{"id":404,"date":"2012-02-22T22:45:57","date_gmt":"2012-02-22T22:45:57","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-02-22\/samantekt-vantru-og-sidanefnd-hi-gegn-bjarna-randver-sigurvinssyni\/"},"modified":"2013-11-21T09:24:49","modified_gmt":"2013-11-21T09:24:49","slug":"samantekt-vantru-og-sidanefnd-hi-gegn-bjarna-randver-sigurvinssyni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/22\/samantekt-vantru-og-sidanefnd-hi-gegn-bjarna-randver-sigurvinssyni\/","title":{"rendered":"Samantekt: Vantr\u00fa og si\u00f0anefnd H\u00cd gegn Bjarna Randver Sigurvinssyni"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\"><strong>Aths. 27. febr\u00faar<\/strong>: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um <a href=\"http:\/\/harpahreins.com\/vantru_gegn_bjarna_randveri.pdf\" title=\"Vantr\u00fa gegn Bjarna Randver pdf\">k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal<\/a>, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deann fj\u00f3r\u00f0a febr\u00faar 2010 k\u00e6r\u00f0i Reynir Har\u00f0arson s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur, forma\u00f0ur f\u00e9lagsins Vantr\u00faar, stundakennarann Bjarna Randver Sigurvinsson fyrir si\u00f0anefnd H\u00cd. K\u00e6ruefni\u00f0 voru l\u00edtill hluti gl\u00e6ra sem nota\u00f0ur var \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar sem Bjarni Randver kenndi \u00e1 haustmisseri 2009 \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild H\u00cd. Samt\u00edmis voru afhent kv\u00f6rtunarbr\u00e9f yfir \u00fev\u00ed sama til rektors H\u00cd og deildarforseta gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideildar. Erfitt er a\u00f0 meta hve margir f\u00e9lagar \u00ed Vantr\u00fa st\u00f3\u00f0u a\u00f0 baki k\u00e6runni og kv\u00f6rtunum en af \u00feeim heimildum sem \u00e9g hef sko\u00f0a\u00f0 m\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 \u00feeir hafi veri\u00f0 f\u00e1ir, l\u00edklega innan vi\u00f0 tugur manns.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/leikbrudustjornandi.jpg?resize=86%2C120\" alt=\"Leikbr\u00fa\u00f0ustj\u00f3rnandi\" align=\"left\" height=\"120\" width=\"86\" \/><font size=\"-1\">Reynir Har\u00f0arson vir\u00f0ist hafa skipulagt a\u00f0ger\u00f0ir Vantr\u00faar fyrirfram og nokkrir f\u00e9lagar \u00ed Vantr\u00fa fylgdu k\u00e6ru og kv\u00f6rtunum st\u00edft eftir me\u00f0 greinaskrifum \u00e1 vef Vantr\u00faar, bloggum \u00feessara vantr\u00faarf\u00e9laga, \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e1\u00f0um vi\u00f0 annarra manna blogg, br\u00e9fum til deildarforseta gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideildar og rektors, og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 senda br\u00e9f og greinarger\u00f0ir til fj\u00f6lmi\u00f0la. \u00dear sem \u00feessi mikla umfj\u00f6llun var \u00f6ll af sj\u00f3narh\u00f3li Vantr\u00faar gaf h\u00fan vitaskuld mj\u00f6g takmarka\u00f0a s\u00fdn \u00e1 m\u00e1li\u00f0. Vantr\u00faarf\u00e9lagar h\u00f6f\u00f0u engar forsendur til a\u00f0 meta gl\u00e6rurnar \u00ed samhengi \u00fev\u00ed enginn \u00feeirra haf\u00f0i seti\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0. S\u00e1 \u00feeirra sem l\u00edklega hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 \u00e1tta sig eitthva\u00f0 \u00e1 umfj\u00f6lluninni, t.d. um Helga H\u00f3seasson og \u00fe\u00e1 fr\u00e6gu gl\u00e6ru um m\u00e1lflutning fylgismanna Dawkins, Reynir Har\u00f0arson s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur, forma\u00f0ur Vantr\u00faar, vir\u00f0ist hafa kosi\u00f0 a\u00f0 fatta ekki samhengi\u00f0 e\u00f0a l\u00edta fram hj\u00e1 \u00fev\u00ed sem \u00e6tla m\u00e6tti a\u00f0 hann skildi.