{"id":461,"date":"2012-11-14T17:36:01","date_gmt":"2012-11-14T17:36:01","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-11-14\/gedlaeknir-dompar-sjuklingi-vegna-bloggs\/"},"modified":"2013-11-21T09:02:35","modified_gmt":"2013-11-21T09:02:35","slug":"gedlaeknir-dompar-sjuklingi-vegna-bloggs","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/11\/14\/gedlaeknir-dompar-sjuklingi-vegna-bloggs\/","title":{"rendered":"Ge\u00f0l\u00e6knir d\u00f6mpar sj\u00faklingi vegna bloggs"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g hef heyrt s\u00f6gur af ge\u00f0l\u00e6knum sem v\u00edsa sj\u00faklingum s\u00ednum \u00e1 dyr tj\u00e1i sj\u00faklingarnir sig um s\u00edna sj\u00fakras\u00f6gu og lesi\u00f0 beina tilvitnun \u00ed me\u00f0fer\u00f0arsamning sem sj\u00faklingi \u00e1 ge\u00f0svi\u00f0i Landsp\u00edtala var gert a\u00f0 undirrita \u00fear sem kom fram a\u00f0 ef sj\u00faklingur tj\u00e1\u00f0i sig um me\u00f0fer\u00f0ina fengi hann ekki frekari me\u00f0fer\u00f0 (sj\u00e1 f\u00e6rslurnar <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-05-14\/hafa-gedsjuklingar-ekki-malfrelsi\/\">Hafa ge\u00f0sj\u00faklingar ekki m\u00e1lfrelsi?<\/a> og <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-05-16\/hafa-gedsjuklingar-ekki-malfrelsi-ii\/\">Hafa ge\u00f0sj\u00faklingar ekki m\u00e1lfrelsi II?<\/a>). M\u00e9r \u00fe\u00f3tti \u00feessi me\u00f0fer\u00f0arsamningur \u00fear sem sj\u00faklingi er gert a\u00f0 afsala s\u00e9r m\u00e1lfrelsi sem tryggt er \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1\u00a0vera merkileg gj\u00f6r\u00f0 en hef haldi\u00f0 til skamms t\u00edma a\u00f0 sagnir um ge\u00f0l\u00e6kna sem fleygja sj\u00faklingum af \u00fev\u00ed \u00feeim hugnast ekki hvernig sj\u00faklingarnir tj\u00e1 sig v\u00e6ru kviks\u00f6gur einar. En n\u00fa hef \u00e9g reynt \u00feetta \u00e1 eigin skinni og um \u00fea\u00f0 fjallar \u00feessi bloggf\u00e6rsla. Svo \u00e9g ver\u00f0i ekki s\u00f6ku\u00f0 um a\u00f0 \u201esegja h\u00e1lfsannleik\u201c eru m\u00e1l rakin \u00ed talsver\u00f0um sm\u00e1atri\u00f0um.<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p>Fr\u00e1 \u00e1rinu 2000 hefur Engilbert Sigur\u00f0sson veri\u00f0 ge\u00f0l\u00e6knir minn, fyrst \u00e1 stofu sem hann rak \u00ed nokkur \u00e1r. Engilbert loka\u00f0i stofunni \u00e1ri\u00f0 2004 \u00feegar hann var ger\u00f0ur a\u00f0 yfirl\u00e6kni \u00e1 deild 32A \u00e1 ge\u00f0svi\u00f0i Landsp\u00edtala og fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma hef \u00e9g s\u00f3tt reglulega vi\u00f0t\u00f6l vi\u00f0 hann \u00e1 g\u00f6ngudeild auk \u00feess a\u00f0 hafa margoft veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 inn \u00e1 deildina sem hann veitir forst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>\u00c9g hef blogga\u00f0 um minn krankleik og l\u00e6knisme\u00f0fer\u00f0 fr\u00e1 \u00e1rinu 2004. \u00c1 t\u00edmabili hampa\u00f0i Engilbert \u00feessu bloggi vi\u00f0 l\u00e6knanema sem oft voru vi\u00f0staddir okkar g\u00f6ngudeildarvi\u00f0t\u00f6l, allt \u00fear til \u00e9g ba\u00f0 hann a\u00f0 h\u00e6tta \u00fev\u00ed. (Engilbert Sigur\u00f0sson hefur kennt l\u00e6knanemum \u00e1rum saman, hann er n\u00fa pr\u00f3fessor \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 l\u00e6knadeild H\u00cd.)