{"id":347,"date":"2011-05-17T23:13:41","date_gmt":"2011-05-17T23:13:41","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/"},"modified":"2011-05-17T23:13:41","modified_gmt":"2011-05-17T23:13:41","slug":"leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/","title":{"rendered":"Leggur ekki nafn sitt vi\u00f0 b\u00f3kart\u00f6tur sem rumpa\u00f0 er saman \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">Titill f\u00e6rslunnar er \u00f3bein tilvitnun \u00ed or\u00f0 Gunnlaugs Haraldssonar um eigin sagnaritun \u00ed br\u00e9finu \u201e<a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/pages\/umraeduvefur\/umraedur\/umr_id\/12066\/thradur\/12024\/fl\/46\/\" title=\"Gunnlaugur Haraldsson\">Meint ritst\u00edfla brestur<\/a>\u201c \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar 25. febr\u00faar 2005.<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Saga S\u00f6gu Akraness V<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sj\u00e1 einnig:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness I<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-30\/a-skaganum-%e2%80%9ehafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki%e2%80%9c\/\">\u00c1 Skaganum \u201ehafa aldrei b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness II<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-08\/%e2%80%9eframtakssemi-og-frumskogalogmal%e2%80%9c\/\">Framtakssemi og frumsk\u00f3gal\u00f6gm\u00e1l<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness III<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-12\/nefndarmenn-lystu-skodun-sinni\/\">Nefndarmenn l\u00fdstu sko\u00f0un sinni<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness IV<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-16\/er-margritad-brot-ur-byggdasogu-120-milljona-krona-virdi\/\">Er margrita\u00f0 brot \u00far bygg\u00f0as\u00f6gu 120 millj\u00f3na kr\u00f3na vir\u00f0i?<\/a><\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/byggdasafn_munir.JPG?resize=200%2C239\" alt=\"Munir vi\u00f0 Bygg\u00f0asafni\u00f0\" align=\"left\" height=\"239\" width=\"200\" \/><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 vir\u00f0ist nokku\u00f0 auglj\u00f3st a\u00f0 upp \u00far \u00e1ram\u00f3tum 1997 voru einhverjir r\u00e1\u00f0amenn \u00ed b\u00e6num b\u00fanir a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a a\u00f0 r\u00e1\u00f0a Gunnlaug Haraldsson sem arftaka J\u00f3ns B\u00f6\u00f0varssonar \u00ed sagnaritun. \u00c1 \u00feeim t\u00edma var Gunnlaugur atvinnulaus, einungis me\u00f0 einhver verkefni \u00ed st\u00e9ttartalaritun og ritun <i>\u00c6viskr\u00e1a MA-st\u00fadenta<\/i>. \u00c1 fyrsta fundi ritnefndar \u00fea\u00f0 \u00e1r, \u00feann 23. febr\u00faar, kemur fram a\u00f0 r\u00e6tt hafi veri\u00f0 vi\u00f0 Gunnlaug um a\u00f0 taka vi\u00f0 sagnarituninni. Gunnlaugur m\u00e6tti enda sj\u00e1lfur \u00e1 fundinn og lag\u00f0i fram hugmyndir s\u00ednar og G\u00edsli G\u00edslason, forma\u00f0ur ritnefndar, tilkynnti a\u00f0 J\u00f3ni B\u00f6\u00f0varssyni hef\u00f0u veri\u00f0 send samningsdr\u00f6g um starfslok.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fdlega sta\u00f0festi Gunnlaugur enn og aftur sj\u00e1lfur a\u00f0 ritnefndin hafi \u00e1tt uppt\u00f6kin a\u00f0 r\u00e1\u00f0ningu hans: \u201e\u00c1ri\u00f0 1997 leita\u00f0i s\u00f6gunefnd Akraness til m\u00edn um a\u00f0 lj\u00faka \u00fev\u00ed skrefi sem stigi\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 me\u00f0 b\u00f3k J\u00f3ns og prj\u00f3na vi\u00f0 hana samantekt m\u00edna\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">1<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">en aftur \u00e1 m\u00f3ti hefur eitthva\u00f0 skolast til hj\u00e1 honum me\u00f0 hva\u00f0a h\u00e6tti \u00fea\u00f0 bar: \u201eFyrst nokkrar s\u00f6gulegar sta\u00f0reyndir: \u00c1ri\u00f0 1997 kom ritnefnd a\u00f0 m\u00e1li vi\u00f0 mig og fala\u00f0ist eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g t\u00e6ki a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 halda \u00e1fram \u00fev\u00ed verki sem J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson cand. mag. og fyrrum sk\u00f3lameistari h\u00f3f 10 \u00e1rum fyrr, en haf\u00f0i \u00fe\u00e1 n\u00fdlega sagt sig fr\u00e1.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">2<\/font><\/sup><font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/b><font size=\"-1\"> Eins og margoft hefur komi\u00f0 fram \u00ed fyrri f\u00e6rslum skrifa\u00f0i J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson undir samkomulag um starfslok \u00feann 24. mars 1997. Gunnlaugur m\u00e6tti hins vegar galvaskur \u00e1 fund Ritnefndarinnar m\u00e1nu\u00f0i fyrr og var \u00fe\u00e1 b\u00fainn a\u00f0 skipuleggja sagnaritun s\u00edna \u00ed talsver\u00f0um sm\u00e1atri\u00f0um; lag\u00f0i fram dr\u00f6g a\u00f0 efnisskr\u00e1 fyrir \u00ferj\u00fa bindi af S\u00f6gu Akraness \u00e1 fundinum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu voru rifju\u00f0 upp n\u00e1in fj\u00f6lskyldutengsl meirihluta ritnefndarinnar og n\u00e1in tengsl eins \u00far \u00feeim meirihluta vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson. S\u00e9 \u00feetta haft \u00ed huga og a\u00f0 Gunnlaugur var svo sem hvorki atvinnuma\u00f0ur \u00ed sagnaritun n\u00e9 vel mennta\u00f0ur \u00ed sagnfr\u00e6\u00f0i er ekki \u00f3e\u00f0lilegt a\u00f0 hvarfli a\u00f0 manni a\u00f0 \u00fearna hafi meirihlutakl\u00edkan \u00ed ritnefndinni r\u00e1\u00f0i\u00f0 vin sinn til starfa enda ma\u00f0urinn atvinnulaus. \u00de\u00f3tt hugdettan s\u00e9 ekki \u00f3e\u00f0lileg eru svolei\u00f0is vinnubr\u00f6g\u00f0 afar \u00f3e\u00f0lileg, \u00e1m\u00e6lisver\u00f0 og \u00ed rauninni \u00f3tr\u00falegt a\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3rn skuli hafa sam\u00feykkt tilt\u00e6ki\u00f0.