{"id":351,"date":"2011-05-27T15:48:20","date_gmt":"2011-05-27T15:48:20","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-27\/einvordungu-markmid-thessa-samnings-ad-framlengja-verktima-skilgreina-verklok-og-kveda-a-um-greidslur-til-sagnaritara\/"},"modified":"2011-05-27T15:48:20","modified_gmt":"2011-05-27T15:48:20","slug":"einvordungu-markmid-thessa-samnings-ad-framlengja-verktima-skilgreina-verklok-og-kveda-a-um-greidslur-til-sagnaritara","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/27\/einvordungu-markmid-thessa-samnings-ad-framlengja-verktima-skilgreina-verklok-og-kveda-a-um-greidslur-til-sagnaritara\/","title":{"rendered":"&#8230; einv\u00f6r\u00f0ungu markmi\u00f0 \u00feessa samnings a\u00f0 framlengja verkt\u00edma, skilgreina verklok og kve\u00f0a \u00e1 um grei\u00f0slur til sagnaritara"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">H\u00e9r segir\u00a0af \u00fev\u00ed hvernig Gunnlaugi Haraldssyni t\u00f3kst a\u00f0 n\u00e1 n\u00fdjum samningi vi\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0; standa ekki skil \u00e1 ums\u00f6mdum verkum; gera \u00fe\u00e1 samkomulag vi\u00f0 b\u00e6inn um grei\u00f0slur fyrir enn v\u00ed\u00f0t\u00e6kari st\u00f6rf; sn\u00faa samningu verksins \u00e1 hvolf \u00feannig a\u00f0 I. bindi\u00f0 var\u00f0 a\u00f0 II. bindi og talsvert var \u00fe\u00e1 \u00f3sami\u00f0 af hinu n\u00fdja I. bindi og f\u00e1 4 millj\u00f3nir og 767 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur kr. fyrir allt \u00feetta. (\u00c9g veit ekki hve h\u00e1 s\u00fa upph\u00e6\u00f0 er \u00e1 n\u00favir\u00f0i.)<\/font><font size=\"-1\">Titillinn er bein tilvitnun \u00ed \u201eForsendur\u201c \u00ed samningi Akraneskaupsta\u00f0ar vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson s\u00ed\u00f0la \u00e1rs 2006.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">1<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Saga S\u00f6gu Akraness IX<\/font><\/b><br \/>\n<font size=\"-1\">Sj\u00e1 einnig:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness I<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-04-30\/a-skaganum-%e2%80%9ehafa-aldrei-buid-neinir-fyrirtaksmenn-hvorki-i-ordi-ne-verki%e2%80%9c\/\">\u00c1 Skaganum \u201ehafa aldrei b\u00fai\u00f0 neinir fyrirtaksmenn hvorki \u00ed or\u00f0i n\u00e9 verki\u201c<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness II<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-08\/%e2%80%9eframtakssemi-og-frumskogalogmal%e2%80%9c\/\">Framtakssemi og frumsk\u00f3gal\u00f6gm\u00e1l<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness III<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-12\/nefndarmenn-lystu-skodun-sinni\/\">Nefndarmenn l\u00fdstu sko\u00f0un sinni<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness IV<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-16\/er-margritad-brot-ur-byggdasogu-120-milljona-krona-virdi\/\">Er margrita\u00f0 brot \u00far bygg\u00f0as\u00f6gu 120 millj\u00f3na kr\u00f3na vir\u00f0i?<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness V, <\/b><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-17\/leggur-ekki-nafn-sitt-vid-bokartotur-sem-rumpad-er-saman-a-skommum-tima\/\">Leggur ekki nafn sitt vi\u00f0 b\u00f3kart\u00f6tur sem rumpa\u00f0 er saman \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness VI, <\/b><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-20\/gunnlaugur-haraldsson-aetlar-ad-og-hyggst-nu\/\">Gunnlaugur Haraldsson \u00e6tlar a\u00f0 &#8230; og hyggst n\u00fa &#8230;<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness VII<\/b>, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-22\/hvers-virdi-saga-akraness-er-verdur-hver-og-einn-ad-gera-upp-vid-sig\/\">Hvers vir\u00f0i saga Akraness er ver\u00f0ur hver og einn a\u00f0 gera upp vi\u00f0 sig<\/a><\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>Saga