{"id":350,"date":"2011-05-25T11:03:28","date_gmt":"2011-05-25T11:03:28","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-25\/ja-sko-mer-er-alveg-sama-og-maetti-sleppa-thessu-bokaveseni-allveg\/"},"modified":"2011-05-25T11:03:28","modified_gmt":"2011-05-25T11:03:28","slug":"ja-sko-mer-er-alveg-sama-og-maetti-sleppa-thessu-bokaveseni-allveg","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/25\/ja-sko-mer-er-alveg-sama-og-maetti-sleppa-thessu-bokaveseni-allveg\/","title":{"rendered":"Ja sko m\u00e9r er alveg sama og m\u00e6tti sleppa \u00feessu b\u00f3kaveseni allveg"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00cd \u00feessari f\u00e6rslu segir fr\u00e1 \u00fdmsum breytingum sem ur\u00f0u til \u00feess a\u00f0 sagnaritarinn Gunnlaugur Haraldsson naut l\u00edtilla launa fr\u00e1 Akraneskaupsta\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2006 og var\u00f0 n\u00e1nast hornreka \u00ed vi\u00f0skiptum kaupsta\u00f0arins \u00fea\u00f0 \u00e1ri\u00f0. Hann missti sinn a\u00f0al verndara og velgj\u00f6r\u00f0amann; \u00ddmsar hr\u00e6ringar voru \u00ed stj\u00f3rn b\u00e6jarins; Meirihluta Ritnefndarinnar skipa\u00f0i n\u00fdtt f\u00f3lk. \u00de\u00f3 t\u00f3kst sagnaritara og Akraneskaupsta\u00f0 a\u00f0 landa samningi undir \u00e1rslok 2006. Titill f\u00e6rslunnar er bein tilvitnun \u00ed br\u00e9f \u00e1 umr\u00e6\u00f0uvef b\u00e6jarins \u00ed september 2006.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">1<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Saga S\u00f6gu Akraness VIII<\/font><\/b><br \/>\n<font size=\"-1\">Sj\u00e1 einnig:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness I<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-30\/a-skaganum-%e2%80%9ehafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki%e2%80%9c\/\">\u00c1 Skaganum \u201ehafa aldrei b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness II<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-08\/%e2%80%9eframtakssemi-og-frumskogalogmal%e2%80%9c\/\">Framtakssemi og frumsk\u00f3gal\u00f6gm\u00e1l<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness III<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-12\/nefndarmenn-lystu-skodun-sinni\/\">Nefndarmenn l\u00fdstu sko\u00f0un sinni<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness IV<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-16\/er-margritad-brot-ur-byggdasogu-120-milljona-krona-virdi\/\">Er margrita\u00f0 brot \u00far bygg\u00f0as\u00f6gu 120 millj\u00f3na kr\u00f3na vir\u00f0i?<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness V, <\/b><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/\">Leggur ekki nafn sitt vi\u00f0 b\u00f3kart\u00f6tur sem rumpa\u00f0 er saman \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness VI, <\/b><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-20\/gunnlaugur-haraldsson-aetlar-ad-og-hyggst-nu\/\">Gunnlaugur Haraldsson \u00e6tlar a\u00f0 &#8230; og hyggst n\u00fa &#8230;<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness VII<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-22\/hvers-virdi-saga-akraness-er-verdur-hver-og-einn-ad-gera-upp-vid-sig\/\">Hvers vir\u00f0i saga Akraness er ver\u00f0ur hver og einn a\u00f0 gera upp vi\u00f0 