{"id":399,"date":"2012-02-09T20:59:34","date_gmt":"2012-02-09T20:59:34","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-02-09\/hvad-sogdu-nemendur-og-kennarar-um-kennslu-og-glaerur-bjarna-randvers\/"},"modified":"2013-11-21T09:27:02","modified_gmt":"2013-11-21T09:27:02","slug":"hvad-sogdu-nemendur-og-kennarar-um-kennslu-og-glaerur-bjarna-randvers","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/09\/hvad-sogdu-nemendur-og-kennarar-um-kennslu-og-glaerur-bjarna-randvers\/","title":{"rendered":"Hva\u00f0 s\u00f6g\u00f0u nemendur og kennarar um kennslu og gl\u00e6rur Bjarna Randvers?"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\"><\/font><font size=\"-1\"><strong>Aths. 27. febr\u00faar<\/strong>: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um <a href=\"http:\/\/harpahreins.com\/vantru_gegn_bjarna_randveri.pdf\" title=\"Vantr\u00fa gegn Bjarna Randver pdf\">k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal<\/a>, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sj\u00f6 nemendur sem seti\u00f0 h\u00f6f\u00f0u \u00feann fr\u00e6ga k\u00fars N\u00fdtr\u00faarhreyfingar \u00e1 haustmisseri 2009 skrifu\u00f0u greinarger\u00f0ir um reynslu s\u00edna af kennslu Bjarna Randvers Sigurvinssonar. Fyrsta greinarger\u00f0in var skrifu\u00f0 \u00ed desember 2010 en hinar \u00ed ma\u00ed 2011. Tv\u00e6r greinarger\u00f0anna voru sendar inn a\u00f0 frumkv\u00e6\u00f0i nemendanna sj\u00e1lfra en hinar a\u00f0 bei\u00f0ni h\u00e1sk\u00f3lakennara um a\u00f0 nemendur l\u00fdstu reynslu sinni. Si\u00f0anefnd H\u00cd var afhent a.m.k. fyrsta greinarger\u00f0in (sem nemandinn skrifa\u00f0i a\u00f0 eigin frumkv\u00e6\u00f0i). \u00c9g veit ekki hvort si\u00f0anefndin f\u00e9kk hinar greinarger\u00f0irnar en si\u00f0anefnd \u00f3ska\u00f0i sj\u00e1lf aldrei eftir greinarger\u00f0um fr\u00e1 nemendum \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu. Hef\u00f0i \u00fe\u00f3 m\u00e1tt \u00e6tla a\u00f0 nemendur v\u00e6ru tilb\u00fanir a\u00f0 greina hei\u00f0arlega fr\u00e1 reynslu sinni, hafandi loki\u00f0 \u00feessu n\u00e1mskei\u00f0i og fengi\u00f0 einkunn \u00ed \u00fev\u00ed. Aftur \u00e1 m\u00f3ti datt \u00feeirri si\u00f0anefnd sem laut forystu Ingvars Sigurgeirssonar pr\u00f3fessors \u00ed kennaradeild Menntav\u00edsindasvi\u00f0s H\u00cd \u00ed hug a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0gang a\u00f0 pr\u00f3f\u00farlausnum nemenda [!]\u00a0en haf\u00f0i \u00fe\u00e1 fengi\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur kennsluk\u00f6nnunar \u00ed N\u00fdtr\u00faarhreyfingum \u00ed hendurnar og \u00fdmis \u00f6nnur g\u00f6gn um k\u00farsinn. N\u00e6stu f\u00e6rslur ver\u00f0a um si\u00f0anefnd H\u00cd og hennar st\u00f6rf og ver\u00f0ur h\u00fan ekki meir til umr\u00e6\u00f0u h\u00e9r.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Heimild m\u00edn fyrir greinarger\u00f0um nemenda og h\u00e1sk\u00f3lakennara er <i>Greinarger\u00f0ir og andm\u00e6li. Vegna k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni stundakennara fyrir Si\u00f0anefnd H\u00cd (k\u00e6rum\u00e1l nr. 1\/2010)<\/i>. \u00deetta er \u00f3opinbert skjal \u00ed vinnslu en \u00e9g hef leyfi Bjarna Randvers Sigurvinssonar fyrir a\u00f0 vitna \u00ed \u00fea\u00f0. A\u00f0 s\u00f6gn Bjarna Randvers g\u00e1fu nemendur og h\u00e1sk\u00f3lakennarar leyfi fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vitna\u00f0 v\u00e6ri opinberlega \u00ed greinarger\u00f0ir s\u00ednar. \u00cd f\u00e6rslunni k\u00fds \u00e9g a\u00f0 nafngreina ekki nemendur \u00ed h\u00f3pi greinarger\u00f0ah\u00f6funda.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>\u00cd greinarger\u00f0um nemenda gengur sem rau\u00f0ur \u00fer\u00e1\u00f0ur vottun \u00feeirra um a\u00f0 Bjarni Randver hafi s\u00e9rstaklega g\u00e6tt hlutleysis \u00ed umfj\u00f6llun, svo mj\u00f6g a\u00f0 eftir var teki\u00f0, sem og reynt a\u00f0 leggja \u00feunga \u00e1herslu \u00e1 gagnr\u00fdna hugsun og sj\u00e1lfst\u00e6tt eigi\u00f0 mat nemenda \u00e1 \u00fev\u00ed efni sem til umfj\u00f6llunar var<\/b>. Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna \u00feessa klausu \u00far br\u00e9fi nemanda sem kom \u00far annarri deild en t\u00f3k \u00feennan k\u00fars og nokkra a\u00f0ra \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i-og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild, skrifa\u00f0 \u00ed desember 2010 (nemandinn var ekki jafnhrifinn af k\u00farsunum sem hann sat hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum kennurum \u00ed deildinni):<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0\u00dear fann \u00e9g a\u00f0 kva\u00f0 vi\u00f0 annan t\u00f3n, \u00fear sem megin\u00e1herslur Bjarna \u00ed \u00feessum \u00feremur n\u00e1mskei\u00f0um voru a\u00f0 nota gagnr\u00fdna hugsun og hann hvatti \u00e1vallt til \u00feess a\u00f0 m\u00e1lefnin v\u00e6ru sko\u00f0u\u00f0 fr\u00e1 sem flestum sj\u00f3narhornum. Hann hvatti nemendur til a\u00f0 kynna s\u00e9r sj\u00e1lfir vel \u00fea\u00f0 efni sem til umfj\u00f6llunar var. Hann benti \u00e1 heimas\u00ed\u00f0ur, b\u00e6kur, bla\u00f0ageinar [svo], sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6tti, kvikmyndir og s\u00e1 m.a. til \u00feess a\u00f0 nemendur g\u00e6tu heims\u00f3tt kirkjudeildir og tr\u00faarh\u00f3pa. \u00de\u00e6r b\u00e6kur og kvikmyndir sem hann benti nemendum \u00e1 ger\u00f0i hann okkur einkar a\u00f0gengilegar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa b\u00e6kurnar me\u00f0fer\u00f0is \u00ed t\u00edma og vi\u00f0 fengum \u00fear me\u00f0 beinan a\u00f0gang a\u00f0 vi\u00f0komandi ritum. \u00c1 m\u00ednum n\u00e1msferli innan H\u00cd upplif\u00f0i \u00e9g hvergi eins g\u00f3\u00f0a lei\u00f0s\u00f6gn um \u00fdtarefni og a\u00f0gengi a\u00f0 g\u00f6gnum eins og undir lei\u00f0s\u00f6gn Bjarna Randvers. \u00dear a\u00f0 auki var hann alltaf rei\u00f0ub\u00fain [svo] a\u00f0 veita nemendum a\u00f0gang a\u00f0 gagnasafni s\u00ednu og spjalli um vi\u00f0komandi m\u00e1lefni [&#8230;].<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[- &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0\u00c9g l\u00edt svo \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 H\u00e1sk\u00f3lanum til s\u00f3ma a\u00f0 hafa sl\u00edkan kennara. Mann sem hefur yfirgripsmikla \u00feekkingu \u00e1 efninu, sem og g\u00f3\u00f0an a\u00f0gang a\u00f0 heimildum. Mann sem er \u00e1valt rei\u00f0ub\u00faninn a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00e1lin ford\u00f3malaust vi\u00f0 nemendur.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Nemendum vir\u00f0ist hafa komi\u00f0 talsvert \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 einmitt \u00feessi kennari hafi veri\u00f0 k\u00e6r\u00f0ur fyrir \u201esi\u00f0leysi\u201c \u00ed kennslu, \u00fe.e. \u00fea\u00f0 sem f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa taldi si\u00f0leysi byggt \u00e1 t\u00falkun f\u00e9lagsmanna \u00e1 \u00f6rlitlum hluta kennsluefnis. \u00cd ma\u00ed 2011 skrifar annar nemandi:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0M\u00e9r er kunnugt um \u00e1sakanir \u00fe\u00e6r er Bjarni Randver situr undir a\u00f0 \u00f3sekju. Sem nemandi var\u00f0 \u00e9g ekki v\u00f6r vi\u00f0 neitt \u00ed kennslu Bjarna Randvers, framkomu hans e\u00f0a or\u00f0avali sem g\u00e6ti rennt sto\u00f0um \u00fe\u00e6r. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti er \u00fea\u00f0 mat mitt, a\u00f0 kennarinn hafi veri\u00f0 m\u00e1lefnalegur \u00ed allri kennslu sinni og umr\u00e6\u00f0u um tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0, tr\u00faf\u00e9l\u00f6g, samt\u00f6k, l\u00edfssko\u00f0anir, stefnur og strauma, hverju nafni sem \u00fea\u00f0 gengur undir. Engu var slegi\u00f0 fram \u00e1n r\u00f6kstu\u00f0nings, ekkert sagt sem ekki var h\u00e6gt a\u00f0 v\u00edsa til \u00ed efni kennara, jafnt gl\u00e6rum sem \u00f6\u00f0ru kennsluefni. M\u00e9r \u00feykja \u00fe\u00e6r \u00e1sakanir fur\u00f0u s\u00e6ta er Bjarni Bjarni Randver s\u00e6tir og er kunnugt um a\u00f0 a\u00f0rir nemendur er s\u00e1tu n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 eru einnig forvi\u00f0a yfir m\u00e1linu \u00ed heild sinni. S\u00e9 ekki unnt a\u00f0 stunda kennslu vi\u00f0 \u00e6\u00f0stu menntastofnun \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, \u00e1n \u00feess a\u00f0 eiga \u00e1 h\u00e6ttu a\u00f0 f\u00e1 k\u00e6ru fyrir \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 segja sannanlega og m\u00e1lefnalega fr\u00e1 vi\u00f0fangsefnum, a\u00f0st\u00e6\u00f0um og atbur\u00f0um, \u00fe\u00e1 tel \u00e9g a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 vega a\u00f0 tr\u00fafrelsi, m\u00e1lfrelsi, sko\u00f0anafrelsi, akadem\u00edskum vinnubr\u00f6g\u00f0um og gagnr\u00fdninni hugsun. Illa mun komi\u00f0 fyrir \u00e6\u00f0stu menntastofnun \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, \u00feegar ekki er tali\u00f0 \u00e6skilegt a\u00f0 r\u00e6\u00f0a efni, \u00fe\u00f3tt m\u00e1lefnalega s\u00e9 me\u00f0 fari\u00f0, sem hagsmunah\u00f3par telja a\u00f0 varpi \u00f3\u00e6skilegu lj\u00f3si \u00e1 sig og s\u00edna. Hvar er \u00fe\u00e1 gagnr\u00fdnin hugsun og akadem\u00edsk vinnubr\u00f6g\u00f0? Er h\u00e9r veri\u00f0 a\u00f0 f\u00f3rna akadem\u00edskum heilindum fyrir pop\u00falisma?