{"id":384,"date":"2011-12-07T00:12:51","date_gmt":"2011-12-07T00:12:51","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-12-07\/kostir-thunglyndissjuklinga\/"},"modified":"2013-11-21T09:30:52","modified_gmt":"2013-11-21T09:30:52","slug":"kostir-thunglyndissjuklinga","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/12\/07\/kostir-thunglyndissjuklinga\/","title":{"rendered":"Kostir \u00feunglyndissj\u00faklinga"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/thunglyndi\/kostir_thunglyndra.jpg?resize=540%2C460\" alt=\"Kostir \u00feunglyndissj\u00faklinga\" align=\"left\" height=\"460\" width=\"540\" \/><\/p>\n<p>\u00deessi f\u00e6rsla fjallar ekki um hva\u00f0a kostum \u00feunglyndissj\u00faklingar b\u00faa yfir enda eru \u00feeir \u00fdmiss konar, aftur \u00e1 m\u00f3ti er\u00a0enginn kostur vi\u00f0 \u00feunglyndi. H\u00fan er\u00a0losaralegur inngangur a\u00f0 tilvonandi f\u00e6rsludr\u00e6su um hva\u00f0a kostir eru \u00ed bo\u00f0i fyrir sl\u00edka sj\u00faklinga.\u00a0\u00a0<\/p>\n<p>Eins og f\u00f6stum lesendum bloggsins m\u00edns \u00e6tti a\u00f0 vera fullkunnugt um er \u00e9g ge\u00f0veik. Skv. sta\u00f0li heitir ge\u00f0veikin &#8220;dj\u00fap endurtekin ge\u00f0l\u00e6g\u00f0 \u00e1n sturlunareinkenna&#8221;. Dj\u00fap ge\u00f0l\u00e6g\u00f0 er l\u00edklega \u00fe\u00fd\u00f0ingin \u00e1 &#8220;Major Depression&#8221; e\u00f0a &#8220;Major Deep Depression&#8221; (MDD) en almenningur kallar \u00feetta sennilega einfaldlega sl\u00e6mt \u00feunglyndi.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 fl\u00e6kja m\u00e1lin er mitt \u00feunglyndi svokalla\u00f0 &#8220;TRD&#8221; (Kanar eru afar hrifnir af skammst\u00f6funum og \u00feetta stendur fyrir &#8220;Treatment Resistant Depression&#8221;, sums\u00e9 &#8220;me\u00f0fer\u00f0ar\u00feoli\u00f0 \u00feunglyndi&#8221;. Svo er l\u00edka til DRD, sem er Drug Resistant Depression, \u00fe.e. &#8220;lyfja\u00feoli\u00f0 \u00feunglyndi&#8221;. \u00c9g hef aldrei n\u00e1\u00f0 muninum \u00e1 \u00feessu tvennu almennilega en reikna me\u00f0, af hyggjuvitinu, a\u00f0 DRD-sj\u00faklingar eigi einhverja von um bata \u00ed rafl\u00e6kningum &#8211; sem almenningur kallar einfaldlega raflost e\u00f0a raflostme\u00f0fer\u00f0).<\/p>\n<p>Enn fl\u00f3knari gerast m\u00e1lin \u00feegar \u00e9g uppl\u00fdsi a\u00f0 \u00e9g er me\u00f0 &#8220;\u00f3d\u00e6migert \u00feunglyndi&#8221; (atypical depression) en \u00e9g man \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki skammst\u00f6funina fyrir \u00fea\u00f0(ATD?). Oftast\u00a0einkennist \u00feunglyndi af \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00faklingurinn sefur minna en venjulega og \u00e1rvaka (\u00fea\u00f0 a\u00f0 vakna fyrir allar aldir og geta ekki sofna\u00f0 aftur) er algengur fylgifiskur. \u00cd m\u00ednu tilviki eykst hins vegar svefn\u00fe\u00f6rf mj\u00f6g \u00ed \u00feunglyndisk\u00f6stum. Auk \u00feess sn\u00fd \u00e9g \u00f6fugt, \u00fe.e.a.s. l\u00ed\u00f0ur sk\u00e1st fyrst eftir a\u00f0 \u00e9g vakna en \u00e6 verr eftir \u00fev\u00ed sem l\u00ed\u00f0ur \u00e1 daginn (en venjulega eru \u00feunglyndissj\u00faklingar hressastir \u00e1 kv\u00f6ldin).