{"id":443,"date":"2012-09-26T13:50:40","date_gmt":"2012-09-26T13:50:40","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-09-26\/af-limingunum-um-unhinged\/"},"modified":"2013-11-21T09:10:40","modified_gmt":"2013-11-21T09:10:40","slug":"af-limingunum-um-unhinged","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/09\/26\/af-limingunum-um-unhinged\/","title":{"rendered":"Af l\u00edmingunum &#8211; um Unhinged"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00cd sumar og haust hef \u00e9g lesi\u00f0 \u00fdmsar b\u00e6kur og greinar um ge\u00f0lyf og ge\u00f0l\u00e6kningar. \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-05-25\/nyju-lyfin-keisarans\/\" title=\"N\u00fdju lyfin keisarans eftir Irving Kirsch\">blogga\u00f0 um b\u00f3k s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingsins Irving Kirsch, <i>N\u00fdju lyfin keisarans<\/i><\/a>, og gagnr\u00fdni \u00e1 hana. Kannski blogga \u00e9g einhvern t\u00edma um <i>Anatomy of an Epidemic<\/i> eftir bla\u00f0amanninn Robert Whitaker, f\u00edna b\u00f3k til a\u00f0 byrja \u00e1 a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fdmsum hindurvitnum \u00ed n\u00fat\u00edma ge\u00f0l\u00e6kningum, og vonandi kemst \u00e9g \u00ed gegnum \u00feau mass\u00edfu fr\u00e6\u00f0i <i>The Myth of the Chemical Cure. A Critique of Psyhiatric Drug Treament<\/i>, eftir breska ge\u00f0l\u00e6kninn Joanna Moncrieff, sem \u00e9g er a\u00f0 lesa n\u00fana.<\/font><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"0\" border=\"0\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/thunglyndi\/unhinged_daniel_carlat.jpg?resize=150%2C221\" alt=\"Unhinged eftir Daniel Carlat\" align=\"left\" height=\"221\" width=\"150\" \/><\/p>\n<p><font size=\"-1\">B\u00f3k bandar\u00edska ge\u00f0l\u00e6knisins <a href=\"http:\/\/www.danielcarlat.com\/\" title=\"Daniel Carlat\">Daniel J. Carlat<\/a>, <i>Unhinged. The Trouble with Psychiatry &#8211; a Doctor&#8217;s Revelations about a Profession in Crisis<\/i>, er \u00e1kaflega vel skrifu\u00f0 og l\u00e6sileg, heimilda er og geti\u00f0 \u00edtarlega. H\u00fan kom \u00fat fyrir tveimur \u00e1rum og satt best a\u00f0 segja held \u00e9g a\u00f0 allir ge\u00f0l\u00e6knar hef\u00f0u \u00e1kaflega gott af \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa hana, ekki s\u00ed\u00f0ur en ge\u00f0sj\u00faklingar. \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a titilinn, <i>unhinged<\/i> getur \u00fe\u00fdtt \u201eaf hj\u00f6runum\u201c, \u201e\u00far skor\u00f0um\u201c e\u00f0a bara hreinlega \u201eklikka\u00f0ur\u201c.\u00a0 L\u00edklega n\u00e6r \u00edslenska or\u00f0alagi\u00f0 \u201egengi\u00f0\/fari\u00f0 af l\u00edmingunum\u201c\u00a0 best merkingunni. Titillinn v\u00edsar til \u00feeirrar sko\u00f0unar h\u00f6fundar a\u00f0 einhvers sta\u00f0ar hafi ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i fari\u00f0 \u00fat af sporinu\/af hj\u00f6runum og hann l\u00fdsir m\u00e6tavel \u00feeirri hugmyndafr\u00e6\u00f0ilegu kreppu sem hann sj\u00e1lfur og kollegar hans eru \u00ed. \u00deessari kreppu hefur Steind\u00f3r J. Erlingsson v\u00edsindasagnfr\u00e6\u00f0ingur gert \u00e1g\u00e6t skil \u00ed greininni <a href=\"http:\/\/www.raunvis.hi.is\/~steindor\/felagsradgjafar.pdf\" title=\"kreppa ge\u00f0l\u00e6kninga\">Gl\u00edmir ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0in vi\u00f0 hugmyndafr\u00e6\u00f0ilega kreppu? Um v\u00edsindi og hagsmuni<\/a>, \u00ed <i>T\u00edmriti f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gjafa<\/i>, 1.tbl. 5.