{"id":402,"date":"2012-02-19T19:13:08","date_gmt":"2012-02-19T19:13:08","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-02-19\/storf-ad-hoc-sidanefndar-i-mali-bjarna-randvers-og-inngrip-haskolarads\/"},"modified":"2013-11-21T09:25:23","modified_gmt":"2013-11-21T09:25:23","slug":"storf-ad-hoc-sidanefndar-i-mali-bjarna-randvers-og-inngrip-haskolarads","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/19\/storf-ad-hoc-sidanefndar-i-mali-bjarna-randvers-og-inngrip-haskolarads\/","title":{"rendered":"St\u00f6rf ad hoc si\u00f0anefndar \u00ed m\u00e1li Bjarna Randvers og inngrip H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\"><\/font><font size=\"-1\"><strong>Aths. 27. febr\u00faar<\/strong>: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um <a href=\"http:\/\/harpahreins.com\/vantru_gegn_bjarna_randveri.pdf\" title=\"Vantr\u00fa gegn Bjarna Randver pdf\">k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal<\/a>, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann 28. j\u00fan\u00ed 2010 skipa\u00f0i rektor <b>Ingvar Sigurgeirsson <\/b><i>ad hoc<\/i> [\u00fe.e. s\u00e9rstakan]<i> <\/i>formann si\u00f0anefndar \u00ed m\u00e1li nr. 1\/2010. Skv. l\u00f6gum H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00e1 H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 a\u00f0 sta\u00f0festa skipun rektors \u00e1 formanni si\u00f0anefndar en \u00fea\u00f0 var ekki gert \u00ed tilviki Ingvars. <\/font><font color=\"#663366\">\u00c1 fimmta fundi si\u00f0anefndar H\u00cd, \u00feann 9. j\u00fal\u00ed 2010, var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 n\u00fdta heimild \u00ed starfsreglum si\u00f0anefndar til a\u00f0 skipa tvo fulltr\u00faa til vi\u00f0b\u00f3tar<\/font> vi\u00f0 \u00feau <b>\u00deorstein Vilhj\u00e1lmsson<\/b> og <b>Sigr\u00ed\u00f0i \u00deorgeirsd\u00f3ttur<\/b>, sem \u00e1fram s\u00e1tu \u00ed nefndinni auk hins n\u00fdja formanns. Vi\u00f0b\u00f3tarfulltr\u00faarnir voru valdir a\u00f0 \u00f3sk Ingvars, \u00feau <b>Ger\u00f0ur G. \u00d3skarsd\u00f3ttir<\/b>, kennari \u00ed uppeldis-og kennslufr\u00e6\u00f0i \u00ed H\u00cd um langt skei\u00f0 \u00e1 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur, og <b>Gu\u00f0mundur Hei\u00f0ar Fr\u00edmannsson<\/b> heimspekingur, pr\u00f3fessor \u00ed kennaradeild H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 fimmta fundi nefndarinnar, fyrsta fundinum undir fors\u00e6ti Ingvars, var fari\u00f0 yfir m\u00e1li\u00f0, greinarger\u00f0 Bjarna Randvers Sigurvinssonar, <i>Svar vi\u00f0 k\u00e6ru Vantr\u00faar<\/i>, sko\u00f0u\u00f0 og b\u00f3ku\u00f0 \u00e1bending um a\u00f0 sv\u00f6r Bjarna mi\u00f0a\u00f0ist ekki vi\u00f0 k\u00e6ru og v\u00e6ri ekki a\u00f0 \u00f6llu leyti beint til si\u00f0anefndar. \u201e\u00c1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 kanna hvort. Bjarni vildi stytta sv\u00f6r s\u00edn og afmarka \u00feau betur vi\u00f0 hvern k\u00e6ruli\u00f0 \u00e1\u00f0ur en lengra er haldi\u00f0.\u201c<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 <b>si\u00f0anefnd H\u00cd haf\u00f0i ekki sj\u00e1lf afmarka\u00f0 k\u00e6ruli\u00f0i Vantr\u00faar<\/b> enda afar erfitt mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 k\u00e6rubr\u00e9fi\u00f0 sj\u00e1lft, me\u00f0fylgjandi feitetra\u00f0a og undirstrika\u00f0a b\u00fata \u00far si\u00f0areglum H\u00cd og greinarger\u00f0inni sem fylgdi er undarlegt a\u00f0 <b>hinum k\u00e6r\u00f0a, Bjarna Randver Sigurvinssyni, skuli vera fali\u00f0 a\u00f0 afmarka \u00feessa k\u00e6ruli\u00f0i og mi\u00f0a sv\u00f6r s\u00edn vi\u00f0 \u00feau<\/b>. Auk \u00feess hefur si\u00f0anefnd \u00e6vinlega haldi\u00f0 \u00fev\u00ed fram a\u00f0 enginn hafi mynda\u00f0 s\u00e9r efnislega sko\u00f0un \u00e1 k\u00e6ru Vantr\u00faar, hvorki fyrir \u00feennan t\u00edma n\u00e9 \u00ed \u00fea\u00f0 t\u00e6pa \u00e1r sem h\u00fan starfa\u00f0i eftir \u00feetta, undir stj\u00f3rn Ingvars Sigurgeirssonar. Hvernig er h\u00e6gt a\u00f0 afmarka k\u00e6ruli\u00f0i \u00ed \u00f3lj\u00f3su plaggi og m\u00e1ta vi\u00f0 si\u00f0areglur H\u00cd \u00e1n \u00feess a\u00f0 efnisleg sko\u00f0un liggi \u00fear a\u00f0 baki?<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Eftir a\u00f0 Bjarni Randver Sigurvinsson f\u00e9kk s\u00e9r l\u00f6gmann, Ragnar A\u00f0alsteinsson, til a\u00f0 g\u00e6ta r\u00e9ttar s\u00edns hausti\u00f0 2010, f\u00f3r l\u00f6gma\u00f0urinn fram \u00e1 a\u00f0 \u00feau \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson og Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorgeirsd\u00f3ttir vikju s\u00e6ti \u00far \u00feessari s\u00e9rst\u00f6ku (<i>ad hoc<\/i>) si\u00f0anefnd. \u00dev\u00ed hafna\u00f0i si\u00f0anefnd H\u00cd en svara\u00f0i ekki formlega fyrr en eftir d\u00fak og disk, \u00ed br\u00e9fi dags. 11. mars 2011:<\/font>\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Rangt er a\u00f0 \u00e1 framangreindu t\u00edmabili s\u00e1ttavi\u00f0r\u00e6\u00f0na [mars og apr\u00edl 2010] hafi afsta\u00f0a si\u00f0anefndar