sig<\/a><\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/guli_vitinn.jpg?resize=150%2C130\" alt=\"Guli vitinn og mark \u00e1 Akranesi\" align=\"left\" height=\"130\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">V\u00e6ri sagnaritun Gunnlaugs Haraldssonar fyrir Akraneskaupsta\u00f0 l\u00edkt vi\u00f0 f\u00f3tbolta \u00fe\u00e1 er fyrri h\u00e1lfleik n\u00fa loki\u00f0. Vi\u00f0 tekur leikhl\u00e9 og \u00ed seinni h\u00e1lfleik er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 skipta \u00fat einum lykilmanni en glettilega margir \u00feeirra s\u00f6mu spila samt \u00e1fram fyrir Akranesb\u00e6; sami \u00f6flugi li\u00f0sma\u00f0urinn er \u00f3\u00fereyttur \u00ed hinu li\u00f0inu, \u00fe.e. sagnaritarinn Gunnlaugur. \u00c9g l\u00e6t lesendum eftir a\u00f0 meta hver sta\u00f0an er.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1ri\u00f0 2005 var \u00f3sk\u00f6p r\u00fdrt fyrir Gunnlaug. Hann uppskar einungis r\u00famlega 2 millj\u00f3nir 550 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur sem \u00e1 n\u00favir\u00f0i gera r\u00famlega 3,9 millj\u00f3nir. \u00deetta var \u00fe\u00f3 ekkert \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00e1ri\u00f0 eftir, 2006, en \u00fe\u00e1 n\u00e1\u00f0i Gunnlaugur einungis einum m\u00e1na\u00f0arlaunum, 625.000 kr. \u00ed desember. En svo v\u00e6nkast hagurinn aftur \u00e1ri\u00f0 2007.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1rangurstengdu dreif\u00f0u grei\u00f0slurnar voru uppurnar \u00ed lok september 2005. Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 framgang m\u00e1ls til \u00feessa hef\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki \u00e1tt a\u00f0 t\u00e1lma n\u00e6sta samningi a\u00f0 \u00e1rangur var enginn, \u00fe.e. engu var skila\u00f0. En ekki b\u00f3la\u00f0i \u00e1 n\u00fdjum samningi n\u00e6rri strax og Ritnefndin h\u00e9lt ekki einu sinni fundi!<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">L\u00edklegasta sk\u00fdringin \u00e1 hve har\u00f0nar \u00ed \u00e1ri fyrir Gunnlaug er a\u00f0 G\u00edsli G\u00edslason b\u00e6jarstj\u00f3ri og forma\u00f0ur Ritnefndarinnar r\u00e9\u00f0i sig til annarra starfa. \u00deann 27. september 2005 var G\u00edsli r\u00e1\u00f0inn \u00ed starf hafnarstj\u00f3ra Faxafl\u00f3ahafna. <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/baejarstjorn\/nr\/6896\/\" title=\"Gu\u00f0mundur P\u00e1ll J\u00f3nsson b\u00e6jarstj\u00f3ri\">Sama dag sam\u00feykkti B\u00e6jarstj\u00f3rn Akraness a\u00f0 r\u00e1\u00f0a Gu\u00f0mund P\u00e1l J\u00f3nsson \u00ed starf b\u00e6jarstj\u00f3ra<\/a> fr\u00e1 og me\u00f0 1. n\u00f3vember 2005. <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=271264&amp;pageId=3874980&amp;lang=is&amp;q=G\ufffdsli G\ufffdslason\" title=\"G\ufffdsli G\ufffdslason b\u00e6jarstj\u00f3ri\">G\u00edsli haf\u00f0i veri\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00e1 Akranesi \u00ed 18 \u00e1r <\/a>og veri\u00f0 forma\u00f0ur Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness allan t\u00edmann. \u00de\u00f3tt Gu\u00f0mundur P\u00e1ll, sem t\u00f3k vi\u00f0 t\u00edmabundi\u00f0 sem b\u00e6jarstj\u00f3ri, hef\u00f0i seti\u00f0 \u00ed Ritnefndinni fr\u00e1 \u00fev\u00ed l\u00edklega \u00ed apr\u00edl 2004 reyndist hann Gunnlaugi ekki s\u00e1 verndari