{"id":375,"date":"2011-10-16T11:01:36","date_gmt":"2011-10-16T11:01:36","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-10-16\/eru-gedlyf-vond-og-gedlaeknar-spilltir\/"},"modified":"2011-10-16T11:01:36","modified_gmt":"2011-10-16T11:01:36","slug":"eru-gedlyf-vond-og-gedlaeknar-spilltir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/10\/16\/eru-gedlyf-vond-og-gedlaeknar-spilltir\/","title":{"rendered":"Eru ge\u00f0lyf vond og ge\u00f0l\u00e6knar spilltir?"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 blogga f\u00e6rsluflokk um \u00feunglyndi og \u00f3skiljanlegar \u00e1r\u00e1sir alls konar f\u00f3lks \u00e1 ge\u00f0lyf og ge\u00f0l\u00e6kna. En n\u00fa nenni \u00e9g \u00fev\u00ed eiginlega ekki, \u00feetta ver\u00f0a strj\u00e1lar f\u00e6rslur enda hef\u00a0 \u00e9g margoft tj\u00e1\u00f0 mig um efni\u00f0 og yfirleitt veri\u00f0 a\u00f0 andm\u00e6la sama f\u00f3lkinu sem heldur uppiteknum h\u00e6tti \u00ed \u00e1r\u00f3\u00f0ri sem er nokkurn veginn svona:<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">Ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mar eru ofgreindir;<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Alltof m\u00f6rgum eru gefin ge\u00f0lyf;<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Alltof m\u00f6rgum er gefi\u00f0 alltof miki\u00f0 af ge\u00f0lyfjum;<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Margir ge\u00f0l\u00e6knar \u00feiggja einhvers konar fr\u00ed\u00f0indi fr\u00e1 lyfjafyrirt\u00e6kjum og m\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e6tla a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u n\u00e1nast \u00e1 m\u00e1la hj\u00e1 s\u00f6mu fyrirt\u00e6kjum;<\/font><\/li>\n<li>\u00a0<font size=\"-1\">S\u00ed\u00f0asttalda sta\u00f0h\u00e6fingin er \u00fdmist sk\u00fdring e\u00f0a forsenda hinna fyrri.<\/font><\/li>\n<\/ul>\n<p><font size=\"-1\">\u00deessi \u00e1r\u00f3\u00f0ur er kl\u00e6ddur \u00ed mismunandi fr\u00e6\u00f0ilegan b\u00faning, allt eftir hver skrifar. Gott d\u00e6mi um grein sem vir\u00f0ist \u00e1kaflega fr\u00e6\u00f0ileg, \u00ed \u00feeim skilningi a\u00f0 \u00fear er v\u00edsa\u00f0 \u00fat og su\u00f0ur \u00ed heimildir, er \u201eGl\u00edmir ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0in vi\u00f0 hugmyndafr\u00e6\u00f0ilega kreppu? Um v\u00edsindi og hagsmuni\u201c, eftir Steind\u00f3r J. Erlingsson, birt \u00ed <a target=\"_blank\" href=\"http:\/\/www.felagsradgjof.is\/images\/stories\/timarit\/Timarit_Felagsradgjafa_VEF.pdf\" title=\"T\ufffdmarit f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gjafa\"><em>T\u00edmariti f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gjafa<\/em> 1. tbl. 2011, s. 5-13<\/a>.\u00a0\u00a0Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0urnar eru \u00ed stuttu m\u00e1li \u00feessar:<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">Ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i getur engan veginn sagt me\u00f0 vissu hver ors\u00f6k ge\u00f0raskana s\u00e9 \u00ed raun og veru; <\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Flokkunar- og greiningarkerfi sj\u00fakd\u00f3ma (DSM og ICD) hafa haft \u00fe\u00e6r aflei\u00f0ingar a\u00f0 <\/font>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">1) Fj\u00f6ldi \u00feeirra, sem greinast me\u00f0 ge\u00f0raskanir og eru me\u00f0h\u00f6ndla\u00f0ir sem sj\u00faklingar vir\u00f0ist talsvert umfram \u00fea\u00f0 sem e\u00f0lilegt getur talist, <\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">2) lyfjafyrirt\u00e6kin hafa n\u00fdtt s\u00e9r \u00feetta veika kerfi til a\u00f0 auka gr\u00ed\u00f0arlega \u00e1v\u00edsun ge\u00f0lyfja \u00e1 Vesturl\u00f6ndum og v\u00ed\u00f0ar.