\u00e1rg. 2011, s. 5-14.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><i>Unhinged<\/i> er samt\u00edningur af \u00fdmsu efni sem er haganlega felldur saman \u00ed eina heild. Sumt er fr\u00e1sagnir Carlat af s\u00ednu n\u00e1mi, margt fr\u00e1sagnir \u00far starfi, t.d. \u00fdmsar sm\u00e1s\u00f6gur (anekd\u00f3tur) af sj\u00faklingum og sj\u00fakratilfellum, sumt er umfj\u00f6llun um ge\u00f0lyf, \u00fe.\u00e1.m. blekkingarleik og s\u00f6lumennsku risast\u00f3rra lyfjafyrirt\u00e6kja en einnig er t\u00e6pt \u00e1 s\u00f6gu lyfjanna, sumt er umfj\u00f6llun um a\u00f0rar a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 ge\u00f0l\u00e6kningar, t.d. rafl\u00e6kningar (ECT), skreyjutaugar\u00f6rvun (VNS), segul\u00f3m\u00f6rvun (TMS) o.fl. Veigamikill hluti b\u00f3karinnar eru vangaveltur Carlat sj\u00e1lfs og \u00ed lok hennar setur hann fram nokkrar hugmyndir um hvernig megi koma ge\u00f0l\u00e6kningum \u00e1 r\u00e9tta braut.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Carlat hefur veri\u00f0 harkalega gagnr\u00fdndur af kollegum s\u00ednum fyrir \u00feessa b\u00f3k. Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur hans, sem starfandi ge\u00f0l\u00e6knis, eru \u00fe\u00f3 ekkert \u00e1kaflega byltingarkenndar. Hann vill \u00e1fram \u00e1v\u00edsa \u00feunglyndislyfjum \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 \u00fe\u00f3tt hann vi\u00f0urkenni f\u00faslega a\u00f0 v\u00edsindin sem \u00feau eiga a\u00f0 byggja \u00e1\u00a0s\u00e9u hugarsm\u00ed\u00f0 og m\u00f6gulega felist l\u00e6kningarm\u00e1ttur \u00feeirra a\u00f0allega \u00ed lyfleysu\u00e1hrifum. Hann er hlynntur rafl\u00e6kningum \u00fe\u00f3tt hann dragi ekki fj\u00f6\u00f0ur yfir \u00fea\u00f0 a\u00f0 enginn viti hvernig 40-45 sek\u00fandna krampi heila geti haft l\u00e6kningarm\u00e1tt fyrir marga \u00feunglyndissj\u00faklinga og a\u00f0 \u00feessi a\u00f0ger\u00f0 geti haft geigv\u00e6nlegar aflei\u00f0ingar fyrir l\u00edtinn sj\u00faklingah\u00f3p. Kannski er \u00fea\u00f0 sem fer mest fyrir brj\u00f3sti\u00f0 \u00e1 \u00f6\u00f0rum ge\u00f0l\u00e6knum a\u00f0 Carlat vi\u00f0urkennir hikstalaust a\u00f0 menn s\u00e9u litlu n\u00e6r um af hverju \u00feunglyndi stafar en menn voru \u00e1 d\u00f6gum Hipp\u00f3kratesar, a\u00f0 kenningasm\u00ed\u00f0 til a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra orsakir \u00feess er a\u00f0 mestu\u00a0hugarleikfimi en ekki bygg\u00f0 \u00e1 v\u00edsindum\u00a0og a\u00f0 hann heldur \u00fev\u00ed fram a\u00f0 akkilesarh\u00e6ll ge\u00f0l\u00e6kna s\u00e9 vangeta og s\u00edminnkandi vilji til a\u00f0 hlusta \u00e1 sj\u00faklinga og veita almennilega vi\u00f0talsme\u00f0fer\u00f0. Carlat telur a\u00f0 grunnn\u00e1m \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i n\u00fdtist ge\u00f0l\u00e6knum n\u00e6sta l\u00edti\u00f0 og a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u miklu meira gagn af \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e6ra