og velgj\u00f6r\u00f0arma\u00f0ur sem G\u00edsli G\u00edslason haf\u00f0i lengst af veri\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Vori\u00f0 2006 voru b\u00e6jarstj\u00f3rnarkosningar. P\u00f3lit\u00edskar sviptingar vir\u00f0ast raunar \u00e6t\u00ed\u00f0 hafa litlu m\u00e1li skipt \u00ed ritun s\u00f6gu Akraness, miklu frekar skipta einstakar pers\u00f3nur m\u00e1li. <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=271783&amp;pageId=3894063&amp;lang=is&amp;q=Akraneslistinn\">Ein af n\u00fdju b\u00e6jarfulltr\u00faunum var Karen J\u00f3nsd\u00f3ttir<\/a> (fyrir Frj\u00e1lslynda flokkinn, gekk seinna til li\u00f0s vi\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn) en h\u00fan \u00e1tti eftir a\u00f0 setja mark sitt \u00e1 s\u00f6gu s\u00f6gu Akraness s\u00ed\u00f0ar. Hr\u00f6nn R\u00edkar\u00f0sd\u00f3ttir sem haf\u00f0i seti\u00f0 \u00ed Ritnefndinni fr\u00e1\u00a0 upphafi 1987 til vorsins 2002 (og mynda\u00f0 \u00fear meirihluta-fj\u00f6lskyldublokk me\u00f0 Le\u00f3 J\u00f3hannessyni og G\u00edsla G\u00edslasyni, svo sem fyrr hefur veri\u00f0 greint fr\u00e1) settist n\u00fa \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn og situr \u00fear enn, fyrir Samfylkinguna; Gu\u00f0mundur P\u00e1ll J\u00f3nsson, sem haf\u00f0i seti\u00f0 \u00ed Ritnefndinni sat \u00e1fram \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn; Sveinn Kristinsson, gamall samherji Gunnlaugs Haraldssonar, sat \u00e1fram \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn, fyrir Samfylkinguna o.s.fr. <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?issId=272082&amp;pageId=3900494&amp;lang=is&amp;q=G\ufffdsli S. Einarsson\" title=\"G\ufffdsli S. Einarsson b\u00e6jarstj\u00f3ri Akraness\">\u00deessi b\u00e6jarstj\u00f3rn r\u00e9\u00f0i G\u00edsla S. Einarsson<\/a>, samfylkingarmann sem haf\u00f0i skipt yfir \u00ed Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn, sem b\u00e6jarstj\u00f3ra n\u00e6stu fj\u00f6gur \u00e1rin.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1<a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/baejarstjorn\/nr\/7944\/\"> sama b\u00e6jarstj\u00f3rnarfundi<\/a> og sam\u00feykkti a\u00f0 r\u00e1\u00f0a n\u00fdjan b\u00e6jarstj\u00f3ra, \u00feann 13. j\u00fan\u00ed 2006,\u00a0var skipa\u00f0 \u00ed nefndir, \u00fe.\u00e1.m. ritnefnd um s\u00f6gu Akraness. J\u00f3n Gunnlaugsson (D) var\u00f0 forma\u00f0ur nefndarinnar og er \u00fea\u00f0 enn. Hann settist \u00ed Ritnefndina snemma \u00e1rs 2004.\u00a0 Le\u00f3 J\u00f3hannesson (S) sat a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00e1fram og situr enn. En hinir \u00fer\u00edr voru n\u00fdir: Berg\u00fe\u00f3r \u00d3lason (D), Magn\u00fas \u00de\u00f3r Hafsteinsson (F) og Bj\u00f6rn Gunnarsson (V). \u00dea\u00f0 var\u00f0 sem sagt meirih\u00e1ttar uppstokkun \u00ed Ritnefndinni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fyrir kosningarnar, \u00feann 8. ma\u00ed 2006, haf\u00f0i Magn\u00fas \u00de\u00f3r Hafsteinsson sent inn stutt br\u00e9f \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0 \u00feann sem fjalla\u00f0 var um s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu. Br\u00e9fi\u00f0 bar yfirskriftina <\/font><font color=\"#000000\">\u201e<\/font>H\u00e9r m\u00e1 svara<font