{"id":414,"date":"2012-04-19T23:26:59","date_gmt":"2012-04-19T23:26:59","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-04-19\/haltu-kjafti-og-vertu-thunglynd\/"},"modified":"2013-11-21T09:22:18","modified_gmt":"2013-11-21T09:22:18","slug":"haltu-kjafti-og-vertu-thunglynd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/04\/19\/haltu-kjafti-og-vertu-thunglynd\/","title":{"rendered":"Haltu kjafti og vertu &#8230; \u00feunglynd?"},"content":{"rendered":"<p>Fyrir langal\u00f6ngu vakti sm\u00e1sagnasafni\u00f0 <em>Haltu kjafti og vertu s\u00e6t<\/em> (eftir Vitu Andersen) mikla athygli. S\u00f6gurnar \u00e1ttu \u00fea\u00f0 sammerkt a\u00f0\u00a0fjalla um\u00a0hlutgervingu og sm\u00e6ttun kvenna og l\u00fdsa kvenfjandsamlegum heimi. \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 fem\u00ednistar s\u00e9u enn hrifnir af \u00feessum s\u00f6gum.<\/p>\n<p>\u00c9g hef langa reynslu af \u00fev\u00ed b\u00e6\u00f0i a\u00f0 vera kona og a\u00f0 vera \u00feunglyndissj\u00faklingur og leyfi m\u00e9r a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0\u00a0 hlutgerving og sm\u00e6ttun kvenna er hj\u00f3m eitt hj\u00e1 hlutgervingu og sm\u00e6ttun ge\u00f0sj\u00faklinga! Stundum velti \u00e9g \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort \u00feessi hneig\u00f0\u00a0beinist bara a\u00f0 f\u00f3lki me\u00f0 ge\u00f0r\u00e6na sj\u00fakd\u00f3ma e\u00f0a hvort \u00feetta er hlutskipti allra sem eru langveikir? Hefur \u00e1standi\u00f0 eitthva\u00f0 breyst fr\u00e1 \u00fev\u00ed Au\u00f0ur Haralds skrifa\u00f0i <em>L\u00e6knamaf\u00eduna<\/em>? (Sem hefur undirtitilinn: <em>L\u00edtil pen b\u00f3k<\/em> &#8230; en veikar konur og allrahelst ge\u00f0veikar konur eiga helst a\u00f0 vera litlar og penar konur, hefur m\u00e9r skilist af reynslunni.)<\/p>\n<p>\u00cd fyrsta lagi gengur ge\u00f0l\u00e6kningakerfi\u00f0 ansi langt \u00ed a\u00f0 sm\u00e6tta f\u00f3k ni\u00f0ur \u00ed sj\u00faklinga, a\u00f0 m\u00ednu mati. E\u00f0alsj\u00faklingur etur s\u00edn lyf \u00feegjandi og hefur ekki sko\u00f0anir. \u00c9g hef, \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina, alltaf \u00f6\u00f0ru hvoru vi\u00f0ra\u00f0 efasemdir um gagnsemi fj\u00f6llyfjagjafar og kvarta\u00f0 undan aukaverkunum sem voru oft mj\u00f6g sl\u00e6mar. En\u00a0sl\u00edkar efasemdir hafa yfirleitt veri\u00f0 kve\u00f0nar \u00ed k\u00fatinn me\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur (tv\u00edblindra) ranns\u00f3kna a\u00f0 vopni. \u00c1 t\u00edmabili var \u00e9g farin a\u00f0 hata \u00fe\u00e6r systur Tv\u00edblindi og \u00der\u00edblindi! Kvartanir yfir aukaverkunum hafa veri\u00f0\u00a0vegnar og l\u00e9ttv\u00e6gar fundnar. \u00c9g er farin a\u00f0 hallast a\u00f0 \u00feeirri sko\u00f0un a\u00f0 \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um r\u00e1\u00f0i gamaldags tv\u00edhyggja a\u00f0 h\u00e6tti Decartes: S\u00e1l og l\u00edkami eru algerlega a\u00f0greind nema n\u00fatildags er s\u00e1lin k\u00f6llu\u00f0 &#8220;bo\u00f0efnaskiptarugl \u00ed heila&#8221;. \u00c1hersla er l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 l\u00e6kna s\u00e1lina (lei\u00f0r\u00e9tta\/laga bo\u00f0efnaskiptarugl \u00ed heila) og skiptir \u00fe\u00e1 litlu m\u00e1li hva\u00f0a l\u00edkamleg \u00f3\u00fe\u00e6gindi sj\u00faklingurinn hefur af l\u00e6kningunni. \u00deetta kallast v\u00edsindi en ekki tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u00e1 \u00feeim forsendum a\u00f0 til s\u00e9 m\u00fdgr\u00fatur ranns\u00f3kna sem s\u00fdni fram \u00e1 l\u00e6kningam\u00e1tt lyfjanna, sj\u00fak\u00f3murinn (\u00ed m\u00ednu tilviki \u00feunglyndi og kv\u00ed\u00f0i e\u00f0a \u00feunglyndi me\u00f0 kv\u00ed\u00f0a)\u00a0s\u00e9 v\u00edsindalega skilgreindur \u00ed st\u00f6\u00f0lum (DSM e\u00f0a ICD) og lyfin v\u00edsindalega uppfundin \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 sta\u00f0lana og batinn loks vandlega kortlag\u00f0ur me\u00f0 v\u00edsindalegum s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegum pr\u00f3fum (t.d. kv\u00ed\u00f0a- og \u00feunglyndiskvar\u00f0a Beck&#8217;s).<\/p>\n<p>\u00c9g get teki\u00f0 sem d\u00e6mi s\u00ed\u00f0ustu alvarlegu l\u00e6kningatilraunina sem h\u00f3fst \u00e1 haustmisseri 2010. \u00cd algerri \u00f6rv\u00e6ntingu og dj\u00fapu \u00feunglyndiskasti haf\u00f0i \u00e9g fallist \u00e1 a\u00f0 pr\u00f3fa Marplan. \u00deetta lyf er ekki lengur \u00e1 marka\u00f0i h\u00e9rlendis en er st\u00f6ku sinnum reynt \u00feegar a\u00f0rir lyfjaflokkar \u00feykja fullpr\u00f3fa\u00f0ir. Lyfi\u00f0 telst til \u00f3afturkr\u00e6fra MAO-blokka og \u00fearf a\u00f0 gera \u00e1kve\u00f0nar var\u00fa\u00f0arr\u00e1\u00f0stafanir \u00ed mat og drykk, sem og \u00f6\u00f0rum lyfjum, \u00fev\u00ed sumt getur valdi\u00f0 l\u00edfsh\u00e6ttulegum aukaverkunum s\u00e9 \u00fea\u00f0 innbyrt me\u00f0an sj\u00faklingur notar \u00feetta lyf. Sumir sj\u00faklingar \u00feola ekki Marplan og \u00feess vegna er sni\u00f0ugt a\u00f0 pr\u00f3fa \u00fea\u00f0 fyrst inni \u00e1 ge\u00f0deild \u00fev\u00ed h\u00fan er \u00ed h\u00e6filegri n\u00e1l\u00e6g\u00f0 vi\u00f0 hjartadeild Landsp\u00edtalans.<\/p>\n<p>J\u00e6ja, eftir a\u00f0 hafa or\u00f0i\u00f0 \u00e6 veikari h\u00e9r heima \u00ed \u00ferj\u00e1r vikur lag\u00f0ist \u00e9g inn \u00e1 ge\u00f0deild og byrja\u00f0i \u00e1 \u00feessu lyfi. \u00c1 ge\u00f0deild var \u00e9g \u00ed sj\u00f6 vikur, sem er pers\u00f3nulegt met \u00ed ge\u00f0deildardv\u00f6l. Marplan l\u00e6kka\u00f0i bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdstinginn ni\u00f0ur \u00ed m\u00e1tulegan bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdsting fyrir eins \u00e1rs barn en af \u00fev\u00ed \u00e9g er me\u00f0 ansi l\u00e1gan bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdsting fyrir fann \u00e9g ekki svo miki\u00f0 fyrir \u00feessu nema \u00e9g var a\u00f0 drepast \u00far kulda alltaf hreint.