<\/p>\n<p>\u00cd mars \u00e1 \u00feessu \u00e1ri rann upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g myndi aldrei n\u00e1 bata me\u00f0 \u00feeim a\u00f0fer\u00f0um sem reyndar hafa veri\u00f0 \u00ed meir en \u00e1ratug, \u00fe.e. lyfjagj\u00f6f og rafl\u00e6kningum.\u00a0\u00c9g h\u00f3f a\u00f0 sko\u00f0a einstaka \u00fe\u00e6tti \u00feessara l\u00e6knisa\u00f0fer\u00f0a og \u00fer\u00f3un sj\u00fakd\u00f3msins (dj\u00faprar endurtekinnar ge\u00f0l\u00e6g\u00f0ar \u00e1n sturlunareinkenna, \u00fe.e.a.s. sv\u00e6sins \u00feunglyndis). \u00c9g nota sj\u00fakrask\u00fdrslur og eigi\u00f0 blogg til verksins enda hafa meir en \u00ferj\u00fa \u00e1r gersamlega \u00feurrkast \u00far minni m\u00ednu, sem er aflei\u00f0ing tveggja raflostme\u00f0fer\u00f0a, og b\u00e6\u00f0i sj\u00fakd\u00f3murinn og mj\u00f6g mikil lyfjagj\u00f6f hafa valdi\u00f0 miklum minnistruflunum. Um \u00feessa vinnu og br\u00e1\u00f0abirg\u00f0ani\u00f0urst\u00f6\u00f0ur skrifa\u00f0i \u00e9g nokkrar f\u00e6rslur, einnig huglei\u00f0ingar um erkit\u00fdpur \u00feunglyndissj\u00faklinga og hversu l\u00edfseigar hugmyndir um \u00fe\u00e6r v\u00e6ru, um eigin ford\u00f3ma og um hvernig v\u00e6ri a\u00f0 h\u00e6tta \u00e1 benz\u00f3d\u00edazep\u00edn lyfinu Rivotril sem m\u00e9r hefur veri\u00f0 \u00e1v\u00edsa\u00f0 \u00ed 9 \u00e1r. \u00deessi sko\u00f0un \u00e1 s\u00f6gunni minni er einn \u00fe\u00e1tturinn \u00ed n\u00fdrri lei\u00f0 sem \u00e9g\u00a0reyni til a\u00f0 n\u00e1\u00a0bata og vir\u00f0ist virka, vel\u00feekkt lei\u00f0 \u00ed bataferli \u00f3virkra alk\u00f3h\u00f3lista.<\/p>\n<p>\u00deann 20. apr\u00edl sl.\u00a0hringdi Engilbert Sigur\u00f0sson \u00ed mig s\u00ed\u00f0la dags og tj\u00e1\u00f0i \u00f3\u00e1n\u00e6gju s\u00edna me\u00f0 nokkrar bloggf\u00e6rslur m\u00ednar. M\u00e9r skildist a\u00f0 a\u00f0allega v\u00e6ri hann \u00f3s\u00e1ttur vi\u00f0 tvennt: A\u00f0 upplifun hans af sj\u00fakd\u00f3mi m\u00ednum v\u00e6ri ekki s\u00fa sama og upplifun m\u00edn og a\u00f0 \u00e9g l\u00e9ti \u00feess ekki geti\u00f0 \u00ed bloggf\u00e6rslum a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i \u00feegi\u00f0 vi\u00f0talsme\u00f0fer\u00f0 hj\u00e1 honum. \u00c9g \u00fatsk\u00fdr\u00f0i fyrir honum a\u00f0 bloggf\u00e6rslur sn\u00e9rust yfirleitt um eitt e\u00f0a tv\u00f6 umfj\u00f6llunarefni og \u00feessar hef\u00f0u ekki sn\u00faist um vi\u00f0talsme\u00f0fer\u00f0, svo bau\u00f0st \u00e9g til a\u00f0 panta og grei\u00f0a vi\u00f0talst\u00edma ef hann vildi r\u00e6\u00f0a \u00feetta augliti til auglitis. \u00dea\u00f0 vildi hann ekki en benti \u00e1 a\u00f0 e.t.v. v\u00e6ri heppilegt fyrir mig a\u00f0 skipta um ge\u00f0l\u00e6kni.\u00a0\u00c9g \u00feakka\u00f0i honum upp\u00e1stunguna. \u00deetta var meir en klukkustundar langt s\u00edmtal en a\u00f0 \u00fev\u00ed loknu taldi \u00e9g mig hafa \u00fatsk\u00fdrt n\u00e6gilega vel a\u00f0 bloggf\u00e6rslur m\u00ednar v\u00e6ru um mig og minn sj\u00fakd\u00f3m en ekki um Engilbert, sem aldrei hefur veri\u00f0 nafngreindur \u00e1 \u00feessu bloggi fyrr en \u00ed n\u00fana \u00feessari f\u00e6rslu. \u00cd vi\u00f0talst\u00edma \u00feann 19. september s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn nefndi Engilbert hins vegar a\u00f0 s\u00e9r hef\u00f0i brug\u00f0i\u00f0 \u00feegar hann s\u00e1 vitna\u00f0 \u00ed sj\u00fakrask\u00fdrslur \u00ed \u00feessum f\u00e6rslum \u00ed apr\u00edl. \u00de\u00e6r tilvitnanir eru a\u00f0allega upptalning \u00e1 lyfjask\u00f6mmtum sem\u00a0m\u00e9r voru \u00e1v\u00edsa\u00f0ir\u00a0\u00e1rin 2007 og 2009.