{"id":415,"date":"2012-04-22T17:26:30","date_gmt":"2012-04-22T17:26:30","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-04-22\/fardu-i-rassgat-rivotril\/"},"modified":"2015-01-21T16:58:47","modified_gmt":"2015-01-21T16:58:47","slug":"fardu-i-rassgat-rivotril","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/04\/22\/fardu-i-rassgat-rivotril\/","title":{"rendered":"Far\u00f0u \u00ed rassgat Rivotril!"},"content":{"rendered":"<p>A\u00f0 gefnu tilefni vil \u00e9g taka fram a\u00f0 \u00ed \u00feessum bloggf\u00e6rslum \/ p\u00e6lingum m\u00ednum um eigin sj\u00fakd\u00f3m og reynslu af l\u00e6knisa\u00f0ger\u00f0um er \u00e9g ekki a\u00f0 leita a\u00f0 s\u00f6kud\u00f3lgi. Einu m\u00f6gulegu s\u00f6kud\u00f3lgarnir eru einhverjir \u00e1ar lengst aftur \u00ed \u00e6ttir sem hafa skaffa\u00f0 \u00f3\u00e6skileg gen. \u00c1 ma\u00f0ur a\u00f0 ergja sig yfir \u00fev\u00ed? \u00c9g vil taka sk\u00fdrt fram a\u00f0\u00a0m\u00e9r hefur fundist starfsf\u00f3lk \u00e1 ge\u00f0deild vera einstaklega almennilegt og leggja sig fram vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00faklingum l\u00ed\u00f0i sem sk\u00e1st mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Og einnig taka sk\u00fdrt fram a\u00f0 \u00e9g hef enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 \u00e6tla anna\u00f0 en a\u00f0 ge\u00f0l\u00e6knirinn minn hafi \u00e1vallt bori\u00f0 hag minn fyrir brj\u00f3sti og gripi\u00f0 til \u00feeirra l\u00e6knisr\u00e1\u00f0a hverju sinni sem hann taldi myndu n\u00fdtast best til a\u00f0 sl\u00e1 \u00e1 sj\u00fakd\u00f3mseinkenni e\u00f0a gera l\u00edf mitt b\u00e6rilegra, fr\u00e1 s\u00ednum sj\u00f3narh\u00f3li s\u00e9\u00f0.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Mamma \ufffd s\ufffdldinni \u00e1 Raufarh\u00f6fn\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/gudrun_sild.jpg?resize=268%2C180\" width=\"268\" height=\"180\" align=\"left\" border=\"1\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/>En efni \u00feessarar f\u00e6rslu er eigin hroki og ford\u00f3mar. \u00deess vegna er titillinn \u00f3bein v\u00edsun \u00ed fr\u00e6gt hrokafullt og meinyrt kv\u00e6\u00f0i Su\u00f0ur-\u00deingeyings um minn f\u00e6\u00f0ingarb\u00e6. Tek \u00fe\u00f3 fram a\u00f0 tilfinningar m\u00ednar \u00ed gar\u00f0 Rivotrils eru ekki n\u00e6rri eins beiskjublandnar og tilfinningar H\u00fasv\u00edkingsins. Til a\u00f0 draga \u00far \u00e1hrifum v\u00edsunarinnar er mynd af m\u00f6mmu \u00ed s\u00edldinni \u00e1 Raufarh\u00f6fn, h\u00fan hefur b\u00e6\u00f0i j\u00e1kv\u00e6tt vi\u00f0horf til s\u00edldar og Raufarhafnar auk \u00feess a\u00f0 hafa aldrei eti\u00f0 Rivotril \ud83d\ude09<\/p>\n<p>Rivotril er benz\u00f3d\u00edazapem-lyf, \u00fe.e. lyf af sama mei\u00f0i og Xanax, Libr\u00edum, D\u00edazepam (Val\u00edum) o.fl. Flest eru \u00feessi lyf flokku\u00f0 sem r\u00f3andi e\u00f0a kv\u00ed\u00f0astillandi en Rivotril er reyndar flokka\u00f0 sem flogaveikilyf \u00fe\u00f3tt \u00fev\u00ed s\u00e9 oft \u00e1v\u00edsa\u00f0 sem kv\u00ed\u00f0astillandi lyfi. Helmingunart\u00edmi lyfsins er \u00f3venju langur og \u00feess vegna \u00feykir \u00fea\u00f0 \u00f3l\u00edklegra til a\u00f0 valda f\u00edkn en m\u00f6rg \u00f6nnur kv\u00ed\u00f0astillandi lyf \u00far benz\u00f3lyfjaflokknum.