\u00a0 S\u00ed\u00f0la dags og \u00e1 kv\u00f6ldin pakka\u00f0i \u00e9g m\u00e9r inn \u00ed lopapeysur og fl\u00edspeysur, hvert lagi\u00f0 yfir \u00f6\u00f0ru, og skrei\u00f0 undir s\u00e6ng a\u00f0 auki. Fakt\u00edskt lei\u00f0 m\u00e9r dj\u00f6fullega seinnipartinn og \u00e1 kv\u00f6ldin en statusinn er tekinn \u00ed morgunvi\u00f0t\u00f6lum svo\u00a0l\u00edklega kom \u00e9g betur fyrir en raunin var. (N\u00fana veit \u00e9g a\u00f0 hluti \u00feessarar sl\u00e6mu l\u00ed\u00f0anar var Rivotril-fr\u00e1hv\u00f6rf &#8230; blogga betur um \u00feau s\u00ed\u00f0ar.) Og svefninn var stundum sl\u00e6mur og lyf vi\u00f0 sl\u00edku virku\u00f0u ekki.<\/p>\n<p>Eftir sj\u00f6 vikur fyllti \u00e9g \u00fat spurningalista, \u00feunglyndispr\u00f3f Becks ef \u00e9g man r\u00e9tt. \u00dea\u00f0 vanta\u00f0i nokkur stig upp \u00e1 a\u00f0 \u00e9g m\u00e6ldist \u00feri\u00f0jungi fr\u00edskari en \u00feegar \u00e9g var l\u00f6g\u00f0 inn en m\u00e9r skildist a\u00f0 \u00feri\u00f0jungs bati teldist markt\u00e6kur bati og n\u00e6gur til a\u00f0 \u00fatskrifast af ge\u00f0deild.\u00a0 \u00c9g haf\u00f0i fari\u00f0 \u00ed leyfi heim \u00ed tvo daga til a\u00f0 testa hvort \u00e9g h\u00f6ndla\u00f0i a\u00f0 vera heima og nota\u00f0i t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 og l\u00e9t sj\u00e6na mig \u00e1 h\u00e1rgrei\u00f0slustofu.\u00a0Svo \u00e9g stakk\u00a0upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e1rlitun, augabr\u00fanalitun og klipping teldist sem nokkur stig og \u00fear me\u00f0 vorum vi\u00f0 komin me\u00f0 \u00feri\u00f0jungs bata \u00e1 hreint og h\u00e6gt a\u00f0 \u00fatskrifa mig. Allir voru gla\u00f0ir yfir \u00feessu: \u00c9g yfir a\u00f0 komast heim (ge\u00f0deild er n\u00fa ekki beinl\u00ednis skemmtista\u00f0ur) og staffi\u00f0 yfir a\u00f0 \u00e9g skyldi geta \u00fatskrifast.<\/p>\n<p>Heima h\u00e9lt \u00e9g \u00e1fram a\u00f0 vera helv\u00edti veik, gat ekki keypt j\u00f3lagjafir, komst ekki \u00ed nein fyrirj\u00f3labo\u00f0 e\u00f0a j\u00f3labo\u00f0, gat illa lesi\u00f0 e\u00f0a fylgst me\u00f0 sj\u00f3nvarpi, minni\u00f0 fokka\u00f0ist meira og minna upp o.s.fr. Svo h\u00e6tti \u00e9g a\u00f0 geta sofi\u00f0, svaf um \u00ferj\u00e1 t\u00edma \u00e1 n\u00f3ttunni fr\u00e1 \u00fev\u00ed um mi\u00f0jan desember og fram \u00ed febr\u00faarlok, n\u00e1\u00f0i stundum a\u00f0 sofna klukkut\u00edma \u00ed vi\u00f0b\u00f3t upp \u00far \u00e1tta a\u00f0 morgni. Vi\u00f0 \u00feessu f\u00e9kk \u00e9g svefnlyf, s\u00ed\u00f0an r\u00f3andi lyf, s\u00ed\u00f0an sterkt ge\u00f0lyf og loks\u00a0j\u00fan\u00edversallyfi\u00f0 gamla:\u00a0Seroquel. M\u00f6gulega virka\u00f0i Seroqueli\u00f0 eitthva\u00f0 en m\u00e9r fannst svo helv\u00edti vont a\u00f0 hr\u00f6kkva upp undir \u00e1hrifum a\u00f0 \u00e9g valdi a\u00f0 sofa klukkut\u00edma styttra og hr\u00f6kkva upp edr\u00fa.