{"id":436,"date":"2012-09-01T14:23:12","date_gmt":"2012-09-01T14:23:12","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-09-01\/vantru-kaerir-bjarna-randver-i-fimmta-sinn\/"},"modified":"2013-11-21T09:16:37","modified_gmt":"2013-11-21T09:16:37","slug":"vantru-kaerir-bjarna-randver-i-fimmta-sinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/09\/01\/vantru-kaerir-bjarna-randver-i-fimmta-sinn\/","title":{"rendered":"Vantr\u00fa k\u00e6rir Bjarna Randver \u00ed fimmta sinn"},"content":{"rendered":"<p>Hva\u00f0 sem f\u00f3lki kann a\u00f0 finnast um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa ver\u00f0a fork\u00f3lfar \u00feess seint kalla\u00f0ir \u00edst\u00f6\u00f0ulausir: Hafi \u00feeir teki\u00f0 eitthva\u00f0 \u00ed sig hanga \u00feeir \u00e1 sinni sannf\u00e6ringu eins og hundar \u00e1 ro\u00f0i. M\u00e6ttu m\u00f6rg tr\u00faf\u00e9lag \u00f6funda f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa af heitri sannf\u00e6ringu og p\u00edslarv\u00e6ttis\u00fer\u00e1 f\u00e9lagsmanna!<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p>Eins og raki\u00f0 var \u00ed <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/flokkur\/vantru-og-sidanefnd-hi\/\">firnal\u00f6ngum f\u00e6rsluflokki<\/a> fyrir h\u00e1lfu \u00e1ri s\u00ed\u00f0an k\u00e6r\u00f0i f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa stundakennarann Bjarna Randver Sigurvinsson fyrir a\u00f0 hafa fjalla\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi um f\u00e9lagi\u00f0 en \u00fev\u00ed hugna\u00f0ist \u00e1 nokkrum gl\u00e6rum \u00ed k\u00farsi sem hann kenndi \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00e1 haustmisseri 2009. \u00de\u00e1verandi forma\u00f0ur Vantr\u00faar, Reynir Har\u00f0arson s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur, \u00fer\u00edk\u00e6r\u00f0i Bjarna Randver \u00ed nafni Vantr\u00faar;\u00a0 til h\u00e1sk\u00f3larektors, gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideildar H\u00cd og si\u00f0anefndar H\u00cd. Upph\u00f3fst mikill darra\u00f0ardans sem lauk me\u00f0 yfirl\u00fdsingu h\u00e1sk\u00f3larektors um a\u00f0 Bjarni Randver hef\u00f0i aldrei broti\u00f0 si\u00f0areglur H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. (Yfirlit yfir feril m\u00e1lsins\u00a0 m\u00e1 sj\u00e1 \u00ed f\u00e6rslunni <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-02-22\/samantekt-vantru-og-sidanefnd-hi-gegn-bjarna-randver-sigurvinssyni\/\">Samantekt: Vantr\u00fa og si\u00f0anefnd H\u00cd gegn Bjarna Randver Sigurvinssyni<\/a>, skrifu\u00f0 22. febr\u00faar 2012.)<\/p>\n<p>27. ma\u00ed\u00a0 2011 lag\u00f0i \u00de\u00f3r\u00f0ur Ingvarsson, ritstj\u00f3ri vefjar Vantr\u00faar, fram k\u00e6ru hj\u00e1 l\u00f6greglustj\u00f3raemb\u00e6ttinu \u00ed Reykjav\u00edk, \u00fear sem Bjarni Randver Sigurvinsson er k\u00e6r\u00f0ur fyrir brot \u00e1 fjarskiptal\u00f6gum, n\u00e1nar tilteki\u00f0 fyrir innbrot \u00e1 innri vef Vantr\u00faar og fyrir a\u00f0 hafa gramsa\u00f0 \u00fear \u00ed l\u00e6stum hirslum \u00feeirra. (F\u00e9l\u00f6gum \u00ed Vantr\u00fa var raunar fullkunnugt um hvernig Bjarni Randver f\u00e9kk afrit af loku\u00f0u spjallbor\u00f0i f\u00e9lagsins en kusu eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur a\u00f0 l\u00edta fram hj\u00e1 eigin vitneskju og fylgja eigin sannf\u00e6ringu \u00ed sta\u00f0inn, nefnilega a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r ni\u00f0ri \u00e1 Bjarna Randveri.)\u00a0 9. febr\u00faar 2012 m\u00e6tti Bjarni Randver \u00ed sk\u00fdrslut\u00f6ku hj\u00e1 Ranns\u00f3knarl\u00f6greglu r\u00edkisins. 26. j\u00fal\u00ed 2012 \u00farskur\u00f0a\u00f0i emb\u00e6tti l\u00f6greglustj\u00f3rans \u00ed Reykjav\u00edk a\u00f0 vi\u00f0 ranns\u00f3kn m\u00e1lsins hafi ekkert komi\u00f0 fram sem s\u00e9 l\u00edklegt til a\u00f0 sakfella Bjarna Randver og m\u00e1li\u00f0 var fellt ni\u00f0ur.