<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Eins og \u00feessi nemandi bendir \u00e1 er viss h\u00e6tta f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed ef h\u00e1sk\u00f3lakennsla \u00e1 a\u00f0 litast af \u00fej\u00f3nkun vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0ila sem eru til umfj\u00f6llunar \u00ed kennslunni. \u00de\u00e1 ver\u00f0i akadem\u00edsk vinnubr\u00f6g\u00f0 fyrir b\u00ed. Raunar vir\u00f0ast allir nemendur sem skilu\u00f0u inn greinarger\u00f0um vera sama sinnis. Og allir lj\u00faka \u00feeir miklu lofsor\u00f0i \u00e1 kennslu einmitt \u00feessa kennara, yfirbur\u00f0a\u00feekkingu hans \u00e1 vi\u00f0fangsefninu (n\u00fdtr\u00faarhreyfingum) og st\u00f6\u00f0uga hvatningu til a\u00f0 sko\u00f0a m\u00e1l fr\u00e1 sem flestum hli\u00f0um. \u00dea\u00f0 er d\u00e1l\u00edti\u00f0 merkilegt a\u00f0 enginn nemandi s\u00e9r \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 taka hi\u00f0 minnsta undir gagnr\u00fdni f\u00e9lagsins Vantr\u00faar. Hafi f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa \u00e1tt s\u00e9r einhvern m\u00e1lsvara \u00ed h\u00f3pi nemendanna hefur s\u00e1 a.m.k. ekki \u00feora\u00f0 a\u00f0 st\u00edga fram og senda ums\u00f6gn \u00fear a\u00f0 l\u00fatandi.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Einn nemandinn tekur fram a\u00f0 hann s\u00e9 gu\u00f0leysingi og hafi veri\u00f0 vel kunnugur Vantr\u00fa \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 h\u00f3fst \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 ekki samm\u00e1la f\u00e9laginu um allt, en samm\u00e1la sumu, s.s. bar\u00e1ttu f\u00e9lagsins Vantr\u00faar fyrir a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju. \u00deessi nemandi segir, \u00ed ma\u00ed 2011:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0\u00c9g fyrir mitt leyti m\u00e1 til me\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 \u00e9g var b\u00fain a\u00f0 kynna m\u00e9r Vantr\u00fa l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en \u00e9g sat \u00feennan k\u00fars og \u00fe\u00f3tti m\u00e9r umfj\u00f6llunin \u00ed k\u00farsinum ekki sverta \u00e1lit mitt \u00e1 f\u00e9laginu a\u00f0 neinu leyti. \u00c9g man s\u00e9rstaklega eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Bjarni benti \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u Vantr\u00faar, eins og hann ger\u00f0i yfirleitt \u00feegar hann vissi af a\u00f0gengilegum heimas\u00ed\u00f0um \u00feeirra h\u00f3pa sem fjalla\u00f0 var um \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu. \u00c9g man \u00feetta vegna \u00feess a\u00f0 [\u00e9g]\u00a0haf\u00f0i ekki fari\u00f0 inn\u00e1 vef Vantr\u00faar \u00fe\u00e1 \u00ed nokkurn t\u00edma og smellti m\u00e9r einmitt inn\u00e1 vefinn anna\u00f0 hvort \u00ed \u00feessum sama t\u00edma e\u00f0a eftir t\u00edmann.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0\u00c9g m\u00e1 einnig til me\u00f0 a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 \u00e9g veit l\u00edti\u00f0 hverjir af kennurum m\u00ednir tengjast \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunni og hverjir ekki. \u00c9g \u00feekkti heldur ekki neitt til Bjarna \u00e1\u00f0ur en \u00e9g sat k\u00farsinn, hef aldrei spjalla\u00f0 vi\u00f0 hann einan e\u00f0a kynnt m\u00e9r hans sko\u00f0anir pers\u00f3nulega. T.d. \u00feykir m\u00e9r mj\u00f6g athugaver\u00f0 gagnr\u00fdni sem sn\u00fdr a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Bjarni s\u00e9 me\u00f0 einhversskonar tr\u00fav\u00f6rn fyrir \u00dej\u00f3\u00f0kirkjuna. \u00dea\u00f0 vill nefnilega svo skemmtilega til a\u00f0 alla \u00f6nnina sat \u00e9g og velti \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r \u00ed hva\u00f0a tr\u00faf\u00e9lagi Bjarni v\u00e6ri eigilega \u00ed, ef einhverju, \u00fev\u00ed \u00e9g var sannf\u00e6r\u00f0 um a\u00f0 hann g\u00e6ti allavega ekki veri\u00f0 \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunni. L\u00edklega var \u00fea\u00f0 vegna \u00feess hve gagnr\u00fdninn kennari Bjarni er. Aldrei komst \u00e9g a\u00f0 neinni ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u, og ekki spur\u00f0i \u00e9g hann, en \u00fe\u00f3ttist \u00e9g n\u00fa aldeilis viss a\u00f0 hann v\u00e6ri allavega ekki kristinn og l\u00edklega gu\u00f0leysingi eins og \u00e9g!