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">3<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">Af hverju \u00ed \u00f3sk\u00f6punum augl\u00fdsti b\u00e6rinn ekki starf sagnaritara og valdi \u00far ums\u00f3knum eftir menntun og reynslu?<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Samningurinn fyrsti<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Akraneskaupsta\u00f0ur og Hj\u00e1lmar Gunnlaugur Haraldsson ger\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r samning um ritun s\u00f6gu Akraness \u00feann 23. apr\u00edl 1997.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd samningum kemur fram a\u00f0 b\u00e6rinn felur Gunnlaugi a\u00f0 rita \u00feriggja binda s\u00f6gu Akraness sem n\u00e1i yfir t\u00edmabili\u00f0 1700-2000.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">4<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">\u00c1\u00e6tla\u00f0 var a\u00f0 hvert bindi yr\u00f0i 450-500 s\u00ed\u00f0ur \u201e\u00ed st\u00f3ru broti\u201c [fram kemur a\u00f0 \u00e1tt er vi\u00f0 A-4 st\u00e6r\u00f0 e\u00f0a a\u00f0eins minna en \u00fea\u00f0] (7. gr.).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd lj\u00f3si \u00feess sem s\u00ed\u00f0ar var\u00f0 er \u00feri\u00f0ja grein samningsins kannski merkilegust og mikilv\u00e6gust. <b>Samningurinn var t\u00edmabundinn<\/b>: \u201eVerki\u00f0 hefst \u00feann 1. apr\u00edl 1997 og skal loki\u00f0 eigi s\u00ed\u00f0ar en 30. september 2001.\u201c \u00cd s\u00f6mu grein er kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um \u00ed hvers konar standi eigi a\u00f0 afhenda handrit og skiladagar einstakra binda eru fastsettir.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">5<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">Jafnframt eru \u00e1kv\u00e6\u00f0i um a\u00f0 <b>ver\u00f0i dr\u00e1ttur \u00e1 skilum skuli st\u00f6\u00f0va grei\u00f0slur til s\u00f6guritara<\/b>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Riftunar\u00e1kv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed 3. grein hl\u00fdtur a\u00f0 gilda enn<\/b> \u00fev\u00ed allir a\u00f0rir samningar sem s\u00ed\u00f0ar hafa veri\u00f0 ger\u00f0ir vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson eru vi\u00f0b\u00f3tarsamningar vi\u00f0 hinn upphaflega. \u00dear segir: \u201e &#8230; ef vanefndir teljast verulegar \u00e1 verkt\u00edmanum er Akraneskaupsta\u00f0 heimilt a\u00f0 rifta samningi \u00feessum og endurkrefja h\u00f6fund um \u00fe\u00e6r grei\u00f0slur, sem \u00feegar hafa veri\u00f0 inntar af hendi.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">6<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">Eins og \u00f6llum er kunnugt voru vanefndir g\u00edfurlegar og raunar hefur Gunnlaugur ekki enn skila\u00f0 nema brotabroti af \u00fev\u00ed verki sem hann t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r me\u00f0 undirritun \u00feessa samnings.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">7<\/font><\/sup><\/b><font size=\"-1\"> Hvers vegna aldrei hefur veri\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 reyna \u00e1 \u00feetta \u00e1kv\u00e6\u00f0i er m\u00e9r r\u00e1\u00f0g\u00e1ta. N\u00fana, r\u00famum fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1rum eftir a\u00f0 samningurinn var ger\u00f0ur, er m\u00f6gulegt a\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar teldu riftunar\u00e1kv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00f3gilt vegna t\u00f3ml\u00e6tis verkkaupa (Akraneskaupsta\u00f0ar) en \u00fea\u00f0 v\u00e6ri vissulega gaman a\u00f0 f\u00e1 \u00e1lit l\u00f6gfr\u00f3\u00f0ra manna \u00e1 \u00feessu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Vert er a\u00f0 geta s\u00ed\u00f0asta \u00e1kv\u00e6\u00f0isins \u00ed 3. grein, einnig \u00ed lj\u00f3si s\u00f6gunnar: \u201eH\u00f6fundur mun hafa ritun s\u00f6gu Akraness a\u00f0 meginverkefni me\u00f0an \u00e1 gildist\u00edma samningins stendur og mun hann ekki taka a\u00f0 s\u00e9r verkefni, sem leitt getur til \u00feess a\u00f0 verkefnum samkv\u00e6mt \u00feessum samningi ver\u00f0i ekki sinnt.\u201c S\u00f6mulei\u00f0is get \u00e9g ekki s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00feetta \u00e1kv\u00e6\u00f0i hafi falli\u00f0 \u00far gildi. S\u00f6guritari vann seinna a\u00f0 m\u00fdgr\u00fat annarra verkefna me\u00f0an hann ger\u00f0i hvern vi\u00f0b\u00f3tarsamninginn \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum vi\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0, eins og fjalla\u00f0 ver\u00f0ur um s\u00ed\u00f0ar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Grei\u00f0slur til h\u00f6fundar eru t\u00edunda\u00f0ar \u00ed 4. grein. Fyrir allt verki\u00f0 \u00e1tti hann a\u00f0 f\u00e1 14,9 millj\u00f3nir sem skiptust \u00feannig: Vi\u00f0 undirritun samnings f\u00e9kk s\u00f6guritari 5% upph\u00e6\u00f0arinnar, 745.000 kr. en v\u00e6ri s\u00ed\u00f0an \u00e1 f\u00f6stum 206.574 kr. m\u00e1na\u00f0arlaunum \u00ed fj\u00f6gur og h\u00e1lft \u00e1r (54 m\u00e1nu\u00f0i, fr\u00e1 1. apr\u00edl 1997 \u00fat september 2001). Upph\u00e6\u00f0in var ver\u00f0trygg\u00f0 og skyldi uppf\u00e6rast einu sinni \u00e1 \u00e1ri. \u00deetta voru verktakagrei\u00f0slur, \u00fe.e.a.s. var innifalinn \u00ed \u00feeim kostna\u00f0ur vegna launatengdra gjalda.