<\/font><\/li>\n<\/ul>\n<\/li>\n<\/ul>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd greininni er svo bent \u00e1 \u00fe\u00e1 auglj\u00f3su sta\u00f0reynd a\u00f0 af \u00fev\u00ed ekki er h\u00e6gt a\u00f0 greina ors\u00f6k ge\u00f0raskana me\u00f0 vissu og ranns\u00f3knir \u00e1 virkni lyfja gefi misv\u00edsandi ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur byggi sj\u00fakd\u00f3msgreining \u00e6vinlega a\u00f0 einhverju leyti \u00e1 hugl\u00e6gu mati.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g hef \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert vi\u00f0 \u00feessa lokani\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 athuga, horfandi \u00e1 hana sem \u00feunglyndissj\u00faklingur me\u00f0 vi\u00f0amikla reynslu af lyfja\u00e1ti og \u00f6\u00f0rum a\u00f0fer\u00f0um. En a\u00f0 m\u00ednu mati gildir n\u00e1kv\u00e6mlega \u00feetta sama um fj\u00f6lda annarra sj\u00fakd\u00f3ma. \u00dear er hins vegar minna um a\u00f0 nokkrir einstaklingar fylki s\u00e9r \u00ed krossfer\u00f0 gegn lyfjum og l\u00e6knum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">En \u00e9g set st\u00f3rt spurningarmerki vi\u00f0 sta\u00f0h\u00e6fingar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 <b>fj\u00f6ldi \u00feeirra sem greinast me\u00f0 ge\u00f0raskanir og eru me\u00f0h\u00f6ndla\u00f0ir sem sj\u00faklingar vir\u00f0ist talsvert umfram \u00fea\u00f0 sem e\u00f0lilegt getur talist.<\/b> Hver er \u00feess umkominn a\u00f0 vita hver \u201ee\u00f0lilegur\u201c fj\u00f6ldi f\u00f3lks me\u00f0 ge\u00f0raskanir er? Er ekki mj\u00f6g l\u00edklegt a\u00f0 ge\u00f0raskanir hafi veri\u00f0 vangreindar til \u00feessa og s\u00e9u jafnvel enn? <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hva\u00f0 gefur einstaklingum skotleyfi \u00e1 akk\u00farat \u00feennan sj\u00faklingah\u00f3p? \u00der\u00e1tt fyrir yfirl\u00fdsingar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 hlusta beri \u00e1 sj\u00f3narmi\u00f0 \u00feeirra sem n\u00fdta s\u00e9r \u00fej\u00f3nustu ge\u00f0heilbrig\u00f0iskerfisins \u201e\u00fev\u00ed ekki er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00edta \u00e1 \u00fea\u00f0 sem sj\u00e1lfsagt m\u00e1l a\u00f0 \u00feekking hinna fagl\u00e6r\u00f0u standi alltaf framar \u00feeirri \u00feekkingu sem notendur \u00fej\u00f3nustunnar b\u00faa yfir\u201c (s. 12 \u00ed fyrrnefndri grein Steind\u00f3rs) kemur \u00fea\u00f0 alls ekki \u00ed veg fyrir a\u00f0 alls konar f\u00f3lk fyllist forr\u00e6\u00f0ishyggju fyrir h\u00f6nd ge\u00f0sj\u00faklinga og vilji hafa vit fyrir \u00feeim. Sem \u00f6fgad\u00e6mi \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1ttina m\u00e1 nefna \u00fdmsa umfj\u00f6llun sem heimilisl\u00e6knirinn Vilhj\u00e1lmur Ari Arason (s\u00e9rmennta\u00f0ur \u00ed s\u00fdklalyfjanotkun barna), El\u00edn Ebba \u00c1smundsd\u00f3ttir, i\u00f0ju\u00fej\u00e1lfi og Gunnar Sm\u00e1ri