<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Sami nemandi l\u00fdsti gl\u00e6runotkun \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Bjarni er einn af \u00feeim fj\u00f6lm\u00f6rgu kennurum sem nota gl\u00e6rur miki\u00f0 til hli\u00f0sj\u00f3nar og raunar hefur oft komi\u00f0 til a\u00f0 ekki hefur n\u00e1\u00f0st a\u00f0 fara \u00ed gegnum allar gl\u00e6rurnar \u00ed t\u00edma hj\u00e1 Bjarna \u00fear sem hann er frekar langor\u00f0ur og mj\u00f6g duglegur a\u00f0 svara spurningum nemanda. \u00dea\u00f0 m\u00e1 alveg geta \u00feess a\u00f0 Bjarni eins og margir kennarar sem \u00e9g hef haft getur stundum tala\u00f0 \u00e1 bilinu 5-35 m\u00edn\u00fatur \u00e1 me\u00f0an ein og sama gl\u00e6ran er fyrir aftan hann, og fari\u00f0 um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll \u00e1n \u00feess a\u00f0 vi\u00f0komandi gl\u00e6ra s\u00e9 endilega einhver samantekt \u00e1 \u00fev\u00ed sem hann er a\u00f0 kenna hverju sinni. Au\u00f0vita\u00f0 eru oft svolei\u00f0is gl\u00e6rur inn \u00e1 milli, ekki s\u00edst \u00feegar kemur a\u00f0 kenningum og fr\u00e6\u00f0ilegum hugt\u00f6kum og skilgreiningum sem \u00fearfnast stuttrar hnitmi\u00f0a\u00f0rar \u00fatsk\u00fdringar. \u00dea\u00f0 eru ekki allir kennarar sem mata nemendur me\u00f0 \u00feurri samantekt af fyrirlestrinum sem f\u00f3lk \u00e6tti a\u00f0 geta hlusta\u00f0 \u00e1. Bjarni er einmitt einn \u00feeirra sem hafa gl\u00e6rur sem eru ekki endilega me\u00f0 meginatri\u00f0um, heldur kannski bara til \u00feess a\u00f0 benda \u00e1 eitthva\u00f0 \u00e1hugavert, e\u00f0a t.d. myndir, b\u00f3kark\u00e1pur e\u00f0a eitthva\u00f0 sem kann a\u00f0 vera til vitnis um \u00fea\u00f0 sem fjalla\u00f0 er um, e\u00f0a jafnvel gl\u00e6rur sem innihalda alger aukaatri\u00f0i, anna\u00f0 hvort \u00e1 undan langri r\u00e6\u00f0u e\u00f0a \u00e1 eftir. \u00dev\u00ed m\u00e1 segja a\u00f0 \u00e9g skilji \u00e1hyggjur Vantr\u00faar var\u00f0andi \u00feetta \u00fev\u00ed \u00e9g s\u00e9 hvernig sumar gl\u00e6rurnar geta virst utana\u00f0komandi a\u00f0ila sem ekki sat n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 skringilegar. En \u00fea\u00f0 \u00e6tti vonandi n\u00fa a\u00f0 vera or\u00f0i\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a gl\u00e6rurnar sem koma fram \u00ed t\u00edmum er ekki besta lei\u00f0in til \u00feess a\u00f0 komast a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 fram f\u00f3r \u00ed t\u00edmum. A\u00f0 sko\u00f0a gl\u00e6rurnar eru [svo] \u00feannig \u00ed raun svipa\u00f0 eins og a\u00f0 lesa b\u00f3k og sko\u00f0a bara myndirnar.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><\/p>\n<hr width=\"100%\" \/><font size=\"-1\">T\u00edu h\u00e1sk\u00f3lakennarar skrifu\u00f0u greinarger\u00f0ir sem tengdust k\u00e6rum Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver Sigurvinssyni, \u00ed september og okt\u00f3ber 2010. \u00de\u00e6r voru afhentar si\u00f0anefnd H\u00cd \u00feann 7. desember 2010. \u00cd \u00feessum greinarger\u00f0um reyndu h\u00e1sk\u00f3lakennarnir a\u00f0 meta hvort hin k\u00e6r\u00f0u atri\u00f0i \u00e6ttu vi\u00f0 r\u00f6k a\u00f0 sty\u00f0jast, \u00fe.e.a.s. hvort eitthva\u00f0 v\u00e6ri athugavert vi\u00f0 \u00feessar gl\u00e6rur og kennslu \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar. Au\u00f0vita\u00f0 kynntu h\u00e1sk\u00f3lakennararnir s\u00e9r einnig \u00ed hva\u00f0a samhengi gl\u00e6rurnar voru nota\u00f0ar. <b>Ni\u00f0ursta\u00f0a allra er a\u00f0 k\u00e6ra Vantr\u00faar s\u00e9 bygg\u00f0 \u00e1 van\u00feekkingu og misskilningi, a\u00f0 gl\u00e6rurnar passi \u00e1g\u00e6tlega inn \u00ed kennsluefni\u00f0 og hvorki gl\u00e6rur n\u00e9 kennsluefni brj\u00f3ti gegn si\u00f0areglum H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. \u00deeir sem finna a\u00f0 gl\u00e6runum nefna a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u full margar og of miki\u00f0 efni \u00e1 \u00feeim sumum, til d\u00e6mis a\u00f0 Bjarni Randver hef\u00f0i m\u00e1tt stytta tilvitnanir a\u00f0 mun. Sk\u00fdrt er teki\u00f0 fram a\u00f0 gagnr\u00fdnin \u201eof margar gl\u00e6rur og of miki\u00f0 efni\u201c l\u00fati a\u00f0 kennslufr\u00e6\u00f0i, k\u00e6ra Vantr\u00faar hafi ekki sn\u00faist um kennslufr\u00e6\u00f0i og auk \u00feess s\u00e9u \u00farskur\u00f0ir um kennslufr\u00e6\u00f0ilegar a\u00f0fer\u00f0ir ekki \u00e1 k\u00f6nnu si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/b><\/font><font size=\"-1\">H\u00e9r ver\u00f0ur gripi\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed nokkrar klausur \u00ed \u00f6rf\u00e1um greinarger\u00f0um h\u00e1sk\u00f3lakennaranna en enginn vegur er a\u00f0 gera grein fyrir \u00f6llu sem \u00ed \u00feeim kemur fram e\u00f0a vitna \u00ed allar greinarger\u00f0ir. \u00dea\u00f0 er l\u00edka \u00f3\u00fearfi \u00fev\u00ed \u00ed \u00feeim kemur yfirleitt fram hi\u00f0 sama \u00fe\u00f3tt hver skrifi \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00f6\u00f0rum. <b>Menn nefna gjarna \u00ed greinarger\u00f0unum hva\u00f0 felst \u00ed akadem\u00edskum vinnubr\u00f6g\u00f0um og r\u00f6ksty\u00f0ja a\u00f0 sl\u00edk vinnubr\u00f6g\u00f0 s\u00e9u \u00e6skileg \u00ed h\u00e1sk\u00f3lakennslu<\/b> (alveg eins og nemendur gera, t.d. \u00feessi sem spur\u00f0i hvort \u00e6tti a\u00f0 f\u00f3rna akadem\u00edskum vinnubr\u00f6g\u00f0um fyrir p\u00f3p\u00falisma).