<\/p>\n<p>\u00c9g hef \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 \u00e9g hafi haft kv\u00ed\u00f0ar\u00f6skun fr\u00e1 blautu barnsbeini. En fyrsta sl\u00e6ma ofsakv\u00ed\u00f0akasti\u00f0 sem \u00e9g man eftir \u00e1 sj\u00fakd\u00f3msferli m\u00ednum upplif\u00f0i \u00e9g vi\u00f0 mj\u00f6g erfi\u00f0ar og \u00e1takanlegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, \u00ed kirkjuath\u00f6fn \u00e1ri\u00f0 2002. \u00de\u00e1 haf\u00f0i \u00e9g ekki hugmynd um hva\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri en fannst a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 l\u00ed\u00f0a yfir mig og upplif\u00f0i \u00feessa hryllilegu l\u00ed\u00f0an sem ofsakv\u00ed\u00f0akast er. \u00cd rauninni er d\u00e1l\u00edti\u00f0 misv\u00edsandi a\u00f0 kalla \u00feetta ofsakv\u00ed\u00f0akast \u00fev\u00ed svona k\u00f6st l\u00edkjast ekki kv\u00ed\u00f0a eins og venjulegt f\u00f3lk skilur or\u00f0i\u00f0. Ma\u00f0ur kv\u00ed\u00f0ir \u00ed rauninni ekki fyrir neinu heldur l\u00edkist kasti\u00f0 miklu frekar hjarta\u00e1falli (andnau\u00f0, yfirli\u00f0atilfinning, s\u00e1r verkur fyrir brj\u00f3sti og ni\u00f0ur handlegg o.s.fr.) enda eru m\u00f6rg d\u00e6mi \u00feess a\u00f0 f\u00f3lk leiti \u00e1 hjartadeild vegna ofsakv\u00ed\u00f0akasts. \u00deegar kv\u00ed\u00f0asj\u00faklingur hefur \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 a\u00f0 \u00feessi k\u00f6st koma vi\u00f0 tilteknar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur ver\u00f0ur kv\u00ed\u00f0i fyrir yfirvofandi kasti svo mikill a\u00f0 hann einn og s\u00e9r\u00a0getur valdi\u00f0\u00a0kv\u00ed\u00f0akasti \u00ed hvert sinn sem vi\u00f0komandi lendir \u00ed \u00feessum a\u00f0st\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er mj\u00f6g erfitt a\u00f0 eiga vi\u00f0 ofsakv\u00ed\u00f0a \u00fev\u00ed gr\u00edpi ma\u00f0ur til hins n\u00e6rt\u00e6kasta, sem s\u00e9 for\u00f0ast a\u00f0st\u00e6\u00f0urnar sem kveikja kv\u00ed\u00f0akasti\u00f0, eykst kv\u00ed\u00f0inn og kv\u00ed\u00f0ak\u00f6stin koma vi\u00f0 fleiri a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Ofsakv\u00ed\u00f0i er n\u00e1kv\u00e6mlega eins og p\u00fakinn \u00e1 fj\u00f3sbitanum, sem fitna\u00f0i af b\u00f6lvi einu saman. Ef ma\u00f0ur reynir a\u00f0 komast undan honum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0st\u00e6\u00f0ur fitnar helv. kv\u00ed\u00f0ap\u00fakinn af for\u00f0uninni og ver\u00f0ur enn \u00e1gengari.<\/p>\n<p>\u00cd m\u00ednu tilviki f\u00e6r\u00f0ist ofsakv\u00ed\u00f0inn \u00far kirkjunni yfir \u00e1 st\u00f3r r\u00fdmi almennt og svo \u00e1 Hvalfjar\u00f0arg\u00f6ngin. Merkilegt nokk skildu margir a\u00f0 \u00e9g skyldi f\u00e1 kv\u00ed\u00f0akast \u00ed g\u00f6ngunum, \u00fea\u00f0 m\u00e1 skrifa \u00fea\u00f0 \u00e1 innilokunarkennd sem margir \u00fej\u00e1st af. \u00dea\u00f0 var hins vegar erfi\u00f0ara fyrir a\u00f0ra a\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g\u00a0\u00e6tti erfitt me\u00f0 a\u00f0 fara \u00ed b\u00ed\u00f3 e\u00f0a leikh\u00fas: Af hverju \u00e6tti ma\u00f0ur a\u00f0 upplifa hjarta\u00e1fallseinkenni \u00ed b\u00ed\u00f3 e\u00f0a leikh\u00fasi? En ofsakv\u00ed\u00f0i (stundum kalla\u00f0ur felmtursr\u00f6skun) er engan veginn l\u00f3g\u00edskur fjandi! Spurningunni: &#8220;Vi\u00f0 hva\u00f0 ertu hr\u00e6dd?