{"id":434,"date":"2012-08-25T21:16:40","date_gmt":"2012-08-25T21:16:40","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-08-25\/faranleg-verdlagning-islenskra-rafboka-og-einokunarstefna-bokautgefenda\/"},"modified":"2013-11-21T09:17:07","modified_gmt":"2013-11-21T09:17:07","slug":"faranleg-verdlagning-islenskra-rafboka-og-einokunarstefna-bokautgefenda","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/08\/25\/faranleg-verdlagning-islenskra-rafboka-og-einokunarstefna-bokautgefenda\/","title":{"rendered":"F\u00e1r\u00e1nleg ver\u00f0lagning \u00edslenskra rafb\u00f3ka og einokunarstefna b\u00f3ka\u00fatgefenda"},"content":{"rendered":"<p>Svk. uppl\u00fdsingum sem \u00e9g f\u00e9kk fr\u00e1 b\u00f3ka\u00fatgefanda er kostna\u00f0ur nokkurn veginn svona samansettur \u00ed ver\u00f0i \u00edslensks\u00a0sk\u00e1ldverks \u00e1 papp\u00edr \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0:<\/p>\n<ul>\n<li>Prentkostna\u00f0ur:\u00a015-20% af ver\u00f0inu (mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 b\u00f3kin s\u00e9 prentu\u00f0 \u00ed \u00edslenskri prentsmi\u00f0ju);<\/li>\n<li>Dreifingarkostna\u00f0ur: 5-7% af ver\u00f0inu;<\/li>\n<li>Grei\u00f0slur til endurs\u00f6lua\u00f0ila (b\u00f3kab\u00fa\u00f0a): 35% af ver\u00f0inu;<\/li>\n<li>Grei\u00f0sla til h\u00f6fundar: 23% af ver\u00f0inu<\/li>\n<li>Augl\u00fdsingakostna\u00f0ur: 10-20% af ver\u00f0inu.<\/li>\n<\/ul>\n<p>Restin kemur \u00ed hlut b\u00f3ka\u00fatgefandans og \u00e1 m.a. a\u00f0 dekka kostna\u00f0 vi\u00f0 vinnuna vi\u00f0 a\u00f0 b\u00faa verki\u00f0 til prentunar. (L\u00edklega er vir\u00f0isaukaskatturinn innifalinn \u00ed hlut endurs\u00f6lua\u00f0ila.)<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er algerlega auglj\u00f3st a\u00f0 bara me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 losna vi\u00f0 prentkostna\u00f0 og grei\u00f0slur til endurs\u00f6lua\u00f0ila \u00e6tti ver\u00f0 \u00e1 b\u00f3k a\u00f0 l\u00e6kka t\u00f6luvert. <strong>Af hverju kosta \u00fe\u00e1 \u00edslenskar rafb\u00e6kur hi\u00f0 sama og s\u00f6mu b\u00e6kur \u00e1 papp\u00edr \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0? <\/strong><\/p>\n<p>S\u00e1 b\u00f3ka\u00fatgefandi sem \u00e9g r\u00e6ddi vi\u00f0 taldi miki\u00f0 m\u00e1l a\u00f0 \u00fatb\u00faa rafb\u00f3k og dreifa. L\u00edklega getur \u00fea\u00f0 veri\u00f0 sn\u00fai\u00f0 ef b\u00f3kin er komin \u00e1 eitthvert \u00fea\u00f0 stafr\u00e6nt form sem prentsmi\u00f0jur taka vi\u00f0. En s\u00e9 um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a einfalda textaskr\u00e1 e\u00f0a Word-skjal, sem h\u00e6gt er a\u00f0 breyta \u00ed HTML-skr\u00e1 og hreinsa \u00fat \u00f3\u00fearfa k\u00f3\u00f0a, \u00e6tti \u00feetta ekki a\u00f0 vera miki\u00f0 m\u00e1l. \u00d3li Gneisti