{"id":386,"date":"2011-12-09T23:29:29","date_gmt":"2011-12-09T23:29:29","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-12-09\/thunglyndissjuklingur-i-gedlaekningabatteriinu-taka-2\/"},"modified":"2013-11-21T09:31:18","modified_gmt":"2013-11-21T09:31:18","slug":"thunglyndissjuklingur-i-gedlaekningabatteriinu-taka-2","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/12\/09\/thunglyndissjuklingur-i-gedlaekningabatteriinu-taka-2\/","title":{"rendered":"\u00deunglyndissj\u00faklingur \u00ed ge\u00f0l\u00e6kningabatter\u00edinu &#8211; taka 2"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/thunglyndi\/angist.jpg?resize=216%2C281\" alt=\"Angst eftir Munch\" align=\"left\" height=\"281\" width=\"216\" \/><font size=\"-1\">H\u00e9r ver\u00f0ur a\u00f0allega fjalla\u00f0 um lyfjame\u00f0fer\u00f0 vi\u00f0 \u00feunglyndi &#8211; og enn einu sinni tek \u00e9g sk\u00fdrt fram a\u00f0 \u00e9g skrifa \u00fat fr\u00e1 eigin reynslu en hef enga menntun \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um, lyfjafr\u00e6\u00f0i e\u00f0a \u00f6\u00f0ru sem ber \u00e1 g\u00f3ma, kannski oggolitla inns\u00fdn \u00ed s\u00e1lfr\u00e6\u00f0i tengda kennslur\u00e9ttindan\u00e1mi (en kennsla \u00ed \u00fev\u00ed n\u00e1mi var raunar fyrir ne\u00f0an allar hellur og eiginlega ekkert h\u00e6gt a\u00f0 st\u00f3la \u00e1 \u00feau &#8220;fr\u00e6\u00f0i&#8221; sem einhverjir \u00fe\u00f3ttust vera a\u00f0 kenna \u00fear svo l\u00edklega er r\u00e9tt a\u00f0 \u00e9g l\u00fdsi mig jafnframt \u00f3mennta\u00f0a \u00ed s\u00e1lfr\u00e6\u00f0i). Snemma \u00ed f\u00e6rslunni bendi \u00e9g enn og aftur \u00e1 <strong>\u00feann undarlega tv\u00edskinnung \u00ed greiningu, skilningi og me\u00f0fer\u00f0 \u00feunglyndra: Stundum er \u00feetta talinn einhvers konar andlegur krankleiki en samt oftast me\u00f0h\u00f6ndla\u00f0ur sem l\u00edkamlegur sj\u00fakd\u00f3mur, \u00fe.e. sj\u00fakd\u00f3mur sem stafi af bo\u00f0efnarugli \u00ed heila.<\/strong><\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">[Myndin er af m\u00e1lverki Edvards Munch, <i>Angst<\/i>, sem m\u00e6tti kannski kalla <i>Angist <\/i>\u00e1 \u00edslensku &#8230; hugsanlega <i>Felmtur<\/i>, <i>Kv\u00ed\u00f0a<\/i>, jafnvel <i>Hr\u00e6\u00f0slu. <\/i>M\u00e9r finnst <i>Angist <\/i>besta heiti\u00f0 og \u00feessi mynd s\u00fdna vel hvernig \u00feunglyndissj\u00faklingur upplifir sig einan \u00ed \u00f3vinveittum\u00a0 heiminum &#8211; a\u00f0rir eru svipir einir, andlitslausir, skilningslausir, af \u00f6\u00f0rum toga eins og svarkl\u00e6ddu karlarnir \u00e1 m\u00e1lverkinu &#8211; tilfinninga\u00f3lgan allt \u00ed kring og himinninn lograu\u00f0ur eins og heimsendir s\u00e9 yfirvofandi og l\u00edfinu a\u00f0 lj\u00faka. \u00deannig skil \u00e9g \u00feessa mynd. Aftur \u00e1 m\u00f3ti hef \u00e9g ekki hugmynd um hvernig h\u00fan er almennt t\u00falku\u00f0 e\u00f0a hvort Munch sj\u00e1lfur kom me\u00f0 einhverjar yfirl\u00fdsingar um hva\u00f0 h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 s\u00fdna.]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>En \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 framhald fyrri f\u00e6rslu<\/b>:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hafi \u00feunglyndissj\u00faklingi tekist a\u00f0 rata \u00e1 heppileg sv\u00f6r \u00ed hinum \u00f3r\u00e6\u00f0u pr\u00f3fum sem fyrir svolei\u00f0is sj\u00faklinga eru l\u00f6g\u00f0 gefst honum kostur \u00e1 me\u00f0fer\u00f0 vi\u00f0 sj\u00fakd\u00f3mnum. <a href=\"http:\/\/www.lsh.is\/lisalib\/getfile.aspx?itemid=29580\">Kl\u00edn\u00edskar lei\u00f0beiningar um \u00feunglyndi og kv\u00ed\u00f0a<\/a>, \u00e1 vef Lsp., vekja sj\u00fakling eins og mig til umhugsunar um hvort menn \u00fear \u00e1 b\u00e6 greini \u00feunglyndi sem l\u00edkamlegan sj\u00fakd\u00f3m e\u00f0a andlegan; \u00fear eru nefnilega tvenns konar lei\u00f0beiningar: &#8220;Kl\u00edn\u00edskar lei\u00f0beiningar \u00feegar \u00feunglyndi er a\u00f0alvandi&#8221; (s. 18) og &#8220;Kl\u00edn\u00edskar lei\u00f0beiningar um \u00feunglyndi samhli\u00f0a l\u00edkamlegum veikindum&#8221; (s. 19). M\u00e1 af \u00feessu draga \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun a\u00f0 \u00feeir sem s\u00f6mdu hinar kl\u00edn\u00edsku lei\u00f0beiningar (\u00fe\u00e6r eru reyndar \u00fe\u00fdddar) \u00e1l\u00edti a\u00f0 l\u00edkaminn endi \u00e1 h\u00e1lsi og \u00fear fyrir ofan s\u00e9 eitthva\u00f0 anna\u00f0, t.d. s\u00e1lin? Er \u00feunglyndi \u00fe\u00e1 ekki l\u00edkamleg veikindi? M\u00e9r finnst \u00feetta a.m.k. algerlega forkastanlegt or\u00f0alag \u00ed opinberum lei\u00f0beiningum Landsp\u00edtalans \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 gefur \u00feeirri t\u00falkun undir f\u00f3tinn a\u00f0 \u00feunglyndi eitt og s\u00e9r s\u00e9 ekki l\u00edkamlegur sj\u00fakd\u00f3mur!