{"id":430,"date":"2012-06-13T20:31:17","date_gmt":"2012-06-13T20:31:17","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-06-13\/gulli-og-mulinn-og-sagan\/"},"modified":"2013-11-21T09:17:53","modified_gmt":"2013-11-21T09:17:53","slug":"gulli-og-mulinn-og-sagan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/06\/13\/gulli-og-mulinn-og-sagan\/","title":{"rendered":"Gulli og M\u00falinn og Sagan"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/supermuli.jpg?resize=184%2C210\" alt=\"S\u00faper M\u00fali\" align=\"right\" height=\"210\" width=\"184\" \/>J\u00e6ja! Enn og aftur \u00e6tlar Akraneskaupsta\u00f0ur a\u00f0 ganga til samninga vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson um ritun 3. bindis <em>S\u00f6gu Akraness<\/em>, \u00ed \u00feetta sinn upp \u00e1 kr\u00edt. Sagnir herma a\u00f0 \u00feeir \u00c1rni M\u00fali J\u00f3nasson b\u00e6jarstj\u00f3ri og sagnaritarinn mikli \u00e6tli a\u00f0 skrifa undir samning \u00e1 morgun.<\/p>\n<p>\u00cd f\u00e6rslu sem \u00e9g skrifa\u00f0i fyrir \u00e1ri s\u00ed\u00f0an, <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2011-06-17\/verdur-tilbuid-naesta-sumar-eg-hef-alveg-thokkalega-samvisku\/\" title=\"Saga Akraness 3. bindi\">Ver\u00f0ur tilb\u00fai\u00f0 n\u00e6sta sumar. \u00c9g hef alveg \u00feokkalega samvisku<\/a>, rakti \u00e9g s\u00f6gu handritsins sem n\u00fa kallast 3. bindi <em>S\u00f6gu Akraness<\/em> og\u00a0spannar n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld. (\u00deeir sem hafa \u00e1huga \u00e1 <em><a href=\"http:\/\/harpahreins.com\/Saga_Sogu_Akraness.pdf\" title=\"Saga S\u00f6gu Akraness\">S\u00f6gu S\u00f6gu Akraness<\/a><\/em>, vefrits sem stefnir \u00ed a\u00f0 ver\u00f0a \u00e1l\u00edka langloka og <em>Saga Akraness<\/em> ef svo heldur fram sem horfir, geta hla\u00f0i\u00f0 ni\u00f0ur\u00a0\u00fev\u00ed sem tilb\u00fai\u00f0 er \u00ed\u00a0\u00feeirri s\u00f6gu \u00e1 pdf-formi.)<\/p>\n<ul>\n<li><strong>Skil \u00e1 \u00feessu bindi voru fyrst sta\u00f0fest \u00e1ri\u00f0 2001<\/strong>, \u00fe.e.a.s. fyrsta bindi (af \u00fe\u00e1verandi \u00e1\u00e6tlu\u00f0um \u00feremur bindum) um bygg\u00f0as\u00f6gu 1700-1900. Eftir a\u00f0 Ritnefnd um s\u00f6gu Akraness undir fors\u00e6ti G\u00edsla G\u00edslasonar \u00fe\u00e1verandi b\u00e6jarstj\u00f3ra (sem n\u00fa stj\u00f3rnar Faxafl\u00f3ah\u00f6fnum) sta\u00f0festi \u00feessi skil kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 talsvert vanta\u00f0i inn \u00ed stykki\u00f0 og ger\u00f0ur var n\u00fdr samningur vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson um a\u00f0 skrifa \u00fea\u00f0 sem \u00e1 vanta\u00f0i.<\/li>\n<li><strong>Snemma \u00e1rs 2003 sag\u00f0i Gunnlaugur ritnefndinni a\u00f0 hann v\u00e6ri n\u00e1nast b\u00fainn a\u00f0 lj\u00faka s\u00f6gu Akraness til \u00e1rsins 1941<\/strong>.<\/li>\n<li>\u00cd mars 2005 segir Gunnlaugur Ritnefndinni a\u00f0 n\u00fa vanti einungis herslumuninn \u00e1 a\u00f0 kl\u00e1ra S\u00f6gu Akraness fr\u00e1 landn\u00e1mi til 1941 og er b\u00f3ka\u00f0 \u00e1 55. fundi Ritnefndarinnar: \u201e<strong>m\u00e6tti stefna a\u00f0 \u00fatg\u00e1fu 1. og 2. bindis vori\u00f0 2006<\/strong>.\u201c \u00dev\u00ed sama h\u00e9lt Gunnlaugur fram \u00e1 spjall\u00fer\u00e6\u00f0i Akraneskaupsta\u00f0ar \u00ed febr\u00faar 2005.