<\/p>\n<p>Svolei\u00f0is a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti ra\u00f0a\u00f0 \u00feessu saman \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ij\u00f6fnu og sagst vera me\u00f0: MDD+TRD+ATD(?) = ge\u00f0veiki.<\/p>\n<p>H\u00e9r m\u00e6tti sam\u00fe\u00e6tta st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i og m\u00f3\u00f0urm\u00e1l og byrja allskonar spek\u00falasj\u00f3nir um or\u00f0alag: Ge\u00f0veiki, ge\u00f0r\u00e6na sj\u00fakd\u00f3ma, ge\u00f0r\u00f6skun, ge\u00f0- \u00feetta og ge\u00f0-hitt. Meira a\u00f0 segja staffi\u00f0 \u00ed ge\u00f0heilbrig\u00f0isgeiranum &#8211; e\u00f0a ge\u00f0veikigeiranum &#8211; er vo\u00f0alega uppteki\u00f0 af or\u00f0alagi. Eins og \u00fea\u00f0 skipti einhverju m\u00e1li. M\u00e9r finnst ge\u00f0veiki langbesta or\u00f0i\u00f0 og af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 n\u00e6r yfir l\u00edfsh\u00e6ttulega sj\u00fakd\u00f3ma finnst m\u00e9r \u00e1st\u00e6\u00f0ulaust a\u00f0 nota \u00fea\u00f0 \u00ed h\u00e1lfk\u00e6ringi, eins og Ge\u00f0hj\u00e1lp hefur teki\u00f0 upp \u00e1 n\u00fa \u00e1 a\u00f0ventunni (og forma\u00f0ur Ge\u00f0hj\u00e1lpar sanna\u00f0 \u00feannig a\u00f0 &#8220;Kleppur er v\u00ed\u00f0a&#8221;) e\u00f0a stimpla andst\u00e6\u00f0inga s\u00edna umsvifalaust me\u00f0 \u00feessu yfirsj\u00fakd\u00f3msheiti til a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r ni\u00f0r\u00e1 \u00feeim. Aftur \u00e1 m\u00f3ti m\u00e1 sosum fyrirgefa unglingsgreyjum og s\u00edbernskum sem finnst &#8220;geegt&#8221; gott l\u00fdsingaror\u00f0 e\u00f0a \u00e1hersluatviksor\u00f0 me\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i. Eins og a\u00f0rar \u00e1l\u00edka slettur \u00e1 &#8220;geegt&#8221; s\u00e9r t\u00edmabundna framt\u00ed\u00f0 \u00ed m\u00e1linu.<\/p>\n<p>Sem ge\u00f0sj\u00faklingur me\u00f0 langa og vi\u00f0amikla\u00a0(lei\u00f0inlega, \u00e1takanlega) reynslu hef\u00a0\u00e9g \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0\u00fdmsir hagsmunaa\u00f0ilar sl\u00e1st um okkur ge\u00f0veika f\u00f3lki\u00f0 e\u00f0a \u00f6llu heldur \u00fea\u00f0 f\u00e9 sem m\u00e1 \u00e6xla s\u00e9r af svolei\u00f0is f\u00f3lki, gegnum opinber kerfi, styrki og fleira. Myndin h\u00e9r a\u00f0 ofan \u00e1 a\u00f0 s\u00fdna helstu kosti sem f\u00f3lki eins og m\u00e9r bj\u00f3\u00f0ast e\u00f0a er ota\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lki eins og m\u00e9r. \u00a0<\/p>\n<p>\u00c9g var a\u00f0 hugsa um a\u00f0 gera kerfisbundna \u00fattekt \u00e1 \u00feessum kostum, fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li sj\u00faklingsins vitaskuld \u00fev\u00ed \u00e9g hef enga menntun \u00ed neinu af \u00feessu nema ef vera skyldi afleidda b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0imenntun \u00ed teor\u00edum sem snerta hinar afl\u00f6g\u00f0u s\u00e1ll\u00e6kningar;\u00a0s\u00fa fr\u00e6ga Julia Kristeva var mennta\u00f0ur s\u00e1ll\u00e6knir, starfa\u00f0i sem sl\u00edkur um skei\u00f0 og f\u00f3r svo \u00fat \u00ed a\u00f0 greina eigi\u00f0 \u00feunglyndi, sbr. b\u00f3k hennar\u00a0<em>Sv\u00f6rt s\u00f3l<\/em>. \u00de\u00f3tt s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingar hafi l\u00edklega fyrir l\u00f6ngu kasta\u00f0 \u00feessum kenningum, bygg\u00f0um \u00e1 Freud og Jung, fyrir r\u00f3\u00f0a lifa \u00fe\u00e6r g\u00f3\u00f0u l\u00edfi \u00ed vissum b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ikre\u00f0sum og \u00fear \u00feykir jafnvel fullt vit \u00ed \u00feeim. \u00c9g deili ekki \u00fev\u00ed vi\u00f0horfi.