{"id":456,"date":"2012-10-29T18:57:02","date_gmt":"2012-10-29T18:57:02","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-10-29\/rettlaetir-tjaningarfrelsi-einelti\/"},"modified":"2013-11-21T09:07:04","modified_gmt":"2013-11-21T09:07:04","slug":"rettlaetir-tjaningarfrelsi-einelti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/10\/29\/rettlaetir-tjaningarfrelsi-einelti\/","title":{"rendered":"R\u00e9ttl\u00e6tir tj\u00e1ningarfrelsi einelti?"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/malleus_feminista.jpg?resize=181%2C278\" alt=\"Nornahamar fem\ufffdnista\" align=\"left\" height=\"278\" width=\"181\" \/>Undanfarna daga hafa netheimar loga\u00f0 eins og oft gerist og kveikjan er a\u00f0 \u00feessu sinni Hildur Lilliendahl eins og oft gerist.<\/p>\n<p>Upphaf m\u00e1ls \u00ed \u00feetta sinn var a\u00f0 Fr. Lilliendahl var talin ein af \u00e1hrifamestu konum landsins skv. v\u00ed\u00f0lesnu kvennabla\u00f0i. \u00cd umr\u00e6\u00f0u\u00fer\u00e6\u00f0i vi\u00f0 fr\u00e9tt af \u00feeirri upphef\u00f0 skrifa\u00f0i ma\u00f0ur nokkur \u00f3smekkleg skilabo\u00f0 gegnum f\u00e9sb\u00f3kina s\u00edna; skilabo\u00f0 \u00fear sem hann gr\u00ednast me\u00f0 a\u00f0 keyra yfir Hildi (\u00e9g tek glottmerki\u00f0 sem svo a\u00f0 \u00feetta hafi \u00e1tt a\u00f0 vera gr\u00e1tt gaman e\u00f0a einhvers konar vantr\u00faarkaldh\u00e6\u00f0ni) og storkar henni s\u00ed\u00f0an til a\u00f0 birta \u00feessi umm\u00e6li \u00ed v\u00ed\u00f0fr\u00e6gu alb\u00fami s\u00ednu yfir karla sem ku hata konur. Hildur t\u00f3k au\u00f0vita\u00f0 umsvifalaust skj\u00e1mynd af skilabo\u00f0unum en l\u00e9t ekki duga a\u00f0 koma \u00feeim bara fyrir \u00ed alb\u00faminu s\u00ednu heldur birti \u00farklippuna \u00e1 f\u00e9sb\u00f3k.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 einhver ger\u00f0i s\u00edmaat \u00ed samb\u00fdlismanni Hildar Lilliendahl og s\u00edmaati\u00f0 var\u00f0 umsvifalaust a\u00f0 fr\u00e9tt: \u00darklippan af smekklausu skilabo\u00f0unum fylgdi fr\u00e9ttinni. N\u00fa er alls \u00f3v\u00edst hvort sami ma\u00f0ur og skrifa\u00f0i f\u00e9sb\u00f3karumm\u00e6lin st\u00f3\u00f0 einnig fyrir s\u00edmaatinu en tilefni atsins var \u00farklippan me\u00f0 smekklausu umm\u00e6lunum. Um lei\u00f0 og fr\u00e9ttin af \u00fev\u00ed a\u00f0 gert hef\u00f0i veri\u00f0 s\u00edmaat \u00ed samb\u00fdlismanninum \u00fat af smekklausu umm\u00e6lunum birtist linku\u00f0u r\u00e9tthugsandi fem\u00edniskir f\u00e9sb\u00f3karnotendur \u00ed fr\u00e9ttina og \u00fdmis \u00f3smekkleg umm\u00e6li \u00ed gar\u00f0 smekklausa-umm\u00e6la-mannsins m\u00e1tti sj\u00e1 vi\u00f0 svolei\u00f0is linka.<\/p>\n<p>Hi\u00f0 n\u00e6sta sem gerist er a\u00f0 <em>Facebook<\/em> lokar a\u00f0gangi Hildar Lilliendahl \u00ed fj\u00f3r\u00f0a sinn. \u00dea\u00f0 er \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert s\u00e9rlega dularfullt \u00fev\u00ed Hildur Lilliendahl braut notendaskilm\u00e1la <em>Facebook<\/em> \u00ed fj\u00f3r\u00f0a sinn. \u00dea\u00f0 er nefnilega <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/brandpermissions\/screenshots.php\" title=\"skj\u00e1mynd af umm\u00e6lum \u00e1 Facebook\">\u00f3heimilt a\u00f0 birta skj\u00e1skot\u00a0af umm\u00e6lum annars\u00a0Facebook-notanda nema me\u00f0 skriflegu leyfi \u00feess notanda<\/a>. Umsvifalaust birtast fr\u00e9ttir \u00e1 netmi\u00f0lum um a\u00f0 a\u00f0gangi Hildar Lillendahl hafi veri\u00f0 loka\u00f0 \u00ed fj\u00f3r\u00f0a sinn, menn fara mikinn og kalla \u00feetta p\u00f3lit\u00edskar ofs\u00f3knir (af h\u00e1lfu <em>Facebook<\/em> v\u00e6ntanlega) og a\u00f0f\u00f6r a\u00f0 tj\u00e1ningarfrelsinu o.s.fr.