Egilsson, bla\u00f0ama\u00f0ur, fyrir h\u00f6nd S\u00c1\u00c1, hafa vi\u00f0haft. (\u00cd s\u00ed\u00f0astnefnda tilvikinu hefur t.d.veri\u00f0 um beinar \u00e1r\u00e1sir \u00e1 ADHD-sj\u00faklinga og l\u00e6kna \u00feeirra a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.) Steind\u00f3r J. Erlingsson hefur veri\u00f0 \u00e1berandi \u00ed samskonar umr\u00e6\u00f0u en m\u00e1 eiga \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann hefur \u00f3l\u00edkt hinum bein kynni af \u00fej\u00f3nustu ge\u00f0heilbrig\u00f0iskerfisins sem sj\u00faklingur og\u00a0 kynnir s\u00e9r umfj\u00f6llunarefni\u00f0 vel. Samt fellur Steind\u00f3r raunar \u00ed \u00fe\u00e1 \u00f3v\u00edsindalegu gryfju a\u00f0 fjalla einungis um efni\u00f0 fr\u00e1 einni hli\u00f0. (Dugir t.d. a\u00f0 renna yfir fyrirsagnir \u00e1 <a href=\"http:\/\/steindorje.wordpress.com\/2011\/10\/\" title=\"Blogg Steind\u00f3rs J. Erlingssonar\">blogginu hans \u00ed okt\u00f3ber<\/a>\u00a0til a\u00f0 sj\u00e1 hve einspora\u00a0m\u00e1lflutningur hans er.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">T\u00f6kum sem d\u00e6mi a\u00f0ra oft illl\u00e6knanlega sj\u00fakd\u00f3ma og illskiljanlega sj\u00fakd\u00f3ma. H\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3mar koma \u00e1g\u00e6tlega til greina til samanbur\u00f0ar. M\u00e9r er \u00f3kunnugt um hvort einhver hafi haldi\u00f0 \u00fev\u00ed fram a\u00f0 fj\u00f6ldi \u00feeirra sem greinist me\u00f0 h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma s\u00e9 talsvert umfram \u00fea\u00f0 sem e\u00f0lilegt getur talist &#8211; enda blasir vi\u00f0 sami vandinn og \u00ed ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mum: <strong>Hver er e\u00f0lilegur fj\u00f6ldi h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3masj\u00faklinga?<\/strong><\/font><strong> <\/strong><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Oft er \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 heimilisl\u00e6knir er fyrsti a\u00f0ili sem leita\u00f0 er til. Vi\u00f0tal hj\u00e1 heimilisl\u00e6kni er \u00ed h\u00e6sta lagi korterslangt og v\u00edsast a\u00f0 s\u00e1 \u00e1v\u00edsi \u00e1 einhver h\u00fa\u00f0lyf. \u00deegar \u00feau virka ekki er leita\u00f0 til s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ings \u00ed h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3mal\u00e6kningum, sem \u00e1v\u00edsar sennilega \u00e1 \u00f6nnur lyf, eftir stutta sko\u00f0un. Ef \u00feau virka ekki eru reynd \u00f6nnur lyf. Og \u00f6nnur. E.t.v. er sj\u00faklingurinn sendur \u00ed einhver pr\u00f3f, t.d. ofn\u00e6mispr\u00f3f, til a\u00f0 reyna a\u00f0 finna sk\u00fdringuna. Hugsanlega kemur eitthva\u00f0 \u00fat \u00far \u00feeim pr\u00f3fum, hugsanlega ekki. Sj\u00faklingurinn sj\u00e1lfur reynir a\u00f0 afla s\u00e9r fr\u00e6\u00f0slu og pr\u00f3far \u00fdmsar \u00f3hef\u00f0bundnar a\u00f0fer\u00f0ir, fr\u00e1 jurtasmyrslum til \u00feess a\u00f0 breyta um matar\u00e6\u00f0i. (\u00c9g tek fram a\u00f0 \u00e9g hef n\u00e1in kynni af akk\u00farat svona p\u00edslarg\u00f6ngu sj\u00faklings.) \u00deegar upp er sta\u00f0i\u00f0 finnst kannski engin varanleg lausn; sj\u00faklingurinn hefur kannski me\u00f0 tilraunastarfsemi og l\u00e6knishj\u00e1lp komist a\u00f0 einhverjum m\u00f6gulegum ors\u00f6kum sem koma af sta\u00f0 kasti og for\u00f0ast \u00fe\u00e6r en \u00fe\u00e6r orsakir sk\u00fdra ekki sj\u00fakd\u00f3minn a\u00f0 fullu og hann getur alltaf blossa\u00f0 upp. \u00de\u00e1 er gripi\u00f0 til lyfja til a\u00f0 sl\u00e1 \u00e1 einkennin, oft sterkra steralyfja sem eru almennt talin heldur \u00f3holl og geta haft sl\u00e6mar aukaverkanir.