color=\"#000000\">\u201c<\/font> og hlj\u00f3\u00f0ar svona: <font color=\"#000000\">\u201e<\/font>\u00c9g spyr n\u00faverandi b\u00e6jarstj\u00f3ra Frams\u00f3knarflokksins [Gu\u00f0mund P\u00e1l J\u00f3nsson] um gang \u00feessa m\u00e1ls \u00ed pistli \u00e1 www.heimaskagi.is Vonandi ver\u00f0ur ekki f\u00e1tt um sv\u00f6r. Bar\u00e1ttukve\u00f0jur, Magn\u00fas \u00de\u00f3r Hafsteinsson\u00a0 www.magnusthor.is<font color=\"#000000\">\u201c<\/font> . H\u00e9r v\u00edsar Magn\u00fas \u00ed <a href=\"http:\/\/wayback.vefsafn.is\/wayback\/20060522000000\/http:\/\/heimaskagi.is\/Default.asp?Sid_Id=24831&amp;tId=2&amp;Tre_Rod=&amp;fre_id=32372&amp;meira=1\">eigin pistil \u00e1 <i>Heimaskaga<\/i><\/a>, vefsetri Frj\u00e1lslynda flokksins, \u00fear sem segir undir lokin: <font color=\"#000000\">\u201e<\/font>Vonandi geta einhverjir \u00ed ritnefnd uppl\u00fdst um \u00feetta, enda hl\u00fdtur m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 vera \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 hennar. \u00c9g sendi boltann \u00e1 n\u00faverandi b\u00e6jarstj\u00f3ra Frams\u00f3knarflokksins sem \u00e1 s\u00e6ti \u00ed ritnefnd&#8230;.. <font color=\"#000000\">\u201c<\/font>\u00a0 \u00deegar hann var sj\u00e1lfur kominn \u00ed Ritnefndina vaf\u00f0ist fyrir honum a\u00f0 svara s\u00f6mu spurningum en lj\u00f3st er a\u00f0 hann er <font color=\"#000000\">\u201e<\/font>mj\u00f6g hrifinn af \u00fev\u00ed sem \u00e9g hef lesi\u00f0 hinga\u00f0 til<font color=\"#000000\">\u201c<\/font> og telur <font color=\"#000000\">\u201e<\/font>tv\u00edm\u00e6lalaust a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 afar vanda\u00f0 rit \u00e1 fer\u00f0.<font color=\"#000000\">\u201c<\/font> Og Magn\u00fas kemur auga \u00e1 \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 verki\u00f0 geti ekki or\u00f0i\u00f0 <font color=\"#000000\">\u201e<\/font>mj\u00f6g d\u00fdrm\u00e6tt heimildarit<font color=\"#000000\">\u201c<\/font> nema \u00fea\u00f0 s\u00e9 gefi\u00f0 \u00fat.<b><sup><font size=\"-2\">2<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gunnlaugur Haraldsson sagnaritari, sem var v\u00e6ntanlega or\u00f0inn \u00f3\u00fereyjufullur eftir frekari launum, sendi inn greinarger\u00f0 um s\u00f6guritunina og \u00e1st\u00e6\u00f0ur fyrir dr\u00e6tti verksins, dagsetta 4. okt\u00f3ber 2006.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">3<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er hann \u00feegar b\u00fainn a\u00f0 hr\u00edfa a.m.k. n\u00fdjan einn ritnefndarmann, eins og kemur fram \u00ed efnisgreininni h\u00e9r a\u00f0 ofan. \u00deessi greinarger\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 hafa veri\u00f0 vel r\u00f6kstudd \u00fev\u00ed drifi\u00f0 er \u00ed a\u00f0 undirb\u00faa n\u00fdjan samning vi\u00f0 Gunnlaug og fyrsta skref\u00a0er au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 kalla\u00a0Ritnefndina saman.