<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fa eru til \u00fdmsar getg\u00e1tur um af hverju \u00feunglyndi stafi og \u00e9g fjalla um \u00fe\u00e6r s\u00ed\u00f0ar. Svolei\u00f0is getg\u00e1tur hanga l\u00edka saman vi\u00f0 hvort h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 tala um \u00feunglyndi sem einn sj\u00fakd\u00f3m e\u00f0a marga, sj\u00fakd\u00f3m sem er sam\u00fe\u00e6ttur kv\u00ed\u00f0a e\u00f0a ekki o.s.fr. En \u00e9g held a\u00f0 <b>enginn sem hefur upplifa\u00f0 dj\u00fapt \u00feunglyndiskast fari \u00ed grafg\u00f6tur um \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feunglyndi er \u00ed h\u00e6sta m\u00e1ta l\u00edkamlegur sj\u00fakd\u00f3mur<\/b> \u00fev\u00ed einkenni dreifast um allan skrokkinn, t.d. truflanir \u00e1 jafnv\u00e6gisskyni, verkir h\u00e9r og hvar og allsta\u00f0ar, spenna \u00ed \u00f6llum \u00fatlimum, sviti, skj\u00e1lfti, fl\u00f6kurleiki o.s.fr. Fyrir svo utan \u00fea\u00f0 sem ske\u00f0ur \u00ed heilanum \u00e1 manni og veldur \u00f3l\u00fdsanlega skelfilegri l\u00ed\u00f0an. En ef ma\u00f0ur tekur \u00feessar kl\u00edn\u00edsku lei\u00f0beiningar alvarlega v\u00e6ri kannski allt eins h\u00e6gt a\u00f0 leita til andal\u00e6knis e\u00f0a s\u00e6ringarmanns \ud83d\ude09 (\u00c9g reikna raunar me\u00f0 a\u00f0 \u00feessi della stafi a\u00f0allega af \u00fev\u00ed a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 halda s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingum g\u00f3\u00f0um &#8211; \u00feeirra hagmunir \u00ed a\u00f0 f\u00e1 \u00feunglyndissj\u00faklinga til s\u00edn eru miklir og \u00feeirra hagur a\u00f0 sj\u00fakratryggingakerfi\u00f0 vi\u00f0urkenni s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ime\u00f0fer\u00f0 til jafns vi\u00f0 l\u00e6kna-og lyfjakerfi. Kem a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0ar \u00feegar \u00e9g fjalla um s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ime\u00f0fer\u00f0ir sem &#8220;standa sj\u00faklingum til bo\u00f0a&#8221; e\u00f0a &#8220;er reynt a\u00f0 tro\u00f0a upp \u00e1 sj\u00faklinga&#8221;, or\u00f0alagi\u00f0 r\u00e6\u00f0st af \u00fev\u00ed hversu tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur er \u00e1 a\u00f0 sl\u00edk me\u00f0fer\u00f0 beri \u00e1rangur og\u00a0sl\u00edkt r\u00e6\u00f0st t.d. af \u00fev\u00ed hversu miki\u00f0 veikur sj\u00faklingurinn er af \u00feunglyndi.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">En \u00fer\u00e1tt fyrir andagtugan skilning \u00feeirra sem s\u00f6mdu lei\u00f0beiningarnar eru \u00fe\u00e6r fakt\u00edskt nokkurn veginn eins fyrir \u00feunglyndi me\u00f0 og \u00e1n samfara l\u00edkamlegum veikindum. \u00cd m\u00ednu tilviki (alvarleg einkenni \u00feunglyndis) er fyrsta r\u00e1\u00f0: &#8220;SSRI-lyfjame\u00f0fer\u00f0 OG HAM einstaklingsme\u00f0fer\u00f0 (\u00e1 sama t\u00edma)&#8221; (fyrir bara \u00feunglynda) en aftur \u00e1 m\u00f3ti \u00e1 a\u00f0 &#8220;<strong>bj\u00f3\u00f0a<\/strong> SSRI-lyfjame\u00f0fer\u00f0 \u00e1samt HAM&#8221; ef ma\u00f0ur flokkast me\u00f0 samhli\u00f0a l\u00edkamleg einkenni (feitletrun m\u00edn \u00ed tilvitnun).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sem betur fer var \u00e9g or\u00f0in alvarlega veik \u00e1\u00f0ur en \u00feessar lei\u00f0beiningar voru samdar og hef \u00fev\u00ed sloppi\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 vera skikku\u00f0 \u00ed HAM enda s\u00e9 \u00e9g ekki hvernig \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 komast \u00ed gegnum sl\u00edka me\u00f0fer\u00f0 og tel afar vafasamt a\u00f0 h\u00fan skila\u00f0i einhverjum \u00e1rangri \u00f6\u00f0rum en a\u00f0 koma m\u00e9r samstundis \u00ed innl\u00f6gn \u00e1 ge\u00f0deild. (\u00c1 hinn b\u00f3ginn hef \u00e9g \u00e1g\u00e6ta reynslu af HAM vi\u00f0 kv\u00ed\u00f0a, gat s\u00f3tt n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed sl\u00edku \u00e1 t\u00edmabili \u00feegar \u00e9g var ekki miki\u00f0 veik og \u00fea\u00f0 hefur komi\u00f0 a\u00f0 g\u00f3\u00f0um notum svo \u00e9g er ekki a\u00f0 afskrifa HAM-i\u00f0 me\u00f0 \u00f6llu og held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 vel l\u00edklegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 gagnist vi\u00f0 v\u00e6gu \u00feunglyndi, jafnvel me\u00f0aldj\u00fapu.) <strong>\u00c9g er heppin &#8211; \u00e9g hef\u00f0i nefnilega ekki geta\u00f0 framv\u00edsa\u00f0 neinum &#8220;l\u00edkamlegum sj\u00fakd\u00f3mi&#8221; samhli\u00f0a \u00feunglyndinu og \u00fev\u00ed ekki \u00e1tt um bo\u00f0 a\u00f0 velja heldur skikk, skv. lei\u00f0beiningunum!<\/strong><\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Lyf vi\u00f0 \u00feunglyndi eru \u00f3tal m\u00f6rg en flokka m\u00e1 \u00feau gr\u00f3flega \u00ed \u00ferennt e\u00f0a fernt<\/b>:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>\u00a0I<\/b>. <b>SSRI-lyf <\/b>eru algengust enda bent \u00e1 \u00feau sem fyrsta kost. Skammst\u00f6funin stendur fyrir &#8220;Selective Serotonin Reuptake Inhibitor&#8221;. \u00deau voru s\u00e9rstaklega h\u00f6nnu\u00f0 me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af \u00feeirri kenningu a\u00f0 ors\u00f6k \u00feunglyndis m\u00e6tti rekja til \u00feess a\u00f0 heilinn framleiddi of l\u00edti\u00f0 af taugabo\u00f0efninu ser\u00f3t\u00f3n\u00edn. (\u00deeim sem vilja lesa s\u00e9r til um bo\u00f0efni og hlutverk \u00feeirra er bent \u00e1: \u00deur\u00ed\u00f0ur \u00deorbjarnard\u00f3ttir. \u201e<a href=\"http:\/\/visindavefur.hi.is\/svar.php?id=50547\">Hver er munurinn \u00e1 taugahorm\u00f3ni og taugabo\u00f0efni?<\/a>\u201c. <i>V\u00edsindavefurinn<\/i> 16.9.2009.; Hei\u00f0a Mar\u00eda Sigur\u00f0ard\u00f3ttir. \u201e<a href=\"http:\/\/visindavefur.hi.is\/svar.php?id=5408\">Hva\u00f0 eru taugabo\u00f0 og hvernig verka \u00feau?<\/a>\u201c. <i>V\u00edsindavefurinn <\/i>15.11.2005; HMS. \u201e<a href=\"http:\/\/visindavefur.hi.is\/svar.php?id=6507\">Hva\u00f0a tilgangi \u00fej\u00f3nar ser\u00f3t\u00f3n\u00edn \u00ed heilanum? Hverjar eru aflei\u00f0ingarnar ef starfsemi \u00feess er raska\u00f0?<\/a>\u201c. <i>V\u00edsindavefurinn <\/i>21.2.2007. S\u00ed\u00f0urnar voru sko\u00f0a\u00f0ar 9. okt. 2011.) <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd einf\u00f6ldu\u00f0u m\u00e1li m\u00e1 segja a\u00f0 SSRI lyf virki \u00feannig a\u00f0 \u00feau blokka e\u00f0a setja h\u00f6mlur \u00e1 ser\u00f3t\u00f3n\u00edn-upptakara\/vi\u00f0takara svo heilinn getur ekki endurn\u00fdtt ser\u00f3t\u00f3n\u00edni\u00f0 sitt og ney\u00f0ist til a\u00f0 framlei\u00f0a meira af fersku ser\u00f3nt\u00f3n\u00edni. (\u00c9g veit a\u00f0 l\u00edffr\u00e6\u00f0ingar og lyfjafr\u00e6\u00f0ingar munu hrylla sig yfir \u00feessari sk\u00fdringu en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0. \u00deetta er nokkurs konar \u00f6fug endurvinnsluhugmynd \ud83d\ude09 Ef menn benda m\u00e9r \u00e1 betri \u00fatsk\u00fdringu tek \u00e9g henni me\u00f0 \u00fe\u00f6kkum.)<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/thunglyndi\/seroxat.jpg?resize=165%2C152\" alt=\"Seroxat\" align=\"right\" height=\"152\" width=\"165\" \/>Algeng SSRI-lyf eru t.d. Cipramil, Cipralex, Seroxat, Zoloft og Fontex. Efnasamsetning \u00feeirra er ekki hin sama en tilgangurinn og hugmyndin af baki \u00feeim er s\u00fa sama. Eins og um \u00f6nnur ge\u00f0lyf gildir a\u00f0 sum verka \u00e1 suma sj\u00faklinga, \u00f6nnur ekki. \u00d6ll hafa \u00feau aukaverkanir \u00ed mismiklum m\u00e6li (\u00fea\u00f0 er l\u00edka einstaklingsbundi\u00f0), \u00feeirra algengust er kannski kyndeyf\u00f0 og a\u00f0 finnast ma\u00f0ur vera tilfinningalega flatur (h\u00e9r byggi \u00e9g \u00e1 eigin reynslu og reynslu sj\u00faklinga sem \u00e9g hef kynnst, \u00fea\u00f0 getur vel veri\u00f0 a\u00f0 l\u00e6knar og lyfjafr\u00e6\u00f0ingar telji eitthva\u00f0 anna\u00f0 algengast en \u00e9g hef n\u00e1tt\u00farlega miklu takmarka\u00f0ri yfirs\u00fdn en \u00feeir). [Myndin s\u00fdnir sameindabyggingu Seroxats.]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>\u00a0II<\/b>. <b>SNRI-lyf <\/b>virka b\u00e6\u00f0i \u00e1 ser\u00f3nt\u00f3n\u00edn og noradrenal\u00edn upptakara\/vi\u00f0taka, \u00e1 s\u00f6mu forsendum \u00e1 SSRI-lyf eru hugsu\u00f0. L\u00edklega er Effexor \u00feekktast sl\u00edkra lyfja h\u00e9rlendis en fleiri eru notu\u00f0.