{"id":457,"date":"2012-11-07T21:14:17","date_gmt":"2012-11-07T21:14:17","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-11-07\/fock-litium-og-frettir-dagsins\/"},"modified":"2013-11-21T09:03:45","modified_gmt":"2013-11-21T09:03:45","slug":"fock-litium-og-frettir-dagsins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/11\/07\/fock-litium-og-frettir-dagsins\/","title":{"rendered":"Fock, lit\u00edum og fr\u00e9ttir dagsins"},"content":{"rendered":"<p>\u00deetta er svona sittafhverjut\u00e6i-f\u00e6rsla. \u00c9g \u00e6tti a\u00f0 gera meira af \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa svolei\u00f0is, m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 gaman og slakandi.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.digitaltmuseum.se\/things\/klagoskrift\/S-NM\/NM.0080782\" title=\"B\u00e6narbr\u00e9f Mettu Fock\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/metta_fock.jpg?resize=197%2C132\" alt=\"\u00datsauma\u00f0 br\u00e9f Mettu Fock\" align=\"left\" height=\"132\" width=\"197\" \/><\/a>\u00c9g var a\u00f0 kl\u00e1ra b\u00f3kina <em>Mercurium<\/em> eftir Anne Rosman. Einhverra hluta vegna h\u00e9lt \u00e9g lengi vel a\u00f0 mercurium v\u00e6ri kvikasilfur en \u00ed eftirm\u00e1la kom fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 nota\u00f0 um arsenik (sem ger\u00f0i s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0inn au\u00f0vita\u00f0 mun skiljanlegri). Ein b\u00f3k Rosman hefur veri\u00f0 \u00fe\u00fddd \u00e1 \u00edslensku, \u00fe.e.\u00a0<em>D\u00f3ttir vitavar\u00f0arins<\/em>. \u00c9g f\u00e9kk rafb\u00f3kina <em>Mercurium<\/em> l\u00e1na\u00f0a \u00ed s\u00e6nsku rafb\u00f3ksafni en \u00e6tla m\u00e9r a\u00f0 kaupa fleiri rafb\u00e6kur eftir Anne Rosman, \u00e1 d\u00f6nsku (sem m\u00e9r finnst \u00fe\u00e6gilegra a\u00f0 lesa en s\u00e6nsku).<\/p>\n<p><em>Mercurium<\/em> er a\u00f0 hluta mor\u00f0saga en s\u00fa saga er ekki s\u00e9rlega \u00e1hugaver\u00f0 og raunar var m\u00e9r sl\u00e9tt sama um hver var mor\u00f0inginn &#8230; kom \u00fe\u00f3 gle\u00f0ilega \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 \u00fea\u00f0 var s\u00e1 sem lesandi gruna\u00f0i s\u00edst. A\u00f0alsagan er saga Mettu Fock og gerist \u00ed byrjun 19. aldar. Metta \u00feessi var a\u00f0alborin en giftist einfeldingi og \u00feurfti a\u00f0 vinna h\u00f6r\u00f0um h\u00f6ndum a\u00f0 kotb\u00faskap \u00fev\u00ed karlinn var gagnslaus. H\u00fan missti tv\u00f6 b\u00f6rn og s\u00ed\u00f0an eiginmanninn. S\u00f6gur komust \u00e1 kreik um a\u00f0 Metta hef\u00f0i eitra\u00f0 fyrir \u00feeim me\u00f0 arseniki, magna\u00f0ist s\u00f6gubur\u00f0urinn \u00e6 meir og loks var h\u00fan hneppt \u00ed fangelsi. \u00cd fangelsinu \u00e1tti Metta illa \u00e6vi og \u00e1 endanum j\u00e1ta\u00f0i h\u00fan \u00e1 sig mor\u00f0in og var l\u00edfl\u00e1tin \u00fe\u00f3tt \u00ed <em>Mercurium<\/em> s\u00e9 tekin eindregin afsta\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0h\u00fan hafi veri\u00f0 saklaus.