{"id":403,"date":"2012-02-21T17:07:24","date_gmt":"2012-02-21T17:07:24","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-02-21\/skyrsla-ohadu-nefndarinnar-og-eftirmal\/"},"modified":"2013-11-21T09:25:11","modified_gmt":"2013-11-21T09:25:11","slug":"skyrsla-ohadu-nefndarinnar-og-eftirmal","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/21\/skyrsla-ohadu-nefndarinnar-og-eftirmal\/","title":{"rendered":"Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar og eftirm\u00e1l"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\"><\/font><font size=\"-1\"><strong>Aths. 27. febr\u00faar<\/strong>: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um <a href=\"http:\/\/harpahreins.com\/vantru_gegn_bjarna_randveri.pdf\" title=\"Vantr\u00fa gegn Bjarna Randver pdf\">k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal<\/a>, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 fundi h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s 5. ma\u00ed sl. skipa\u00f0i h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 nefnd \u00feriggja \u00f3h\u00e1\u00f0ra a\u00f0ila um m\u00e1l si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands nr. 1\/2010, a\u00f0draganda \u00feess og m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0. Nefndinni var jafnframt fali\u00f0 a\u00f0 fara yfir starfsreglur si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og eftir atvikum a\u00f0 gera till\u00f6gur til \u00farb\u00f3ta \u00ed lj\u00f3si reynslunnar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Nefndin skila\u00f0i sk\u00fdrslu til H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s \u00feann 14. september 2011 og h\u00fan var til umfj\u00f6llunar \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.hi.is\/skolinn\/haskolaradsfundur_13_oktober_2011\">fundi H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s \u00feann <b>13. okt\u00f3ber 2011<\/b><\/a>. \u00cd fundarger\u00f0 \u00feess fundar er tengt \u00ed sk\u00fdrsluna.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 sam\u00feykkti a\u00f0 breyta starfsreglum si\u00f0anefndar \u00ed kj\u00f6lfar \u00fattektar \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar. Breytingarnar eru sm\u00e1v\u00e6gilegar og einna helst \u00fe\u00e6r a\u00f0 skerpa \u00e1 starfsreglunum eins og \u00fe\u00e6r voru fyrir. \u00cd \u00e1lyktun H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s vegna sk\u00fdrslunnar, \u00feann 13. okt\u00f3ber s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn, segir m.a.:<\/font>\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">K\u00e6ra \u00ed m\u00e1li si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands nr. 1\/2010 var dregin til baka og er m\u00e1linu \u00fear me\u00f0 formlega loki\u00f0. [&#8212;]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fyrir liggur a\u00f0 ekki var tekin efnisleg afsta\u00f0a til \u00e1litaefnisins \u00ed m\u00e1li si\u00f0anefndar nr. 1\/2010 og hinni \u00f3h\u00e1\u00f0u nefnd var ekki fali\u00f0 \u00fea\u00f0 vi\u00f0fangsefni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af h\u00e1lfu H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands er af m\u00e1linu \u00ed heild dreginn s\u00e1 l\u00e6rd\u00f3mur a\u00f0 tryggja ver\u00f0ur eftir m\u00e6tti formfestu og tr\u00fana\u00f0 \u00ed me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1la si\u00f0anefndar innan h\u00e1sk\u00f3lans. [&#8212;]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd annan sta\u00f0 eru athugasemdir og \u00e1bendingar um a\u00f0komu yfirstj\u00f3rnar og stj\u00f3rns\u00fdslu h\u00e1sk\u00f3lans a\u00f0 m\u00e1linu teknar til greina. [&#8212;]<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">S\u00ed\u00f0an segir a\u00f0 H\u00e1sk\u00f3linn muni gera sitt til a\u00f0 s\u00e1rindi vegna m\u00e1lsins megi gr\u00f3a um heilt og a\u00f0 fela \u00feremur starfsnefndum H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s \u201ea\u00f0 standa sameiginlega a\u00f0 faglegri umfj\u00f6llun um si\u00f0fer\u00f0ilegar hli\u00f0ar akadem\u00edsks frelsis \u00ed kennslu og ranns\u00f3knum fyrir lok jan\u00faar 2012, me\u00f0 opnu m\u00e1l\u00feingi um efni\u00f0.