&#8221; er ekki h\u00e6gt a\u00f0 svara. \u00c1 t\u00edmabili f\u00e9kk \u00e9g a\u00f0kenningu a\u00f0 ofsakv\u00ed\u00f0ak\u00f6stum \u00ed minni eigin kennslustofu &#8230; og meira a\u00f0 segja \u00ed stofunni heima hj\u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 sl\u00e1 \u00e1 \u00feessi einkenni f\u00e9kk \u00e9g \u00e1v\u00edsa\u00f0 Rivotril \u00ed litlum sk\u00f6mmum \u00e1ri eftir fyrsta sl\u00e6ma ofsakv\u00ed\u00f0akasti\u00f0, \u00fe.e. \u00e1ri\u00f0 2003. S\u00ed\u00f0an hef \u00e9g teki\u00f0 \u00feetta lyf a\u00f0 sta\u00f0aldri og \u00ed mismunandi sk\u00f6mmtum, stundum tilt\u00f6lulega h\u00e1um, stundum l\u00e1gum.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Hlekkju\u00f0 snorkstelpa\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/snorkstelpa_hlekkjud.jpg?resize=227%2C120\" width=\"227\" height=\"120\" align=\"left\" border=\"1\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" \/>Sumari\u00f0 2009 reyndi l\u00e6knakand\u00eddat \u00e1 heilsug\u00e6slunni h\u00e9r \u00e1 Skaganum a\u00f0 benda m\u00e9r \u00e1 a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri or\u00f0in mj\u00f6g h\u00e1\u00f0 Rivotrili og Seroqueli. \u00c9g haf\u00f0i panta\u00f0 aukaskammt af \u00feessum lyfjum af \u00fev\u00ed \u00e9g var a\u00f0 fara \u00ed fr\u00ed til \u00fatlanda. \u00deessi l\u00e6knakand\u00eddat hringdi \u00ed mig, sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri alltof h\u00e1\u00f0 \u00feessu og gaf jafnframt \u00ed skyn a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 safna birg\u00f0um fyrir sj\u00e1lfsv\u00edg. \u00c9g var\u00f0 ofbo\u00f0slega rei\u00f0 yfir a\u00f0 vera v\u00e6nd um a\u00f0 vera lyfjaf\u00edkill \u00ed sj\u00e1lfsv\u00edgshuglei\u00f0ingum og klaga\u00f0i kand\u00eddatinn umsvifalaust fyrir yfirmanni heilsug\u00e6slust\u00f6\u00f0varinnar.<\/p>\n<p>Hausti\u00f0 2009 var m\u00e9r aftur bent \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00f3skynsamlegt a\u00f0 taka Rivotril a\u00f0 sta\u00f0aldri. \u00c9g br\u00e1st aftur vi\u00f0 me\u00f0 hrokann a\u00f0 vopni og blogga\u00f0i \u00ed n\u00f3v. 2009:<\/p>\n<blockquote><p>\u00deegar tekin var af m\u00e9r sj\u00faklingask\u00fdrsla inni \u00e1 deild 32 A fyrir r\u00famum m\u00e1nu\u00f0i s\u00ed\u00f0an gaf hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingurinn \u00ed skyn a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri Rivotril-f\u00edkill. Blessunarlega var \u00e9g sj\u00f3u\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed kjaft\u00e6\u00f0i s\u00ed\u00f0an \u00e9g kynntist \u00f3gleymanlegum l\u00e6knanema \u00ed sumar, sem greindi mig \u00f3s\u00e9\u00f0a gegnum s\u00edmtal\u00a0 S\u00fa \u00e1 Lans sag\u00f0ist hafa \u201cl\u00e6rt \u00fea\u00f0 \u00ed sk\u00f3lanum\u201d a\u00f0 Rivotril m\u00e6tti einungis nota \u00ed 3 vikur samfleytt. (\u00c9g veit a\u00f0 alls konar vitleysa er kennd \u00ed sk\u00f3lum; sj\u00e1lf kenni \u00e9g t.d. stundum a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in s\u00e9 fl\u00f6t og regnboginn br\u00fa upp \u00ed \u00c1sgar\u00f0 og \u00ferj\u00e1r nornir skapi m\u00f6nnum \u00f6rl\u00f6g \u2026 e\u00f0a a\u00f0 allt muni deyja og f\u00f6lna nema or\u00f0st\u00edrinn \u2026 og fleiri svona dilluverk sem \u00e9g reikna me\u00f0 a\u00f0 sr. E\u00f0var\u00f0 v\u00e6ri ekki fullkomlega samm\u00e1la.