<\/p>\n<p>\u00cd septemberlok barst m\u00e9r \u00e1byrg\u00f0arbr\u00e9f fr\u00e1 Engilbert Sigur\u00f0ssyni, dagsett 27. september \u00ed Reykjav\u00edk en p\u00f3stlagt \u00ed hans heimab\u00e6, \u00ed umslagi Landsp\u00edtala H\u00e1sk\u00f3lasj\u00fakrah\u00fass. Fyrir ne\u00f0an undirskrift s\u00edna hefur Engilbert slegi\u00f0 inn Ge\u00f0deild Landsp\u00edtala, 101 Reykjav\u00edk. \u00deetta er 6 bls. br\u00e9f, d\u00e1l\u00edti\u00f0\u00a0ruglingslegt og st\u00f3r hluti \u00feess eru endursagnir \u00e1 k\u00f6flum \u00ed sj\u00fakraskr\u00e1 \u00feeirri sem Engilbert Sigur\u00f0sson h\u00e9lt um mig \u00e1 \u00e1runum 2000-2004. \u00c9g bar saman \u00feessar endursagnir vi\u00f0 sj\u00fakraskr\u00e1na og komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r eru \u00f3n\u00e1kv\u00e6mar og sums sta\u00f0ar r\u00e9ttu m\u00e1li halla\u00f0, jafnvel rangt haft eftir, en \u00fear fyrir utan skil \u00e9g ekki hva\u00f0 b\u00fatar \u00far 8-12 \u00e1ra gamalli sj\u00fakraskr\u00e1 koma m\u00e1linu vi\u00f0 og \u00fea\u00f0 liggur ekki \u00ed augum uppi vi\u00f0 lestur br\u00e9fsins.<\/p>\n<p>\u00cd upphafi br\u00e9fsins segir Engilbert a\u00f0 hann hafi \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 k\u00edkja \u00e1 bloggi\u00f0 mitt \u00ed g\u00e6r af \u00fev\u00ed \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti hafi \u00e9g bo\u00f0i\u00f0 grei\u00f0slu fyrir vottor\u00f0 sem \u00e9g hafi ekki \u00e1\u00f0ur \u00feurft a\u00f0 borga fyrir: \u201eM\u00e9r \u00fe\u00f3tti \u00feetta \u00f3vanalegt &#8230; og velti fyrir m\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 endurspegla\u00f0i breytta l\u00ed\u00f0an.\u201c Svo sko\u00f0a\u00f0i hann f\u00e6rsluna <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-09-24\/af-rivotril-troppun-og-frahvorfum\/\">Af Rivotril-tr\u00f6ppun og fr\u00e1hv\u00f6rfum<\/a> og \u201evar satt a\u00f0 segja nokku\u00f0 brug\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 \u00feennan lestur\u201c. \u00deau atri\u00f0i sem Engilbert br\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 voru:<\/p>\n<ul>\n<li>a\u00f0 l\u00e6knan\u00famer s\u00e1st \u00e1 lj\u00f3smynd af Rivotril-glasi;<\/li>\n<li>a\u00f0 \u00e9g seg\u00f0ist yfirleitt hafa reynt a\u00f0 taka minna af Rivotril en l\u00e6kninum hef\u00f0i \u00fe\u00f3tt r\u00e1\u00f0legt;<\/li>\n<li>a\u00f0 \u00e9g \u201efullyr\u00f0i[r] og set[ur] \u00ed blogg\u201c a\u00f0 l\u00e6knirinn hef\u00f0i sagt a\u00f0 bens\u00f3ni\u00f0urtr\u00f6ppun t\u00e6ki 4-6 vikur en hann hef\u00f0i sagt \u00ed vi\u00f0talst\u00edma \u00feann 19. september a\u00f0 svolei\u00f0is ni\u00f0urtr\u00f6ppun t\u00e6ki 6-8 vikur;<\/li>\n<li>a\u00f0 hann hef\u00f0i aldrei sagt a\u00f0 kj\u00e1lkaverkur \u201eg\u00e6ti ekki stafa\u00f0 af sl\u00edku fr\u00e1hvarfi, \u00e9g sag\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri sjaldg\u00e6ft &#8230;\u201c;<\/li>\n<li>a\u00f0 \u00e9g hafi sagt