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/vantru\/myndir\/asaka2.jpg?w=540\" alt=\"Vantr\u00fa \u00e1sakar Bjarna Randver Sigurvinsson\" align=\"left\" \/>18. j\u00fan\u00ed 2012 barst si\u00f0anefnd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands erindi Egils \u00d3skarssonar, formanns f\u00e9lagsins Vantr\u00faar.\u00a0 \u00dear segir Egill a\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00f3h\u00e1\u00f0 ranns\u00f3knarnefnd H\u00e1sk\u00f3lar\u00e1\u00f0s og rektor hafi harma\u00f0 a\u00f0 ekki hafi fengist efnisleg ni\u00f0ursta\u00f0a \u00ed si\u00f0anefndarm\u00e1li 1\/2010 og a\u00f0 Vantr\u00fa telji a\u00f0 ekki hafi veri\u00f0 sta\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 gefin lofor\u00f0 sem voru forsenda \u00feess a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 yr\u00f0i dregi\u00f0 til baka, \u00fe\u00e1 hafi f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 senda upphaflegu k\u00e6runa \u00f3breytta til si\u00f0anefndar H\u00cd til efnislegra umfj\u00f6llunar og \u00farskur\u00f0ar. \u00c9g veit ekki hva\u00f0a &#8220;gefnu lofor\u00f0&#8221; Vantr\u00fa hafa veri\u00f0 svikin en giska \u00e1 a\u00f0 Egill \u00d3skarsson s\u00e9 a\u00f0 v\u00edsa til umr\u00e6\u00f0u um m\u00f6gulega a\u00f0komu f\u00e9lagsins Vantr\u00faar a\u00f0 riti um tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ileg efni sem Hugv\u00edsindasvi\u00f0 st\u00e6\u00f0i a\u00f0. Forseti Hugv\u00edsindasvi\u00f0s l\u00e9\u00f0i ekki m\u00e1ls \u00e1 framkv\u00e6mdinni. \u00dear sem aldrei hefur veri\u00f0 uppl\u00fdst hverjir n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00e1tu fundinn sem rektor h\u00e9lt me\u00f0 forsvarsm\u00f6nnum Vantr\u00faar \u00ed apr\u00edllok 2011 er \u00f3m\u00f6gulegt a\u00f0 segja hva\u00f0 \u00fear f\u00f3r fram, t.d. hvort f\u00e9laginu Vantr\u00fa var lofa\u00f0 einu e\u00f0a neinu gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0 dr\u00e6gi k\u00e6ru s\u00edna til si\u00f0anefndar H\u00cd til baka.<\/p>\n<p>Vissulega barst n\u00fdja (og fimmta) k\u00e6ra Vantr\u00faar gegn Bjarna Randver Sigurvinssyni \u00e1 \u00f3heppilegum t\u00edma \u00fev\u00ed \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands taka menn s\u00e9r sumarleyfi. Skv. <a href=\"http:\/\/www.hi.is\/adalvefur\/sidanefnd\" title=\"Si\u00f0anefnd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands\">uppl\u00fdsingum \u00e1 vef H\u00cd<\/a> (sem voru uppf\u00e6r\u00f0ar\u00a023. \u00e1g\u00fast sl.) hefur si\u00f0anefnd H\u00cd ekki veri\u00f0 fullskipu\u00f0 s\u00ed\u00f0an\u00a0snemma \u00ed mars \u00e1 \u00feessu \u00e1ri\u00a0\u00feegar fulltr\u00fai F\u00e9lags h\u00e1sk\u00f3lakennara, Eyja Margr\u00e9t Brynjarsd\u00f3ttir, sag\u00f0i sig \u00far henni. \u00deeir tveir pr\u00f3fessorar \u00e1 eftirlaunum sem \u00ed henni sitja n\u00fa og b\u00e1\u00f0ir h\u00f6ndlu\u00f0u upphaflegu k\u00e6ru Vantr\u00faar \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, \u00de\u00f3r\u00f0ur Har\u00f0arson og \u00deorsteinn Vilhj\u00e1lmsson, hafa l\u00edklega teki\u00f0 s\u00e9r um\u00fe\u00f3ttunart\u00edma og svo l\u00fdstu \u00feeir yfir vanh\u00e6fi til a\u00f0 fjalla um n\u00fdju \u00fatg\u00e1funa \u00e1 g\u00f6mlu k\u00e6runni Vantr\u00faar. \u00cd \u00feeirra sta\u00f0 skipa\u00f0i rektor H\u00cd \u00feau\u00a0 Bj\u00f6rgu Thorarensen pr\u00f3fessor vi\u00f0 Lagadeild \u00e1 F\u00e9lagsv\u00edsindasvi\u00f0i sem jafnframt er forma\u00f0ur og\u00a0 Hafli\u00f0a P\u00e9tur G\u00edslason pr\u00f3fessor \u00ed Raunv\u00edsindadeild \u00e1 Verkfr\u00e6\u00f0i- og n\u00e1tt\u00faruv\u00edsindasvi\u00f0i. \u00deri\u00f0ji nefndarma\u00f0urinn er Sveinbj\u00f6rn Bj\u00f6rnsson, e\u00f0lisfr\u00e6\u00f0ingur, tilnefndur af F\u00e9lagi h\u00e1sk\u00f3lakennara. Svo n\u00fa er til fullskipu\u00f0 si\u00f0anefnd \u00ed \u00feessu m\u00e1li.