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af hverju er ekki r\u00e1\u00f0ist \u00e1 \u00feennan sj\u00faklingah\u00f3p og \u00feeirra l\u00e6kna? <strong>H\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3mafr\u00e6\u00f0i getur ekki sagt me\u00f0 vissu hver er ors\u00f6k margra h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma<\/strong>. S\u00edfellt koma \u00e1 marka\u00f0inn n\u00fd h\u00fa\u00f0lyf og m\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e6tla a\u00f0 <strong>lyfjafyrirt\u00e6ki sj\u00e1i s\u00e9r hagna\u00f0arvon \u00ed marka\u00f0ssetningu n\u00fdrra h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3malyfja<\/strong>, sem virka \u00e1 suma en ekki \u00e1 a\u00f0ra. Jafnvel getur veri\u00f0 a\u00f0 lyfjafyrirt\u00e6ki \u00ed \u00feessum geira snyrti til s\u00ednar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur og hagr\u00e6\u00f0i \u00feeim, um \u00fea\u00f0 veit \u00e9g ekki. Hj\u00e1l\u00e6kningar \u00ed \u00feessum m\u00e1laflokki bl\u00f3mstra, ekki s\u00ed\u00f0ur en \u00ed ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mabissnissnum &#8211; jurtasmyrsl af \u00f6llu tagi, sull \u00ed Bl\u00e1a l\u00f3ninu, leirb\u00f6\u00f0 \u00e1 N\u00e1tt\u00farul\u00e6kningarh\u00e6linu, detox-me\u00f0fer\u00f0 hj\u00e1 J\u00f3n\u00ednu, f\u00e6\u00f0ub\u00f3tarefni alls konar &#8230; gott ef Fontana (Montana) r\u00e6r ekki \u00e1 s\u00f6mu mi\u00f0. \u00c1n \u00feess \u00e9g viti \u00fea\u00f0 k\u00e6mi m\u00e9r ekki \u00e1 \u00f3vart \u00fe\u00f3tt handayfirlagning, kristallal\u00e6kningar, heilun og anna\u00f0 af \u00fev\u00ed tagi v\u00e6ri l\u00edka \u00ed bo\u00f0i fyrir sj\u00faklinga me\u00f0 sl\u00e6ma illl\u00e6knanlega h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma, jafnvel HAM, DAM og gj\u00f6rhygli. Og \u00e9g reikna me\u00f0 a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 misnota einhver h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3malyf, t.d. eta sterakremin, eta einhverjar pillur \u00ed \u00f3h\u00f3fi e\u00f0a misnota \u00e1 annan h\u00e1tt: Margskonar lyf er h\u00e6gt a\u00f0 misnota ef viljinn er fyrir hendi.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00der\u00e1tt fyrir \u00feetta <strong>hafa velmeinandi a\u00f0ilar ekki veri\u00f0 n\u00e6rri \u00fev\u00ed eins duglegir a\u00f0 reyna a\u00f0 f\u00e1 h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3masj\u00faklinga til a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 skipta vi\u00f0 h\u00fa\u00f0sj\u00fakd\u00f3mal\u00e6kna og h\u00e6tta a\u00f0 nota lyfin s\u00edn eins og \u00feeir hafa hamra\u00f0 \u00e1 ge\u00f0sj\u00fakum<\/strong>. G\u00e6ti sk\u00fdringin veri\u00f0 s\u00fa a\u00f0 ge\u00f0sj\u00fakir liggja miklu betur vi\u00f0 h\u00f6ggi og eru \u00f3l\u00edklegri til a\u00f0 bera h\u00f6nd yfir h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r, sj\u00fakd\u00f3msins vegna, en \u00feeir sem eru me\u00f0 \u00f3l\u00e6knandi exem? Er m\u00f6gulegt