{"id":383,"date":"2011-12-04T18:28:56","date_gmt":"2011-12-04T18:28:56","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-12-04\/glaesir\/"},"modified":"2013-11-21T09:30:41","modified_gmt":"2013-11-21T09:30:41","slug":"glaesir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/12\/04\/glaesir\/","title":{"rendered":"Gl\u00e6sir"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">Undir mi\u00f0n\u00e6tti einhvern t\u00edmann \u00ed vikunni settist \u00e9g ni\u00f0ur me\u00f0 Gl\u00e6si eftir \u00c1rmann Jakobsson og hug\u00f0ist glugga\u00f0 a\u00f0eins \u00ed hana undir svefninn. Raunin var\u00f0 s\u00fa a\u00f0 \u00e9g gat ekki sliti\u00f0 mig fr\u00e1 b\u00f3kinni og las hana \u00ed beit, hugfangin!<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Eins og komi\u00f0 hefur fram \u00ed m\u00f6rgum ritd\u00f3mum byggir s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0urinn \u00e1 <i><a href=\"http:\/\/snerpa.is\/net\/isl\/eyrbygg.htm\">Eyrbyggju<\/a><\/i> og talsvert hefur veri\u00f0 hampa\u00f0 hinni merkilegu st\u00f6\u00f0u s\u00f6gumanns, sem er \u00fdmist naut, lifandi ma\u00f0ur e\u00f0a draugur. Nauti\u00f0 heitir Gl\u00e6sir en ma\u00f0urinn \u00ed lifanda l\u00edfi h\u00e9t \u00de\u00f3r\u00f3lfur og hlaut vi\u00f0urnefni\u00f0 b\u00e6gif\u00f3tur (vanskapa\u00f0ur f\u00f3tur) &#8211; raunar er \u00de\u00f3r\u00f3lfur haltur \u00e1 f\u00e6ti eftir h\u00f3lmg\u00f6ngu. \u00c9g var d\u00e1l\u00edti\u00f0 hugsi yfir \u00fev\u00ed hvort lesandi sem ekki hefur lesi\u00f0 <i>Eyrbyggju <\/i>myndi botna vel \u00ed \u00feessari s\u00f6gu en skv.<a href=\"http:\/\/bokvit.blogspot.com\/search\/label\/Eyrbyggja\"> ritd\u00f3mi \u00e1 <i>Druslub\u00e6kur og do\u00f0rantar<\/i><\/a> er sl\u00edkt ekki nau\u00f0synlegt.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><i>Gl\u00e6sir<\/i> er enda margslungin saga og \u00e6tti hver a\u00f0 geta fundi\u00f0 eitthva\u00f0 vi\u00f0 sitt h\u00e6fi og sinn skilning. \u00deeir sem hafa lesi\u00f0 einhverjar \u00cdslendingas\u00f6gur kannast v\u00e6ntanlega vi\u00f0 fleira en <i>Eyrbyggju<\/i> \u00ed \u00feessari b\u00f3k, t.d. er ein gl\u00e6sikl\u00e6\u00f0na\u00f0arl\u00fdsingin \u00e1 Arnkeli go\u00f0a (\u00f3skilgetnum syni \u00de\u00f3r\u00f3lfs b\u00e6gif\u00f3tar) fengin a\u00f0 l\u00e1ni\u00a0af Bolla Bollasyni \u00ed <i>Laxd\u00e6lu<\/i> o.fl. tilv\u00edsanir m\u00e1 finna til \u00feeirrar s\u00f6gu. Fyrir \u00fe\u00e1 tr\u00fahneig\u00f0u eru tilv\u00edsanir \u00ed \u00fdmis tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0, kannski einkum vangaveltur um vald Hv\u00edtakrists og hinna g\u00f6mlu gu\u00f0a, sem og vald \u00f6rlaganornanna. En \u00fe\u00f3tt \u00de\u00f3r\u00f3lfur margvitni \u00ed \u00fdmislegt \u00feess lags vir\u00f0ist hann innst inni algerlega tr\u00falaus (\u00e1 hva\u00f0eina). L\u00fdsingar \u00e1 valdabr\u00f6lti h\u00f6f\u00f0ingja vi\u00f0 Brei\u00f0afj\u00f6r\u00f0 minna kannski svol\u00edti\u00f0 \u00e1 okkar g\u00f6mlu bissnissmenn, p\u00f3lit\u00edkusa og \u00fatr\u00e1sarv\u00edkinga. Ekki hva\u00f0 s\u00edst vekja