S\u00f6gu Akraness VIII, <\/b><a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-05-25\/ja-sko-mer-er-alveg-sama-og-maetti-sleppa-thessu-bokaveseni-allveg\/\">Ja sko m\u00e9r er alveg sama og m\u00e6tti sleppa \u00feessu b\u00f3kaveseni allveg<\/a><\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/kisi2.jpg?resize=150%2C150\" alt=\"Kisi\" align=\"left\" height=\"150\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">\u00deann 30. n\u00f3vember 2006 skrifa\u00f0i G\u00edsli S. Einarsson b\u00e6jarstj\u00f3ri undir samning vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson, me\u00f0 fyrirvara um sam\u00feykki b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s. B\u00e6jarr\u00e1\u00f0 sam\u00feykkti samninginn 7. desember sama \u00e1r. Titill \u00feessa n\u00fdja samnings var \u201eSAMNINGUR <i>Saga Akraness\u201c<\/i>.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">2<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Eins sag\u00f0i \u00ed fyrri f\u00e6rslu a\u00f0sto\u00f0a\u00f0i l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur b\u00e6jarins, J\u00f3hannes Karl Sveinsson, vi\u00f0 ger\u00f0 samningsins og \u00fatsk\u00fdr\u00f0i samninginn b\u00e6\u00f0i fyrir Ritnefndinni og sagnaritara. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i \u00fev\u00ed ekki \u00e1tt a\u00f0 fara neitt milli m\u00e1la um hva\u00f0 sami\u00f0 var.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd upphafi \u201eSAMNINGS <i>Saga Akraness\u201c<\/i> er riftunar\u00e1kv\u00e6\u00f0i fyrri samnings kippt \u00far gildi.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">3<\/font><\/sup><\/b><font size=\"-1\">\u00a0 E.t.v. hefur Akraneskaupsta\u00f0ur til \u00feessa n\u00fdja samnings \u00e1tt endurkr\u00f6fur\u00e9tt \u00e1 hendur Gunnlaugi Haraldssyni? En n\u00fdtt riftunar\u00e1kv\u00e6\u00f0i er sett \u00ed \u00feennan samning undir lokin: \u201eTakist ekki a\u00f0 lj\u00faka verkinu innan umsaminna t\u00edmamarka, er Akraneskaupsta\u00f0 heimilt a\u00f0 rifta \u00feessum samningi og krefjast endurgrei\u00f0slu \u00feess sem greitt hefur veri\u00f0 inn \u00e1 verki\u00f0, e\u00f0a krefjast efnda \u00e1 samingum [svo] \u00e1n \u00feess a\u00f0 frekari grei\u00f0slur ver\u00f0i inntar af hendi.\u201c M\u00e9r vitanlega hefur \u00feessu \u00e1kv\u00e6\u00f0i ekki veri\u00f0 beitt.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Til frekara \u00f6ryggis, v\u00e6ntanlega vegna vi\u00f0skipta b\u00e6jarins vi\u00f0 Gunnlaugs til \u00feessa, er b\u00e6tt vi\u00f0 \u00e1kv\u00e6\u00f0inu: \u201eTelji s\u00f6guritari, a\u00f0 vegna \u00f3vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegra \u00e1st\u00e6\u00f0na e\u00f0a atvika sem var\u00f0a Akranesb\u00e6 sem verkkaupa, hafi stofnast heimild til a\u00f0 framlengja verkt\u00edma og\/e\u00f0a grei\u00f0a eigi h\u00e6rri upph\u00e6\u00f0 fyrir verki\u00f0 en h\u00e9r greinir, skal tafarlaust gera grein fyrir sl\u00edkum kr\u00f6fum og uppl\u00fdsa \u00e1 fundum ritnefndar. Ef sl\u00edkur \u00e1skilna\u00f0ur kemur ekki fram \u00e1n \u00e1st\u00e6\u00f0ulauss dr\u00e1ttar fellur allur r\u00e9ttur \u00ed \u00feeim efnum ni\u00f0ur.\u201c L\u00edklega hefur Gunnlaugi gengi\u00f0 \u00e1fram vel a\u00f0 telja fram \u00e1st\u00e6\u00f0ur fyrir dr\u00e6tti \u00e1 skilum \u00fev\u00ed \u00e9g get ekki s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00feessu \u00e1kv\u00e6\u00f0i hafi heldur veri\u00f0 beitt.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Skv. \u00feessum n\u00fdja samningi skyldi Gunnlaugur \u201elj\u00faka ritun S\u00f6gu Akraness fr\u00e1 landn\u00e1mi til \u00e1rsins 1941\u201c og innifali\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed var pr\u00f3farkalestur, umsj\u00f3n me\u00f0 t\u00e6knilegum atri\u00f0um \u00fatg\u00e1fu og anna\u00f0 sem ger\u00f0i handrit h\u00e6ft til \u00fatg\u00e1fu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Skiladagar voru<\/b>:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201eRitun fyrsta bindis S\u00f6gu Akraness skal loki\u00f0 \u00ed ums\u00f6mdu horfi eigi s\u00ed\u00f0ar en \u00feann 30. mars 2007\u00a0 &#8230; tilb\u00fai\u00f0 til prentvinnslu eigi s\u00ed\u00f0ar en \u00feann 15. september 2007.