til m\u00e1lsins m\u00f3tast. Si\u00f0anefnd haf\u00f0i ekki afla\u00f0 gagna \u00ed m\u00e1linu og \u00fev\u00ed voru engar forsendur til a\u00f0 taka afst\u00f6\u00f0u til k\u00e6ruefnisins af h\u00e1lfu nefndarinnar. Li\u00f0ur \u00ed s\u00e1ttatill\u00f6gu \u00feeirri sem l\u00f6g\u00f0 var fram var a\u00f0 k\u00e6ran til si\u00f0anefndarinnar yr\u00f0i dregin til baka og \u00fe\u00f3tti af \u00feeim s\u00f6kum e\u00f0lilegt a\u00f0 <b>be\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri me\u00f0 efnislega me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1lsins<\/b> \u00fear til ni\u00f0ursta\u00f0a s\u00e1ttavi\u00f0r\u00e6\u00f0na l\u00e6gi fyrir. \u00cd s\u00e1ttatill\u00f6gunni kemur ekki fram hvort Bjarni hafi broti\u00f0 si\u00f0areglur h\u00e1sk\u00f3lans, en \u00fea\u00f0 \u00e1 samkv\u00e6mt starfsreglum nefndarinnar a\u00f0 koma fram \u00ed \u00e1liti hennar ef til \u00feess kemur. Si\u00f0anefnd \u00e1r\u00e9ttar a\u00f0 hugsanlegar \u00e1lyktanir f\u00e9lagsmanna Vantr\u00faar um st\u00f6\u00f0u s\u00e1ttatill\u00f6gunnar e\u00f0a afst\u00f6\u00f0u si\u00f0anefndar til hennar hafa enga \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00ed m\u00e1linu.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0Me\u00f0 v\u00edsan til framanrita\u00f0s <b>er \u00fea\u00f0 \u00e1lit si\u00f0anefndar a\u00f0 \u00feau Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorgeirsd\u00f3ttir og \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson hafi ekki teki\u00f0 afst\u00f6\u00f0u til k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1\u00f0ur en Bjarna gafst kostur \u00e1 a\u00f0 sk\u00fdra s\u00edna hli\u00f0 m\u00e1lsins<\/b>. S\u00e1ttatillagan f\u00f3l a\u00f0 engu leyti \u00ed s\u00e9r \u00e1lit si\u00f0anefndar e\u00f0a einstakra si\u00f0anefndarmanna \u00ed m\u00e1linu.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0(<i><a href=\"http:\/\/www.hi.is\/files\/skjol\/stjornsysla\/haskolarad\/Skyrsla_um_mal_sidanefndar_HI_nr1_2010.pdf\">Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0rar nefndar um m\u00e1l si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands nr. 1\/2010, a\u00f0draganda \u00feess og m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0<\/a><\/i>. September 2011, s. 48-49. Feitletrun m\u00edn. H\u00e9r eftir ver\u00f0ur v\u00edsa\u00f0 \u00ed \u00feetta plagg sem Sk\u00fdrslu \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar.)<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu var ger\u00f0 grein fyrir s\u00e1ttatill\u00f6gunni sem ber \u00e1 g\u00f3ma \u00ed \u00feessu br\u00e9fi Ingvars Sigurgeirssonar. Vissulega kemur ekki fram \u00ed henni hvort Bjarni Randver hef\u00f0i broti\u00f0 si\u00f0areglur H\u00cd enda \u00e1tti gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild a\u00f0 sakfella Bjarna Randver \u00ed \u00feessari s\u00e1ttatill\u00f6gu sem \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson, forma\u00f0ur si\u00f0anefndar H\u00cd, samdi. Si\u00f0anefnd hef\u00f0i \u00feannig or\u00f0i\u00f0 stikkfr\u00ed m\u00e1linu en s\u00f6k sta\u00f0fest hj\u00e1 gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild. S\u00fa deild var \u00fe\u00f3 aldrei k\u00e6r\u00f0 til si\u00f0anefndar H\u00cd.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Bjarna Randveri bau\u00f0st ekki a\u00f0 sk\u00fdra s\u00edna hli\u00f0 \u00e1 m\u00e1linu fyrr en laust fyrir mi\u00f0jan ma\u00ed 2010. \u00deegar si\u00f0anefnd H\u00cd skrifar br\u00e9fi\u00f0 11. mars 2011 voru fulltr\u00faar si\u00f0anefndar b\u00fanir a\u00f0 sko\u00f0a spjall\u00fer\u00e1\u00f0inn \u201eS\u00f6gusko\u00f0un Bjarna Randvers\u201c \u00ed bo\u00f0i Vantr\u00faar og hef\u00f0i m\u00e1tt \u00e6tla a\u00f0 si\u00f0anefndarmenn ger\u00f0u s\u00e9r sj\u00e1lfirm\u00e6tavel grein fyrir \u201ehugsanlegum \u00e1lyktunum f\u00e9lagsmanna Vantr\u00faar um st\u00f6\u00f0u s\u00e1ttatill\u00f6gunnar e\u00f0a afst\u00f6\u00f0u si\u00f0anefndar til hennar\u201c \u00fe\u00f3tt \u00feeir kysu n\u00fa a\u00f0 telja sl\u00edkt engu skipta. Si\u00f0anefnd H\u00cd vir\u00f0ist alfari\u00f0 hafa liti\u00f0\u00a0 fram hj\u00e1 verulega miklum samskiptum \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar og Reynis Har\u00f0arsonar, sem kemur r\u00e6kilega fram \u00e1 \u00feessum spjallvef, og hvernig \u00de\u00f3r\u00f0ur bar uppl\u00fdsingar \u00ed Reyni og \u00fatsk\u00fdr\u00f0i fyrir honum hvernig t.d. s\u00e1ttatillagan sem \u00e1tti a\u00f0 \u00fevinga gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild til a\u00f0 skrifa undir myndi n\u00fdtast f\u00e9laginu Vantr\u00fa \u00ed frekari m\u00e1lflutningi \u00feess.