fer hann um \u00fea\u00f0 m\u00f6rgum or\u00f0um. Sj\u00e1lfur haf\u00f0i Gunnlaugur skrifa\u00f0 \u00e1l\u00edka langa grein til a\u00f0 bera af s\u00e9r s\u00f6mu sakir \u00e1ri \u00e1\u00f0ur (bla\u00f0i\u00f0 kom sjaldan \u00fat) og segir \u00fear m.a.: \u201e\u00dea\u00f0 er allavega auglj\u00f3st m\u00e1l, a\u00f0 laun\u00feegarh\u00f3par b\u00faa vi\u00f0 mismunandi a\u00f0st\u00f6\u00f0u til a\u00f0 semja um kaup sitt og kj\u00f6r. Tannl\u00e6knar eru a\u00f0eins hluti \u00feess h\u00f3ps, sem greinilegra forr\u00e9ttinda n\u00fdtur vi\u00f0 ver\u00f0lagningu \u00e1 \u00fej\u00f3nustu sinni vi\u00f0 neytendur. G\u00e6ti t.d. ekki veri\u00f0 a\u00f0 svo horfi v\u00ed\u00f0ar \u00ed heilbrig\u00f0iskerfinu, d\u00f3mskerfinu og \u00f6\u00f0ru opinberu kerfi? Og a\u00f0 ekki s\u00e9 n\u00fa minnst \u00e1 \u00fe\u00e1 a\u00f0ila sem sj\u00e1lfst\u00e6tt starfa og \u00f3\u00fearft er a\u00f0 telja upp h\u00e9r.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">1<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ingimundur Sigurp\u00e1lsson var r\u00e1\u00f0inn b\u00e6jarstj\u00f3ri Akraneskaupsta\u00f0ar \u00e1ri\u00f0 1982, einkum me\u00f0 fulltingi sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ismanna \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn. R\u00e1\u00f0ning hans dr\u00f3 dilk \u00e1 eftir s\u00e9r \u00fev\u00ed<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=278744&amp;pageId=4017813&amp;lang=is&amp;q=Engilbert Gu\u00f0mundsson\"> fulltr\u00fai Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins, Engilbert Gu\u00f0mundsson, sleit \u00feess vegna meirihlutasamstarfi vi\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ismenn og Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokk<\/a>. B\u00e6jarstj\u00f3rnin h\u00e9lt eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur velli og Ingimundur var b\u00e6jarstj\u00f3ri n\u00e6stu fj\u00f6gur \u00e1rin. \u00deegar n\u00fdr meirihluti Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalags og Frams\u00f3knarflokks t\u00f3k vi\u00f0 v\u00f6ldum vori\u00f0 1986 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=224806&amp;pageId=2904259&amp;lang=is&amp;q=Akranes\">sam\u00feykktu Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsmenn \u00e1framhaldandi r\u00e1\u00f0ningu hans<\/a>, hugsanlega til a\u00f0 geta mynda\u00f0 meirihluta me\u00f0 Frams\u00f3knarflokknum. Fulltr\u00faar Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins \u00ed meirihlutab\u00e6jarstj\u00f3rn 1986 voru Gu\u00f0bjartur Hannesson og J\u00f3hann \u00c1rs\u00e6lsson og varafulltr\u00fai var Gunnlaugur Haraldsson. <a href=\"http:\/\/www.vb.is\/frett\/60031\/?q=Engilbert Gu\u00f0mundsson\">Engilbert Gu\u00f0mundsson h\u00f3f st\u00f6rf vi\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0leg \u00fer\u00f3unarm\u00e1<\/a>l um l\u00edkt leyti og h\u00e6tti afskiptum af stj\u00f3rnm\u00e1lum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Virtist <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=190811&amp;pageId=2520554&amp;lang=is&amp;q=b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00e1 Akranesi\">Ingimundur reikna me\u00f0 a\u00f0 starfa \u00e1fram sem b\u00e6jarstj\u00f3ri<\/a>, a.m.k. var hann \u00feess sinnis seint \u00ed september 1986, en vori\u00f0 eftir r\u00e9\u00f0i hann sig sem b\u00e6jarstj\u00f3ra \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6. \u00der\u00edr ums\u00e6kjendur s\u00f3ttu um augl\u00fdsta st\u00f6\u00f0u b\u00e6jarstj\u00f3ra \u00e1 Akranesi, \u00f3sku\u00f0u allir nafnleyndar. \u00deann fyrsta september 1987 var <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=121360&amp;pageId=1663163&amp;lang=is&amp;q=b\u00e6jarstj\u00f3ra \u00e1 Akranesi\">G\u00edsli G\u00edslason r\u00e1\u00f0inn sem n\u00fdr b\u00e6jarstj\u00f3ri<\/a> en hann haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur starfa\u00f0 sem b\u00e6jarritari \u00e1 Akranesi um tveggja \u00e1ra skei\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sinn s\u00ed\u00f0asta dag \u00ed emb\u00e6tti skrifa\u00f0i Ingimundur undir samning vi\u00f0 J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson \u00fear sem J\u00f3ni var fali\u00f0 a\u00f0 rita s\u00f6gu Akraness.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson<\/font><\/b><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/kyr_akrafjall.jpg?resize=200%2C200\" alt=\"K\u00fdr vi\u00f0 Akrafjall\" align=\"left\" height=\"200\" width=\"200\" \/><font size=\"-1\">J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson (1930-2010) f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk en b\u00e1\u00f0ir foreldrar hans voru \u00far Innri-Akraneshreppi. J\u00f3n var \u00e1 hverju sumri \u00ed sveit hj\u00e1 afa s\u00ednum \u00ed Ger\u00f0i \u00ed Innri-Akraneshreppi til 16 \u00e1ra aldurs. Hann \u00feekkti \u00fev\u00ed m\u00e6tavel til \u00e1 \u00feessum sl\u00f3\u00f0um. J\u00f3n var cand.mag. \u00ed \u00edslenskum fr\u00e6\u00f0um og einnig mennta\u00f0ur \u00ed s\u00f6gu. Hann var l\u00f6ngu lands\u00feekktur \u00e1ri\u00f0 1987, haf\u00f0i geti\u00f0 s\u00e9r afar gott or\u00f0 sem kennari, landv\u00f6r\u00f0ur og lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur, var einn af frumkv\u00f6\u00f0lunum \u00ed stofnun \u00e1fangask\u00f3la og fj\u00f6lbrautask\u00f3la, var sk\u00f3lameistari FS, fyrsti hei\u00f0ursf\u00e9lagi Sk\u00f3lameistaraf\u00e9lags \u00cdslands og margt fleira. \u00c1ri\u00f0 1987 starfa\u00f0i J\u00f3n sem ritstj\u00f3ri <i>Safns til I\u00f0ns\u00f6gu \u00cdslendinga<\/i>. S\u00e1 b\u00f3kaflokkur var hans eigin hugmynd, hann f\u00e9kk leyfi fr\u00e1 sk\u00f3lameistarast\u00f6rfum \u00ed FS 1985 til a\u00f0 hrinda hugmyndinni \u00ed framkv\u00e6md og kom fyrsta b\u00f3kin \u00fat 1986, s\u00fa n\u00e6sta 1988 og alls ur\u00f0u \u00fe\u00e6r 12 talsins. \u00deegar liti\u00f0 er yfir \u00e6viferil J\u00f3ns B\u00f6\u00f0varssonar vir\u00f0ist hann hafa veri\u00f0 ma\u00f0ur sem \u00e1tti nokku\u00f0 gott me\u00f0 a\u00f0 vinna me\u00f0 \u00f6\u00f0rum, vera g\u00f3\u00f0ur lei\u00f0togi og afar hugmyndar\u00edkur. Hann haf\u00f0i trausta menntun \u00ed \u00edslensku og s\u00f6gu og feikilega reynslu af fer\u00f0um um landi\u00f0 og utan lands. \u00c1 yngri \u00e1rum var J\u00f3n virkur \u00ed Fylkingunni og S\u00f3s\u00edalistaflokknum en haf\u00f0i \u00feegar h\u00e9r var komi\u00f0 s\u00f6gu h\u00e6tt afskiptum af p\u00f3lit\u00edk.