a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i ekki stu\u00f0ning ge\u00f0l\u00e6knis m\u00edns vi\u00f0 a\u00f0 trappa ni\u00f0ur Rivotril \u00e1 n\u00edu m\u00e1nu\u00f0um eftir n\u00edu \u00e1ra notkun \u00feess: \u201eFullyr\u00f0ing \u00fe\u00edn um a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir &#8220;engan stu\u00f0ning vi\u00f0 \u00feetta baks&#8221; d\u00e6mir sig sj\u00e1lf\u201c og Engilbert minnir \u00e1 a\u00f0 \u00e9g hafi ekki r\u00e6tt \u00e1form m\u00edn um a\u00f0 vilja trappa ni\u00f0ur Rivotril vi\u00f0 sig heldur vi\u00f0 heimilisl\u00e6kni \u00e1 Akranesi.<\/li>\n<\/ul>\n<p>Undir lok br\u00e9fsins segir:<\/p>\n<blockquote><p>A\u00f0 \u00feessu s\u00f6g\u00f0u er lj\u00f3st a\u00f0 ekki er n\u00e6gilegt traust lengur \u00e1 milli okkar til a\u00f0 \u00fea\u00f0 getir veri\u00f0 grunnur a\u00f0 me\u00f0fer\u00f0arsambandi l\u00e6knis og sj\u00faklings. \u00c9g mun \u00e1fram gera vottor\u00f0 sem tengjast \u00feeim t\u00edma sem \u00fe\u00fa hefur veri\u00f0 \u00ed samskiptum vi\u00f0 mig en s\u00e9 m\u00e9r ekki f\u00e6rt a\u00f0 vera \u00feinn l\u00e6knir. \u00deurfir\u00f0u \u00e1 innl\u00f6gnum a\u00f0 halda ertu sem fyrr velkomin \u00e1 deild 32A en \u00e9g ver\u00f0 ekki l\u00e6knir \u00feinn \u00e1 deildinni af s\u00f6mu \u00e1st\u00e6\u00f0u.<\/p><\/blockquote>\n<p>Sama dag og m\u00e9r barst br\u00e9fi\u00f0 breytti \u00e9g lj\u00f3smyndinni og blokka\u00f0i l\u00e6knan\u00famer \u00e1 Rivotril-glasinu \u00fe\u00f3tt \u00e9g telji a\u00f0 \u00e9g hafi fullan r\u00e9tt \u00e1 a\u00f0 birta lj\u00f3smynd af t\u00f6fluglasi \u00ed minni eigu. Menn geta svo bori\u00f0 saman bloggf\u00e6rsluna vi\u00f0 \u00feau atri\u00f0i sem Engilbert br\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1, f\u00e6rslunni hefur ekki veri\u00f0 breytt.<\/p>\n<p>Daginn eftir skrifa\u00f0i \u00e9g P\u00e1li Matth\u00edassyni, framkv\u00e6mdarstj\u00f3ra ge\u00f0svi\u00f0s Landsp\u00edtala H\u00e1sk\u00f3lasj\u00fakrah\u00fass, og kvarta\u00f0i undan \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e6knir \u00e1 r\u00edkisreknu sj\u00fakrah\u00fasi tilkynnti sj\u00faklingi a\u00f0 hann v\u00e6ri h\u00e6ttur a\u00f0 vera l\u00e6knirinn sj\u00faklingsins vegna \u00feess a\u00f0 honum l\u00edka\u00f0i ekki bloggf\u00e6rsla sj\u00faklingsins, \u00e1n \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 geta bent \u00e1 nein haldb\u00e6r r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 a\u00f0 l\u00e6kninum v\u00e6ri vegi\u00f0. <b>Getur l\u00e6knir \u00e1 r\u00edkissp\u00edtala sagt upp sj\u00faklingi a\u00f0 ge\u00f0\u00fe\u00f3tta s\u00ednum?<\/b>, var spurning m\u00edn til P\u00e1ls. \u00c9g t\u00f3k sk\u00fdrt fram a\u00f0 okkur Engilbert Sigur\u00f0sson greindi ekki \u00e1 um a\u00f0 affaras\u00e6last v\u00e6ri fyrir mig a\u00f0 f\u00e1 annan ge\u00f0l\u00e6kni, enda hef\u00f0i hann r\u00e1\u00f0lagt m\u00e9r \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur \u00ed apr\u00edl og \u00e9g reynt a\u00f0 fara a\u00f0 \u00feeim r\u00e1\u00f0leggingum, enn\u00a0\u00e1n \u00e1rangurs. Vi\u00f0 t\u00f3ku br\u00e9faskipti n\u00e6stu vikurnar. Af \u00feeim br\u00e9faskiptum var lj\u00f3st a\u00f0 P\u00e1ll vildi ekki taka afst\u00f6\u00f0u til m\u00e1lsins og \u00fev\u00ed v\u00edsa\u00f0i \u00e9g \u00feessu m\u00e1li til emb\u00e6ttis Landl\u00e6knis \u00fear sem \u00fea\u00f0 er til me\u00f0fer\u00f0ar.