\u00a0og me\u00f0fylgjandi eru birt smekklausu umm\u00e6lin sem Hildur Lilliendahl t\u00f3k skj\u00e1mynd af, klippti til og birti. R\u00e9tthugsandi fem\u00edniskir f\u00e9sb\u00f3karnotendur deila n\u00fa \u00feeim fr\u00e9ttum \u00e1kaft og \u00fdmis \u00f3smekkleg umm\u00e6li \u00ed gar\u00f0 smekklausa-umm\u00e6la-mannsins og Facebook m\u00e1 n\u00fa sj\u00e1 vi\u00f0 svolei\u00f0is linka.<\/p>\n<p>Bloggarinn \u00e1g\u00e6ti, Eva Hauksd\u00f3ttir, sem er n\u00fdb\u00fain a\u00f0 blogga skemmtilega f\u00e6rslu um nornabrennur, kyndir n\u00fa\u00a0undir einni sl\u00edkri \u00ed f\u00e6rslunni <a href=\"http:\/\/blog.pressan.is\/evahauks\/2012\/10\/29\/verjum-tjaningarfrelsi-hildar-lilliendahl\/#.UI6Lm5kthis.facebook\" title=\"Eva Hauks um tj\u00e1ningarfrelsi Hildar Lilliendahl\">Verjum tj\u00e1ningarfrelsi Hildar Lilliendahl<\/a>. \u00cd \u00feeirri f\u00e6rslu er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u birt skj\u00e1skot af smekklausu umm\u00e6lunum &#8211; svona ef \u00fea\u00f0 skyldi hafa fari\u00f0 framhj\u00e1 einhverjum &#8211; og Eva hefur skrifa\u00f0, hringt og efnt til undirskriftas\u00f6fnunar, allt til a\u00f0 verja r\u00e9tt Hildar Lilliendahl til a\u00f0 brj\u00f3ta reglur \u00feess amr\u00edska umr\u00e6\u00f0uvettvangs Facebook. Og au\u00f0vita\u00f0 linka r\u00e9tts\u00fdnir fem\u00edniskir f\u00e9sb\u00f3karnotendur \u00ed bloggi\u00f0 Evu og deila \u00e1 s\u00ednum f\u00e9sb\u00f3kum og \u00fdmis \u00f3smekkleg o.s.fr.<\/p>\n<p>Einhverjir eru b\u00fanir a\u00f0 fletta upp \u00f3smekklega skilabo\u00f0amanninum \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0skr\u00e1 og a\u00f0rir hafa flett honum upp \u00e1 ja.is. \u00dea\u00f0 er bara t\u00edmaspursm\u00e1l hven\u00e6r einhverjir r\u00e9tthugsandi tj\u00e1ningarfrelsiselskendur f\u00e6ra sig \u00far s\u00fdndarheimum \u00ed kj\u00f6theima, henda grj\u00f3ti \u00ed h\u00fas mannsins, teppa s\u00edmann hans me\u00f0 h\u00f3tunum, velta honum upp \u00far tj\u00f6ru og fi\u00f0ri e\u00f0a \u00fea\u00f0an af verra. Skj\u00e1skoti\u00f0 af umm\u00e6lum hans lifir \u00e1fram v\u00ed\u00f0a \u00e1 vefnum. L\u00edklega er heppilegast fyrir hann a\u00f0 s\u00e6kja um nafnbreytingu e\u00f0a flytja \u00far landi \u00far \u00fev\u00ed sem komi\u00f0 er: Sk\u00f6mm \u00feessa manns ver\u00f0ur uppi me\u00f0an netheimar byggjast.<\/p>\n<p>Hildur Lilliendahl\u00a0er Pussy Riot \u00cdslands, hlutskipti hennar er jafnvel l\u00edkt vi\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur rith\u00f6fundarins <a href=\"http:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Salman_Rushdie\" title=\"Salman Rushdie\">Salman Rushdie<\/a> e\u00f0a pakist\u00f6nsku st\u00falkunnar <a href=\"http:\/\/www.mbl.is\/frettir\/erlent\/2012\/10\/15\/malala_komin_til_bretlands\/\" title=\"Pakistanska st\u00falkan Malala\">Malala\u00a0Yousafzai<\/a>.