S\u00f3leyjarson, sem minnst var \u00e1 \u00ed s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu og er smi\u00f0ur Rafb\u00f3kavefjarins, skrifa\u00f0i meistararitger\u00f0 um \u00feetta verkefni sitt \u00fear sem hann l\u00fdsir \u00fev\u00ed m.a. hvernig megi breyta skj\u00f6lum \u00ed rafb\u00f3k me\u00f0 Sigil, \u00f3keypis forriti, o.fl. forritum (s. 47-50). \u00c9g hvet alla \u00e1hugamenn um rafb\u00e6kur til a\u00f0 lesa ritger\u00f0ina hans, <i><a href=\"http:\/\/skemman.is\/stream\/get\/1946\/11140\/27419\/1\/Rafbokavefurinn_-_Islenskar_rafbaekur_i_-_Oli_Gneisti_Soleyjarson.pdf\">Rafb\u00f3kavefurinn \u00cdslenskar rafb\u00e6kur \u00ed opnum a\u00f0gangi<\/a><\/i>. \u00dear fjallar hann m.a. um s\u00f6gu rafb\u00f3ka, \u00fdmislegt sem snertir h\u00f6fundar\u00e9tt, rekur s\u00f6gu Net\u00fatg\u00e1funnar \u00edtarlega og l\u00fdsir sm\u00ed\u00f0i og rekstri Rafb\u00f3kavefjarins.\u00a0\u00deetta er mj\u00f6g \u00e1hugaver\u00f0, vel skrifu\u00f0 og uppl\u00fdsandi ritger\u00f0. \u00c1 Rafb\u00f3kavefnum sj\u00e1lfum eru svo <a href=\"http:\/\/rafbokavefur.is\/leidbeiningar\/ad-bua-til-rafbok\/\" title=\"Hvernig b\u00fdr ma\u00f0ur til rafb\u00f3k\">g\u00f3\u00f0ar lei\u00f0beiningar<\/a> um hvernig nota megi <a href=\"http:\/\/code.google.com\/p\/sigil\/\">Sigil<\/a> og <a href=\"http:\/\/calibre-ebook.com\/\">Calibre<\/a> til rafb\u00f3kager\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 skrifa langt m\u00e1l um kostna\u00f0 af vistun og dreifingu gagna \u00e1 t\u00f6lvut\u00e6ku formi heldur einungis benda \u00e1 a\u00f0 til eru \u00f3d\u00fdrir vistunarkostir (t.d. <a href=\"https:\/\/www.bluehost.com\/\">Bluehost<\/a> sem afritar \u00f6ll g\u00f6gn einu sinni \u00e1 s\u00f3larhring), \u00f3d\u00fdr l\u00e9n, ef menn nota a\u00f0ra kosti er ISNIC, \u00f3d\u00fdr vefger\u00f0arforrit, t.d. <a href=\"http:\/\/www.weably.com\">Weebly<\/a>, \u00fear sem h\u00e6gt er a\u00f0 setja upp verslunars\u00ed\u00f0u og tengja vi\u00f0 PayPal o.s.fr.\u00a0 \u00dea\u00f0 er engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 reka eigin skr\u00e1a\u00fej\u00f3n \u00feegar h\u00e6gt er a\u00f0 kaupa r\u00fdmi fyrir g\u00f6gnin og sj\u00e1lfkrafa t\u00ed\u00f0a afritun \u00e1 netsk\u00fdi. Kostna\u00f0ur vi\u00f0 augl\u00fdsingar \u00e1 Facebook og \u00e1 netmi\u00f0lum \u00e6tti a\u00f0 vera minni en vi\u00f0 augl\u00fdsingar \u00e1 papp\u00edr, fyrir svo utan \u00fea\u00f0 a\u00f0 gott l\u00e9n og vandlega unnin l\u00fdsig\u00f6gn fyrir leitarv\u00e9lar \u00e6ttu a\u00f0 skila s\u00e9r vel \u00e1 jafnlitlu marka\u00f0ssv\u00e6\u00f0i og \u00cdsland er. \u00c9g s\u00e9 ekki betur en hver b\u00f3ka\u00fatgefandi \u00e6tti a\u00f0 geta stofna\u00f0 s\u00edna eigin rafb\u00f3kas\u00f6lus\u00ed\u00f0u me\u00f0 litlum tilkostna\u00f0i og l\u00e1gmarkst\u00e6knikunn\u00e1ttu.