\u00a0 Svo \u00e9g er ekkert a\u00f0 rengja \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00ed hj\u00fakrunardeild H\u00cd e\u00f0a HA s\u00e9 kennt a\u00f0 ekki megi nota Rivotril nema \u00ed 3 vikur. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir hins vegar ekki a\u00f0 f\u00f3lk eigi a\u00f0 gleypa allt hr\u00e1tt sem \u00fev\u00ed er sagt \u00ed sk\u00f3la.)<\/p><\/blockquote>\n<p>En hef \u00fe\u00f3 greinilega eitthva\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 hugsa minn gang \u00fev\u00ed \u00ed s\u00f6mu f\u00e6rslu segir:<\/p>\n<blockquote><p>\u00c9g hef svo l\u00e9lega d\u00f3mgreind a\u00f0 mig brast vit til a\u00f0 greina milli \u00feess sem \u00e9g get breytt og \u00feess sem \u00e9g get ekki breytt. Svo \u00ed einhverju br\u00edar\u00edi, sem engan veginn h\u00e6fir svo skynsamri manneskju, f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 trappa ni\u00f0ur Rivotril-i\u00f0. \u00dea\u00f0 virtist ganga vel \u00ed fyrstu en \u00ed morgun vakna\u00f0i \u00e9g hr\u00ed\u00f0skj\u00e1lfandi klukkan 5.30 \u2026 f\u00f3r \u00e1 f\u00e6tur mest til a\u00f0 geta eti\u00f0 morgunskammtinn af t\u00e9\u00f0u Rivotrili og f\u00f3r a\u00f0 hr\u00e6ra saman \u00ed pr\u00f3f. Allt gekk \u00feetta \u00feolanlega fram undir h\u00e1degi en \u00fe\u00e1 hrundi \u00e9g h\u00e9r inn um dyrnar heima og f\u00f3r a\u00f0 h\u00e1grenja. Reyndi a\u00f0 leggja mig en lei\u00f0 bara verr \u2026 \u00feanga\u00f0 til \u00e9g horf\u00f0ist \u00ed augu vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri miki\u00f0 veik og \u00e6tti a\u00f0 vera \u00ed b\u00e6linu og gera sem minnst. Og t\u00f3k Rivotril en m\u00e1 eiga \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g kenni hj\u00fakkunni \u00e1 32 A \u00fe\u00f3 ekki um &#8211; \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 \u00far m\u00e9r samviskubitinu yfir \u00feessu r\u00e6fils lyfi er mitt eigi\u00f0 m\u00e1l og \u00e1byrg\u00f0.<\/p><\/blockquote>\n<p>N\u00fana s\u00e9 \u00e9g a\u00f0 \u00feessar konur h\u00f6f\u00f0u alveg r\u00e9tt fyrir s\u00e9r. \u00c9g var sj\u00e1lf blindu\u00f0 af hroka og eigin ford\u00f3mum. \u00dea\u00f0 hvarfla\u00f0i ekki a\u00f0 m\u00e9r eitt augnablik a\u00f0 taka mark \u00e1 \u00feessum velmeinandi athugasemdum. N\u00fana skammast \u00e9g m\u00edn fyrir vi\u00f0br\u00f6g\u00f0in og er raunar a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r a\u00f0 hafa samband vi\u00f0 l\u00e6knakand\u00eddatinn og bi\u00f0ja hana afs\u00f6kunar.<\/p>\n<p>Vori\u00f0 2010 \u00e1kva\u00f0 \u00e9g einhverra hluta vegna a\u00f0 h\u00e6tta \u00e1 \u00f6llum lyfjum. L\u00edklega hefur undirme\u00f0vitundin sagt m\u00e9r a\u00f0 st\u00f6\u00f0ug og vaxandi lyfjagj\u00f6f s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ra hef\u00f0i ekki skila\u00f0 neinum \u00e1rangri, \u00e9g skildi \u00feetta sums\u00e9 &#8220;me\u00f0 randen af forstanden&#8221; eins og famil\u00edan or\u00f0ar \u00feetta stundum. \u00c9g man a\u00f0eins eftir \u00feessari tilraun, l\u00edti\u00f0 minningarbrot um \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 fara a\u00f0 arka Langasand \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn sama daginn vegna \u00feess a\u00f0 ef \u00e9g var kjur skalf \u00e9g eins og hr\u00edsla poppar upp \u00ed kollinn \u00e1 m\u00e9r. En \u00feessi \u00f3skynsamlega tilraun, a\u00f0 sn\u00f6ggh\u00e6tta \u00e1 Rivotrili, rann \u00fat \u00ed sandinn og \u00ed snemma \u00ed apr\u00edl 2010 hef \u00e9g blogga\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p>Af heilsu er \u00fea\u00f0 a\u00f0 fr\u00e9tta a\u00f0 \u00e9g hef \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 byrja a\u00f0 eta pillur vi\u00f0 kv\u00ed\u00f0a. Er fullkomlega s\u00e1tt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 enda \u00e1standi\u00f0 \u00f3b\u00e6rilegt og eitthva\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 gera. \u00cd tannl\u00e6knaheims\u00f3kn kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 verkir og helaumt tannhold hefur ekkert a\u00f0 gera me\u00f0 \u00e1stand tanna og tannholds. (Mig gruna\u00f0i \u00fea\u00f0 en vildi s\u00ed\u00f0ur f\u00e1 sl\u00e6ma tannr\u00f3tarb\u00f3lgu bara af \u00fev\u00ed \u00e9g hef\u00f0i skrifa\u00f0 allt \u00e1 kv\u00ed\u00f0areikninginn.) Skv. bl\u00f3\u00f0prufu er \u00e9g st\u00e1lhraust. En r\u00fam 10 kg hafa hruni\u00f0 af m\u00e9r s\u00ed\u00f0an \u00ed jan\u00faar og k\u00edl\u00f3ar\u00fdrnun er enn \u00ed fullum gangi \u2026 reikna me\u00f0 a\u00f0 \u00e9g brenni eins og mara\u00feonhlaupari \u00fe\u00f3tt \u00e9g sitji meira e\u00f0a minn kjur. Kv\u00ed\u00f0i er afar grennandi kvilli.<\/p><\/blockquote>\n<p>A\u00f0eins seinna \u00ed sama m\u00e1nu\u00f0i er \u00e9g komin \u00ed v\u00f6rn:<\/p>\n<blockquote><p>Og enn eitt: Vissulega h\u00e6tti \u00e9g \u00e1 lyfjum. En \u00fea\u00f0 kom n\u00fa ekki til af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g h\u00e9ldi a\u00f0 s\u00farefni og vatn myndu gera mig heilbrig\u00f0. Nei, eftir a\u00f0 hafa pr\u00f3fa\u00f0 \u00e1 \u00feri\u00f0ja tug lyfja var \u00e9g or\u00f0in \u00farkula vonar um a\u00f0 \u00fea\u00f0 fyndist lyf sem virka\u00f0i \u00e1 mitt \u00feunglyndi og kv\u00ed\u00f0a. Hef \u00ed t\u00edmans r\u00e1s s\u00e9\u00f0 m\u00f6rg d\u00e6mi \u00feess a\u00f0 lyf skiptu sk\u00f6pum og er almennt fylgjandi lyfl\u00e6kningum, rafl\u00e6kningum l\u00edka. Kannski mun \u00e9g \u00f6\u00f0last d\u00f6ngun til a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 pr\u00f3fa (verst hva\u00f0 \u00e9g \u00feoli helv. aukaverkanirnar illa). N\u00e6sta skref hj\u00e1 m\u00e9r er hvorki fj\u00f3r\u00f0a spors \u201cvinna\u201d n\u00e9 ni\u00f0urd\u00fdfingarsk\u00edrn heldur kv\u00ed\u00f0an\u00e1mskei\u00f0; er a\u00f0 reyna a\u00f0 komast \u00e1 svolei\u00f0is, veit ekki hvort \u00fea\u00f0 virkar en \u00fea\u00f0 get \u00e9g n\u00e1tt\u00farlega ekki vita\u00f0 nema pr\u00f3fa. Og \u00e9g er vo\u00f0alega miki\u00f0 til \u00ed a\u00f0 pr\u00f3fa ansi margt gegn \u00feessu helv\u00edti \u00fe\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 ekki heit fyrir n\u00fdm\u00f3\u00f0ins sporavinnu, a.m.k. ekki ef \u00e1rangurinn af henni er \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g var\u00f0 vitni af \u00ed dag.<\/p><\/blockquote>\n<p>Raunar er nokku\u00f0 auglj\u00f3st a\u00f0 \u00e9g var\u00a0b\u00e6\u00f0i a\u00f0\u00a0verja Rivotril-t\u00f6ku\u00a0og\u00a0\u00a0reyna a\u00f0 h\u00e6tta henni, vori\u00f0 2010.