<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Af g\u00f6gnum \u00feeim sem Bjarni Randver leggur fram m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 hann er einkar samviskusamur kennari. Hann horfist \u00ed augu vi\u00f0 a\u00f0 hann hefur s\u00e9rh\u00e6ft sig \u00ed efni sem menn hafa afar skiptar sko\u00f0anir \u00e1 og leitast vi\u00f0 a\u00f0 vinna \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Hann setur vi\u00f0fangsefni\u00f0 \u00ed s\u00f6gulegt og f\u00e9lagslegt samhengi; v\u00edsar nemendum \u00e1 margv\u00edslegt fr\u00e6\u00f0iefni og kynnir ekki a\u00f0eins \u00fe\u00e6r kenningar og \u00feau hugt\u00f6k sem hann n\u00fdtir frekast heldur greinir fr\u00e1 gagnr\u00fdni \u00e1 hvorttveggja. \u00dear me\u00f0 sinnir hann einni meginskyldu h\u00e1k\u00f3lakennara: Hann skapar \u00ed upphafi n\u00e1mskei\u00f0s grundv\u00f6ll sem nemendur geta unni\u00f0 \u00e1 \u2013 burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 \u00feeirri lei\u00f0 sem hann velur sj\u00e1lfur a\u00f0 fara \u00ed kennslunni \u2013 og \u00fdtir undir a\u00f0 \u00feeir tileinki s\u00e9r n\u00e1msefni\u00f0 sem sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ar, hugsandi og gagnr\u00fdnar manneskjur. Til fyrirmyndar m\u00e1 kallast a\u00f0 \u00feessu fylgir hann eftir \u00ed lok n\u00e1mskei\u00f0s \u00feegar hann vekur nemendur me\u00f0 formlegu br\u00e9fi s\u00e9rstaklega til umhugsunar um hlutl\u00e6gni og bendir \u00e1 a\u00f0 \u201ef\u00e9lagslegur bakgrunnur [\u2026], umhverfi og sko\u00f0anir setja \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milega mark sitt \u00e1 framsetningu [\u2026] og \u00e1herslur\u201c manna (<i>Svar vi\u00f0 k\u00e6ru Vantr\u00faar<\/i>, bls. 19). Eftirtektarvert er a\u00f0 \u00ed k\u00e6ru Vantr\u00faar er hvergi viki\u00f0 a\u00f0 grundvelli n\u00e1mskei\u00f0sins og \u00feeim ramma sem \u00fev\u00ed er settur heldur einv\u00f6r\u00f0ungu fjalla\u00f0 um gl\u00e6ruh\u00f3pa og stakar gl\u00e6rur.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0Gl\u00e6rur Bjarna vitna me\u00f0al annars um hve einl\u00e6gan \u00e1huga hann hefur \u00e1 vi\u00f0fangsefni s\u00ednu, hversu miklu efni hann hefur safna\u00f0 og hve \u00f3spart hann mi\u00f0lar \u00feekkingu sinni til nemenda. \u00c1 m\u00f6rgum gl\u00e6ranna er greining \u00e1 atri\u00f0um sem hann hefur fyrr viki\u00f0 a\u00f0 \u2013 t.d. d\u00e6mastiklur um viss einkenni \u00e1 verkum \u00e1kve\u00f0inna manna\/hreyfinga e\u00f0a tengsl hugmynda tiltekinna manna \u2013 og \u00fev\u00ed eru \u00fe\u00e6r harla f\u00e1n\u00fdtt umr\u00e6\u00f0uefni s\u00e9u \u00fe\u00e6r slitnar \u00far samhengi eins og gert er \u00ed k\u00e6ru Vantr\u00faar. En \u00fear e\u00f0 k\u00e6ran byggist ekki s\u00edst \u00e1 <i>t\u00falkun \u00e1 gl\u00e6rum slitnum \u00far samhengi<\/i> er vert a\u00f0 taka d\u00e6mi um hvernig t\u00falkunin er: <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0[- &#8211; -]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0[&#8230;] Vantr\u00fa vekur s\u00e9rstaka athygli \u00e1 \u00e1kve\u00f0num gl\u00e6rum t.d. \u00feeirri sem heitir Or\u00f0brag\u00f0. \u00c1 henni setur Bjarni upp lista yfir or\u00f0 sem \u00fdmsir vantr\u00faarf\u00e9lagar hafa nota\u00f0 um \u00fe\u00e1 sem \u00feeir hafa litlar m\u00e6tur \u00e1. Vantr\u00faarmenn telja \u00feetta vera \u201elista af d\u00f3naskap\u201c sem Bjarni hafi \u201edunda\u00f0 s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 safna\u201c [&#8230;], og finna a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0in s\u00e9u slitin \u00far samhengi. Aftur er h\u00f6f\u00f0a\u00f0 til tepruskapar lesenda og \u00ed s\u00f6mu mund reynt a\u00f0 draga upp mynd af Bjarna sem manni er unir s\u00e9r vi\u00f0 \u201ed\u00f3naskap\u201c. \u00deegar menn f\u00e1st vi\u00f0 a\u00f0 greina or\u00f0r\u00e6\u00f0u er \u00fea\u00f0 nau\u00f0aalgengt a\u00f0 \u00feeir dragi fram \u00e1kve\u00f0in einkenni hennar, hvort sem \u00fea\u00f0 eru s\u00e9rt\u00e6k l\u00fdsingaror\u00f0, samtengingar af \u00e1kve\u00f0nu tagi, st\u00f3ryr\u00f0i e\u00f0a \u00fatdr\u00e1ttur. Athugasemd Vantr\u00faarmanna er \u00fev\u00ed gagnr\u00fdni \u00e1 hversdagsvinnubr\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 textagreiningu \u2013 svo ekki s\u00e9 minnst \u00e1 hve \u00f3sannf\u00e6randi \u00fea\u00f0 er a\u00f0 \u00feeir telja \u201e\u00f3h\u00e6fu a\u00f0 birta svona lista \u00e1n samhengis\u201c [&#8230;]\u00a0 \u2013 \u00ed s\u00f6mu mund og k\u00e6ra \u00feeirra byggir \u00e1 efni slitnu \u00far samhengi.