s\u00e1lfr\u00e6\u00f0i. Ofur\u00e1hersla s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratuga \u00e1 l\u00edffr\u00e6\u00f0ilegar sk\u00fdringar ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma hafi alls ekki skila\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri. Hann er og j\u00e1kv\u00e6\u00f0ur fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingar f\u00e1i a\u00f0 \u00e1v\u00edsa ge\u00f0lyfjum eftir skemmri sk\u00edrn \u00ed lyfjafr\u00e6\u00f0i og l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Lofsamlegir d\u00f3mar um <i>Unhinged<\/i> almennt ur\u00f0u ekki til a\u00f0 l\u00e6gja \u00f6ldurnar sem b\u00f3kin vakti hj\u00e1 kollegum Carlat, amer\u00edskum ge\u00f0l\u00e6knum. Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna <a href=\"http:\/\/www.psychiatrictimes.com\/reviews\/content\/article\/10168\/1897721\" title=\"ritd\u00f3mur um Unhinged\">ritd\u00f3m Chetan Haldipur<\/a>, pr\u00f3fessors \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um, sem birtist \u00ed <i>Psychiatric Times<\/i> 6. j\u00fal\u00ed 2011 en honum l\u00fdkur \u00e1 klausunni:<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">Unhinged er ein margra b\u00f3ka sem komi\u00f0 hafa \u00fat upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0 og gagnr\u00fdna ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i m\u00e1tt b\u00faast vi\u00f0 meiru af h\u00e6fileikar\u00edkum og h\u00e1l\u00e6r\u00f0um ge\u00f0l\u00e6kni \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0\u00a0 Daniel Carlat. En \u00feess \u00ed sta\u00f0 er h\u00e9r b\u00f3k sem er uppfull af\u00a0 hneykslum og \u00e1litaefnum og nokkurs konar \u00e1deilurit &#8211; nokkur konar \u201etrahison des clercs\u201c [\u00feetta er l\u00edklega v\u00edsun \u00ed titil fr\u00e6grar b\u00f3kar heimspekingins Julien Benda, enska \u00fe\u00fd\u00f0ingin var k\u00f6llu\u00f0 <i>The Betrayal of the Intellectuals<\/i>, \u00fe.e. <i>Svik menntamannanna<\/i>] &#8211; fremur en\u00a0g\u00e1fuleg umr\u00e6\u00f0a um ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i. \u00cd \u00feessu felst vandi ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0innar.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/www.psychiatrictimes.com\/display\/article\/10168\/1898105\" title=\"Daniel Carlat svarar gagnr\u00fdni\">Daniel Carlat svara\u00f0i \u00feessum ritd\u00f3mi samd\u00e6gurs<\/a>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><br \/>\n\u00a0<font size=\"-1\">En fyrst f\u00e6r\u00f0ist \u00fe\u00f3 fj\u00f6r \u00ed leikinn \u00feegar <a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Marcia_Angell\" title=\"Marcia Angell\">Marcia Angell<\/a>, fyrrum ritstj\u00f3ri <i>The New England Journal of Medicine<\/i>, skrifa\u00f0i langan ritd\u00f3m um b\u00e6kur Kirsch og Whitaker, sem nefndar voru h\u00e9r efst \u00ed f\u00e6rslunni, og <i>Unhinged<\/i> Daniels J. Carlat \u00ed <i>New York Review of Books<\/i> (sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.nybooks.com\/articles\/archives\/2011\/jun\/23\/epidemic-mental-illness-why\/\" title=\"epidemic of mental illness\">The Epidemic of Mental Illness: Why?,<\/a> 23. j\u00fan\u00ed 2011 og <a