<\/p>\n<p>\u00deessi f\u00e6rsla er sem sagt nokkurs konar inngangur a\u00f0 einhverri lengri umfj\u00f6llun (sem m\u00e9r tekst vonandi a\u00f0 semja). \u00cd byrjun er r\u00e9tt a\u00f0 taka fram a\u00f0 m\u00e9r ofb\u00fd\u00f0ur oft hve sj\u00faklingurinn, manneskjan, skiptir litlu m\u00e1li \u00ed hagsmunapoti \u00feessara mismunandi a\u00f0ila sem \u00e9g reyndi a\u00f0 teikna upp og s\u00fdna hvernig skarast. \u00deetta m\u00e1 t.d. sj\u00e1 \u00e1 h\u00f6r\u00f0um \u00e1r\u00f3\u00f0ri s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 sj\u00fakratryggingar til a\u00f0 grei\u00f0a fyrir s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ime\u00f0fer\u00f0. S\u00e1 \u00e1r\u00f3\u00f0ur birtist me\u00f0al annars \u00ed greinum sem \u00feeir skrifa til a\u00f0 halda fram \u00e1g\u00e6ti sinna a\u00f0fer\u00f0a. \u00deetta m\u00e1 einnig sj\u00e1 \u00e1 \u00f3tr\u00falega tilfinningalausri umfj\u00f6llun \u00ed greinum um n\u00fdjustu tilraunir \u00ed a\u00f0 hr\u00e6ra \u00ed heila f\u00f3lks, \u00ed \u00feetta sinn me\u00f0 rafhl\u00f6\u00f0ur a\u00f0 vopni \u00ed sta\u00f0 gamla \u00edsmolabrj\u00f3tsins (hva\u00f0 heitir svona gr\u00e6ja, icepick, \u00e1 \u00edslensku?). \u00deetta m\u00e1 l\u00edka sj\u00e1 \u00ed \u00e1r\u00f3\u00f0ri einstaka heimilisl\u00e6kna sem vilja f\u00e1 a\u00f0 hafa sj\u00faklingana hj\u00e1 s\u00e9r og helst skaffa \u00feeim &#8220;hreyfise\u00f0la&#8221; vi\u00f0 s\u00ednum ge\u00f0r\u00e6na krankleika. Raunar ver\u00f0ur margt af \u00feessu sem er sett \u00ed gr\u00e6nu k\u00faluna undir Anna\u00f0 a\u00f0 nokkurs konar tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um hj\u00e1 h\u00f3pi f\u00f3lks. Hver reynir a\u00f0 skara eld a\u00f0 eigin k\u00f6ku og stundum hvarflar a\u00f0 manni a\u00f0 \u00feessu f\u00f3lki s\u00e9 \u00ed raun sl\u00e9tt sama um sj\u00faklinginn sj\u00e1lfan. Sammerkt eiga flestir \u00feessir h\u00f3par a\u00f0 reyna a\u00f0 gera s\u00edn fr\u00e6\u00f0i a\u00f0 v\u00edsindum; a\u00f0 reyna a\u00f0 fullvissa f\u00f3lk um a\u00f0 allt s\u00e9 \u00feetta reist \u00e1 fr\u00e6\u00f0ilegum grunni og tefla gjarna fram m\u00fdgr\u00fat \u00fdmiss konar ranns\u00f3kna \u00fev\u00ed til sannindamerkis.<\/p>\n<p>\u00c9g vil \u00fe\u00f3 taka sk\u00fdrt fram a\u00f0 sj\u00e1lf hef \u00e9g veri\u00f0 \u00e1kaflega heppin \u00ed vi\u00f0skiptum m\u00ednum vi\u00f0 \u00feessi mismunandi kerfi. \u00dev\u00ed er mest a\u00f0 \u00feakka a\u00f0 \u00e9g hef fr\u00e1b\u00e6ran ge\u00f0l\u00e6kni. Einnig b\u00fd \u00e9g svo vel a\u00f0 eiga g\u00f3\u00f0a vinkonu sem er fr\u00e1b\u00e6r lyfjafr\u00e6\u00f0ingur. Og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst hef \u00e9g fullt