<\/li>\n<li>\u00cd \u00edtarlegu minnisbla\u00f0i Gunnlaugs Haraldssonar \u00ed <strong>apr\u00edl 2008 kemur fram a\u00f0 \u201eN\u00edtj\u00e1nda \u00f6ldin 1801-1850 (213 bls.) &#8211; b\u00ed\u00f0ur prentvinnslu.\u201c<\/strong><\/li>\n<li>\u00cd <strong>jan\u00faarbyrjun 2010 sag\u00f0i Gunnlaugur \u00ed vi\u00f0tali vi\u00f0 V\u00edsi.is \u201ea\u00f0 hann s\u00e9 b\u00fainn a\u00f0 rita s\u00f6gu Akraness til 1942<\/strong> en \u00fe\u00e1 st\u00f6\u00f0va\u00f0ist ritunin.\u201c<strong> <\/strong><\/li>\n<li>\u00cd <strong>n\u00f3vember 2010 sta\u00f0festi Kristj\u00e1n Kristj\u00e1nsson<\/strong>, einn eigenda Uppheima, b\u00f3kaforlagsins sem gaf \u00fat 1. og 2. bindi S\u00f6gu Akraness, <strong>a\u00f0 3. bindi\u00f0 s\u00e9 n\u00fa \u00feegar skrifa\u00f0.<\/strong><\/li>\n<li>\u00cd <strong>j\u00fan\u00ed 2011<\/strong> haf\u00f0i <em>Skessuhorn<\/em> eftir Gunnlaugi Haraldssyni\u00a0a\u00f0 \u201efyrir liggur a\u00f0 \u201ef\u00e6ra til n\u00fat\u00ed\u00f0arm\u00e1ls\u201c handrit mitt a\u00f0 III. bindi (1801-1900) sem safna\u00f0 hefur ryki \u00ed 6-7 \u00e1r.\u201c<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00c1 \u00e1rabilinu 2001, \u00feegar fyrst voru sta\u00f0fest skil \u00e1 ritun <em>S\u00f6gu Akraness<\/em> \u00e1 19. \u00f6ld, til \u00e1rsins 2011 hefur Akraneskaupsta\u00f0ur gert fj\u00f6lda samninga vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson um ritun <em>S\u00f6gu Akraness.<\/em> <strong>Alls hefur\u00a0Akraneskaupsta\u00f0ur punga\u00f0 \u00fat 110 millj\u00f3num fyrir sagnaritun\u00a0Gunnlaugs Haraldssonar\u00a0og \u00fatg\u00e1fu \u00e1 fyrstu tveimur bindunum \u00ed <em>S\u00f6gu Akraness<\/em>.<\/strong><\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/ritnefnd-um-sogu-akraness\/nr\/16038\/\" title=\"Ritnefnd um S\u00f6gu Akraness\">Ritnefnd um S\u00f6gu Akraness h\u00e9lt fund \u00feann 23. mars 2012<\/a>. \u00dea\u00f0 stingur \u00f3neitanlega \u00ed augu a\u00f0 einungis tveir af fimm nefndarm\u00f6nnum m\u00e6ttu \u00e1 fundinn, forma\u00f0ur Ritnefndar og tveir nefndarmenn voru fjarverandi. Fundarger\u00f0in er \u00e1 h\u00e1lfger\u00f0u dulm\u00e1li:<\/p>\n<blockquote><p>1. Saga Akraness, 3. bindi. Fari\u00f0 var yfir st\u00f6\u00f0u m\u00e1lsins, b\u00e6\u00f0i \u00fat fr\u00e1 fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlun Akraneskaupsta\u00f0ar svo og m\u00f6gulegri a\u00f0komu s\u00f6guritara a\u00f0 verkinu \u00e1 n\u00e6stu m\u00e1nu\u00f0um.<\/p>\n<p>A\u00f0ilar m\u00e1lsins munu sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0 n\u00e1nar \u00e1 n\u00e6stu d\u00f6gum.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c1 <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/baejarrad\/nr\/16112\/\" title=\"B\u00e6jarr\u00e1\u00f0 um S\u00f6gu Akraness\">fundi b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s Akraness 25. ma\u00ed sl.<\/a>\u00a0var b\u00f3ka\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p><strong>9. \u00a00906053 &#8211; Saga Akraness &#8211; ritun.<br \/>\n<\/strong>Dr\u00f6g a\u00f0 samningi um ritun S\u00f6gu Akraness III bindis \u00e1samt t\u00f6lvup\u00f3sti Gunnlaugs Haraldssonar dags. 23. mai 2012.<br \/>\nB\u00e6jarr\u00e1\u00f0 sam\u00feykkir samninginn fyrir sitt leyti.\u00a0 B\u00e6jarstj\u00f3ra falin undirritun hans.