<\/p>\n<p>\u00c9g var\u00f0 stj\u00f6rf af svefnleysi. \u00c1 t\u00edmabili t\u00falku\u00f0u b\u00e6\u00f0i \u00e9g og fj\u00f6lskyldan \u00feetta \u00e1stand sem bata. Skapsveiflurnar, pirringurinn og ofsaleg gr\u00e1tk\u00f6st \u00fear sem \u00e9g n\u00e1\u00f0i ekki andanum voru \u00far s\u00f6gunni. En svo var\u00f0 okkur lj\u00f3st a\u00f0 \u00feetta gengi ekki, \u00e9g myndi ekki halda s\u00f6nsum me\u00f0 \u00feriggja til fj\u00f6gurra t\u00edma svefni m\u00e1nu\u00f0um saman.\u00a0\u00c9g \u00e1kva\u00f0 sj\u00e1lf a\u00f0 h\u00e6tta \u00e1 Marplan \u00ed febr\u00faarlok 2011, \u00e1n samr\u00e1\u00f0s vi\u00f0 l\u00e6kninn minn.<\/p>\n<p>Eftir \u00e1 s\u00e9\u00f0 held \u00e9g a\u00f0 Marplan hafi einungis haft \u00feau \u00e1hrif a\u00f0 breyta \u00f3d\u00e6miger\u00f0u \u00feunglyndi \u00ed d\u00e6migert \u00feunglyndi, sem var s\u00edst sk\u00e1rra. \u00de.e.a.s. \u00e9g hef alltaf \u00feurft \u00f3venju mikinn svefn, helst 9 klst. \u00e1 n\u00f3ttu, og enn meiri \u00feegar \u00e9g hef lent \u00ed \u00feunglyndisd\u00fdfum. \u00deess \u00ed sta\u00f0 kom d\u00e6miger\u00f0 \u00e1rvaka og svefnleysi. En bati? \u00c9g held ekki. \u00deegar \u00e9g kvarta\u00f0i yfir a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti ekki sofi\u00f0 takandi Marplan var brug\u00f0ist vi\u00f0 \u00fev\u00ed eins og venjulega, \u00fe.e. me\u00f0 fleiri lyfjum til a\u00f0 sl\u00e1 \u00e1 aukaverkanir a\u00f0allyfsins\u00a0(fyrst Truxal, svo Nozinan, loks Seroquel). \u00deau lyf ger\u00f0u mig bara h\u00edfa\u00f0a en l\u00f6gu\u00f0u ekki svefninn. Imovane virka\u00f0i ekki \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var ekki vandam\u00e1l a\u00f0 sofna heldur a\u00f0 sofa. Minnistruflanir\u00a0 voru skrifa\u00f0ar \u00e1 \u00feunglyndi\u00f0. Handskj\u00e1lftinn var skrifa\u00f0ur \u00e1 kv\u00ed\u00f0ann. Sj\u00e1lf held \u00e9g, eftir \u00e1 s\u00e9\u00f0, a\u00f0 Marplan hafi ekki haft nein \u00e1hrif til bata en \u00f3gagni\u00f0 hafi veri\u00f0 verulegt: \u00dei\u00f0 geti\u00f0 bara pr\u00f3fa\u00f0 a\u00f0 sofa aldrei meir en fj\u00f3ra klukkut\u00edma \u00e1 s\u00f3lahring \u00ed meir en tvo m\u00e1nu\u00f0i og athuga\u00f0 hvernig ykkur l\u00ed\u00f0ur!<\/p>\n<p>En &#8230; vissulega h\u00e9lt \u00e9g kjafti og var hinn g\u00f3\u00f0i \u00feunglyndissj\u00faklingur &#8230; alveg til febr\u00faarloka 2011. M\u00e9r \u00fe\u00e6tti gaman a\u00f0 vita hve lengi \u00feessi hrossal\u00e6kningartilraun hef\u00f0i sta\u00f0i\u00f0 hef\u00f0i \u00e9g ekki sj\u00e1lf \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 komi\u00f0 v\u00e6ri n\u00f3g!<\/p>\n<p>\u00deessi Marplantilraun kenndi m\u00e9r loksins a\u00f0 \u00fe\u00f3tt sj\u00faklingurinn kvarti yfir \u00f3\u00e6skilegum aukaverkunum er \u00fea\u00f0 ekki endilega tali\u00f0 markt\u00e6kt e\u00f0a eitthva\u00f0 sem skipti\u00a0einhverju\u00a0m\u00e1li. \u00dea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti ekki sofi\u00f0, skylfi st\u00f6\u00f0ugt, v\u00e6ri a\u00f0 drepast \u00far kulda, g\u00e6ti hvorki lesi\u00f0 n\u00e9 prj\u00f3na\u00f0 o.s.fr.