vit \u00fe\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 veik \u00e1 ge\u00f0i. (M\u00e9r er lj\u00f3st a\u00f0 sumur f\u00e1v\u00eds almenningur heldur a\u00f0 vit og ge\u00f0 hangi einhvern veginn saman en svo er l\u00edklega \u00ed f\u00e6stum tilvikum. Sami almenningur heldur a\u00f0 skap og \u00feunglyndi s\u00e9 einn og sami hluturinn, vissulega eru tengsl \u00fearna \u00e1 milli en langt \u00ed fr\u00e1 a\u00f0 \u00feunglyndi s\u00e9 einfaldlega f\u00f3lgi\u00f0 \u00ed a\u00f0 vera \u00ed vondu skapi e\u00f0a &#8220;liggja \u00e1 s\u00f3fa og l\u00e1ta s\u00e9r lei\u00f0ast&#8221; eins og var einu sinni sagt vi\u00f0 mig. En blessunarlega \u00e1tta\u00f0i \u00e9g mig \u00e1 \u00fev\u00ed fyrir l\u00f6ngu a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki mitt hlutverk a\u00f0 hafa vit fyrir hinum f\u00e1v\u00edsu \u00ed \u00feessum efnum.)<\/p>\n<p>Versta reynslan sem \u00e9g hef er af vi\u00f0skiptum vi\u00f0 heilsug\u00e6slust\u00f6\u00f0ina \u00ed m\u00ednum g\u00f3\u00f0a b\u00e6. \u00dear vir\u00f0ist r\u00edkja \u00fea\u00f0 vi\u00f0horf a\u00f0 l\u00e6knar s\u00e9u stikkfr\u00ed \u00feegar kemur a\u00f0 ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mum, a.m.k. hafa margir \u00feeirra litla \u00feekkingu \u00e1 algengum kvilla \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00feunglyndi og s\u00fdna vi\u00f0horf og vi\u00f0m\u00f3t sem bendir til a\u00f0 \u00feeir telji \u00feunglyndan sj\u00fakling\u00a0sj\u00e1lfkrafa h\u00e1lfvita.<\/p>\n<p>Sem d\u00e6mi um sl\u00edkt m\u00e1 nefna heimilisl\u00e6kninn sem sag\u00f0i vi\u00f0 mig \u00ed s\u00edma: &#8220;\u00de\u00fa gerir \u00fe\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 svefnlyf virka ekki \u00e1 \u00feunglyndi?&#8221; \u00feegar \u00e9g ba\u00f0 um lyfse\u00f0il &#8230; s\u00e1 gerir s\u00e9r sennilega ekki grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 sl\u00e6mum \u00feunglyndisk\u00f6stum fylgir oft svefnleysi og \u00fea\u00f0 er l\u00edfsh\u00e6ttulegt fyrir mig a\u00f0 missa svefn, \u00e9g \u00fearf einmitt extra svefn \u00ed \u00feunglyndiskasti en stundum trufla lyf sem veri\u00f0 er a\u00f0 pr\u00f3fa svefninn\u00a0illilega. E\u00f0a kand\u00eddatinn sem hringdi \u00f3\u00f0am\u00e1la \u00ed mig til a\u00f0 uppl\u00fdsa mig um a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri d\u00f3pisti &#8211; h\u00fan haf\u00f0i nefnilega l\u00e6rt \u00fea\u00f0 \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i a\u00f0 t\u00e6ki sj\u00faklingur kv\u00ed\u00f0astillandi lyf a\u00f0 sta\u00f0aldri v\u00e6ri hann d\u00f3pisti. E\u00f0a kand\u00eddatinn sem sag\u00f0i: &#8220;\u00de\u00fa getur ekki bara m\u00e6tt \u00e1 br\u00e1\u00f0am\u00f3tt\u00f6ku takandi sjaldg\u00e6ft lyf og \u00e6tlast til a\u00f0 vi\u00f0 vitum hva\u00f0a lyf milliverka vi\u00f0 \u00fea\u00f0?