\u201c<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/afellisdomur.jpg?resize=70%2C70\" alt=\"\u00c1fellisd\u00f3mur \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar\" align=\"left\" height=\"70\" width=\"70\" \/><font size=\"-1\">Meginni\u00f0ursta\u00f0a <a href=\"http:\/\/www.hi.is\/files\/skjol\/stjornsysla\/haskolarad\/Skyrsla_um_mal_sidanefndar_HI_nr1_2010.pdf\" title=\"Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0rar nefndar um si\u00f0anefnd H\u00cd\">Sk\u00fdrslu \u00f3h\u00e1\u00f0rar nefndar um m\u00e1l si\u00f0anefndar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands nr. 1\/2010, a\u00f0draganda \u00feess og m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0<\/a> var <b>a\u00f0 si\u00f0anefnd hef\u00f0i ekki \u00ed upphafi m\u00e1ls lagt sj\u00e1lfst\u00e6tt mat \u00e1 hvort k\u00e6ra Vantr\u00faar snerti si\u00f0areglur H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, eins og henni bar a\u00f0 gera skv. 4 gr. starfsreglna si\u00f0anefndar<\/b> og a\u00f0 si\u00f0anefnd hafi heldur ekki gert \u00feetta \u00e1 s\u00ed\u00f0ari stigum. A\u00f0rar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur eru m.a. gagnr\u00fdni \u00e1 \u00f3formleg samskipti einstakra nefndarmanna vi\u00f0 m\u00e1lsa\u00f0ila \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1 fundum si\u00f0anefndar, a\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur H\u00cd skuli hafa veri\u00f0 l\u00e1tinn starfa fyrir si\u00f0anefndina, a\u00f0 si\u00f0anefnd hafi sta\u00f0i\u00f0 fyrir a\u00f0 reyna a\u00f0 s\u00e6tta Vantr\u00fa og gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild \u00e1n nokkurrar a\u00f0komu Bjarna Randvers Sigurvinssonar og <b>a\u00f0 \u00f3vi\u00f0unandi s\u00e9, fyrir H\u00cd og m\u00e1lsa\u00f0ila, a\u00f0 ekki skuli hafa tekist a\u00f0 lj\u00faka m\u00e1linu efnislega<\/b>. (Sj\u00e1 s. 6-9 \u00ed \u00feessari sk\u00fdrslu.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>4. desember 2011<\/b> birti <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> fr\u00e9ttask\u00fdringu Barkar Gunnarssonar, <a href=\"http:\/\/mbl.is\/frettir\/innlent\/2011\/12\/04\/heilagt_strid_vantruar\/\" title=\"Heilagt str\ufffd\u00f0 Vantr\u00faar\">Heilagt str\u00ed\u00f0 Vantr\u00faar<\/a>, \u00fear sem m\u00e1larekstur gegn Bjarna Randveri Sigurvinssyni, bygg\u00f0ur \u00e1 k\u00e6rum Vantr\u00faar, var rakinn fr\u00e1 upphafi til \u00feess dags. (Raunar var greinin Heilagt str\u00ed\u00f0 Vantr\u00faar \u00ed <i>Sunnudagsbla\u00f0i Morgunbla\u00f0sins<\/i> og var \u00fev\u00ed dreift daginn \u00e1\u00f0ur, \u00feann 3. desember 2011. H\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed fr\u00e9ttask\u00fdringuna \u00e1 mbl.is. Henni var fylgt eftir me\u00f0 annarri grein viku s\u00ed\u00f0ar, <a href=\"http:\/\/www.mbl.is\/greinasafn\/innskraning\/?redirect=%2Fgreinasafn%2Fgrein%2F1403180%2F%3Ft%3D213440987&amp;page_name=article&amp;grein_id=1403180\" title=\"Einelti Vantr\u00faar\">Einelti vantr\u00faarf\u00e9laga<\/a>, en s\u00fa grein er l\u00e6st \u00f6\u00f0rum en kaupendum <i>Morgunbla\u00f0sins<\/i>.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fr\u00e9ttask\u00fdringin vakti strax mj\u00f6g mikla athygli. Til \u00feessa h\u00f6f\u00f0u birst fr\u00e9ttir af m\u00e1linu \u00e1 stangli, eftir a\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lakennarar ger\u00f0ust stu\u00f0ningsmenn Bjarna Randvers \u00ed \u00e6 r\u00edkari m\u00e6li, en a\u00f0allega haf\u00f0i veri\u00f0 fjalla\u00f0 um m\u00e1li\u00f0 af h\u00e1lfu Vantr\u00faar, \u00ed g\u00edfurlegum fj\u00f6lda greina \u00e1 vef f\u00e9lagsins og bloggum f\u00e9lagsmanna.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>5. desember 2011<\/b> birtist grein eftir Gu\u00f0mund Andra Thorsson \u00ed <i>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu<\/i>. Greinin heitir <a href=\"http:\/\/www.visir.is\/banntruarmenn-\/article\/2011712059985?fb_ref=under&amp;fb_source=home_multiline\" title=\"Banntr\u00faarmenn\">Banntr\u00faarmenn<\/a>. \u00cd henni fjallar Gu\u00f0mundur Andri um upplifun s\u00edna af lestri fr\u00e9ttask\u00fdringar Barkar Gunnarssonar, um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa eins og \u00fea\u00f0 kemur honum fyrir sj\u00f3nir, um akadem\u00edskt frelsi og loks undrast hann mj\u00f6g vinnbr\u00f6g\u00f0 si\u00f0anefndar. \u00cd greininni segir Gu\u00f0mundur Andri