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">8<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">Vi\u00f0 skil \u00e1 hverju handritanna \u00feriggja sem ritnefnd sam\u00feykkti \u00e1tti Gunnlaugur s\u00ed\u00f0an a\u00f0 f\u00e1 eina millj\u00f3n. S\u00fa upph\u00e6\u00f0 var einnig ver\u00f0trygg\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gunnlaugur skyldi leggja til alla vinnua\u00f0st\u00f6\u00f0u og \u00e1h\u00f6ld til ritunar verksins en Akraneskaupsta\u00f0ur endurgrei\u00f0a honum kostna\u00f0 vi\u00f0 lj\u00f3sritun og fer\u00f0ir innanlands. (5. gr.)<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Samskipti vi\u00f0 ritnefnd og vinnulag Gunnlaugs \u00ed sagnarituninni<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Samskipti Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness [h\u00e9r eftir k\u00f6llu\u00f0 Ritnefndin] og Gunnlaugs Haraldssonar voru \u00f3l\u00edkt lj\u00fafari en samskipti s\u00f6mu nefndar og J\u00f3ns B\u00f6\u00f0varssonar h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0. \u00c1 \u00feeim t\u00edma sem Gunnlaugur vann eftir \u00feessum fyrsta samningi h\u00e9lt nefndin fj\u00f3rt\u00e1n fundi. <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/page\/1\/\" title=\"Ritnefnd um s\u00f6gu Akraness\">Fundarger\u00f0ir hennar eru a\u00f0gengilegar \u00e1 vef Akraneskaupsta\u00f0ar fr\u00e1 15. febr\u00faar 2001<\/a> en til h\u00e6g\u00f0arauka hef \u00e9g teki\u00f0 saman <b><a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/ssa\/tafla_fundir_gh_1997_2001.html\" title=\"Fundarger\u00f0ir Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness, 1. hluti\">a\u00f0alatri\u00f0i \u00feessara fj\u00f3rt\u00e1n funda \u00ed t\u00f6flu<\/a><\/b> sem \u00e9g m\u00e6li me\u00f0 a\u00f0 \u00e1hugasamir unnendur s\u00f6gu <i>S\u00f6gu Akraness<\/i> sko\u00f0i.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Svo sem fyrr var nefnt var Ritnefndin sennilega l\u00f6ngu b\u00fain a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a a\u00f0 r\u00e1\u00f0a Gunnlaug \u00e1\u00f0ur en samningur b\u00e6jarins vi\u00f0 hann var formlega ger\u00f0ur. Hann byrja\u00f0i ekki me\u00f0 tv\u00e6r hendur t\u00f3mar \u00fev\u00ed \u00e1 fyrsta fundi eftir undirritun samnings (31. fundi, ma\u00ed &#8217;97) afhenti G\u00edsli G\u00edslason honum \u00fdmis g\u00f6gn fr\u00e1 J\u00f3ni B\u00f6\u00f0varssyni, \u00fear \u00e1 me\u00f0al handrit a\u00f0 2. bindi s\u00f6gu J\u00f3ns, sem vanta\u00f0i eitthva\u00f0 \u00e1 og nefndin var ekki s\u00e1tt vi\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gunnlaugur lag\u00f0i fram heilmiki\u00f0 af hugmyndum, \u00e1\u00e6tlunum og listum, \u00e1samt \u201ehuglei\u00f0ingum\u201c s\u00ednum \u201eum vinnu s\u00edna\u201c, \u00e1 \u00e1runum 1997-98. \u00c1ri\u00f0 1999 skila\u00f0i hann loks einhverju, \u00fe.e. dr\u00f6gum a\u00f0 efnisyfirliti fyrsta bindis, skv. fundarger\u00f0 13. okt\u00f3ber 1999 (37. fundur). \u00cd samningnum var \u00e1skili\u00f0 a\u00f0 hann skila\u00f0i handriti a\u00f0 fyrsta bindi fyrir 1. okt\u00f3ber 1999. \u00deessi vanskil vir\u00f0ast ekki valda Ritnefndinni neinum s\u00e9rst\u00f6kum \u00e1hyggjum, \u00fea\u00f0 er ekki fyrr en um mitt n\u00e6sta \u00e1r, \u00ed j\u00fan\u00ed 2000, sem er b\u00f3ka\u00f0: \u201eT\u00edma\u00e1\u00e6tlun er um einu \u00e1ri \u00e1 eftir \u00e1\u00e6tlun en stefnt er a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna \u00feann t\u00edma upp og leggja fram handriti\u00f0 af 1. bindi \u00e1 haustd\u00f6gum e\u00f0a \u00ed vetrarbyrjun.\u201c Svo var\u00f0 ekki heldur l\u00e9t sagnaritari duga a\u00f0 leggja fram \u201es\u00fdnishorn af efni sem yr\u00f0i \u00ed 1. bindi\u201c og \u201etill\u00f6gu a\u00f0 framsetningu \u00e1 \u00fev\u00ed sem gert ver\u00f0ur\u201c, \u00ed lok n\u00f3vember 2000 (39. fundur). Nefndin er ekkert a\u00f0 b\u00f6gga hann \u00e1 \u00feeim fundi heldur \u201e&#8230; l\u00fdstu [nefndarmenn] almennt yfir j\u00e1kv\u00e6\u00f0u vi\u00f0horfi til \u00feeirrar framsetningar sem Gunnlaugur kynnti. Fram komu einnig athugasemdir um a\u00f0 nau\u00f0synlegt v\u00e6ri a\u00f0 lj\u00faka vinnu vi\u00f0 1. bindi sem fyrst og hefja vinnu vi\u00f0 2. og 3. bindi.\u201c Raunar \u00e1tti Gunnlaugur a\u00f0 vera b\u00fainn a\u00f0 skila 2. bindi fyrir 1. okt\u00f3ber \u00feetta \u00e1r og 1. bindi meir en \u00e1ri \u00e1\u00f0ur.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er \u00f3skiljanlegt hvernig Ritnefndin bregst eftirlitshlutverki s\u00ednu gersamlega eins og raki\u00f0 hefur veri\u00f0. H\u00fan vir\u00f0ist hafa einhverja gl\u00fdju \u00ed augum \u00feegar vinnubr\u00f6g\u00f0 Gunnlaugs ber \u00e1 g\u00f3ma. E.t.v. hafa nefndarmenn tr\u00faa\u00f0 \u00fev\u00ed \u00ed alv\u00f6ru a\u00f0 hann b\u00e6ri miklu betra skynbrag\u00f0 \u00e1 sagnaritun en J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera miklu minna mennta\u00f0ur og me\u00f0 miklu minni reynslu. Kannski voru \u00feetta eftirhreytur af hugmyndafr\u00e6\u00f0i (\u00f6llu heldur sj\u00e1lfsd\u00fdrkun) \u00edslenskra n\u00e1msmanna \u00ed Lundi \u00e1 \u00e1ttunda \u00e1ratugnum, kannski t\u00f3kst sagnaritaranum sj\u00e1lfum svona vel a\u00f0 sannf\u00e6ra nefndina.