\u201c<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u201eRitun annars bindis S\u00f6gu Akraness hefst 1. okt\u00f3ber 2007 og skal vera &#8230; tilb\u00fai\u00f0 til prentvinnslu eigi s\u00ed\u00f0ar en \u00feann 30. j\u00fan\u00ed 2008.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd samningum kom fram:\u00a0 \u201e<b>A\u00f0 mestu er n\u00fa loki\u00f0 ritun I. bindis S\u00f6gu Akraness<\/b>, sem tekur til t\u00edmabilsins fr\u00e1 landn\u00e1mi til \u00e1rsins 1850 og hefur handriti s\u00f6gunnar fr\u00e1 lokum 17. aldar veri\u00f0 skila\u00f0 \u00e1 fyrri stigum\u201c en \u201e &#8230; sagnaritari skrifi fr\u00e1 grunni almennan upphafskafla um s\u00f6guna fr\u00e1 landn\u00e1mi til loka 17. aldur, \u00fe.m.t. jar\u00f0s\u00f6gu, sta\u00f0h\u00e1tta- og \u00f6rnefnal\u00fdsingu &#8230; <b>skal tekin endanleg \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um umfang \u00feess kafla eigi s\u00ed\u00f0ar en \u00e1 fundi ritnefndar \u00ed desember n.k<\/b>.\u201c (Feitletrun m\u00edn).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 fundi Ritnefndarinnar 12. desember (60. fundur) kemur einungis fram a\u00f0 Gunnlaugur hafi lagt fram dr\u00f6g a\u00f0 efnis\u00fe\u00e1ttum 1. bindis en ekki er ger\u00f0 grein fyrir \u00feeim dr\u00f6gum GH frekar en \u00e1\u00f0ur og engin \u00e1kv\u00f6r\u00f0un b\u00f3ku\u00f0. T\u00e6pu \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar er almenni upphafskaflinn framan vi\u00f0 fyrsta bindi\u00f0 farinn a\u00f0 b\u00f3lgna \u00edskyggilega \u00fat: \u201eKaflar II (\u00d6rnefni og b\u00fasetuminjar \u00ed landn\u00e1mi Bresasona, <b>91 s<\/b>.) og III (fr\u00e1 landn\u00e1mi til loka 13. aldar, <b>135 s<\/b>.) hafa veri\u00f0 afhentir ritnefnd\u201c. (Sj\u00e1 <b><a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/ssa\/tafla_fundir_gh_2006_2007.html\" title=\"Saga Akraness og ritnefnd um s\u00f6gu Akraness\">t\u00f6flu yfir fundarger\u00f0ir Ritnefndarinnar og vinnu Gunnlaugs skv. \u00feeim \u00e1 fr\u00e1 desember 2006 til desember 2007<\/a><\/b>.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd samningnum kemur l\u00edka fram s\u00fa sko\u00f0un a\u00f0 anna\u00f0 bindi\u00f0 s\u00e9 h\u00e1lfkl\u00e1ra\u00f0:\u00a0 \u201eAnna\u00f0 bindi &#8230; fr\u00e1 1851 til \u00e1rsins 1941. Umrita \u00fearf og endursko\u00f0a kafla 18-35 og <b>lj\u00faka handriti <\/b>\u00feannig a\u00f0 heildarsamr\u00e6mi s\u00e9 komi \u00e1 (fr\u00e1 1901-1941).\u201c (Feitletrun m\u00edn)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Loks kom fram a\u00f0 s\u00f6guritari skyldi n\u00fa einbeita s\u00e9r a\u00f0 ritun s\u00f6gunnar \u00fe\u00f3tt hann hef\u00f0i eitthva\u00f0 um \u00fatliti\u00f0 a\u00f0 segja:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u201e<b>Fyrir utan verksvi\u00f0 s\u00f6guritara er ger\u00f0 korta og s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ilegur yfirlestur \u00e1 handriti<\/b>. S\u00f6guritari skal \u00fe\u00f3 hafa verkstj\u00f3rn me\u00f0 \u00feessum \u00fe\u00e1ttum, \u00fe.e. skilgreina \u00fearfir, uppl\u00fdsa ritnefnd og afla tilbo\u00f0a e\u00f0a undirb\u00faa samninga og fylgja \u00feeim eftir svo sem nau\u00f0syn krefur.<b> Ekki skal stofna\u00f0 til kostna\u00f0ar e\u00f0a samningar ger\u00f0ir nema ritnefnd komi \u00fear a\u00f0 og a\u00f0 b\u00e6jaryfirv\u00f6ld s\u00e9u uppl\u00fdst um \u00e1\u00e6tla\u00f0an kostna\u00f0 og sam\u00feykki a\u00f0 grei\u00f0a hann.<\/b>\u201c<b> <\/b>(Feitletrun m\u00edn.)