a\u00f0 einhverjir \u00feeirra sem h\u00e6st hafa um meinta r\u00e1\u00f0smennsku ge\u00f0l\u00e6kna \u00ed gar\u00f0 sinna sj\u00faklinga s\u00e9u ekki hvattir \u00e1fram af velmeintum velfer\u00f0arsj\u00f3narmi\u00f0um heldur einfaldri valdaf\u00edkn, \u00fe.e.a.s. vilji f\u00e1 a\u00f0 stj\u00f3rna \u00feessum sj\u00faklingah\u00f3pi \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er svo gaman a\u00f0 hafa vit fyrir f\u00f3lki og f\u00e1 a\u00f0 stj\u00f3rna \u00fev\u00ed? Og a\u00f0 svolei\u00f0is innr\u00e9tta\u00f0 f\u00f3lk hafi s\u00e9\u00f0 \u00ed hendi s\u00e9r a\u00f0 a\u00f0rir sj\u00faklingah\u00f3par v\u00e6ru \u00f3l\u00edklegir til a\u00f0 l\u00fata stj\u00f3rn f\u00f3lks sem er stundum illa mennta\u00f0 e\u00f0a \u00f3mennta\u00f0 \u00ed \u00feeim fr\u00e6\u00f0um sem \u00fea\u00f0 vill endilega f\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0skast \u00ed?<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8211;<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deetta er or\u00f0in nokku\u00f0 l\u00f6ng f\u00e6rsla og m\u00e1l a\u00f0 linni. \u00c9g hef \u00fe\u00f3 \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 blogga a\u00f0ra f\u00e6rslu um muninn \u00e1 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegri n\u00e1lgun \u00feunglyndis og lyfjanotkun vi\u00f0 \u00feunglyndi, \u00f6llu heldur \u00feau grundvallarsj\u00f3narmi\u00f0 sem liggja \u00fear a\u00f0 baki og er kannski meginors\u00f6k \u00feess a\u00f0 li\u00f0i\u00f0 \u00ed s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ibatter\u00edinu (s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingar, f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gjafar, \u00e1fengisr\u00e1\u00f0gjafar o.fl.) leggja allt undir til a\u00f0 ota s\u00ednum tota gegn ge\u00f0l\u00e6knum, me\u00f0 dyggri a\u00f0sto\u00f0 \u00f6rf\u00e1rra ge\u00f0sj\u00faklinga sem ekki hafa fengi\u00f0 b\u00f3t meina sinna innan ge\u00f0l\u00e6kningakerfisins. Raunar held \u00e9g samt a\u00f0 a\u00f0al\u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir sl\u00edkri umr\u00e6\u00f0u h\u00e9r \u00e1 landi s\u00e9 fj\u00e1rhagsleg: <strong>Menn eru a\u00f0 b\u00edtast um f\u00e9! \u00deeir sem lenda \u00e1 milli str\u00ed\u00f0andi fylkinga, sj\u00faklingarnir, skipta \u00fev\u00ed mi\u00f0ur oft litlu m\u00e1li.<\/strong><\/font><\/p>\n<p>\u00a0\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 blogga f\u00e6rsluflokk um \u00feunglyndi og \u00f3skiljanlegar \u00e1r\u00e1sir alls konar f\u00f3lks \u00e1 ge\u00f0lyf og ge\u00f0l\u00e6kna. En n\u00fa nenni \u00e9g \u00fev\u00ed eiginlega ekki, \u00feetta ver\u00f0a strj\u00e1lar f\u00e6rslur enda hef\u00a0 \u00e9g margoft tj\u00e1\u00f0 mig um <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/10\/16\/eru-gedlyf-vond-og-gedlaeknar-spilltir\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-375","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/375","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=375"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/375\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=375"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=375"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=375"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}