l\u00fdsingar \u00e1 \u00edbur\u00f0i go\u00f0anna ungu sl\u00edk hugrenningatengsl. Og \u00ed bakgrunninum er s\u00edfelld bar\u00e1tta um v\u00f6ld, eignir og mannaforr\u00e1\u00f0, \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 <i>Eyrbyggju<\/i> og \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 n\u00fdli\u00f0na t\u00edma \u00fatr\u00e1sar. \u00deegar \u00e1 s\u00f6guna l\u00ed\u00f0ur f\u00e1 unnendur hryllingsb\u00f3kmennta svo heilmiki\u00f0 fyrir sinn sn\u00fa\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g las \u00feessa s\u00f6gu fyrst og fremst sem <b>s\u00f6gu um illsku<\/b>. \u00de\u00f3tt \u00c1rmann gefi \u00fev\u00ed undir f\u00f3tinn a\u00f0 hrikalegt uppeldi e\u00f0a f\u00f6tlun \u00de\u00f3r\u00f3lfs s\u00ed\u00f0ar \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni kunni a\u00f0 hafa \u00fdtt undir skapbresti hans upplif\u00f0i \u00e9g \u00de\u00f3r\u00f3lf sem illskuna holdi kl\u00e6dda fr\u00e1 fyrstu stundu. (Menn eru endalaust \u00f3samm\u00e1la um v\u00e6gi uppeldis og erf\u00f0a, \u201enurture versus nature\u201c og gefur sagan fylgism\u00f6nnum hvors n\u00e6gan efnivi\u00f0 til sinnar t\u00falkunar, sem s\u00fdnir au\u00f0vita\u00f0 hva\u00f0 \u00feetta er vel skrifu\u00f0 saga.) S\u00f6guma\u00f0ur segir sj\u00e1lfur: \u201eL\u00edf mitt hefur veri\u00f0 einn langur sundurlyndisvetur &#8230;\u201c (s. 28) og m\u00e1 til sanns vegar f\u00e6ra; en sundurlyndinu hefur hann sj\u00e1lfur valdi\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fr\u00e1 upphafi er \u00de\u00f3r\u00f3lfur samviskulaust kvikindi, erkisi\u00f0blindingi. Hann gerist v\u00edkingur \u00e1 unga aldri, vegur menn og pyntar, karla, konur og b\u00f6rn. En \u00fea\u00f0 snertir hann ekkert s\u00e9rstaklega, hann tekur fram a\u00f0 \u00feetta hafi einfaldlega tilheyrt starfinu og veri\u00f0 unni\u00f0 eftir sk\u00fdrri \u00e1\u00e6tlun\u00a0 Starf v\u00edkingsins \u00e1tti vel vi\u00f0 hann enda sn\u00e9rist \u00fea\u00f0 fyrst og fremst um a\u00f0 komast yfir f\u00e9 og d\u00fdrgripi. Eiginlega minna l\u00fdsingar \u00de\u00f3r\u00f3lfs \u00e1 v\u00edking d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00e1 l\u00fdsingar nasista af skelfilegum \u00f3d\u00e6\u00f0um s\u00ednum; \u00deetta var nau\u00f0synlegt og dr\u00e1p og pyndingar tilheyr\u00f0u starfinu; \u00feeir voru einungis a\u00f0 framfylgja skipunum (eins og\u00a0 \u00de\u00f3r\u00f3lfur er einungis a\u00f0 framfylgja g\u00f3\u00f0ri starfs\u00e1\u00e6tlun). Og \u00de\u00f3r\u00f3lfur er jafnlangt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera hetja me\u00f0 hugsj\u00f3nir og t.d. Adolf Eichmann; Lesandinn kemst \u00e1 svipa\u00f0a sko\u00f0un og Hanna Arendt eftir a\u00f0 h\u00fan var vi\u00f0st\u00f6dd r\u00e9ttarh\u00f6ldin yfir Eichmann til a\u00f0 reyna a\u00f0 skilja e\u00f0li illskunnar en uppg\u00f6tva\u00f0i einungis <b>l\u00e1gk\u00faru illskunnar<\/b> (\u201eBanality of Evil\u201c). \u00deetta eru sm\u00e1menni, ves\u00e6lir karlar me\u00f0 \u00f3merkilegan \u00feankagang en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur \u00f6\u00f0lu\u00f0ust \u00feeir vopnavald. \u00c9g er raunar \u00f3samm\u00e1la Arendt sem \u00fatiloka\u00f0i f\u00e9lagsblindingja &#8211; s\u00f3s\u00ed\u00f3pata &#8211; \u00ed sinni b\u00f3k en b\u00f3kin kom \u00far 1963 og \u00fea\u00f0 er ekki fyrr en eftir 1990 sem almennilegur skri\u00f0ur kemst \u00e1 umfj\u00f6llun og flokkun s\u00e6k\u00f3pata &#8211; si\u00f0blindingja.