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 hinn b\u00f3ginn haf\u00f0i J\u00f3n ekki miki\u00f0 skrifa\u00f0 sj\u00e1lfur \u00feegar hann var r\u00e1\u00f0inn til a\u00f0 skrifa s\u00f6gu Akraness. Hann haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 um \u00fatg\u00e1fu \u00e1 \u00fdmsum ritum, var lunkinn vi\u00f0 a\u00f0 ritst\u00fdra \u00f6\u00f0rum og dr\u00edfa \u00e1fram i\u00f0ns\u00f6guverkefni\u00f0 en haf\u00f0i einungis gefi\u00f0 \u00fat lj\u00f3\u00f0ab\u00f3k og lei\u00f0s\u00f6gub\u00f3k auk verka sem tengdust \u00edslenskukennslu e\u00f0a hans \u00edslenskun\u00e1mi. \u00dea\u00f0 gekk meira a\u00f0 segja \u00fej\u00f3\u00f0saga um hversu stirt honum v\u00e6ri um skrif og sj\u00e1lfur sag\u00f0i hann l\u00f6ngu seinna: \u201e\u00deannig er a\u00f0 setji \u00e9g tv\u00e6r setningar \u00e1 bla\u00f0 er \u00e9g varla b\u00fainn a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feegar \u00e9g fer a\u00f0 breyta \u00feeim og aldrei ver\u00f0 \u00e9g \u00e1n\u00e6g\u00f0ur.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">2<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ingimundur b\u00e6jarstj\u00f3ri hefur \u00fev\u00ed varla r\u00e1\u00f0i\u00f0 J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson til verksins af \u00fev\u00ed hann hef\u00f0i afkasta\u00f0 svo miklu \u00ed riti \u00e1\u00f0ur heldur v\u00e6ntanlega vegna annarra kosta hans (sem voru raktir a\u00f0 nokkru h\u00e9r a\u00f0 ofan).<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Samningurinn vi\u00f0 J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson um ritun s\u00f6gu Akraness<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Samningurinn sem Ingimundur Sigurp\u00e1lsson, b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00e1 Akranesi, og J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson undirritu\u00f0u \u00feann 31. \u00e1g\u00fast 1987 var \u00ed st\u00f3rum dr\u00e1ttum \u00feannig:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd 1. gr. kemur fram a\u00f0 J\u00f3ni er fali\u00f0 a\u00f0 rita \u00ferj\u00fa bindi um s\u00f6gu Akraness, \u201ealls um 900 bla\u00f0s\u00ed\u00f0ur \u00ed Sk\u00edrnisbroti\u201c sem komi \u00fat 1992. Bindin skuli skiptast \u00feannig:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0\u00a0 I. bindi fjalli um t\u00edmabili\u00f0 fr\u00e1 landn\u00e1mi til einokunar.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0 II. bindi fjalli um t\u00edmabili\u00f0 fr\u00e1 1602 til 1942.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0III. bindi fjalli um s\u00f6gu Akraneskaupsta\u00f0ar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd samningum er s\u00ed\u00f0an kve\u00f0i\u00f0 n\u00e1nar \u00e1 um 10 verk\u00fe\u00e6tti \u00ed s\u00f6gurituninni. Fram kemur a\u00f0 J\u00f3ni er \u00ed sj\u00e1lfsvald sett \u00ed hva\u00f0a r\u00f6\u00f0 hann skilar einst\u00f6kum verk\u00fe\u00e1ttum. (2. gr.) Verki\u00f0 hefjist 1. sept. 1987 og skuli loki\u00f0 fyrir \u00e1rslok 1992. Skr\u00e1ningu og \u00f6flun allra heimilda skal \u00fe\u00f3 loki\u00f0 fyrir 1. apr\u00edl 1990 og ritun I. bindis \u00e1 a\u00f0 vera loki\u00f0 fyrir 1. apr\u00edl 1991 enda stefnt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa \u00fea\u00f0 \u00fat 1. jan\u00faar 1992. (3. gr.) J\u00f3ni ber a\u00f0 lesa pr\u00f3farkir \u00e1n endurgjalds (5. gr.), leggja til alla vinnua\u00f0st\u00f6\u00f0u utan Akraness og standa straum af \u00f6llum kostna\u00f0i vegna verksins, \u00fe.m.t. fer\u00f0kostna\u00f0i, lj\u00f3sritun, lj\u00f3smyndun og \u00f6\u00f0rum e\u00f0lilegum kostna\u00f0i sem J\u00f3n telur nau\u00f0synlegan (7. gr.). J\u00f3n skal halda e\u00f0a l\u00e1ta halda allt a\u00f0 sex opinbera fyrirlestra \u00e1 Akranesi um s\u00f6guritunina \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 \u201e\u00fe\u00e1 sem verkkaupi [Akraneskaupsta\u00f0ur] setur til umsj\u00f3nar me\u00f0 verkinu.