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sko\u00f0anir hans sj\u00e1lfs \u00e1 hvernig skuli rita bygg\u00f0as\u00f6gu eru sk\u00fdrar:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-2\">Gunnlaugur segir a\u00f0 \u00ed raun s\u00e9u um tv\u00e6r lei\u00f0ir a\u00f0 velja vi\u00f0 ritun h\u00e9ra\u00f0ss\u00f6gu. \u00d6nnur lei\u00f0in, og s\u00fa au\u00f0veldari, s\u00e9 a\u00f0 einskor\u00f0a hana vi\u00f0 samantekt og \u00farvinnslu \u00e1 \u00fev\u00ed rita\u00f0a og prenta\u00f0a efni sem \u00feegar liggur fyrir. Me\u00f0 \u00feeirri a\u00f0fer\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00f3 litlu sem engu auki\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur var vita\u00f0 og \u00fev\u00ed efam\u00e1l hvort sl\u00edk \u00fatg\u00e1fa \u00fej\u00f3ni einhverjum tilgangi. Hin lei\u00f0in s\u00e9 a\u00f0 afla frumheimilda eins og kostur er og r\u00e1\u00f0ast \u00ed metna\u00f0arfullt og krefjandi starf, \u00fear sem leitast er vi\u00f0 a\u00f0 rifja sem best upp l\u00f6ngu gleymda s\u00f6gu. Gunnlaugur segir a\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fd\u00f0i ekkert \u201eh\u00e9rumbil\u201c og fara ver\u00f0i alla lei\u00f0 \u00ed \u00feeim efnum, reyna a\u00f0 vi\u00f0a a\u00f0 s\u00e9r \u00f6llum \u00feeim g\u00f6gnum sem fyrirfinnast.<b><sup>9<\/sup><\/b><\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00dearf n\u00e1tt\u00farlega enginn a\u00f0 fara \u00ed grafg\u00f6tur um a\u00f0 Gunnlaugur hefur kosi\u00f0 erfi\u00f0ari lei\u00f0ina \u00ed sinni sagnaritun. \u00c1ri\u00f0 2005 or\u00f0a\u00f0i hann \u00e1lit sitt enn sk\u00fdrar (\u00fe\u00e1 or\u00f0inn 4-6 \u00e1rum \u00e1 eftir \u00e1\u00e6tlun me\u00f0 verki\u00f0, eftir \u00fev\u00ed hvernig \u00e1 \u00fea\u00f0 er liti\u00f0):<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-2\">\u00deetta er \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki einsd\u00e6mi s\u00f6gu \u00edslenskrar sagnaritunar, heldur \u00f6llu fremur s\u00edgild og bitur reynsla n\u00e6r allra \u00feeirra sveitarf\u00e9laga, fyrirt\u00e6kja og annarra a\u00f0ila sem fyrr og s\u00ed\u00f0ar hafa r\u00e1\u00f0ist \u00ed a\u00f0 l\u00e1ta skr\u00e1 l\u00edtt e\u00f0a ekki ranns\u00f6ku\u00f0 efni e\u00f0a s\u00f6gu s\u00edna. Hrekkur \u00fe\u00e1 skammt a\u00f0 m\u00e6la digurbarkalega \u00e1 spjallr\u00e1sum a\u00f0 v\u00edsa me\u00f0 st\u00f3ryr\u00f0um \u00ed einhvern \u00f3r\u00f6kstuddan me\u00f0altalst\u00edma til \u201cb\u00f3karskrifta \u00e1 \u00cdslandi\u201d &#8230; \u00fev\u00ed s\u00e9rhvert tilvik r\u00e6\u00f0st miklu fremur af a\u00f0gengi og tilur\u00f0 heimilda svo og \u00feeim kr\u00f6fum sem ger\u00f0ar eru um \u00farvinnslu \u00feeirra. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gur vandi a\u00f0 rumpa saman b\u00f3kart\u00f6tri \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma me\u00f0 \u00fev\u00ed einu a\u00f0 sanka saman gagnr\u00fdnislaust samt\u00edningi \u00far \u00e1\u00f0ur \u00fatgefnum ritum eins og \u00fdmsir hafa l\u00e1ti\u00f0 s\u00e9r s\u00e6ma og m\u00f6rg eru &#8220;einnota&#8221; d\u00e6min um \u00ed \u00e1rlegu j\u00f3lab\u00f3kafl\u00f3\u00f0i. \u00c9g legg ekki nafn mitt vi\u00f0 sl\u00edka i\u00f0ju &#8230;<b><sup>10<\/sup><\/b><\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1fram h\u00e9lt svo samkv\u00e6misleikur Gunnlaugs og Ritnefndarinnar; Hann segir nefndinni hva\u00f0 hann hafi veri\u00f0 a\u00f0 bard\u00fasa og hva\u00f0 hann hafi hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 gera og fer svo a\u00f0 mjatla efni \u00ed nefndina \u00ed sk\u00f6mmtum fr\u00e1 febr\u00faar \u00e1ri\u00f0 2001. Ritnefndin er svo sem ekkert a\u00f0 \u00e6sa sig, \u00fe\u00f3tt a\u00f0eins s\u00e9 fari\u00f0 a\u00f0 nefna a\u00f0 nau\u00f0synlegt s\u00e9 a\u00f0 lj\u00faka vinnu vi\u00f0 1. bindi sem fyrst e\u00f0a a\u00f0 \u00e6skilegt s\u00e9 a\u00f0 \u00e1kve\u00f0in markmi\u00f0, \u00f3tilgreind, n\u00e1ist fyrir n\u00e6sta fund e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00e1m\u00f3ta saklaust.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/byggdasafn_munir2.jpg?resize=200%2C146\" alt=\"Munir \u00e1 Bygg\u00f0asafni\" align=\"left\" height=\"146\" width=\"200\" \/><font size=\"-1\">\u00deann 15. okt\u00f3ber 2001 er b\u00f3ka\u00f0: \u201eGunnlaugur ger\u00f0i grein fyrir st\u00f6\u00f0u m\u00e1la. Efni vegna 19. aldar er n\u00fa um 5-600 s\u00ed\u00f0ur, en vinna \u00fearf \u00fea\u00f0 efni frekar og skipta \u00fev\u00ed \u00ed tv\u00f6 bindi og mi\u00f0a vi\u00f0 1850. S\u00e1 t\u00edmi, sem gert var r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 f\u00e6ri \u00ed ritunina, er a\u00f0 l\u00ed\u00f0a og var m.a. r\u00e6tt um \u00fdmislegt \u00fev\u00ed tengt.\u201c \u00deetta er merkileg b\u00f3kun! \u00cd fyrsta lagi var \u201es\u00e1 t\u00edmi sem gert var r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 f\u00e6ri \u00ed ritunina&#8221; ekki <b>a\u00f0 l\u00ed\u00f0a<\/b> heldur <b>l\u00f6ngu li\u00f0inn<\/b>! Gunnlaugur \u00e1tti a\u00f0 skila fyrsta bindi, um bygg\u00f0as\u00f6gu 1700-1900, fyrir 1. okt. 1999, \u00f6\u00f0ru bindi um atvinnuh\u00e6tti og hags\u00f6gu 1900-2000 fyrir 1. okt. 2000 og \u00feri\u00f0ja bindi um f\u00e9lags-og menningars\u00f6gu 1900-2000 fyrir 1. okt. 2001. \u00c9g minnist \u00feess a\u00f0 ekki hafa s\u00e9\u00f0 jafnst\u00f3rkostlegan \u00fardr\u00e1tt \u00ed opinberri fundarger\u00f0 og \u00feessa b\u00f3kun Ritnefndarinnar! Aftur \u00e1 m\u00f3ti voru fastar m\u00e1na\u00f0argrei\u00f0slur til Gunnlaugs v\u00e6ntanlega um \u00fea\u00f0 bil a\u00f0 st\u00f6\u00f0vast. Hitt, \u00fe.e. a\u00f0 Gunnlaugur \u00e1kve\u00f0i allt \u00ed einu \u00feegar samningst\u00edminn er li\u00f0inn a\u00f0 skipta fyrsta bindinu \u00ed tvennt, \u00e1n \u00feess a\u00f0 Ritnefndin svo miki\u00f0 sem \u00e6mti, er l\u00edka st\u00f3rmerkilegt. H\u00f6f\u00f0u almennir nefndarmenn aldrei lesi\u00f0 samninginn sem Akraneskaupsta\u00f0ur ger\u00f0i vi\u00f0 Gunnlaug? \u00cd samningnum er nefnilega skipulagi\u00f0 og skiptingin talin afar n\u00e1kv\u00e6mt upp enda l\u00edklega einmitt samin af Gunnlaugi handa Ritnefndinni snemma \u00e1rs 1997. (Sennilegt er a\u00f0 forma\u00f0ur Ritnefndarinnar haf\u00f0i lesi\u00f0 samninginn \u00fev\u00ed hann skrifa\u00f0i sj\u00e1lfur undir hann, fyrir h\u00f6nd b\u00e6jarins.