<\/p>\n<p>Metta reyndi a\u00f0 reka sitt m\u00e1l \u00far fangelsinu en svo f\u00f3r a\u00f0 h\u00fan var svipt papp\u00edr og skriff\u00e6rum og h\u00f6f\u00f0 \u00ed algerri einangrun. \u00de\u00e1 greip h\u00fan til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 sauma saman pj\u00f6tlur \u00far eigin kl\u00e6\u00f0um og br\u00f3dera\u00f0i langt b\u00e6narbr\u00e9f til yfirvalda og ba\u00f0 um enduruppt\u00f6ku m\u00e1lsins. B\u00fatur \u00far \u00feessu br\u00e9f s\u00e9st \u00ed upphafi f\u00e6rslunnar, s\u00e9 smellt \u00e1 litlu myndina opnast s\u00ed\u00f0a Norr\u00e6na safnsins \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 me\u00f0 mynd af br\u00e9finu br\u00f3dera\u00f0a og m\u00e1 st\u00e6kka einstaka hluta hennar. M\u00e9r finnst hugmyndaau\u00f0gi Mettu a\u00f0d\u00e1unarver\u00f0 og hannyr\u00f0ah\u00e6fileikar hennar l\u00edka! \u00dev\u00ed mi\u00f0ur kom \u00feetta a\u00f0 litlu haldi.<\/p>\n<p>S\u00e6nskur tr\u00fabad\u00far, Stefan Andersson, hefur sami\u00f0 ball\u00f6\u00f0u um Mettu Fock. H\u00e9r er <a href=\"http:\/\/www.youtube.com\/watch?v=6PDYLQNZzMQ\" title=\"Balla\u00f0an um Mettu Fock\">Youtube myndband af flutningi hans<\/a> og <a href=\"http:\/\/www.stefanandersson.nu\/BILDER\/Text-och-ackord\/Visan-om-Metta-Fock.pdf\" title=\"V\ufffdsan um Mettu Fock\">h\u00e9r er textinn<\/a>. \u00c9g er n\u00e1tt\u00farlega hugfangin af \u00feessari ball\u00f6\u00f0u \u00ed svipinn, n\u00fdb\u00fain a\u00f0 lesa \u00feessa \u00e1g\u00e6tu b\u00f3k.<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p>Sem stendur er \u00e9g a\u00f0 lesa gegnum eigi\u00f0 blogg, er st\u00f6dd\u00a0s\u00ed\u00f0sumars 2006. Sumt er \u00f3tr\u00falega fyndi\u00f0 en \u00e1 heildina er \u00feetta \u00e1takanlegur lestur. \u00deegar \u00e9g ber saman blogg og sj\u00fakrask\u00fdrslur ver\u00f0ur m\u00e9r \u00e6 lj\u00f3sara a\u00f0 \u00feetta er saga um tr\u00fagirni og afneitun, sem sagt ekki skemmtileg saga. \u00c1 hinn b\u00f3ginn mun \u00e9g aldrei ver\u00f0a fr\u00edsk nema \u00e9g kanni \u00feessa s\u00f6gu ofan \u00ed kj\u00f6linn og n\u00e1i fjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 henni: \u00deetta er fyrstasporsvinna \u00feunglyndissj\u00faklings. L\u00edklega er skynsamlegt a\u00f0 vinna hana h\u00e6gt &#8230; en b\u00edtandi.<\/p>\n<p>\u00c9g rakst \u00e1 \u00fdmis gullkorn um l\u00edt\u00edum \u00ed dag. Litarexi var haldi\u00f0 st\u00edft a\u00f0 m\u00e9r \u00e1rum saman, r\u00f6kin voru fyrst \u00feau a\u00f0 l\u00edt\u00edum stillti sveiflur og mundi \u00fe.a.l. koma \u00ed veg fyrir dj\u00fapar \u00feunglyndisd\u00fdfur, a.m.k. grynnka \u00fe\u00e6r, seinna ur\u00f0u r\u00f6kin \u00feau a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti veri\u00f0 me\u00f0 ge\u00f0hvarfas\u00fdki II &#8230; fyrir \u00feeirri sj\u00fakd\u00f3msgreiningu voru\u00a0engin\u00a0haldb\u00e6r r\u00f6k og svo var bakka\u00f0 me\u00f0 hana enda grunar mig a\u00f0 ge\u00f0hvarfas\u00fdki II greining hafi bara veri\u00f0 almennt t\u00edskufyrirbrig\u00f0i \u00e1 t\u00edmabili. Litarex haf\u00f0i aldrei nein \u00e1hrif til b\u00f3ta og mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 fr\u00e6\u00f0i Joanna Montcrieff s\u00e9 \u00e9g ekki betur en \u00e9g hafi veri\u00f0 me\u00f0 snert af l\u00edt\u00edum-eitun \u00e1rum saman. M\u00e1 nefna \u00feetta:<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"3\" face=\"Times New Roman\">\u00dea\u00f0 rifja\u00f0ist upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 fyrir nokkrum \u00e1rum, \u00fe\u00e1 \u00e9g \u00e1t Lit\u00edum, kvarta\u00f0i \u00e9g yfir skj\u00e1lftanum vi\u00f0 minn g\u00f3\u00f0a l\u00e6kni. Honum \u00fe\u00f3tti \u00feetta n\u00fa heldur l\u00e9ttv\u00e6gur skj\u00e1lfti \u00feegar \u00e9g teyg\u00f0i \u00fat hendurnar fyrir