<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Grei\u00f0slur til Gunnlaugs Haraldssonar og annar kostna\u00f0ur Akraneskaupsta\u00f0ar<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201eAkraneskaupsta\u00f0ur grei\u00f0ir s\u00f6guritara samtals 10.000.000 (me\u00f0 tilteknum ver\u00f0b\u00f3tum skv. \u00fev\u00ed sem s\u00ed\u00f0ar greinir) fyrir verki\u00f0 allt til loka, \u00fe.m.t. \u00f6ll opinber gj\u00f6ld og kostna\u00f0ur sem tilheyrir verkefni hans, \u00fe.m.t. launatengd gj\u00f6ld, efnis- og h\u00fasn\u00e6\u00f0iskostna\u00f0ur\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">4<\/font><\/sup><font size=\"-1\"> <\/font><\/b><font size=\"-1\">og skal innt af hendi fyrsta virka dag hvers m\u00e1na\u00f0ar \u00e1 me\u00f0an verkinu stendur (\u00ed fyrsta sinn 1. desember 2006).\u201c Akraneskaupsta\u00f0ur mun grei\u00f0a kostna\u00f0 vi\u00f0 fer\u00f0ir milli Akraness og Reykjav\u00edkur, \u201e\u00fe.e. k\u00edl\u00f3metra- og veggjald [er h\u00e9r \u00e1tt vi\u00f0 gj\u00f6ld \u00ed G\u00f6ngin?] samkv\u00e6mt reikningi.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">T\u00edu millj\u00f3nirnar skyldu greiddar \u00ed 16 j\u00f6fnum grei\u00f0slum, 625.000 \u00e1 m\u00e1nu\u00f0i (auk s\u00ed\u00f0ari ver\u00f0b\u00f3ta). Grei\u00f0slut\u00edmabil voru desember 2006- j\u00fan\u00ed 2007 (sj\u00f6 m\u00e1nu\u00f0ir fyrir fyrsta bindi\u00f0) og okt\u00f3ber 2007 &#8211; j\u00fan\u00ed 2008 (n\u00edu m\u00e1nu\u00f0ir vegna annars bindis). Grei\u00f0slur skyldu hefjast 1. des. 2006 og vera greitt \u00fat fyrsta virka dag hvers m\u00e1na\u00f0ar. F\u00f6st laun Gunnlaugs hafa \u00fev\u00ed h\u00e6kka\u00f0 talsvert fr\u00e1 fyrri grunnsamningi.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">5<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Annar kostna\u00f0ur b\u00e6jarins \u00e1tti a\u00f0 vera vinna ritnefndar, kostna\u00f0ur vegna umbrots, kortager\u00f0ar, myndvinnslu, t\u00e6knilegrar \u00farvinnslu o.\u00fe.h.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Efndir samningsins<\/font><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"1\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/kisi3.jpg?resize=150%2C152\" alt=\"Kisa\" align=\"left\" height=\"152\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">Gunnlaugur var \u00e1 fullum launum fr\u00e1 1. desember 2006 &#8211; 31. j\u00fan\u00ed 2007 e\u00f0a 7 m\u00e1nu\u00f0i. \u00de\u00e1 st\u00f6\u00f0vu\u00f0ust grei\u00f0slurnar.\u00a0 Hann st\u00f3\u00f0 ekki vi\u00f0 samninginn, \u00fe.e. skila\u00f0i ekki handriti a\u00f0 fyrsta bindinu fyrir 1. apr\u00edl og \u00fev\u00ed var enn \u00f3skila\u00f0 \u00ed j\u00fan\u00edlok \u00feegar grei\u00f0slum lauk. Ritnefndin var hins vegar \u00f3sk\u00f6p r\u00f3leg yfir \u00feessu og virtist tr\u00faa fram \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu a\u00f0 Gunnlaugur skila\u00f0i af s\u00e9r \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma. Eftir a\u00f0 lj\u00f3st er a\u00f0 hann stendur ekki \u00ed skilum eru einungis b\u00f3ka\u00f0ar \u201eAlmenn umr\u00e6\u00f0a um framgang verksins\u201c e\u00f0a \u201eUmr\u00e6\u00f0a um framgang verksins\u201c. (Sj\u00e1 <b><a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/ssa\/tafla_fundir_gh_2006_2007.html\" title=\"Saga Akraness og ritnefnd um s\u00f6gu Akraness\">t\u00f6flu yfir fundarger\u00f0ir Ritnefndarinnar og vinnu Gunnlaugs skv. \u00feeim \u00e1 fr\u00e1 desember 2006 til desember 2007<\/a><\/b>.)