\u00a0 \u00c9g held a\u00f0 fyrst og fremst s\u00e9u framantaldir si\u00f0blind kvikindi sem telja s\u00e9r tr\u00fa um a\u00f0 \u00feeir hafi einhvern m\u00e1lsta\u00f0 en eru einungis a\u00f0 f\u00e1 \u00fatr\u00e1s fyrir illskuna sem \u00ed \u00feeim b\u00fdr. A.m.k. \u00e1 \u00fea\u00f0 m\u00e6ta vel vi\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f3lf b\u00e6gif\u00f3t.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er m.a. \u00feetta sem veldur \u00fev\u00ed hve erfitt er a\u00f0 lesa <i>Gl\u00e6si<\/i>. S\u00f6guma\u00f0urinn er \u00de\u00f3r\u00f3lfur (\u00ed \u00fdmsu l\u00edki) og sem s\u00e6k\u00f3pati er hann au\u00f0vita\u00f0 hra\u00f0lyginn og reynir a\u00f0 sn\u00faa \u00f6llu s\u00e9r \u00ed vil, r\u00e9ttl\u00e6ta sig og r\u00e9ttl\u00e6ta eigin \u00f3d\u00e6\u00f0i, gera f\u00f3rnarl\u00f6mb a\u00f0 s\u00f6kud\u00f3lgi og sj\u00e1lfan sig a\u00f0 f\u00f3rnarlambi o.s.fr. \u00dea\u00f0 er ekki oft sem ma\u00f0ur les b\u00e6kur \u00fear sem \u00fearf a\u00f0 passa sig \u00e1 a\u00f0 taka \u00f6llum uppl\u00fdsingum s\u00f6gumanns me\u00f0 fyrirvara.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Kominn til \u00cdslands, um tv\u00edtugt, skr\u00fafar \u00de\u00f3r\u00f3lfur upp sjarmann dagstund \u00e1 \u00deingv\u00f6llum sem dugir honum til a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r \u00ed konu. En hann reynist henni au\u00f0vita\u00f0 illa eins og \u00f6\u00f0rum konum \u00ed l\u00edfi hans, \u00fe\u00e6r eru ekki einu sinni nafngreindar nema d\u00f3ttir hans Geirr\u00ed\u00f0ur, ford\u00e6\u00f0an, sem m\u00f6gulega l\u00edkist f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum eitthva\u00f0, t.d. \u00ed illgirni. Fyrir utan \u00feennan l\u00e1tbrag\u00f0sleik \u00e1 \u00deingv\u00f6llum s\u00fdnir hann l\u00edtil svipbrig\u00f0i, hann er ma\u00f0urinn sem aldrei brosir, enda hefur hann fengi\u00f0 \u00fe\u00e1 flugu \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 a\u00f0 raunverulegir h\u00f6f\u00f0ingjar t\u00e1i helst ekki tanna og allt sitt\u00a0 l\u00edf er hann a\u00f0 reyna a\u00f0 herma eftir \u00feessum g\u00f6mlu h\u00f6f\u00f0ingjum (t.d. \u00deorsteini \u00feorskab\u00edt og f\u00f6\u00f0ur hans, \u00de\u00f3r\u00f3lfi Mostraskegg). Hann langar svo til a\u00f0 vera talinn til h\u00f6f\u00f0ingja e\u00f0a mikilmenna. Aukalega m\u00e1 svo geta \u00feess a\u00f0 e\u00f0lileg svipbrig\u00f0i eru si\u00f0blindum erfi\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00feeir b\u00faa yfir svo f\u00e1t\u00e6klegum tilfinningum. \u00cd ellinni skilur hann ekki n\u00fdju h\u00f6f\u00f0ingjana, sem brosa gleitt og vingast vi\u00f0 mann og annan. Sj\u00e1lfur vingast hann ekki vi\u00f0 neinn en reynir a\u00f0 hanga utan \u00ed \u00feeim sem hann telur valdamestan \u00ed \u00fea\u00f0 og \u00fea\u00f0 skipti\u00f0, einkum fyrrnefndan \u00deorstein.