\u00a0v\u00f3 ekki \u00feungt \u00e1 m\u00f3ti m\u00f6guleikanum \u00e1 a\u00f0 l\u00e6kna &#8220;s\u00e1lina&#8221;, \u00fe.e. meint bo\u00f0efnarugli\u00f0 \u00ed heilanum \u00e1 m\u00e9r. Af \u00feessari tilraun l\u00e6r\u00f0i \u00e9g endanlega a\u00f0 s\u00e9\u00f0 me\u00f0 gleraugum ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i endar l\u00edkaminn vi\u00f0 h\u00e1ls og svo tekur &#8220;s\u00e1lin&#8221; vi\u00f0 &#8211; \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i einbeita menn s\u00e9r a\u00f0 &#8220;s\u00e1linni&#8221; (\u00fe\u00f3tt k\u00f6llu\u00f0 s\u00e9 \u00f6\u00f0ru nafni) =&gt; sj\u00faklingurinn er sm\u00e6tta\u00f0ur ni\u00f0ur \u00ed eigin heilastarfsemi. \u00deetta var \u00fe\u00f6rf lex\u00eda fyrir mig sem haf\u00f0i alltof lengi gleypt st\u00f3rasannleik hr\u00e1an. \u00dea\u00f0 hefur hins vegar teki\u00f0 mig meir en \u00e1r a\u00f0 melta \u00feennan l\u00e6rd\u00f3m og n\u00fdta m\u00e9r loks til gagns.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/mimla.jpg?resize=195%2C222\" alt=\"M\ufffdmla systir M\ufffdu litlu\" align=\"left\" height=\"222\" width=\"195\" \/>Auk ge\u00f0l\u00e6kningabatter\u00edisins telur b\u00e6\u00f0i sj\u00faklingurinn sj\u00e1lfur og n\u00e1nasta fj\u00f6lskylda hans a\u00f0 h\u00e1lfgert uppvaknings\u00e1stand af lyfjum e\u00f0a aukaverkunum lyfja s\u00e9 bati. \u00deunglyndissj\u00faklingar eru nefnilega ekki n\u00e1ndar n\u00e6rri eins r\u00f3mant\u00edskir og \u00feeim er l\u00fdst \u00ed b\u00f3kmenntum. \u00deunglyndi fylgja miklar ge\u00f0sveiflur og pirringur \u00fat \u00ed allt og alla, jafnvel \u00f3skiljanleg rei\u00f0ik\u00f6st. Myndin af r\u00f3mant\u00edska \u00feunglynda snillingnum sem h\u00edmir einmana\u00a0hokinn af heimshrygg\u00f0 og &#8220;bakvi\u00f0 mig b\u00ed\u00f0ur dau\u00f0inn&#8221; f\u00edlingurinn er go\u00f0s\u00f6gn. Svolei\u00f0is a\u00f0 &#8220;haltu kjafti&#8221; hlutverki\u00f0 ver\u00f0ur stundum eftirs\u00f3knarver\u00f0ara en hlutverki\u00f0 &#8220;ge\u00f0vonda konan&#8221; og stjarfinn og sko\u00f0analeysi\u00f0 tali\u00f0 batamerki. \u00c9g blogga br\u00e1\u00f0um um eigin ford\u00f3ma sem hafa sta\u00f0i\u00f0 m\u00e9r mj\u00f6g fyrir \u00ferifum og eru l\u00edklega verstu ford\u00f3marnir, a.m.k. er \u00e6vinlega erfi\u00f0ast a\u00f0 eiga vi\u00f0 eigin ford\u00f3ma. (Myndin er af grenjuskj\u00f3\u00f0unni M\u00edmlu sem er l\u00edklega e\u00f0al\u00feunglyndissj\u00faklingur. Annars geti\u00f0 \u00fei\u00f0 pr\u00f3fa\u00f0 a\u00f0 myndag\u00faggla depression og fullvissa ykkur \u00feannig um a\u00f0 sta\u00f0almyndin af \u00feunglyndissj\u00faklingi er kona \u00ed hnipri, l\u00edklega gr\u00e1tandi og alveg \u00f6rugglega \u00feegjandi!)