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt Egill \u00d3skarsson leiksk\u00f3lakennari og forma\u00f0ur f\u00e9lagsins Vantr\u00faar hafi skila\u00f0 inn fimmtu k\u00e6runni \u00e1 hendur Bjarna Randver Sigurvinssyni \u00ed j\u00fan\u00ed og H\u00cd sta\u00f0fest m\u00f3tt\u00f6ku hennar \u00feann 18. j\u00fan\u00ed var Bjarna Randveri ekki tilkynnt a\u00f0 hann hef\u00f0i veri\u00f0 k\u00e6r\u00f0ur einn ganginn enn fyrr en \u00ed fyrradag, fimmtudaginn 30. \u00e1g\u00fast 2012. Raunar f\u00e9kk hann ekki br\u00e9fi\u00f0 me\u00f0 \u00feeim uppl\u00fdsingum \u00ed hendurnar fyrr en \u00ed g\u00e6r, f\u00f6studaginn 31. \u00e1g\u00fast.<\/p>\n<p>Si\u00f0anefndin s\u00e9rstaka \u00ed \u00feessu m\u00e1li heldur sinn fyrsta fund \u00feann 6. september og mun \u00fe\u00e1 kanna m\u00e1lsgrundv\u00f6ll skv. 4. gr. starfsreglna si\u00f0anefndar H\u00cd. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir v\u00e6ntanlega a\u00f0 \u00feessi si\u00f0anefnd, \u00f3l\u00edkt forverum s\u00ednum, byrjar \u00e1 a\u00f0 skera \u00far um hvort k\u00e6ra Vantr\u00faar snerti brot \u00e1 si\u00f0areglum H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<p>\u00a0 \u00a0<br \/>\n\u00cd lokin er h\u00e9r listi yfir k\u00e6rur f\u00e9lagsins Vantr\u00faar gegn stundarkennaranum Bjarna Randveri Sigurvinssyni. Hann er l\u00edklega k\u00e6r\u00f0astur kennara \u00ed H\u00cd fr\u00e1 upphafi!<\/p>\n<ul>\n<li>K\u00e6ra til Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i- og tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0ideildar 4. febr\u00faar 2010.\u00a0H\u00fan var afgreidd\u00a09. mars 2010 af deildarforseta sem l\u00fdsti yfir trausti \u00e1\u00a0Bjarna Randveri Sigurvinssyni og hans kennslu.<\/li>\n<li>K\u00e6ra til si\u00f0anefndar H\u00cd 4. febr\u00faar 2010. Dregin til baka 28. apr\u00edl 2011.<\/li>\n<li>K\u00e6ra til rektors H\u00cd 4. febr\u00faar 2010. M\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 rektor hafi brug\u00f0ist vi\u00f0 henni me\u00f0 yfirl\u00fdsingu sem h\u00fan sendi til allra starfsmanna h\u00e1sk\u00f3lans 15. febr\u00faar 2012 \u00fear sem segir \u201ea\u00f0 ekkert hefur komi\u00f0 fram \u00ed me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1lsins sem bendir til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0komandi stundakennari hafi gerst brotlegur \u00ed starfi\u201c.<\/li>\n<li>K\u00e6ra til l\u00f6greglu 27. ma\u00ed 2011. Felld ni\u00f0ur 26. j\u00fal\u00ed 2012.<\/li>\n<li>K\u00e6ra til si\u00f0anefndar H\u00cd 18. j\u00fan\u00ed 2012.<\/li>\n<\/ul>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hva\u00f0 sem f\u00f3lki kann a\u00f0 finnast um f\u00e9lagi\u00f0 Vantr\u00fa ver\u00f0a fork\u00f3lfar \u00feess seint kalla\u00f0ir \u00edst\u00f6\u00f0ulausir: Hafi \u00feeir teki\u00f0 eitthva\u00f0 \u00ed sig hanga \u00feeir \u00e1 sinni sannf\u00e6ringu eins og hundar \u00e1 ro\u00f0i. M\u00e6ttu m\u00f6rg tr\u00faf\u00e9lag \u00f6funda <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/09\/01\/vantru-kaerir-bjarna-randver-i-fimmta-sinn\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[22],"tags":[],"class_list":["post-436","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-vantru-og-sianefnd-hi"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/436","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=436"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/436\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":649,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/436\/revisions\/649"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=436"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=436"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=436"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}