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann 1. september 2010, \u00e1 sj\u00f6tta fundi nefndarinnar er h\u00fan enn vi\u00f0 sama heygar\u00f0shorni\u00f0:<\/font>\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Nefndarmenn voru \u00e1 einu m\u00e1li um a\u00f0 k\u00e6ruli\u00f0ir s\u00e9u ekki n\u00e6gilega afmarka\u00f0ir me\u00f0 v\u00edsun til greina si\u00f0areglnanna svo og a\u00f0 skil \u00ed sv\u00f6rum Bjarna vi\u00f0 hverjum li\u00f0 k\u00e6runnar s\u00e9u \u00f3lj\u00f3s. <b>Si\u00f0anefnd heldur sig eing\u00f6ngu vi\u00f0 k\u00e6runa og \u00fearf a\u00f0 meta hvort og\/e\u00f0a hva\u00f0a greinar si\u00f0areglnanna eigi vi\u00f0 efni hverrar gl\u00e6ru og hvort um brot s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00ed hverju tilviki<\/b>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>\u00a0Gu\u00f0mundi Hei\u00f0ari og Ingibj\u00f6rgu [Haraldsd\u00f3ttur l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingi H\u00cd) fali\u00f0 a\u00f0 lista upp \u00f6ll k\u00e6ruatri\u00f0i Vantr\u00faar og sv\u00f6r vi\u00f0 \u00feeim \u00ed greinarger\u00f0 Bjarna<\/b>.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 sj\u00f6unda fund si\u00f0anefndar, 24. september 2010, m\u00e6ttu fulltr\u00faar Vantr\u00faar, \u00feeir Reynir Har\u00f0arson, Matth\u00edas \u00c1sgeirsson og Birkir Baldurson. \u00deeir ger\u00f0u grein fyrir \u00fev\u00ed hva\u00f0a \u00e1kv\u00e6\u00f0i si\u00f0areglna H\u00cd \u00feeir<\/font> <font size=\"-1\">t\u00f6ldu a\u00f0 hef\u00f0u veri\u00f0 brotnar og hvernig.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 t\u00edunda fund nefndarinnar \u00feann 13. jan\u00faar 2011 m\u00e6ttu, a\u00f0 eigin \u00f3sk, Reynir Har\u00f0arson og Matth\u00edas \u00c1sgeirsson, fulltr\u00faar Vantr\u00faar og ger\u00f0u grein fyrir skriflegum sv\u00f6rum s\u00ednum vi\u00f0 greinarger\u00f0 l\u00f6gmanns Bjarna Randvers fr\u00e1 16. desember 2010. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 bu\u00f0u \u00feeir si\u00f0anefnd til s\u00edn a\u00f0 sko\u00f0a g\u00f6gn \u00e1 innri vef Vantr\u00faar.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Samt h\u00f6f\u00f0u si\u00f0anefndarfulltr\u00faar alls ekki teki\u00f0 neina efnislega afst\u00f6\u00f0u til k\u00e6ruefnisins enn\u00fe\u00e1.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Si\u00f0anefndin \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 einbeita s\u00e9r a\u00f0 frekari uppl\u00fdsinga\u00f6flu<\/font><\/b><font size=\"-1\">n, kannski til a\u00f0 geta einhvern t\u00edma teki\u00f0 efnislega afst\u00f6\u00f0u til k\u00e6ru Vantr\u00faar?\u00a0 <b>Fyrri si\u00f0anefnd haf\u00f0i unni\u00f0 a\u00f0 sl\u00edku einnig<\/b>, \u00fe.e.a.s. \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson haf\u00f0i kynnt s\u00e9r f\u00e9lagsskapinn Vantr\u00fa og Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorgeirsd\u00f3ttir haf\u00f0i kynnt s\u00e9r fyrri m\u00e1l si\u00f0anefndar til a\u00f0 leita a\u00f0 m\u00f6gulegum ford\u00e6mum (\u00e9g reikna h\u00e9r me\u00f0 a\u00f0 \u00feau hafi fari\u00f0 eftir \u00fev\u00ed sem \u00feeim var sett fyrir a\u00f0 gera \u00e1 fyrsta fundi nefndarinnar). Bjarni Randver Sigurvinsson haf\u00f0i afhenti s\u00edna greinarger\u00f0, <i>Svar vi\u00f0 k\u00e6ru Vantr\u00faar<\/i>, \u00ed ma\u00ed 2010. Si\u00f0anefndinni undir stj\u00f3rn \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar haf\u00f0i ekki dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 sko\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0sg\u00f6gn en Ingvar Sigurgeirsson b\u00e6tti \u00far \u00fev\u00ed og <\/font><font color=\"#663366\">\u00e1 fundi si\u00f0anefndar fyrsta september 2010 kemur fram a\u00f0 <b>nefndarmenn hafi fengi\u00f0 kennslu\u00e1\u00e6tlun, pr\u00f3f og \u00f6nnur g\u00f6gn af vefsv\u00e6\u00f0i n\u00e1mskei\u00f0sins N\u00fdtr\u00faarhreyfingar<\/b> me\u00f0 leyfi Bjarna Randvers. <b>S\u00f6mulei\u00f0is h\u00f6f\u00f0u si\u00f0anefndarfulltr\u00faar fengi\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur kennslusk\u00f6nnunar<\/b> (sem er sta\u00f0la\u00f0 mat nemenda \u00e1 kennslu \u00ed h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1mskei\u00f0um) \u00ed N\u00fdtr\u00faarhreyfingum.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deetta \u00fe\u00f3tti si\u00f0anefndinni ekki n\u00f3g. \u00cd br\u00e9fi \u00feann 17. n\u00f3vember 2010 til kennslustj\u00f3ra Hugv\u00edsindasvi\u00f0s, <b>\u00f3ska\u00f0i si\u00f0anefnd eftir a\u00f0gangi a\u00f0 pr\u00f3f\u00farlausnum nemenda \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar<\/b>. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 kraf\u00f0ist l\u00f6gma\u00f0ur Bjarna Randvers r\u00f6kstu\u00f0nings fyrir nau\u00f0syn a\u00f0gangs a\u00f0 pr\u00f3f\u00farlausnunum. Svara\u00f0i forma\u00f0ur nefndarinnar, Ingvar Sigurgeirsson, \u00fev\u00ed m.a. me\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3sti til l\u00f6gmanns Bjarna Randvers \u00feann 26. n\u00f3vember 2010 og sag\u00f0i: \u201eMeginr\u00f6k fyrir \u00feessari bei\u00f0ni eru \u00feau a\u00f0 sv\u00f6r nemenda vi\u00f0 umr\u00e6ddri spurningu (og mat kennara \u00e1 \u00feeim) kunna a\u00f0 varpa lj\u00f3si \u00e1 umfj\u00f6llun um \u00fea\u00f0 efni sem k\u00e6rt hefur veri\u00f0 (efnist\u00f6k, \u00e1herslur, heimildir).