\u00a0 En hef\u00a0\u00fe\u00f3 eitthva\u00f0\u00a0reynt a\u00f0 kl\u00f3ra \u00ed bakkann me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skr\u00e1 mig \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 hj\u00e1 Kv\u00ed\u00f0ami\u00f0st\u00f6\u00f0inni og p\u00edndi mig til a\u00f0 sitja \u00fea\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0. (\u00c9g man eftir samningum vi\u00f0 sj\u00e1lfa mig \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0: &#8220;N\u00fa labbar\u00f0u \u00fat \u00e1 str\u00e6t\u00f3st\u00f6\u00f0 og \u00feegar \u00fe\u00fa ert komin \u00feanga\u00f0\u00a0m\u00e1ttu \u00e1kve\u00f0a\u00a0a\u00f0 h\u00e6tta vi\u00f0 a\u00f0 fara&#8221; &#8230;)\u00a0 Fyrirfram haf\u00f0i \u00e9g enga tr\u00fa \u00e1 a\u00f0 HAM-n\u00e1mskei\u00f0 gegn kv\u00ed\u00f0a k\u00e6mi a\u00f0 minnsta gagni en raunin var\u00f0 \u00f6nnur. \u00deetta n\u00e1mskei\u00f0 er eitt af f\u00e1um verulega gagnlegum bjarghringjum \u00ed sj\u00fakd\u00f3mss\u00f6gu minni.<\/p>\n<p>Sem betur fer var\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 atvik til \u00feess n\u00fana \u00e1 \u00fatm\u00e1nu\u00f0um a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r \u00ed alv\u00f6ru a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r m\u00ednum m\u00e1lum, gera yfirlit yfir sj\u00fakras\u00f6guna m\u00edna (sem var nau\u00f0synlegt \u00fev\u00ed st\u00f3rir hlutar hennar eru \u00ed \u00f3minni) og draga \u00e1lyktanir af \u00fev\u00ed yfirliti. Undir ni\u00f0ri hafa kannski efasemdir um Rivotrilneyslu krauma\u00f0, \u00fe\u00f6kk s\u00e9 \u00feessum \u00e1bendingum sem \u00e9g var of hrokafull \u00e1 s\u00ednum t\u00edma til a\u00f0 sko\u00f0a?<\/p>\n<p>Vaxandi minnistruflanir hafa pirra\u00f0 mig \u00e6r meir. \u00de\u00e6r hafa veri\u00f0 sk\u00fdr\u00f0ar fyrir m\u00e9r \u00feannig a\u00f0 \u00ed \u00feunglyndi skr\u00e1i heilinn ekki minningarnar r\u00e9tt og \u00feess vegna geti \u00e9g ekki kalla\u00f0 aftur fram margar minningar. (\u00c9g hef gert m\u00e9r \u00ed hugarlund a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri eins og a\u00f0 vista Word-skjal undir endingunni .jpg og geta svo ekki hvorki opna\u00f0 skjali\u00f0\u00a0\u00ed Word n\u00e9\u00a0myndvinnsluforriti.)\u00a0\u00c9g held a\u00f0 \u00feessi kenning geti vel \u00fatsk\u00fdrt vaxandi minnistruflanir en er \u00feess fullviss n\u00fana a\u00f0 hluta \u00feessara minnistruflana m\u00e1 allt eins rekja til Rivotril-t\u00f6ku, a.m.k. ef marka m\u00e1 reynslus\u00f6gur Rivotril-neytenda.<\/p>\n<p>Svo \u00e9g t\u00f3k\u00a0\u00fe\u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 taka Rivotril. Sem skynsamur \u00f3virkur alk\u00f3h\u00f3listi hringdi \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 Vog til a\u00f0 bi\u00f0ja um lei\u00f0beiningar. Hef\u00f0i allt eins geta\u00f0 reynt a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00edssk\u00e1pinn heima hj\u00e1 m\u00e9r. \u00de\u00e1 br\u00e1 \u00e9g \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0 a\u00f0 lesa m\u00e9r til \u00e1 Vefnum. \u00c9g m\u00e6li s\u00e9rstaklega me\u00f0 s\u00ed\u00f0unum <a title=\"Hvernig \u00e1 a\u00f0 h\u00e6tta \u00e1 Rivotril\" href=\"http:\/\/www.benzo.org.uk\/manual\/index.htm\" target=\"_blank\">BENZODIAZEPINES: HOW THEY WORK AND HOW TO WITHDRAW \/ The Ashton Manual<\/a>\u00a0og\u00a0<a title=\"Hvernig \u00e1 a\u00f0 h\u00e6tta \u00e1 Rivotril\" href=\"http:\/\/www.benzosupport.org\/index.htm\" target=\"_blank\">Benzodiazepine Withdrawal Support<\/a>.