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 sem Ritnefndin haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 af verkinu h\u00e6gunna, \u00feegar h\u00e9r var komi\u00f0 s\u00f6gu, \u00fe.e. samningst\u00edma var loki\u00f0, var: \u201eS\u00fdnishorn af efni \u00ed 1. bindi\u201c (22.11. 2000); 150 s. s\u00fdnishorn af 1. bindi (15.2. 2001); 302 s. af 1. bindi (30.5. 2001); 112 s. um lok 18. aldar og 70 s. efnis fr\u00e1 19.\u00f6ld, \u00fe.e. efni \u00ed 1. bindi (15. 10. 2001). Handh\u00e6gara er e.t.v. a\u00f0 sko\u00f0a \u00feetta \u00ed <a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/ssa\/tafla_fundir_gh_1997_2001.html\" title=\"Fundarger\u00f0ir Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness, 1. hluti\"><strong>t\u00f6flunni yfir a\u00f0alatri\u00f0i \u00ed fundarger\u00f0um<\/strong><\/a>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Enn einn fundinn heldur Ritnefndin eftir mi\u00f0jan n\u00f3vember 2001. Fundarger\u00f0in er merkileg \u00fev\u00ed \u00ed henni er a\u00f0 nokkru ger\u00f0ur upp afraksturinn af fj\u00f6gurra \u00e1ra vinnu Gunnlaugs. Feitletranir \u00ed fundarger\u00f0 eru m\u00ednar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201e1. Gunnlaugur <b>lag\u00f0i fram efnisyfirlit a\u00f0 1. bindi \u00e1samt 598 s\u00ed\u00f0um \u00ed handriti<\/b> sem n\u00e6r fr\u00e1 1700 til 1850.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">2. Lagt fram br\u00e9f Gunnlaugs, dags. 19. n\u00f3vember, um ritun s\u00f6gunnar.\u00a0 <b>\u00cd br\u00e9fi Gunnlaugs kemur m.a. fram a\u00f0 verki\u00f0 hafi tafist \u00fear sem langtum meiri t\u00edma hafi teki\u00f0 a\u00f0 leita uppi heimildir \u00ed skjalas\u00f6fnum, \u00farvinnsla gagna og heimilda f\u00f3r \u00fear af lei\u00f0andi\u00a0 seinna af sta\u00f0 og loks a\u00f0 \u00edtarleg heimilda\u00f6flun hafi leitt fj\u00f6lmargt \u00ed lj\u00f3s sem fyrirfram var ekki vita\u00f0 og kosta\u00f0 t\u00f6luver\u00f0a vinnu a\u00f0 vinna \u00far.<\/b>\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dearna\u00a0s\u00e9st upphafshlekkur langrar afs\u00f6kunarke\u00f0ju \u00fev\u00ed svipa\u00f0ar afsakanir hefur s\u00f6guritari nota\u00f0 \u00e6 s\u00ed\u00f0an.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201e<b>\u00de\u00e1 kom fram \u00ed br\u00e9fi Gunnlaugs a\u00f0 n\u00fa s\u00e9 f\u00f6stum grei\u00f0slum til hans loki\u00f0, en \u00e1rangurstengdar grei\u00f0slur \u00f3greiddar.\u00a0 Ver\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 taka \u00e1kv\u00f6r\u00f0un sem fyrst me\u00f0 hva\u00f0a h\u00e6tti vinnunni ver\u00f0i haldi\u00f0 \u00e1fram.\u00a0 Gunnlaugur\u00a0 telur einnig r\u00e9tt a\u00f0 rita fors\u00f6guna, \u00fe.e. fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1700, sem kunni a\u00f0 taka 3 m\u00e1nu\u00f0i a\u00f0 skrifa.\u00a0 \u00cd br\u00e9finu kemur fram a\u00f0 um 24-30 m\u00e1nu\u00f0i taki a\u00f0 b\u00faa anna\u00f0 efni til prentunar.<\/b>\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er \u00e1rei\u00f0anlega r\u00e9tt hj\u00e1 Gunnlaugi a\u00f0 \u00e1rangurstengdar grei\u00f0slur voru \u00f3greiddar. N\u00e6rt\u00e6kasta sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed er au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 \u00e1rangurinn, afraksturinn, haf\u00f0i enginn veri\u00f0. Hann \u00e1tti a\u00f0 f\u00e1 eina millj\u00f3n fyrir hvert bindi sem hann skila\u00f0i \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma en haf\u00f0i engu skila\u00f0 fyrr en \u00e1 \u00feessum fundi. N\u00fana skila\u00f0i hann loksins \u00f3kl\u00e1ru\u00f0u fyrsta bindi, mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 samning, tveimur \u00e1rum of seint. \u00c9g vek athygli \u00e1 \u00fev\u00ed snjallr\u00e6\u00f0i Gunnlaugs a\u00f0 ota \u201efors\u00f6gunni\u201c a\u00f0 nefndinni, \u00fe.e. einhverjum stuttum pistli fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1700. Ritnefndin gleypti \u00fe\u00e1 beitu \u00ed upphafi n\u00e6stu samningslotu, sem var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 ekki var einu sinni h\u00e6gt a\u00f0 gefa \u00fat \u00feetta svokalla\u00f0a fyrsta bindi s\u00f6gunnar \u00fev\u00ed \u00fear me\u00f0 vanta\u00f0i upphafi\u00f0 framan \u00e1 \u00fea\u00f0. Hafandi s\u00fdnt Ritnefndinni <i>S\u00f6gu Akureyrar<\/i>, v\u00e6ntanlega I. bindi, n\u00e1nast \u00ed upphafi verksins (33. fundi) var hann b\u00fainn a\u00f0 leggja l\u00ednurnar fyrir einmitt \u00feetta form.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gunnlaugur v\u00e9k svo af fundi en nefndin h\u00e9lt \u00e1fram st\u00f6rfum og b\u00f3ka\u00f0i:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201e3. R\u00e6tt var um st\u00f6\u00f0u m\u00e1lsins.\u00a0<b>Ritnefndin sta\u00f0festi skil \u00e1 1. bindi verksins sbr. gildandi samning<\/b>.\u00a0 Nefndin er samm\u00e1la um a\u00f0 \u00fea\u00f0 efni sem skila\u00f0 hefur veri\u00f0 s\u00e9 gott og lofi g\u00f3\u00f0u um heildarverki\u00f0. <b>Nefndin telur mikilv\u00e6gt a\u00f0 verkinu ver\u00f0i haldi\u00f0 \u00e1fram og leggur til vi\u00f0 b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 a\u00f0 samningur b\u00e6jarins vi\u00f0 s\u00f6guritara ver\u00f0i framlengdur.