\u201c (6. gr.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Akraneskaupsta\u00f0ur velur a\u00f0ila sem \u201emeta hvern verk\u00fe\u00e1tt og skila \u00e1liti eigi s\u00ed\u00f0ar en sex vikum eftir afhendingu. Telji \u00feeir verki\u00f0 fullunni\u00f0 skal grei\u00f0a verktaka &#8230; Meti \u00feeir verk\u00fe\u00e1tt \u00f3fulln\u00e6gjandi skulu \u00feeir tilgreina \u00e1 hvern h\u00e1tt honum er \u00e1f\u00e1tt og skilgreina hvernig \u00far skuli b\u00e6ta. &#8230; R\u00edsi \u00e1greiningur milli samningsa\u00f0ila um g\u00e6\u00f0i verk\u00fe\u00e1ttar, sem ekki tekst a\u00f0 leysa, skal \u00e1greiningur lag\u00f0ur undir mat tveggja sagnfr\u00e6\u00f0inga sem verkkaupi [Akraneskaupsta\u00f0ur] og verksali [J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson] velja og skuldbinda samningsa\u00f0ilar sig til a\u00f0 hl\u00edta \u00farskur\u00f0i \u00feeirra.\u201c (2. gr.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd samningnum er sk\u00fdrt kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um a\u00f0 standist ekki skil s\u00e9 heimilt a\u00f0 segja honum upp: \u201eHafi handriti\u00f0 ekki veri\u00f0 afhent fyrir umsaminn t\u00edma &#8230; getur verkkaupi gefi\u00f0 verksala frest \u00ed minnst 30 daga og s\u00ed\u00f0an rift samningnum hafi handriti ekki veri\u00f0 skila\u00f0 a\u00f0 fresti li\u00f0num.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Jafnframt er kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um a\u00f0 \u201efrumhandrit\u201c s\u00e9 \u201eeign verksala\u201c en ver\u00f0ur ekki \u00f6\u00f0ru v\u00edsi skili\u00f0 en \u00fea\u00f0 eigi vi\u00f0 \u201efullgert handrit\u201c (4. gr.) og a\u00f0 \u201eAllar safna\u00f0ar heimildir ver\u00f0a eign verkkaupa jafnskj\u00f3tt og verk\u00fe\u00e1ttur er greiddur e\u00f0a vinna st\u00f6\u00f0vast af \u00f6\u00f0rum ors\u00f6kum\u201c (9. gr.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Grei\u00f0slur eru t\u00edunda\u00f0ar \u00ed 8. gr. samningsins. Fyrir allt verki\u00f0 \u00e1 Akraneskaupsta\u00f0ur a\u00f0 grei\u00f0a 5.540.000 kr. (mi\u00f0a\u00f0 v. 1. j\u00fal\u00ed 1987 en \u00ed undirgreinum kemur fram a\u00f0 upph\u00e6\u00f0in er ver\u00f0trygg\u00f0, \u00fe.e. tengd \u00e1kv. launaflokki BHMR).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Vi\u00f0 undirritun grei\u00f0ir Akraneskaupsta\u00f0ur J\u00f3ni 10% samningsupph\u00e6\u00f0ar, \u00fe.e. 554.000 kr., en s\u00ed\u00f0an 9% vi\u00f0 skil hvers verk\u00fe\u00e1ttar. Til a\u00f0 tryggja a\u00f0 J\u00f3n uppfylli skyldur s\u00ednar leggur hann fram tryggingarv\u00edxil fyrir s\u00f6mu upph\u00e6\u00f0 og hann f\u00e9kk vi\u00f0 undirritun, 554.000 kr. \u00cd hvert sinn sem J\u00f3n f\u00e6r greitt fyrir unninn verk\u00fe\u00e1tt \u00e1 a\u00f0 endurn\u00fdja tryggingarv\u00edxilinn og h\u00e6kka upph\u00e6\u00f0ina \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 s\u00f6mu ver\u00f0tryggingu og launin, \u00fe.e. upph\u00e6\u00f0in skal tengd sama launaflokki BHMR.