m.a.:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">Sem sagt. \u00dea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 \u00feurfa miki\u00f0 til a\u00f0 gr\u00edpa fram fyrir hendurnar \u00e1 kennara og veita honum \u00e1minningu. \u00deegar kennari \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ideild v\u00edkur a\u00f0 f\u00e9lagsskapnum Vantr\u00fa \u00ed t\u00edmum \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i er hann v\u00e6ntanlega a\u00f0 sko\u00f0a \u00feennan f\u00e9lagsskap \u00ed tilteknu samhengi sinna fr\u00e6\u00f0a, \u00e1 tiltekinn akadem\u00edskan h\u00e1tt eins og honum er b\u00e6\u00f0i frj\u00e1lst og skylt a\u00f0 gera \u00ed \u00feessu umhverfi. F\u00e9lagsskapurinn Vantr\u00fa haf\u00f0i fregnir af \u00fev\u00ed a\u00f0 Bjarni Randver hef\u00f0i fjalla\u00f0 um starfsemi hans og annarra f\u00e9laga. \u00deeir s\u00e1u \u00fe\u00e1 gulli\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 gera gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ideild H\u00cd og \u00feessum kennara alveg s\u00e9rstaklega l\u00edfi\u00f0 leitt, sem svo sannarlega hefur tekist: Bjarni Randver situr n\u00fa uppi me\u00f0 mikinn l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ikostna\u00f0 og mikla arm\u00e6\u00f0u vi\u00f0 a\u00f0 verjast atl\u00f6gum hinna k\u00e1tu f\u00e9laga \u00ed Vantr\u00fa, sem samkv\u00e6mt grein Barkar vir\u00f0ast hafa skipulagt l\u00e1tlausar \u00e1r\u00e1sir \u00e1 Bjarna til a\u00f0 hrekja hann \u00far starfi fyrir \u00fe\u00e6r sakir a\u00f0 hafa ekki fari\u00f0 \u00feeim or\u00f0um um f\u00e9lagsskapinn sem f\u00e9lagsmenn t\u00f6ldu tilhl\u00fd\u00f0ilegt. Ekki er a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 Si\u00f0anefnd hafi g\u00e6tt \u00feess a\u00f0 Bjarni fengi sanngjarna m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 og \u00fea\u00f0 er ekki fyrr en Gu\u00f0ni El\u00edsson, pr\u00f3fessor \u00ed b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i, gengur \u00ed m\u00e1li\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 honum ofb\u00fd\u00f0ur m\u00e1latilb\u00fana\u00f0urinn, a\u00f0 Bjarni f\u00e6r stu\u00f0ning innan veggja H\u00cd.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er alltaf h\u00e6ttulegt \u00feegar hugmyndabar\u00e1ttan fer yfir \u00e1 svi\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0innar. \u00dea\u00f0 er alltaf \u00f6murlegt \u00feegar h\u00f3pur manna hefur samr\u00e1\u00f0 um a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast a\u00f0 einum einstaklingi.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>5. desember 2011<\/b> var vi\u00f0tal vi\u00f0 Bjarna Randver Sigurvinsson \u00ed Kastlj\u00f3si \u00e1 R\u00daV \u00fear sem hann ger\u00f0i grein fyrir \u00feessu m\u00e1li. Yfirskriftin var <a href=\"http:\/\/www.ruv.is\/frett\/kastljos\/vantru-gegn-stundakennara-hi\" title=\"Vantr\u00fa gegn stundakennara H\u00cd\">Vantr\u00fa gegn stundakennara H\u00cd<\/a> (h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed \u00feennan hluta Kastlj\u00f3ss.)<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/frettir.jpg?resize=133%2C100\" alt=\"Fr\u00e9ttir af m\u00e1li Bjarna Randvers\" align=\"left\" height=\"100\" width=\"133\" \/><font size=\"-1\">Daginn eftir, <b>6. desember 2011<\/b>, birtust a.m.k. tv\u00e6r fr\u00e9ttir \u00fear sem <i>Eyjan<\/i> dr\u00f3 taum vantr\u00faarf\u00e9laga, <a href=\"http:\/\/eyjan.is\/2011\/12\/06\/einelti-fjarri-lagi-segja-vantruarmenn\/?utm_source=feedburner&amp;utm_medium=feed&amp;utm_campaign=Feed%3A+Eyjan+%28Eyjan%29\" title=\"Vantr\u00fa um einelti\">Einelti fjarri lagi segja Vantr\u00faarmenn. Hafna m\u00e1latilb\u00fana\u00f0i stundakennara<\/a>, (sem nutu \u00fe\u00f3 l\u00edtils stu\u00f0nings \u00ed umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i vi\u00f0 fr\u00e9ttina) og <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> l\u00fdsti sj\u00f3narmi\u00f0um Bjarna Randvers og Krist\u00ednar Ing\u00f3lfsd\u00f3ttur h\u00e1sk\u00f3larektors, <a href=\"http:\/\/mbl.is\/frettir\/innlent\/2011\/12\/06\/vill_ad_hi_baeti_mannordstjon_og_kostnad\/\" title=\"Krist\ufffdn Ing\u00f3lfsd\u00f3ttir h\u00e1sk\u00f3larektor um m\u00e1l Bjarna Randvers\">Vill a\u00f0 H\u00cd b\u00e6ti mannor\u00f0stj\u00f3n og kostna\u00f0<\/a>. Eins og titill s\u00ed\u00f0arnefndu fr\u00e9ttarinnar ber me\u00f0 s\u00e9r vill Bjarni Randver f\u00e1 b\u00e6ttan sinn ska\u00f0a. <b>Krist\u00edn Ing\u00f3lfsd\u00f3ttir rektor H\u00cd segir \u00fear a\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson og \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson hafi unni\u00f0 \u00ed g\u00f3\u00f0ri tr\u00fa og \u201evilja\u00f0 leita s\u00e1tta \u00feannig a\u00f0 enginn teldi \u00e1 sig halla\u00f0.