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/thunglyndi\/truntusol.jpg?resize=124%2C135\" alt=\"Truntus\u00f3l\" align=\"right\" height=\"135\" width=\"124\" \/><font size=\"-1\"><b>III.<\/b> <b>\u00der\u00edhringlaga ge\u00f0lyf <\/b>eru oftast talin elsti flokkur ge\u00f0lyfja, voru fundin upp snemma \u00e1 sj\u00f6tta \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar. \u00deau virka l\u00edka sem blokk e\u00f0a h\u00f6mlun \u00e1 ser\u00f3t\u00f3n\u00edn og noradreanl\u00edn upptakara\/vi\u00f0taka en hafa miklu meiri og algengari aukaverkanir en SSRI-lyfin. \u00deess vegna eru yfirleitt ekki gripi\u00f0 til \u00feeirra fyrr en SSRI \u00feykja fullreynd. D\u00e6mi um \u00fer\u00edhringlaga ge\u00f0lyf eru Anafril og Amitriptylin (sem einu sinni var kalla\u00f0 Amil\u00edn og \u00fear \u00e1\u00f0ur Tryptizol &#8211; Truntus\u00f3l). Myndin s\u00fdnir sameindabyggingu Amitriptylins en \u00fer\u00edhringlaga ge\u00f0lyf draga nafn sitt af hringjunum \u00feremur (\u00fe.e. at\u00f3min tengjast saman \u00ed \u00ferj\u00e1 hringi).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>\u00a0IV<\/b>. <b>MAO-hemlar<\/b>. \u00deessi lyf eru n\u00e6stelsti flokkur ge\u00f0lyfja og virka \u00feannig \u00feau blokka ens\u00edmi\u00f0 monoamine oxidase (sem kann a\u00f0 vera skrifa\u00f0 \u00f6\u00f0ru v\u00edsi upp \u00e1 \u00edslensku). \u00dea\u00f0 ens\u00edm br\u00fdtur ni\u00f0ur taugabo\u00f0efnin d\u00f3pam\u00edn, ser\u00f3t\u00f3n\u00edn og noradrenal\u00edn. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 blokka ens\u00edmi\u00f0 h\u00e6gir \u00e1 ni\u00f0urbroti bo\u00f0efnanna og ver\u00f0ur \u00fe.a.l. til meira af \u00feeim. MAO-hemlar eru aldrei nota\u00f0ir vi\u00f0 \u00feunglyndi n\u00faor\u00f0i\u00f0 nema flest\u00f6ll \u00f6nnur lyf hafi brug\u00f0ist. Eftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g best veit er einungis einn MAO-hemill \u00e1 lyfjaskr\u00e1 h\u00e9rlendis, Aurorix. Hins vegar eru ger\u00f0ar tilraunir me\u00f0 fleiri MAO-hemla \u00ed ney\u00f0, t.d. Marplan. MAO-hemlar milliverka vi\u00f0 fj\u00f6lda lyfja og f\u00e6\u00f0utegunda og eitrunar\u00e1hrif af sl\u00edku geta vel veri\u00f0 l\u00edfsh\u00e6ttulegar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Svo m\u00e6tti n\u00e1tt\u00farlega b\u00faa til flokkinn \u00d6nnur \u00feunglyndislyf, \u00fe.e.a.s. lyf sem ekki falla \u00ed \u00feessa fj\u00f3ra a\u00f0alflokka. \u00deegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 reyna SSRI-lyf \u00e1n \u00e1rangurs er \u00fdmist fari\u00f0 yfir \u00ed \u00fer\u00edhringlaga ge\u00f0lyf e\u00f0a pr\u00f3fa\u00f0 a\u00f0 gefa eitthva\u00f0 af &#8220;\u00f6\u00f0rum ge\u00f0lyfjum&#8221;, t.d. Mianserin Mylan e\u00f0a M\u00edron (sem \u00e1\u00f0ur h\u00e9t Remeron). N\u00fdtt lyf, Valdoxan, hefur \u00fe\u00e1 s\u00e9rst\u00f6\u00f0u a\u00f0 blokka ekki bara ser\u00f3t\u00f3n\u00edn- heldur einnig tvo melant\u00f3n\u00edn vi\u00f0taka, byggt \u00e1 \u00feeirri kenningu a\u00f0 rugl \u00ed d\u00e6gursveiflu g\u00e6ti veri\u00f0 ors\u00f6k \u00feunglyndis. (\u00c9g v\u00edsa bara \u00ed <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2010-09-17\/valdoxan\/\">eigin gamla bloggf\u00e6rslu um \u00feetta lyf<\/a> um n\u00e1nari uppl\u00fdsingar.) Valdoxani er einungis \u00e1v\u00edsa\u00f0 hafi flest \u00f6nnur ge\u00f0lyf veri\u00f0 pr\u00f3fu\u00f0 til \u00ferautar.\u00a0<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Flest \u00feunglyndislyf byrja ekki a\u00f0 virka fyrr en eftir 2-3 vikna t\u00f6ku<\/b>. T\u00f6kum sj\u00fakling eins og mig sem d\u00e6mi: Fyrst \u00feegar \u00e9g veiktist var \u00e9g sett \u00e1 Seroxat. \u00dea\u00f0 lyf virka\u00f0i nokku\u00f0 vel nokku\u00f0 lengi (e\u00f0a h\u00e6tti a\u00f0 virka en m\u00e9r batna\u00f0i af sj\u00e1lfu s\u00e9r, sl\u00edkt er ekki h\u00e6gt a\u00f0 vita \u00ed lj\u00f3si minnar s\u00f6gu). Svo kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sl\u00e6mar aukaverkanir ger\u00f0u vart vi\u00f0 sig og \u00e9g \u00feurfti a\u00f0 h\u00e6tta \u00e1 Seroxati. \u00cd n\u00e6sta sl\u00e6ma kasti var\u00a0 pr\u00f3fa\u00f0 anna\u00f0 SSRI-lyf og \u00e9g var\u00f0 a\u00f0 b\u00ed\u00f0a veik \u00ed a.m.k. 3 vikur uns taldist reynt hvort lyfi\u00f0 virki e\u00f0a virki ekki. Virki \u00fea\u00f0 ekki er byrja\u00f0 \u00e1 n\u00fdju lyfi og \u00e1fram heldur bi\u00f0in og veikindin. \u00deessi bi\u00f0 er hro\u00f0alega erfi\u00f0 og vonbrig\u00f0in, \u00feegar lyfi\u00f0 virkar ekki og \u00fearf a\u00f0 byrja upp \u00e1 n\u00fdtt, eru skelfileg. \u00dea\u00f0 vita allir sem hafa pr\u00f3fa\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deegar \u00feunglyndisk\u00f6stin ver\u00f0a \u00e6 d\u00fdpri og standa \u00e6 lengur yfir er fari\u00f0 a\u00f0 pr\u00f3fa \u00f6nnur lyf en SSRI. L\u00edklega er \u00e9g me\u00f0 ofn\u00e6mi fyrir Effexor (ein tafla lag\u00f0i mig \u00ed r\u00fami\u00f0 \u00ed tvo daga) svo \u00e9g hef ekki mikla reynslu af SNRI lyfjum. \u00der\u00edhringlaga lyf t\u00f3k \u00e9g um skei\u00f0 \u00ed eldgamladaga, \u00e1ratug \u00e1\u00f0ur en \u00e9g veiktist alvarlega af \u00feunglyndi, \u00fe\u00e1 haf\u00f0i \u00e9g fengi\u00f0 greininguna &#8220;skammdegis\u00feunglyndi&#8221; en var l\u00edklega einfaldlega virkur alk\u00f3h\u00f3listi og me\u00f0 venjulegt alka\u00feunglyndi \u00fe\u00e1, sem batna\u00f0i eftir a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r \u00ed \u00e1fengisme\u00f0fer\u00f0. Fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g veiktist 1998 hef \u00e9g pr\u00f3fa\u00f0 \u00e1 annan tug lyfja en \u00fea\u00f0 eru ekki allt \u00feunglyndislyf.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 einhverjum t\u00edmapunkti gerist \u00fea\u00f0 gjarna me\u00f0 ge\u00f0sj\u00fakling af m\u00ednu tagi a\u00f0 sett er fram tilg\u00e1ta um a\u00f0 m\u00f6gulega s\u00e9 sj\u00faklingurinn ekki me\u00f0 dj\u00fapt einp\u00f3la \u00feunglyndi heldur ge\u00f0hvarfas\u00fdki II (sem l\u00fdsir s\u00e9r \u00feannig a\u00f0 sj\u00faklingurinn fer ekki \u00ed man\u00edu en \u00feunglyndislotur geta veri\u00f0 mj\u00f6g dj\u00fapar). \u00de\u00e1 er pr\u00f3fa\u00f0 a\u00f0 gefa Lithium (Litarex). \u00cd m\u00ednu tilviki var \u00fea\u00f0 svo sem allt \u00ed lagi, minnir a\u00f0 \u00feessi tilaun hafi sta\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00e1r en minni mitt er valt, aukaverkanir voru a\u00f0allega handskj\u00e1lfti og \u00feorsti en svo sem ekkert sl\u00e6mar. (\u00c9g hef teki\u00f0 lyf sem hafa l\u00e1ti\u00f0 mig hr\u00ed\u00f0skj\u00e1lfa fr\u00e1 toppi til t\u00e1ar og einnig lyf sem valda st\u00f6\u00f0ugum munn\u00feurrki svo s\u00ed\u00f0ustu annirnar sem \u00e9g gat sinnt kennslu \u00feurfti \u00e9g alltaf a\u00f0 taka me\u00f0 m\u00e9r st\u00fatk\u00f6nnu me\u00f0 vatni \u00ed kennslustundir &#8211; og \u00e1 t\u00edmabili skj\u00e1lftalyfsins (Seroquel, sem er \u00ed rauninni flokka\u00f0 sem ge\u00f0rofslyf) sem \u00e9g t\u00f3k ofan \u00ed hitt lyfi\u00f0 var helv. erfitt a\u00f0 hitta me\u00f0 st\u00fatinn \u00e1 varirnar &#8230;). En \u00fe\u00f3tt Lithium hef\u00f0i \u00feann kost a\u00f0 hafa tilt\u00f6lulega litlar aukaverkanir haf\u00f0i \u00fea\u00f0 jafnframt \u00feann \u00f3kost a\u00f0 m\u00e9r batna\u00f0i ekki baun af \u00fev\u00ed. \u00dev\u00ed var horfi\u00f0 fr\u00e1 \u00feessari &#8220;ge\u00f0hvarfas\u00fdki-II-greiningu&#8221; og aftur sn\u00fai\u00f0 yfir \u00ed einp\u00f3la \u00feunglyndisgreiningu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sum lyfin virtust virka um t\u00edma, yfirleitt svona 3-4 m\u00e1nu\u00f0i en svo h\u00e6ttu \u00feau allt \u00ed einu a\u00f0 virka,\u00a0 yfirleitt \u00e1 innan vi\u00f0 s\u00f3larhring . \u00c9g vil meina a\u00f0 heilinn \u00ed m\u00e9r &#8220;l\u00e6ri&#8221; \u00e1 lyfin og komi s\u00e9r upp a\u00f0fer\u00f0um til a\u00f0 fara fram hj\u00e1 verkan \u00feeirra. \u00c9g tel einnig a\u00f0 heilinn muni \u00fea\u00f0 sem hann hefur &#8220;l\u00e6rt&#8221;. Ge\u00f0l\u00e6knirinn minn vill or\u00f0a \u00feetta \u00feannig &#8220;a\u00f0 heilinn leiti \u00e6vinlega jafnv\u00e6gis&#8221; og er ekki samm\u00e1la \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00f3tt lyf hafi h\u00e6tt a\u00f0 virka \u00e1 s\u00ednum t\u00edma s\u00e9 ekki von til a\u00f0 \u00fea\u00f0 virki aftur einhvern t\u00edma seinna. Um \u00feetta erum vi\u00f0 l\u00e6knirinn, held \u00e9g, samm\u00e1la um a\u00f0 vera \u00f3samm\u00e1la.