&#8221; Eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 hann byrja \u00e1 a\u00f0 opna <em>Google<\/em> til a\u00f0 leita s\u00e9r uppl\u00fdsinga benti \u00e9g honum \u00e1 <a href=\"http:\/\/drug.com\" title=\"S\ufffd\u00f0a til a\u00f0 sko\u00f0a lyf og milliverkanir\">drugs.com<\/a>, raunar daginn eftir \u00fev\u00ed \u00feetta einfalda verk \u00e1 br\u00e1\u00f0am\u00f3tt\u00f6ku reyndist tveggja daga pr\u00f3sess \u00far \u00fev\u00ed sj\u00faklingurinn ger\u00f0i honum \u00fea\u00f0 til b\u00f6lvunar a\u00f0 eta sjaldg\u00e6ft lyf me\u00f0 l\u00edfsh\u00e6ttulegum millilyfjaaukaverkunum &#8211; raunar var \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 sj\u00e1lf b\u00fain a\u00f0 matsa saman Marplan og L\u00edk\u00f3d\u00edn \u00feegar \u00e9g m\u00e6tti seinni daginn, auk \u00feess a\u00f0 benda honum \u00e1 \u00feessa \u00e1g\u00e6tu s\u00ed\u00f0u en sleppti \u00fev\u00ed a\u00f0 fara fram \u00e1 a\u00f0 hann l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 leita \u00e1\u00a0lyfjaskr\u00e1 \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.lyfjastofnun.is\" title=\"Lyfjastofnun\">lyfjastofnun.is<\/a>.\u00a0E\u00f0a um daginn \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 endurn\u00fdja rafr\u00e6nt lyfse\u00f0il \u00e1 algengu ge\u00f0lyfi sem \u00e9g hef veri\u00f0 \u00e1 lengi og asna\u00f0ist til a\u00f0 skrifa athugasemdina &#8220;l\u00e6knir hefur auki\u00f0 skammt \u00ed X mg&#8221; og f\u00e9kk til baka \u00feessa d\u00e1samlegu athugasemd fr\u00e1 l\u00e6knaritara: &#8220;Ef l\u00e6knir hefur breytt skammti ver\u00f0ur \u00fe\u00fa a\u00f0 tala vi\u00f0 l\u00e6kni \u00ed s\u00edma xxx \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 getum afgreitt lyfse\u00f0ilinn&#8221;. (\u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 misnota \u00feetta lyf og \u00e9g hef oft veri\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed, \u00fdmsum sk\u00f6mmum, auk \u00feess sem oft er hringla\u00f0 me\u00f0 ge\u00f0lyfjaskammta me\u00f0an veri\u00f0 er a\u00f0 pr\u00f3fa lyf og skiptir engu andskotans m\u00e1li hva\u00f0 stendur \u00e1 dollunni.) Margoft hefur heimilisl\u00e6knir sagt vi\u00f0 mig: &#8220;\u00c1 ekki X [ge\u00f0l\u00e6knirinn minn] a\u00f0 skrifa lyfse\u00f0il upp \u00e1 \u00feetta [ge\u00f0lyf]?&#8221; Af \u00fev\u00ed heimilisl\u00e6knirinn telur sig stikkfr\u00ed \u00ed ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mum, reikna \u00e9g me\u00f0. Og hefur ekki kveikt \u00e1 \u00fev\u00ed enn\u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00e9g nota ge\u00f0lyf, hafandi veri\u00f0 ge\u00f0veik \u00ed 13 \u00e1r og b\u00fai\u00f0 \u00ed \u00feessu pl\u00e1ssi \u00ed aldarfj\u00f3r\u00f0ung.<\/p>\n<p>Sem betur fer \u00e1 \u00feetta ekki vi\u00f0 allt staffi\u00f0 \u00e1 heilsug\u00e6slust\u00f6\u00f0inni en sumt af \u00fev\u00ed m\u00e6tti verulega skerpa sig. Sj\u00faklingurinn l\u00e6rir n\u00e1tt\u00farlega a\u00f0 sigta \u00fat \u00fe\u00e1 f\u00e1u sem h\u00e6gt er a\u00f0 st\u00f3la \u00e1 og raunar hef \u00e9g n\u00fa \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja frekar s\u00e9rfr\u00e6\u00f0il\u00e6kni \u00e1 h\u00e1um taxta (ge\u00f0l\u00e6kninn minn) a\u00f0 skrifa \u00f3merkilega lyfse\u00f0la handa m\u00e9r heldur en a\u00f0 standa oft f\u00e1rveik \u00ed stappi vi\u00f0 takmarka\u00f0a li\u00f0i\u00f0 \u00e1 heilsug\u00e6slunni. \u00dev\u00ed hl\u00e6gir mig mj\u00f6g a\u00f0 landl\u00e6knir og f\u00f3lk \u00ed Velfer\u00f0arr\u00e1\u00f0uneytinu s\u00e9 hissa \u00e1 a\u00f0 sj\u00faklingar \u00e1 \u00cdslandi leiti mj\u00f6g oft beint til s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga og sleppi millistiginu heimilisl\u00e6knar. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 mj\u00f6g skiljanlegt, ekki hva\u00f0 s\u00edst ef sj\u00faklingar me\u00f0 a\u00f0ra sj\u00fakd\u00f3ma m\u00e6ta einhverju svipu\u00f0u og ge\u00f0sj\u00faklingar, \u00e1 sinni heilsug\u00e6slust\u00f6\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deannig a\u00f0 \u00fej\u00f3nusta heilsug\u00e6slul\u00e6kna vi\u00f0 ge\u00f0sj\u00faka eru eftir minni reynslu ekki \u00e1s\u00e6ttanlegur kostur. En vissulega vilja \u00feeir sumir f\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0skast me\u00f0 svolei\u00f0is sj\u00faklinga, t.d. f\u00e1 \u00fe\u00e1 til a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 taka lyfin s\u00edn. H\u00e9r er \u00e9g einkum a\u00f0 v\u00edsa \u00ed s\u00edbloggandi heimilisl\u00e6kni, utan Akraness,\u00a0sem allt \u00feykist vita.<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e9 n\u00fana a\u00f0 \u00e9g er a\u00f0 hluta b\u00fain a\u00f0 dekka umfj\u00f6llun um Anna\u00f0, \u00fe.e.a.s. eigin reynslu af heilsug\u00e6slust\u00f6\u00f0.\u00a0Heilsug\u00e6slul\u00e6kna ber \u00fe\u00f3 v\u00e6ntanlega aftur \u00e1 g\u00f3ma \u00ed sambandi vi\u00f0 ge\u00f0lyfjaumr\u00e6\u00f0u. \u00deetta er d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00f3skipuleg f\u00e6rsla af \u00fev\u00ed \u00e9g er helv. lasin \u00ed augnablikinu. Vonandi fyrirgefst m\u00e9r \u00fea\u00f0. Og vonandi f\u00e6r enginn flog yfir a\u00f0 \u00e9g nennti ekki a\u00f0 skipta yfir \u00ed \u00fe\u00fdskar g\u00e6salappir, sem m\u00f6rgum\u00a0\u00feykja br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegar \u00ed \u00edslensku ritm\u00e1li.<\/p>\n<p>\u00a0\u00a0\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deessi f\u00e6rsla fjallar ekki um hva\u00f0a kostum \u00feunglyndissj\u00faklingar b\u00faa yfir enda eru \u00feeir \u00fdmiss konar, aftur \u00e1 m\u00f3ti er\u00a0enginn kostur vi\u00f0 \u00feunglyndi. H\u00fan er\u00a0losaralegur inngangur a\u00f0 tilvonandi f\u00e6rsludr\u00e6su um hva\u00f0a kostir eru \u00ed bo\u00f0i fyrir <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/12\/07\/kostir-thunglyndissjuklinga\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9],"tags":[],"class_list":["post-384","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-gedheilsa"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/384","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=384"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/384\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":703,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/384\/revisions\/703"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=384"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=384"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=384"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}