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">3<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er afar \u00e1hugavert a\u00f0 bera \u00feennan samning saman vi\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0in sem beitt var eftir a\u00f0 Ritnefnd um S\u00f6gu Akraness t\u00f3k a\u00f0 starfa me\u00f0 s\u00f6guritara. En ritnefndin, ritun s\u00f6gunnar, efndir samningsins, grei\u00f0slur til J\u00f3ns, \u00fatg\u00e1fa og vi\u00f0t\u00f6kur b\u00f3karinnar ver\u00f0a a\u00f0 b\u00ed\u00f0a n\u00e6stu f\u00e6rslu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">Fyrri f\u00e6rsla:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness I<\/strong>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-30\/a-skaganum-%e2%80%9ehafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki%e2%80%9c\/\" title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\">\u00c1 Skaganum \u201ehafa aldri b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c<\/a><\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">Framhaldsf\u00e6rslur:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness III<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-12\/nefndarmenn-lystu-skodun-sinni\/\">Nefndarmenn l\u00fdstu sko\u00f0un sinni<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness IV<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-16\/er-margritad-brot-ur-byggdasogu-120-milljona-krona-virdi\/\">Er margrita\u00f0 brot \u00far bygg\u00f0as\u00f6gu 120 millj\u00f3na kr\u00f3na vir\u00f0i?<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness V, <\/b><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/\">Leggur ekki nafn sitt vi\u00f0 b\u00f3kart\u00f6tur sem rumpa\u00f0 er saman \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness VI,<\/strong> <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-20\/gunnlaugur-haraldsson-aetlar-ad-og-hyggst-nu\/\" title=\"Gunnlaugur Haraldsson\">Gunnlaugur Haraldsson \u00e6tlar a\u00f0 &#8230; og hyggst n\u00fa &#8230;<\/a><\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<hr width=\"100%\" \/><font size=\"-2\">1 Gunnlaugur Haraldsson. 1980. \u201eFramtakssemi og frumsk\u00f3gal\u00f6gm\u00e1l &#8211; S\u00ed\u00f0b\u00fain fr\u00e9ttask\u00fdring\u201c. <i>D\u00f6gun\u00a0<\/i> 3. \u00e1rg. 5. tbl.\u00a0 22. des. 1980, s. 4 og s. 10. Engilbert Gu\u00f0mundsson. 1981. \u201eAf \u00fat\u00farsn\u00faningameisturum.\u201c <i>D\u00f6gun<\/i> 4. \u00e1rg., 7. tbl. 18. des. 1981, s. 7 og s. 10.<\/font>\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">2 Uppl\u00fdsingar um J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson eru fengnar \u00far Gu\u00f0r\u00fan Gu\u00f0laugsd\u00f3ttir. 2009. <i>S\u00e1 \u00e1 skj\u00f6ld hv\u00edtan.Vi\u00f0talsb\u00f3k vi\u00f0 J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson<\/i>. B\u00f3ka\u00fatg\u00e1fan H\u00f3lar. Bein tilvitnun \u00ed J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson er \u00e1 s. 9.