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/graedgi.jpg?resize=105%2C136\" alt=\"Gr\u00e6g\u00f0i\" align=\"left\" height=\"136\" width=\"105\" \/>Ef vi\u00f0 reiknum me\u00f0 a\u00f0 uppl\u00fdsingarnar sem \u00e9g f\u00e9kk fr\u00e1 b\u00f3ka\u00fatgefandanum s\u00e9u r\u00e9ttar \u00fe\u00e1 m\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 af \u00edslensku sk\u00e1ldverki sem kostar 3.000 kr\u00f3nur \u00ed Eymundsson f\u00e1i h\u00f6fundurinn svona 610 kr\u00f3nur og \u00fatgefandinn kannski 300-350 kr. Af hverju er ekki h\u00e6gt a\u00f0 selja \u00edslenskar rafb\u00e6kur \u00e1 ver\u00f0inu 1.300-1.500 kr\u00f3nur og b\u00e6\u00f0i h\u00f6fundur og \u00fatgefandi h\u00e9ldu samt s\u00ednum hlut mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 prentu\u00f0 eint\u00f6k? \u00cd hverju felst hinn g\u00edfurlegi kostna\u00f0ur sem ver\u00f0ur til \u00feess a\u00f0\u00a0rafb\u00e6kur kosta \u00e1 bilinu um 2.000-4.000 kr\u00f3nur og h\u00e6rra ver\u00f0i\u00f0 er miklu algengara?<\/p>\n<p>\u00c1 vef F\u00e9lags \u00edslenskra b\u00f3ka\u00fatgefenda m\u00e1 finna <a href=\"http:\/\/www.bokautgafa.is\/index.php\/samningar\/utgafusamningar\">samningsey\u00f0ubla\u00f0 sem b\u00f3ka\u00fatgefendur og h\u00f6fundar fylla \u00fat<\/a>. \u00dear segir um rafb\u00e6kur:<\/p>\n<blockquote><p>d. Rafr\u00e6n \u00fatg\u00e1fa.<br \/>\nS\u00e9 ekki um anna\u00f0 sami\u00f0 hefur \u00fatgefandi verksins r\u00e9tt til \u00fatg\u00e1fu \u00feess \u00e1 rafr\u00e6nu formi. Hafi \u00fatgefandi ekki n\u00fdtt s\u00e9r \u00feann r\u00e9tt innan 18 m\u00e1na\u00f0a fr\u00e1 \u00fatg\u00e1fudegi prenta\u00f0rar b\u00f3kar fellur r\u00e9tturinn til h\u00f6fundarins a\u00f0 n\u00fdju. A\u00f0 li\u00f0nu \u00feessu t\u00edmabili \u00e1 \u00fatgefandi r\u00e9tt \u00e1 a\u00f0 h\u00f6fundur tilkynni honum skriflega um fyrirhuga\u00f0a rafr\u00e6na \u00fatg\u00e1fu og skal hann eiga forgang til \u00fatg\u00e1funnar enda takist samkomulag me\u00f0 \u00fatgefanda og h\u00f6fundi um skilm\u00e1la \u00fatg\u00e1funnar innan \u00feriggja m\u00e1na\u00f0a fr\u00e1 m\u00f3tt\u00f6ku tilkynningarinnar. A\u00f0 \u00f6\u00f0rum kosti er h\u00f6fundi frj\u00e1lst a\u00f0 r\u00e1\u00f0stafa r\u00e9ttindum \u00feessum \u00e1n frekara samr\u00e1\u00f0s vi\u00f0 \u00fatgefanda.<br \/>\nA\u00f0ilar skulu semja um skiptingu tekna af rafr\u00e6nni \u00fatg\u00e1fu og skal \u00ed upphafi mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 tekjur af rafr\u00e6nni \u00fatg\u00e1fu skiptist jafnt milli \u00fatgefanda og h\u00f6fundar. Tekjur samkv\u00e6mt grein \u00feessari skulu a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti reikna\u00f0ar me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af \u00e1kv\u00e6\u00f0um 12., 13., 15. og 16. gr. samnings \u00feessa, \u00fe.e. sem s\u00f6luver\u00f0 a\u00f0 fr\u00e1dregnum vir\u00f0isaukaskatti, s\u00f6lulaunum og afsl\u00e6tti. Vi\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hlutfalls h\u00f6fundar til h\u00e6kkunar e\u00f0a l\u00e6kkunar skal me\u00f0al annars l\u00edta til tilkostna\u00f0ar \u00fatgefanda vi\u00f0 \u00fatg\u00e1funa og marka\u00f0ssetningu verksins auk \u00feess sem tillit ver\u00f0i teki\u00f0 til sanngirnissj\u00f3narmi\u00f0a.<br \/>\n\u00datgefandinn skal leitast vi\u00f0 a\u00f0 haga \u00fatg\u00e1fu verksins \u00feannig t\u00e6knilega a\u00f0 sem minnst h\u00e6tta s\u00e9 \u00e1 misnotkun \u00feri\u00f0ja a\u00f0ila \u00e1 h\u00f6fundarr\u00e9tti a\u00f0 verkinu og \u00ed \u00fev\u00ed skyni skal \u00fatgefandi nota vi\u00f0urkennda t\u00e6kni hvers t\u00edma.<br \/>\nH\u00f6fundi er \u00f3heimilt, \u00e1 me\u00f0an \u00fatgefandi \u00e1 skilyrtan r\u00e9tt samkv\u00e6mt grein \u00feessari, a\u00f0 veita \u00feri\u00f0ja a\u00f0ila a\u00f0gang a\u00f0 verkinu \u00e1 rafr\u00e6nan h\u00e1tt \u00ed heild sinni hvort sem er gegn gjaldi e\u00f0a ekki.<\/p><\/blockquote>\n<p>Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 r\u00e1\u00f0slag st\u00e6rstu \u00edslensku b\u00f3ka\u00fagefenda til \u00feessa finnst m\u00e9r verulega \u00f3skynsamlegt af h\u00f6fundum a\u00f0 skrifa undir \u00feessa samningsgrein. \u00datgefandi b\u00f3kar getur \u00e1tt r\u00e9ttinn til rafb\u00f3ka\u00fatg\u00e1fu og dregi\u00f0 lappirnar \u00ed a\u00f0 gefa \u00fat rafb\u00f3k \u00ed 21 m\u00e1nu\u00f0, \u00fe.e. t\u00e6p 2 \u00e1r,\u00a0fr\u00e1 \u00fev\u00ed papp\u00edrseintaki\u00f0 kemur \u00fat. Ekkert skyldar \u00fatgefandann til a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a verki\u00f0 sem rafb\u00f3k. \u00datgefandi papp\u00edrseintaksins r\u00e6\u00f0ur algerlega ver\u00f0i rafb\u00f3karinnar og ver\u00f0lag \u00edslenskra rafb\u00f3ka til \u00feessa gefur ekki tilefni til bjarts\u00fdni \u00ed s\u00f6lu svolei\u00f0is b\u00f3ka.<\/p>\n<p>Hitt er einnig til mikils vansa a\u00f0 \u00edslenskir b\u00f3ka\u00fatgefendur hafa teki\u00f0 sig saman, flestir \u00feeir st\u00e6rstu a.m.k., um a\u00f0 gefa ekki \u00fat rafb\u00e6kur fyrir Kindil, sem \u00fe\u00f3 m\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 s\u00e9 algengast lesbretta (sj\u00e1 t.d. t\u00f6lulegar uppl\u00fdsingar um ni\u00f0urhal mismunandi skr\u00e1ategunda af Rafb\u00f3kavefnum \u00ed ritger\u00f0 \u00d3la Gneista S\u00f3leyjarsonar). \u00c9g velti \u00fev\u00ed l\u00edka fyrir m\u00e9r af hverju <a href=\"http:\/\/www.forlagid.is\/?attachment_id=606010\">Forlagi\u00f0 birtir mynd af rafb\u00f3k \u00ed Ipad \u00e1 uppl\u00fdsingas\u00ed\u00f0unni sinni um hvernig megi kaupa af \u00fev\u00ed rafb\u00e6kur<\/a> &#8211; er \u00fea\u00f0 tilviljun a\u00f0 \u00feeir v\u00f6ldu myndina iPad-E-book.jpg til a\u00f0 punta upp \u00e1 \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0u? Og er svona samr\u00e1\u00f0, sem s\u00e9st \u00ed vefverslun Forlagsins, l\u00f6glegt?