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild afgreiddi m\u00e1li\u00f0 me\u00f0 br\u00e9fi deildarforseta \u00feann 9. mars 2010, \u00fear sem l\u00fdst var yfir a\u00f0 teki\u00f0 yr\u00f0i tillit til athugasemda Vantr\u00faar ef n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri kennt aftur, um \u00fea\u00f0 v\u00e6ru hann og Bjarni Randver samm\u00e1la. \u00cd sama br\u00e9fi l\u00fdsti deildarforseti yfir a\u00f0 Bjarni Randver nyti fyllsta trausts s\u00edns sem kennari \u00ed tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/escher.jpg?resize=150%2C106\" alt=\"Stigaganga \ufffd verki Escher\" align=\"left\" height=\"106\" width=\"150\" \/><font size=\"-1\">\u00deegar si\u00f0anefnd H\u00cd h\u00f3f afskipti af m\u00e1linu a\u00f0eins seinna (\u00fev\u00ed forma\u00f0ur nefndarinnar haf\u00f0i veri\u00f0 fjarverandi) kom anna\u00f0 hlj\u00f3\u00f0 \u00ed strokkinn. Si\u00f0anefnd H\u00cd undir fors\u00e6ti \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar \u00feverbraut eigin starfsreglur. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 sko\u00f0a k\u00e6runa almennilega og \u00farskur\u00f0a hvort h\u00fan var\u00f0a\u00f0i yfirleitt si\u00f0areglur H\u00cd, eins og \u00e1tti a\u00f0 vera fyrsta skref \u00ed ferli m\u00e1ls \u00ed si\u00f0anefnd H\u00cd, einhenti si\u00f0anefndin s\u00e9r \u00ed a\u00f0 f\u00e1 gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild H\u00cd til a\u00f0 skrifa undir opinbera s\u00e1tt vi\u00f0 Vantr\u00fa \u00fear sem hinn k\u00e6r\u00f0i, Bjarni Randver Sigurvinsson, v\u00e6ri sakfelldur. Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0fr\u00e6\u00f0ideild bar a\u00f0 \u201evi\u00f0urkenna og harma, a\u00f0 kennsluefni\u00f0 felur ekki \u00ed s\u00e9r hlutl\u00e6ga og sanngjarna umfj\u00f6llun um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa, m\u00e1lsta\u00f0 \u00feess og einstaka f\u00e9lagsmenn\u201c og taka athugasemdir Reynis Har\u00f0arsonar \u201eog samtaka hans [&#8230;] til j\u00e1kv\u00e6\u00f0ar sko\u00f0unar, \u00feegar og ef til \u00feess kemur, a\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 ver\u00f0i endurteki\u00f0.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Raunar er ekki n\u00f3g me\u00f0 a\u00f0 si\u00f0anefnd H\u00cd hafi kosi\u00f0 a\u00f0 draga gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideild inn \u00ed m\u00e1li\u00f0 (\u00fe\u00f3tt deildin hafi ekki veri\u00f0 k\u00e6r\u00f0 til si\u00f0anefndar) heldur vir\u00f0ast einstakir nefndarmenn, einkum forma\u00f0urinn \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson og \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson, si\u00f0anefndarfulltr\u00fai, hafa reynt a\u00f0 k\u00faga deildina til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f3ta a\u00f0 ella yr\u00f0i hinum k\u00e6r\u00f0a stundakennara, Bjarna Randveri, f\u00f3rna\u00f0, \u00fe.e. a\u00f0 si\u00f0anefnd myndi \u00farskur\u00f0a a\u00f0 hann hef\u00f0i broti\u00f0 si\u00f0areglur H\u00cd, sem hef\u00f0i haft mj\u00f6g alvarlegar aflei\u00f0ingar fyrir starf og frama Bjarna Randvers sem fr\u00e6\u00f0imanns. \u00deetta er a.m.k. skilningur \u00fe\u00e1verandi deildarforseta, P\u00e9turs P\u00e9turssonar, \u00e1 \u00f3formlegum samskiptum vi\u00f0 \u00feessa si\u00f0anefndarfulltr\u00faa.