\u00a0 Fundarger\u00f0ir Ritnefndarinnar voru aldrei lag\u00f0ar fram \u00ed b\u00e6jarr\u00e1\u00f0i en hins vegar \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn. \u00dea\u00f0 er sama sleifarlagi\u00f0 og \u00e1\u00f0ur \u00ed \u00feeim efnum, t.d. eru fundarger\u00f0ir fr\u00e1 22. ma\u00ed og 2. okt\u00f3ber lag\u00f0ar fram \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn 9. okt\u00f3ber og fundarger\u00f0in 20. desember 2006 var l\u00f6g\u00f0 fram \u00e1samt annarri fr\u00e1 28. febr\u00faar 2007 \u00e1 b\u00e6jarstj\u00f3rnarfundi \u00feann 11. mars 2007. \u00deetta hefur \u00e1rei\u00f0anlega gert\u00a0 b\u00e6jarstj\u00f3rnarfulltr\u00faum erfitt a\u00f0\u00a0 fylgjast n\u00e1i\u00f0 me\u00f0 Ritnefndinni og sagnaritara.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 sama t\u00edma bl\u00e6s \u00fat \u201ealmenni upphafskaflinn um s\u00f6guna fr\u00e1 landn\u00e1mi til loka 17. aldur, \u00fe.m.t. jar\u00f0s\u00f6gu, sta\u00f0h\u00e1tta- og \u00f6rnefnal\u00fdsing\u201c. \u00deegar \u00feessi samningur vi\u00f0 Gunnlaug var ger\u00f0ur t\u00f6ldu menn a\u00f0 \u00fea\u00f0 eina sem vanta\u00f0i upp \u00e1 I. bindi\u00f0 v\u00e6ri almennur upphafskafli (sem haf\u00f0i reyndar vanta\u00f0 nokku\u00f0 lengi og var upphaflega hugmynd Gunnlaugs sj\u00e1lfs, sem hann stakk a\u00f0 Ritnefndinni um lei\u00f0 og <a href=\"http:\/\/www.this.is\/harpa\/ssa\/tafla_fundir_gh_1997_2001.html\">h\u00fan mat I. bindi\u00f0 fullunni\u00f0, \u00ed desember 2001<\/a>). \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00ed n\u00fdja samningnum st\u00e6\u00f0i a\u00f0 \u201e\u00d6ll \u00e1kv\u00e6\u00f0i fyrri samninga og sam\u00feykkta ritnefndar um efnist\u00f6k, \u00e1herslur og heimildaleit skuldu halda gildi s\u00ednu\u201c var \u00feessi almenni inngangskafli or\u00f0inn a\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u bindi snemma vors 2008, \u00f3kl\u00e1ru\u00f0u a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u. \u00de\u00f3tt \u00fea\u00f0 sj\u00e1ist kannski ekki gj\u00f6rla fyrr en \u00ed n\u00e6stu f\u00e6rslu \u00fe\u00e1 notar Gunnlaugur \u00feetta \u00e1r til a\u00f0 sn\u00faa verkinu \u00e1 hvolf \u00feannig a\u00f0 I. bindi\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed rauninni a\u00f0 II. bindi og hann er byrja\u00f0ur a\u00f0 frumsemja n\u00fdtt I. bindi. (Og seinna meir var hi\u00f0 n\u00fdja II. bindi stytt til muna o.m.fl. en fr\u00e1 \u00fev\u00ed ver\u00f0ur einnig greint s\u00ed\u00f0ar.) \u00deannig a\u00f0 verki\u00f0 var \u00ed rauninni enn fj\u00e6r \u00fev\u00ed a\u00f0 vera t\u00e6kt til \u00fatg\u00e1fu \u00feegar \u00feessum fyrri hluta samningst\u00edmans lauk.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gunnlaugur f\u00e9kk 625.000 kr. greiddar \u00e1 m\u00e1nu\u00f0i fr\u00e1 desember. 2006 til og me\u00f0 j\u00fan\u00ed 2007. \u00deegar grei\u00f0slur st\u00f6\u00f0vast gr\u00edpur hann til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 gera vi\u00f0b\u00f3tarsamning vi\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0 \u00fear sem hann selur b\u00e6num enn meiri \u00f3unna vinnu! \u00deetta er svokalla\u00f0 \u201eSamkomulag um vi\u00f0auka vi\u00f0 samning \u00e1 milli a\u00f0ila um S\u00f6gu Akraness fr\u00e1 30. n\u00f3vember 2006.\u201c<\/font><b><sup><font size=\"-2\">6<\/font><\/sup><font size=\"-1\">\u00a0 <\/font><\/b><font size=\"-1\">Tillagan kom fr\u00e1 Ritnefndinni til b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s og <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/baejarrad\/nr\/10282\/\">b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 f\u00f3l b\u00e6jarritara <\/a>\u201e<a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/baejarrad\/nr\/10282\/\">a\u00f0 gera verksamning \u00ed samr\u00e6mi til till\u00f6gu ritnefndar s\u00f6gu Akraness\u201c \u00feann 18. okt\u00f3ber 2007<\/a>.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">7<\/font><\/sup><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fa var sami\u00f0 um a\u00f0 Gunnlaugur t\u00e6ki a\u00f0 s\u00e9r \u201everkstj\u00f3rn me\u00f0 \u00fdmsum \u00fe\u00e1ttum sem l\u00fata a\u00f0 fullna\u00f0arfr\u00e1gangi \u00e1 s\u00f6gu Akraness, bindis I.