{"id":393,"date":"2012-01-21T19:30:09","date_gmt":"2012-01-21T19:30:09","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-01-21\/stora-glaerumalid-og-modgelsi-vantruar-ii-hluti\/"},"modified":"2013-11-21T09:28:26","modified_gmt":"2013-11-21T09:28:26","slug":"stora-glaerumalid-og-modgelsi-vantruar-ii-hluti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/01\/21\/stora-glaerumalid-og-modgelsi-vantruar-ii-hluti\/","title":{"rendered":"St\u00f3ra gl\u00e6rum\u00e1li\u00f0 og m\u00f3\u00f0gelsi Vantr\u00faar, II. hluti"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\"><\/font><font size=\"-1\"><strong>Aths. 27. febr\u00faar<\/strong>: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um <a href=\"http:\/\/harpahreins.com\/vantru_gegn_bjarna_randveri.pdf\" title=\"Vantr\u00fa gegn Bjarna Randver pdf\">k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal<\/a>, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gl\u00e6rur \u00ed efnisflokknum Frj\u00e1lslynda fj\u00f6lskyldan, sem var einn af 20 gl\u00e6ruflokkum (gl\u00e6rusettum) \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar \u00e1 haustmisseri 2009, liggja frammi \u00e1 vantru.is, <b>\u00e1n leyfis gl\u00e6ruh\u00f6fundar<\/b>. H\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed \u00fe\u00e6r \u00e1 vef Vantr\u00faar \u00fear sem \u00fe\u00e6r eru birtar sem pdf-skj\u00f6l:<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/skrar\/Frjalslynda_fjolskyldan_i.pdf\">Gl\u00e6rur 1-39<\/a><\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/skrar\/Frjalslynda_fjolskyldan_ii.pdf\">Gl\u00e6rur 40 &#8211; 76<\/a> (um De-ista, \u00fe.e. frumgy\u00f0istr\u00faarmenn e\u00f0a gu\u00f0str\u00faarmenn \u00e1n tr\u00faarj\u00e1tningar, og Helga H\u00f3seasson)<strong>*<\/strong><\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/skrar\/Frjalslynda_fjolskyldan_iii.pdf\">Gl\u00e6rur 77 &#8211; 137<\/a><\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/skrar\/Frjalslynda_fjolskyldan_iv.pdf\">Gl\u00e6rur 138-174<\/a> (um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa o.fl.)<strong>*<\/strong><\/font><\/li>\n<\/ul>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/asaka.jpg?resize=238%2C161\" alt=\"\u00c1saka\" align=\"left\" height=\"161\" width=\"238\" \/><font size=\"-1\">\u00cd stj\u00f6rnumerktu gl\u00e6rur\u00f6\u00f0unum eru gl\u00e6rur sem Vantr\u00fa s\u00e1 \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 kvarta undan, einkum gl\u00e6rum um sig. Vantr\u00fa kvarta\u00f0i\/k\u00e6r\u00f0i samt\u00edmis til \u00feriggja a\u00f0ila innan H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Br\u00e9fin eru n\u00e6r samhlj\u00f3\u00f0a. Helsti munurinn er s\u00e1 a\u00f0 \u00ed br\u00e9fi\u00f0 til si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands var b\u00e6tt: \u201eVi\u00f0 gerum einnig athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 Bjarni Randver noti myndir af f\u00e9lagsm\u00f6nnum \u00e1n \u00feess a\u00f0 geta myndh\u00f6funda\u201c og \u201eVi\u00f0 teljum \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 huga s\u00e9rstaklega a\u00f0 eftirfarandi greinum si\u00f0areglna H.\u00cd.: [&#8230;]\u201c Sj\u00e1 m\u00e1 hva\u00f0a greinar \u00feetta voru \u00ed f\u00e6rslunni <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-01-08\/ekki-malid-sem-sidanefnd-hi-tokst-ekki-ad-leysa\/\">Ekki-m\u00e1li\u00f0 sem Si\u00f0anefnd H\u00cd t\u00f3kst Ekki a\u00f0 leysa<\/a>. Greinarger\u00f0irnar sem fylgja br\u00e9funum til si\u00f0anefndar H\u00cd og P\u00e9turs P\u00e9turssonar eru samhlj\u00f3\u00f0a og m\u00e1 lesa <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/skrar\/pepe.pdf\">br\u00e9fi\u00f0 til P\u00e9turs P\u00e9turssonar og me\u00f0fylgjandi greinarger\u00f0<\/a> \u00e1 vef Vantr\u00faar. Fylgiskj\u00f6l til \u00feessara a\u00f0ila voru gl\u00e6rur 40-70 og 138-174 \u00far gl\u00e6rusettinu Frj\u00e1lslynda fj\u00f6lskyldan en f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa t\u00f6lusetur hvorn flokk upp \u00e1 n\u00fdtt, \u00fe.e. kallar fyrstu gl\u00e6ru \u00ed hvorum flokki nr. 1 o.s.fr. M\u00e9r er \u00f3kunnugt um hvort greinager\u00f0in og fylgiskj\u00f6l fylgdu br\u00e9finu til rektors.