href=\"http:\/\/www.nybooks.com\/articles\/archives\/2011\/jul\/14\/illusions-of-psychiatry\/\" title=\"Illusions of psychiatry\">The Illusions of Psychiatry <\/a>14. j\u00fal\u00ed 2011). \u00cd \u00feessari l\u00f6ngu umfj\u00f6llun segir Angell undan og ofan af b\u00f3kunum og r\u00e6\u00f0ir \u00fe\u00e6r sko\u00f0anir og sta\u00f0h\u00e6fingar sem \u00ed \u00feeim eru settar fram, reynir a\u00f0 meta \u00fe\u00e6r og ni\u00f0ursta\u00f0an er yfirleitt s\u00fa a\u00f0 r\u00f6kstu\u00f0ningur h\u00f6fundanna s\u00e9 g\u00f3\u00f0ur og megi \u00e6tla a\u00f0 \u00feeir fari me\u00f0 r\u00e9tt m\u00e1l. Raunar stendur \u00feessi langi d\u00f3mur \u00e1g\u00e6tlega fyrir s\u00ednu sem sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 umfj\u00f6llun og er pr\u00fd\u00f0ilega skrifa\u00f0ur &#8211; \u00e1hugaf\u00f3lk um \u00feunglyndi e\u00f0a a\u00f0ra ge\u00f0r\u00e6na sj\u00fakd\u00f3ma og hef\u00f0bundnar l\u00e6kningatilraunir n\u00fat\u00edmans vi\u00f0 \u00feeim hef\u00f0i eflaust gagn og gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa hann. \u00cd seinni ritd\u00f3mnum gerir h\u00fan einnig DSM-IV-R (<i>Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders<\/i>, endursko\u00f0a\u00f0a fj\u00f3r\u00f0u \u00fatg\u00e1fu, \u00fe.e.a.s. \u00feann sta\u00f0al sem Bandar\u00edsku ge\u00f0l\u00e6knasamt\u00f6kin nota til a\u00f0 greina ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3ma) a\u00f0 umtalsefni.\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sj\u00e1 m\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.nybooks.com\/articles\/archives\/2011\/aug\/18\/illusions-psychiatry-exchange\/\">a\u00f0send br\u00e9f vegna ritd\u00f3msins h\u00e9r<\/a> og m\u00e1 benda \u00e1 a\u00f0 Daniel Carlat tekur \u00fear til m\u00e1ls og \u00e1lasar Angell\u00a0 fyrir a\u00f0 taka gagnr\u00fdnilaust undir ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur Kirsch, \u00fe.e. a\u00f0 munurinn \u00e1 gagnsemi lyfleysu og ge\u00f0lyfja \u00ed ranns\u00f3knum s\u00e9 svo l\u00edtill a\u00f0 hann s\u00e9 ekki kl\u00edn\u00edskt markt\u00e6kur. Carlat sta\u00f0h\u00e6fir a\u00f0 munurinn skipti m\u00e1li \u00fe\u00f3tt l\u00edtill s\u00e9. \u00deetta hefur v\u00e6ntanlega glatt ge\u00f0l\u00e6kna en n\u00e6sta efnisgrein Carlat kann a\u00f0 hafa\u00a0hleypt duglega upp \u00ed \u00feeim sumum:<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er engin spurning a\u00f0 innan l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0innar er ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i frumst\u00e6\u00f0ust \u00feegar liti\u00f0 er til v\u00edsinda. Vi\u00f0 h\u00f6fum einungis mj\u00f6g \u00f3fullkominn skilning \u00e1 l\u00edfe\u00f0lismeinafr\u00e6\u00f0i ge\u00f0r\u00e6nna sj\u00fakd\u00f3ma og \u00ed ney\u00f0 h\u00f6fum vi\u00f0 gripi\u00f0 til h\u00e1lmstr\u00e1a og s\u00edbreytilegra kenninga um hvernig me\u00f0fer\u00f0 okkar virkar. Dr. Angell dregur vel fram \u00feennan sannleik en \u00e1 sama t\u00edma afgrei\u00f0ir h\u00fan me\u00f0 flj\u00f3taskrift \u00feann sannanlega \u00e1vinning sem vi\u00f0 getum \u00fer\u00e1tt fyrir allt veitt sj\u00faklingum okkar.