\u201c (1. gr.) \u00c1tt var vi\u00f0 verkstj\u00f3rn yfir yfirlestri handrits, ger\u00f0 korta, \u00f6llu sem sn\u00e9ri a\u00f0 graf\u00edk og myndefni, h\u00f6nnun, umbroti og pr\u00f3farkalestri. \u00d6nnur atri\u00f0i sem sami\u00f0 var um voru a\u00f0allega:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u201eA\u00f0ilar eru samm\u00e1la um a\u00f0 ritun II. bindis ver\u00f0i fresta\u00f0 me\u00f0an \u00e1\u00f0urnefnd prentvinnsla I. bindis er \u00ed gangi &#8230;\u201c (2.gr.)<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u201eStefnt er a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fullna\u00f0arfr\u00e1gangi vi\u00f0 I. bindi ver\u00f0i loki\u00f0 \u00feann 1. mars 2008 og \u00fea\u00f0 tilb\u00fai\u00f0 til prentunar.\u201c (4. gr.)<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Og r\u00fas\u00ednan \u00ed pylsuendanum:<\/font><br \/>\n<b><font size=\"-1\">\u201eTelji s\u00f6guritari a\u00f0 forsendur s\u00e9u til a\u00f0 byrja vinnu vi\u00f0 II. bindi a\u00f0 hluta e\u00f0a \u00f6llu leyti me\u00f0an unni\u00f0 er a\u00f0 lokafr\u00e1gangi I. bindis og innheimta fyrir \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3knun skv. samningi \u00fear um skal \u00fea\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 sameiginlega af s\u00f6guritara og ritnefndar [svo] um s\u00f6gu Akraness<\/font><\/b><font size=\"-1\">.\u201c (3. gr.)<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/ssa\/kisi1.jpg?resize=150%2C150\" alt=\"Kisi\" align=\"left\" height=\"150\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">Grei\u00f0slur fyrir vinnuna sem kve\u00f0i\u00f0 var \u00e1 um \u00ed vi\u00f0b\u00f3tarsamningnum skyldu vera tvenn m\u00e1na\u00f0arlaun samanl\u00f6g\u00f0. 33% summunnar voru greidd \u00fat 1. n\u00f3v. 2007; 33% 1. desember 2007 og eftirst\u00f6\u00f0var \u00e1tti a\u00f0 grei\u00f0a \u00feegar I. bindi teldist fullfr\u00e1gengi\u00f0 til prentunar.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deannig t\u00f3kst Gunnlaugi Haraldssyni a\u00f0 f\u00e1 full m\u00e1na\u00f0arlaun h\u00e1lft \u00e1ri\u00f0 og skert m\u00e1na\u00f0arlaun \u00ed tvo m\u00e1nu\u00f0i a\u00f0 auki \u00e1n \u00feess a\u00f0 skila meiru en 226 s\u00ed\u00f0um af \u00f3fullger\u00f0u handriti (skv. fundarger\u00f0um Ritnefndarinnar).<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fyrir \u00e1ri\u00f0 2007 f\u00e9kk sagnaritarinn greiddar 4 millj\u00f3nir og 767 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur. Annar kostna\u00f0ur var t\u00e6plega 3,2 millj\u00f3nir og laun ritnefndar, t\u00e6p 277 \u00fe\u00fasund; alls r\u00famar 8 millj\u00f3nir og 200 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur. <b>\u00c1 n\u00favir\u00f0i er \u00feessi upph\u00e6\u00f0 r\u00e9tt r\u00famar 11 millj\u00f3nir og 238 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur<\/b>.<\/font><b><sup><font size=\"-2\">8<\/font><\/sup><\/b><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<hr width=\"100%\" \/>\n<font size=\"-2\">\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">1 \u00a0\u201e\u00d6ll \u00e1kv\u00e6\u00f0i fyrri samninga og sam\u00feykkta ritnefndar um efnist\u00f6k, \u00e1herslur og heimildaleit skuldu halda gildi s\u00ednu og er \u00fea\u00f0 einv\u00f6r\u00f0ungu markmi\u00f0 \u00feessa samnings a\u00f0 framlengja verkt\u00edma, skilgreina verklok og kve\u00f0a \u00e1 um grei\u00f0slur til sagnaritara.\u201c Segja m\u00e1 a\u00f0 eini hluti markmi\u00f0sins sem n\u00e1\u00f0ist hafi veri\u00f0 grei\u00f0slurnar.