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ritstj\u00f3rn Vantr\u00faar fjalla\u00f0i um gl\u00e6rurnar sem f\u00e9lagi\u00f0 kvarta\u00f0i undan \u00ed greinum t\u00f6lusettum III-XI sem sj\u00e1 m\u00e1 undir efnisflokknum H\u00e1sk\u00f3linn, ne\u00f0st \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/haskolinn\/\">\u00feessari s\u00ed\u00f0u<\/a>, og uppskar mikil vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0um vi\u00f0 hverja grein.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 N\u00fdtr\u00faarhreyfingar \u00e1 haust\u00f6nn 2009<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fyrst er a\u00f0 gera \u00f6rlitla grein fyrir k\u00farsinum N\u00fdtr\u00faarhreyfingar. (Vantr\u00fa kallar reyndar n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u201e\u00e1fanga\u201c undir lok sinna br\u00e9fa, sem g\u00e6ti m\u00f6gulega bent til \u00feess a\u00f0 f\u00e9lagsm\u00f6nnum s\u00e9 ekki alveg lj\u00f3s munurinn \u00e1 framhaldssk\u00f3lakennslu og h\u00e1sk\u00f3lakennslu.)<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0\u00cd n\u00e1mskei\u00f0inu er gefi\u00f0 yfirlit yfir \u00fea\u00f0 sem margir tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ingar hafa skilgreint sem <b>n\u00fdtr\u00faarhreyfingar<\/b>, \u00fe.e. tr\u00faarhreyfingar sem \u00e1 s\u00ed\u00f0ari \u00e1rum geta talist n\u00fdjar af n\u00e1linni \u00ed vi\u00f0komandi \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi e\u00f0a menningarsv\u00e6\u00f0i. Jafnframt er \u00fear ger\u00f0 grein fyrir <b>helstu kenningum um f\u00e9lagslegar forsendur \u00feeirra, birtingarmyndir og st\u00f6\u00f0u<\/b> og fjalla\u00f0 um <b>s\u00f6gu \u00feeirra, hugmyndafr\u00e6\u00f0i og skipulag me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af greiningum<\/b>, <b>einkum f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0inga og gu\u00f0fr\u00e6\u00f0inga,<\/b> innan tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0anna. S\u00e9rst\u00f6k \u00e1hersla er l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 <b>gefa yfirlit yfir \u00fe\u00e6r hreyfingar sem starfa\u00f0 hafa \u00e1 \u00cdslandi<\/b> e\u00f0a fengi\u00f0 t\u00f6luver\u00f0a umfj\u00f6llun \u00ed \u00edslenskum fj\u00f6lmi\u00f0lum.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0 \u00cd upphafi n\u00e1mskei\u00f0sins er \u00e1r\u00e9tta\u00f0 a\u00f0 svo til allt n\u00e1msefni\u00f0 s\u00e9 umdeilt og \u00f6ll greining h\u00e1\u00f0 \u00feeim forsendum sem gengi\u00f0 er \u00fat fr\u00e1 \u00ed upphafi<\/b>. \u00deannig er \u00e1greiningur me\u00f0al almennings, fr\u00e6\u00f0imanna og hreyfinganna sj\u00e1lfra hvernig beri a\u00f0 skilgreina tr\u00faarhugtaki\u00f0 og hvort einstaka hreyfingar geti flokkast sem tr\u00faarlegar. <b>\u00cd raun er deilt um hverja einustu hreyfingu sem tekin er til umfj\u00f6llunar \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu hvort h\u00fan geti talist tr\u00faarleg og er \u00fea\u00f0 algj\u00f6rlega \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hvort h\u00fan skilgreinir sj\u00e1lfa sig me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti e\u00f0a ekki<\/b>. Og \u00feeir fr\u00e6\u00f0imenn sem flokka hreyfingarnar sem tr\u00faarlegar eru ekki heldur \u00e1 einu m\u00e1li um hvort e\u00f0a a\u00f0 hva\u00f0a marki h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 tala um n\u00fdtr\u00faarhreyfingar \u00ed \u00fev\u00ed sambandi \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6ra m\u00e1 r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r allar eigi s\u00e9r s\u00f6gulegar og menningarlegar r\u00e6tur langt aftur \u00ed aldir \u00feegar betur er a\u00f0 g\u00e1\u00f0. Engar tr\u00faarhreyfingar ver\u00f0i til \u00ed hugmyndas\u00f6gulegu t\u00f3mar\u00fami heldur s\u00e9u \u00fe\u00e6r allar vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 r\u00edkjandi menningarstraumum og hef\u00f0 \u00fear sem byggt er \u00e1 eldri grunni e\u00f0a me\u00f0 hann unni\u00f0, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fatf\u00e6rslurnar kunni a\u00f0 vissu marki a\u00f0 vera n\u00fdjar af n\u00e1linni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0(Bjarni Randver Sigurvinsson. <i>Svar vi\u00f0 k\u00e6ru Vantr\u00faar. Greinarger\u00f0 l\u00f6g\u00f0 fyrir si\u00f0anefnd H\u00cd 2010<\/i>, s. 9. Feitletranir eru m\u00ednar. \u00deessi greinarger\u00f0 er \u00f3opinbert skjal \u00ed vinnslu en \u00e9g hef leyfi h\u00f6fundarins til a\u00f0 vitna \u00ed \u00fea\u00f0. H\u00e9r eftir ver\u00f0ur v\u00edsa\u00f0 \u00ed \u00feetta skjal sem Greinarger\u00f0 Bjarna Randvers.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd n\u00e1mskei\u00f0inu var fjalla\u00f0 um fj\u00f6lmargt. Fyrst var fjalla\u00f0 um tr\u00faarhreyfingar \u00e1 \u00cdslandi, sj\u00f3narmi\u00f0 um n\u00fdtr\u00faarhreyfingar, n\u00fdtr\u00faarhreyfingar \u00ed Evr\u00f3pu og togstreitu milli stj\u00f3rnvalda og tr\u00faarhreyfinga. S\u00ed\u00f0an voru \u00fdmsar tr\u00faarhreyfingar sko\u00f0a\u00f0ar s\u00e9rstaklega og m\u00e1 sem d\u00e6mi taka h\u00famanistahreyfinguna, sp\u00edritista- og n\u00fdjaldarhreyfinguna\/fj\u00f6lskylduna, moonista, dulspeki, n\u00fdhei\u00f0ni og galdra, b\u00faddisma og hind\u00faisma.<\/font> <font size=\"-1\">(Sj\u00e1 Greinarger\u00f0 Bjarna Randvers s. 24.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af \u00feessu m\u00e1 vera nokku\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 efni n\u00e1mskei\u00f0sins var afar fj\u00f6lbreytt og <b>venjulegt f\u00f3lk myndi kannski frekar tengja efni og efnist\u00f6k vi\u00f0 f\u00e9lagsv\u00edsindi en tr\u00fafr\u00e6\u00f0i<\/b> (n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 fellur undir tr\u00faarbrag\u00f0af\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0i). <b>\u00c9g hef \u00fe\u00f3 grun um a\u00f0 b\u00e6\u00f0i f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa og forma\u00f0ur si\u00f0anefndar H\u00cd hafi fyrirfram gefi\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 um v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a tr\u00fafr\u00e6\u00f0in\u00e1mskei\u00f0 <\/b>og mun r\u00f6ksty\u00f0ja \u00fea\u00f0 betur s\u00ed\u00f0ar. Nemendur \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu voru enda af \u00fdmsum toga og ekkert endilega skr\u00e1\u00f0ir \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild. Au\u00f0vita\u00f0 voru allar \u00feessar gl\u00e6rur einungis hluti kennsluefnisins, <b>til grundvallar voru lag\u00f0ar \u00ferj\u00e1r b\u00e6kur og fj\u00f6ldi b\u00f3karkafla og greina<\/b>. \u00c9g v\u00edsa \u00ed<a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-01-18\/stora-glaermalid-og-modgelsi-vantruar-i-hluti\/\"> fyrri f\u00e6rslu um hvernig gl\u00e6rur eru yfirleitt nota\u00f0ar \u00ed kennslu<\/a> en \u00fea\u00f0 hvarflar a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 <b>f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa og forma\u00f0ur si\u00f0anefndar H\u00cd hafi einnig gefi\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 gl\u00e6rurnar v\u00e6ri uppista\u00f0an \u00ed kennslu- og n\u00e1msefni og \u00fev\u00ed st\u00f3rlega ofmeti\u00f0 v\u00e6gi \u00feeirra<\/b>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Kennarinn, Bjarni Randver Sigurvinsson, bendir \u00ed sinni greinarger\u00f0 \u00e1 a\u00f0 meginatri\u00f0in sem hann reyndi a\u00f0 draga fram um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa tengist \u00feeim ranns\u00f3knarspurningum l\u00e1gu n\u00e1mskei\u00f0inu til grundvallar. Ranns\u00f3knarspurningarnar voru, endursag\u00f0ar \u00ed mj\u00f6g gr\u00f3fum dr\u00e1ttum:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0* Hvers konar f\u00e9lagslega hreyfingu er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a?