<\/p>\n<p>Laust eftir h\u00e1degi sama dag og \u00e9g sendi P\u00e1li Matth\u00edassyni t\u00f6lvup\u00f3st og kvarta\u00f0i barst m\u00e9r t\u00f6lvup\u00f3stur fr\u00e1 Engilbert Sigur\u00f0ssyni, sent af netfangi hans \u00e1 Landsp\u00edtala. \u00dear segir hann eftirfarandi:<\/p>\n<ul>\n<li>a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 minn misskilningur a\u00f0 hann hafi sent \u00e1byrg\u00f0arbr\u00e9fi\u00f0 vegna bloggf\u00e6rslu og telur s\u00ed\u00f0an upp eftirfarandi atri\u00f0i:<\/li>\n<li>a\u00f0 endurteki\u00f0 hafi \u00ed samt\u00f6lum okkar bori\u00f0 \u00e1 g\u00f3ma \u201eskipti \u00e1 me\u00f0fer\u00f0ara\u00f0ila \u00ed gegnum \u00e1rin\u201c allt fr\u00e1 \u00e1rinu 2006 en \u00e9g hafi ekki vilja\u00f0 skipta;<\/li>\n<li>a\u00f0 \u00e9g hafi hitt s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ing \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 Engilbert \u00ed tv\u00edgang \u201een H byrja\u00f0ir\u00f0u a\u00f0 hitta sj\u00e1lf \u00e1 \u00feessu \u00e1ri (\u00e1n samr\u00e1\u00f0s vi\u00f0 mig sem er frekar \u00f3vanalegt ef sj\u00faklingur telur sig treysta s\u00ednum ge\u00f0l\u00e6kni &#8211; \u00fe\u00e1 er hef\u00f0in s\u00fa a\u00f0 uppl\u00fdsa sinn l\u00e6kni a.m.k. um \u00fe\u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0t\u00f6l hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum me\u00f0fer\u00f0ara\u00f0ila hefjast).\u201c;<\/li>\n<li>a\u00f0 \u00e9g hafi l\u00fdst \u00fev\u00ed yfir \u00ed vi\u00f0tali \u00feann 19. september a\u00f0 \u00e9g hafi eing\u00f6ngu komi\u00f0 til a\u00f0 f\u00e1 tv\u00f6 vottor\u00f0 og afrit af \u00feeim;<\/li>\n<li>\u00a0a\u00f0 \u00e9g hafi b\u00f3ka\u00f0 vi\u00f0talst\u00edma me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti en \u00e1\u00f0ur, \u00fe.e.a.s. hringt og panta\u00f0 t\u00edma \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 hafa samband vi\u00f0 Engilbert \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti og bi\u00f0ja um t\u00edma;<\/li>\n<li>a\u00f0 \u00e9g hafi \u00feann 19. september sagst vera \u00e1 bi\u00f0lista hj\u00e1 tveimur ge\u00f0l\u00e6knum og \u201e\u00de\u00fa haf\u00f0ir ekki be\u00f0i\u00f0 mig um r\u00e1\u00f0 var\u00f0andi hva\u00f0a kollegum m\u00ednum \u00e9g myndi helst treysta til a\u00f0 freista \u00feess a\u00f0 m\u00e6ta me\u00f0fer\u00f0ar\u00fe\u00f6rfum \u00fe\u00ednum l\u00edkt og \u00fe\u00fa treystir m\u00e9r ekki til a\u00f0 hafa sko\u00f0un \u00e1 \u00fev\u00ed.\u201c;<\/li>\n<li>a\u00f0 \u00e9g hafi kvarta\u00f0 undan \u201eni\u00f0urst\u00f6\u00f0u [\u00e1byrg\u00f0ar]br\u00e9fsins vi\u00f0 P\u00e1l Matth\u00edasson\u201c en \u201eS\u00fa ni\u00f0ursta\u00f0a er \u00fe\u00f3 \u00ed raun ekki anna\u00f0 en sta\u00f0festing \u00feess sem or\u00f0i\u00f0 er og \u00e6tti ekki a\u00f0 koma \u00e1 \u00f3vart.