<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/lesbretti.jpg?resize=120%2C102\" alt=\"Kindle lesbretti\" align=\"left\" height=\"102\" width=\"120\" \/>\u00cd s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu var minnst \u00e1\u00a0 sk\u00fdringu vefverslunar Forlagsins \u00e1 a\u00f0 selja ekki rafb\u00e6kur til a\u00f0 lesa \u00ed Kindle. S\u00fa sk\u00fdring var \u00e1r\u00e9ttu\u00f0 \u00ed fr\u00e9tt R\u00daV \u00ed vikunni, <a href=\"http:\/\/ruv.is\/sarpurinn\/frettir\/20082012\/storaukning-i-utgafu-rafboka\">St\u00f3raukning \u00ed \u00fatg\u00e1fu rafb\u00f3ka <\/a>(20. \u00e1g\u00fast 2012). \u00c9g skil ekki af hverju \u00edslenskir b\u00f3ka\u00fatgefendur krefjast \u00feess a\u00f0 Amazon Kindle Store gefi \u00fat rafb\u00e6kur \u00e1 \u00edslensku og s\u00e9u \u00ed f\u00fdlu af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er ekki gert. Amazon er risast\u00f3r amr\u00edsk b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fa og af hverju \u00e6tti h\u00fan a\u00f0 gefa \u00fat b\u00e6kur \u00e1 tungum\u00e1li sem r\u00famlega 300.000 hr\u00e6\u00f0ur \u00e1 hjara netheima geta lesi\u00f0? Ekki kr\u00f6f\u00f0ust \u00edslenskir b\u00f3ka\u00fatgefendur \u00feess a\u00f0 b\u00e6kur \u00e1 \u00edslensku v\u00e6ru til s\u00f6lu \u00ed st\u00e6rstu vefb\u00f3kas\u00f6lum heims til \u00feessa, t.d. Amazon e\u00f0a Waterstones. \u00cd Amazon Kindle Store er auk \u00feess fullt af \u00edslenskum rafb\u00f3kum til s\u00f6lu \u00e1 ensku, \u00fe\u00fdsku e\u00f0a sp\u00e6nsku. Svolei\u00f0is a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki eins og \u00edslenskir h\u00f6fundar s\u00e9u bannf\u00e6r\u00f0ir af Amazon \ud83d\ude09 \u00c9g bendi \u00feeim sem hafa \u00e1huga \u00e1 \u00feessum m\u00e1lum eindregi\u00f0 \u00e1 a\u00f0 lesa athugasemd \u00deorsteins Mars, forsvarsmanns \u00fatg\u00e1funnar R\u00fanat\u00fds, vi\u00f0 \u00feessa fr\u00e9tt R\u00daV, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/runatyrutg.wordpress.com\/2012\/08\/21\/vegna-frettar-um-rafbaekur\/\">Vegna fr\u00e9ttar um rafb\u00e6kur<\/a>. \u00c1hugamenn um rafb\u00e6kur hef\u00f0u l\u00edka gagn og gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa fleiri f\u00e6rslur \u00e1 bloggi \u00deorsteins Mars.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt Amazon selji Kindle-lesbretti og gefi \u00fat rafb\u00e6kur \u00e1 formi sem Kindlar lesa b\u00fd\u00f0ur fyrirt\u00e6ki\u00f0 upp \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.amazon.com\/gp\/feature.html\/ref=sv_kstore_1?ie=UTF8&amp;docId=1000493771\">\u00f3d\u00fdrar vi\u00f0b\u00e6tur (app) fyrir \u00f6nnur lesbretti, spjaldt\u00f6lvur og s\u00edma<\/a>.