<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0* Hvers konar hugmyndafr\u00e6\u00f0i liggur til grundvallar?<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0* Er um einhvers konar bo\u00f0un a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og \u00fe\u00e1 hverja?<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0* Hver er helsta gagnr\u00fdni \u00e1 hreyfinguna?<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0* Hver eru helstu s\u00e9rkenni hreyfingarinnar?<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0(Greinarger\u00f0 Bjarna Randvers s. 58.)<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Yfir hverju kvarta\u00f0i Vantr\u00fa og k\u00e6r\u00f0i?<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er ekki vinnandi vegur a\u00f0 fjalla um\u00a0\u00f6ll kl\u00f6gum\u00e1l\u00a0Vantr\u00faar gegn Bjarna Randveri Sigurvinssyni, kennara og gl\u00e6ruh\u00f6fundi, \u00e1 bloggi. H\u00e9r \u00e1 eftir og \u00ed n\u00e6stu f\u00e6rslu(m) ver\u00f0a \u00fev\u00ed einungis valin atri\u00f0i til umfj\u00f6llunar.<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">\u00cd fyrsta lagi m\u00e1 nefna a\u00f0 v\u00ed\u00f0a \u00ed k\u00e6ru Vantr\u00faar kemur fram \u00f3\u00e1n\u00e6gja me\u00f0 a\u00f0 vitna\u00f0 s\u00e9 \u00ed eitthva\u00f0 sem Vantr\u00fa k\u00fds a\u00f0 kalla \u201eeinkablogg\u201c.<\/font><\/b><font size=\"-1\"> \u00dear er yfirleitt \u00e1tt vi\u00f0 blogg stj\u00f3rnamanna og f\u00e9laga \u00ed Vantr\u00fa \u00fear sem \u00feeir l\u00fdsa oft vi\u00f0horfum s\u00ednum til tr\u00faarbrag\u00f0a, kirkjudeilda o.fl \u00feessu tengdu. N\u00fa eru til einkablogg, \u00fe.e.a.s. blogg sem eru l\u00e6st og einungis sumir hafa a\u00f0gang a\u00f0 me\u00f0 lykilor\u00f0i. En <b>almennt eru blogg opinber og l\u00fata s\u00f6mu l\u00f6gm\u00e1lum og hver \u00f6nnur opinber birting<\/b>, svo sem greinaskrif \u00ed bl\u00f6\u00f0 e\u00f0a vefmi\u00f0la. M\u00e9r finnst einkennilegt \u00ed lj\u00f3si \u00feess hve margir stj\u00f3rnarmanna \u00ed Vantr\u00fa eru pr\u00fd\u00f0ilega t\u00f6lvul\u00e6sir a\u00f0 \u00feeir skuli virkilega halda a\u00f0 blogg s\u00e9 einkam\u00e1l og \u00ed \u00feau megi ekki vitna. \u00c1 \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 bent a\u00f0 <b>v\u00e6ri \u00feessi sko\u00f0un almenn myndi \u00fea\u00f0 v\u00e6ntanlega einnig fela \u00ed s\u00e9r a\u00f0 ekki m\u00e6tti vitna \u00ed greinar stj\u00f3rnm\u00e1lamanna e\u00f0a vi\u00f0t\u00f6l vi\u00f0 \u00fe\u00e1 heldur einungis \u00ed opinberar yfirl\u00fdsingar og g\u00f6gn vi\u00f0komandi stj\u00f3rnm\u00e1laflokks<\/b>. Ef einst\u00f6kum f\u00e9l\u00f6gum \u00ed Vantr\u00fa er \u00ed mun a\u00f0 reka einkablogg liggur beinast vi\u00f0 a\u00f0 \u00feeir l\u00e6si samstundis s\u00ednum bloggum og \u00fathluti lykilor\u00f0um til \u00feeirra lesenda sem \u00feeir vilja a\u00f0 sko\u00f0i \u00feau.