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">S\u00ed\u00f0asta lyfi\u00f0 sem virka\u00f0i var Valdoxan. Fyrirfram bj\u00f3st \u00e9g ekki vi\u00f0 neinu, var or\u00f0in dau\u00f0\u00fereytt \u00e1 stanslausum helv\u00edtis lyfjatilraunum sem litlum e\u00f0a engum \u00e1rangri h\u00f6f\u00f0u skila\u00f0. Og rafl\u00e6kningar fullreyndar (\u00e9g fjalla um \u00fe\u00e6r s\u00ed\u00f0ar). \u00deannig a\u00f0 mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 vi\u00f0horf sj\u00faklingsins (mitt) hef\u00f0i m\u00e1tt b\u00faast vi\u00f0 &#8220;nocebo&#8221;-\u00e1hrifum, \u00fe.e.a.s. neikv\u00e6\u00f0um plat\u00e1hrifum og engri virkni lyfsins. \u00dea\u00f0 f\u00f3r \u00e1 annan veg: Sumari\u00f0 2010 n\u00e1\u00f0i \u00e9g a\u00f0 ver\u00f0a sama manneskjan og \u00e9g var fyrir 1998 \u00feegar \u00e9g veiktist fyrst! \u00dea\u00f0 var d\u00e1samlegt kraftaverk &#8230; en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur entist \u00fea\u00f0 bara \u00ed \u00ferj\u00e1 og h\u00e1lfan m\u00e1nu\u00f0, \u00fe\u00e1 h\u00e6tti Valdoxan allt \u00ed einu einn daginn a\u00f0 virka og \u00e9g snarsn\u00e9rist ofan \u00ed hyld\u00fdpi\u00f0 og enda\u00f0i inni \u00e1 ge\u00f0deild.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hausti\u00f0 2010 veiktist \u00e9g sem sagt mj\u00f6g illa. Valdoxan-skammturinn var tv\u00f6falda\u00f0ur og \u00e9g var\u00a0 l\u00e1tin b\u00ed\u00f0a heima \u00ed \u00ferj\u00e1r vikur, me\u00f0an m\u00e9r versna\u00f0i \u00e6 meir. Hef\u00f0i eins geta\u00f0 eti\u00f0 kand\u00eds. Svo var \u00e9g l\u00f6g\u00f0 inn \u00e1 ge\u00f0deild (\u00e9g var of veik til a\u00f0 geta \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 sj\u00e1lf &#8211; m\u00e9r var svo sl\u00e9tt sama hva\u00f0 um mig yr\u00f0i a\u00f0 \u00e9g tilkynnti a\u00f0 ma\u00f0urinn minn og l\u00e6knirinn yr\u00f0u a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a hva\u00f0 yr\u00f0i gert &#8211; hins vegar yr\u00f0i a\u00f0 gera eitthva\u00f0 \u00fev\u00ed annars dr\u00e6pi \u00e9g mig, sj\u00e1lfsv\u00edgshugsanirnar voru or\u00f0nar \u00fea\u00f0 \u00e1leitnar og tilhugsunin um a\u00f0 losna \u00fat \u00far \u00feessu helv\u00edti \u00fea\u00f0 lokkandi).<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/www.this.is\/harpa\/thunglyndi\/marplan.jpg?resize=150%2C80\" alt=\"Marplan\" align=\"left\" height=\"80\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">\u00c9g lag\u00f0ist inn \u00e1 ge\u00f0deild (\u00feri\u00f0ja hausti\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0, a\u00f0 \u00e9g held) og \u00ed \u00feetta sinn var ger\u00f0 tilraun me\u00f0 \u00f6r-\u00f6r\u00ferifalyfi\u00f0: Marplan. [Myndin s\u00fdnir sameindabyggingu Marplans.] \u00dea\u00f0 er l\u00edka heppilegra fyrir sj\u00faklinginn a\u00f0 vera n\u00e1l\u00e6gt hjartadeild \u00feegar lyfi\u00f0 er pr\u00f3fa\u00f0 \u00fev\u00ed hj\u00e1 st\u00f6ku sj\u00faklingi r\u00fdkur bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdstingur upp \u00far \u00f6llu valdi, l\u00edfsh\u00e6ttulega. Marplan var pr\u00f3fa\u00f0 \u00ed 3 &#8211; 4 m\u00e1nu\u00f0i, a\u00f0 mig minnir.\u00a0\u00c9g var \u00e1 ge\u00f0deild \u00ed sj\u00f6 vikur, kom svo heim og var \u00e1horfandi a\u00f0 j\u00f3lunum \u00fev\u00ed \u00e9g gat ekkert gert, ekki lesi\u00f0, ekki horft \u00e1 sj\u00f3nvarp, ekki snert \u00e1 heimilisverkum &#8230; ekkert nema prj\u00f3na\u00f0, en s\u00e1 h\u00e6fileiki hvarf einnig nokkrum sinnum. Vi\u00f0 hengdum upp eitur-milli-verkunarlistann \u00ed eldh\u00fasinu og ma\u00f0urinn l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 elda s\u00fapur og s\u00f3sur \u00e1n s\u00faputeninga og s\u00f3sulitar, auk annars s\u00e9rf\u00e6\u00f0is. \u00c1rangurinn af Marplan? Eftir \u00e1 s\u00e9\u00f0 held \u00e9g a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 enginn nema m\u00f6gulega breytt \u00f3d\u00e6miger\u00f0um \u00feunglyndiseinkennum \u00ed d\u00e6miger\u00f0 \u00feunglyndiseinkenni. \u00dea\u00f0 sem ger\u00f0ist a\u00f0allega var a\u00f0 \u00e9g h\u00e6tti a\u00f0 geta sofi\u00f0 nema svona 3-4 t\u00edma \u00e1 s\u00f3larhring. Alls konar svefnlyf og r\u00f3andi lyf og sterk ge\u00f0lyf (sem eru gefin \u00ed svona tilvikum) h\u00f6f\u00f0u n\u00e6r ekkert a\u00f0 segja, lyfi\u00f0 sem kallast stundum &#8220;rotarinn&#8221; \u00e1 ge\u00f0deild virka\u00f0i t.d. ekki baun. Seroquel gat lengt svefninn ofurl\u00edti\u00f0 en eins og \u00e1\u00f0ur er geti\u00f0 eru aukaverkanir af \u00fev\u00ed andstyggilegar og spurning hvort var \u00feess vir\u00f0i a\u00f0 sofa klukkut\u00edma