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/thunglyndi\/af_hjorunum.jpg?resize=208%2C175\" alt=\"Af hj\u00f6runum\" align=\"right\" height=\"175\" width=\"208\" \/><font size=\"-1\">\u00c1ri eftir a\u00f0 hinn langi ritd\u00f3mur Marciu Angell birtist andm\u00e6lti \u00feungavigtarma\u00f0ur \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um, John H. Krystal, henni har\u00f0lega, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.psychiatrictimes.com\/display\/article\/10168\/2095514\">Dr Marcia Angell and the Illusions of Anti-Psychiatry<\/a> \u00ed <i>Psychiatric Times<\/i> 12. \u00e1g\u00fast 2012. \u00de\u00f3tt hann s\u00e9 \u00e1 yfirbor\u00f0inu a\u00f0 finna a\u00f0 umfj\u00f6llun Angell er hann vitaskuld einnig a\u00f0 andm\u00e6la Kirsch, Whitaker og Carlat \u00fev\u00ed Marcia Angell t\u00f3k mj\u00f6g undir \u00feeirra m\u00e1lflutning. A\u00f0alatri\u00f0in \u00ed grein Krystal eru s\u00f6mu r\u00f6k sem ma\u00f0ur s\u00e9r v\u00ed\u00f0a notu\u00f0 af ge\u00f0l\u00e6knum \u00ed vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um vi\u00f0 gagnr\u00fdni \u00e1 hvernig ge\u00f0l\u00e6kningar eru prakt\u00edsera\u00f0ar, s.s. a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 h\u00e6ttulegt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed a\u00f0 almenningi a\u00f0 ge\u00f0lyf s\u00e9u gagnsl\u00edtil e\u00f0a gagnslaus og v\u00edsindin \u00e1 bak vi\u00f0 \u00feau engin v\u00edsindi; a\u00f0 \u00fea\u00f0 auki brennimerkingu ge\u00f0sj\u00faklinga \u00feegar fundi\u00f0 er alvarlega a\u00f0 DSM-greiningarsta\u00f0linum; a\u00f0 ritandi (\u00ed \u00feessu tilviki Marcia Angell) hafi ekki n\u00e6gilega mikla \u00feekkingu til a\u00f0 fjalla um efni\u00f0 o.s.fr. Um lei\u00f0 finnur Krystal a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 manneskja eins og Angell s\u00e9 h\u00e1tt skrifu\u00f0 \u00ed fr\u00e6\u00f0aheimi sem fyrrverandi ritstj\u00f3ri <i>The New England Journal of Medicine<\/i> og misnoti \u00fe\u00e1 st\u00f6\u00f0u s\u00edna \u00ed ska\u00f0legum m\u00e1lflutningi og \u00e1lasar henni fyrir a\u00f0 benda ekki \u00e1 n\u00fdjar lei\u00f0ir \u00ed ge\u00f0l\u00e6kningum \u00far \u00fev\u00ed h\u00fan taki undir gagnr\u00fdni \u00e1 n\u00faverandi \u00e1stand.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/psychiatry.yale.edu\/people\/john_krystal.profile\" title=\"John H. Krystal\">John H. Krystal<\/a> skartar traustvekjandi titlafj\u00f6ld, \u00fe.\u00e1.m. er hann forseti The American College of Neuropsychopharmacology, lei\u00f0andi f\u00e9lags fr\u00e6\u00f0imanna \u00ed ranns\u00f3knum \u00e1 heila, atferli og ge\u00f0lyfjunarfr\u00e6\u00f0um (segir \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u \u00feess). \u00c1 hinn b\u00f3ginn renna \u00e1 lesanda tv\u00e6r gr\u00edmur \u00feegar kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0<a href=\"http:\/\/www.psychiatrictimes.com\/all\/editorial\/psychiatrictimes\/pdfs\/Krystal-FDisc-additions.pdf\"> hann \u00feiggur grei\u00f0slur fr\u00e1 m\u00f6rgum st\u00e6rstu ge\u00f0lyfjaframlei\u00f0endum \u00ed heimi<\/a> og l\u00e6\u00f0ist a\u00f0 manni s\u00e1 grunur a\u00f0 kannski geri \u00feau tengsl hann ekki algerlega hlutlausan \u00ed sinni gagnr\u00fdni.