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">Sem d\u00e6mi um sl\u00edka kv\u00f6rtun (en \u00fe\u00e6r eru margar) m\u00e1 nefna:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2010\/02\/23\/13.00\/\" title=\"Vantr\u00fa og k\u00e6ran gegn Bjarna Randveri\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/oli_gneisti_glaera.jpg?resize=187%2C141\" alt=\"\u00d3li Gneisti S\u00f3leyjarson\" align=\"right\" height=\"141\" width=\"187\" \/><\/a>\u00a0Gl\u00e6ra 6 og 7 eru skj\u00e1myndir af <b>einkabloggi<\/b> \u00d3la Gneista (formanni [svo] Vantr\u00faar 2009) \u00fear sem hann l\u00fdsir yfir mikilli \u00e1n\u00e6gju sinni me\u00f0 tr\u00faleysisr\u00e1\u00f0stefnuna 2006 og l\u00fdsing \u00e1 kynnum hans af Richard Dawkins. \u00deessar tv\u00e6r f\u00e6rslur vir\u00f0ast hafa veri\u00f0 s\u00e9rvaldar af fj\u00f6lm\u00f6rgum sem \u00d3li skrifa\u00f0i um r\u00e1\u00f0stefnuna \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Richard Dawkins er \u00fear \u00ed a\u00f0alhlutverki. Tilgangur Bjarna vir\u00f0ist vera a\u00f0 s\u00fdna a\u00f0 vantr\u00faarmenn sem [svo] l\u00e6risveina e\u00f0a sk\u00f3sveina\u00a0 Richards Dawkins. Ekki vir\u00f0ist vera a\u00f0 Bjarni hafi tali\u00f0 \u00fe\u00f6rf \u00e1 a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra \u00feessi skrif me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00d3li Gneisti var \u00ed skipulagsnefnd umr\u00e6ddar r\u00e1\u00f0stefnu og gle\u00f0i hans sk\u00fdrist a\u00f0 miklu leyti af \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa skila\u00f0 af s\u00e9r g\u00f3\u00f0u verki. (S. 4-5 \u00ed <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/skrar\/pepe.pdf\">greinarger\u00f0 Vantr\u00faar me\u00f0 k\u00e6runni<\/a>.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Til\u00a0h\u00e6gri er l\u00edtil mynd af annarri gl\u00e6runni sem kr\u00e6kir \u00ed st\u00e6rri mynd \u00e1 vef Vantr\u00faar, hin gl\u00e6ran er \u00fear fyrir ne\u00f0an. Loks er \u00feri\u00f0ja gl\u00e6ran \u00e1 \u00feessari vefs\u00ed\u00f0u \u00fear sem Vantr\u00fa \u00e1lyktar a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 gera \u00d3la Gneista a\u00f0 l\u00e6risveini Dawkins, sem er au\u00f0vita\u00f0 algerlega \u00fat \u00ed h\u00f6tt \u00fev\u00ed dagsetninga og \u00e1rtala er geti\u00f0 \u00e1 gl\u00e6runni sj\u00e1lfri. Vir\u00f0ist \u00fear <b>sem Vantr\u00fa telji a\u00f0 ef atri\u00f0i B s\u00e9 sett undir atri\u00f0i A \u00e1 gl\u00e6ru s\u00e9 veri\u00f0 a\u00f0 meina a\u00f0 B s\u00e9 aflei\u00f0ing af A<\/b>:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Tilvitnunin \u00ed \u00d3la [er] sett undir fyrirs\u00f6gn sem gefur til kynna a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 undir \u00e1hrifum fr\u00e1 Dawkins sem h\u00fan er ekki. \u00cd \u00e1g\u00fast 2006 var b\u00f3kin God Delusion ekki komin \u00fat, h\u00fan kom ekki \u00fat fyrren 2007. Er tilgangurinn a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 \u00e1hrif \u201ehugmyndafr\u00e6\u00f0ingsins\u201c \u00e1 l\u00e6risveininn? (S. 6 \u00ed <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/skrar\/pepe.pdf\">greinarger\u00f0 Vantr\u00faar me\u00f0 k\u00e6ru<\/a>).<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">A\u00f0 s\u00f6gn kennarans var tilgangurinn me\u00f0 birtingu \u00feeirra \u00feriggja gl\u00e6ra, sem Vantr\u00fa kallar nr. 6, 7 og 8,\u00a0fyrst og fremst s\u00e1 a\u00f0 gefa nemendum s\u00fdnishorn af starfsemi Vantr\u00faar \u00ed samvinnu vi\u00f0 a\u00f0rar hreyfingar \u00fear sem jafnframt k\u00e6mi fram f\u00e9lagsleg grundvallarforsenda vaxtar allra skipulag\u00f0ra hreyfinga. Fj\u00f6ldi tr\u00faarl\u00edfsf\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0inga hafi bent \u00e1 a\u00f0 menn h\u00f3pist saman \u00ed hreyfingar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Vantr\u00fa vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir finni \u00fear f\u00f3lk sem er sama sinnis og sj\u00e1i b\u00e6\u00f0i forystumenn og virka me\u00f0limi \u00ed j\u00e1kv\u00e6\u00f0u lj\u00f3si og sem m\u00f6gulegar fyrirmyndir. <b>Textinn af gl\u00e6runum \u00e1tti einungis a\u00f0 s\u00fdna