lengur en ella til \u00feess eins a\u00f0 hr\u00f6kkva upp\u00a0 h\u00e1lfd\u00f3pu\u00f0 og hr\u00ed\u00f0skj\u00e1lfandi. M\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 ekki \u00feess vir\u00f0i. \u00c9g h\u00e9lt s\u00f6nsum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 prj\u00f3na og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 einbeita m\u00e9r a\u00f0 einhverju \u00e1kve\u00f0nu efni sem \u00e9g gat n\u00e1lgast \u00far h\u00e6filegri fjarl\u00e6g\u00f0; \u00deannig ur\u00f0u si\u00f0blinduf\u00e6rslurnar til. Bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdstingurinn hrundi ni\u00f0ur \u00far \u00f6llu valdi og \u00e9g var eins og uppvakningur (\u00e9g held a\u00f0 \u00feeir hafi einmitt frekar l\u00e1gan bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdsting, jafnvel engan bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdsting).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 endanum sam\u00feykkti l\u00e6knirinn minn a\u00f0 Marplan v\u00e6ri fullreynt. Eftir \u00e1 s\u00e9\u00f0 held \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi l\u00f6ngu veri\u00f0 or\u00f0i\u00f0 lj\u00f3st og \u00e9g hafi \u00e1tt a\u00f0 h\u00e6tta miklu fyrr \u00e1 \u00feessu lyfi sem ger\u00f0i mig \u00ed rauninni enn veikari. (\u00deegar ma\u00f0ur hefur ekki fengi\u00f0 meir en fj\u00f6gurra t\u00edma svefn \u00e1 s\u00f3larhring \u00ed meir en m\u00e1nu\u00f0 er ma\u00f0ur or\u00f0inn helv\u00edti lasinn &#8230; \u00fea\u00f0 myndi l\u00edka taka sinn toll af alheilbrig\u00f0u f\u00f3lki. \u00deegar eru komnir tveir svona m\u00e1nu\u00f0ir \u00fearf virkilega a\u00f0 taka s\u00e9r tak til a\u00f0 tapa ekki gl\u00f3runni. O.s.fr. Og svefninn hefur aldrei komist almennilega \u00ed lag s\u00ed\u00f0an \u00feessari tilraun lauk.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">S\u00ed\u00f0an \u00feurfti \u00e9g a\u00f0 vera lyfjalaus \u00ed nokkurn t\u00edma me\u00f0an Marplans-\u00e1hrifin hreinsu\u00f0ust a\u00f0 fullu \u00far lifrinnni \u00e1 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 var \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r enginn munur \u00e1 ge\u00f0slaginu. Svo var \u00e9g sett \u00e1 \u00feau tv\u00f6 lyf sem helst hafa \u00fe\u00f3tt skila \u00e1rangri hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1r, Valdoxan og M\u00edron. Valdoxan spillir hj\u00e1 m\u00e9r svefni, sem var n\u00e1tt\u00farlega l\u00f6ngu vita\u00f0 &#8211; auki\u00f0 melant\u00f3n\u00edn virkar \u00f6fugt \u00e1 mig og einhvern t\u00edma um \u00fea\u00f0 leyti sem \u00e9g var a\u00f0 veikjast fyrst f\u00e9kk \u00e9g n\u00e1tt\u00farulegt melant\u00f3n\u00edn (Melan\u00edn?) sem svefnlyf en \u00fea\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00e9g svaf ekki d\u00far. Um mitt sumar \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 h\u00e6tta \u00feessari Valdoxant\u00f6ku enda enginn bati af lyfinu og \u00ed rauninni var \u00fea\u00f0 frekar til \u00f3\u00feurftar, \u00fea\u00f0 brenndi utan af m\u00e9r k\u00edl\u00f3in sem \u00e9g haf\u00f0i engin efni \u00e1 a\u00f0 missa.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g tek enn M\u00edron en held a\u00f0 \u00fea\u00f0 virki sosum ekki neitt \u00e1 \u00feunglyndi\u00f0. A\u00f0al\u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir a\u00f0 \u00e9g tek \u00fea\u00f0 er s\u00fa aukaverkun a\u00f0 \u00fea\u00f0 eykur matarlyst og gerir m\u00e9r kleift a\u00f0 hafa lyst \u00e1 skyri me\u00f0 rj\u00f3ma e\u00f0a nokkrum prinsp\u00f3l\u00f3um svona upp \u00far mi\u00f0n\u00e6tti \ud83d\ude09\u00a0 \u00c9g \u00fearf nefnilega \u00e1 hverju grammi a\u00f0 halda (er einnig \u00f6fugsn\u00fain a\u00f0 \u00fev\u00ed leytinu). A\u00f0 auki tek \u00e9g svefnlyf og hef gert \u00ed einhverja m\u00e1nu\u00f0i og er n\u00e1kv\u00e6mlega sk\u00edtsama um \u00e1lit besserwissera \u00e1 svefnlyfjanotkun til langframa &#8211; fyrir mig er \u00fea\u00f0 l\u00edfsspursm\u00e1l a\u00f0 geta sofna\u00f0 &#8211; og svo tek \u00e9g kv\u00ed\u00f0astillandi lyf a\u00f0 sta\u00f0aldri og er jafnsama um \u00e1lit annarra \u00e1 \u00fev\u00ed, \u00e9g \u00e6tla ekki a\u00f0 koma m\u00e9r \u00ed \u00fe\u00e1 st\u00f6\u00f0u a\u00f0 k\u00e1la m\u00e9r af botnlausum heilbrig\u00f0is\u00e1r\u00f3\u00f0urs\u00e1st\u00e6\u00f0um. Stundum velti \u00e9g \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort \u00feeir sem tala hva\u00f0 mest gegn lyfjanotkun (ge\u00f0lyfja, kv\u00ed\u00f0astillandi lyfja og svefnlyfja), einkum sumir l\u00e6knar, hafi einhvern t\u00edma velt fyrir s\u00e9r a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu\u00a0veri\u00f0 r\u00e1\u00f0banar einhverra \u00feunglyndissj\u00faklinga\u00a0me\u00f0 \u00f6llum \u00feessum helv\u00edtis hollr\u00e1\u00f0um \u00ed \u00f3h\u00f3fi?