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 sem hann skilur ekki (t.d. sk\u00e1ldskap e\u00f0a vin\u00e1ttu e\u00f0a tilfinningatengsl) gefur hann sk\u00edt \u00ed. \u00dea\u00f0 hve illa honum tekst a\u00f0 leika sig mannlegan sem ver\u00f0ur til a\u00f0 menn l\u00edta hann hornauga skrifar hann \u00e1 reikning f\u00f6tlunar sinnar, hann telur sig sm\u00e6kka\u00f0an \u00ed fatla\u00f0an f\u00f3tinn og gerir s\u00e9r almennt ekki grein fyrir a\u00f0 a\u00f0rir for\u00f0ast hann af \u00fev\u00ed hve ge\u00f0stir\u00f0ur og illgjarn hann er. \u00de\u00f3 skynjar hann a\u00f0 einstaka ma\u00f0ur s\u00e9r \u00ed gegn um hann og for\u00f0ast \u00fe\u00e1, fremstur \u00fear \u00ed flokki er Snorri go\u00f0i en s\u00ed\u00f0ar \u00e1 ferli \u00de\u00f3r\u00f3lfs er \u00fea\u00f0 afg\u00f6mul karl\u00e6g kerling sem veit upp \u00e1 h\u00e1r hvernig nauti\u00f0 Gl\u00e6sir er innr\u00e6tt, veit a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00ed rauninni s\u00e6k\u00f3patinn \u00de\u00f3r\u00f3lfur. M\u00e6tti kannski segja a\u00f0 barn (Snorri er tveggja \u00e1ra \u00feegar \u00feeir hittast fyrst), f\u00e1rveikt gamalmenni og l\u00edfreynd kona, Gu\u00f0r\u00fan \u00d3sv\u00edfursd\u00f3ttir, sj\u00e1i \u00ed gegnum gervi \u00de\u00f3r\u00f3lfs, annars vegar hi\u00f0 mennska gervi yfir illskuna og hins vegar nautshaminn sem hylur illskuna. Sj\u00e1lfur skynjar \u00de\u00f3r\u00f3lfur l\u00edklega mann af sama tagi og hann er sj\u00e1lfur, V\u00edga-Styrr, sem hann hefur vit \u00e1 a\u00f0 abbast ekki upp \u00e1 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 stafa\u00f0i af honum kulda.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00de\u00f3r\u00f3lfur gumar af \u00fev\u00ed a\u00f0 fara betur me\u00f0 \u00fer\u00e6la s\u00edna en a\u00f0rir. \u00dea\u00f0 er ekki af mannk\u00e6rleika, \u00fea\u00f0 er vegna \u00feess a\u00f0 \u00fer\u00e6larnir eru eign og \u00de\u00f3r\u00f3lfi er, eins og \u00f6\u00f0rum si\u00f0blindingjum, annt um eigur s\u00ednar, vill eignast sem mest. \u00deegar hann telur sig ver\u00f0a a\u00f0 refsa \u00feeim beitir hann \u00fatspek\u00faleru\u00f0um pyndingum, \u00ed anda \u00feess sem hann nam \u00ed v\u00edking: \u201eEf refsingin er n\u00f3gu hrikaleg \u00fearf ekki a\u00f0\u00a0 \u00fatdeila henni nema \u00f6rsjaldan. \u00c9g l\u00e6r\u00f0i af meisturum.\u201c (s. 103)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fyrstu \u00e1r s\u00edn \u00e1 \u00cdslandi n\u00e1\u00f0i hann landareign me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skora gamlingja \u00e1 h\u00f3lm, \u00dalfar kappa. \u00de\u00f3r\u00f3lfi var ekkert s\u00e9rstaklega illa vi\u00f0 \u00dalfar, gamlan kappa \u00far li\u00f0i fr\u00e6nda \u00de\u00f3r\u00f3lfs, en: \u201e\u00c9g \u00feurfti land.