hli\u00f0st\u00e6\u00f0u \u00ed j\u00e1kv\u00e6\u00f0u lj\u00f3si \u00fe.e. hve b\u00e6\u00f0i \u00d3li Gneisti og Dawkins v\u00e6ru stoltir af gu\u00f0leysi s\u00ednu<\/b>. \u00cd kennslustundinni t\u00f3k kennarinn svo fram a\u00f0 gu\u00f0leysingjar hafi einmitt lagt aukna \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 skilgreina sig me\u00f0 j\u00e1kv\u00e6\u00f0um h\u00e6tti fremur en bara \u00fat fr\u00e1 einhverju sem \u00feeir eru \u00e1 m\u00f3ti og benti \u00e1 a\u00f0 \u201eDawkins stofna\u00f0i t.d. The Out Campaign hreyfinguna \u00e1ri\u00f0 2007 sem nokkurs konar hli\u00f0st\u00e6\u00f0u vi\u00f0 mannr\u00e9ttindahreyfingar samkynhneig\u00f0ra til a\u00f0 \u00e1r\u00e9tta mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 gu\u00f0leysingjar komi \u00fat \u00far sk\u00e1pnum og l\u00edti sj\u00e1lfa sig j\u00e1kv\u00e6\u00f0um augum.\u201c (Greinarger\u00f0 Bjarna Randvers, s. 71-72.)<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Vantr\u00faarf\u00e9lagar voru \u00fe\u00f3 mun rei\u00f0ari \u00fat af gl\u00e6ru sem s\u00fdndi or\u00f0brag\u00f0 nokkurra f\u00e9lagsmanna og fylgismanna Vantr\u00faar. S\u00fa m\u00f3\u00f0gun\u00a0tengist l\u00edka skr\u00edtnum hugmyndum \u00feeirra um \u201eeinkablogg\u201c en ber \u00feess a\u00f0allega merki a\u00f0 \u00feeir gera s\u00e9r litla grein fyrir \u00fev\u00ed samhengi sem gl\u00e6ran var \u00ed, \u00fe.e.a.s. gera s\u00e9r ekki grein fyrir um hva\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 sn\u00e9rist og geta \u00fear af lei\u00f0andi ekki tengt gl\u00e6runa vi\u00f0 l\u00edklega umfj\u00f6llun um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa. Misskilningur \u00feeirra er s\u00e1 a\u00f0 halda a\u00f0 gl\u00e6rurnar eigi a\u00f0 vera a\u00f0la\u00f0andi kynning \u00e1 Vantr\u00fa e\u00f0a augl\u00fdsing fyrir f\u00e9lagi\u00f0. M\u00e1 sj\u00e1 gl\u00e6runa og umr\u00e6\u00f0u um hana \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2010\/02\/26\/13.00\/\">IX Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i \u00ed H\u00cd: Or\u00f0brag\u00f0i\u00f0<\/a>, \u00e1 vef Vantr\u00faar.\u00a0 \u00cd k\u00e6ru Vantr\u00faar segir:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Vantr\u00faarf\u00e9l\u00f6gum \u00feykir s\u00e9rlega mikilv\u00e6gt a\u00f0 <u><b>gl\u00e6ra 20<\/b> s\u00e9 sko\u00f0u\u00f0 alveg s\u00e9rstaklega<\/u> en h\u00fan ber titilinn <b>\u201eOr\u00f0brag\u00f0i\u00f0\u201c<\/b>. [&#8230;] Bjarni birtir lista af d\u00f3naskap sem hann hefur dunda\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 safna af vefs\u00ed\u00f0um tengdum f\u00e9lagsm\u00f6nnum og hugsanlega Vantr\u00fa. Vi\u00f0 neitum ekki a\u00f0 vi\u00f0 notum oft or\u00f0alag sem \u00f6\u00f0rum finnst \u00f3heft [svo] en vi\u00f0 teljum \u00f3h\u00e6fu a\u00f0 birta svona lista \u00e1n samhengis.[&#8230;]<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">S\u00ed\u00f0an fjallar Vantr\u00fa um a\u00f0 Matth\u00edas \u00c1sgeirsson hafi aldrei nota\u00f0 or\u00f0i\u00f0 \u201ehlandspekingur\u201c um nafngreindan einstakling \u00ed nokku\u00f0 l\u00f6ngu m\u00e1li og a\u00f0 oftast noti hann or\u00f0in \u201easni\u201c og \u201ebj\u00e1ni\u201c um sj\u00e1lfan sig. \u00deessari klausu \u00ed k\u00e6runni l\u00fdkur svona:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Aftur hlj\u00f3tum vi\u00f0 a\u00f0 spyrja hvort h\u00e9r er um fr\u00e6\u00f0slu a\u00f0 r\u00e6\u00f0a e\u00f0a einstrengingslegan \u00e1r\u00f3\u00f0ur. Hva\u00f0a tilgangi \u00fej\u00f3nar \u00feessi gl\u00e6ra? Er h\u00fan m\u00e1lefnaleg e\u00f0a sanngj\u00f6rn? Getur h\u00fan r\u00e9tta mynd af umfj\u00f6llunarefni gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingsins?<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i vi\u00f0 <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-01-14\/vantru\/\" title=\"Vantr\u00fa\">umfj\u00f6llun m\u00edna um Vantr\u00fa<\/a> h\u00e9lt \u00e9g \u00fev\u00ed fram a\u00f0 f\u00e9lagar \u00ed Vantr\u00fa v\u00e6ru har\u00f0ir a\u00f0ger\u00f0arsinnar (akt\u00edvistar). \u00c9g er enn \u00feeirrar sko\u00f0unar. <b>Partur af \u00feessum akt\u00edvisma er lj\u00f3tt or\u00f0brag\u00f0<\/b>. \u00dea\u00f0 hafa fj\u00f6lmargir bent \u00e1 sl\u00edkt \u00e1\u00f0ur og raunar halda Vantr\u00faarf\u00e9lagar \u00fev\u00ed sj\u00e1lfir fram \u00ed k\u00e6runni a\u00f0 \u00feeir noti \u201e<b>or\u00f0alag sem \u00f6\u00f0rum finnst \u00f3heft<\/b>\u201c (v\u00e6ntanlega eru \u00feeir a\u00f0 meina \u201e\u00f3hefla\u00f0\u201c). \u00cd umfj\u00f6llun Vantr\u00faar um \u00feessa gl\u00e6ru s\u00e9st a\u00f0 Vantr\u00faarf\u00e9lagar hafa lagt \u00ed mikla vinnu vi\u00f0 a\u00f0 rekja einst\u00f6k umm\u00e6li, annars vegar \u00e1 vef Vantr\u00faar og hins vegar \u00e1 bloggi Matth\u00edasar \u00c1sgeirssonar. \u00deeir hr\u00f3sa sigri ef \u00feeir finna d\u00e6mi um or\u00f0alag sem ekki var nota\u00f0 um nafngreint f\u00f3lk, til d\u00e6mis or\u00f0i\u00f0 hlandspekingur (sem m\u00e9r finnst lj\u00f3mandi gott n\u00fdyr\u00f0i). En Vantr\u00faarf\u00e9l\u00f6gum yfirs\u00e9st l\u00edklega a\u00f0 \u00ed \u00feeim f\u00e6rslum sem \u00feeir v\u00edsa \u00ed m\u00e1li s\u00ednu til stu\u00f0nings er a\u00f0 finna mun gr\u00f3fari umm\u00e6li, s.s. \u00feegar \u00feeir verja or\u00f0alagi\u00f0 \u201eauglj\u00f3slega snarbilu\u00f0 manneskja\u201c og v\u00edsa \u00ed f\u00e6rslu Matth\u00edasar sem heitir <a href=\"http:\/\/www.orvitinn.com\/2003\/06\/25\/14.21\/\" title=\"Ge\u00f0sj\u00faklingurinn J\u00f3n\ufffdna Ben.\">Ge\u00f0sj\u00faklingurinn J\u00f3n\u00edna Ben<\/a>. Anna\u00f0 hvort hefur Bjarni Randver dregi\u00f0 \u00far umm\u00e6lum Matth\u00edasar e\u00f0a Matth\u00edas breytt upphaflegum umm\u00e6lum \u00ed \u201eauglj\u00f3slega snarge\u00f0bila\u00f0a manneskju\u201c sem er, fr\u00e1 m\u00ednum sj\u00f3narh\u00f3li s\u00e9\u00f0, s\u00edst til b\u00f3ta.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">A\u00f0 m\u00ednu mati skiptir ekki \u00f6llu m\u00e1li hvort hverju einasta d\u00e6mi \u00e1 \u00feessari gl\u00e6ru megi finna sta\u00f0 \u00e1 bloggi Matth\u00edasar e\u00f0a vef Vantr\u00faar enda tj\u00e1 f\u00e9lagar \u00ed Vantr\u00fa og fylgismenn \u00feeirra sig miklu v\u00ed\u00f0ar en \u00fear. Ekkert \u00e1 gl\u00e6runni bendir til a\u00f0 eing\u00f6ngu s\u00e9 stu\u00f0st vi\u00f0 \u00feessa tvo vefi og au\u00f0velt er a\u00f0 finna mun gr\u00f3fari d\u00e6mi, eins og \u00e9g var a\u00f0 benda \u00e1.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/skilja_ekki.jpg?resize=103%2C161\" alt=\"Skilja ekki\" align=\"left\" height=\"161\" width=\"103\" \/><font size=\"-1\"><b>A\u00f0alr\u00f6ksemd Vantr\u00faar \u00ed k\u00e6rubr\u00e9finu er a\u00f0 listinn s\u00e9 birtur \u00e1n samhengis.<\/b> <b>\u00deetta er merkilegt k\u00e6ruefni \u00fev\u00ed Vantr\u00faarf\u00e9lagar h\u00f6f\u00f0u nefnilega ekki hugmynd um samhengi\u00f0<\/b>. Enginn \u00feeirra sem a\u00f0 k\u00e6runni st\u00f3\u00f0u haf\u00f0i seti\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0. Hvernig \u00e1ttu \u00feeir a\u00f0 vita hva\u00f0 f\u00f3r fram \u00ed kennslustundinni? \u00deeir vir\u00f0ast ekki einu sinni hafa fatta\u00f0 um hva\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 sn\u00e9rist! M\u00e9r s\u00fdnist blasa vi\u00f0 a\u00f0 \u00feessi gl\u00e6ra, sem l\u00edklega var brug\u00f0i\u00f0 upp r\u00e9tt sem sn\u00f6ggvast, hafi veri\u00f0 li\u00f0ur \u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a seinustu tv\u00e6r ranns\u00f3knarspurningarnar sem l\u00e1gu til grundvallar n\u00e1mskei\u00f0inu, v\u00e6ntanlega bara einn li\u00f0ur af m\u00f6rgum \u00ed \u00feeirri