\u201c<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00cd sj\u00fakraskr\u00e1 sem Engilbert Sigur\u00f0sson f\u00e6r\u00f0i um mig fr\u00e1 \u00e1rinu 2000\u00a0til \u00e1ram\u00f3ta 2011\/2012\u00a0er \u00feess hvergi geti\u00f0 a\u00f0 \u201eskipti \u00e1 me\u00f0fer\u00f0ara\u00f0ila\u201c hafi bori\u00f0 \u00e1 g\u00f3ma, ekki heldur \u00e1 m\u00ednu bloggi. \u00de\u00f3tt minni mitt s\u00e9 brig\u00f0ult fr\u00e1 \u00fev\u00ed um mitt \u00e1r 2004\u00a0fram undir \u00e1ram\u00f3tin 2011\/2012 hefur ma\u00f0urinn minn st\u00e1lminni og \u00e9g hef alltaf sagt honum hva\u00f0 okkur Engilbert f\u00f3r \u00e1 milli eftir hvern vi\u00f0talst\u00edma. Hann rekur minni til \u00feess a\u00f0 \u201eskipti \u00e1 me\u00f0fer\u00f0ara\u00f0ila\u201c hafi einu sinni veri\u00f0 r\u00e6dd, \u00feegar \u00e9g vildi ekki hefja Marplan-t\u00f6ku sem Engilbert var \u00e1fram um a\u00f0 \u00e9g pr\u00f3fa\u00f0i, sem \u00e1 \u00fe\u00e1 vi\u00f0 \u00fatm\u00e1nu\u00f0i \u00e1ri\u00f0 2010.<\/p>\n<p>Hafandi litla reynslu af ge\u00f0l\u00e6knum \u00f6\u00f0rum en Engilbert Sigur\u00f0ssyni kann \u00e9g ekki skil \u00e1 \u00feeirri hef\u00f0 sem hann v\u00edsar \u00ed var\u00f0andi s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ivi\u00f0t\u00f6l. \u00c9g hef hins vegar fari\u00f0 \u00e1 HAM-n\u00e1mskei\u00f0 vi\u00f0 kv\u00ed\u00f0a, pr\u00f3fa\u00f0 n\u00e1lastungur og unni\u00f0 sporavinnu \u00e1 \u00feeim t\u00edma sem \u201eme\u00f0fer\u00f0arsamband\u201c okkar Engilberts hefur vara\u00f0 og sagt honum af \u00fev\u00ed eftir \u00e1, \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa merkt a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi valdi\u00f0 honum hugarangri.<\/p>\n<p>Vissulega sag\u00f0i \u00e9g: \u201e\u00c9g kom bara til a\u00f0 f\u00e1 vottor\u00f0\u201c \u00feegar \u00e9g hitti Engilbert \u00feann 19. september en \u00fea\u00f0 var n\u00fa ekki hugsa\u00f0 sem s\u00e9rst\u00f6k yfirl\u00fdsing, kannski frekast sk\u00fdring \u00e1 a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri m\u00e6tt \u00ed vi\u00f0talst\u00edma til hans. Og \u00e9g leiddi svo sannarlega ekki hugann a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 panta vi\u00f0talst\u00edma \u00e1 g\u00f6ngudeild ge\u00f0svi\u00f0s Landsp\u00edtala gegnum skiptibor\u00f0 Landsp\u00edtalans m\u00e6tti t\u00falka sem eitthva\u00f0 anna\u00f0 en a\u00f0 panta t\u00edma \u00ed gegnum s\u00edma.<\/p>\n<p>\u00c9g sag\u00f0i aldrei a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00e1 bi\u00f0lista hj\u00e1 tveimur ge\u00f0l\u00e6knum enda var \u00e9g ekki \u00e1 neinum bi\u00f0listum. Aftur \u00e1 m\u00f3ti sag\u00f0ist \u00e9g hafa reynt a\u00f0 hl\u00edta r\u00e1\u00f0um Engilberts sem hann gaf \u00ed s\u00edmtalinu \u00ed apr\u00edl og hef\u00f0i reynt a\u00f0 komast a\u00f0 hj\u00e1 tveimur ge\u00f0l\u00e6knum \u00e1n \u00e1rangurs og vildi \u00fev\u00ed gjarna vera hj\u00e1 honum \u00e1fram. Engilbert hefur aldrei vi\u00f0ra\u00f0 neina sko\u00f0un \u00e1 \u00fev\u00ed til hva\u00f0a ge\u00f0l\u00e6knis \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 leita n\u00e9 bo\u00f0i\u00f0 fram s\u00edna a\u00f0sto\u00f0 \u00ed \u00feeim efnum, hvorki \u00ed \u00feeim m\u00f6rgu t\u00f6lvup\u00f3stum sem hann hefur skrifa\u00f0 m\u00e9r \u00e1 \u00feessu \u00e1ri n\u00e9 \u00ed s\u00edmtalinu \u00ed apr\u00edl \u00feegar hann r\u00e1\u00f0lag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 skipta um l\u00e6kni.