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[- &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0Vantr\u00faarmenn gagnr\u00fdna Bjarna Randver einkum fyrir beinar tilvitnanir sem hann tekur og \u00feeir telja m.a. a\u00f0 \u00e6ttu a\u00f0 vera a\u00f0rar en \u00fe\u00e6r eru e\u00f0a \u00feeir geta s\u00e9r til um a\u00f0 hann setji \u00ed \u00feetta e\u00f0a hitt samhengi\u00f0 \u2013 sem \u00feeim l\u00edkar ekki. Eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 svar Bjarna kemst \u00e9g sem tr\u00faleysingi a\u00f0 annarri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u en Vantr\u00fa. M\u00e9r finnst Bjarni hafa lagt m\u00e9r \u00ed hendur kenningar, skilgreiningar og hugt\u00f6k sem \u00e9g get fari\u00f0 \u00ed samr\u00e6\u00f0u vi\u00f0 og dregi\u00f0 af \u00fe\u00e6r \u00e1lyktanir sem m\u00e9r og tr\u00faleysi m\u00ednu henta. Og einmitt \u00feannig \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lakennari a\u00f0 standa a\u00f0 verki. Eins og \u00e9g v\u00e9k a\u00f0 fyrr, \u00fearf hann a\u00f0 gera vi\u00f0fangsefni s\u00ednu \u00feau skil a\u00f0 a\u00f0rir geti n\u00fdtt s\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00e1 annan veg en hann; \u00fe\u00e1 gerir hann sitt til a\u00f0 kveikja n\u00fdjar hugmyndir og n\u00fdja s\u00fdn.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0\u00c9g f\u00e6 \u00ed stystu m\u00e1li ekki betur s\u00e9\u00f0 en Bjarni Randver s\u00e9 grandvar kennari sem hafi vanda\u00f0 sig mj\u00f6g vi\u00f0 kennslu s\u00edna og eigi s\u00edst af \u00f6llu skili\u00f0 \u00e1minningu fyrir hana.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0(<\/font><font size=\"-1\">Berglj\u00f3t Soff\u00eda Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, pr\u00f3fessor \u00ed \u00edslenskum b\u00f3kmenntum \u00cdslensku- og menningardeild, H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd sama streng tekur annar kennari og v\u00edsar s\u00e9rstaklega \u00ed gagnr\u00fdni f\u00e9lagsins Vantr\u00faar sem kemur fram \u00ed k\u00e6ru f\u00e9lagsins til si\u00f0anefndar H\u00cd og fleiri a\u00f0ila:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0M\u00e1latilb\u00fana\u00f0ur \u00feessi vekur nokkra fur\u00f0u, svo ekki s\u00e9 minna sagt, og vir\u00f0ist k\u00e6randi ekki gera s\u00e9r alveg lj\u00f3st hva\u00f0 opinbert r\u00fdmi er og hva\u00f0 opinber umr\u00e6\u00f0a felur \u00ed s\u00e9r. Ekkert si\u00f0leysi getur falist \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 taka til umr\u00e6\u00f0u opinber skrif f\u00e9lagsmanna e\u00f0a annarra um tr\u00fam\u00e1l \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9u \u00feau birt \u00e1 vef f\u00e9lagsins eing\u00f6ngu. Ef forsvarma\u00f0ur f\u00e9lags tj\u00e1ir sig um meginmarkmi\u00f0 \u00feess \u00e1 \u00f6\u00f0rum vettvangi, t.d. \u00ed bla\u00f0agrein, \u00e1 bloggs\u00ed\u00f0u e\u00f0a t\u00edmariti, \u00fe\u00e1 telst \u00fea\u00f0 til opinberrar umr\u00e6\u00f0u og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri meira en umtalsver\u00f0 sker\u00f0ing \u00e1 ranns\u00f3knarfrelsi fr\u00e6\u00f0imanna og h\u00e1sk\u00f3la yfirleitt a\u00f0 mega ekki taka \u00fea\u00f0 til umfj\u00f6llunar \u00ed fr\u00e6\u00f0um s\u00ednum og kennslu. Hlutverk fr\u00e6\u00f0imanna og h\u00e1sk\u00f3la er m.a. a\u00f0 greina sl\u00edka hluti \u00ed opinberri umr\u00e6\u00f0u.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0Gagnr\u00fdnin er einnig afar m\u00f3tsagnakennd, \u00fear sem gefi\u00f0 er \u00ed skyn a\u00f0 uppl\u00fdsingar um f\u00e9lagsskapinn s\u00e9u slitnar \u00far samhengi, en um lei\u00f0 er k\u00e6ruefni\u00f0 nokkrar gl\u00e6rur \u00far kennsluefni heils n\u00e1mskei\u00f0s, \u00e1n nokkurs frekara samhengis, hvorki annarra gl\u00e6ra \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu og \u00fea\u00f0 sem mikilv\u00e6gara er, kennslunnar sj\u00e1lfrar. Me\u00f0 \u00feessum a\u00f0fer\u00f0um m\u00e6tti taka nokkra tilvitnanir fr\u00e6\u00f0imanns \u00ed a\u00f0ra og saka vi\u00f0komandi s\u00ed\u00f0an um si\u00f0leysi fyrir a\u00f0 nota \u00fe\u00e6r.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[- &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0Ekki ver\u00f0ur heldur r\u00e1\u00f0i\u00f0 af gl\u00e6runum a\u00f0 um skrumsk\u00e6lingu s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, enda m\u00e1 sj\u00e1 \u00e1 greinarger\u00f0 Bjarna Randvers a\u00f0 \u00fe\u00e1 hef\u00f0i hann haft \u00far verra efni fr\u00e1 forystum\u00f6nnum Vantr\u00faar a\u00f0 mo\u00f0a og s\u00fdnist m\u00e9r l\u00edtil innist\u00e6\u00f0a fyrir si\u00f0fer\u00f0ilegri vandl\u00e6tingu \u00feeirra.