hann. F\u00f3lk hefur sj\u00e1lfsagt mismunandi sko\u00f0anir \u00e1 skj\u00e1lfta \u2026 en sj\u00e1lfri finnst m\u00e9r helv. \u00f3\u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 skj\u00e1lfa eins og eftir \u00feriggja daga fyller\u00ed, a\u00f0 geta ekki handskrifa\u00f0, a\u00f0 spila eins og byrjandi \u00e1 pjan\u00f3forti\u00f0 og eiga jafnvel erfitt me\u00f0 a\u00f0 nota lyklabor\u00f0. Kann a\u00f0 vera a\u00f0 svona \u201cnettur\u201d skj\u00e1lfti h\u00e1i konum l\u00edti\u00f0 ef \u00fe\u00e6r konur eru einungis \u00ed h\u00fasverkum (m\u00e9r finnst samt erfitt a\u00f0 klemma \u00fevott \u00e1 sn\u00farur og missti fakt\u00edskt a\u00f0ra hverja klemmuna \u00ed morgun) &#8211; kann a\u00f0 vera a\u00f0 til s\u00e9 f\u00f3lk sem skelfur miklu meira og tekur \u00fev\u00ed me\u00f0 st\u00f6ku \u00e6\u00f0ruleysi &#8211; en \u00feessi bloggynja \u00fej\u00e1ist hvorki af \u00e6\u00f0ruleysi \u00ed \u00f3h\u00f3fi n\u00e9 skorti \u00e1 hobb\u00edum e\u00f0a vitsmunalegri st\u00f6rfum en r\u00e6stingu og \u00fevotti (n\u00fa loksins \u00feegar viti\u00f0 er a\u00f0 skila s\u00e9r svona soldi\u00f0 til baka).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"3\" face=\"Times New Roman\">Hm \u2026 \u00fea\u00f0 m\u00e6tti kannski afsaka \u00feetta me\u00f0 fyrirt\u00ed\u00f0arspennu, st\u00f6\u00f0u himintungla e\u00f0a \u00f6\u00f0ru tilfallandi \u2026 en \u00e9g s\u00e9 ekki betur sj\u00e1lf en \u00feetta s\u00e9 helv. l\u00edt\u00edumi\u00f0! N\u00fa hef \u00e9g leiki\u00f0 samtal vi\u00f0 minn g\u00f3\u00f0a l\u00e6kni og veit a\u00f0 hann mundi annars vegar segja m\u00e9r a\u00f0 gefa \u00feessu lengri t\u00edma, upp \u00e1 a\u00f0 aukaverkanir r\u00e9ni me\u00f0 t\u00edmanum, og hins vegar r\u00e1\u00f0leggja m\u00e9r a\u00f0 taka Rivotril til a\u00f0 sl\u00e1 \u00e1 skj\u00e1lftann ef \u00e1 \u00fearf a\u00f0 halda. Svo myndi hann benda \u00e1 a\u00f0 \u00ed rauninni teldist \u00feetta n\u00fa ekki mikill skj\u00e1lfti \u2026 og \u00e9g mundi fyrtast vi\u00f0 en segja ekki neitt af \u00fev\u00ed \u00e9g kann mig svo vel \u2026 Svo mundi hann segja m\u00e9r l\u00edka a\u00f0 \u00fe\u00e9ttni Lit\u00edums \u00ed bl\u00f3\u00f0t\u00f6kunni \u00ed morgun v\u00e6ri \u00ed minnsta lagi mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00feau millim\u00f3l sem \u00e6skileg \u00feykja og \u00e9g myndi heldur ekki segja neitt vi\u00f0 \u00fev\u00ed heldur horfa veluppalin \u00e1 \u2018ann.<br \/>\n(9. j\u00fan\u00ed 2006.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"3\" face=\"Times New Roman\">Skv. doktor.is er \u00e9g aumingi me\u00f0 \u00f6rsjaldg\u00e6far aukaverkanir, \u00fear segir um Litarex: \u201cAlgengast er a\u00f0 aukaverkanir komi fram \u00ed upphafi me\u00f0fer\u00f0ar en hverfi s\u00ed\u00f0an af sj\u00e1lfu s\u00e9r. \u2026 Algengar: \u00d3gle\u00f0i, ni\u00f0urgangur, t\u00ed\u00f0 \u00fevagl\u00e1t, \u00feorsti og bj\u00fags\u00f6fnun \u00ed l\u00edkamanum me\u00f0 me\u00f0fylgjandi \u00feyngdaraukningu, \u00fereytutilfinning \u00ed h\u00f6ndum og f\u00f3tum. Sumir ver\u00f0a skj\u00e1lfhentir.\u201d<\/font><br \/>\n<font size=\"3\" face=\"Times New Roman\">Aha, svo \u201csumir ver\u00f0a skj\u00e1lfhentir\u201d? \u00c9g skelf \u00f6ll, er n\u00e1nast me\u00f0 munnherkjur af skj\u00e1lfta, gott ef \u00e9g g\u00e6ti ekki talist skj\u00e1lf-f\u00e6tt! S\u00e9 ekki a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 miki\u00f0 a\u00f0 lagast eftir tveggja vikna l\u00edt\u00edum-\u00e1t.