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hva\u00f0 var\u00f0ar \u00f3formleg samskipti si\u00f0anefndar vi\u00f0 m\u00e1lsa\u00f0ila a\u00f0ra en hinn k\u00e6r\u00f0a, sem var hunsa\u00f0ur me\u00f0 \u00f6llu, voru \u00feau \u00f3tr\u00faleg. Svo vir\u00f0ist sem \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson forma\u00f0ur si\u00f0anefndar hafi haft t\u00ed\u00f0 samskipti vi\u00f0 formann Vantr\u00faar, Reyni Har\u00f0arson, og fari\u00f0 vel \u00e1 me\u00f0 \u00feeim, liggur vi\u00f0 a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 kalla a\u00f0 \u00feeir hafi \u00e1tt samstarf \u00ed m\u00e1linu. \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson hefur seinna \u00fatsk\u00fdrt \u00feessi samskipti sem merki um sinn samstarfsvilja og s\u00e1ttf\u00fdsi. Hann hefur l\u00edkt st\u00f6rfum s\u00ednum vi\u00f0 st\u00f6rf s\u00e1ttasemjara \u00ed kjaradeilu. \u00de\u00f3r\u00f0i Har\u00f0arsyni yfirs\u00e9st a\u00f0 s\u00e1ttasemjari \u00ed kjaradeilu talar \u00ed fyrsta lagi vi\u00f0 b\u00e1\u00f0a a\u00f0ila m\u00e1ls og \u00ed \u00f6\u00f0ru lagi a\u00f0 sl\u00edkur s\u00e1ttasemjari hefur ekki neitt vald til a\u00f0 v\u00edta annan a\u00f0ilann en l\u00edkja m\u00e1 \u00farskur\u00f0i um brot \u00e1 si\u00f0areglum H\u00cd vi\u00f0 v\u00edtur &#8211; me\u00f0 grafalvarlegum aflei\u00f0ingum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Eftir a\u00f0 kennurum vi\u00f0 Hugv\u00edsindasvi\u00f0 H\u00cd barst vitneskja um \u00feann \u00f3tr\u00falega feril sem m\u00e1l Bjarna Randvers var \u00ed hj\u00e1 si\u00f0anefnd H\u00cd gripu \u00feeir til a\u00f0ger\u00f0a enda lj\u00f3st a\u00f0 a\u00f0farir \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar og f\u00e9laga hans voru \u00ed fyrsta lagi engri si\u00f0anefnd s\u00e6mandi og f\u00f3lu \u00ed \u00f6\u00f0ru lagi \u00ed s\u00e9r beina a\u00f0f\u00f6r a\u00f0 akadem\u00edsku frelsi kennara. S\u00e1 sem uppl\u00fdsti kennara utan gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0deildar fyrst um m\u00e1lav\u00f6xtu var Gu\u00f0ni El\u00edsson pr\u00f3fessor. H\u00f3pur kennara sem vissi\u00a0deili \u00e1 m\u00e1linu\u00a0f\u00f3r hratt st\u00e6kkandi. \u00deeir beindu spurningum til si\u00f0anefndar H\u00cd sem voru n\u00f3gu \u00f3\u00fe\u00e6gilegar til a\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson sag\u00f0i af s\u00e9r sem forma\u00f0ur si\u00f0anefndar. S\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00ed t\u00falkunarfr\u00e6\u00f0um f\u00f3ru a\u00f0 eigin frumkv\u00e6\u00f0i yfir kennslug\u00f6gn \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar og s\u00e1u ekkert athugavert vi\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00ed samhengi vi\u00f0 markmi\u00f0, n\u00e1msefni og kennslu \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar. Kennarar skrifu\u00f0u greinarger\u00f0ir um m\u00e1l Bjarna Randvers, jafnt gl\u00e6rurnar og umfj\u00f6llunarefni n\u00e1mskei\u00f0sins, sem vinnubr\u00f6g\u00f0 si\u00f0anefndar. (\u00deegar f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa haf\u00f0i dregi\u00f0 k\u00e6runa til baka skrifu\u00f0u nokkrir nemendur greinarger\u00f0ir um reynslu s\u00edna af kennslu Bjarna Randvers \u00ed N\u00fdtr\u00faarhreyfingum, a\u00f0 bei\u00f0ni Gu\u00f0na El\u00edssonar pr\u00f3fessors. Hvorug si\u00f0anefndin s\u00e1 \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 leita uppl\u00fdsinga hj\u00e1 nemendum.