\u201c (s. 67) H\u00f3lmgangan er skrumsk\u00e6ld h\u00e1\u00f0s\u00fatg\u00e1fa af h\u00f3lmg\u00f6ngu Egils Skallagr\u00edmssonar vi\u00f0 \u00dalf inn \u00f3arga, meira a\u00f0 segja finnst sveitungum \u00de\u00f3r\u00f3lfs \u00feetta ath\u00e6fi hans svo \u00f3merkilegt og \u00f3maklegt a\u00f0 enginn m\u00e6tir til a\u00f0 horfa \u00e1. \u00de\u00f3r\u00f3lfur finnur au\u00f0vita\u00f0 sk\u00fdringu sem honum hentar og er eins og sn\u00fdtt \u00far si\u00f0blindufr\u00e6\u00f0um: \u201eYfirleitt var fj\u00f6lmenni m\u00e6tt a\u00f0 fylgjast me\u00f0 h\u00f3lmg\u00f6ngum en \u00fe\u00f3 a\u00f0 enginn styddi \u00dalfar haf\u00f0i honum tekist a\u00f0 \u00e6sa f\u00f3lk upp gegn m\u00e9r \u00feannig a\u00f0 allir b\u00e6ndur \u00ed h\u00e9ra\u00f0inu sni\u00f0gengu \u00feetta eina einv\u00edgi.\u201c (s. 68.) \u00dea\u00f0 er aldrei neitt \u00de\u00f3r\u00f3lfi sj\u00e1lfum a\u00f0 kenna. En \u00ed \u00feessum \u00f3jafna leik brennimerkti \u00dalfar gamli \u00de\u00f3r\u00f3lf fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0, hann n\u00e1\u00f0i a\u00f0 stinga hann \u00ed \u00f6kklann um lei\u00f0 og \u00de\u00f3r\u00f3lfur hj\u00f3 hann banah\u00f6gg. \u00de\u00f3r\u00f3lfur \u00e1tti n\u00fa \u201eeigi\u00f0 land,\u00a0 fallegan sta\u00f0. &#8230; En \u00ed hvert sinn sem \u00e9g gekk af sta\u00f0 og \u00feurfti a\u00f0 draga \u00e1 eftir m\u00e9r f\u00f3tinn, fylltist \u00e9g vonsku sem dreif\u00f0ist \u00f6rt um allan l\u00edkamann. \u00dea\u00f0 var s\u00fa illska sem a\u00f0 lokum helt\u00f3k mig. &#8230; S\u00ed\u00f0an var \u00e9g B\u00e6gif\u00f3tur. &#8230; Um mig var ekkert sagt nema \u00feetta. \u00c9g var f\u00f3tur minn.\u201c (s. 69-70). \u00de\u00f3tt \u00feessi klausa gefi m\u00f6guleika \u00e1 sk\u00fdringunni a\u00f0 f\u00f6tlun \u00de\u00f3r\u00f3lfs hafi valdi\u00f0 illskunni er jafnframt gott a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f3lfur er sj\u00e1lfur s\u00f6guma\u00f0ur eigin s\u00f6gu og valt a\u00f0 treysta honum um of, hann sn\u00fdr flestu s\u00e9r \u00ed hag. T.a.m. haf\u00f0i \u00de\u00f3r\u00f3lfur sj\u00e1lfur gefi\u00f0\u00a0leysingja nokkrum, \u00dalfari, j\u00f6r\u00f0ina \u00dalfarsfell, en fylltist svo \u00f6fund \u00ed gar\u00f0 \u00fer\u00e6lsins \u00fev\u00ed honum b\u00fana\u00f0ist betur en \u00de\u00f3r\u00f3lfi sj\u00e1lfum. \u00de\u00f3r\u00f3lfur \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 hir\u00f0a hey \u00dalfars og magnast af \u00feessu illdeilur. Sj\u00e1lfur s\u00e9r \u00de\u00f3r\u00f3lfur ekkert athugavert vi\u00f0 a\u00f0 taka n\u00e1nast gj\u00f6fina til baka, f\u00f3\u00f0rar \u00fea\u00f0 fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r me\u00f0 a\u00f0 \u00dalfar s\u00fdni s\u00e9r ekki n\u00e6ga vir\u00f0ingu. Samt hefur hann fr\u00e1s\u00f6gnina af \u00feessum erjum \u00e1: \u201e\u00c9g man ekki lengur hva\u00f0 m\u00e9r gekk til. Gekk m\u00e9r eitthva\u00f0 til? Er ekki f\u00e1sinna a\u00f0 halda a\u00f0 allir hafi \u00e6vinlega tilgang me\u00f0 gj\u00f6r\u00f0um s\u00ednum? \u00c9g var gamall ma\u00f0ur. M\u00e9r gekk ekkert til. Hins vegar man \u00e9g hvernig m\u00e9r lei\u00f0.