\u201c<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Innskot: Um pr\u00f3f\u00farlausnir og pr\u00f3fspurningu<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af \u00fev\u00ed \u00ed umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0um vi\u00f0 fyrri bloggf\u00e6rslur m\u00ednar um \u00feetta m\u00e1l hefur veri\u00f0 talsvert minnst \u00e1 \u00feessar pr\u00f3f\u00farlausnir er r\u00e9tt a\u00f0 geta eftirfarandi sta\u00f0reynda um \u00fe\u00e6r:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Nemendur sv\u00f6r\u00f0u\u00f0 lokapr\u00f3finu \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar undir nafni og kennit\u00f6lu en ekki pr\u00f3fn\u00famerum. Spurning 4 \u00e1 lokapr\u00f3finu (en ekki \u00ed sj\u00fakrapr\u00f3fi) var \u00feannig:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Veldu <u>anna\u00f0 hvort<\/u> ritger\u00f0arverkefni A <u>e\u00f0a<\/u> B. (30%)<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0A) Ger\u00f0u grein fyrir Madame Blavatsky, \u00e6vi hennar, starfi og kenningum og r\u00f6kstyddu mat \u00feitt \u00e1 \u00feeim \u00e1hrifum sem h\u00fan hefur haft \u00e1 \u00fdmsar tr\u00faarhreyfingar og \u00feeirri gagnr\u00fdni sem h\u00fan hefur helst s\u00e6tt. F\u00e6r\u00f0u r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed hvernig tr\u00faarl\u00edfsf\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingar myndu skilgreina \u00feessar tr\u00faarhreyfingar f\u00e9lagslega.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0B) Ger\u00f0u grein fyrir f\u00e9l\u00f6gunum Si\u00f0mennt og Vantr\u00fa, s\u00f6gu \u00feeirra, sko\u00f0unum og starfsh\u00e1ttum og f\u00e6r\u00f0u r\u00f6k b\u00e6\u00f0i me\u00f0 og \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau geti talist tr\u00faarh\u00f3par. R\u00f6kstyddu mat \u00feitt \u00e1 \u00fev\u00ed hvort tr\u00faarl\u00edfsf\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0i geti n\u00fdst til skilnings \u00e1 \u00feessum f\u00e9l\u00f6gum.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Alls t\u00f3ku 20 nemendur a\u00f0alpr\u00f3fi\u00f0. \u00dear af v\u00f6ldu 13 e\u00f0a r\u00e9tt um 2\/3 nemenda ritger\u00f0arverkefni\u00f0 um Madame Blavatsky og gu\u00f0speki en a\u00f0eins 7 e\u00f0a r\u00e9tt um 1\/3 nemenda v\u00f6ldu ritger\u00f0arverkefni um Si\u00f0mennt og Vantr\u00fa og \u00f3l\u00edkar skilgreiningar \u00e1 tr\u00faarhugtakinu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Kennarinn, Bjarni Randver Sigurvinsson, var algerlega andv\u00edgur \u00fev\u00ed a\u00f0 afhenda si\u00f0anefnd H\u00cd \u00farlausnirnar \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r k\u00e6mu k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 hendur s\u00e9r ekki vi\u00f0 enda k\u00e6r\u00f0i Vantr\u00fa hvorki pr\u00f3f n\u00e9 yfirfer\u00f0. Hann benti \u00e1 a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 krefjast pr\u00f3f\u00farlausna a\u00f0 hluta e\u00f0a \u00ed heild v\u00e6ri si\u00f0anefnd \u00ed raun a\u00f0 brj\u00f3ta eigin starfsreglur \u00fear sem kve\u00f0i\u00f0 er \u00e1 um a\u00f0 h\u00fan megi ekki taka upp m\u00e1l a\u00f0 eigin frumkv\u00e6\u00f0i. Einnig leit Bjarni Randver svo \u00e1 broti\u00f0 v\u00e6ri \u00e1 fri\u00f0helgi einkal\u00edfs nemenda me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 framv\u00edsa pr\u00f3f\u00farlausnum \u00feeirra til \u00f3vi\u00f0komandi.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">En Bjarni Randver hafna\u00f0i bei\u00f0ni si\u00f0anefndar \u00fe\u00f3 ekki me\u00f0 \u00f6llu. Hann setti \u00fea\u00f0 skilyr\u00f0i a\u00f0: \u201e[&#8230;] hver og einn nemandi [ver\u00f0i] a\u00f0 veita skriflegt leyfi fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 pr\u00f3f\u00farlausnunum s\u00e9 framv\u00edsa\u00f0 til utana\u00f0komandi starfsmanna h\u00e1sk\u00f3lans og \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0eins eftir a\u00f0 s\u00e9rhver nemandi hefur kynnt s\u00e9r sj\u00f3narmi\u00f0 si\u00f0anefndarinnar og sj\u00f3narmi\u00f0 m\u00edn \u00fear sem \u00e9g m\u00e6li gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u afhendar.\u201c<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">(<i>\u00ddmis skj\u00f6l fr\u00e1 hinum k\u00e6r\u00f0a. Vegna k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni stundakennara fyrir Si\u00f0anefnd H\u00cd (k\u00e6rum\u00e1l nr. 1\/2010)<\/i>. \u00deetta er \u00f3opinbert skjal \u00ed vinnslu sem \u00e9g hef leyfi Bjarna Randvers til a\u00f0 vitna \u00ed).