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 m\u00e9r til m.a. \u00e1 \u00feessum s\u00ed\u00f0um s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekkert gr\u00edn e\u00f0a gamanm\u00e1l a\u00f0 h\u00e6tta \u00e1 Rivotril. Helsti kosturinn, hinn langi helmingunart\u00edmi sem \u00e1 a\u00f0 minnka l\u00edkur \u00e1 f\u00edkn \u00ed lyfi\u00f0, er jafnframt helsti \u00f3kosturinn, \u00fe.e. gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 \u00fea\u00f0 er mj\u00f6g erfitt a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 taka \u00feetta lyf.<\/p>\n<p>\u00c9g setti upp \u00feriggja m\u00e1na\u00f0a \u00e1\u00e6tlun, s\u00e1 a\u00f0 happadr\u00fdgst yr\u00f0i l\u00edklega a\u00f0 nota svefnlyf a.m.k. allan \u00feann t\u00edma (\u00e9g hef ekki n\u00e1\u00f0 upp e\u00f0lilegum svefni fr\u00e1 Marplan-tilrauninni, sem \u00e9g l\u00fdsti \u00ed s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu &#8211; las raunar talsvert um sl\u00e6m \u00e1hrif Imovane og \u00e1vanah\u00e6ttu\u00a0af \u00fev\u00ed en \u00fea\u00f0 er seinni t\u00edma vandam\u00e1l) og s\u00e1 a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 n\u00fdta m\u00e9r \u00fea\u00f0 eina r\u00e1\u00f0 sem m\u00e9r t\u00f3kst a\u00f0 tosa \u00fat \u00far hj\u00fakrunafr\u00e6\u00f0ingi \u00e1 Vogi, sums\u00e9 a\u00f0 hafa samr\u00e1\u00f0 vi\u00f0 l\u00e6kni. Svo \u00e9g setti heimilisl\u00e6kni, sem \u00e9g treysti vel og \u00feekkir vel til m\u00edn og minna m\u00e1la, inn \u00ed m\u00e1lin. A\u00f0 auki setti \u00e9g fj\u00f6lskylduna, bestu vinkonu m\u00edna og AA-deildina m\u00edna inn \u00ed\u00a0\u00feetta sem \u00e9g er a\u00f0 gera\u00a0og byrja\u00f0i a\u00f0 ganga til s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ings h\u00e9r uppi \u00e1 Skaga, fyrst og fremst til a\u00f0 &#8220;f\u00e1 l\u00e1na\u00f0a d\u00f3mgreind&#8221; (eins og alkafrasinn hlj\u00f3mar).<\/p>\n<p>\u00deetta hefur gengi\u00f0 eftir til \u00feessa. Fyrsta trappan var \u00far 1 mg ni\u00f0ur \u00ed 0,5 mg og h\u00fan var mj\u00f6g erfi\u00f0! (M\u00f6gulega var \u00e9g a\u00f0 taka meir en 1 mg \u00e1 s\u00f3larhring, \u00e9g er ekki viss \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 ansi miki\u00f0 hringl \u00e1 Rivotril sk\u00f6mmtum \u00ed vetur.) N\u00e6sta trappa, sem \u00e9g er st\u00f6dd \u00e1 n\u00fana, ni\u00f0ur \u00ed 0,25 mg, er l\u00edka mj\u00f6g erfi\u00f0 (\u00fev\u00ed mi\u00f0ur, \u00e9g h\u00e9lt a\u00f0 h\u00fan yr\u00f0i kannski d\u00e1l\u00edti\u00f0 sk\u00e1rri en \u00fea\u00f0 gekk ekki eftir).<\/p>\n<p>Fr\u00e1hvarfseinkennin eru \u00f3ge\u00f0! \u00c9g hef \u00fea\u00f0 \u00e1 tilfinningunni a\u00f0 \u00fea\u00f0 tennurnar s\u00e9u a\u00f0 poppa \u00far j\u00f6xlunum vinstra megin og vinstra auga\u00f0 a\u00f0 poppa \u00far t\u00f3ttinni. Seinnipartinn og \u00e1 kv\u00f6ldin er \u00e9g koldofin \u00ed h\u00f6f\u00f0i og her\u00f0um, finn stundum ekki fyrir snertingu \u00e1 h\u00fa\u00f0inni og allir v\u00f6\u00f0var eru \u00ed hn\u00fat. Eina r\u00e1\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 \u00feessu eru langir hra\u00f0g\u00f6ngut\u00farar og l\u00f6ng heit sturta, \u00fea\u00f0 sl\u00e6r a\u00f0eins \u00e1 einkennin. Svo r\u00edgheld \u00e9g \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1g\u00e6tu a\u00f0fer\u00f0 &#8220;taka h\u00e1lfan dag \u00ed einu&#8221;, sem \u00e9g er \u00feaul\u00e6f\u00f0 \u00ed a\u00f0 nota. M\u00e9r s\u00fdnist a\u00f0 \u00ed hvorri tr\u00f6ppu hafi 10.