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">2 H\u00e9r birtist \u00ed fyrsta sinn titillinn a\u00f0 \u00fev\u00ed verki sem kom a\u00f0 hluta \u00fat fyrir viku s\u00ed\u00f0an, <i>Saga Akraness I<\/i> og <i>Saga Akraness II<\/i>, hvort bindi me\u00f0 s\u00ednum undirtitli. \u00c9g sendi t\u00f6lvup\u00f3st til J\u00f3ns Gunnlaugssonar, formanns ritnefndar, \u00c1rna M\u00fala J\u00f3nassonar b\u00e6jarstj\u00f3ra, Sveins Kristinssonar, forseta b\u00e6jarstj\u00f3rnar,\u00a0 Gu\u00f0mundar P\u00e1ls J\u00f3nssonar, formanns b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s og J\u00f3n P\u00e1lma P\u00e1lssonar, b\u00e6jarritara, m\u00e1nudaginn 23. ma\u00ed 2011 og spur\u00f0i hvort sami\u00f0 hafi veri\u00f0 vi\u00f0 erfingja \u00d3lafs B. Bj\u00f6rnssonar um leyfi til a\u00f0 nota \u00feessa titla, sbr. H\u00f6fundal\u00f6g 1972 nr. 73 me\u00f0 \u00e1or\u00f0num breytingum, gr. 43, 51 og 52, en hef ekki fengi\u00f0 svar fr\u00e1 neinum \u00feeirra. L\u00edklega heyrir Ritnefndin og saga Akraness enn undir b\u00e6jarstj\u00f3ra, hugsanlega undir b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 einnig, svo til \u00f6ryggis sendi \u00e9g \u00f6llum \u00feessum a\u00f0ilum spurninguna en \u00feeir hafa l\u00edklega ekki m\u00e1tt vera a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 svara m\u00e9r enn\u00fe\u00e1.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">3 \u00cd fyrsta samningnum sag\u00f0i: \u201eVerki\u00f0 hefst \u00feann 1. apr\u00edl 1997 og skal loki\u00f0 eigi s\u00ed\u00f0ar en 30. september 2001.\u201c \u00cd \u00feri\u00f0ju grein \u00feess samnings sag\u00f0i: \u201e \u2026 ef vanefndir teljast verulegar \u00e1 verkt\u00edmanum er Akraneskaupsta\u00f0 heimilt a\u00f0 rifta samningi \u00feessum og endurkrefja h\u00f6fund um \u00fe\u00e6r grei\u00f0slur, sem \u00feegar hafa veri\u00f0 inntar af hendi.\u201c Vanefndir voru g\u00edfurlegar en eins og fram hefur komi\u00f0 virtist sagnaritarinn varinn \u00ed bak og fyrir, ger\u00f0i Vi\u00f0aukasamning og\u00a0 Samkomulag, sem voru vi\u00f0b\u00e6tur vi\u00f0 upphaflega samninginn, og h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 f\u00e1 greitt. \u00cd \u00feessum n\u00fdja samningi segir:\u201e\u00cd \u00fev\u00ed [samkomulagi] felst m.a. a\u00f0 hvorugur a\u00f0ili gerir neinar kr\u00f6fur \u00e1 hendur hinum vegna \u00feess t\u00edma sem li\u00f0inn er.\u201c Raunar vir\u00f0ast menn farnir a\u00f0 ruglast \u00ed r\u00edminu \u00feegar samningar vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson eru raktir \u00fev\u00ed \u00ed \u201eForsendum\u201c n\u00fdja samningsins er villa \u00ed dagsetningu \u201e\u00feri\u00f0ja samningsins\u201c, \u00fe.e. Samkomulagsins fr\u00e1 26. \u00e1g\u00fast 2004 (en \u00feann dag sam\u00feykkti b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 \u00fea\u00f0).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">4 \u201eHver grei\u00f0sla uppf\u00e6rist mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fer\u00f3un launav\u00edsit\u00f6lu, me\u00f0 grunnv\u00edsit\u00f6lu \u00ed n\u00f3vember 2006 (til ver\u00f0tryggingar \u00ed desember)\u201c.\u00a0 M\u00e9r finnst \u00feetta \u00f3skiljanleg setning og ef einhver getur \u00fatsk\u00fdrt hana fyrir m\u00e9r v\u00e6ri \u00e9g \u00feakkl\u00e1t. En lj\u00f3st er a\u00f0 m\u00e1na\u00f0arlaun Gunnlaugs voru 625.000 kr. allan t\u00edmann, \u00feau h\u00e6kku\u00f0u ekkert \u00e1 \u00e1rinu 2007.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">5 Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 launatengd gj\u00f6ld s\u00e9u 20% voru laun Gunnlaugs 520.000 \u00e1 m\u00e1nu\u00f0i. \u00cd desember 2006, \u00feegar Gunnlaugur f\u00e9kk fyrstu grei\u00f0sluna, voru me\u00f0al dagvinnulaun framhaldssk\u00f3lakennara r\u00e9tt r\u00famar 288 \u00fe\u00fasund \u00e1 m\u00e1nu\u00f0i. Me\u00f0alheildarlaun framhaldssk\u00f3lakennara voru \u00ed okt\u00f3ber-n\u00f3vember 2006 r\u00fam 440 \u00fe\u00fasund. (Samanbur\u00f0ur vi\u00f0 desember hentar illa \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 var greidd \u00fat desemberuppb\u00f3t og a\u00f0rar grei\u00f0slur fyrir \u00e1kv. vinnu alla alla haust\u00f6nnina).