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Athyglisvert er a\u00f0 J\u00f3n minnist ekki einu or\u00f0i \u00e1 ritun s\u00f6gu Akraness \u00ed \u00feessari vi\u00f0talsb\u00f3k. Rit hans, <i>Akranes. Fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1885<\/i>, er tali\u00f0 upp \u00ed ritaskr\u00e1 og \u00ed b\u00f3kinni er ein mynd af \u00fev\u00ed \u00feegar forseta \u00cdslands, fr\u00fa Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur, var afhent fyrsta eintaki\u00f0 af b\u00f3kinni [ranglega nefnt <i>Saga Akraness fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1885<\/i>]. \u00c1 myndinni eru Indri\u00f0i Valdimarsson, J\u00f3n, Steinunn \u00d3lafsd\u00f3ttir, Vigd\u00eds og G\u00edsli G\u00edslason. J\u00f3n talar um \u00fdmislegt \u00ed \u00e6vi sinni \u00ed \u00feessari b\u00f3k, j\u00e1kv\u00e6tt og neikv\u00e6tt, sigra og vonbrig\u00f0i og er ekkert alltaf s\u00e1ttur, en liggur \u00fe\u00f3 ekki illt or\u00f0 til nokkurs manns, fremur a\u00f0 hann segi kost og l\u00f6st \u00ed \u00cdslendingasagnast\u00edl um andst\u00e6\u00f0inga s\u00edna. Um samskipti vi\u00f0 Ritnefnd um s\u00f6gu Akraness og \u00fe\u00e1 vinnu sem hann innti af hendi fyrir Akraneskaupsta\u00f0 k\u00fds hann a\u00f0 \u00feegja.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">3 Upphafsgrei\u00f0slan til J\u00f3ns vi\u00f0 undirritun samnings, 554.000 kr. \u00e1ri\u00f0 1987, er\u00a0r\u00famlega tv\u00e6r millj\u00f3nir\u00a0kr\u00f3na \u00e1 n\u00favir\u00f0i. Heildargrei\u00f0slan, um fimm og h\u00e1lf millj\u00f3n 1987, v\u00e6ru t\u00e6p tuttugu og ein millj\u00f3n \u00e1 n\u00favir\u00f0i. \u00dev\u00ed fer fjarri a\u00f0 J\u00f3ni hafi veri\u00f0 greidd s\u00fa upph\u00e6\u00f0. En n\u00e1nari grein fyrir launum J\u00f3ns og kostna\u00f0i vi\u00f0 ritun og \u00fatg\u00e1fu s\u00f6gunnar ver\u00f0ur ger\u00f0 s\u00ed\u00f0ar. \u00dea\u00f0 er alltaf mj\u00f6g erfitt, n\u00e1nast \u00f3gerlegt, a\u00f0 bera saman launakj\u00f6r milli margra \u00e1ratuga en til samanbur\u00f0ar m\u00e1 nefna a\u00f0 <a href=\"http:\/\/www.kjararad.is\/media\/frettir\/\/Laun_embattismanna_i_mars_2010.pdf\">m\u00e1na\u00f0arlaun sk\u00f3lameistara \u00ed mars 2010 voru t\u00e6p 660.000 kr<\/a>., \u00e1rslaun sl\u00edkra \u00fev\u00ed t\u00e6par 8 millj\u00f3nir (en \u00e1ri\u00f0 1987 var J\u00f3n \u00ed leyfi \u00far sk\u00f3lameistarast\u00f6\u00f0u FS). Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00feennan samanbur\u00f0, s\u00e9 haft \u00ed huga a\u00f0 samningst\u00edminn var r\u00fam 5 \u00e1r og innifalinn \u00ed grei\u00f0slum til J\u00f3ns var kostna\u00f0ur sem hlaust af vinnu verksins, s\u00e9st a\u00f0 J\u00f3n var langt \u00ed fr\u00e1 \u00ed fullu starfi vi\u00f0 ritun s\u00f6gu Akraness. En \u00edtreka\u00f0 er a\u00f0 samanbur\u00f0inum ber a\u00f0 taka me\u00f0 fyrirvara, hann er einungis til a\u00f0 gefa lesendum einhverja hugmynd um hva\u00f0 \u00feessar t\u00f6lur \u00ed samningnum \u00fe\u00fd\u00f0a.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Saga S\u00f6gu Akraness II\u00a0 Sj\u00e1 einnig: Saga S\u00f6gu Akraness I, \u00c1 Skaganum \u201ehafa aldrei b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c\u00a0 \u00a0 Titill \u00feessarar f\u00e6rslu er bein tilvitnun \u00ed titil greinar Gunnlaugs Haraldssonar sem <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/08\/framtakssemi-og-frumskogalogmal\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-344","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/344","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=344"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/344\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=344"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=344"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=344"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}