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deegar Ingvar Sigurgeirsson var skipa\u00f0ur s\u00e9rstakur forma\u00f0ur s\u00e9rstakrar si\u00f0anefndar, sumari\u00f0 2010 (eftir afs\u00f6gn \u00de\u00f3r\u00f0ar formanns, raunar skipa\u00f0i svo H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0\u00a0n\u00fdja si\u00f0anefnd tveimur d\u00f6gum eftir a\u00f0 Ingvar t\u00f3k vi\u00f0 \u00feessari s\u00e9rst\u00f6ku &#8211; og raunar var \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson aftur skipa\u00f0ur forma\u00f0ur si\u00f0anefndar a\u00f0 till\u00f6gu Krist\u00ednar Ing\u00f3lfsd\u00f3ttur h\u00e1sk\u00f3larektors og \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson aftur skipa\u00f0ur si\u00f0anefndarfulltr\u00fai, a\u00f0 till\u00f6gu F\u00e9lags pr\u00f3fessora), var hann og \u00feau hin \u00ed nokkrum vanda st\u00f6dd. Hef\u00f0i hin s\u00e9rstaka si\u00f0anefnd fari\u00f0 a\u00f0 starfa eftir starfsreglum si\u00f0anefndar H\u00cd og einbeitt s\u00e9r a\u00f0 r\u00e9ttum ferli m\u00e1ls, \u00fear sem fyrsta reglan var a\u00f0 kanna hvort k\u00e6ran eins og h\u00fan var fram sett snerti si\u00f0areglur H\u00cd og v\u00edsa henni ella fr\u00e1\u00a0 &#8230; hef\u00f0i m\u00e1linu veri\u00f0 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i aftur \u00e1 m\u00f3ti veri\u00f0 n\u00e1nast vantraustsyfirl\u00fdsing \u00e1 fyrri formann, \u00de\u00f3r\u00f0 Har\u00f0arson, og fyrri si\u00f0anefnd, en svo vildi til a\u00f0 s\u00f6mu si\u00f0anefndarfulltr\u00faar s\u00e1tu \u00ed hinni s\u00e9rst\u00f6ku si\u00f0anefnd og \u00feeirri \u00e1 undan, \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson og Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorgeirsd\u00f3ttur. \u00deorsteinn haf\u00f0i a\u00f0 auki veri\u00f0 endurskipa\u00f0ur \u00ed \u201ealv\u00f6ru\u201c si\u00f0anefnd H\u00cd um lei\u00f0 og s\u00fa s\u00e9rstaka t\u00f3k til starfa. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i n\u00e1tt\u00farlega veri\u00f0 ansi sl\u00e6m lending fyrir H\u00cd a\u00f0 l\u00fdsa \u00fev\u00ed \u00f3beint yfir a\u00f0 \u00feeir \u00de\u00f3r\u00f0ur og \u00deorsteinn hef\u00f0u kl\u00fa\u00f0ra\u00f0 m\u00e1lum gersamlega \u00feegar n\u00fdb\u00fai\u00f0 var a\u00f0 endurskipa \u00fe\u00e1 \u00ed si\u00f0anefnd H\u00cd til \u00e1rsins 2013!<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/lista_atridi.jpg?resize=120%2C120\" alt=\"Reyna a\u00f0 lista atri\u00f0i k\u00e6ru\" align=\"left\" height=\"120\" width=\"120\" \/><font size=\"-1\">Ingvar Sigurgeirsson br\u00e1 \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 tvo aukafulltr\u00faa til li\u00f0s vi\u00f0 si\u00f0anefndina s\u00edna. \u00deessir fulltr\u00faar voru l\u00edklega kunningjar hans og v\u00e6ntanlega fullnuma \u00ed n\u00fdsit\u00e6kni (\u00fe.\u00e1.m. gl\u00e6ruger\u00f0) enda h\u00f6f\u00f0u \u00feeir lengi kennt \u00e1 sama vettvangi og Ingvar, \u00fe.e.a.s. starfa\u00f0 vi\u00f0 menntun grunnsk\u00f3lakennara og \u00fe\u00e1 menntun sem framhaldssk\u00f3lakennurum er gert skylt a\u00f0 lj\u00faka til a\u00f0 f\u00e1 kennslur\u00e9ttindi. S\u00ed\u00f0an reyndi hin s\u00e9rstaka si\u00f0anefnd a\u00f0 leita me\u00f0 logandi lj\u00f3si a\u00f0 einhverju sem g\u00e6ti m\u00f6gulega hanka\u00f0 kennarann \u00e1 a\u00f0 hafa broti\u00f0 si\u00f0areglur H\u00cd. \u00c1 t\u00edmabili setti si\u00f0anefndin hinum k\u00e6r\u00f0a, Bjarna Randveri Sigurvinssyni, a\u00f0 greina k\u00e6ruatri\u00f0i Vantr\u00faar svo \u00feau p\u00f6ssu\u00f0u vi\u00f0 si\u00f0areglur H\u00cd og semja sv\u00f6r vi\u00f0 \u00feeim greindu k\u00e6ruatri\u00f0um. S\u00ed\u00f0ar spreyttu annar aukafulltr\u00fainn og l\u00f6gma\u00f0ur H\u00cd \u00e1 \u00feessari greiningu. <\/font><font size=\"-1\">\u00de\u00e6r tilraunir vir\u00f0ast engu hafa skila\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ingvar forma\u00f0ur si\u00f0anefndar, sem er pr\u00f3fessor \u00e1 Menntav\u00edsindasvi\u00f0i, l\u00e9t s\u00e9r detta \u00ed hug a\u00f0 f\u00e1 \u00farlausnir 7 nemenda \u00e1 einni spurningu \u00e1 lokapr\u00f3fi \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu N\u00fdtr\u00faarhreyfingar, \u00fear sem nemendur \u00e1ttu a\u00f0 beita mismunandi skilgreiningum tr\u00faarl\u00edfsf\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0inga \u00ed greiningu \u00e1 Si\u00f0mennt og Vantr\u00fa. Sett voru \u00e1kve\u00f0in skilyr\u00f0i fyrir a\u00f0 si\u00f0anefnd fengi \u00feessar \u00farlausnir, s.s. a\u00f0 hver nemendanna g\u00e6fi uppl\u00fdst sam\u00feykki sitt, en si\u00f0anefnd fylgdi \u00feessari bei\u00f0ni aldrei eftir. Seinna kenndi Ingvar \u00fer\u00fdstingi h\u00e1sk\u00f3lakennara um a\u00f0 si\u00f0anefndin hef\u00f0i ekki fengi\u00f0 pr\u00f3f\u00farlausnirnar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ingvar Sigurgeirsson kenndi l\u00edka afskiptum h\u00e1sk\u00f3lakennara um a\u00f0 hinnu s\u00e9rst\u00f6ku si\u00f0anefnd undir hans stj\u00f3rn\u00a0var\u00f0 ekkert \u00e1gengt\u00a0me\u00f0 \u00feetta m\u00e1l, auk \u00feess a\u00f0 kenna \u00fev\u00ed um a\u00f0 Bjarni Randver Sigurvinsson hef\u00f0i fengi\u00f0 s\u00e9r l\u00f6gmann til a\u00f0 g\u00e6ta r\u00e9ttinda sinna. Satt best a\u00f0 segja ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 a\u00f0 teljast skynsamleg r\u00e1\u00f0st\u00f6fun Bjarna Randvers \u00ed lj\u00f3si \u00feess hvernig si\u00f0anefnd undir stj\u00f3rn \u00de\u00f3r\u00f0ar Har\u00f0arsonar haf\u00f0i haga\u00f0 s\u00e9r og hvernig si\u00f0anefnd undir stj\u00f3rn Ingvars virtist \u00e6tla a\u00f0 feta svipa\u00f0a braut enda kannski um hei\u00f0ur fyrri si\u00f0anefndarmanna a\u00f0 tefla og Bjarni Randver var \u00e1fram eins og\u00a0hvert anna\u00f0 pe\u00f0 \u00ed k\u00e6rum\u00e1linu gegn honum sj\u00e1lfum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Svo kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Ingvar Sigurgeirsson f\u00e9kk n\u00f3g og h\u00f3ta\u00f0i a\u00f0 segja af s\u00e9r. \u00de\u00e1 loksins greip rektor H\u00cd \u00ed taumana, h\u00e9lt fund me\u00f0 Ingvari og fulltr\u00faum Vantr\u00faar og \u00e1 \u00feeim fundi dr\u00f3 Vantr\u00fa k\u00e6runa til si\u00f0anefndar H\u00cd til baka, \u00feann 28. apr\u00edl 2011. Krist\u00edn Ing\u00f3lfsd\u00f3ttir h\u00e1sk\u00f3larektor vir\u00f0ist hafa lofa\u00f0 Vantr\u00fa og Ingvari a\u00f0 \u00f3h\u00e1\u00f0ir a\u00f0ilar t\u00e6kju \u00feetta m\u00e1l \u00fat, skv. \u00fev\u00ed sem b\u00e6\u00f0i h\u00fan og Vantr\u00fa hafa sagt. En skv. b\u00f3kun H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s \u00feann 5. ma\u00ed 2011 vir\u00f0ist r\u00e1\u00f0i\u00f0 hafa fari\u00f0 a\u00f0 \u00e1skorunum fj\u00f6lda h\u00e1sk\u00f3lakennara og skipa\u00f0 \u00feess vegna \u00f3h\u00e1\u00f0a nefnd til a\u00f0 taka \u00fat feril m\u00e1lsins innan H\u00cd.