<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>Framt\u00ed\u00f0in \u00ed lyfjam\u00e1lum?<\/b> Tja, l\u00e6knirinn minn hefur stungi\u00f0 upp \u00e1 fleiri MAO-blokkum, sem \u00e9g hef kurteislega af\u00feakka\u00f0. Svo hef \u00e9g undanfari\u00f0 reynt a\u00f0 leita a\u00f0 og lesa greinar um hvers lags \u00feunglyndislyf eru \u00ed pr\u00f3fun n\u00fana en \u00feau vir\u00f0ast flest vera af Valdoxan-taginu, \u00fe.e.a.s. menn eru uppfullir af \u00feessum d\u00e6gursveiflufaktor og ve\u00f0ja \u00e1 melant\u00f3n\u00edn-aukningu. Eflaust virkar \u00fea\u00f0 \u00e1 einhverja, jafnvel marga \u00feunglyndissj\u00faklinga en \u00e9g er eiginlega vonlaus um a\u00f0 \u00fea\u00f0 virki \u00e1 mig.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>\u00cd lokin \u00e1r\u00e9tta \u00e9g aftur a\u00f0 \u00feessi f\u00e6rsla er skrifu\u00f0 af ge\u00f0sj\u00faklingi sem hefur ekki s\u00e9r\u00feekkingu \u00ed lyfjafr\u00e6\u00f0i e\u00f0a l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i<\/b>, er meira a\u00f0 segja\u00a0m\u00e1ladeildarst\u00fadent og \u00fev\u00ed talsvert f\u00e1fr\u00f3\u00f0 \u00ed \u00f6llu raungreinatengdu. M\u00e9r \u00fe\u00e6tti \u00fev\u00ed v\u00e6nt um a\u00f0 f\u00e1 \u00e1bendingar um beinar villur sem kunna a\u00f0 leynast \u00ed \u00fev\u00ed sem \u00e9g segi um lyf og \u00feeirra verkan. Og \u00e9g tek m\u00f6nnum vara fyrir a\u00f0 taka \u00feessa f\u00e6rslu sem v\u00edsindalega e\u00f0a fr\u00e6\u00f0ilega e\u00f0a lei\u00f0beinandi fyrir lyfjanotkun. H\u00fan er fyrst og fremst lauslegt yfirlit yfir svi\u00f0i\u00f0 sem blasir vi\u00f0 \u00feunglyndissj\u00faklingum eftir greiningu, mi\u00f0ast vi\u00f0 eigin reynslu og \u00e9g er haldin &#8220;alvarlegum einkennum \u00feunglyndis&#8221; svo m\u00edn reynsla \u00e1 hreint ekki vi\u00f0 nema l\u00edtinn hluta \u00feeirra sem greinast \u00feunglyndir.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>P.s<\/b>. \u00c9g stefni \u00e1 a\u00f0 \u00fatb\u00faa einhvern t\u00edma lista yfir \u00feau lyf sem \u00e9g hef pr\u00f3fa\u00f0. Til \u00feess \u00fearf \u00e9g g\u00f6gn \u00fev\u00ed minni\u00f0 er ekki upp \u00e1 marga fiska. Einu sinni datt m\u00e9r \u00ed hug a\u00f0 suma refil e\u00f0a klukkustreng me\u00f0 myndum af sameindabyggingu lyfjanna sem \u00e9g hef teki\u00f0, sem eru stundum formfagrar og henta l\u00edklega vel til a\u00f0 \u00e6fa sig \u00ed refilsaumi, \u00ed lit au\u00f0vita\u00f0. En n\u00fa er \u00e9g a\u00f0 heykjast \u00e1 \u00feeirri hugmynd, a\u00f0 sauma \u00fat &#8220;Lyfin \u00ed l\u00edfi m\u00ednu&#8221;\u00a0 &#8211; svolei\u00f0is \u00fatsaumsstykki yr\u00f0i l\u00edklega alltof langt til a\u00f0 gera sig vel \u00e1 vegg &#8230;<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r ver\u00f0ur a\u00f0allega fjalla\u00f0 um lyfjame\u00f0fer\u00f0 vi\u00f0 \u00feunglyndi &#8211; og enn einu sinni tek \u00e9g sk\u00fdrt fram a\u00f0 \u00e9g skrifa \u00fat fr\u00e1 eigin reynslu en hef enga menntun \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um, lyfjafr\u00e6\u00f0i e\u00f0a \u00f6\u00f0ru sem ber <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2011\/12\/09\/thunglyndissjuklingur-i-gedlaekningabatteriinu-taka-2\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9],"tags":[],"class_list":["post-386","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-gedheilsa"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/386","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=386"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/386\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":705,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/386\/revisions\/705"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=386"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=386"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=386"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}