<\/b>\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gunnlaugur haf\u00f0i vissulega lagt fram efnisyfirlit\u00a0yfir 1. bindi og 589 s\u00ed\u00f0ur \u00ed handriti \u201esem n\u00e6r fr\u00e1 1700-1850\u201c. En vi\u00f0 \u00feetta er \u00fea\u00f0 a\u00f0 athuga a\u00f0 skil voru r\u00famum tveimur \u00e1rum \u00e1 eftir \u00e1\u00e6tlun mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 samninginn. Ennfremur var 1. bindi\u00f0 skilgreint \u00ed samningi sem bygg\u00f0asaga 1700-1900. Hvernig Ritnefndin gat sta\u00f0fest a\u00f0 \u00feetta sem Gunnlaugur skila\u00f0i v\u00e6ru \u201eskil \u00e1 1. bindi verksins sbr. gildandi samning\u201c er ofar m\u00ednum skilningi. Forma\u00f0ur Ritnefndarinnar, b\u00e6jarstj\u00f3rinn, er l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur a\u00f0 mennt \u00feannig a\u00f0 \u00feetta hl\u00fdtur einhvern veginn a\u00f0 hafa veri\u00f0 l\u00f6glegt og \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 samninginn, er \u00fea\u00f0 ekki?<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Grei\u00f0slur til Gunnlaugs Haraldssonar \u00e1 \u00feessu t\u00edmabili og annar kostna\u00f0ur<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gunnlaugi voru greidd full m\u00e1na\u00f0arlaun fr\u00e1 1. apr\u00edl 1997 \u00fat september 2001. A\u00f0 auki f\u00e9kk hann endurgreiddan kostna\u00f0 vegna efnis\u00f6flunar og fer\u00f0a. L\u00edklega hefur hann fengi\u00f0 eina \u00e1rangurstengda grei\u00f0slu greidda (jafnvir\u00f0i einnar millj\u00f3nar \u00e1 ver\u00f0lagi apr\u00edl 1997) \u00e1ri\u00f0 2001. Alls greiddi Akraneskaupsta\u00f0ur Gunnlaugi 16 millj\u00f3nir og r\u00e9tt t\u00e6p 700 \u00fe\u00fasund kr\u00f3na \u00e1 \u00e1runum 1997-2001. A\u00f0 auki er b\u00f3ka\u00f0ur annar kostna\u00f0ur vi\u00f0 ritun s\u00f6gu Akraness 1998 og 1999, samtals 263.325 kr. Kostna\u00f0ur vegna nefndarlauna ritnefndar er fyrir \u00e1ri\u00f0 2001 33.168 kr. (fyrri upph\u00e6\u00f0ir nefndarlauna liggja ekki fyrir). Samanlag\u00f0ur kostna\u00f0ur Akranesb\u00e6jar af s\u00f6guritun \u00ed fyrstu atrennu Gunnlaugs var \u00fev\u00ed t\u00e6par 17 millj\u00f3nir en s\u00e9u upph\u00e6\u00f0irnar uppreikna\u00f0ar <b>\u00e1 n\u00favir\u00f0i er \u00feessi tala 32 millj\u00f3nir og r\u00famlega 670 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur. Br\u00f3\u00f0urparturinn af henni eru laun og endurgreiddur kostna\u00f0ur til Gunnlaugs.<\/b><\/font><b><sup><font size=\"-2\">11<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Til samanbur\u00f0ar m\u00e1 nefna a\u00f0 heildarkostna\u00f0ur Akraneskaupsta\u00f0ar vi\u00f0 ritun s\u00f6gu b\u00e6jarins af h\u00e1lfu J\u00f3ns B\u00f6\u00f0varssonar var r\u00e9tt r\u00famlega 15 millj\u00f3nir og 223 \u00fe\u00fasund \u00e1 n\u00favir\u00f0i, fyrir utan laun ritnefndar. Fyrir \u00fe\u00e1 upph\u00e6\u00f0 f\u00e9kkst ein b\u00f3k \u00fatgefin, <i>Akranes. Fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1885<\/i>, og \u00f3fullgert handrit a\u00f0 n\u00e6sta bindi (alls \u00e1ttu \u00feetta a\u00f0 ver\u00f0a \u00ferj\u00fa bindi). Kostna\u00f0ur af vinnu Gunnlaugs Haraldssonar 1997-2001 var tv\u00f6falt meiri. Fyrir \u00fe\u00e1 upph\u00e6\u00f0 f\u00e9kkst \u00f3fullgert handrit a\u00f0 fyrsta bindi af \u00feremur sem um haf\u00f0i veri\u00f0 sami\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">Fyrri f\u00e6rslur:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness I<\/strong>, <\/font><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-30\/a-skaganum-%e2%80%9ehafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki%e2%80%9c\/\" title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\"><font size=\"2\">\u00c1 Skaganum \u201ehafa aldri b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c<\/font><\/a><br \/>\n<font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness II<\/strong>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-08\/%e2%80%9eframtakssemi-og-frumskogalogmal%e2%80%9c\/\" title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\">\u201eFramtakssemi og frumsk\u00f3garl\u00f6gm\u00e1l\u201c<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness III<\/strong>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-12\/nefndarmenn-lystu-skodun-sinni\/\" title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\">Nefndarmenn l\u00fdstu sko\u00f0un sinni<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness IV<\/strong>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/\" title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\">Leggur ekki nafn sitt vi\u00f0 b\u00f3kart\u00f6tur sem rumpa\u00f0 er saman \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma<\/a><\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">Framhaldsf\u00e6rslur:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\"><strong>Saga S\u00f6gu Akraness VI,<\/strong> <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-20\/gunnlaugur-haraldsson-aetlar-ad-og-hyggst-nu\/\" title=\"Gunnlaugur Haraldsson\">Gunnlaugur Haraldsson \u00e6tlar a\u00f0 &#8230; og hyggst n\u00fa &#8230;<\/a><\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<hr width=\"100%\" \/><font size=\"-2\">1 \u201e\u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert h\u00e9r um bil vi\u00f0 ritun s\u00f6gunnar. Spjalla\u00f0 vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson ritara S\u00f6gu Akraness\u201c. <i>Skessuhorni\u00f0<\/i> 13. apr\u00edl 1997, s. 14.