\u00a0\u00a0<font size=\"-1\">N\u00fdja Ritnefndin h\u00e9lt sinn fyrsta fund 9. okt\u00f3ber 2006. (56. fundur. <b><a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/ssa\/tafla_fundir_fra_2005_2006.html\" title=\"Ritnefnd Saga Akraness\">Sj\u00e1 t\u00f6flu yfir fundi Ritnefndar og ritun s\u00f6gu Akraness \u00e1 t\u00edmabilinu 2005 &#8211; n\u00f3vember 2006<\/a><\/b>) og fimm d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar h\u00e9ldu \u00feeir J\u00f3n Gunnlaugsson, G\u00edsli S. Einarsson b\u00e6jarstj\u00f3ri og J\u00f3hannes K. Sveinsson, l\u00f6gma\u00f0ur Akraneskaupsta\u00f0ar, fund \u00fear sem \u00feeir r\u00e6ddu samingsger\u00f0 um ritun s\u00f6gu Akraness. J\u00f3hannesi l\u00f6gmanni var fali\u00f0 a\u00f0 semja dr\u00f6g a\u00f0 samningi vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">4<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">R\u00famum m\u00e1nu\u00f0i s\u00ed\u00f0ar \u00fatsk\u00fdr\u00f0i J\u00f3hannes samninginn fyrir Ritnefndinni og Gunnlaugi (57. fundur). \u00deetta er l\u00edklega n\u00fdm\u00e6li \u00ed samningager\u00f0 vi\u00f0 Gunnlaug, \u00fe.e. a\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur b\u00e6jarins kynni efni hans b\u00e6\u00f0i fyrir Gunnlaugi og ritnefnd.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">5<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann 30. n\u00f3vember 2006 skrifu\u00f0u G\u00edsli S. Einarsson b\u00e6jarstj\u00f3ri og Gunnlaugur Haraldsson undir n\u00fdjan samning sem h\u00e9t <\/font><font color=\"#000000\">\u201e<\/font>SAMNINGUR <i>Saga Akraness<\/i><font color=\"#000000\">\u201c<\/font> og <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/baejarrad\/nr\/8687\/\" title=\"Samningur vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson\">b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 sam\u00feykkti samninginn \u00feann 7. desember<\/a>.<b><sup><font size=\"-2\">6<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd \u00feeim samningi var verkum skipt \u00e1 tv\u00f6 \u00e1kve\u00f0in t\u00edmabil. Segja m\u00e1 a\u00f0 \u00feessi samningur hafi seinna veri\u00f0 klofinn af <\/font><font color=\"#000000\">\u201e<\/font>Samkomulagi<font color=\"#000000\">\u201c<\/font> seint \u00ed okt\u00f3ber 2007 \u00feegar skr\u00fafa\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 fyrir peningastreymi til sagnaritara \u00ed mi\u00f0ju kafi \u00fev\u00ed engu haf\u00f0i veri\u00f0 skila\u00f0. Um \u00feetta ver\u00f0ur fjalla\u00f0 \u00ed n\u00e6stu f\u00e6rslu um s\u00f6gu S\u00f6gu Akraness.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<hr width=\"100%\" \/>\n<font size=\"-2\"><b>\u00a0<\/b><\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>1 <\/b>Gu\u00f0mundur J\u00f3n Hafsteinsson. 26. september 2006. \u201e<\/font><a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/pages\/umraeduvefur\/umraedur\/umr_id\/15699\/thradur\/15657\/fl\/46\/\">j\u00e1<\/a><font size=\"-2\">\u201c<\/font> undir efni\u00fer\u00e6\u00f0inum <font color=\"#000000\">\u201e<\/font>K\u00fatter Sigurfari<font size=\"-2\">\u201c<\/font> \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar.<br \/>\n<b><font size=\"-2\">\u00a0<\/font><\/b><\/p>\n<p><b><\/b><\/p>\n<p><b><font size=\"-2\">2 <\/font><\/b><font size=\"-2\">Magn\u00fas \u00de\u00f3r Hafsteinsson. 