\u201c (s. 106) Og \u00fer\u00e1tt yfir miklar yfirl\u00fdsingar um hversu g\u00f3\u00f0ur b\u00f3ndi hann hafi veri\u00f0 kemur \u00e1 daginn a\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f3lfur haf\u00f0i aldrei \u00ed fj\u00f3s stigi\u00f0 fyrr en hann lenti sj\u00e1lfur bundinn \u00e1 b\u00e1s, sem naut.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deegar deilurnar vi\u00f0 \u00dalfar \u00e1 \u00dalfarsfelli hefjast er \u00de\u00f3r\u00f3lfur or\u00f0inn gamall ma\u00f0ur og \u201elif\u00f0i l\u00edfinu aleinn og jafnvel m\u00ednir n\u00e1nustu fyrirlitu mig og sm\u00e1\u00f0u. Oft l\u00e1 \u00e9g andvaka um n\u00e6tur og hugleiddi einsemd m\u00edna. &#8230; Hvorug \u00feessara kvenna sem \u00e9g gekk a\u00f0 eiga \u00ed flj\u00f3tr\u00e6\u00f0i s\u00fdnd m\u00e9r neina r\u00e6kt \u00ed hj\u00f3nabandinu eftir fyrsta veturinn. Ekki var\u00f0 \u00e9g var vi\u00f0 vir\u00f0ingu barna minna\u201c (s. 102). Hann veltir \u00feessu fyrir s\u00e9r um n\u00e6tur og dettur helst \u00ed hug a\u00f0 \u00feetta stafi af \u00f3vild e\u00f0a b\u00f6lvun gu\u00f0anna (sem hann \u00fe\u00f3 tr\u00fair ekki \u00e1). \u201e\u00deannig var \u00e9g sanngjarn og mildur h\u00fasb\u00f3ndi. Sannarlega ver\u00f0skulda\u00f0i \u00e9g ekki fyrirlitningu minna n\u00e1nustu\u201c er ni\u00f0ursta\u00f0a hans \u00e1 n\u00e6stu s\u00ed\u00f0u (s. 104). Skrifu\u00f0 hefur veri\u00f0 fr\u00e6g grein um einsemd s\u00e6k\u00f3pata \u00e1 efri \u00e1rum og satt best a\u00f0 segja smellpassar \u00de\u00f3r\u00f3lfur \u00ed \u00fe\u00e1 l\u00fdsingu, sem og greiningarlykla og greinar um s\u00e6k\u00f3pata. Hann er illskan holdi kl\u00e6dd, reynir a\u00f0 leika mennskan mann en tekst illa upp, gr\u00edpur \u00fe\u00e1 til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 kenna \u00f6llum \u00f6\u00f0rum um \u00f3hamingju s\u00edna og gera sj\u00e1lfan sig a\u00f0 \u00f3ver\u00f0skuldu\u00f0u f\u00f3rnarlambi. Eins og \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur nefnt \u00fe\u00e1 \u00fearf lesandinn a\u00f0 vera \u00e1 s\u00edfelldu var\u00f0bergi og fylgjast me\u00f0 h\u00e1rtogunum \u00de\u00f3r\u00f3lfs \u00e1 sannleikanum og hvernig hann sn\u00fdr honum og skrumsk\u00e6lir s\u00e9r \u00ed hag \u00fev\u00ed hann er sj\u00e1lfur s\u00f6guma\u00f0ur. Og af \u00fev\u00ed b\u00f3kin er svo vel skrifu\u00f0 liggur \u00feetta ekki \u00ed augum uppi.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Eftir dau\u00f0ann hverfur hi\u00f0 mennska yfirbrag\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f3lfs og innr\u00e6ti\u00f0, illskan ein, blasir vi\u00f0. Meira a\u00f0 segja \u00de\u00f3r\u00f3lfi sj\u00e1lfum breg\u00f0ur \u00ed br\u00fan er hann l\u00edtur sj\u00e1lfan sig \u00ed spegli \u00f6rl\u00edtils polls: \u201e&#8230; upp \u00far pollinum reis kolbl\u00e1r v\u00edgama\u00f0ur, heldur \u00f3s\u00e6llegur, andliti\u00f0 afmynda\u00f0 af heift, \u00f6ll mennska \u00far \u00fev\u00ed horfin. Holdi\u00f0 rotnandi jafnt \u00e1 h\u00f6ndum sem h\u00e1lsi. &#8230; N\u00fa hr\u00f6kk \u00e9g ekki til baka heldur horf\u00f0ist \u00ed augu vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig.\u201c (s. 147).\u00a0 \u00deessi l\u00fdsing er Narcissus-sagan me\u00f0 \u00f6fugum formerkjum!<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Illskan tekur n\u00fa \u00f6ll v\u00f6ld og\u00a0 \u00de\u00f3r\u00f3lfur \u00fearf ekki lengur a\u00f0 \u00feykjast neitt, hrekur f\u00f3lk \u00far dalnum s\u00ednum og drepur og safnar \u00ed sitt li\u00f0 h\u00f3pi afturgenginna f\u00f3rnarlamba sinna. Eftir dau\u00f0ann kennir hann samt \u00e1fram\u00a0 \u00f6\u00f0rum um, \u00ed \u00feetta sinn um afturg\u00f6ngu s\u00edna, og finnst heimilisf\u00f3lki\u00f0 eiga draugaganginn \u00f3gurlega skilinn: \u201eSj\u00e1lf voru \u00feau \u00f3\u00feokkar. Hvers vegna g\u00e1tu \u00feau ekki syrgt? \u00de\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g kannski ekki gengi\u00f0 aftur.\u201c (s. 151)\u00a0 Draugagangurinn er einkar magna\u00f0ur og \u00e6tti a\u00f0 falla a\u00f0d\u00e1endum s\u00edgildra hryllingssagna (t.d. a\u00f0d\u00e1endum Stephens King) m\u00e6tavel \u00ed ge\u00f0. \u00de\u00f3tt l\u00fdsingarnar s\u00e9u\u00a0 au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 mestu fengnar \u00far <i>Eyrbyggju<\/i>.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fa vil \u00e9g ekki spilla meiru fyrir lesendum me\u00f0 frekari endurs\u00f6gn. \u00de\u00f3 langar mig a\u00f0 benda \u00e1 hversu hl\u00e1legt \u00fea\u00f0 er a\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f3lfur, sem \u00fer\u00e1\u00f0i vi\u00f0urkenningu og v\u00f6ld (eins og allir s\u00e6k\u00f3patar) en var lengstum aldrei anna\u00f0 en l\u00e1gvaxinn ge\u00f0stir\u00f0ur B\u00e6gif\u00f3tur \u00ed hugum manna me\u00f0an hann var l\u00edfs, illmenni og \u00f3\u00feokki sem hans n\u00e1nustu for\u00f0u\u00f0ust, \u00f6\u00f0last loks \u00fe\u00e1 tilveru a\u00f0 vera gl\u00e6silegur, svo gl\u00e6silegur a\u00f0 hann f\u00e6r heiti\u00f0 Gl\u00e6sir! En \u00fea\u00f0 er ekki fyrr en hi\u00f0 illa innr\u00e6ti (m\u00e9r er til efs a\u00f0 kalla megi \u00feetta s\u00e1l, \u00ed tilviki \u00de\u00f3r\u00f3lfs) hefur teki\u00f0 s\u00e9r b\u00f3lfestu \u00ed nautk\u00e1lfi og hann dvelur daga langa innan um fretandi k\u00fdr! Enn \u00edr\u00f3n\u00edskara er \u00feegar rennur upp fyrir \u00de\u00f3r\u00f3lfi \/Gl\u00e6si, bundnum \u00e1 sinn b\u00e1s og \u00f3f\u00e6rum um a\u00f0 tj\u00e1 sig, a\u00f0 eftirm\u00e1linn af \u00feeim verkum sem hann taldi s\u00e9r tr\u00fa um a\u00f0 snertu s\u00e6md s\u00edna, \u00feegar hann reyndi a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r ni\u00f0ri \u00e1\u00a0leysingjanum \u00dalfari, var \u00ed rauninni saminn af \u00f6\u00f0rum: \u00de\u00f3r\u00f3lfur gamli var fl\u00f3n e\u00f0a verkf\u00e6ri \u00ed fl\u00f3kinni r\u00e1\u00f0ager\u00f0 valdamanns sem var fyrir l\u00f6ngu b\u00fainn a\u00f0 reikna \u00de\u00f3r\u00f3lf \u00fat, l\u00f6ngu b\u00fainn a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 karlinn var ekkert nema illskan og illmenni eru\u00a0oft hvorki skynug n\u00e9 merkileg heldur fyrst og fremst l\u00e1gk\u00faruleg.