<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Si\u00f0anefnd fylgdi m\u00e1linu ekki frekar eftir og sko\u00f0a\u00f0i ekki sv\u00f6r \u00feessara sj\u00f6 nemenda vi\u00f0 B-m\u00f6guleikanum \u00ed valspurningu nr. 4 \u00ed pr\u00f3finu<\/font><\/b><font size=\"-1\">. Enda vands\u00e9\u00f0 hvernig \u00ed \u00f3sk\u00f6punum \u00feau sv\u00f6r hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 n\u00fdtast si\u00f0anefnd \u00ed a\u00f0 taka efnislega afst\u00f6\u00f0u til k\u00e6ru Vantr\u00faar vegna gl\u00e6ra \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;-<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hin s\u00e9rstaka si\u00f0anefnd \u00ed \u00feessu m\u00e1li h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 halda fundi en komst ekkert \u00e1fram. <b>H\u00fan f\u00f3r \u00ed sama farveg og si\u00f0anefndin undir stj\u00f3rn \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar og vildi afgrei\u00f0a m\u00e1li\u00f0 me\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 afgrei\u00f0a \u00fea\u00f0 ekki, \u00fe.e.a.s. koma \u00e1 einhvers konar s\u00e6ttum milli gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideildar, sem var ekki k\u00e6r\u00f0 til si\u00f0anefndar, og f\u00e9lagsins Vantr\u00faar.<\/b> \u00c1 t\u00edmabili var reynt a\u00f0 sansa Vantr\u00fa (og koma \u00ed veg fyrir k\u00e6ra Ragnars A\u00f0alsteinssonar yfir vanh\u00e6fi si\u00f0anefndar v\u00e6ri tekin fyrir \u00ed H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0i) me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a 750.000 kr. \u00ed einhvers konar \u00fatg\u00e1fu fr\u00e6\u00f0ilegs rits um tr\u00fa- og gu\u00f0leysi sem og samt\u00f6k er tengjast sl\u00edkri afst\u00f6\u00f0u \u00ed samvinnu vi\u00f0 Vantr\u00fa. Umr\u00e6\u00f0ur um \u00feetta f\u00f3ru fram me\u00f0 vitund og vilja stj\u00f3rns\u00fdslu H\u00cd og Ingvars Sigurgeirssonar formanns si\u00f0anefndar. (Sj\u00e1 B\u00f6rkur Gunnarsson. <a href=\"http:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2011\/12\/04\/heilagt_strid_vantruar\/\">Heilagt str\u00ed\u00f0 Vantr\u00faar<\/a>. <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> 4. desember 2011, s. 20. H\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed fr\u00e9ttask\u00fdringu Barkar \u00e1 mbl.is.) \u00deegar stj\u00f3rn Hugv\u00edsindasvi\u00f0s var\u00f0 \u00feessara \u00e1forma \u00e1skynja voru \u00feau slegin af.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font color=\"#993366\">Eftir t\u00f3lfta fund nefndarinnar, sem haldinn var 21. mars 2011 og framhaldi\u00f0 23. mars <\/font><font color=\"#000000\">var <\/font>mesti vindurinn \u00far si\u00f0anefnd. Ingvar Sigurgeirsson var a\u00f0 \u00fev\u00ed kominn segja af s\u00e9r st\u00f6rfum: \u201eR\u00e9tt er a\u00f0 taka fram a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i einnig sagt af m\u00e9r formennsku ef Vantr\u00fa hef\u00f0i ekki dregi\u00f0 k\u00e6ru s\u00edna til baka \u00e1 fundi me\u00f0 rektor H\u00e1sk\u00f3lans fimmtudaginn 28. apr\u00edl sl.\u201c (<a href=\"http:\/\/www.hi.is\/files\/skjol\/stjornsysla\/haskolarad\/Skyrsla_um_mal_sidanefndar_HI_nr1_2010.pdf\">Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar<\/a>, s. 64).<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Si\u00f0anefnd undir fors\u00e6ti \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar haf\u00f0i unni\u00f0 \u00f6tullega a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 draga gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild inn \u00ed k\u00e6rum\u00e1l Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver Sigurvinssyni. S\u00e9rst\u00f6k si\u00f0anefnd undir fors\u00e6ti Ingvars Sigurgeirssonar \u00feurfti a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 \u00fdmsar \u00f3\u00fe\u00e6gilegar spurningar og kvartanir \u00e6 fleiri kennara og fr\u00e6\u00f0imanna innan H\u00cd og annarra h\u00e1sk\u00f3la. F\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa h\u00e9lt uppiteknum h\u00e6tti \u00ed greinarskrifum gegn Bjarna Randveri og gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild, einkum \u00e1 Vefnum. \u00deessi greinarskrif beindust svo gegn stu\u00f0ningsm\u00f6nnum Bjarna Randvers \u00ed h\u00f3pi h\u00e1sk\u00f3lamanna. En f\u00e9laginu Vantr\u00fa \u00e6t\u00ed\u00f0 hefur legi\u00f0 gott or\u00f0 til beggja si\u00f0anefndarformanna.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 fundi rektors me\u00f0 Ingvari og fulltr\u00faum Vantr\u00faar \u00feann 28. apr\u00edl 2011 dr\u00f3 Vantr\u00fa k\u00e6ru s\u00edna til baka og a\u00f0komu si\u00f0anefndar lauk \u00fe\u00e1 sj\u00e1lfkrafa. F\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa hefur haldi\u00f0 \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00feetta hafi \u00fea\u00f0 gert vegna \u00feess a\u00f0 Vantr\u00fa hafi veri\u00f0 lofa\u00f0 a\u00f0 \u00f3h\u00e1\u00f0 nefnd t\u00e6ki \u00fat st\u00f6rf si\u00f0anefndar: \u201e<b>Ein af forsendum \u00feess a\u00f0 Vantr\u00fa dr\u00f3 erindi\u00f0 til baka var a\u00f0 stofnu\u00f0 yr\u00f0i \u00f3h\u00e1\u00f0 nefnd til a\u00f0 rannsaka s\u00f6gu m\u00e1lsins, \u00fear me\u00f0 tali\u00f0 tilraunir utana\u00f0komandi a\u00f0ila til a\u00f0 hafa \u00e1hrif \u00e1 st\u00f6rf si\u00f0anefndar. \u00dev\u00ed til sta\u00f0festingar m\u00e1 benda \u00e1 minnisbla\u00f0 rektors fr\u00e1 28. apr\u00edl, fyrir fund h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s