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hafi kvarta\u00f0 undan \u00fev\u00ed vi\u00f0 yfirmann Engilberts Sigur\u00f0ssonar a\u00f0 Engilbert tilkynnti m\u00e9r a\u00f0 hann v\u00e6ri h\u00e6ttur a\u00f0 vera minn l\u00e6knir a\u00f0 ge\u00f0\u00fe\u00f3tta s\u00ednum en engum haldb\u00e6rum r\u00f6kum eru vitaskuld ekki r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Engilbert geti tilkynnt a\u00f0 hann s\u00e9 h\u00e6ttur a\u00f0 vera minn l\u00e6knir &#8230;<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><b>Sta\u00f0a m\u00e1la n\u00fa<\/b><\/p>\n<p>\u00c9g hef lagt inn formlega kv\u00f6rtun til Landl\u00e6knisemb\u00e6ttisins me\u00f0 \u00fdmsum fylgiskj\u00f6lum. S\u00fa kv\u00f6rtun hefur veri\u00f0 tekin til me\u00f0fer\u00f0ar en svolei\u00f0is me\u00f0fer\u00f0 tekur marga m\u00e1nu\u00f0i, kannski \u00e1r. \u00dea\u00f0 er \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi m\u00edn vegna \u00fev\u00ed mikilv\u00e6gast er a\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed ver\u00f0i skori\u00f0 hvort ge\u00f0l\u00e6knir geti sagt upp s\u00ednum sj\u00faklingi a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist vegna \u00feess a\u00f0 honum hugnast ekki hvernig sj\u00faklingurinn bloggar um s\u00edna eigin sj\u00fakras\u00f6gu, l\u00ed\u00f0an og hugrenningar. \u00darskur\u00f0ur um \u00feetta m\u00e1l er mikilv\u00e6gur \u00f6llum \u00feeim ge\u00f0sj\u00faklingum sem vilja tj\u00e1 sig um sinn sj\u00fakd\u00f3m og l\u00e6knisme\u00f0fer\u00f0 vi\u00f0 honum, hvort sem \u00feeir tj\u00e1 sig \u00e1 bloggi e\u00f0a me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti. \u00c9g get sj\u00e1lf alls ekki s\u00e9\u00f0 hvernig ath\u00f6fn Engilberts samr\u00fdmist l\u00f6gum um r\u00e9ttindi sj\u00faklinga, l\u00e6knal\u00f6gum e\u00f0a <a href=\"http:\/\/www.landlaeknir.is\/servlet\/file\/store93\/item2749\/2758.pdf\">\u00e1bendingum Landl\u00e6knisemb\u00e6ttisins um g\u00f3\u00f0a starfsh\u00e6tti l\u00e6kna<\/a>, auk \u00feess sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a\u00a0m\u00e1lfrelsi mitt, sem\u00a0tryggt er \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1,\u00a0og \u00e9g get ekki sam\u00feykkt a\u00f0 s\u00e9\u00a0h\u00e1\u00f0 forr\u00e6\u00f0i ge\u00f0l\u00e6knis m\u00edns (e\u00f0a hva\u00f0a annars l\u00e6knis sem er). En \u00e9g er ekki l\u00f6gl\u00e6r\u00f0 og \u00fev\u00ed finnst m\u00e9r gott a\u00f0 Landl\u00e6knisemb\u00e6tti\u00f0 skuli ganga \u00far skugga um \u00feetta.<\/p>\n<p>Svona m\u00e1l bar a\u00f0eins \u00e1 g\u00f3ma \u00e1 n\u00fdafst\u00f6\u00f0nu m\u00e1l\u00feingi L\u00e6knaf\u00e9lags \u00cdslands, sem haldi\u00f0 var 18. og 19. okt\u00f3ber, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/tolublod\/2012\/11\/nr\/4671\">Mikilv\u00e6gt a\u00f0 g\u00e6ta var\u00fa\u00f0ar \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum &#8211; af m\u00e1l\u00feingi L\u00cd<\/a> eftir H\u00e1var Sigurj\u00f3nsson, \u00ed <i>L\u00e6knabla\u00f0inu<\/i> 11. tbl. 98. \u00e1rg. 2012.\u00a0 \u00dear vir\u00f0ist l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur L\u00e6knaf\u00e9lags \u00cdslands, D\u00f6gg P\u00e1lsd\u00f3ttir, hafa \u00farskur\u00f0a\u00f0 a\u00f0\u00a0s\u00e9 l\u00e6knir \u00f3s\u00e1ttur vi\u00f0 tj\u00e1ningu sj\u00faklings \u00e1 netinu g\u00e6ti hann sagt upp \u201etr\u00fana\u00f0arsambandi\u201c vi\u00f0 sj\u00faklinginn, sem er vitaskuld merkileg n\u00fd t\u00falkun \u00e1 \u00feeim l\u00f6gum sem \u00e9g nefndi h\u00e9r a\u00f0 ofan.