18. september 2006. \u201e<\/font><a href=\"http:\/\/wayback.vefsafn.is\/wayback\/20061114000000\/http:\/\/heimaskagi.is\/Default.asp?Sid_Id=24831&amp;tId=2&amp;Tre_Rod=&amp;fre_id=36914&amp;meira=1\">M\u00e1lin eru \u00ed farvegi<\/a><font size=\"-2\">\u201c<\/font> \u00e1 <i>Heimaskaga<\/i>, vefsetri Frj\u00e1lslynda flokksins. Undir lok pistilsins segir:<font size=\"-2\">\u201e<\/font>IV. Saga Akraness:<\/p>\n<p><font size=\"-2\">Um \u00feetta m\u00e1l get \u00e9g ekki sagt svo miki\u00f0 enda hef \u00e9g ekki \u00e1tt neina a\u00f0komu a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 nokkurn h\u00e1tt. \u00d6ll vinna liggur ni\u00f0ri \u00fear sem peningarnir sem setja \u00e1tti \u00ed \u00feetta eru v\u00edst b\u00fanir. \u00c9g settist \u00ed ritnefndina n\u00fa eftir kosningar \u00ed vor. \u00deessa dagana er \u00e9g a\u00f0 lesa handriti\u00f0 sem n\u00fa liggur fyrir fr\u00e1 h\u00f6fundi til a\u00f0 f\u00e1 betri yfirs\u00fdn yfir \u00feetta m\u00e1l. Handriti\u00f0 er mj\u00f6g efnismiki\u00f0, fyllir \u00ferj\u00e1r st\u00f3rar m\u00f6ppur og telur hundru\u00f0i bla\u00f0s\u00ed\u00f0na. \u00c9g er mj\u00f6g hrifinn af \u00fev\u00ed sem \u00e9g hef lesi\u00f0 hinga\u00f0 til og tel tv\u00edm\u00e6lalaust a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 afar vanda\u00f0 rit \u00e1 fer\u00f0. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 lj\u00faka \u00feessu verkefni og gefa \u00feetta \u00fat. \u00deetta ritverk mun tv\u00edm\u00e6lalaust ver\u00f0a mj\u00f6g d\u00fdrm\u00e6tt heimildarit og halda nafni h\u00f6fundar \u00e1 lofti um \u00f3komna framt\u00ed\u00f0. En \u00fea\u00f0 gerist ekki nema \u00fea\u00f0 ver\u00f0i drifi\u00f0 \u00ed a\u00f0 ganga fr\u00e1 \u00fev\u00ed, koma \u00fev\u00ed \u00e1 prent og \u00ed \u00fatg\u00e1fu.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Pistill Magn\u00fasar voru sv\u00f6r hans vi\u00f0 m\u00f6rgum spurningum sem birtust \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar undir efnis\u00fer\u00e6\u00f0inum \u201e<\/font><a href=\"http:\/\/www.akranes.is\/pages\/umraeduvefur\/umraedur\/umr_id\/15657\/thradur\/15657\/leitarstrengur\/~\/fl\/46\/\">K\u00fatter Sigurfari<\/a><font size=\"-2\">\u201c<\/font>. Steingr\u00edmur Gu\u00f0j\u00f3nsson, sem minnst var \u00e1 \u00ed fyrri f\u00e6rslu, spur\u00f0i einmitt hva\u00f0 li\u00f0i ritun s\u00f6gu Akraness um lei\u00f0 og K\u00fatter Sigurfara bar \u00e1 g\u00f3ma og s\u00ed\u00f0an b\u00e6ttust fleiri umr\u00e6\u00f0uefni vi\u00f0. Steingr\u00edmur \u00edtreka\u00f0i spurningu s\u00edna um s\u00f6gu Akraness oftar en einu sinni \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0inum en umr\u00e6\u00f0an f\u00f3r \u00fat um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll og f\u00f3lk virtist hafa mun meiri \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a anna\u00f0.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><strong>3 <\/strong>\u00deetta kemur fram \u00ed \u201e<\/font>Forsendum<font size=\"-2\">\u201c<\/font> n\u00e6sta samnings vi\u00f0 Gunnlaug en s\u00e1\u00a0heitir SAMNINGUR Saga Akraness. \u00dear segir:\u00a0<font size=\"-2\">\u201e<\/font>S\u00f6guritunin hefur dregist eins og raki\u00f0 er \u00ed hinum fyrri samningum og koma \u00fear til \u00fdmis atri\u00f0i eins og\u00a0ger\u00f0 er grein fyrir \u00ed greinager\u00f0 sagnaritara um m\u00e1li\u00f0, dag. \u00feann 4. okt\u00f3ber 2006.