<\/b>\u201c H\u00fan v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 almennt hafi l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ikostna\u00f0ur sem stofna\u00f0 er til vegna k\u00e6ru til si\u00f0anefnda ekki veri\u00f0 greiddur af stofnunum sem reki si\u00f0anefndirnar [en Bjarni Randver vill a\u00f0 H\u00cd grei\u00f0i l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingnum sem hann neyddist til a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r \u00ed me\u00f0fer\u00f0 si\u00f0anefndar.). Krist\u00edn \u00e1r\u00e9ttar sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i si\u00f0anefndar H\u00cd og \u00feess vegna hafi rektor ekki \u00e1tt a\u00f0 skipta s\u00e9r neitt af m\u00e1linu. A\u00f0 lokum er haft eftir Krist\u00ednu Ing\u00f3lfsd\u00f3ttur \u00ed \u00feessari fr\u00e9tt: \u201e<b>Krist\u00edn hafnar \u00fev\u00ed a\u00f0 sk\u00fdrslan s\u00e9 \u00e1fellisd\u00f3mur yfir si\u00f0anefnd<\/b>. M\u00e1li\u00f0 hafi undi\u00f0 upp \u00e1 sig af m\u00f6rgum \u00e1st\u00e6\u00f0um og or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 st\u00f3ru m\u00e1li.\u201c (Feitletranir eru m\u00ednar.)<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>8. desember 2011<\/b> birti <i>Morgunbla\u00f0i\u00f0<\/i> a\u00f0senda grein \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar formanns si\u00f0anefndar H\u00cd, <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2011\/12\/08\/10.00\/\" title=\"\u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson forma\u00f0ur si\u00f0anefndar H\u00cd\">Greinarger\u00f0 \u00ed si\u00f0anefndarm\u00e1li<\/a>. (H\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed greinarger\u00f0ina \u00e1 vef Vantr\u00faar en \u00de\u00f3r\u00f0ur veitti Vantr\u00fa leyfi fyrir birtingunni. Lesendur athugi a\u00f0 Vantr\u00fa hefur loka\u00f0 fyrir a\u00f0gang a\u00f0 eigin s\u00ed\u00f0um af \u00feessu bloggi. \u00c9g hef fjalla\u00f0 um hluta \u00feessarar greinar \u00ed f\u00e6rslunni <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-02-17\/medferd-kaeru-vantruar-i-hondum-thordar-hardarsonar-ofl-i-sidanefnd-hi\/\">Me\u00f0fer\u00f0 k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00ed h\u00f6ndum \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar o.fl. \u00ed si\u00f0anefnd H\u00cd<\/a>.) Gagnr\u00fdni \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar \u00e1 st\u00f6rf \u00de\u00f3r\u00f0ar og si\u00f0anefndar undir hans stj\u00f3rn svarar \u00de\u00f3r\u00f0ur svona:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">Loks er a\u00f0 geta um ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur hinnar \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndar h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s um st\u00f6rf si\u00f0anefndar. Ekkert kemur fram \u00ed ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um hennar, sem kalla m\u00e1 \u00e1fellisd\u00f3m um \u00feau. Til d\u00e6mis er ekkert teki\u00f0 undir \u00e1sakanir um hlutdr\u00e6gni. Tvennt er einkum gagnr\u00fdnt:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">1) Nefndin t\u00f3k ekki k\u00e6runa formlega fyrir. \u00dev\u00ed er til a\u00f0 svara, a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed s\u00e1ttatilraunir var k\u00e6ran tekin fyrir. Annars hef\u00f0i henni veri\u00f0 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">2) Of miki\u00f0 af starfi nefndarinnar (formanns) f\u00f3r fram utan funda nefndarinnar. \u00dev\u00ed er til a\u00f0 svara, a\u00f0 forma\u00f0ur kann ekki a\u00f0ra a\u00f0fer\u00f0 en tr\u00fana\u00f0arsamt\u00f6l, ef leita \u00e1 s\u00e1tta milli a\u00f0ila \u00ed vi\u00f0kv\u00e6mu deilum\u00e1li<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>9. desember 2011<\/b> andm\u00e6lti P\u00e9tur P\u00e9tursson, pr\u00f3fessor vi\u00f0 gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild H\u00cd og starfandi deildarforseti \u00ed si\u00f0anefndart\u00ed\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f0ar, honum harkalega \u00ed grein \u00ed <i>Morgunbla\u00f0inu, <\/i><a href=\"http:\/\/mbl.is\/greinasafn\/grein\/1403098\/?item_num=19&amp;searchid=333e7397e6918538db9e27825abd210dd0bd5124&amp;t=545081688\" title=\"P\u00e9tur P\u00e9tursson um \u00de\u00f3r\u00f0 Har\u00f0arson formann si\u00f0anefndar H\u00cd\">Rangf\u00e6rslur \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar formanns si\u00f0anefndar<\/a>. (Greinin er l\u00e6st \u00f6\u00f0rum en kaupendum <i>Morgunbla\u00f0sins<\/i>. \u00c9g vitna\u00f0i \u00ed \u00feessa grein \u00ed s\u00f6mu f\u00e6rslu og fyrr var v\u00edsa\u00f0 til). P\u00e9tur lauk m\u00e1li s\u00ednu \u00feannig:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson telur sig ekki hafa neitt vald sem forma\u00f0ur si\u00f0anefndar og starfa eing\u00f6ngu \u00ed s\u00e1ttahug. Hvorugt er r\u00e9tt. \u00c1minning af h\u00e1lfu si\u00f0anefndar gerir \u00fat um frama vi\u00f0komandi einstaklings innan h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagsins. \u00cd skugga \u00feess valds starfar forma\u00f0urinn og hann beitir \u00fev\u00ed b\u00e6\u00f0i af lagni og l\u00e6v\u00edsi. \u00dea\u00f0 hef \u00e9g fundi\u00f0 \u00e1 eigin skinni fr\u00e1 upphafi og n\u00fa \u00ed \u00feessari Morgunbla\u00f0sgrein hans. \u00dea\u00f0 er \u00f3\u00e1s\u00e6ttanlegt a\u00f0 hann sitji \u00e1fram sem forma\u00f0ur si\u00f0anefndarinnar eftir \u00feann \u00e1fellisd\u00f3m sem \u00f3h\u00e1\u00f0 ranns\u00f3knarnefnd \u00e1 vegum H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s felldi yfir st\u00f6rfum hans \u00ed sk\u00fdrslu sinni \u00ed okt\u00f3ber sl.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/hopur.jpg?resize=176%2C131\" alt=\"h\u00f3pur stu\u00f0ningsmanna\" align=\"right\" height=\"131\" width=\"176\" \/><font size=\"-1\">\u00deann <b>13. desember 2011<\/b> birtist yfirl\u00fdsing yfir hundra\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lakennara um m\u00e1larekstur gegn Bjarna Randveri Sigurvinssyni \u00ed h\u00f6ndum si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed m\u00f6rgum fj\u00f6lmi\u00f0lum. H\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed\u00a0hana \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu<\/em>, <a href=\"http:\/\/www.visir.is\/yfirlysing-vegna-kaeru-a-hendur-bjarna-randveri-sigurvinssyni\/article\/2011712139999\" title=\"Yfirl\u00fdsing h\u00e1sk\u00f3lakennara vegna k\u00e6ru gegn Bjarna Randveri\">Yfirl\u00fdsing vegna k\u00e6ru \u00e1 hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni<\/a>. \u00cd yfirl\u00fdsingunni segir m.a.:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">Meginatri\u00f0i m\u00e1lsins eru \u00fe\u00f3 einf\u00f6ld. Strax \u00ed upphafi k\u00e6ruferlisins, snemma \u00e1rs 2010, braut Si\u00f0anefnd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00e1 r\u00e9tti stundakennara vi\u00f0 H\u00cd me\u00f0 svo alvarlegum h\u00e6tti a\u00f0 h\u00fan spillti m\u00e1linu \u00f6llu. Si\u00f0anefnd lag\u00f0i fram s\u00e1ttatill\u00f6gu \u00fear sem fallast \u00e1tti \u00e1 sekt kennarans \u00e1n sam\u00feykkis hans. \u00deetta ger\u00f0ist \u00e1\u00f0ur en si\u00f0anefndin haf\u00f0i afla\u00f0 s\u00e9r gagna \u00ed m\u00e1linu og var kennaranum me\u00f0 \u00f6llu haldi\u00f0 utan vi\u00f0 m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0ina.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ekkert \u00ed g\u00f6gnum m\u00e1lsins bendir til \u00feess a\u00f0 kennarinn hafi \u00e1 neinn h\u00e1tt gerst brotlegur vi\u00f0 si\u00f0areglur H\u00cd. [- &#8211; -]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sk\u00fdrsla ranns\u00f3knarnefndar \u00feeirrar sem h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 skipa\u00f0i er alvarlegur \u00e1fellisd\u00f3mur um vinnubr\u00f6g\u00f0 si\u00f0anefndarinnar, sem \u00fev\u00ed mi\u00f0ur t\u00f3k afst\u00f6\u00f0u gegn Bjarna Randveri me\u00f0 s\u00e1ttatill\u00f6gu \u00fear sem Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild \u00e1tti a\u00f0 \u201evi\u00f0urkenna og harma, a\u00f0 kennsluefni\u00f0 feli ekki \u00ed s\u00e9r hlutl\u00e6ga og sanngjarna umfj\u00f6llun um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa, m\u00e1lsta\u00f0 \u00feess og einstaka f\u00e9lagsmenn.