\u00a0Einnig m\u00e1 spyrja sig hvort s\u00e1 sem notar opinbera \u00fej\u00f3nustu teljist gera \u201eme\u00f0fer\u00f0arsamninga\u201c e\u00f0a \u201etr\u00fana\u00f0arsamninga\u201c vi\u00f0 einstaka opinbera starfsmenn og v\u00e6ri gaman a\u00f0\u00a0vita\u00a0hvort hugmyndir um sl\u00edkt standist landsl\u00f6g. \u00cd greininni er haft or\u00f0r\u00e9tt eftir D\u00f6gg, \u00fear sem h\u00fan r\u00e6\u00f0ir fyrirspurnir \u00far sal:<\/p>\n<blockquote><p>Fram kom \u00ed umr\u00e6\u00f0um um \u00feetta efni a\u00f0 stundum v\u00e6ru \u00fea\u00f0 sj\u00faklingar sem birtu uppl\u00fdsingar um sj\u00fakras\u00f6gu s\u00edna \u00e1 netinu og l\u00fdstu \u00fear \u00f3hika\u00f0 reynslu sinni af me\u00f0fer\u00f0 og l\u00e6knisheims\u00f3knum. \u00dear v\u00e6ri stundum fari\u00f0 rangt me\u00f0 sta\u00f0reyndir og sag\u00f0ur h\u00e1lfsannleikur en l\u00e6knar \u00e6ttu mj\u00f6g erfitt me\u00f0 a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 sl\u00edku og hvort \u00fea\u00f0 hef\u00f0i ekki afgerandi \u00e1hrif \u00e1 tr\u00fana\u00f0arsamband l\u00e6knis og sj\u00faklings.<\/p>\n<p>D\u00f6gg sag\u00f0i \u00feetta sannarlega vandam\u00e1l en h\u00fan v\u00e6ri \u00fe\u00f3 ekki samm\u00e1la \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e6knir m\u00e6tti ekki svara ef sj\u00faklingur er b\u00fainn a\u00f0 vi\u00f0ra samskipti s\u00edn vi\u00f0 l\u00e6kni opinberlega. \u201eHvort \u00fea\u00f0 \u00fej\u00f3nar tilgangi er anna\u00f0 m\u00e1l. \u00c9g hef alltaf haldi\u00f0 \u00fev\u00ed fram a\u00f0 ef sj\u00faklingur opnar fyrir s\u00edna sj\u00fakras\u00f6gu felst \u00ed \u00fev\u00ed \u00e1kve\u00f0i\u00f0 sam\u00feykki hans fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 opinberlega s\u00e9 um hana fjalla\u00f0. L\u00e6knar hafa s\u00ed\u00f0an \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0 a\u00f0 segja upp sl\u00edku tr\u00fana\u00f0arsambandi.\u201c<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef heyrt s\u00f6gur af ge\u00f0l\u00e6knum sem v\u00edsa sj\u00faklingum s\u00ednum \u00e1 dyr tj\u00e1i sj\u00faklingarnir sig um s\u00edna sj\u00fakras\u00f6gu og lesi\u00f0 beina tilvitnun \u00ed me\u00f0fer\u00f0arsamning sem sj\u00faklingi \u00e1 ge\u00f0svi\u00f0i Landsp\u00edtala var gert a\u00f0 undirrita \u00fear sem <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/11\/14\/gedlaeknir-dompar-sjuklingi-vegna-bloggs\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[25],"tags":[],"class_list":["post-461","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-thunglyndid"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/461","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=461"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/461\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":624,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/461\/revisions\/624"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=461"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=461"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=461"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}