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar var birt opinberlega \u00feann 13. okt\u00f3ber 2011. H\u00fan ber st\u00f6rfum si\u00f0anefndar H\u00cd \u00f3fagurt vitni, s\u00e9rstaklega \u00feeirrar sem \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson var\u00a0\u00ed forsvari\u00a0fyrir en finnur einnig \u00fdmislegt a\u00f0 st\u00f6rfum nefndarinnar undir stj\u00f3rn Ingvars Sigurgeirssonar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1 birtingu \u00feessarar sk\u00fdrslu og s\u00e9rstaklega eftir a\u00f0 \u00edtarleg fr\u00e9ttask\u00fdring um m\u00e1li\u00f0 birtist \u00ed <i>Morgunbla\u00f0inu<\/i> snemma \u00ed desember s\u00ed\u00f0astli\u00f0num hefur margt og miki\u00f0 veri\u00f0 fjalla\u00f0 um \u00feennan m\u00e1larekstur sem h\u00f3fst me\u00f0 k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni og st\u00f3\u00f0 linnul\u00edti\u00f0 \u00ed meir en \u00e1r \u00ed h\u00f6ndum si\u00f0anefndar H\u00cd, raunar miklu lengur af h\u00e1lfu Vantr\u00faar en f\u00e9lagi\u00f0 lag\u00f0i \u00e1fram kapp \u00e1 a\u00f0 r\u00e6gja Bjarna Randver \u00e1 s\u00ednum vettvangi \u00e1 Vefnum og \u00fath\u00fa\u00f0a stu\u00f0ningsm\u00f6nnum hans. \u00cd rauninni m\u00e1 segja a\u00f0 einelti Vantr\u00faar, \u00e1 t\u00edmabili me\u00f0 dyggum stu\u00f0ningi hluta si\u00f0anefndar H\u00cd, hafi ekki loki\u00f0 fyrr en sk\u00fdrsla \u00f3h\u00e1\u00f0u nefndarinnar birtist, um einu \u00e1ri og \u00e1tta m\u00e1nu\u00f0um eftir a\u00f0 k\u00e6ran barst si\u00f0anefnd H\u00cd.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrrnefnd fr\u00e9ttask\u00fdring um m\u00e1li\u00f0 birtist \u00ed byrjun desember og vi\u00f0tal \u00ed Kastlj\u00f3si vi\u00f0 Bjarna Randver Sigurvinsson r\u00e9tt \u00e1 eftir hefur m\u00e1lflutningur forsvarsmanna Vantr\u00faar breyst \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 kenningar um hef\u00f0bundna\u00a0afneitun gerenda eineltis: \u00c1 vef Vantr\u00faar f\u00f3ru a\u00f0 birtast greinar um a\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa s\u00e9 hi\u00f0 eina sanna f\u00f3rnarlamb \u00ed \u00feessu m\u00e1li og hafi s\u00e6tt \u00f3maklega einelti h\u00e1sk\u00f3lakennara sem komi\u00f0 hafi \u00ed veg fyrir a\u00f0 saklaust erindi f\u00e9lagsins hafi fengi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e1ta m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 innan H\u00cd. Forma\u00f0ur Vantr\u00faar, Reynir Har\u00f0arson s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur, sem stj\u00f3rna\u00f0i m\u00e1lflutningi Vantr\u00faar lengst af og \u00e1tti a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum drj\u00fagan \u00fe\u00e1tt \u00ed skipulagningu hans \u00ed upphafi, hefur veri\u00f0 algerlega \u00f3s\u00fdnilegur \u00e1 Vefnum og \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum s\u00ed\u00f0an snemma \u00ed okt\u00f3ber 2011. Matth\u00edas \u00c1sgeirsson t\u00f3k \u00fe\u00e1 a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 koma fram fyrir h\u00f6nd f\u00e9lagsins, \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum og \u00ed bloggskrifum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/kottur_aras.jpg?resize=100%2C100\" alt=\"Rei\u00f0a kisa\" align=\"left\" height=\"100\" width=\"100\" \/><font size=\"-1\">Vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 Matth\u00edasar og nokkurra vantr\u00faarf\u00e9laga vi\u00f0 \u00feessari bloggf\u00e6rslur\u00f6\u00f0 minni m\u00e1 lesa \u00ed <a href=\"http:\/\/www.orvitinn.com\/2012\/01\/24\/20.45\/\">umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i vi\u00f0 bloggf\u00e6rsluna Punktar um umfj\u00f6llun<\/a>, \u00e1 bloggi Matth\u00edasar, <i>\u00d6rvitanum<\/i>. (M\u00f6gulega lokar Matth\u00edas \u00e1 a\u00f0gang