og sama dag og Vantr\u00fa dr\u00f3 erindi\u00f0 til baka<\/b>\u201c \u00ed <a href=\"http:\/\/wayback.vefsafn.is\/wayback\/20111206000000\/http:\/\/vantru.is\/2011\/05\/11\/09.00\/\">A\u00f0f\u00f6r Gu\u00f0na El\u00edssonar a\u00f0 si\u00f0anefnd H\u00cd og Vantr\u00fa<\/a> \u00e1 vef Vantr\u00faar 11. ma\u00ed 2011 og athugasemd Baldvins (l\u00edklega Baldvins Arnar Einarssonar, varaforma\u00f0ur Vantr\u00faar) vi\u00f0 s\u00f6mu grein: \u201eM\u00e1li\u00f0 var komi\u00f0 \u00ed algj\u00f6ran hn\u00fat og vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 skera \u00e1 hann me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti <b>gegn \u00fev\u00ed m.a. a\u00f0 ferill m\u00e1lsins yr\u00f0i sko\u00f0a\u00f0ur af \u00f3h\u00e1\u00f0um a\u00f0ilum<\/b>.\u201c (Kr\u00e6kt er \u00ed greinina og athugasemdahalann \u00e1 Vefsafninu \u00fev\u00ed Vantr\u00fa hefur loka\u00f0 \u00e1 a\u00f0gang \u00e1 sinn vef af bloggs\u00ed\u00f0um m\u00ednum. Feitletrun m\u00edn.) <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deessa minnisbla\u00f0s er ekki geti\u00f0 \u00ed fundarger\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s \u00feann 17. ma\u00ed \u00fear sem talin eru upp g\u00f6gn og \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 setja \u00e1 stofn \u00f3h\u00e1\u00f0a nefnd sem fari ofan \u00ed saumana \u00e1 gangi m\u00e1lsins innan H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Afskipti h\u00e1sk\u00f3lakennara af h\u00f6ndlun k\u00e6rum\u00e1ls Vantr\u00faar gegn Bjarna Randveri Sigurvinssyni hj\u00e1 si\u00f0anefnd H\u00cd<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>30. apr\u00edl 2010<\/b> h\u00e9ldu kennarar og doktorsnemar vi\u00f0 Hugv\u00edsindasvi\u00f0 fund \u00fear sem fjalla\u00f0 er um k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 var sent br\u00e9f til si\u00f0anefndar undirrita\u00f0 af 22 af \u00feeim 23 sem voru \u00e1 fundinum. \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson \u00fe\u00e1verandi forma\u00f0ur si\u00f0anefndar svara\u00f0i br\u00e9finu en br\u00e9friturum hugna\u00f0ist illa svari\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd <b>september og okt\u00f3ber 2010<\/b> ritu\u00f0u ellefu einstaklingar greinarger\u00f0ir til stu\u00f0nings Bjarna Randveri Sigurvinssyni, \u00fear af voru \u00e1tta kennarar vi\u00f0 Hugv\u00edsindasvi\u00f0 H\u00cd, forseti f\u00e9lagsv\u00edsindadeildar H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Bifr\u00f6st, rektor \u00ed Sk\u00e1lholti og einn nemenda Bjarna Randvers (a\u00f0 eigin frumkv\u00e6\u00f0i). Sumar \u00feessara greinager\u00f0a voru sendar til si\u00f0anefndar \u00ed september og okt\u00f3ber en l\u00f6gma\u00f0ur Bjarna Randvers sendi \u00fe\u00e6r s\u00ed\u00f0an allar formlega til si\u00f0anefndar me\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3sti \u00feann 7. desember 2010. Ni\u00f0ursta\u00f0a allra greinarger\u00f0anna er a\u00f0 Bjarni Randver hafi ekki gerst brotlegur vi\u00f0 si\u00f0areglur me\u00f0 kennslu sinni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>15. desember 2010<\/b> m\u00f3tm\u00e6ltu 10 kennarar vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Bifr\u00f6st skriflega \u00f3sk si\u00f0anefndar um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 kynna s\u00e9r pr\u00f3f\u00farlausnir \u00far n\u00e1mskei\u00f0i Bjarna Randvers \u201eN\u00fdtr\u00faarhreyfingar\u201c. \u00deeir hv\u00f6ttu l\u00edka si\u00f0anefnd til a\u00f0 kalla eftir ums\u00f6gnum nemenda \u00far n\u00e1mskei\u00f0inu \u201etelji h\u00fan nau\u00f0synlegt a\u00f0 afla frekari gagna \u00ed m\u00e1linu.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>23. mars 2011 <\/b>ritu\u00f0u 12 h\u00e1sk\u00f3lakennarar H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0i H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands br\u00e9f \u00fat af me\u00f0fer\u00f0 \u00e1 k\u00e6ru Vantr\u00faar til si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, en \u00fear segir m.a.:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Vi\u00f0 undirrita\u00f0ir kennarar vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands l\u00fdsum \u00feungum \u00e1hyggjum af \u00fev\u00ed hvernig unni\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00far k\u00e6ru Vantr\u00faar til Si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands vegna umfj\u00f6llunar um f\u00e9lagi\u00f0 \u00ed kennslu Bjarna Randvers Sigurvinssonar, stundakennara \u00ed Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild, [- &#8211; -] Vi\u00f0 skorum \u00e1 H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 a\u00f0 skipa \u00f3h\u00e1\u00f0a ranns\u00f3knarnefnd um m\u00e1li\u00f0, a\u00f0draganda \u00feess og m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 alla, \u00fear sem ekkert ver\u00f0i dregi\u00f0 undan. Fulltr\u00faar \u00feessarar nefndar eiga ekki a\u00f0 vera starfsmenn vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og \u00e1n tengsla vi\u00f0 alla m\u00e1lsa\u00f0ila, svo a\u00f0 tryggja megi a\u00f0 fullu sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i hennar.