\u201c K\u00e6randinn f\u00e9kk s\u00e1ttatill\u00f6guna \u00ed hendur og hefur beitt henni \u00ed opinberum m\u00e1lflutningi s\u00ednum enda \u00fe\u00f3tt till\u00f6gunni v\u00e6ri me\u00f0 \u00f6llu hafna\u00f0 \u00e1 kennarafundi Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideildar.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">[- &#8211; -]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Gagnr\u00fdni formanns si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed Morgunbla\u00f0inu 8. des. sl. er sorglegur vitnisbur\u00f0ur um \u00feekkingarleysi \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 felst \u00ed kennslu \u00e1 svi\u00f0um hug- og f\u00e9lagsv\u00edsinda.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Sama dag, <b>13. desember 2011<\/b>, birti Morgunbla\u00f0i\u00f0 tv\u00e6r fr\u00e9ttir \u00fear sem m\u00e1lflutningur Vantr\u00faar kom fram. \u00cd annarri \u00feeirra, <a href=\"http:\/\/mbl.is\/frettir\/innlent\/2011\/12\/13\/skorti_fagleg_vinnubrogd\/\" title=\"Vantr\u00fa \u00e1sakar h\u00e1sk\u00f3lakennara\">Skorti fagleg vinnubr\u00f6g\u00f0<\/a>, er grein \u00e1 vef Vantr\u00faar endurs\u00f6g\u00f0, \u00fear sem \u00fev\u00ed er haldi\u00f0 fram a\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lakennararnir hafi ekki s\u00fdnt fagleg og akadem\u00edsk vinnubr\u00f6g\u00f0 \u00fev\u00ed enginn \u00feeirra hafi tala\u00f0 vi\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa um m\u00e1li\u00f0. \u00cd hinni, <a href=\"http:\/\/mbl.is\/frettir\/innlent\/2011\/12\/13\/malid_snuist_um_utursnuninga\/\" title=\"Matth\ufffdas \u00c1sgeirsson \">M\u00e1li\u00f0 sn\u00faist um \u00fat\u00farsn\u00faninga<\/a>, er r\u00e6tt vi\u00f0 Matth\u00edas \u00c1sgeirsson fyrrv. formann Vantr\u00faar \u00fear sem hann heldur \u00fev\u00ed fram a\u00f0 almennt vi\u00f0horf f\u00e9lagsmanna \u00ed Vantr\u00fa hafi veri\u00f0 a\u00f0 \u201esenda \u00feyrfti si\u00f0anefnd H\u00cd erindi h\u00e1sk\u00f3lans sj\u00e1lfs vegna.\u201c\u00a0 Megintilefni til k\u00e6ranna [Vantr\u00fa k\u00e6r\u00f0i Bjarna Randver fyrir \u00feremur mismunandi a\u00f0ilum innan H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands] s\u00e9 afb\u00f6kun Bjarna Randvers, skv. tilvitnun \u00ed Matth\u00edas \u00ed lok greinarinnar: \u201eVi\u00f0 teljum a\u00f0 Bjarni Randver hafi beinl\u00ednis afbaka\u00f0 uppl\u00fdsingar \u00feegar hann tekur tilvitnanir fr\u00e1 okkur e\u00f0a klippir \u00fe\u00e6r \u00ed sundur. Vi\u00f0 sj\u00e1um ekki Vantr\u00fa \u00ed \u00feessari kennslu. Hann tekur ekkert af greinum okkar e\u00f0a \u00fev\u00ed sem f\u00e9lagi\u00f0 hefur sagt opinberlega,\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd h\u00e1deginu \u00feann <b>13. desember 2011<\/b>, sama dag og yfirl\u00fdsingar h\u00e1sk\u00f3lakennara h\u00f6f\u00f0u birst \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum, sendi Ingvar Sigurgeirsson, ad hoc forma\u00f0ur si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed k\u00e6rum\u00e1linu gegn Bjarna Randver, br\u00e9f \u00e1 p\u00f3stlista starfsf\u00f3lks vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Helstu atri\u00f0i \u00feess br\u00e9fs voru rakin \u00ed fr\u00e9tt R\u00daV daginn eftir, <a href=\"http:\/\/ruv.is\/frett\/leggur-til-ad-bjarni-fai-baetur\" title=\"Ingvar Sigurgeirsson forma\u00f0ur ad hoc si\u00f0anefndar\">Leggur til a\u00f0 Bjarni f\u00e1i b\u00e6tur<\/a>. \u00cd fr\u00e9ttinni segir eftir Ingvari a\u00f0:<\/font>\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 hafi veri\u00f0 verkefni si\u00f0anefndarinnar a\u00f0 kynna s\u00e9r m\u00e1li\u00f0 til hl\u00edtar. \u00deau \u00e1form hafi \u00fe\u00f3 ekki n\u00e1\u00f0 fram a\u00f0 ganga, \u00fear sem Bjarni sj\u00e1lfur hafi kosi\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a ekki vi\u00f0 nefndina og hafi tali\u00f0 nefndarmenn alla vanh\u00e6fa. \u00de\u00e1 bendir hann \u00e1 a\u00f0 nokkrir \u00feeirra sem undirita yfirl\u00fdsinguna hafi me\u00f0 formlegum h\u00e6tti lagst gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 nefndin fengi tiltekin g\u00f6gn \u00ed m\u00e1linu.