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Loks m\u00e1 nefna a\u00f0 m\u00f6gulega hefur <i>Unhinged<\/i> haft einhver j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 ge\u00f0l\u00e6knast\u00e9tt vestanhafs, or\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 einhverjir ge\u00f0l\u00e6knar s\u00e9u til \u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feessi m\u00e1l \u00e1n \u00feess a\u00f0 hr\u00f6kkva \u00ed har\u00f0a v\u00f6rn, l\u00edkt og Haldipur og Krystal. <a href=\"http:\/\/www.amazon.com\/Ronald-W.-Pies\/e\/B001HCU3SY\" title=\"Ronald W. Pies\">Ronald W. Pies<\/a>, pr\u00f3fessor \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i og sk\u00e1ld, skrifa\u00f0i tv\u00e6r greinar um st\u00f6\u00f0u og framt\u00ed\u00f0arhorfur ge\u00f0l\u00e6kninga \u00ed <i>Psychatric Times<\/i>, How American Psychiatry Can Save Itself, og birtist <a href=\"http:\/\/www.psychiatrictimes.com\/display\/article\/10168\/2029641\">fyrri greinin<\/a> 8. febr\u00faar 2012, <a href=\"http:\/\/www.psychiatrictimes.com\/display\/article\/10168\/2040753\">s\u00fa s\u00ed\u00f0ari<\/a> \u00feann 1. mars 2012. \u00dear r\u00e6\u00f0ir hann gagnr\u00fdni \u00e1 ge\u00f0l\u00e6kningar, reynir a\u00f0 meta hva\u00f0 s\u00e9 r\u00e9ttm\u00e6t gagnr\u00fdni og hva\u00f0 byggist \u00e1 hindurvitnum og kemur loks me\u00f0 till\u00f6gur a\u00f0 \u00fev\u00ed hvernig ge\u00f0l\u00e6knast\u00e9ttin geti b\u00e6tt s\u00edn vinnubr\u00f6g\u00f0 og endurheimt vir\u00f0ingu s\u00edna. \u00c9g s\u00e9 raunar ekki betur en till\u00f6gur hans s\u00e9u a\u00f0 miklu leyti samhlj\u00f3\u00f0a till\u00f6gum Carlat \u00ed lok b\u00f3karinnar <i>Unhinged<\/i>.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00a0 <\/font><br \/>\n\u00c9g m\u00e6li eindregi\u00f0 me\u00f0 b\u00f3kinni <em>Unhinged<\/em> fyrir alla sem eiga vi\u00f0 ge\u00f0r\u00e6na kvilla a\u00f0 str\u00ed\u00f0a og alla ge\u00f0l\u00e6kna. \u00deess utan er \u00feetta skemmtileg og vel skrifu\u00f0 b\u00f3k sem margir hef\u00f0u sj\u00e1lfsagt gaman af a\u00f0 lesa.<\/p>\n<p>\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd sumar og haust hef \u00e9g lesi\u00f0 \u00fdmsar b\u00e6kur og greinar um ge\u00f0lyf og ge\u00f0l\u00e6kningar. \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur blogga\u00f0 um b\u00f3k s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingsins Irving Kirsch, N\u00fdju lyfin keisarans, og gagnr\u00fdni \u00e1 hana. Kannski blogga \u00e9g einhvern <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/09\/26\/af-limingunum-um-unhinged\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[15,9],"tags":[],"class_list":["post-443","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur","category-gedheilsa"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/443","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=443"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/443\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":642,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/443\/revisions\/642"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=443"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=443"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=443"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}