\u00a0 Einar [Brandsson] \u00f3skar b\u00f3ka\u00f0 a\u00f0 hann s\u00e9 \u00f3samm\u00e1la \u00e1kv\u00f6r\u00f0un b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s.\u00a0\u00a0\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c1 <a href=\"http:\/\/akranes.is\/stjornsysla\/nefndir-rad-og-fundargerdir\/fundargerdir\/baejarstjorn\/nr\/16164\/\" title=\"B\u00e6jarstj\u00f3rn Akraness um S\u00f6gu Akraness 3. bindi\">b\u00e6jarstj\u00f3rnarfundi \u00ed g\u00e6r, 12. j\u00fan\u00ed 2012, var fundarger\u00f0 b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s l\u00f6g\u00f0 fram<\/a>. Til m\u00e1ls t\u00f3k Einar Brandsson, fulltr\u00fai Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins, en a\u00f0rir \u00fe\u00f6g\u00f0u \u00feunnu hlj\u00f3\u00f0i eins og venjulega (efst \u00ed fundarger\u00f0inni sem \u00e9g kr\u00e6ki \u00ed er kr\u00e6kja \u00ed hlj\u00f3\u00f0skr\u00e1 af fundinum). \u00cd m\u00e1li Einars kom fram a\u00f0 samningurinn sem b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 sam\u00feykkti er <strong>\u00feriggja \u00e1ra samningur Akraneskaupsta\u00f0ar vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson um a\u00f0 b\u00e6rinn grei\u00f0i honum 14,5 millj\u00f3nir \u00e1 \u00feremur \u00e1rum fyrir a\u00f0 ganga fr\u00e1 textanum \u00ed 3. bindi <em>S\u00f6gu Akraness<\/em><\/strong>. \u00c9g veit a\u00f0 Kristj\u00e1n Kristj\u00e1nsson hefur sett \u00fea\u00f0 skilyr\u00f0i a\u00f0 hann ver\u00f0i sj\u00e1lfur ritstj\u00f3ri \u00feessa bindis (v\u00e6ntanlega til a\u00f0 glor\u00edur \u00ed myndbirtingu endurtaki sig ekki) svo varla er \u00e6tlast til a\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3ri undirriti samning vi\u00f0 Gunnlaug um allsherjarritstj\u00f3rn eins og s\u00ed\u00f0ast. En m\u00f6gulega er uppsetning (layout) verksins innifalin \u00ed samningnum \u00fe\u00f3tt ver\u00f0i svo a\u00f0 semja vi\u00f0 Kristj\u00e1n um eftirlit me\u00f0 \u00feeirri uppsetningu s\u00ed\u00f0ar og b\u00e6rinn ver\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 borga lungann af prentkostna\u00f0i \u00fev\u00ed b\u00e6kurnar seljast v\u00e6gast sagt takmarka\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1 fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlun \u00feessa \u00e1rs, 2012, er gert r\u00e1\u00f0 fyrir 4,2 millj\u00f3num \u00ed <em>S\u00f6gu Akraness<\/em>. M\u00e1 af umm\u00e6lum \u00e1 b\u00e6jarstj\u00f3rnarfundi \u00ed g\u00e6r \u00e6tla a\u00f0 Gunnlaugur f\u00e1i 4 millj\u00f3nir \u00ed \u00e1r &#8211; kannski fara tv\u00f6hundru\u00f0\u00fe\u00fasundin upp \u00ed \u00feennan <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-03-06\/sagan-endalausa-einkaflipp-baejarstjorans-og-vasapeningar-handa-ritnefndinni\/\" title=\"\u00c1rni M\u00fali m\u00f3\u00f0gast yfir ritd\u00f3mi\">t\u00e6pa fj\u00f6gurhundru\u00f0\u00fe\u00fasundkall sem m\u00f3\u00f0gelsi b\u00e6jarstj\u00f3rans yfir ritd\u00f3mi<\/a> kosta\u00f0i b\u00e6inn?