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">[&#8230;]<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Ingvar segir umr\u00e6\u00f0una hafa einkennst af hroka. \u00c1 \u00f6llum stigum m\u00e1lsins hef\u00f0i veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 leysa \u00fea\u00f0 me\u00f0 yfirvega\u00f0ri og m\u00e1lefnalegri samr\u00e6\u00f0u. \u00de\u00e1 leggur hann til a\u00f0 Bjarni Randver f\u00e1i sanngjarnar b\u00e6tur vegna \u00feess ska\u00f0a sem hann hafi or\u00f0i\u00f0 fyrir en bendir jafnframt \u00e1 a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 hafi ska\u00f0a\u00f0 marga a\u00f0ra, sem og sk\u00f3lann.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1 vef Vantr\u00faar var br\u00e9f Ingvars birt \u00ed heild sama dag og R\u00daV birti s\u00edna fr\u00e9tt, undir titlinum <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2011\/12\/14\/15.30\/\" title=\"Ingvar Sigurgeirsson forma\u00f0ur ad hoc si\u00f0anefndar H\u00cd\">Yfirl\u00fdsing fr\u00e1 Ingvari Sigurgeirssyni.<\/a> (\u00d3v\u00edst er hvort Ingvar Sigurgeirsson gaf leyfi fyrir \u00feessari birtingu. Lesendum er bent \u00e1 a\u00f0 Vantr\u00fa hefur loka\u00f0 a\u00f0gangi a\u00f0 s\u00ednum vef s\u00e9 hann heims\u00f3ttur af m\u00ednu bloggi.) Svo sem nokku\u00f0 hefur bori\u00f0 \u00e1 g\u00f3ma \u00ed umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0um vi\u00f0 bloggf\u00e6rslur m\u00ednar er \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feessu br\u00e9fi sem Ingvar l\u00fdsir \u00fev\u00ed a\u00f0 forma\u00f0ur Vantr\u00faar [Reynir Har\u00f0arson s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur] hafi or\u00f0i\u00f0 \u201ehvumsa vi\u00f0 \u00feegar hann var bo\u00f0a\u00f0ur \u00e1 fund si\u00f0anefndar til a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra k\u00e6ru f\u00e9lagsins. Samt\u00f6kin hef\u00f0u aldrei k\u00e6rt neinn, heldur gert alvarlegar athugasemdir vi\u00f0 kennslug\u00f6gn \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0i \u00fear sem m.a. var fjalla\u00f0 um f\u00e9lagi\u00f0 og einstaklinga innan \u00feess.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">G\u00e6\u00f0anefnd og Kennslum\u00e1lanefnd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00e1samt v\u00edsindanefnd h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s st\u00f3\u00f0u fyrir m\u00e1l\u00feingi um akadem\u00edskt frelsi \u00ed kennslu og ranns\u00f3knum f\u00f6studaginn <b>27. jan\u00faar 2012<\/b>, \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s \u00feann 13. okt\u00f3ber 2011. M\u00e1l\u00feingi\u00f0 f\u00f3r fram \u00ed \u00d6skju og \u00fear r\u00e6ddu fj\u00f3rir pr\u00f3fessorar af \u00f3l\u00edkum fr\u00e6\u00f0asvi\u00f0um H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands um akadem\u00edskt frelsi \u00fat fr\u00e1 mismunandi sj\u00f3narhornum. Sj\u00e1 m\u00e1 <a href=\"http:\/\/vimeo.com\/35806743\" title=\"M\u00e1l\u00feing um akadem\ufffdskt frelsi\">myndband af m\u00e1l\u00feinginu<\/a> \u00e1 s\u00ed\u00f0u Kennslumi\u00f0st\u00f6\u00f0var H\u00e1sk\u00f3lans og <a href=\"http:\/\/vimeo.com\/35875404\" title=\"Umr\u00e6\u00f0ur \u00e1 m\u00e1l\u00feingi um akadem\ufffdskt frelsi\">myndband af umr\u00e6\u00f0um<\/a> a\u00f0 loknum fyrirlestrum.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann <b>15. febr\u00faar 2012<\/b> l\u00fdsti Krist\u00edn Ing\u00f3lfsd\u00f3ttir h\u00e1sk\u00f3larektor \u00fev\u00ed yfir \u00ed br\u00e9fi sem h\u00fan sendi \u00e1 p\u00f3stlista starfsf\u00f3lks vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands a\u00f0 \u201e<b>ekkert hefur komi\u00f0 fram \u00ed me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1lsins sem bendir til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0komandi stundakennari hafi gerst brotlegur \u00ed starfi<\/b>.