umr\u00e6\u00f0u. M\u00f6gulega tengdist h\u00fan fleiri ranns\u00f3knaspurningum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>A\u00f0alr\u00f6ksemd Vantr\u00faar s\u00fdnir a\u00f0allega a\u00f0 \u00feeir sem st\u00f3\u00f0u a\u00f0 k\u00e6runni vir\u00f0ast ekki hafa hugmynd um hvernig gl\u00e6rur eru nota\u00f0ar \u00ed kennslu. <\/b>Me\u00f0 r\u00f6k Vantr\u00faar a\u00f0 vopni m\u00e6tti t.d. k\u00e6ra hvern \u00feann m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ing sem tekur d\u00e6mi um \u201em\u00e9run\u201c (\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki) og ekki getur \u00feess \u00edtarlega \u00e1 gl\u00e6ru \u00ed hva\u00f0a samhengi hvert d\u00e6mi kom fyrir hverju sinni. Kennari \u00ed b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i v\u00e6ri \u00ed verulega sl\u00e6mum m\u00e1lum, skv. s\u00f6mu r\u00f6kum, ef tekin v\u00e6ru d\u00e6mi um myndhverfingar \u00far lj\u00f3\u00f0um \u00e1n \u00feess a\u00f0 s\u00fdna \u00f6ll lj\u00f3\u00f0in \u00ed heild og gera um lei\u00f0 grein fyrir \u00ed hva\u00f0a lj\u00f3\u00f0ab\u00f3k \u00feau birtust og hva\u00f0a \u00e1r, jafnvel h\u00f6fundum \u00feeirra, \u00feeim stefnum og straumum sem \u00feeir a\u00f0hylltust o.s.fr. <b>Hver kennari s\u00e9r a\u00f0 \u00feetta er rugl<\/b> og \u00fea\u00f0 er d\u00e1l\u00edti\u00f0 undarlegt til \u00feess a\u00f0 hugsa a\u00f0 \u00d3li Gneisti S\u00f3leyjarsson \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur, s\u00e1 forma\u00f0ur Vantr\u00faar sem var kveikjan a\u00f0 k\u00e6runni, og Reynir Har\u00f0arson s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur, sem t\u00f3k vi\u00f0 formennsku af \u00d3la Gneista, skrifa\u00f0i undir k\u00e6rubr\u00e9fin og l\u00fdsti yfir heilaga str\u00ed\u00f0inu, skuli b\u00e1\u00f0ir hafa meistaragr\u00e1\u00f0u. \u00c9g hef\u00f0i haldi\u00f0 fyrirfram a\u00f0 hver s\u00e6milega h\u00e1sk\u00f3lamennta\u00f0ur ma\u00f0ur s\u00e6i hversu miki\u00f0 rugl krafan um skilyr\u00f0islaust samhengi d\u00e6ma \u00e1 gl\u00e6rum er.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Fleiri kl\u00f6gum\u00e1lum Vantr\u00faar ver\u00f0a ger\u00f0 skil \u00ed n\u00e6stu f\u00e6rslu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>\u00c9g minni enn og aftur \u00e1 a\u00f0 athugasemdir vi\u00f0 \u00feessa f\u00e6rslu \u00e1 a\u00f0 gera undir fullu nafni. Af gefnu tilefni tek \u00e9g fram a\u00f0 lei\u00f0ist umr\u00e6\u00f0an \u00fat \u00ed nagg og n\u00ed\u00f0 einstaklinga hverra \u00ed annars gar\u00f0 ver\u00f0ur \u00feeim eytt.<\/b><\/font><br \/>\n<b><font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/b>\u00a0<br \/>\n<b><font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/b>\u00a0<br \/>\n<b><font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/b><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Aths. 27. febr\u00faar: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0 Gl\u00e6rur \u00ed efnisflokknum Frj\u00e1lslynda fj\u00f6lskyldan, sem var einn af <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/01\/21\/stora-glaerumalid-og-modgelsi-vantruar-ii-hluti\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[22],"tags":[],"class_list":["post-393","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-vantru-og-sianefnd-hi"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/393","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=393"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/393\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":693,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/393\/revisions\/693"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=393"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=393"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=393"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}