\u00a0 \u00c1 langt\u00edma\u00e1\u00e6tlun b\u00e6jarins var gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 ey\u00f0a 4 millj\u00f3num n\u00e6sta \u00e1r, 2013, \u00ed <em>S\u00f6gu Akraness<\/em>. \u00de\u00e6r 4 millj\u00f3nir renna beint \u00ed vasa Gunnlaugs ef samningurinn hans og \u00c1rna M\u00fala ver\u00f0ur undirrita\u00f0ur \u00e1 morgun. Loks hlj\u00f3\u00f0ar samningurinn vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson upp \u00e1 r\u00famar 6 millj\u00f3nir fyrir vinnu \u00e1ri\u00f0 2014. \u00cd samningnum er s\u00e1 varnagli sleginn a\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3rn eigi eftir a\u00f0 sam\u00feykkja \u00feessar fj\u00e1rveitingar fyrir \u00e1rin 2013 og 2014.\u00a0<strong>N\u00fa \u00e1 sem sagt a\u00f0 semja\u00a0vi\u00f0 sagnaritarann upp \u00e1 kr\u00edt<\/strong>. Og auglj\u00f3st a\u00f0 ef b\u00e6jarstj\u00f3rn Akraneskaupsta\u00f0ar sam\u00feykkir ekki fj\u00e1rveitingarnar sem b\u00e6jarstj\u00f3rinn lofar upp \u00ed ermina \u00e1 kaupsta\u00f0num er \u00feessum 4 millj\u00f3num sem Gunnlaugi ver\u00f0a r\u00e9ttar \u00ed \u00e1r kasta\u00f0 \u00e1 gl\u00e6. Fyrir svo utan \u00fea\u00f0 a\u00f0 enginn \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn, b\u00e6jarr\u00e1\u00f0i e\u00f0a ritnefnd um S\u00f6gu Akraness vir\u00f0ist hafa kveikt \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <strong>Akraneskaupsta\u00f0ur er margb\u00fainn a\u00f0 grei\u00f0a Gunnlaugi \u00e1\u00f0ur<\/strong> fyrir ritunina um \u00feetta t\u00edmabil. Af hverju s\u00e6kir okkar g\u00f3\u00f0i b\u00e6jarstj\u00f3ri ekki bara handriti\u00f0 og skellir \u00fev\u00ed \u00ed prentsmi\u00f0ju?<\/p>\n<p>\u00cd dag, 13. j\u00fan\u00ed 2012, \u00a0h\u00e9lt b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 fund. \u00dear er b\u00f3ka\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p><strong>9. \u00a00906053 &#8211; Saga Akraness &#8211; ritun.<br \/>\n<\/strong>\u00a0Samningur vi\u00f0 Hj\u00e1lmar Gunnlaug Haraldsson um ritun S\u00f6gu Akraness, III bindi. Samningurinn gerir r\u00e1\u00f0 fyrir verkt\u00edma \u00e1rin 2012 &#8211; 2014.<br \/>\n\u00a0Afgrei\u00f0slu fresta\u00f0.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0\u00a0afgrei\u00f0slu b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s \u00ed dag hafi veri\u00f0 fresta\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00feeir \u00c1rni M\u00fali og Gunnlaugur skrifa ekki undir samninginn fyrr en \u00e1 morgun &#8230;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00e6ja! Enn og aftur \u00e6tlar Akraneskaupsta\u00f0ur a\u00f0 ganga til samninga vi\u00f0 Gunnlaug Haraldsson um ritun 3. bindis S\u00f6gu Akraness, \u00ed \u00feetta sinn upp \u00e1 kr\u00edt. Sagnir herma a\u00f0 \u00feeir \u00c1rni M\u00fali J\u00f3nasson b\u00e6jarstj\u00f3ri og sagnaritarinn <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/06\/13\/gulli-og-mulinn-og-sagan\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[19],"tags":[],"class_list":["post-430","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-saga-sogu-akraness"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/430","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=430"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/430\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":655,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/430\/revisions\/655"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=430"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=430"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=430"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}