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0S\u00fa athugasemd a\u00f0 Bjarni Randver hafi ekki \u201ehaft samband vi\u00f0 Vantr\u00fa\u201c er \u00ed besta falli kj\u00e1naleg; fr\u00e6\u00f0imenn vinna \u00fat fr\u00e1 \u00feeim opinberu g\u00f6gnum sem fyrir liggja en eru ekkert skyldir til a\u00f0 leita til einstaklinga til \u201e\u00fatsk\u00fdringar\u201c \u00e1 \u00feeim. Fr\u00e6\u00f0imenn eru ekki d\u00f3marar \u00ed r\u00e9tti sem fella einhverja lokad\u00f3ma eftir vitnalei\u00f0slu, heldur standa fyrir opinberri og gagnr\u00fdninni umr\u00e6\u00f0u. B\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingar hringja til d\u00e6mis ekki \u00ed lifandi h\u00f6funda lon og don \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vita hva\u00f0 \u00feeir voru a\u00f0 hugsa, heldur greina verkin sj\u00e1lf sem \u00feeir eru a\u00f0 rannsaka og \u00feeir geta og eiga a\u00f0 sko\u00f0a allt sem m\u00e1li skiptir \u00ed \u00fev\u00ed samhengi, einnig t.d. \u00f6nnur skrif h\u00f6fundar. Sama \u00e1 vi\u00f0 \u00ed m\u00f6rgum greinum hug- og f\u00e9lagsv\u00edsinda.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[ &#8211; &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0Eftir n\u00e1kv\u00e6ma sko\u00f0un \u00e1 gl\u00e6runum \u00f6llum f\u00e6 \u00e9g engan veginn s\u00e9\u00f0 a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 t\u00falka \u00fe\u00e6r \u00e1 nokkurn h\u00e1tt sem si\u00f0lausar. S\u00e1 samanbur\u00f0ur sem \u00fear er ger\u00f0ur er fullkomlega r\u00e9ttl\u00e6tanlegur og \u00ed fullu samr\u00e6mi vi\u00f0 v\u00edsindalegar a\u00f0fer\u00f0ir. Sem mennta\u00f0ur \u00fe\u00fd\u00f0inga- og menningarf\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingur get \u00e9g fullyrt a\u00f0 greiningin \u00e1 mismuninum \u00e1 tr\u00fa- og gu\u00f0leysi og \u00feau \u00fe\u00fd\u00f0ingavandam\u00e1l sem fylgja or\u00f0inu atheism eru mj\u00f6g athyglisver\u00f0.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[- &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0Hvar sem liti\u00f0 er \u00e1 \u00feetta m\u00e1l ber allt a\u00f0 sama brunni. \u00dea\u00f0 vir\u00f0ist sem svo a\u00f0 Vantr\u00faarmenn, sem vissulega mega\u00a0 gagnr\u00fdna \u00dej\u00f3\u00f0kirkjuna og H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands hart, hafi kosi\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast a\u00f0 einum einstaklingi sem voga\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 sko\u00f0a a\u00f0fer\u00f0ir \u00feeirra \u00ed fr\u00e6\u00f0ilegu samhengi. Kannski er \u00fea\u00f0 til a\u00f0 koma h\u00f6ggi \u00e1 stofnanirnar. Hvort sem \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt e\u00f0a ekki, er enginn vafi \u00ed m\u00ednum huga a\u00f0 k\u00e6ra \u00feessi er algj\u00f6rlega tilefnislaus og \u00f3r\u00f6kstudd. \u00dea\u00f0 sem verra er, h\u00fan er a\u00f0f\u00f6r a\u00f0 ranns\u00f3knarfrelsi fr\u00e6\u00f0imanna sem er \u00feeim n\u00e1kv\u00e6mlega jafn d\u00fdrm\u00e6tt og m\u00e1lfrelsi\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0(Gauti Kristmannsson, dr. phil., d\u00f3sent \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.)<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Um gl\u00e6ruger\u00f0ina s\u00e9rstaklega segir h\u00e9r \u00ed enn einni greinarger\u00f0inni:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Gl\u00e6ruger\u00f0 Bjarna er \u00fe\u00f3 mj\u00f6g einf\u00f6ld. Hann n\u00fdtir eitt af algengari skapal\u00f3num gl\u00e6ruforritsins sem gefur efninu ofurl\u00edti\u00f0 hversdagslegt yfirbrag\u00f0. Hann n\u00fdtir myndefni e\u00f0a graf\u00edk hvergi \u00feannig a\u00f0 halda megi \u00fev\u00ed fram a\u00f0 framsetningin feli \u00e1 einhvern h\u00e1tt \u00ed s\u00e9r skrumsk\u00e6lingu e\u00f0a ford\u00e6mingu. Myndir eru birtar \u00e1 l\u00f3\u00f0r\u00e9ttum e\u00f0a l\u00e1r\u00e9ttum r\u00f6\u00f0um eftir \u00fev\u00ed sem forriti\u00f0 leyfir og texti \u00fdmist inni \u00ed \u00fear til ger\u00f0um gluggum e\u00f0a sem myndir sem k\u00f3pera\u00f0ar eru inn \u00ed forriti\u00f0. Textar eru ekki birtir \u00ed heild, \u00fe\u00f3 a\u00f0 Bjarni hafi tilhneigingu til a\u00f0 setja of mikinn texta og of miklar uppl\u00fdsingar \u00e1 hverja gl\u00e6ru. \u00dea\u00f0 m\u00e6tti jafnvel benda \u00e1 a\u00f0 gl\u00e6rurnar s\u00e9u alltof margar og alltof efnismiklar. En \u00fea\u00f0 er kennslufr\u00e6\u00f0ileg athugasemd hefur ekkert me\u00f0 k\u00e6runa a\u00f0 gera og er raunar \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 hana.