\u201c\u00a0 Me\u00f0 \u00feessu er h\u00fan l\u00edklega a\u00f0 \u201ebreg\u00f0ast vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki f\u00e9kkst efnisleg ni\u00f0ursta\u00f0a \u00ed m\u00e1li\u00f0\u201c sem h\u00fan segir a\u00f0 s\u00e9 \u201ebagalegt\u201c og a\u00f0 lj\u00faka m\u00e1linu. \u00cd br\u00e9finu kallar h\u00fan k\u00e6ru Vantr\u00faar \u201eumkv\u00f6rtun\u201c. (Sj\u00e1 fr\u00e9ttina <a href=\"http:\/\/mbl.is\/frettir\/innlent\/2012\/02\/16\/var_ekki_brotlegur_i_starfi\/\">Var ekki brotlegur \u00ed starfi<\/a> \u00ed <i>Morgunbla\u00f0inu <\/i>16. febr\u00faar, \u00fear m\u00e1 finna br\u00e9f Krist\u00ednar \u00ed heild. Feitletrun er m\u00edn.) R\u00daV birti fr\u00e9tt um \u00feetta sama br\u00e9f \u00feann <b>19. febr\u00faar 2011<\/b>, <a href=\"http:\/\/ruv.is\/frett\/tryggja-ad-malid-endurtaki-sig-ekki\">Tryggja a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 endurtaki sig ekki<\/a>. \u00dea\u00f0 sem h\u00e1sk\u00f3larektor telur a\u00f0 tryggi a\u00f0 svona m\u00e1l endurtaki sig ekki er: \u201eVi\u00f0 h\u00f6fum endursko\u00f0a\u00f0 starfsreglur si\u00f0anefndarar og formfestu sem var\u00f0ar m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 og \u00e9g held a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um b\u00fain a\u00f0 fullvissa okkur um \u00fea\u00f0 a\u00f0 atbur\u00f0ar\u00e1s af \u00feessu tagi endurtaki sig ekki.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Endursko\u00f0a\u00f0ar starfsreglur si\u00f0anefndar H\u00cd m\u00e1 sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.hi.is\/skolinn\/sidareglur\" title=\"starfsreglur si\u00f0anefndar H\u00cd\">ne\u00f0st \u00ed \u00feessu skjali<\/a>. Breytingar \/ endursko\u00f0unin er innan hornklofa og stj\u00f6rnumerkt. Veigamesta breytingin me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af m\u00e1larekstri si\u00f0anefndar \u00ed k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni er vi\u00f0b\u00f3tin framan \u00e1 fj\u00f3r\u00f0u grein starfsreglnanna: \u201e[\u00c1\u00f0ur en si\u00f0anefnd tekur m\u00e1l til umfj\u00f6llunar kannar h\u00fan]* hvort framkomin k\u00e6ra snertir si\u00f0areglur H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Skipunart\u00edmi si\u00f0anefndarfulltr\u00faa er \u00ferj\u00fa \u00e1r. \u00cd si\u00f0anefnd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands sitja n\u00fana:<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/tolublod\/2011\/12\/nr\/4400\">\u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson <\/a>pr\u00f3fessor emeritus, forma\u00f0ur nefndarinnar, skipa\u00f0ur af Krist\u00ednu Ing\u00f3lfsd\u00f3ttur h\u00e1sk\u00f3larektor sumari\u00f0 2010;<\/font>\u00a0<\/li>\n<\/ul>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/raunvis.hi.is\/~thv\/\">\u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson<\/a> pr\u00f3fessor emeritus, skipa\u00f0ur af F\u00e9lagi pr\u00f3fessora sumari\u00f0 2010;<\/font>\u00a0<\/li>\n<\/ul>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.hi.is\/simaskra\/23016\">Eyja Margr\u00e9t Brynjarsd\u00f3ttir<\/a> sem situr fyrir h\u00f6nd F\u00e9lags h\u00e1sk\u00f3lakennara fr\u00e1 \u00fev\u00ed snemma \u00ed desember 2012. Sumari\u00f0 2010 skipa\u00f0i F\u00e9lag h\u00e1sk\u00f3lakennara <a href=\"http:\/\/www.hi.is\/is\/simaskra\/1352\">Salv\u00f6ru Nordal,<\/a> forst\u00f6\u00f0umann Si\u00f0fr\u00e6\u00f0istofnunar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og kennara \u00ed heimpeki sem fulltr\u00faa \u00ed si\u00f0anefnd H\u00cd. Salv\u00f6r sag\u00f0i sig \u00far si\u00f0anefndinni seint \u00e1 haustmisseri 2011 og \u00far var\u00f0 a\u00f0 Eyja Margr\u00e9t, kennari \u00ed heimspeki, t\u00f3k s\u00e6ti hennar.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Aths. 27. febr\u00faar: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0 \u00c1 fundi h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s 5. ma\u00ed sl. skipa\u00f0i h\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0 nefnd <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/21\/skyrsla-ohadu-nefndarinnar-og-eftirmal\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[22],"tags":[],"class_list":["post-403","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-vantru-og-sianefnd-hi"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/403","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=403"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/403\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":682,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/403\/revisions\/682"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=403"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=403"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=403"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}