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"3\" face=\"Times New Roman\">[- &#8211; -]<\/font><\/p>\n<p><font size=\"3\" face=\"Times New Roman\">N\u00fa veit \u00e9g ekki hvort bj\u00f6rgunarhringurinn um mitti\u00f0 \u00e1 m\u00e9r er \u201cbj\u00fags\u00f6fnun me\u00f0 me\u00f0fylgjandi \u00feyngdaraukningu\u201d e\u00f0a \u00fat af \u201caukinni matarlyst og \u00feyngdaraukningu\u201d. M\u00e9r er reyndar sl\u00e9tt sama um \u00feetta, \u00fea\u00f0 eina sem plagar mig verulega er helv\u00edtis skj\u00e1lftinn, sem \u00e9g sl\u00e6 \u00e1 me\u00f0 r\u00f3andi, sem gerir mig svo r\u00f3lega a\u00f0 \u00e9g ko\u00f0na \u00f6ll ni\u00f0ur og leggst \u00ed b\u00e6li\u00f0 um h\u00e1bjartan daginn (reyndar hefur vi\u00f0ra\u00f0 einkar vel til mi\u00f0degisblunda h\u00e9r \u00e1 su\u00f0vestur-horninu undanfari\u00f0). \u00dar \u00fev\u00ed \u00feessi skj\u00e1lfti er svona hro\u00f0alega sjaldg\u00e6fur \u00fe\u00e1 er \u00feessi bloggynja sennilega einfaldlega svona mikill aumingi. \u00cd m\u00ednum huga skiptir ekki m\u00e1li hvort sk\u00fdringin er r\u00e9tt, \u00feetta er jafn \u00f3\u00fe\u00e6gilegt fyrir \u00fea\u00f0.<br \/>\n(15. j\u00fan\u00ed 2006.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p>&#8212;\u00a0<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttir dagsins komu nokku\u00f0 \u00e1 \u00f3vart, \u00fe.e.a.s. fr\u00e9ttir af \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3rnin hef\u00f0i sagt upp okkar g\u00f3\u00f0a b\u00e6jarstj\u00f3ra. Sk\u00fdringin sem hann gefur sj\u00e1lfur er a\u00f0 einhverjir b\u00e6jarfulltr\u00faar hafi veri\u00f0 or\u00f0nir lei\u00f0ir \u00e1 honum og hann \u00e1 \u00feeim, teki\u00f0 fram a\u00f0 ekki s\u00e9 um forustumenn b\u00e6jarins a\u00f0 r\u00e6\u00f0a (sem n\u00fallar \u00fe\u00e1 \u00fat Svein Kristinsson og eitthva\u00f0 af samfylkingarli\u00f0inu, reikna \u00e9g me\u00f0). M\u00e9r \u00fe\u00e6tti gaman a\u00f0 vita hva\u00f0 hefur eiginlega gengi\u00f0 \u00e1: valta\u00f0i b\u00e6jarstj\u00f3rinn yfir rangan mann \u00ed rangri st\u00f6\u00f0u \u00ed \u00feetta sinn?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deetta er svona sittafhverjut\u00e6i-f\u00e6rsla. \u00c9g \u00e6tti a\u00f0 gera meira af \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa svolei\u00f0is, m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 gaman og slakandi. \u00c9g var a\u00f0 kl\u00e1ra b\u00f3kina Mercurium eftir Anne Rosman. Einhverra hluta vegna h\u00e9lt \u00e9g lengi <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/11\/07\/fock-litium-og-frettir-dagsins\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[15,11],"tags":[],"class_list":["post-457","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur","category-gedlyf"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/457","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=457"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/457\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":628,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/457\/revisions\/628"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=457"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=457"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=457"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}