\u00a0 Svo er au\u00f0vita\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 nota Calibre til a\u00f0 breyta skr\u00e1m \u00e6tlu\u00f0um Kindle \u00ed epub skr\u00e1r &#8230; samt \u00fearf fyrst a\u00f0 hla\u00f0a ni\u00f0ur forriti til a\u00f0 brj\u00f3ta upp mobi-skr\u00e1 \u00fev\u00ed Amazon l\u00e6sir s\u00ednum skr\u00e1m me\u00f0 afritunarv\u00f6rn (DRM) ekkert s\u00ed\u00f0ur en a\u00f0rir \u00fatgefendur. (\u00c1hugam\u00f6nnum um gildi og gagnsemi afritunarvarna er bent \u00e1 kafla um \u00fe\u00e6r \u00ed <a href=\"http:\/\/skemman.is\/stream\/get\/1946\/11140\/27419\/1\/Rafbokavefurinn_-_Islenskar_rafbaekur_i_-_Oli_Gneisti_Soleyjarson.pdf\">ritger\u00f0 \u00d3la Gneista S\u00f3leyjarsonar<\/a> og \u00e1 <a href=\"http:\/\/runatyrutg.wordpress.com\">blogg \u00deorsteins Mars<\/a>.) \u00deeir sem ekki geta hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 panta t\u00e6ki fr\u00e1 vondu amr\u00edsku au\u00f0valdsfyrirt\u00e6ki geta keypt s\u00e9r Kindil \u00ed Elko. Svolei\u00f0is a\u00f0 \u00e9g kem alls ekki auga \u00e1 hina illu einokun Amazon sem forsvarsmenn F\u00e9lags \u00edslenskra b\u00f3ka\u00fatgefenda kveina undan og br\u00faka sem afs\u00f6kun fyrir l\u00e9legri \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 vi\u00f0skiptavini s\u00edna.<\/p>\n<p>Vi\u00f0b\u00f3t: <a href=\"http:\/\/www.vb.is\/frettir\/76489\/\" title=\"rafb\u00e6kur fyrir Kindil\">\u00deann 24. september b\u00e1rust fregnir af \u00fev\u00ed a\u00f0 Forlagi\u00f0 hef\u00f0i s\u00e9\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r og hyg\u00f0ist n\u00fa bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 m\u00f6guleika fyrir Kindileigendur<\/a>: &#8220;Leysa \u00e1 \u00feetta m\u00e1l me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 streyma b\u00f3kunum \u00e1 Kindle og geta notendur svo geymt b\u00e6kurnar \u00e1 Hillan.is.&#8221; \u00c9g skil raunar ekki hva\u00f0 \u00e1tt er vi\u00f0: Er \u00fe\u00e1 bara h\u00e6gt a\u00f0 lesa b\u00f3k fr\u00e1\u00a0Forlaginu \u00ed Kindli sem er tengdur netinu en ekki h\u00e6gt a\u00f0 hla\u00f0a\u00a0henni ni\u00f0ur \u00e1 Kindilinn? Ef \u00fea\u00f0 er &#8220;lausn&#8221; Forlagsins geta r\u00e1\u00f0amenn \u00fear alveg eins gleymt \u00feessu &#8230; \u00feetta er \u00fev\u00edl\u00edk hall\u00e6risredding a\u00f0 enginn Kindilnotandi mun hafa ge\u00f0 \u00ed s\u00e9r til a\u00f0 br\u00faka hana. \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera a\u00f0 bla\u00f0ama\u00f0ur Vi\u00f0skiptabla\u00f0sins hafi rangt eftir Agli Erni J\u00f3hannssyni, framkv\u00e6mdarstj\u00f3ra Forlagsins.