<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feunglyndissj\u00faklingur eins og \u00e9g er or\u00f0inn \u00f6ryrki af v\u00f6ldum \u00feunglyndisins ver\u00f0ur heimurinn \u00e6 sm\u00e6rri og l\u00edfi\u00f0 \u00e6 f\u00e1t\u00e6klegra. Sm\u00e1m saman fer ma\u00f0ur a\u00f0 hafa asklok fyrir himin. Og \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt festist ma\u00f0ur \u00ed hlutverki sj\u00faklingsins, sem er hundlei\u00f0inlegt, andstyggilegt og \u00f3\u00e6skilegt hlutverk. \u00deetta er versta hlutskipti sem \u00e9g hef hloti\u00f0 \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni og \u00e9g myndi fagna \u00fev\u00ed mj\u00f6g a\u00f0 sleppa vi\u00f0 a\u00f0 einhverju leyti vi\u00f0 \u00fea\u00f0, \u00fe\u00f3tt ekki v\u00e6ri nema f\u00e1 brotabrot af starfsorkunni aftur.<\/p>\n<p>Enn einn h\u00f6fu\u00f0verkurinn er a\u00f0 d\u00edla vi\u00f0 opinbera kerfi\u00f0. \u00deegar \u00e9g var\u00f0 \u00f6ryrki reyndist a\u00f0all\u00edfeyrissj\u00f3\u00f0urinn minn m\u00e9r mj\u00f6g vel. \u00d6ll samskipti vi\u00f0 f\u00f3lk \u00fear hafa veri\u00f0 til fyrirmyndar. Satt best a\u00f0 segja held \u00e9g a\u00f0 \u00feessi \u00e1g\u00e6tu samskipti og s\u00e9rstaklega g\u00f3\u00f0a \u00fej\u00f3nusta s\u00e9 undantekning.\u00a0Allt a\u00f0ra s\u00f6gu er a\u00f0 segja af Tryggingastofnun r\u00edkisins. \u00dea\u00f0an vildi \u00e9g einungis f\u00e1 \u00f6rorkusk\u00edrteini en ekkert f\u00e9. TR hefur \u00fe\u00e1 stefnu a\u00f0 taka ekki mark \u00e1 l\u00e6knisvottor\u00f0um ef \u00f6rorka er af v\u00f6ldum ge\u00f0r\u00f6skunar en tekur stundum mark \u00e1 l\u00e6knisvottor\u00f0um um \u00f6rorku af \u00f6\u00f0rum toga. \u00deess vegna var \u00e9g p\u00ednd \u00ed vi\u00f0tal \u00ed fyrra vi\u00f0 heimilisl\u00e6kni \u00ed Mosfellsb\u00e6, annan af \u00feeim tveimur l\u00e6knum sem TR treystir til a\u00f0 meta \u00f6rorku vegna ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma. Heimild m\u00edn fyrir vinnureglu TR sem mismunar \u00f6ryrkjum eftir e\u00f0li krankleika er \u00feessi l\u00e6knir. TR \u00ferj\u00f3ska\u00f0ist l\u00edka vi\u00f0 a\u00f0 \u00fevinga mig til a\u00f0 veita stofnuninni a\u00f0gang a\u00f0 \u00f6llum uppl\u00fdsingum um fj\u00e1rhag minn (skattask\u00fdrslum, bankareikningum\u00a0o.fl.) \u00feanga\u00f0 til Pers\u00f3nuvernd \u00farskur\u00f0a\u00f0i a\u00f0 stofnuninni v\u00e6ri \u00feetta \u00f3heimilt. (\u00dea\u00f0 gekk ekki \u00e1takalaust \u00fev\u00ed TR lag\u00f0i sig \u00ed l\u00edma vi\u00f0 a\u00f0 veita Pers\u00f3nuvernd villandi uppl\u00fdsingar.) \u00der\u00e1tt fyrir \u00farskur\u00f0 Pers\u00f3nuverndar\u00a0\u00ed lok\u00a0s\u00ed\u00f0asta sumars n\u00e1\u00f0i TR ekki a\u00f0 b\u00faa til n\u00fdtt ey\u00f0ubla\u00f0 \u00ed t\u00e6ka t\u00ed\u00f0 og \u00e9g endurn\u00fdja\u00f0i \u00f6rorkusk\u00edrteini\u00f0 einhvern veginn &#8220;bakdyramegin&#8221; n\u00fana \u00e1 vormisseri, \u00fe.e. me\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3stsamskiptum vi\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ing og fulltr\u00faa \u00e1 skrifstofu. Hef ekki g\u00e1\u00f0 hvort stofnuninni hefur tekist a\u00f0 b\u00faa til ey\u00f0ubla\u00f0 \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00farskur\u00f0 Pers\u00f3nuverndar \u00e1 allra s\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0um &#8230; reikna svona s\u00ed\u00f0ur me\u00f0 \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/skirnir_1909.jpg?resize=416%2C264\" alt=\"\u00darklippa \u00far Sk\ufffdrni 1909\" align=\"right\" height=\"264\" width=\"416\" \/><\/p>\n<p>\u00a0 \u00a0<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g fyllti \u00fat skattframtal n\u00fana t\u00f3k \u00e9g eftir a\u00f0 upph\u00e6\u00f0 sm\u00e1auranna sem \u00e9g f\u00e6 fr\u00e1 S\u00f6fnunarsj\u00f3\u00f0i l\u00edfeyrisr\u00e9ttinda haf\u00f0i breyst. (Sj\u00fakd\u00f3mur minn veldur \u00fev\u00ed m.a. a\u00f0 \u00e9g gaumg\u00e6fi ekki rafr\u00e6n skj\u00f6l \u00ed heimabanka sem t\u00f3mstundargaman.) \u00c9g hringdi \u00ed SL og f\u00e9kk a\u00f0 vita a\u00f0\u00a0 b\u00e6klunarl\u00e6knir, sem er emb\u00e6ttisl\u00e6knir SL, hef\u00f0i \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00ed n\u00f3vember a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri 25% vinnuf\u00e6r og \u00fe.a.l. 75% \u00f6ryrki. \u00c9g hef aldrei hitt \u00feennan l\u00e6kni en l\u00e6knirinn minn sendi SL vottor\u00f0 \u00ed okt\u00f3ber og m\u00e9r \u00feykir \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 s\u00e1 ge\u00f0l\u00e6knir sem hefur stunda\u00f0 mig fr\u00e1 \u00e1rinu 2000 hafi allt \u00ed einu votta\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i n\u00e1\u00f0 \u00feetta g\u00f3\u00f0um bata \u00e1n \u00feess a\u00f0 segja m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>\u00c9g hringdi sem sagt \u00ed konuna sem hefur me\u00f0 m\u00edn m\u00e1l a\u00f0 gera hj\u00e1 SL og \u00f3ska\u00f0i eftir sk\u00fdringum, f\u00e9kk a\u00f0 vita a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri b\u00fain a\u00f0 vera svona helv\u00edti fr\u00edsk s\u00ed\u00f0an \u00ed n\u00f3vember a\u00f0 mati fjargreinandi b\u00e6klunarl\u00e6knis, sendi\u00a0svo konunni\u00a0t\u00f6lvup\u00f3st me\u00f0 bei\u00f0ni um afrit af \u00f6rorkumati og \u00feeim g\u00f6gnum sem \u00fea\u00f0 v\u00e6ri byggt \u00e1. T\u00e6pum m\u00e1nu\u00f0i seinna hringdi \u00e9g aftur en \u00fe\u00e1 sag\u00f0ist h\u00fan ekki hafa fengi\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3stinn. \u00c9g sendi hann aftur fyrir r\u00famri viku. Svo hringdi \u00e9g \u00ed g\u00e6r til a\u00f0 vita af hverju \u00e9g v\u00e6ri ekki b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 lj\u00f3srit\/afrit af \u00feessum g\u00f6gnum. \u00cd s\u00edmtalinu sag\u00f0i \u00e9g l\u00edka kristalt\u00e6rt a\u00f0 m\u00e9r fyndist \u00fea\u00f0 alger vanvir\u00f0ing a\u00f0 einhver l\u00e6knir sem aldrei hefur bari\u00f0 mig augum \u00e1kve\u00f0i upp \u00e1 sitt eind\u00e6mi a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 fj\u00f3r\u00f0ungi fr\u00edsk &#8211; \u00e9g er \u00fe\u00e1 v\u00e6ntanlega bara letid\u00fdr og upp \u00e1 mitt eigi\u00f0 hopp og h\u00ed, svona kannski a\u00f0 gamni m\u00ednu, \u00f3vinnuf\u00e6r me\u00f0 \u00f6llu? Yfirl\u00fdsing um a\u00f0 \u00e9g mundi fylgja \u00feessu m\u00e1li eftir dug\u00f0i til a\u00f0 konan hringdi til baka, l\u00e6knirinn hefur &#8220;sett mitt m\u00e1l \u00ed forgang&#8221; og \u00e9g m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 \u00feessi g\u00f6gn \u00e1 morgun e\u00f0a \u00e1 m\u00e1nudag. Kannski hj\u00e1lpa\u00f0i til a\u00f0 \u00e9g sag\u00f0ist \u00e1l\u00edta a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti \u00f6rorkumati\u00f0 og mitt leyfi dyg\u00f0i til a\u00f0 f\u00e1 \u00fea\u00f0 sent (alveg eins og \u00e9g \u00e1 sj\u00fakrask\u00fdrslurnar um mig, skv. l\u00f6gum). \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1hugavert a\u00f0 sj\u00e1 r\u00f6kstu\u00f0ning \u00feessa b\u00e6klunarl\u00e6knis fyrir hinum skyndilega bata m\u00ednum, sem \u00e9g hef ekki teki\u00f0 eftir sj\u00e1lf \u00fev\u00ed \u00e9g er b\u00fain a\u00f0 vera helv\u00edti veik \u00ed vetur! Og a\u00f0 sama skapi oftast helv\u00edti \u00fe\u00e6g &#8230; en hef \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halla m\u00e9r aftur a\u00f0 M\u00edu litlu sem fyrirmynd og droppa v\u00e6luskj\u00f3\u00f0ufyrirmyndinni systur hennar.<\/p>\n<p>\u00a0 \u00a0<\/p>\n<p>Sem sagt: Enn ein birtingarmyndin af \u00feeirri r\u00e1\u00f0andi \u00a0sko\u00f0un a\u00f0 \u00feunglyndissj\u00faklingur eigi a\u00f0 halda kjafti, vera \u00fe\u00e6gur og taka \u00fev\u00ed sem a\u00f0 honum er r\u00e9tt s\u00e9st \u00ed vinnureglum Tryggingarstofnunar r\u00edkisins og vinnubr\u00f6g\u00f0um tr\u00fana\u00f0arl\u00e6knis S\u00f6fnunarsj\u00f3\u00f0s l\u00edfeyrisr\u00e9ttinda. Kannski grunar l\u00e6knana sem starfa hj\u00e1 \u00feessum stofnunum a\u00f0 \u00f3vinnuf\u00e6rir \u00feunglyndissj\u00faklingar s\u00e9u a\u00f0allega haldnir r\u00e1\u00f0leysi og leti?\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir langal\u00f6ngu vakti sm\u00e1sagnasafni\u00f0 Haltu kjafti og vertu s\u00e6t (eftir Vitu Andersen) mikla athygli. S\u00f6gurnar \u00e1ttu \u00fea\u00f0 sammerkt a\u00f0\u00a0fjalla um\u00a0hlutgervingu og sm\u00e6ttun kvenna og l\u00fdsa kvenfjandsamlegum heimi. \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 fem\u00ednistar s\u00e9u enn hrifnir <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/04\/19\/haltu-kjafti-og-vertu-thunglynd\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,25],"tags":[],"class_list":["post-414","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-gedheilsa","category-thunglyndid"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/414","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=414"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/414\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":671,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/414\/revisions\/671"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=414"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=414"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=414"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}