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0(<a href=\"http:\/\/www.hi.is\/files\/skjol\/stjornsysla\/haskolarad\/Skyrsla_um_mal_sidanefndar_HI_nr1_2010.pdf\">Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar<\/a>, s. 66- 67.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>28 apr\u00edl 2011<\/b> ritu\u00f0u 40 akadem\u00edskir starfsmenn br\u00e9f til H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s um me\u00f0fer\u00f0 \u00e1 k\u00e6ru Vantr\u00faar til Si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. \u00dear segir m.a.:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Undirrita\u00f0ir akadem\u00edskir starfsmenn vi\u00f0 \u00edslenskar H\u00e1sk\u00f3la- og ranns\u00f3knarstofnanir \u00edtreka efnisatri\u00f0i \u00feau sem rakin voru \u00ed br\u00e9fi 12 h\u00e1sk\u00f3lakennara til h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s H\u00cd dags 23. mars 2011.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[- &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0Vi\u00f0 skorum \u00e1 H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 a\u00f0 skipa \u00f3h\u00e1\u00f0a ranns\u00f3knarnefnd um m\u00e1li\u00f0 [&#8230;]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0Lj\u00f3st er a\u00f0 \u00feetta m\u00e1l hefur vegna mistaka Si\u00f0anefndar H\u00cd fari\u00f0 \u00ed \u00f3\u00e6skilegan farveg sem ekki ver\u00f0u hj\u00e1 komist a\u00f0 h\u00e1sk\u00f3layfirv\u00f6ld breg\u00f0ist vi\u00f0. Ekki n\u00e6gir a\u00f0 v\u00edsa m\u00e1linu fr\u00e1 \u00e1 t\u00e6knilegum forsendum \u00far \u00fev\u00ed sem komi\u00f0 er. \u00deess vegna \u00edtrekum vi\u00f0 nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 skipu\u00f0 ver\u00f0i \u00f3h\u00e1\u00f0 ranns\u00f3knarnefnd um me\u00f0fer\u00f0ina \u00e1 k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni, en mikilv\u00e6gt er a\u00f0 \u00ed henni sitji einstaklingar sem engin tengsl hafa vi\u00f0 m\u00e1li\u00f0.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0(<a href=\"http:\/\/www.hi.is\/files\/skjol\/stjornsysla\/haskolarad\/Skyrsla_um_mal_sidanefndar_HI_nr1_2010.pdf\">Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar<\/a> s. 63.)<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><b><font size=\"-1\">\u00c1kv\u00f6r\u00f0un H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 <a href=\"http:\/\/www.hi.is\/skolinn\/haskolaradsfundur_5_mai_2011\">fundi H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s \u00feann 5. ma\u00ed 2011<\/a> voru tekin til umfj\u00f6llunar erindi er h\u00f6f\u00f0u borist h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0i vegna m\u00e1ls nr. 1\/2010 hj\u00e1 si\u00f0anefnd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. \u00c1 fundinum var eftirfarandi b\u00f3ka\u00f0 um dagskr\u00e1rli\u00f0inn:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0Erindi til h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s vegna m\u00e1ls 1\/2010 hj\u00e1 si\u00f0anefnd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, sbr. s\u00ed\u00f0asta fund.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0Fyrir fundinum l\u00e1gu eftirfarandi g\u00f6gn: Br\u00e9f pr\u00f3fessors vi\u00f0 Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild, dags. 21. mars sl., \u00ferj\u00fa br\u00e9f h\u00f3ps [svo] kennara H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, dags. 23. mars sl., 28. apr\u00edl sl. og 3. ma\u00ed sl., og br\u00e9f formanns si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, dags. 3. ma\u00ed sl. Inn \u00e1 fundinn kom Ingibj\u00f6rg Halld\u00f3rsd\u00f3ttir, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, og ger\u00f0i grein fyrir m\u00e1linu. M\u00e1li\u00f0 var r\u00e6tt \u00edtarlega og svara\u00f0i Ingibj\u00f6rg spurningum r\u00e1\u00f0smanna.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00a0&#8211; H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 sam\u00feykkir a\u00f0 skipa nefnd \u00f3h\u00e1\u00f0ra a\u00f0ila um m\u00e1l si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands nr. 1\/2010, a\u00f0draganda \u00feess og m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0. Nefndin fari yfir alla me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1lsins innan h\u00e1sk\u00f3lans fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 h\u00f3fst, me\u00f0fer\u00f0 si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, vinnubr\u00f6g\u00f0 og samskipti vi\u00f0 a\u00f0ila m\u00e1ls og a\u00f0ra innan h\u00e1sk\u00f3lans og utan, sem og afskipti annarra af me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1lsins. Hlutverk nefndarinnar ver\u00f0i a\u00f0 l\u00fdsa atvikum \u00e1 hlutl\u00e6gan h\u00e1tt og meta hvort e\u00f0lilega hafi veri\u00f0 sta\u00f0i\u00f0 a\u00f0 