<font size=\"-2\">\u201c<\/font> \u00c1 \u00feessa greinarger\u00f0 er hvergi minnist \u00ed fundarger\u00f0um b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s, b\u00e6jarstj\u00f3rnar e\u00f0a\u00a0ritnefndar um s\u00f6gu Akraness. \u00c9g hef greinarger\u00f0ina ekki undir h\u00f6ndum. \u00a0<\/p>\n<p><strong><\/strong><\/p>\n<p><font size=\"-2\"><b>4\u00a0<\/b>\u00cd fundarger\u00f0arb\u00f3k Ritnefndar um s\u00f6gu Akraness er \u00feessi fundur b\u00f3ka\u00f0ur sem 57. fundur nefndarinnar. Fundarger\u00f0ina er hins vegar ekki a\u00f0 finna \u00e1 vef Akraneskaupsta\u00f0ar. Engin \u00feeirra \u00feriggja\u00a0 fundarger\u00f0a sem minnst er \u00e1 \u00ed \u00feessari efnigrein var l\u00f6g\u00f0 fram fyrir b\u00e6jarr\u00e1\u00f0. Fundarger\u00f0ir 56., 58., 59. og 60. fundar voru lag\u00f0ar fram \u00ed\u00a0kippu \u00e1 fundi b\u00e6jarstj\u00f3rnar \u00feann 9. jan\u00faar 2007. \u00dea\u00f0 er ekki fyrr undir lok \u00e1rs 2007 sem fari\u00f0 er a\u00f0 leggja fundirger\u00f0ir ritnefndar um s\u00f6gu Akraness fram \u00ed b\u00e6jarr\u00e1\u00f0i. \u00deetta h\u00e1lfger\u00f0a sleifarlag \u00e1 fundarger\u00f0um Ritnefndar kann a\u00f0 hafa t\u00ed\u00f0kast fr\u00e1 fyrstu t\u00ed\u00f0 og hefur l\u00edklega gert b\u00e6jarstj\u00f3rnarfulltr\u00faum erfi\u00f0ara um vik a\u00f0 fylgjast me\u00f0 Ritnefndinni og st\u00f6rfum sagnaritarans.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><strong>5<\/strong>\u00a0M\u00e9r er \u00f3kunnugt um hvort s\u00e9rstakur l\u00f6gma\u00f0ur Akraneskaupsta\u00f0ar a\u00f0sto\u00f0a\u00f0i vi\u00f0 ger\u00f0 fyrri samnings, vi\u00f0auka og samkomulags vi\u00f0 Gunnlaug.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\"><strong>6<\/strong>\u00a0\u00cd b\u00e6jarr\u00e1\u00f0i s\u00e1tu: Karen J\u00f3nsd\u00f3ttir, forma\u00f0ur b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s, Gunnar Sigur\u00f0sson og Sveinn Kristinsson. \u00deennan fund s\u00e1tu einnig G\u00edsli S. Einarsson, b\u00e6jarstj\u00f3ri, og J\u00f3n P\u00e1lmi P\u00e1lsson, b\u00e6jarritari. \u00c1 sama fundi b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s var bei\u00f0ni S\u00f6guf\u00e9lags Borgarfjar\u00f0ar um styrk hafna\u00f0. Sveinn Kristinsson lag\u00f0i til a\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0 yr\u00f0i styrkt um 100.000 kr. en tillagan var felld me\u00f0 tveimur atkv\u00e6\u00f0um hinna b\u00e6jarr\u00e1\u00f0sfulltr\u00faanna.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u00feessari f\u00e6rslu segir fr\u00e1 \u00fdmsum breytingum sem ur\u00f0u til \u00feess a\u00f0 sagnaritarinn Gunnlaugur Haraldsson naut l\u00edtilla launa fr\u00e1 Akraneskaupsta\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2006 og var\u00f0 n\u00e1nast hornreka \u00ed vi\u00f0skiptum kaupsta\u00f0arins \u00fea\u00f0 \u00e1ri\u00f0. Hann missti sinn a\u00f0al <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/25\/ja-sko-mer-er-alveg-sama-og-maetti-sleppa-thessu-bokaveseni-allveg\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-350","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/350","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=350"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/350\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=350"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=350"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=350"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}