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><strong>Hva\u00f0a \u00e1hrif hefur stefna F\u00e9lags \u00edslenskra b\u00f3ka\u00fatgefenda og ver\u00f0lagning \u00e1 \u00edslenskum rafb\u00f3kum?<\/strong><\/p>\n<p>\u00a0 \u00a0<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hl\u00e6gir mig hve \u00edslenskumaf\u00edan (fr\u00e6\u00f0imenn og almenningur sem er mj\u00f6g umhuga\u00f0 um a\u00f0 bjarga \u00edslenskri tungu fr\u00e1 meintri yfirvofandi gl\u00f6tun) fjasar miki\u00f0 um nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 \u00edslenska st\u00fdrikerfi og hugb\u00fana\u00f0 \u00ed t\u00f6lvum og s\u00edmum en vir\u00f0ist ekki hafa teki\u00f0 eftir \u00e1standinu \u00feegar kemur a\u00f0 lesefni \u00ed \u00feessum s\u00f6mu gr\u00e6jum. M\u00e9r finnst miklu meira m\u00e1li skipta a\u00f0 menn geti keypt n\u00fdjar b\u00e6kur \u00e1 \u00edslensku \u00ed \u00e6p\u00f6dduna s\u00edna e\u00f0a s\u00edmann sinn \u00e1 samb\u00e6rilegu ver\u00f0i og b\u00e6kur kosta \u00e1 ensku\u00a0en hvort umgj\u00f6r\u00f0in \u00ed \u00feessum gr\u00e6jum birtist m\u00f6nnum \u00e1 \u00edslensku e\u00f0a ensku. \u00cd Kindli er umgj\u00f6r\u00f0in svo l\u00e9ttv\u00e6g a\u00f0 h\u00fan skiptir engu m\u00e1li en texti b\u00f3kanna sem ma\u00f0ur les skiptir \u00f6llu m\u00e1li (alveg eins og \u00ed prent\u00fatg\u00e1fu). Af hverju hafa m\u00e1lsvarar \u00edslenskrar tungu ekki gagnr\u00fdnt \u00f3h\u00f3flegt\u00a0ver\u00f0 \u00a0\u00e1 rafr\u00e6num \u00edslenskum b\u00f3kum?<\/p>\n<p>Ef \u00edslenskir b\u00f3ka\u00fatgefendur hysja ekki upp um sig br\u00e6kurnar og horfast \u00ed augu vi\u00f0 hvernig marka\u00f0urinn raunverulega er (\u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 einbl\u00edna \u00e1 hvernig hann \u00c6TTI A\u00d0 VERA a\u00f0 \u00feeirra \u00e1liti) missa \u00feeir einfaldlega af lestinni mj\u00f6g flj\u00f3tlega og st\u00f3rlesendur ver\u00f0a komnir upp \u00e1 \u00e1g\u00e6tt lag me\u00f0 a\u00f0 lesa \u00e1 ensku e\u00f0a austurnorr\u00e6num m\u00e1lum.\u00a0 \u00c9g hef engar \u00e1hyggjur af t\u00e6kniv\u00e6ddum \u00edslenskum ungd\u00f3mnum \u00fev\u00ed m\u00e9r vitanlega lesa unglingar s\u00e1ral\u00edti\u00f0 af b\u00f3kum, hvort sem er \u00e1 papp\u00edr e\u00f0a \u00ed s\u00ednum spjaldt\u00f6lvum og s\u00edmum. (\u00dea\u00f0 er vissulega \u00e1hyggjuefni \u00fat af fyrir sig en kemur ekki vi\u00f0 efni \u00feessarar f\u00e6rslu.) Rafb\u00f3kalesendur eru nefnilega ekki f\u00f3lki\u00f0 sem les a\u00f0 eigin frumkv\u00e6\u00f0i eina b\u00f3k \u00e1 \u00e1ri e\u00f0a svo. Rafb\u00f3kalesendur eru f\u00f3lki\u00f0 sem les miki\u00f0 af b\u00f3kum og getur lesi\u00f0 einhver tungum\u00e1l \u00f6nnur en \u00edslensku. \u00dea\u00f0 f\u00f3lk hugsar sig eflaust tvisvar um \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 kaupir s\u00e9r rafb\u00f3k \u00e1 \u00edslensku.