-12. dagurinn veri\u00f0 verstur og eftir \u00ferj\u00e1r vikur sk\u00e1ni \u00e1standi\u00f0 svol\u00edti\u00f0.\u00a0Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef lesi\u00f0 \u00e1 Vefnum m\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 \u00fea\u00f0 taki heilann \u00ed m\u00e9r u.\u00fe.b. \u00e1r a\u00f0 ver\u00f0a normal \u00e1 n\u00fd eftir svo margra \u00e1ra Rivotril t\u00f6ku. Og \u00fea\u00f0 er \u00f3raunh\u00e6ft a\u00f0 fara a\u00f0 floga \u00ed svefnlyfjat\u00f6ku fyrr en s\u00ed\u00f0sumars.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 koma sj\u00fakd\u00f3mseinkennin tv\u00edefld til baka \u00feegar Rivotril-t\u00f6ku er h\u00e6tt. \u00c9g hef \u00feegar upplifa\u00f0 nokkur ofsakv\u00ed\u00f0ak\u00f6st. Og hva\u00f0 get \u00e9g gert \u00ed \u00fev\u00ed? J\u00fa, \u00e9g reyni a\u00f0 rifja upp \u00fea\u00f0 sem \u00e9g l\u00e6r\u00f0i \u00e1 \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0i hj\u00e1 Kv\u00ed\u00f0ami\u00f0st\u00f6\u00f0inni og n\u00fdta m\u00e9r.\u00a0Og svo hefur ge\u00f0l\u00e6knirinn minn lagt inn bei\u00f0ni, a\u00f0 minni \u00f3sk, svo \u00e9g komist \u00e1 HAM-n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 Landsp\u00edtalanum. Mig minnir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki nema r\u00famur m\u00e1nu\u00f0ur s\u00ed\u00f0an \u00e9g l\u00fdsti \u00fev\u00ed yfir \u00e1 umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i \u00e1 eigin bloggi a\u00f0 \u00e9g myndi aldrei nokkurn t\u00edma fara \u00e1 HAM-n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 Landsp\u00edtalanum &#8230;<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er hollt a\u00f0 l\u00e1ta af eigin ford\u00f3mum. En \u00fea\u00f0 er l\u00edka helv\u00edti erfitt a\u00f0 vi\u00f0urkenna eigin hroka og hleypid\u00f3ma, \u00e9ta ofan \u00ed sig eigin sta\u00f0h\u00e6fingar og skipta um sko\u00f0un! \u00deessi bloggf\u00e6rsla er nau\u00f0synleg \u00e6fing \u00ed \u00feessu, fyrir mig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>A\u00f0 gefnu tilefni vil \u00e9g taka fram a\u00f0 \u00ed \u00feessum bloggf\u00e6rslum \/ p\u00e6lingum m\u00ednum um eigin sj\u00fakd\u00f3m og reynslu af l\u00e6knisa\u00f0ger\u00f0um er \u00e9g ekki a\u00f0 leita a\u00f0 s\u00f6kud\u00f3lgi. Einu m\u00f6gulegu s\u00f6kud\u00f3lgarnir eru einhverjir \u00e1ar lengst <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/04\/22\/fardu-i-rassgat-rivotril\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[],"class_list":["post-415","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-gedlyf"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/415","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=415"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/415\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1292,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/415\/revisions\/1292"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=415"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=415"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=415"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}