a\u00f0 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0inum af \u00feessu bloggi, hann hefur \u00feegar loka\u00f0 a\u00f0gangi a\u00f0 vef Vantr\u00faar af blogginu m\u00ednu. Lesendum er bent \u00e1 a\u00f0 afrita sl\u00f3\u00f0ina \u00ed annan glugga vefsko\u00f0ara ef til \u00feess kemur.) F\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa hefur einungis gert athugasemdir vi\u00f0 eina f\u00e6rslu \u00ed \u00feessari f\u00e6rslur\u00f6\u00f0, \u00fe.e. f\u00e6rsluna um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa. Grein Hjalta R\u00fanars \u00d3marssonar \u00e1 vef Vantr\u00faar er fr\u00e1 17. jan\u00faar \u00ed \u00e1r og heitir <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2012\/01\/17\/10.00\/\">Hin stranga og \u00f6fgasinna\u00f0a Vantr\u00fa<\/a>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fa fyrir sk\u00f6mmu, um mi\u00f0jan febr\u00faar 2012, <strong>hefur Krist\u00edn Ing\u00f3lfsd\u00f3ttir rektor H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, hreinsa\u00f0 Bjarna Randver Sigurvinsson af \u00f6llum \u00e1bur\u00f0i um a\u00f0 hann hafi nokkru sinni broti\u00f0 si\u00f0areglur H\u00cd \u00ed kennslu<\/strong>, \u00ed br\u00e9fi til starfsmanna H\u00cd og \u00ed fr\u00e9ttavi\u00f0t\u00f6lum vegna \u00feess br\u00e9fs. \u00dea\u00f0 ber a\u00f0 vona a\u00f0 h\u00e1sk\u00f3larektor beiti s\u00e9r af megni fyrir a\u00f0 Bjarna Randveri ver\u00f0i b\u00e6tt mannor\u00f0stj\u00f3n og kostna\u00f0ur sem hann ber af \u00feessu m\u00e1li.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">En eftir sem \u00e1\u00f0ur sitja \u00feeir \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson og \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson \u00ed si\u00f0anefnd H\u00cd, n\u00fa \u00e1samt Eyju Margr\u00e9ti Brynjarsd\u00f3ttur, sem stj\u00f3rn F\u00e9lags H\u00e1sk\u00f3lakennara \u00fatnefndi sinn fulltr\u00faa \u00ed desemberbyrjun 2011, eftir a\u00f0 Salv\u00f6r Nordal sag\u00f0i sig \u00far si\u00f0anefnd H\u00cd. \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson er forma\u00f0ur si\u00f0anefndarinnar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0\u00a0 <\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Aths. 27. febr\u00faar: \u00c9g hef teki\u00f0 saman allar bloggf\u00e6rslurnar um k\u00e6ru Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver og st\u00f6rf si\u00f0anefndar H\u00cd \u00ed eitt pdf-skjal, sem\u00a0h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed.\u00a0 \u00deann fj\u00f3r\u00f0a febr\u00faar 2010 k\u00e6r\u00f0i Reynir Har\u00f0arson s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur, forma\u00f0ur <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/02\/22\/samantekt-vantru-og-sidanefnd-hi-gegn-bjarna-randver-sigurvinssyni\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[22],"tags":[],"class_list":["post-404","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-vantru-og-sianefnd-hi"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/404","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=404"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/404\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":681,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/404\/revisions\/681"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=404"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=404"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=404"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}