<\/font><font size=\"-2\">J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson skrifa\u00f0i undir samkomulag um starfslok \u00feann 24. mars 1997. En fr\u00e9tt um a\u00f0 J\u00f3ni hef\u00f0i veri\u00f0 sagt upp birtist talsvert fyrr, \u00ed <i>DV<\/i> 12. mars 1997 (\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=197306&amp;pageId=2952216&amp;lang=is&amp;q=S\u00f6gu Akraness\" title=\"Saga Akraness\">S\u00f6guritara sagt upp<\/a>\u201c). Nokkur \u00de\u00f3r\u00f0argle\u00f0i sk\u00edn \u00ed gegnum fyrirs\u00f6gn <i>Skagabla\u00f0sins\u00a0<\/i> tveimur d\u00f6gum eftir a\u00f0 J\u00f3n skrifa\u00f0i undir samninginn: \u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=312256&amp;pageId=4813079&amp;lang=is&amp;q=S\u00f6gu Akraness\" title=\"Saga Akraness\">Skr\u00e1setjarinn settur af<\/a>\u201c (Sj\u00e1 <i>Dagur-T\u00edminn<\/i> 26. mars 1997) og m\u00e1 velta fyrir s\u00e9r hva\u00f0an sl\u00edk gle\u00f0i var \u00e6ttu\u00f0. Or\u00f0 G\u00edsla G\u00edslasonar \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/pages\/umraeduvefur\/umraedur\/umr_id\/12033\/thradur\/12024\/fl\/46\/\" title=\"G\ufffdsli G\ufffdslason b\u00e6jarstj\u00f3ri\">umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar 23. febr\u00faar 2005<\/a> eru illskiljanleg \u00ed \u00feessu lj\u00f3si: \u201eEkki \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 fara a\u00f0 rifja h\u00e9r upp ritferil J\u00f3ns B\u00f6\u00f0varssonar &#8211; en til a\u00f0 fyrirbyggja misskilning \u00fe\u00e1 \u00f3ska\u00f0i hann eftir lausn fr\u00e1 samningi s\u00ednum og \u00fev\u00ed var \u00fea\u00f0 ekki \u00e1 hendi b\u00e6jarins a\u00f0 halda vi\u00f0 \u00feann samning.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Mikil hamingja vir\u00f0ist hafa r\u00edkt yfir r\u00e1\u00f0ningu hins n\u00fdja sagnaritara skv. fr\u00e9ttum. Gunnlaugur var sag\u00f0ur \u201ema\u00f0ur \u00f6llum hn\u00fatum kunnugur &#8230; hef\u00f0i til d\u00e6mis skrifa\u00f0 s\u00f6gu Akraneskirkju og farist \u00fea\u00f0 afbur\u00f0avel \u00far hendi&#8221; (\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=197386&amp;pageId=2953944&amp;lang=is&amp;q=Akraneskirkju\" title=\"Saga Akraness\">18 millj\u00f3nir \u00ed ritun s\u00f6gu Akraness<\/a>\u201c. <i>DV<\/i> 28. apr\u00edl 1997), \u201e&#8230; er Akurnesingum a\u00f0 g\u00f3\u00f0u kunnur fyrir fars\u00e6l st\u00f6rf um \u00e1rabil vi\u00f0 Bygg\u00f0asafn Akraness og n\u00e6rsveita og fyrir vanda\u00f0 verk vi\u00f0 ritun s\u00f6gu Akraneskirkju, svo nokku\u00f0 s\u00e9 nefnt.\u201c (\u201e<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=129463&amp;pageId=1877790&amp;lang=is&amp;q=Akraneskirkju\" title=\"Saga Akraness\">Ritun s\u00f6gu Akraness<\/a>\u201c. <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> 30. apr\u00edl 1997.)<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">2 Gunnlaugur Haraldsson. \u201e<a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/pages\/umraeduvefur\/umraedur\/umr_id\/12066\/thradur\/12024\/fl\/46\/\" title=\"Gunnlaugur Haraldsson\">Meint ritst\u00edfla brestur<\/a>\u201c. Umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0ur Akraneskaupsta\u00f0ar \u00feann 25. febr\u00faar 2005.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">3 Enn \u00f3tr\u00falegra er \u00fea\u00f0 a\u00f0standandahlutverk sem Ritnefndin og b\u00e6jarstj\u00f3rn l\u00e9ku seinna \u00e1rum saman, \u00feegar lj\u00f3st var\u00f0 a\u00f0 sagnaritarinn skila\u00f0i litlu sem engu. \u00c1 Akranesi var ekki bleikur f\u00edll \u00ed stofunni: Bleiki f\u00edllinn dvaldi \u00e1 gr\u00e6num engjum hugv\u00edsindanna!<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">4<b>\u00a0<\/b> \u00deetta kemur fram \u00ed 1. gr. samningsins. \u00dear er einnig kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um \u201eefnisskipan \u00ed a\u00f0alatri\u00f0um\u201c. S\u00fa efnisskipan er \u00fea\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega t\u00edundu\u00f0 a\u00f0 \u00feetta hlj\u00f3ta a\u00f0 vera till\u00f6gur Gunnlaugs sj\u00e1lfs sem hann lag\u00f0i fram \u00e1 fundi Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness \u00ed febr\u00faar 1997 (\u00e1 30. fundi nefndarinnar).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u00cd gr\u00f3fum dr\u00e1ttum var skiptingin \u00feannig: Fyrsta bindi skyldi fjalla um bygg\u00f0as\u00f6gu 1700-1900, anna\u00f0 bindi um atvinnuh\u00e6tti og hags\u00f6gu 1900-2000 og hi\u00f0 \u00feri\u00f0ja um f\u00e9lags-og menningars\u00f6gu 1900-2000. Ekki ver\u00f0ur s\u00e9\u00f0 af efnisskipan af hverju \u00fe\u00f3tti nau\u00f0synlegt a\u00f0 endurrita um t\u00edmabili\u00f0 1700-1885, sem J\u00f3n B\u00f6\u00f0varsson haf\u00f0i gert skil \u00ed <i>Akranes. Fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1885<\/i>. En Gunnlaugur Haraldsson skrifa\u00f0i \u00ed br\u00e9finu \u201e<a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/pages\/umraeduvefur\/umraedur\/umr_id\/12066\/thradur\/12024\/fl\/46\/\" title=\"Gunnlaugur Haraldsson\">Meint ritst\u00edfla brestur<\/a>\u201c \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar \u00feann 25. febr\u00faar 2005: \u201e\u00cd \u00f6\u00f0ru lagi \u00fe\u00f3tti m\u00e9r a\u00f0 \u00ed b\u00f3k J\u00f3ns hef\u00f0i veri\u00f0 skauta\u00f0 b\u00fdsna glannalega yfir fj\u00f6lmarga \u00fe\u00e6tti s\u00f6gunnar, a\u00f0 \u00fev\u00ed marki sem \u00e9g taldi mig \u00fe\u00e1 \u00feekkja til hennar, &#8211; einkum \u00e1 18. og 19. \u00f6ld, &#8211; heimildanotkun og efnist\u00f6k einnig gj\u00f6r\u00f3l\u00edk \u00fev\u00ed sem \u00e9g myndi sj\u00e1lfur kj\u00f3sa\u201c svo nokku\u00f0 \u00f6rugglega er \u00feessi hugmynd um endurskrif komin fr\u00e1 Gunnlaugi sj\u00e1lfum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Eftir tilt\u00f6lulega sm\u00e1smugulega upptalningu samningsins \u00e1 efnis\u00fe\u00e1ttum (sem l\u00edkist efnisgrind a\u00f0\u00a0 sk\u00f3laritger\u00f0um) segir: \u201eFramangreind efnisskr\u00e1 er ekki t\u00e6mandi og mun \u00fev\u00ed \u00ed me\u00f0f\u00f6rum h\u00f6fundar og ritnefndar, sem Akraneskaupsta\u00f0ur skipar, taka einhverjum breytingum me\u00f0an \u00e1 vinnu vi\u00f0 s\u00f6guritun stendur.