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g m\u00e6li eindregi\u00f0 me\u00f0 b\u00f3kinni <i>Gl\u00e6sir<\/i> enda finnst m\u00e9r \u00feetta afskaplega gl\u00e6silega skrifu\u00f0 b\u00f3k. Eins og \u00e9g hef raki\u00f0 geta menn lesi\u00f0 s\u00f6guna fr\u00e1 mismunandi sj\u00f3narhorni og vali\u00f0 s\u00e9r t\u00falkanir og v\u00edsanir. \u00dea\u00f0 er a\u00f0all g\u00f3\u00f0ra b\u00f3ka a\u00f0 vera margbrotnar og h\u00f6f\u00f0a til mismunandi lesendah\u00f3pa. Sj\u00e1lfri fannst m\u00e9r \u00feetta \u00f3hugnalega g\u00f3\u00f0 l\u00fdsing \u00e1 holdi kl\u00e6ddri illsku, \u00e1 s\u00e6k\u00f3pata, og \u00fea\u00f0 \u00f3hugnalegasta er a\u00f0 h\u00fan er skrifu\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li hans. Allir atbur\u00f0ir og pers\u00f3nur eru \u00fev\u00ed s\u00e9\u00f0 si\u00f0blindum augum. \u00c9g giska \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi teki\u00f0 mj\u00f6g \u00e1 h\u00f6fundinn a\u00f0 setja sig \u00ed \u00feessar stellingar, a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 st\u00edga inn \u00ed illskuna sj\u00e1lfa til a\u00f0 geta sagt s\u00f6guna \u00e1 sannf\u00e6randi m\u00e1ta. En \u00fea\u00f0 hefur honum tekist m\u00e6tavel.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">P.s. \u00cd lokin bendi \u00e9g \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.fva.is\/harpa\/fva\/eyrbyggja.htm\">\u00fatdr\u00e1tt \u00far <i>Eyrbyggju<\/i><\/a> sem \u00e9g ger\u00f0i fyrir meir en \u00e1ratug handa nemendum m\u00ednum ef einhver lesandi sem ekki hefur lesi\u00f0 <i>Eyrbyggju<\/i> skyldi vilja hafa s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0 og \u00e6ttrakningar til hli\u00f0sj\u00f3nar \u00ed lestri <i>Gl\u00e6sis<\/i>. En au\u00f0vita\u00f0 kemur \u00feessi einfaldi \u00fatdr\u00e1ttur engan veginn \u00ed sta\u00f0 <i><a href=\"http:\/\/snerpa.is\/net\/isl\/eyrbygg.htm\">Eyrbyggju<\/a><\/i> sj\u00e1lfrar sem \u00e9g hvet lesendur <i>Gl\u00e6sis<\/i> eindregi\u00f0 til a\u00f0 lesa!<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Undir mi\u00f0n\u00e6tti einhvern t\u00edmann \u00ed vikunni settist \u00e9g ni\u00f0ur me\u00f0 Gl\u00e6si eftir \u00c1rmann Jakobsson og hug\u00f0ist glugga\u00f0 a\u00f0eins \u00ed hana undir svefninn. Raunin var\u00f0 s\u00fa a\u00f0 \u00e9g gat ekki sliti\u00f0 mig fr\u00e1 b\u00f3kinni og las <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/12\/04\/glaesir\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[15],"tags":[],"class_list":["post-383","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/383","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=383"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/383\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":702,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/383\/revisions\/702"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=383"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=383"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=383"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}