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u00cd j\u00fan\u00ed 2007 h\u00f6f\u00f0u me\u00f0aldagvinnulaun framhaldssk\u00f3lakennara h\u00e6kka\u00f0 \u00ed r\u00e9tt r\u00famar 301 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur \u00e1 m\u00e1nu\u00f0i en me\u00f0alheildarlaun h\u00e6kka\u00f0 hlutfallslega minna \u00fev\u00ed yfirvinna dr\u00f3st saman. \u00deau voru \u00ed kringum 450 \u00fe\u00fasund. Inni \u00ed me\u00f0altalst\u00f6lum um framhaldssk\u00f3lakennara eru launagrei\u00f0slur allra stj\u00f3rnenda framhaldssk\u00f3lanna annarra en sk\u00f3lameistara, sem v\u00e6ntanlega h\u00e6kka \u00feessar t\u00f6lur nokku\u00f0. Sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/frontpage.simnet.is\/kos\/PDFskrar\/34ritkos.pdf\"><i>Fr\u00e9ttarit KOS<\/i> nr. 31<\/a>, s. 34. \u00datgefandi er Kjararanns\u00f3knarnefnd opinberra starfsmanna.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Af \u00feessu m\u00e1 draga \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun a\u00f0 me\u00f0 n\u00fdja samningnum h\u00e6kki Gunnlaugur talsvert \u00ed launum fr\u00e1 fyrri grunnsamningi (1997) \u00fev\u00ed n\u00fa f\u00e9kk hann greitt talsvert meir en framhaldssk\u00f3lakennarar upp til h\u00f3pa.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">6<b> <\/b>Upphaf samkomulagsins, \u201eForsendur\u201c, er l\u00fdsandi fyrir vi\u00f0skipti Akraneskaupsta\u00f0ar og Gunnlaugs Haraldssonar til \u00feessa:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">\u201eSamkomulag \u00feetta er gert \u00ed framhaldi af fyrri samningum a\u00f0ila fr\u00e1 23\/4 1997, 24\/1 2002, 24\/8 2008 [\u00e1 a\u00f0 vera 26\/8 2004] og 30\/11 2006.<\/font><br \/>\n<font size=\"-2\">S\u00f6guritun \u00e1 fyrsta bindi hefur dregist \u00ed t\u00edma mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 t\u00edmasetningar samnings fr\u00e1 30\/11 2006 og lj\u00f3st a\u00f0 t\u00edma\u00e1kv\u00e6\u00f0i vi\u00f0 upphaf ritunar bindis II getur ekki hafist fyrr en b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 lj\u00faka ritun og fr\u00e1gangi bindis nr I.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-2\">Skrifa\u00f0 var undir samkomulagi\u00f0 \u00feann 27. okt\u00f3ber 2007.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">7 \u00cd b\u00e6jarr\u00e1\u00f0i s\u00e1tu: Karen J\u00f3nsd\u00f3ttir, forma\u00f0ur b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s, Gunnar Sigur\u00f0sson og Gu\u00f0mundur P\u00e1ll J\u00f3nsson. \u00c1 \u00feessum fundi voru einnig G\u00edsli S. Einarsson, b\u00e6jarstj\u00f3ri og J\u00f3n P\u00e1lmi P\u00e1lsson, b\u00e6jarritari.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-2\">8<b> <\/b>Uppl\u00fdsingar um kostna\u00f0 og uppreikning hans \u00e1 n\u00favir\u00f0i eru fengnar fr\u00e1 Akraneskaupsta\u00f0 \u00feann 4. ma\u00ed 2011.<\/font><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r segir\u00a0af \u00fev\u00ed hvernig Gunnlaugi Haraldssyni t\u00f3kst a\u00f0 n\u00e1 n\u00fdjum samningi vi\u00f0 Akraneskaupsta\u00f0; standa ekki skil \u00e1 ums\u00f6mdum verkum; gera \u00fe\u00e1 samkomulag vi\u00f0 b\u00e6inn um grei\u00f0slur fyrir enn v\u00ed\u00f0t\u00e6kari st\u00f6rf; sn\u00faa samningu verksins \u00e1 hvolf <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/05\/27\/einvordungu-markmid-thessa-samnings-ad-framlengja-verktima-skilgreina-verklok-og-kveda-a-um-greidslur-til-sagnaritara\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-351","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/351","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=351"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/351\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=351"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=351"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=351"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}