\u201c \u00dea\u00f0 er \u00f3venjulegt a\u00f0 \u00feessi klausa \u00ed 1. gr. samningsins var\u00f0 a\u00f0 \u00e1hr\u00ednsor\u00f0um. Ath. a\u00f0 ekki skyldi rugla saman \u201eefnisskr\u00e1\u201c og \u00feeim bindum sem \u00e1skili\u00f0 var a\u00f0 skyldi skila\u00f0.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">5<b>\u00a0 <\/b>Fyrsta bindi skyldi skila eigi s\u00ed\u00f0ar en 1. okt\u00f3ber 1999; \u00f6\u00f0ru bindi eigi s\u00ed\u00f0ar en 1. okt\u00f3ber 2000 og \u00feri\u00f0ja bindi eigi s\u00ed\u00f0ar en 1. okt\u00f3ber 2001.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">6<b>\u00a0 <\/b>Jafnframt segir \u00ed riftunar\u00e1kv\u00e6\u00f0i: \u201eAkraneskaupsta\u00f0 er einnig heimilt a\u00f0 st\u00f6\u00f0va grei\u00f0slur til h\u00f6fundar ef einhverjar \u00e1st\u00e6\u00f0ur ver\u00f0a til \u00feess a\u00f0 h\u00f6fundur ver\u00f0ur \u00f3f\u00e6r um a\u00f0 sinna verkinu e\u00f0a a\u00f0 ritnefnd telur a\u00f0 verk\u00e1\u00e6tlun samkv\u00e6mt 6. grein samningsins standist ekki \u00ed svo veigamiklum atri\u00f0um a\u00f0 var\u00f0i anna\u00f0 hvort riftun samningsins e\u00f0a frestun grei\u00f0slna \u00fear til \u00far hefur veri\u00f0 b\u00e6tt.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u00cd verk\u00e1\u00e6tlun \u00ed 6. grein samningsins er tali\u00f0 upp a\u00f0 heimilda\u00f6flun fyrir allt verki\u00f0 skuli standa fr\u00e1 apr\u00edl 1997 til jan\u00faar 1999; ritun 1. bindis hefjist \u00fe\u00e1 og ver\u00f0i loki\u00f0 \u201eeigi s\u00ed\u00f0ar en \u00e1g\u00fast-sept. 1999\u201c; \u00fe\u00e1 hefjist ritun 2. bindis sem ver\u00f0i loki\u00f0 \u00ed \u00e1g\u00fast -september 2000 og loks er reikna\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 ritun 3. bindis ver\u00f0i loki\u00f0 \u00ed \u00e1g\u00fast-sept. 2001 svo verklok ver\u00f0i 1. okt\u00f3ber \u00fea\u00f0 \u00e1r (sbr. 3.gr.). \u00d6ll bindin komi \u00fat \u00ed einu \u00e1ri\u00f0 2001.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">7<b> <\/b>\u00deann 18. jan\u00faar 2011 afhenti Gunnlaugur Haraldsson \u00c1rna M\u00fala J\u00f3nassyni b\u00e6jarstj\u00f3ra Akraneskaupsta\u00f0ar fyrri tv\u00f6 handritin af verki s\u00ednu. \u00deau koma \u00fat ekki \u00e1 morgun heldur hinn, undir n\u00f6fnunum <i>Saga Akraness. 1. bindi. Fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1700<\/i> og <i>Saga Akraness. 1. bindi. \u00c1tj\u00e1nda \u00f6ldin<\/i>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">8<b> <\/b>Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 launategnd gj\u00f6ld s\u00e9u um 20% voru m\u00e1na\u00f0arlaun Gunnlaugs \u00e1n launatengdra gjalda um 170.000. \u00cd apr\u00edl 1997 voru me\u00f0aldagvinnulaun framhaldssk\u00f3lakennara 110.483 kr. \u00cd \u00feann t\u00ed\u00f0 unnu framhaldssk\u00f3lakennarar mikla yfirvinnu og var me\u00f0altal heildarm\u00e1na\u00f0alauna \u00feeirra \u00e1 sama t\u00edma 182.945 kr. Inni \u00ed \u00feessu me\u00f0altali eru laun stj\u00f3rnenda \u00ed framhaldssk\u00f3lum, annarra en sk\u00f3lameistara, sem kann a\u00f0 h\u00e6kka t\u00f6lur eitthva\u00f0. Sj\u00e1 \u201eBHM h\u00f3pur 2 (H\u00cdK\/F)\u201c <a href=\"http:\/\/frontpage.simnet.is\/kos\/PDFskrar\/18ritkos.pdf\"><i>Fr\u00e9ttabr\u00e9f KOS<\/i> nr. 18, j\u00fan\u00ed 1998<\/a>, s. 22. \u00datg. Kjararanns\u00f3knarnefnd opinberra starfsmanna. Gunnlaugur hefur skv. \u00feessu \u00feegi\u00f0 me\u00f0allaun framhaldssk\u00f3lakennara me\u00f0 talsver\u00f0a yfirvinnu \u00ed 54 m\u00e1nu\u00f0i. Ofan \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1ttu s\u00ed\u00f0an a\u00f0 b\u00e6tast veglegar \u00e1rangurstengdar grei\u00f0slur.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">9 \u201e\u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert h\u00e9r um bil vi\u00f0 ritun s\u00f6gunnar. Spjalla\u00f0 vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson ritara S\u00f6gu Akraness.\u201c <i>Skessuhorni\u00f0<\/i> 13. apr\u00edl 1997, s. 14.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">10 Gunnlaugur Haraldsson. \u201e<a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/pages\/umraeduvefur\/umraedur\/umr_id\/12066\/thradur\/12024\/fl\/46\/\" title=\"Gunnlaugur Haraldsson\">Meint ritst\u00edfla brestur<\/a>\u201c. Umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0ur Akraneskaupsta\u00f0ar \u00feann 25. febr\u00faar 2005.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">11 Uppl\u00fdsingar um kostna\u00f0 og uppreikning hans \u00e1 n\u00favir\u00f0i eru fengnar fr\u00e1 Akraneskaupsta\u00f0 4. ma\u00ed 2011.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Titill f\u00e6rslunnar er \u00f3bein tilvitnun \u00ed or\u00f0 Gunnlaugs Haraldssonar um eigin sagnaritun \u00ed br\u00e9finu \u201eMeint ritst\u00edfla brestur\u201c \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar 25. febr\u00faar 2005. Saga S\u00f6gu Akraness V Sj\u00e1 einnig: Saga S\u00f6gu Akraness I, \u00c1 Skaganum <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-347","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/347","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=347"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/347\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=347"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=347"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=347"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}