me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1lsins. Nefndinni er ekki \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 taka efnislega afst\u00f6\u00f0u til k\u00e6ruefnisins. Nefndinni ver\u00f0i jafnframt fali\u00f0 a\u00f0 fara yfir starfsreglur si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og eftir atvikum a\u00f0 gera till\u00f6gur til \u00farb\u00f3ta. Nefndin ver\u00f0i skipu\u00f0 \u00feeim \u00de\u00f3rhalli Vilhj\u00e1lmssyni, a\u00f0all\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingi Al\u00feingis, Sigur\u00f0i \u00de\u00f3r\u00f0arsyni, fyrrverandi r\u00edkisendursko\u00f0anda og El\u00ednu D\u00ed\u00f6nnu Gunnarsd\u00f3ttur, d\u00f3sent vi\u00f0 F\u00e9lagsv\u00edsindadeild H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann 17. ma\u00ed 2011 rita\u00f0i Ingvar Sigurgeirssonar pr\u00f3fessor br\u00e9f til rektors H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands en \u00fear kemur fram m.a.:<\/font>\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00a0\u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 \u00e1r\u00e9tta a\u00f0 <b>\u00e9g lag\u00f0i mig \u00ed framkr\u00f3ka vi\u00f0 a\u00f0 st\u00fdra \u00feessu m\u00e1li \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 starfsreglur si\u00f0anefndar og stj\u00f3rns\u00fdslul\u00f6g og af vir\u00f0ingu vi\u00f0 alla m\u00e1sa\u00f0ila <\/b>[svo]. \u00c1hersla var l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 rannsaka \u00feetta m\u00e1l til hl\u00edtar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 alla m\u00e1lsa\u00f0ila og sko\u00f0a r\u00e6kilega \u00feau g\u00f6gn sem varpa\u00f0 g\u00e6tu lj\u00f3si \u00e1 m\u00e1li\u00f0. \u00deetta reyndist ekki unnt, m.a. af \u00e1st\u00e6\u00f0um sem \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur gert \u00fe\u00e9r og h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0i grein fyrir. M\u00e1linu var spillt.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0[&#8230;]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\"><b>\u00a0\u00c9g haf\u00f0i kosi\u00f0 a\u00f0 halda m\u00e9r<\/b> [svo]<b> til hl\u00e9s \u00ed \u00feessu m\u00e1li me\u00f0an \u00fea\u00f0 er til ranns\u00f3knar af nefnd \u00feeirri sem skipu\u00f0 hefur veri\u00f0 af h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0i til a\u00f0 fara yfir \u00fea\u00f0, en ney\u00f0ist n\u00fa til a\u00f0 halda uppi v\u00f6rnum<\/b>. \u00c9g hl\u00fdt a\u00f0 m\u00e6lst [svo] eindregi\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa hlutist til um a\u00f0 nefndinni ver\u00f0i trygg\u00f0ur nau\u00f0synlegur starfsfri\u00f0ur, um lei\u00f0 og \u00e9g \u00e1tel og harma a\u00f0 starfsmenn H\u00e1sk\u00f3lans komi fram me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti \u00e1 opinberum vettvangi.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0(<a href=\"http:\/\/www.hi.is\/files\/skjol\/stjornsysla\/haskolarad\/Skyrsla_um_mal_sidanefndar_HI_nr1_2010.pdf\">Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar<\/a> s. 73. Feitletrun m\u00edn.)<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd n\u00e6stu f\u00e6rslu ver\u00f0ur ger\u00f0 grein fyrir meginni\u00f0urst\u00f6\u00f0u \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar (helstu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur hennar var\u00f0andi st\u00f6rf si\u00f0anefnda(r) H\u00cd voru raktar \u00ed f\u00e6rslunni <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-01-08\/ekki-malid-sem-sidanefnd-hi-tokst-ekki-ad-leysa\/\">Ekki-m\u00e1li\u00f0 sem Si\u00f0anefnd H\u00cd t\u00f3kst Ekki a\u00f0 leysa<\/a>) og eftirm\u00e1lum sem fylgdu \u00ed kj\u00f6lfar \u00feess a\u00f0 sk\u00fdrslan var\u00f0 opinber. Jafnframt ver\u00f0ur ger\u00f0 grein fyrir n\u00faverandi si\u00f0anefnd H\u00cd. S\u00ed\u00f0an ver\u00f0ur skrifu\u00f0 lokaf\u00e6rsla \u00fear sem reynt ver\u00f0ur a\u00f0 draga helstu \u00fe\u00e6tti \u00feessa undarlega m\u00e1ls saman.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Aths. 27. febr\u00faar: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0 \u00deann 28. j\u00fan\u00ed 2010 skipa\u00f0i rektor Ingvar Sigurgeirsson ad <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/19\/storf-ad-hoc-sidanefndar-i-mali-bjarna-randvers-og-inngrip-haskolarads\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[22],"tags":[],"class_list":["post-402","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-vantru-og-sianefnd-hi"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/402","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=402"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/402\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":683,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/402\/revisions\/683"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=402"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=402"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=402"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}