\u00a0Hildur\u00a0s\u00e6tir jafn \u00f3maklegum ofs\u00f3knum og \u00feau fyrir sko\u00f0anir s\u00ednar: \u00d3smekklegum f\u00e9sb\u00f3karumm\u00e6lum, s\u00edmaati og f\u00e9sb\u00f3karlokun! E\u00f0a eins og einn a\u00f0d\u00e1andi hennar or\u00f0ar \u00fea\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p>Hins vegar ef vi\u00f0 notum eittha\u00f0 [svo] hlutl\u00e6gt mat \u00e1 hva\u00f0 hetja er \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00fea\u00f0 einmitt einhver sem stendur \u00e1 sinni sannf\u00e6ringu samkv\u00e6mt sinni r\u00e9ttl\u00e6tiskennd, \u00fer\u00e1tt fyrir \u00edtreka\u00f0ar tilraunir til sko\u00f0anak\u00fagunar, \u00fe\u00f6ggunar og h\u00f3tanir um l\u00edkamsmei\u00f0ingar og skemmdarverk. \u00c9g f\u00e6 ekki s\u00e9\u00f0 hver munurinn er \u00e1 Hildi \u00ed \u00feessu sambandi og Salmon [svo] Rushdie e\u00f0a Mal\u00f6lu, Rushdie var a\u00f0eins h\u00f3ta\u00f0, l\u00edkt og Hildi, er hann ekki bara paranoid?<\/p><\/blockquote>\n<p>R\u00e9tts\u00fdnir og r\u00e9tthugsandi netnotendur munu v\u00e6ntanlega halda \u00e1fram a\u00f0 \u00fathr\u00f3pa manninn sem var svo vitlaus a\u00f0 skrifa \u00f3smekkleg f\u00e9sb\u00f3karskilabo\u00f0 um Hildi Lilliendahl og leggja sitt af m\u00f6rkum til \u00feess a\u00f0 Fr. Lillendahl megi brj\u00f3ta reglur <em>Facebook<\/em> vegna \u00feess a\u00f0 m\u00e1lsta\u00f0ur hennar er svo g\u00f6fugur. \u00c9g hugsa a\u00f0 hinir r\u00e9tts\u00fdnu og r\u00e9tthugsandi s\u00e9u fjarskalega miki\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti einelti \u00e1 netinu en finnist \u00ed \u00feessu tilviki \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi a\u00f0 leggja sj\u00e1lfir smekklausa skilabo\u00f0amanninn \u00ed r\u00e6kilegt \u00f3afturkr\u00e6ft einelti &#8230; allt er einelti\u00f0 j\u00fa \u00ed \u00fe\u00e1gu hins g\u00f3\u00f0a m\u00e1lsta\u00f0ar.<\/p>\n<blockquote><\/blockquote>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Undanfarna daga hafa netheimar loga\u00f0 eins og oft gerist og kveikjan er a\u00f0 \u00feessu sinni Hildur Lilliendahl eins og oft gerist. Upphaf m\u00e1ls \u00ed \u00feetta sinn var a\u00f0 Fr. Lilliendahl var talin ein af \u00e1hrifamestu <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/10\/29\/rettlaetir-tjaningarfrelsi-einelti\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[26],"tags":[],"class_list":["post-456","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-netid"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/456","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=456"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/456\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":629,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/456\/revisions\/629"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=456"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=456"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=456"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}