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[- &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0K\u00e6rendur vir\u00f0ast \u00fev\u00ed \u00ed raun \u00e6tlast til \u00feess af honum a\u00f0 hann l\u00edti framhj\u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed efni sem \u00feeim finnst a\u00f0 kunni a\u00f0 ska\u00f0a m\u00e1lsta\u00f0 \u00feeirra. Auglj\u00f3slega v\u00e6ri hann hinsvegar a\u00f0 breg\u00f0ast nemendum s\u00ednum ef sl\u00edk sj\u00f3narmi\u00f0 stj\u00f3rnu\u00f0u vali hans \u00e1 tilvitnunum og textum. M\u00e9r vir\u00f0ist miklu n\u00e6rt\u00e6kara a\u00f0 gagnr\u00fdna Bjarna fyrir a\u00f0 vinsa of l\u00edti\u00f0 \u00far, taka of miki\u00f0 efni til umfj\u00f6llunar \u00ed t\u00edma frekar en hitt a\u00f0 hann velji \u00far \u00fev\u00ed \u00e1 \u00f3e\u00f0lilegan h\u00e1tt. En \u00fea\u00f0 er, sem fyrr segir, kennslufr\u00e6\u00f0ileg athugasemd, ekki \u00e1s\u00f6kun um misferli e\u00f0a si\u00f0fer\u00f0ilega \u00e1m\u00e6lisvert ath\u00e6fi.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0(J\u00f3n \u00d3lafsson, pr\u00f3fessor og forseti f\u00e9lagsv\u00edsindadeildar H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Bifr\u00f6st)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><\/p>\n<hr width=\"100%\" \/><b><font size=\"-1\">\u00a0\u00a0\u00a0<\/font><\/b><b><font size=\"-1\">\u00c9g \u00edtreka a\u00f0 \u00ed greinarger\u00f0um h\u00e1sk\u00f3lakennara koma fram s\u00f6mu a\u00f0alatri\u00f0i, \u00fe.e.a.s. a\u00f0 kennarinn er \u00e1kaflega vel a\u00f0 s\u00e9r um efni\u00f0, a\u00f0 gl\u00e6rurnar s\u00e9u \u00ed fullu samr\u00e6mi vi\u00f0 efnist\u00f6k \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu, a\u00f0 efni n\u00e1mskei\u00f0sins s\u00e9 afar \u00e1hugavert <\/font><\/b><font size=\"-1\">og stundum er l\u00e1ti\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed liggja a\u00f0 k\u00e6ra f\u00e9lagsins Vantr\u00faar \u201evir\u00f0ist borin fram af umhyggju fyrir einhverju \u00f6\u00f0ru en hei\u00f0ri akadem\u00edunnar\u201c (eins og Sigur\u00f0ur P\u00e1lsson gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur og dr. \u00ed menntunarfr\u00e6\u00f0i or\u00f0a\u00f0i svo).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">M\u00e9r fannst mj\u00f6g gaman a\u00f0 lesa \u00ed gegnum \u00feessar greinarger\u00f0ir \u00fdmissa h\u00e1sk\u00f3lakennara \u00far \u00f3l\u00edkum deildum og nemenda sem s\u00e1tu undir \u00feessari \u201ek\u00e6r\u00f0u\u201c kennslu. Kannski var s\u00e9rstaklega \u00e1hugavert a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk virtist hafa komist a\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00f6mu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u og \u00e9g ger\u00f0i sj\u00e1lf, \u00fe\u00e1 n\u00fdbyrju\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0 og blogga um \u00fea\u00f0. Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u m\u00edna \u00fe\u00e1 bygg\u00f0i \u00e9g n\u00e6r eing\u00f6ngu \u00e1 eigin reynslu sem framhaldssk\u00f3lakennari og nemandi \u00ed til nokku\u00f0 langs t\u00edma \u00ed \u00feeirri deild sem n\u00fa heitir \u00edslensku- og menningardeild H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, auk \u00feess sem \u00e9g las <i>Svar vi\u00f0 k\u00e6ru Vantr\u00faar. Greinarger\u00f0 l\u00f6g\u00f0 fyrir si\u00f0anefnd H\u00cd 2010<\/i>, \u00f3opinbert skjal \u00ed vinnslu eftir Bjarna Randver Sigur\u00f0sson, til a\u00f0 gl\u00f6ggva mig \u00e1 samhengi einstakra gl\u00e6ra vi\u00f0 kennsluna og n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0. \u00c9g las ekki \u00feessar greinarger\u00f0ir nemenda og kennara fyrr en \u00ed g\u00e6r.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Aths. 27. febr\u00faar: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0 Sj\u00f6 nemendur sem seti\u00f0 h\u00f6f\u00f0u \u00feann fr\u00e6ga k\u00fars N\u00fdtr\u00faarhreyfingar <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/09\/hvad-sogdu-nemendur-og-kennarar-um-kennslu-og-glaerur-bjarna-randvers\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[22],"tags":[],"class_list":["post-399","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-vantru-og-sianefnd-hi"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/399","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=399"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/399\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":687,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/399\/revisions\/687"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=399"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=399"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=399"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}