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum vil \u00e9g nefna a\u00f0 \u00e9g tel a\u00f0 s\u00e9u stafr\u00e6n g\u00f6gn ver\u00f0l\u00f6g\u00f0 skynsamlega og au\u00f0velt a\u00f0 nota \u00feau er miklu minni h\u00e6tta \u00e1 a\u00f0 f\u00f3lk leggi sig ni\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0 stela \u00feeim. Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna prj\u00f3nauppskriftir. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu tveimur \u00e1rum hefur mj\u00f6g f\u00e6rst \u00ed v\u00f6xt a\u00f0 h\u00f6nnu\u00f0ir bj\u00f3\u00f0i uppskriftir s\u00ednar til s\u00f6lu \u00e1 netinu. Ef vel-fr\u00e1gengin uppskrift kostar 500-600 kr., h\u00e6gt er a\u00f0 grei\u00f0a fyrir hana me\u00f0 kreditkortinu s\u00ednu \u00e1 netinu og f\u00e1 hana strax senda \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti \u00fe\u00e1 kaupir ma\u00f0ur au\u00f0vita\u00f0 uppskriftina og leggur ekki vinnu \u00ed a\u00f0 telja hana \u00fat eftir myndum af gripnum. Ef svolei\u00f0is uppskrift kosta\u00f0i fleiri \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur l\u00e6gju hr\u00fagurnar af uppskriftum frammi \u00e1 torrent b\u00f6nkum &#8230; alveg eins og var raunin \u00feegar \u00edslensk t\u00f3nlist \u00e1 stafr\u00e6nu formi kosta\u00f0i form\u00fau.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Svk. uppl\u00fdsingum sem \u00e9g f\u00e9kk fr\u00e1 b\u00f3ka\u00fatgefanda er kostna\u00f0ur nokkurn veginn svona samansettur \u00ed ver\u00f0i \u00edslensks\u00a0sk\u00e1ldverks \u00e1 papp\u00edr \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0: Prentkostna\u00f0ur:\u00a015-20% af ver\u00f0inu (mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 b\u00f3kin s\u00e9 prentu\u00f0 \u00ed \u00edslenskri prentsmi\u00f0ju); Dreifingarkostna\u00f0ur: 5-7% af <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/08\/25\/faranleg-verdlagning-islenskra-rafboka-og-einokunarstefna-bokautgefenda\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[24],"tags":[],"class_list":["post-434","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-rafbaekur"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/434","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=434"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/434\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":651,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/434\/revisions\/651"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=434"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=434"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=434"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}